Nach Genre filtern
Vísir

- 33 - Innherji - Brotthvarf Harðar frá Landsvirkjun
Skyndilegt brotthvarf forstjóra Landsvirkjunar og ládeyða á hlutabréfamarkaði er í brennidepli í fyrsta hlaðvarpsþætti Innherja þar sem farið er um víðan völl. Birgir Olgeirsson fréttamaður og Hörður Ægisson ritstjóri Innherja fá Ólaf Sigurðsson framkvæmdastjóra Birtu lífeyrissjóðs í heimsókn.
Tue, 27 Oct 2026 - 32 - Í bóli Bjarnars - Tolli
Myndlistarmaðurinn Tolli Morthens skefur ekki af því frekar en fyrri daginn. Hann skautar yfir ferilinn, segir af Íkarusi og samstarfinu við Megas, því að hann hafi ekki haft taugar í að feta glæpabrautina og segist hafa orðið skelfingu lostinn þegar hann greindist með krabbamein.
Sun, 25 Oct 2026 - 31 - Menningarvaktin - Djöflar og Teitur Magnússon
Í þriðja þætti Menningarvaktarinnar í vetur ræða þeir Símon Birgisson og Magnús Jochum Pálsson um leiksýninguna Djöfla sem nú er sýnd í Borgarleikhúsinu og hefur fengið misjafna dóma. Þær ræða einnig hina umdeildu kvikmynd Digger með Tom Cruise. Ómar Úlfur rýnir í nýjustu plötur þeirra Teits Magnússonar og bandaríska tónlistarmannsins Beck.
Thu, 22 Oct 2026 - 30 - Sætið - Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður
Logi Einarsson ætlar að flýta gerð nýs þjónustusamnings við Ríkisútvarpið þar sem miðlinum verða settar frekari skorður á samkeppnismarkaði. Nýr samningur átti að líta dagsins ljós í lok næsta árs en verður gerður á fyrri hluta ársins. Á svipuðum tíma boðar hann fyrstu háskólastefnu Íslands. Logi segir að það sem þar verður kynnt verði örugglega umdeilt en í stefnunni verði ekki að finna skipanir um sameiningu skóla.
Thu, 22 Oct 2026 - 29 - Í bóli Bjarnars - Guðrún Vilmundardóttir
Guðrún Vilmundardóttir útgefandi á tuttugu ára starfsamæli í útgáfubransanum um þessar mundir. Hún stýrir útgáfufélaginu Benedikt og er með afar tilþrifamikinn lista höfunda á mála hjá sér. Guðrún er stórættuð kona, afar hennar eru Gylfi Þ. Gíslason fyrrverandi menntamálaráðherra og Bjarni Benediktsson eldri – forsætisráðherra. Hún fer yfir ýmsa forvitnilega fleti á útgáfubransanum, segir af mjólkurkúm og lukkudýrum.
Sun, 18 Oct 2026 - 28 - „Hvað eru margir af þessum 15 sem geta unnið þetta?“
Garpur I Elísabetarson fékk þau Kristján Karl Björnsson, Egil Trausta Ómarsson og Tinnu Miljevic til sín þar sem landsliðakeppnin í Bakgarðshlaupi var til umræðu. Keppnin fer fram næstu helgi þar sem 15 bestu hlauparar Íslands keppa við aðra hlaupara út um allan heim. Keppnin verður í beinni útsendingu á Vísi.
Mon, 12 Oct 2026 - 27 - Sætið - Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott
Seðlabankastjóri segir innlendar hækkanir á þjónustu og launum hafa mest áhrif á verðbólguna núna. Stýrivextir séu biturt meðal og ekki með glöðu geði sem þeim er beitt. Það sé rétt hjá verkalýðshreyfingunni að stýrivextir leggist misjafnlega á ólíka hópa en staðan sé að einhverju leyti afleiðing af þeirra eigin gjörðum. Rangar ákvarðanir hafi mögulega verið teknar í Seðlabankanum sem í raun reyni að reka velferðarstefnu. Umsjón: Elísabet Inga Sigurðardóttir.
Mon, 12 Oct 2026 - 26 - Í bóli Bjarnars - Friðrik Ómar
Tónlistarmaðurinn Friðrik Ómar Hjörleifsson saknar föður síns þótt samband þeirra hafi verið flókið á margan hátt. Viðbrögðin þegar einkasonurinn kom út úr skápnum 26 ára voru meinfyndin en aðdáun föðurins á Trump og Pútín flæktust reglulega fyrir. Útförin í sumar var mikil tónlistarveisla.
Sun, 11 Oct 2026 - 25 - Í bóli Bjarnars - Sigríður Dögg Auðunsdóttir
Sigríður Dögg Auðunsdóttir er formaður Blaðamannafélags Íslands. Hún mæðist í mörgu sem slík og ræðir meðal annars skilgreiningarvanda blaðamennskunnar, fjölmiðlalæsi, skilningsleysi á faginu sem teygir sig alla leið upp í dómstóla og segir frá erfiðasta atviki sem hún hefur þurft að takast á við sem formaður.
Sun, 04 Oct 2026 - 24 - Sætið - Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann
Það er sársaukafullt að ná aga í ríkisfjármálum og ef eitthvað ríki geti þolað sársaukann sé það Ísland enda standi heimilin mjög vel. Hann segir ekki rétt að launþegar hafi það verr nú en fyrir tveimur árum og fullyrðir að ummæli sem formaður efnahagsnefndar Alþingis lét falla um helgina séu ekki rétt. Þetta er á meðal þess sem Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir í ítarlegu viðtali við fréttastofu. Umsjón: Elísabet Inga Sigurðardóttir.
Wed, 30 Sep 2026 - 23 - Í bóli Bjarnars - Halldór Guðmundsson
Halldór Guðmundsson bókmenntafræðingur, sem sumir myndu segja að sé helsti mafíósi í íslenska bókabransanum, hefur vaðið í það þarfa verk að rita bókmenntasögu Íslendinga frá öndverðu og til vorra daga, hvorki meira né minna. Hann er gestur Í bóli Bjarnars þessa vikuna.
Tue, 29 Sep 2026 - 22 - Í bóli Bjarnars - Benedikta Guðrún Svavarsdóttir
Benedikta Guðrún Svavarsdóttir er hláturmildur framkvæmdastjóri á Seyðisfirði, hún gerir góðan mat og hefur gaman að því að bjóða fólki í gusur. En hún er einnig grjótharður nagli, formaður Vár – félag um verndun fjarðar og berst nú með oddi og egg gegn ráðabruggi um að koma niður sjókvíum í Seyðisfjörð. Þar hefur dregið til tíðinda á undanförnum dögum
Sun, 20 Sep 2026 - 21 - Hitað upp fyrir Bakgarðshlaupið
Garpur I. Elísabetarson og Tinna Miljevic, sem munu lýsa Bakgarðshlaupinu um helgina, fengu Egil Trausta Ómarsson í spjall þar sem þau ræddu meðal annars um líklegan sigurvegara ofl.
Wed, 16 Sep 2026 - 20 - Í bóli Bjarnars - Gísli Marteinn
Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsmaður og vert þarfnast engrar kynningar. Hann er „stórasta“ sjónvarpsstjarna landsins og nú að fara af stað með Vikuna, sem hefur verið flaggskip Ríkissjónvarpsins um árabil. Engan bilbug er að finna á Gísla Marteini, hvorki hvað varðar Vikuna né Café Vest. Gísli hætti sér í ból Bjarnars.
Sun, 13 Sep 2026 - 19 - Í bóli Bjarnars - Guðni Th. Jóhannesson
Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti lýðveldisins og prófessor í sagnfræði, hefur tekist á hendur mikið verk sem er að skrásetja hvað gekk á í þorskastríðunum. Að efni til kallast bókin óbeint á við nýafstaðna þjóðaratkvæðagreiðslu. Guðna finnst þægilegt að fela sig í fortíðinni öfugt við annan fyrrverandi forseta sem heitir Ólafur Ragnar Grímsson. Honum finnst hann enn fulltrúi afla sem hann er ósammála og geti því ekki tjáð sig fyrirvaralaust. Jakob Bjarnar og forsetinn fyrrverandi settust niður á dögunum í bóli Bjarnars.
Sun, 06 Sep 2026 - 18 - Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“
Þótt að Kjartan Sveinn Guðmundsson úr Ungum vinstri grænum og Ármann Leifsson úr Ungu jafnaðarfólki staðsetji sig báðir vinstra megin í lífinu eru þeir ósammála um það hvort Ísland eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju. Kjartan hefur áhyggjur af réttindum verkafólks innan sambandsins og utanríkisstefnu Íslands hvað varðar meðal annars málefni Palestínu. Ármann sér tækifæri í efnahagsmálum, svo sem með upptöku evru, og telur meinlaust að fara í samningaviðræður við ESB.
Fri, 28 Aug 2026 - 17 - Ungt hægri fólk tekst á: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“
Í Vísi að viðræðum tekst ungt fólk sem staðsetur sig hægra megin í stjórnmálum á um það hvort hefja eigi aðildarviðræður að nýju við Evrópusambandið. Ungur viðreisnarmaður segir stöðugleika felast í upptöku evru en ungur sjálfstæðismaður segir það á dýru verði keypt „að missa stjórn á okkar peningamálum“. Nei-sinninn segir að hátt í 99 prósent af því sem felist í aðild að Evrópusambandinu liggi fyrir en já-sinninn telur ljóst að það sé „fullt sem hægt er um að semja“.
Thu, 27 Aug 2026 - 16 - Snorre Rein - EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“
Frændur okkar í Noregi fylgjast grannt með atkvæðagreiðslunni á Íslandi 29. ágúst um aðildarviðræður við Evrópusambandið, sérstaklega útvegsmenn í Noregi. Snorre Rein, norskur stjórnmálaáhrifavaldur úr röðum sósíaldemókrata, er viðmælandi dagsins í Vísi að viðræðum. Hann segir að viðsnúningur gæti orðið í afstöðu norskra sjávarútvegsmanna til Evrópusambandsins skyldi Ísland ná einhvers konar undanþágum í hugsanlegum aðildarviðræðum.
Thu, 27 Aug 2026 - 15 - Margrét Ágústa - Eins og að biðja um að hafa fimmtán menn inni á vellinum
Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna, er gestur dagsins í Vísi að viðræðum. Hún telur að eina leiðin sem íslenskur landbúnaður gæti virkað innan Evrópuregluverks væri með undanþágu frá landbúnaðarstefnu sambandsins eins og hún leggur sig. Það sé ólíklegt að fá það samþykkt, og í raun eins og að biðja um að fá að keppa í fótbolta með fimmtán liðsmenn inni á vellinum, frekar en ellefu.
Wed, 26 Aug 2026 - 14 - Þorsteinn Gunnarsson - Íslendingar voru alræmdir í Brussel og lítið traust á milli
Gestur dagsins er Þorsteinn Gunnarsson, fræðimaður, fyrrverandi rektor HA og síðast en alls ekki síst: varaformaður samninganefndar Íslands á árunum 2009 til 2013. Í ítarlegu samtali fórum við yfir það sem raunverulega fór fram á meðan viðræðunum stóð, hvernig afstöður voru mótaðar, hvernig samskiptum var háttað við ráðherra og framkvæmdastjórnina. Hvernig tók Brussel í kröfur Íslands um þessar margumtöluðu varanlegu undanþágur?
Tue, 25 Aug 2026 - 13 - Katrín Júlíusdóttir - Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“
Katrín Júlíusdóttir var iðnaðarráðherra og fjármálaráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur þegar Ísland sótti um aðild að Evrópusambandinu 2009. Hún telur það raunsætt að hafið við Ísland geti orðið „sérstakt stjórnsýslusvæði“ innan ESB, en segja má að Katrín hafi skrifað samningsmarkmið Samfylkingarinnar í sjávarútvegsmálum árið 2001 þegar flokkurinn gerði sérstaka Evrópuúttekt. Hún ræðir við Agnar Má Másson fréttamann um ESB, sjávarútveginn, „gömlu“ Samfylkinguna og fleira í nýjasta þætti af Vísi að viðræðum.
Mon, 24 Aug 2026 - 12 - Vilborg Ása Guðjónsdóttir - Undanþága á borði en ekki í orði
„Ég tel að það sé útilokað að fá varanlega undanþágu frá stefnunni í heild sinni. Hins vegar er spurning um hvort hægt sé að hanna hlutina innan, þannig að við erum de facto með full yfirráð,“ segir Vilborg Ása Guðjónsdóttir stjórnmálafræðingur og fyrrverandi ritstjóri Evrópuvefsins. Vilborg Ása er gestur dagsins í Vísi að viðræðum, þar sem Evrópumálin og komandi atkvæðagreiðsla um aðildarviðræður eru krufin til mergjar. Vilborg var ráðgjafi í alþjóðadeild Alþingis á árunum 2012-2018 og var starfsnemi hjá Evrópuþinginu 2010-2011.
Fri, 21 Aug 2026 - 11 - Sonja Ýr Þorbergsdóttir - „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“
Verkalýðsforystan er klofin í afstöðu sinni til þess hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið í lok ágústs. Það breytist nánast ekkert í íslenskri vinnumarkaðslöggjöf með inngöngu í Evrópusambandið, að mati Sonju Ýrar Þorbergsdóttur formanns BSRB, enda löggjöfin að miklu leyti innleidd í gegnum EES. Sonja á erfitt með að skilja hvers vegna fólk haldi að staða og réttindi verkafólks myndu versna til muna með inngöngu, en vill samt ekki fullyrða hvort hún muni batna.
Thu, 20 Aug 2026 - 10 - Guðmundur Hálfdánarson - Jón Sigurðsson talaði aldrei um sjálfstæði
Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur er gestur dagsins en hann hefur helgað stóran part starfsævinnar því að rannsaka þjóðernisvitund Íslendinga og sögu hennar. Hvernig sú merking sem landar leggja í hugtök á borð við fullveldi og framsal á því, hvað Evrópa er í augum okkar og hvort við teljum okkur hluta af henni eður ei. Já, og svo hvað það þýðir eiginlega þegar til kastanna kemur.
Wed, 19 Aug 2026 - 9 - Birgir Ármannsson - Salami-aðferðin, stjórnarskráin og málskotsrétturinn
Fáir þekkja íslensku stjórnarskránna betur en Birgir Ármansson, lögmaður og fyrrverandi forseti Alþingis, en hann var áður þingmaður Sjálfstæðisflokksins en er nú viðloðinn nei-hreyfinguna Áfram Ísland. Hann útskýrir að gera þurfi ýmsar breytingar á stjórnarskránni ef Ísland ætli að ganga inn í Evrópusambandið og slíkar breytingar þurfi eins konar tveggja þátta auðkenningu frá Alþingi. Málskotsrétturinn yrði enn á sínum stað en myndi þó ekki ná til Evrópulöggjafar. Hann fer um víðan völl og talar meðal annars um „salami-aðferðina“ en þannig lýsir hann aðlögunarferlinu að Evrópusambandinu.
Tue, 18 Aug 2026 - 8 - Jón Bjarnason - Kvótinn gerði allt vitlaust í Brussel
Vorið 2009 tók við ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar, í kjölfar bankahrunsins. Eitt umdeildasta verkefni hennar varð umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Jón Bjarnason sat í stjórninni sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, þótt hann væri sjálfur eindreginn andstæðingur aðildar. Í þessum þætti rekur Jón þessa sögu frá sínu sjónarhorni: stjórnarmyndunina, varnagla Alþingis, umsóknarbréfið, makrílinn, óþægilega rússíbanareið og hótelið fræga í Kaliforníu.
Mon, 17 Aug 2026 - 7 - Sætið - Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, kveðst ekki ætla að láta stilla sér upp við vegg aðspurð um hvort hún myndi ráðleggja þjóðinni að hafna aðildarsamningi, fáist ekki undanþágur í sjávarútvegi, þrátt fyrir þann mikla ávinning í öryggismálum, sem hún telur að felist í aðild að Evrópusambandinu. Elísabet Inga settist niður með ráðherra.
Thu, 13 Aug 2026 - 6 - Sætið - Kristrún Frostadóttir
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra var gestur í Sætinu í dag þar sem hún settist niður með Elísabetu Ingu Sigurðardóttur fréttamanni og fór meðal annars yfir störf þingsins á liðnum vetri, efnahagsmálin og þjóðaratkvæðagreiðsluna í lok ágúst.
Thu, 13 Aug 2026 - 5 - Borgarlínan: Hvað er verið að byggja — og af hverju?
Atli Björn Levy, forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu hjá Betri samgöngum, fer yfir Borgarlínuverkefnið í heild. Hvað er Borgarlínan? Hvaða vandamál á hún að leysa? Hvað kostar hún? Hvaða framkvæmdir fylgja henni? Af hverju á að fækka akreinum á sumum stöðum ef bílaumferð á samt eftir að aukast samkvæmt líkönum? Við ræðum fyrstu lotuna, Suðurlandsbraut, áhyggjur íbúa og fyrirtækjaeigenda, þjóðarhöllina í Laugardal og stóru spurninguna um framtíð samgangna á höfuðborgarsvæðinu.
Thu, 02 Jul 2026 - 2 - Reykvíkingar muni finna fyrir breytingum á næstunni
Hildur Björnsdóttir fagnaði á dögunum stórafmæli á sama tíma og hún tók við sem borgarstjóri. Í glænýju hlaðvarpi Vísis ræðir Oddur Ævar Gunnarsson við Hildi um næstu skref í borgarstjórastólnum og en líka um æskuna og fjölskyldulífið. Síðasta kjörtímabil, meirihlutaviðræður og ósætti Miðflokksmanna auk fyrirhugaðra breytinga í borginni eru meðal þess sem fær að fljóta með.
Tue, 16 Jun 2026 - 1 - Hlaðvarp Vísis - Kynning
Fréttamenn Vísis setjast niður með áhugaverðu fólki, kafa í málefni líðandi stundar og ræða það sem vekur athygli hverju sinni. Hlaðvarpið sameinar fréttir, mannlegar sögur og menningu í víðum skilningi. Frá stjórnmálum til poppkúltúrs – og öllu þar á milli.
Thu, 11 Jun 2026
Podcasts ähnlich wie Vísir
Wife, Mother, Slave, Sex Goddess A. Heyward
Barangay Love Stories Barangay LS 97.1 Manila | GMA Network Inc.
Good Bad Billionaire BBC World Service
Cyprian Majcher Cyprian Majcher
Die Nachrichten Deutschlandfunk
Podcast Wojenne Historie Historia II wojny światowej
Forensic Files HLN
Nowenna pompejańska. Świadectwa https://pompejanska.krolowa.pl/
ILLVERK Podcast Inga Kristjáns
الشيخ أحمد العجمي islami
True Crime Documentary Justin Kandell Network
WojewódzkiKędzierski Kuba Wojewódzki, Piotr Kędzierski
Dear MOR MOR Entertainment
Snapped: Women Who Murder Oxygen
Papa Dudut Stories Papa Dudut | TAGM Marketing Solutions Inc.
DUDEK o polityce prof. Antoni Dudek i Super Exspress
Przemek Górczyk Podcast Przemek Górczyk
Sceny zbrodni RMF FM
Í ljósi sögunnar RÚV
Þetta nútímalíf RÚV Hlaðvörp
Skuggavaldið skuggavaldid
Money News Tapt Media
Żurnalista - Rozmowy bez kompromisów zurnalistapl
العلم والإيمان - د. مصطفى محمود علم ينتفع يه