Filtra per genere

Vísir

Vísir

visirhladvarp

Fréttamenn Vísis setjast niður með áhugaverðu fólki, kafa í málefni líðandi stundar og ræða það sem vekur athygli hverju sinni. Hlaðvarpið sameinar fréttir, mannlegar sögur og menningu í víðum skilningi. Frá stjórnmálum til poppkúltúrs – og öllu þar á milli.

33 - Innherji - Brotthvarf Harðar frá Landsvirkjun
0:00 / 0:00
1x
  • 33 - Innherji - Brotthvarf Harðar frá Landsvirkjun

    Skyndilegt brotthvarf forstjóra Landsvirkjunar og ládeyða á hlutabréfamarkaði er í brennidepli í fyrsta hlaðvarpsþætti Innherja þar sem farið er um víðan völl. Birgir Olgeirsson fréttamaður og Hörður Ægisson ritstjóri Innherja fá Ólaf Sigurðsson framkvæmdastjóra Birtu lífeyrissjóðs í heimsókn.

    Tue, 27 Oct 2026
  • 32 - Í bóli Bjarnars - Tolli

    Myndlistarmaðurinn Tolli Morthens skefur ekki af því frekar en fyrri daginn. Hann skautar yfir ferilinn, segir af Íkarusi og samstarfinu við Megas, því að hann hafi ekki haft taugar í að feta glæpabrautina og segist hafa orðið skelfingu lostinn þegar hann greindist með krabbamein.

    Sun, 25 Oct 2026
  • 31 - Menningarvaktin - Djöflar og Teitur Magnússon

    Í þriðja þætti Menningarvaktarinnar í vetur ræða þeir Símon Birgisson og Magnús Jochum Pálsson um leiksýninguna Djöfla sem nú er sýnd í Borgarleikhúsinu og hefur fengið misjafna dóma. Þær ræða einnig hina umdeildu kvikmynd Digger með Tom Cruise. Ómar Úlfur rýnir í nýjustu plötur þeirra Teits Magnússonar og bandaríska tónlistarmannsins Beck.

    Thu, 22 Oct 2026
  • 30 - Sætið - Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður

    Logi Einarsson ætlar að flýta gerð nýs þjónustusamnings við Ríkisútvarpið þar sem miðlinum verða settar frekari skorður á samkeppnismarkaði. Nýr samningur átti að líta dagsins ljós í lok næsta árs en verður gerður á fyrri hluta ársins. Á svipuðum tíma boðar hann fyrstu háskólastefnu Íslands. Logi segir að það sem þar verður kynnt verði örugglega umdeilt en í stefnunni verði ekki að finna skipanir um sameiningu skóla.

    Thu, 22 Oct 2026
  • 29 - Í bóli Bjarnars - Guðrún Vilmundardóttir

    Guðrún Vilmundardóttir útgefandi á tuttugu ára starfsamæli í útgáfubransanum um þessar mundir. Hún stýrir útgáfufélaginu Benedikt og er með afar tilþrifamikinn lista höfunda á mála hjá sér. Guðrún er stórættuð kona, afar hennar eru Gylfi Þ. Gíslason fyrrverandi menntamálaráðherra og Bjarni Benediktsson eldri – forsætisráðherra. Hún fer yfir ýmsa forvitnilega fleti á útgáfubransanum, segir af mjólkurkúm og lukkudýrum.

    Sun, 18 Oct 2026
Mostra altri episodi