Nach Genre filtern

Ólafssynir í Undralandi

Ólafssynir í Undralandi

Útvarp 101

Í Undralandi Ólafssona er allt morandi í kanínuholum. Aron og Arnar reyna að tipla á tánum í kringum þær en eiga það til annað slagið að falla ofan í þær með tilheyrandi pælingum og vitleysu. Í Undralandi eru þó ekki einungis kanínuholur heldur líka fullt af glensi og meðþví!

186 - Við erum öll á leiðinni á bætur
0:00 / 0:00
1x
  • 186 - Við erum öll á leiðinni á bætur

    Já kæru Undralendingar nær og fjær. Spotify bannaði okkur að nota Kiss From a Rose, en tæplega 400 ykkar svöruðu könnuninni sem bætir það upp. Umræðuefni dagsins eru borgaralaun (UBI) og eins og venjulega fóru Ólafssynir um víðan völl, allt frá samsæriskenningum um Covid yfir í mennska heila í sullkeri og tvo bræður á Ísafirði sem urðu milljónamæringar á því að lána skúrana sína. Spá þáttarins: borgaralaun fyrir 2035. Farið með það á koddan. Samstarfsaðilar þáttarins eru: Teya: https://www....

    Sun, 25 Oct 2026
  • 185 - Ungur að eilífu

    Já kæru Undralendingar, þá er komið að þriðja þætti seinni hálfleiks hjá okkur Ólafssonum. Í þætti dagsins förum við um víðan völl, allt frá eilífu lífi og Teslu sem keyrir á hvolfi yfir í þunglynd dýr og dauða internetsins. 56 mínútur af heilavíkkun kæru vinir. Verið góð hvort við annað! Samstarfsaðilar þáttarins eru: Teya: https://www.teya.com/is/ Serrano: https://serrano.is/ Happatreyjur: https://happatreyjur.is/ Reykjavík Foto: https://reykjavikfoto.is/ Umræðuefni: 0:00 Söngur og live s...

    Sun, 18 Oct 2026
  • 183 - Margt leynist í regnskóginum

    Já kæru Undralendingar. Í þætti dagsins fylgjast Ólafssynir með svaðilför Ash Dykes, sem lagður er af stað niður Kongó á uppblásnum kajak, og fara yfir allt sem gæti mögulega drepið hann sem er mjög margt. Svo eru pælingar um frumbyggja og glataða þekkingu og hvort Aron sé í alvörunni handlaginn. Einnig kemur í ljós að einhver braust inn í bíl og stal engu nema Undralandspeysunni. Verið góð hvort við annað. Samstarfsaðilar þáttarins eru: Teya: https://www.teya.com/is/ Serrano: https://serran...

    Sun, 11 Oct 2026
  • 182 - WE ARE SO BACK

    Kæru vinir. Ólafssynir eru mættir til leiks á ný eftir rúmlega eins árs pásu, nú með látum, í hljóði og mynd! Samstarfsaðilar þáttarins eru: Teya: https://www.teya.com/is/ Serrano: https://serrano.is/ Happatreyjur: https://happatreyjur.is/

    Sun, 04 Oct 2026
  • 181 - Jólaspecial (ft. Steindi Jr., Stjörnu-Sævar & Teboðið)

    Kæru Undralendingar! Við Ólafssynir ákváðum að snúa aftur í tilefni jólanna þó svo að innihaldið sé nú ekkert sérstaklega jólalegt! Við fengum frábæra gesti með okkur í lið og úr varð 2 og hálfur tími af Undralandi. Góða hlustun og gleðileg jól!

    Sun, 14 Dec 2025
Weitere Folgen anzeigen