Filtrar por género
- 195 - * - Hefnendurnir eru komnir á Storytel!
Hulkleikur og Ævorman finnst báðum gaman að segja sögur, þess vegna eru þeir komnir á Storytel og þar munu birtast nýir þættir. Það eru meira að segja komnir nýjir þættir þar nú þegar!
Thu, 10 Dec 2020 - 06min - 194 - Hefnendurnir 194 - Hefndurminningar, þriðji hluti
Hetjurnar okkar halda ótrauðar áfram í upprifjun sinni á tímans rás til að hita upp fyrir spánýja þætti á Storytel.
Wed, 02 Dec 2020 - 1h 21min - 193 - Hefnendurnir 193 - Hefndurminningar, annar hluti
Hulkleikur og Ævorman halda áfram niður braut hefndurminninganna í undirbúningi fyrir hefndurkomu Hefnenda á Storytel. Hvað ætli þeir muni í þessum þætti?
Fri, 20 Nov 2020 - 1h 41min - 192 - Hefnendurnir 192 - Hefndurminningar, fyrsti hluti
Reboot Hefnenda er handan hornsins og í tilefni þess minnast Hulli og Ævar sinna fyrstu ævintýra sem gerðust fyrir alveg aðeins meira en hálfum áratug síðan.
Tue, 17 Nov 2020 - 1h 23min - 191 - Hefnendurnir 191 - Kardebombubærinn
Hulkleikur snýr aftur á klakann og Ævorman treður í hann hamborgurum og bláberjum. Þeir gera sitt besta til að sigrast á kjötsvimanum á meðan þeir ræða um skáskot Jada Pinkett-Smith, Rómarveldið Abrams og mögulegar stafsetningarvillur í víkingaleikjum, áður en Hulli egnir til slagsmála með feitri bombu um Kardemommubæinn.
Fri, 23 Oct 2020 - 1h 09min - 190 - Hefnendurnir 190 - Átótjúnað bíósuss
Ævormann býður Hullann velkominn frá plánetunni Ber-Lin yfir í Stark Tower, þar sem þeir taka fyrir mikilvægustu málefnin, nemlig: Battinson, Sjálfsmorðsliðana og annað désadæmi… og tala síðan aðeins um eina af dauðasyndum bíógláps: að tala meðan ÉG ER AÐ REYNA AÐ HORFA!
Tue, 25 Aug 2020 - 1h 03min - 189 - Hefnendurnir 189 - Tóm Knús
Hetjurnar okkar hittast yfir frelsisöli til að ræða um póstkví, blakkfeisoff, smitfaðmlög og Dale Carnegie handabönd og þessa óþolandi áráttu sumra til að vera stöðugt að gefa manni óumbeðin power move kreistuknús!
Mon, 29 Jun 2020 - 1h 23min - 188 - Hefnendurnir 188 - 28 dögum síðar
Strákarnir tuða um sitthvora innipúkaiðjuna úr sitthvorri sóttkvínni. Báðir öruggir og óbreyttir sökum þess að félagsfælin einvera er ekki beint ótroðin slóð hjá þessum sjóuðu njarðaprinsum sem kalla sig Hefnendurna. Stay safe, Jarðarbúar!
Fri, 10 Apr 2020 - 58min - 187 - Hefnendurnir 187 - Þegar allt lék í lyndí hopp
Í þessari ævafornu en samt bara 28 daga gamalli upptöku, ræða Hefnendurnir okkar um hva þessi vírus er sooo not all that. Svo tala þeir líka um hvað þeir hlakka til júróvision og hvað Outbreak er ómerkileg mynd. It was a different time.
Fri, 10 Apr 2020 - 44min - 186 - Hefnendurnir 186 - Paradís lost
Feigðin hangir yfir Bíó Paradís og hræfuglar eru byrjaðir að hringsóla í kringum það eins og einhvers konar leigusalar. Hulkleikur og Ævorman taka svona fréttum ekki þegjandi, enda velunnarar og klappstýrur menningarjötunnar sem Bíó Paradís er. Nema Ævorman hljómar töluvert verr en Hulkleikur, vegna þess að hann er veikur og svo var einhver gaur að bora í næstu íbúð og allskonar.
Thu, 30 Jan 2020 - 1h 02min - 185 - Hefnendurnir 185 - Haltá Ketti
Ævorman langaði eiginlega bara að gera eitt í Berlín. Hann án djóks talaði eiginlega ekki um annað; Fara í bíó með Hulkleiki til að horfa á Cats. Og síðan að tala um það. Tala rosalega mikið um það vegna þess að það er furðulega mikið til að tala um. Þessi mynd? Þessi mynd!
Wed, 08 Jan 2020 - 58min - 184 - Hefnendurnir 184 - Star Wars, maður
Skywalker sagan skráði sinn hinsta kafla samkvæmt Disney um jólin og Hefnendurnir okkar kíktu í bíó eins og öllum sönnum lærisveinum máttarins er ljúft og skylt. En hvað þýða ljúfsár endalokin um framhaldið? The force is dead and no one cares. If there is a mustafar I’ll see you there.
Wed, 08 Jan 2020 - 47min - 183 - Hefnendurnir 183 - Party like it's neunzehnhuntertneunundneunzig
Hulli flutti til Berlínar, en Ævorman er ekki af baki dottinn heldur lagði land undir fót og mætti heim til hullsubrauðsins til að gefa jarðarbúum góða byrjun fyrir Cyberpunk árið sem gengið er í garð. Afraksturinn er 3! (þrír) sjóðheitir þættir til að hámheyra, Netflix style! Hulkleikur og Ævorman eru búnir að vera seinir allt ár. Svo seinir að þeir koma með uppáhaldsmyndirnar sínar á síðasta ári tuttugu árum of seint í þessum marglofaða 1999 besta kvikmyndaár allra tíma™ þætti.
Wed, 08 Jan 2020 - 1h 42min - 182 - Hefnendurnir 182 - Annie Lennox prófið
Hulkleikur og ÆvorMan eiga fund í Grímsson Tower og velta vöngum yfir ímynduðum boltaleikjum í ódæmigerðu lögregluríki, velja topp 2 kvikmyndir sem batna við mute takkann og veðja uppá flottann kall. Hefnendurnir eru í boði Nexus. Nexus. Það er svo best sko.
Wed, 04 Sep 2019 - 1h 24min - 181 - Hefnendurnir 181 - Manhattan ójafnvægið
Hulli hinn hvíti og Ævar hinn grái hafa ekki fært á sér bossana síðan í síðasta þætti því þeir hafa bara og mikið að segja. Þar á meðal sitthvað um eigið sköpunarferli, emo ofurhetjur með daddy issues og leiðarlok Luke Perry. Við biðjumst velvirðingar á skruðningunum sem heyrast í þessari upptöku. Það er líklega bara draugur.
Tue, 27 Aug 2019 - 1h 15min - 180 - Hefnendurnir 180 - Bavíaninn sem át móður sína
Eftir allt of langan dvala skríða tveir stírublindir Hefnendabangsar úr hýði sínu og ræða húmorsleysi Svía og sáðlát Aquamans og að sjálfsögðu rýna þeir eldfast í endalok mikilvægasta nördafyrirbæris síðari ára: Big Bang Theory.
Wed, 21 Aug 2019 - 1h 22min - 179 - Hefnendurnir 179 - Emil í Tjattholti
Hefnendurnir fá Emil Hjörvar Petersen, veraldarsmið og örlagavefjara, í heimsókn og hefna hann spjörunum úr. Lengsti Hefnendaþáttur ever höldum við bara. Gleðilegt nýtt ár, Jarðarbúar!Hefnendurnir eru í boði Nexus. Nexus er í boði guðanna. Kjarninn í samstarfi við Storytel býður þér að hlusta frítt á þúsundir hljóðbóka í símanum þínum í 30 daga. Það eina sem þú þarft að gera er að skrá þig á www.storytel.is/kjarninn og byrja að njóta. Storytel.is, þúsundir hljóðbóka í símanum þínum.
Mon, 31 Dec 2018 - 2h 56min - 178 - Hefnendurnir 178 - Neandercool
Hefnendurnir fara tvisvar í bíó! Fyrst á garlakallamynd og svo á hjólhúsamynd! Það var nú aldeilis gaman. Í bílferðum sínum ræða þeir meðal annars um magíska munnkossa, ferðir Ted Dansons og örvar kúbids. Hefnendurnir eru í boði Himnaríkis… ég meina Nexus. Same thing.
Thu, 13 Dec 2018 - 1h 06min - 177 - Hefnendurnir 177 - Stan Lee er dáinn og þetta er þátturinn um það
Hulli og Ævar minnast nýfráfallins skapara skaparanna og ná samt eitthvað að tuða um aðra hluti sem skipta minna máli. En það er náttúrulega bara eins og þeir eru.
Wed, 28 Nov 2018 - 1h 28min - 176 - Hefnendurnir 176 - Látum þá deyja eina
Hulli hinn hvíti kíkir í heimsókn til Ævars hins gráa og þeir fara yfir samþykki Egils Ólafs, píslargöngu Ofurhugans og hlutlausa kjúklingavængi.Hefnendurnir eru í boði Nexus. Nexus er aðal.
Wed, 07 Nov 2018 - 1h 14min - 175 - Hefnendurnir 175 - Díónýsus Kræst og Sigh Guy
Hetjurnar okkar hittast á ný í hefnendahöfuðstöðvunum eftir heljarferðalag um heimsins lendur og henda í hugleiðingar um hrekkjavöku, Hicks og Hetjur til leigu, ásamt almennu húllumhæi. Hefnendurnirnir eru í boði Nexus, auðvitað.
Wed, 31 Oct 2018 - 1h 16min - 174 - Hefnendurnir 174 - Mandalórinn Tormelti
Hulli og Ævar eru í sitthvorri heimsálfunni og ná engu sambandi við hvorn annann. En óttist eigi, Jarðarbúar fríðir, því Hefnendurnir luma nebblilega á ýmsu óáðurbirtu góðgæti. Þar á meðal bubblandi bíóferð á "rándýr"a mynd og babbl um Boba með Andreu Björk. Hefnendurnir eru í boði Nexus. Nexus > Allt.
Wed, 24 Oct 2018 - 50min - 173 - Hefnendurnir 173 - Doktor Bacon
Hugleikur heimsækir Andreu Björk og köttinn hennar í Berlín og þau ræða Saurugan Dexter, Sprungna eiturlyfjasmokka og Búning Blökukonunnar. Hefnendurnir eru í boði Nexus og Nexus er næs to the max.
Wed, 17 Oct 2018 - 1h 19min - 172 - Hefnendurnir 172 - Prancing Pony Part Deux
Þið eruð ennþá stödd á bar. Hulkleikurinn og Ævormanninn eru komnir í Irish Coffee og hætta ekki að láta gamminn geysa um sín hjartans mál. Og panta fleiri drykki.
Tue, 09 Oct 2018 - 1h 04min - 171 - Hefnendurnir 171 - The Prancing Pony
Þið eruð stödd á bar. Ævar “Dean Martin” Grímsson og Hugleikur “Scorsese” Dagsson sitja í einu horninu, sötra svart öl og ræða um tilfinningagáfur í dýflissum, klámmyndagláp á stefnumótum og kosti þess að vera með framheilaskaða.
Tue, 02 Oct 2018 - 1h 10min - 170 - Hefnendurnir 170 – Miðgarðsormarnir
Ævorman og Hulkleikur voru með live podcast á Midgard 2018 þar sem þeir ræddu um dag leðurblökunnar, undarlegar ofurhetjur og auðvitað hvort að Súperman sé með rassgat.
Tue, 25 Sep 2018 - 59min - 169 - Hefnendurnir 169 - Thanos í Sumarhúsum
Hulli og Ævar bregða sér saman í bíó til að ná Mission Impossible 6 áður en hún hættir í bíó. Á leiðinni þangað og til baka ræða þeir um tengsl Central Perk og Eterníu, skort á dúfnadauða í Woo myndum og raddmissi James Bond.
Tue, 18 Sep 2018 - 41min - 168 - Hefnendurnir 168 - Slæmur Slaufu Slæmer
Hullinn og Ævarinn hita upp fyrir midgard með masi um fréttir frá síðasta sumri, stafrænan spædermann, burtreiðar og endalok ævintýratímans.
Tue, 11 Sep 2018 - 1h 15min - 167 - Hefnendurnir 167 - Glápur og Skrápur
Hetjurnar okkar halda áfram endurkomunni með spánýjum þætti þar sem farið verður yfir allt glápið sem gerðist og það sem að gerðist en aðallega glápið sem gerðist.
Thu, 06 Sep 2018 - 1h 16min - 166 - Hefnendurnir 166 - Antmansstígur
Sumarfríð er búið! Hefnendur snúa aftur til jarðar! Ævar hinn myndarlegi og Hulli minnast sumarsins sem var að líða. Sem var basically bara Antman og Rigning. Við biðjumst velvirðingar á leininlegu hljóði sem er Hulla-megin þegar þeir eru að tala netleiðis við hvorn annan. Auðvitað Hulla-megin. Týpískt Hulli.
Thu, 30 Aug 2018 - 1h 19min - 165 - Hefnendurnir 165 - Mátturinn og slímið
Hetjurnar okkar syngja sig inn í sumarfrí með söngvum sínum um ímyndaða vini, Harvey horrormyndir og frægðarbond, ásamt því að koma að töff skóm og muninum á guði og mættinum og stóra planinu. Hefnendurnir eru í boði Nexus
Wed, 06 Jun 2018 - 57min - 164 - Hefnendurnir 164 - Infinity Pool: A Star Wars Story
Ævar hinn sanngjarni og Hulli hinn súri fara aftur í bíó og taka upp gersamlega skammarlaust og drulluspillt spjall um sprengjurnar sem skullu á strendur skynfæra þeirra síðustu vikurnar. Nánar tiltekið Avengers: Infinty War, Deadpool 2 og Solo: A Star Wars Story. ARÚÚÚGAH SPOLER ALERT.Hefnendurnir eru í boði nexus. Nexus: Það er aðeins einn guð.
Wed, 30 May 2018 - 1h 00min - 163 - Hefnendurnir 163 – Laminn í talfærin
Hulli og Ævar nú hittast á ný. Komnir loks saman eftir smáræðis frí. Þeir ræða um hitt og ræða um þetta, Rambó hinn fimmta og Billa og Tedda. og auðvitað eitthvað sem rímar við ný.
Tue, 15 May 2018 - 1h 23min - 162 - Hefnendurnir 162 - Drax í dag
Í óvenju stuttum en að venju skemmtilegum þætti fara Hulkleikur og Ævorman í bíó með Thandrosi og Nebóla, reyna að muna hver þessi Drakúla er aftur, spyrja reykjandi nörda útí tvívídd, og meta meðlimi Star Wars heimsins út frá hæð og meðlimi marvelheimsins út frá kynþokka.
Wed, 02 May 2018 - 34min - 161 - Hefnendurnir 161 – Miðgarðsormapytturinn
Gest ber að garði í Hefnendaturninum þar sem Svenni í Nexus kemur til að kynna hvað er á döfinni á næstunni í musterinu. Að auki er komið inná lagaflækjur óða Max, kynlífskölti vinkonu ofurmennisins, illan dauða öskukallsins og komandi ráðstefnu njarðahjarðarinnar, Midgard!
Tue, 24 Apr 2018 - 1h 32min - 160 - Hefnendurnir 160 – Gaurinn sem drap Mozart
Hetjurnar okkar knáu sameinast á ný í Hefnendaturninum til að tjá sig um ofsótta elligoðið, Norbitinn Panamaprins, Billy eitthvað og ógildingu górilluapametsins hans og sprengjuhótun steikarinnar. Og svo er fáninn dreginn í hálfa stöng fyrir tvo nýfallna meistara
Tue, 17 Apr 2018 - 1h 36min - 159 - Hefnendurnir 159 - Vampíruzombíur Vs Zombíuvampírur
Ævorman í borg óttans og Hulkleikur í friðardalnum ræða símleiðis um bit krútthnífsins, rödd leðurblökunnar, harmleik svarthöfða, táningsár úlfsins og spielbergmyndina sem spielberg spielbergaði í feitt spielberg. Hefnendurnir eru í boði nexus. Nexus: Það er aðeins einn guð.
Wed, 11 Apr 2018 - 1h 15min - 158 - Hefnendurnir 158 - Kanil Spice
Í Hefnendaturninum hittast hetjurnar Hulkleikur og Ævorman til kjafta í kaffipásu um heima og geima. Þar á meðal frændalistasamfélagið, fjórgó, kryddlegnar ofurhetjur, húlígana og dómsdoktora, áður en allt endar svo á suðupunkti í sundrandi söngleikjaspjalli.
Tue, 27 Mar 2018 - 1h 14min - 157 - Hefnendurnir 157 – Öfundarréttur
Hetjurnar okkar taka fyrir Ríkharðlífi Harmon, endalok Ævintýratímans, endurgerðan brjálaðan búálf og útvíkkaða Draumaheima ásamt umræðum um viljandi og óviljandi dónaskap og meistarmánaðagláprestarnar hans Hulkleiks
Wed, 21 Mar 2018 - 1h 28min - 156 - Hefnendurnir 156 - He-Man Íslands
Ævorman og Hulkleikur ræða um risa í heimildamyndum og tölvuleikjum, þrumuguði í froska- og kvenlíki og eftirsjárverða andargogga í Marvel og Star Wars. Hey bara enn einn drulluslaki dagurinn í Hefnendaturninum. Hefnendurnir eru í boði Nexus. Nexus: Resistance is futile.
Tue, 13 Mar 2018 - 1h 20min - 155 - Hefnendurnir 155 – Marbendlaður við Óskarinn
Ævar og Hulli ræða námsferil Eriks Killmongers, tímaferðalög Kobba Kviðristu, Besta hlutverk Rockwells, gleymda minningu West og ástarljóð Del Toros.
Tue, 06 Mar 2018 - 1h 50min - 154 - Hefnendurnir 154 – Þagnarræðan
Hulli snýr aftur frá Berlín og hann og Ævar ræða um úrslit Eddunnar, allt þetta dót sem er búið að vera að gerast síðan þeir hittust síðast, leiðrétta sjálfa sig og hlusta síðan á þakkarræðuna sem heyrðist ekki. Svo halda þeir í myrkviði Pardusdýrsins.
Thu, 01 Mar 2018 - 1h 25min - 153 - Hefnendurnir 153 - Þetta Eddast!
Hetjurnar okkar hittast á ný eftir langa fjarveru frá hvorum öðrum, fallast í faðma og ræða um víðfeðmt umfjöllunarefni eins og koddalausar flugfarir, meint fánýti fagverðlauna, illa hirta þúsaldarfálka, brynjuklædda brjóstvöðva og auðvitað Lobay.
Tue, 13 Feb 2018 - 1h 41min - 152 - Hefnendurnir 152 - Ásgeir Kolberbatch
Ævar er með Stokkhólmsheilkenni þannig að Hulli fær Lóu Hjálmtýs aftur sem gestaHefnenda og þau ræða dvergvaxna Íslandsvini sem borða fólk, nineties leikkonur sem trufla tímalínur og uppstökka unglinga sem engjast í undirmeðvitundum uppkominna einstaklinga.
Tue, 06 Feb 2018 - 1h 31min - 151 - Hefnendurnir 151 - Critic Bashing Time
Ævar er í Svíþjóð að representa land og þjóð þannig að Hulli ræður Lóu sem gestaHefnenda og þau ræða Bobcat Goldthwait, fjarlæga brauðristarfeður og bróður Búffans í Stand By Me.
Thu, 01 Feb 2018 - 1h 27min - 150 - Hefnendurnir 150 – Andabæjaraðdáendur
Hlunkurinn og Járnmennið halda upp á óvæntan hundraðastaogfimmtugasta þátt sinn með ofhlæði af athyglisbresti, málvillum og óákveðni. Sandrés Önd kíkir í heimsókn og þau ræða allt á milli Abbey og Abba.
Tue, 23 Jan 2018 - 1h 40min - 149 - Hefnendurnir 149 - General Meryl
Ævorman og Hulkleikur vígja nýja aðstöðu í Hefnendaturninum með tuði um finnskar/írskar/íslenskar kveðjur, áfengiverslanir og barnaheimili í Enterprise, Berry-kisuna vs Leto-jókerinn og að lokum telja þeir upp besta sjónvarp 2017 Hefnendurnir eru í boði nexus. Nexus: Resistance is futile.
Mon, 15 Jan 2018 - 1h 59min - 148 - Hefnendurnir 148 - Fúkyrði Prófessorsins
Ævar og Hulli tala um springfieldskan húðlit, upphafsstef stjörnuferða, dyramottu tímalávarða, kapteinasokka og telja svo upp uppáhalds kvikmyndir sínar 2017.
Mon, 01 Jan 2018 - 1h 23min - 147 - Hefnendurnir 147 - StarWarsHolidaySpecial
Hefnendur eru á fullu við að borða alltof mikið af reyktu svínakjöti, opna gjafir og drekka jólaöl til að taka upp venjulegan þátt. Þess vegna ætla þeir að birta í staðinn áður óútgefna upptöku frá því í fyrra. The Star Wars Holiday Special er líklega ein versta mynd allra tíma. Mögulega sú versta. Hún er allavega langversta Star Warsið. Þess vegna ákváðu Hefnendur að horfa á lengstu þekktu útgáfu af myndinni og tala yfir hana. Gera svona Commentary. Með Lóu Hlín (Lóbó) Hjálmtýsdóttur.
Mon, 25 Dec 2017 - 2h 04min - 146 - Hefnendurnir 146 - Bangsalundar V Kristalsrefir: Dawn of Nerdrage
Hefnendárinu lýkur senn og því er viðeigandi að hetjurnar okkar líti um öxl á allt það stærsta sem hefur gengið á, í einum feitum áramótaannál! Þar verður imprað á öllu frá tortímingu og trekki, krípum og myrkraheimum og hæfilegum skammti af undrakonum og gömlum körlum að lesa vitlaus umslög. Að auki fer fram ítarleg umfjöllun um nýjasta kafla stjörnustríðsbálksins og örlög hinsta væringjans. Always.
Mon, 18 Dec 2017 - 2h 07min - 145 - Hefnendurnir 145 - Chrismas Special
Hulli og Ævar tala um afar spennandi hluti eins og afar mikla ást Hulla á Ævari, afar spennandi prump, það sem Grant Morrison þykir afar gaman að horfa á, afar slæma skinkusamloku, afar óhugnanlega sólmyrkva og afar góðhjartaðar alvöru ofurhetjur.
Mon, 11 Dec 2017 - 1h 13min - 144 - Hefnendurnir 144 - Í myrkum bjánafjöllum
Hetjurnar okkar koma seint til leiks þessa vikuna en bjóða upp á tregafulla umræðu um endalok hins myrka alheims, reffilegan refsanda, stjörnustæla Tarantino og líka hvort það sé í lagi að vera leiðinlegur ef maður er að gera list.
Mon, 04 Dec 2017 - 1h 39min - 143 - Hefnendurnir 143 - M-orðið
Ævar og Hulli ræða samskiptaleiðir íslenskra dægurgoða, poppkúltúrreferensa framtíðarinnar, muninn á stroke og pool, misskilda mömmufordóma, dónakalla og ljóta brandara.
Mon, 27 Nov 2017 - 1h 46min - 142 - Hefnendurnir 142 - Gotham of the rings
Hetjurnar okkar prúðu henda í umræðuveislu um tilvistarkreppu tölvutengja, tilvistarkreppu Hringadróttinssögu, tilvistarkreppu Batmans, tilvistarkreppu treilara og tísera, tilvistarkreppu vídeóleigunnar og tilvistarkreppu flokkanna á kvikmyndum og sjónvarpi. Sartre hvað? *Klíng*
Mon, 20 Nov 2017 - 1h 46min - 141 - Hefnendurnir 141 -Farðu Louie! Við erum að reyna að tala um Viggó Viðutan!
Í nýjasta þætti Hefnenda ræða Hulkleikur og Ævorman um mögulegan stjörnuþríleik, dévítans Disneyvæðinguna, óskalistann sinn í myndasögusjónvarpi og ofurkonu að sparka í karlpung. Síðan þarf að ræða aðeins alvarlegri mál á alvarlegri nótum í nýja dagskrárliðnum Æi fokk, seriously? Þú líka?! Afhverju? Dísis fokking kræst hvað er að?!
Mon, 13 Nov 2017 - 1h 16min - 140 - Hefnendurnir 140 - Rotin Raddbönd (Live)
Ævarúlfurinn og Hullvítið setjast á TwinPeaks-esque sviðið í hryllingsholunni Húrra og hljóðrita Live bloodcast fyrir framan áhorfendur sem eru fleiri en puttahnífar Freddys en færri en endurkomur Jasons. Þeir ræða byssuleysi grímuklæddra morðingja, sjálfstæð vélmenni og réttdræpar nasistazombíur. Ævar reynir að tala um örlög Corey Feldman en Hulla finnst það of hryllilegt fyrir þetta hryllings-special Hefnenda!
Mon, 06 Nov 2017 - 1h 19min - 139 - Hefnendurnir 139 - Ég vild'ég væri orðin lítil fluga!
Ævar mætir eldsnemma í Hullbunkerinn og þeir ræða lélegustu endurgerð ársins, sumé kosningarnar og stórasta land í heimi, sumsé Asgard (Ekki Ásgarð því það er munur á Asgard og Ásgarði). Svo reyna þeir að fatta hvort 2049 sé klámvætt eða feminískt ár og svo koma auglýsingar. Og hvílíkar auglýsingar! Og meira. Ágætur þáttur sko.
Mon, 30 Oct 2017 - 1h 03min - 138 - Hefnendurnir 138 - Pabbafliss
Hulli er með of bilaðan heila til að podcasta en Ævar kveikir samt á upptökutækinu og þeir tala um bókasafnsbiturð skrípasöguskálds, skyggn augu með heyrn, rasisma og hvernig kvikasilfur getur bjargað heiminum.
Mon, 23 Oct 2017 - 1h 09min - 137 - Hefnendurnir 137 - How to get a head in Bransanum
Hulli litli og Ævar mikli tjatta um snapp, geymslupláss í geimnum, óstartreklegt startrek og skáldað byssuofbeldi í byssuofbeldisveruleika.
Mon, 16 Oct 2017 - 1h 14min - 136 - Hefnendurnir 136 - Ekki kúl
Hulkleikur er með flensu og Ævorman kemur í heimsókn til að hressa hann við með rabbi um tilgangsleysi slagorðagríns, öfugþýðingar og andstöðurangstæðu, en líka aðeins um alla þessa káfandi kúkalabba í Hollívúdd.
Mon, 09 Oct 2017 - 1h 17min - 135 - Hefnendurnir 135 - Yfirhefnsla : Andrea Björk Andrésdóttir
Hulkleikur yfirhefnir Andreu Björk; Hönnuð, leikstjóra, animator og almennan flippara um glyðrulega fugla í Lumbruskógi, foreldrakynlíf og fimmta frumefnið.
Mon, 02 Oct 2017 - 1h 38min - 134 - Hefnendurnir 134 - Fanforum forarfen!
Hefnendurnir babbla um danska hönnun í geimnum, stuðboltastelpu með mjaðmir, legsteinaletur og bestu kóngaræmurnar áður en þeir fara í spoileriffic greiningu á mömmumyndinni þarna sem er að gera allt vitlaust.
Mon, 25 Sep 2017 - 1h 35min - 133 - Hefnendurnir 133 - Jó(Pesci)kerinn
Hulkleikur og ÆvorMan rökræða um allt sem skiptir máli. Þar á meðal Emmy verðlaunin, Scorsese Jókerinn, fráfallinn költ karakter, hrædda karlmenn í kvikmyndahúsum og margt fleira. Allt mjög marktækt og vestfirskt.
Mon, 18 Sep 2017 - 1h 03min - 132 - Hefnendurnir 132 - Allt sem þú vildir vita um Sous Vide, en þorðir ekki að spyrja um
Hulkleikur og ÆvorMan skeggræða öryrkja-arkítektúr, 11/9, Del Toro prumpið, list í list, ítölsk kvennamorð, of ungan gamm og venjulegheit Howards, skálandi í vatni með útsýni yfir hallargarð ÆvorMans.
Mon, 11 Sep 2017 - 1h 17min - 131 - Hefnendurnir 131 Ó, Lou
Hulkleikur og ÆvorMan taka þátt í umræðunni um umræðuna en snúa sér að miklvægari málefnum eins og tölvuleikja anime áNetflix, vaktmenn DC heimsins og hvað Hulli glápti á í góða veðrinu.
Mon, 04 Sep 2017 - 1h 17min - 130 - Hefnendurnir 130 - The Day The Clown Tried
Hulkleikur og ÆvorMan tala um ófullnægjandi staðgengla mútanta, minnast fráfallina grínista, hryllingskokka og borgartraðkara og vangavelta hvað sé bestverst og hvað sé verstbest.
Mon, 10 Jul 2017 - 1h 32min - 129 - Hefnendurnir 129 - Drazzle!
Hulkleikur og ÆvorMan koma ferskir úr fríinu til að ræða fasískar hliðarvíddir, meinta hræsni vampírubanaskaparans og fara svo yfir allt feita sjittið sem San Diego comic con lofaði þeim í treileraformi.
Mon, 03 Jul 2017 - 1h 29min - 128 - Hefnendurnir 128 - Smjörkubbsvafflan V Logagrettan: Dawn of Sumarfrí
Hulkleikur og Ævorman fara saman í bíó og hljóðrita reynsluna. Þeir ræða nineties kóngulær, trumpaða kapteina, strákastelpur með fjólubláa lokka, ameríska guði og barnabílstjóra. Svo fara þeir í sumarfrí! Heyrumst aftur í haustmyrkrinu!
Mon, 26 Jun 2017 - 1h 06min - 127 - Hefnendurnir 127 - 20 bestu ekki-ofurhetju-myndasögumyndir ever
Hulkleikur og Ævorman telja upp bestustu og sniðugustu og flottustustu myndasögubíómyndirnar sem eru ekki byggðar á ofurhetjumyndasögum.
Mon, 19 Jun 2017 - 1h 25min - 126 - Hefnendurnir 126 - Nananananananana Adam
Hulkleikur og Ævorman setjast í Einarsgarð og ræða pardusaplaköt, nasistanýríki og brotthvarf besta blökumanns bítnikkatímans.
Mon, 12 Jun 2017 - 1h 11min - 125 - Hefnendurnir 125 - Hashtag feminism
Hulkleikur og Ævorman ræða um períódur í geimnum, elliæra riddara, sokkaskikkjur og stærsta gamechanger þessa árs, Ungfrú Undur. Hjarta hjarta ex ex.
Mon, 22 May 2017 - 1h 25min - 124 - Hefnendurnir 124 - Rauðhærð og útlæg
Hulkleikur og Ævorman ræða um hvað er að gerast, hvað þeir eru að glápa á, hvað þeir eru að spila á og minnast moore og boothe.
Mon, 15 May 2017 - 1h 08min - 123 - Hefnendurnir 123 - Doktorsþríleikurinn þrjú : Doktor Allt bú!
Sandra Barilli situr með Hullinu og Ævörinni í þriðju lotu epískrar Doctor Who umræðu. Nú er seglum snúið að sitjandi og fráfarandi Doktor: Peter Capaldi. Tímalávarðurinn með hvassa skapið. Klárum þetta! Shut up!
Mon, 08 May 2017 - 54min - 122 - Hefnendurnir 122 - Doktorsþríleikurinn II : Doktor nú þú!
Sandra, Ævar og Hulli ræða ellefta doktorinn í öðrum hluta doktor who þríleiksins í þessum hundraðtuttugastaogöðrum þætti hefnenda. Frumfluttur á sextánda degi fimmta mánaðar sautjánda árs tuttugustu og fyrstu aldarinnar. Nei bíddu er þetta ekki átjánda árið? hvernig virka aftur aldamót? Allavega Matt Smith og hans tímaflækjur eru spónaðar í atóm! Geronimo!
Mon, 01 May 2017 - 1h 06min - 121 - Hefnendurnir 121 - Doktorsþríleikurinn I : Doktor Hú?
Ævarinn, Hullinn og Sandran setjast niður og hljóðrita fyrsta kafla í epískri Doctor Who trilógíu. Í þessum þætti ræða þau hinn skammlífa Eccleston og hinn langlífa Tennant. Fantastic! Allons-y!
Mon, 24 Apr 2017 - 1h 08min - 120 - Hefnendurnir 120 - Sandrés Önd í yfirhefnslu
Hulkleikur yfirhefnir Söndru Barilli, lífskúnstner, umboðsmann og Pad Thai aðdáenda. Þau ræða um hvað The Sweetest Thing er vanmetin snilld, hvað litla hafmeyjan kann að gera flotta hársveiflu og hvað garðyrkju-ofurkraftar geta verið gagnlegir.
Mon, 17 Apr 2017 - 1h 13min - 119 - Hefnendurnir 119 - Brúna Eldingin
Hulkleikur og Ævorman semja heila bíómynd! Eða réttara sagt semja sögu fyrir heila bíómynd! Eða réttara sagt byrjun að sögu fyrir heila bíómynd. Brúna Eldingin er action ævintýri fyrir alla fjölskylduna ef að öll fjölskyldan er eldri en sextán ára. VRÚMM! VRÚMMM!!
Mon, 10 Apr 2017 - 1h 06min - 118 - Hefnendurnir 118 - Gwyneth gufan
Hulkleikur heimsækir Dídí í Lalalandi á meðan Ævorman húkir flensuhokinn heima á klakanum. Með aðstoð framtíðartækni tókst þeim þó að taka upp þátt þar sem rætt er um Nælon og sundlaugarpartí, ömurlega umboðsmenn, poppmenningu draumaborgarinnar og svo er síðasti kapítulinn af Lalasápunni skrifaður af Dröfn á englaryki.
Mon, 03 Apr 2017 - 1h 12min - 117 - Hefnendurnir 117 - Dottið upp
Hugleikur og Jóhann Ævar setjast á sviðið á myrkum bar og tjá sig um myrka hluti eins og tuðandi trúða, dútlandi drauga, skápasköp og skrímslasprella og flytja lengstu auglýsingu í sögu Hefnendanna sem by the way eru í boði Nexus. Sem er besta búð í heimi.
Mon, 27 Mar 2017 - 1h 07min - 116 - Hefnendurnir 116 - Konráðs Saga Barbara
Hulkleikur og Ævorman spjalla um synglýsingar, myrkraprinsa, mömmur á mars, skítaþorp, svarta sjálfselskendur, gluggaveðursbíómyndir, finnskan typpamassa, íslenskar leðurblökur, áru ofurmenna, uppáhalds ósýnilingar og hefndarklám gegn vondum forsetum.
Mon, 20 Mar 2017 - 1h 13min - 115 - Hefnendurnir 115 - Frussuprumpið
Sökum græjuleysis grípa Hullóan og Ævorið til neyðarúrræðis í upptökutækni og æða síðan með litaleiðréttingarspjaldið sitt í Réttlætisdeildarkitluna, ræða það sem er ofur og van í Désaheimum, áður en þeir rabba bara lúnir um Orkuleysi og hamra á heitum Járhnefa.
Mon, 13 Mar 2017 - 49min - 114 - Hefnendurnir 114 - Hlátrinum fórnað
Hugarangrið og Ævupestin ausa úr passívaggressívum skálum sína á hvimleiðan Járnhnefa, vafasamt Spiderman spinoff og endurjórtrað Matrix. En fljúga þeir að vit hýpóþetískra spurninga um hvort sé mikilvægara; yfirnáttúruleg hugarorka eða túlkun tilfinninga.
Mon, 06 Mar 2017 - 1h 13min - 113 - Hefnendurnir 113 - BuffyLove Soldiers
Huffy og Ævgel ræða feit mútantabörn, vondar löggur á íslandi og auðvitað afmælisbarnið sjálft, drottningu drísladrápsins, skrímslaslátrarann frá Sunnydale; Buffy the fokking Vampire Slayer.
Mon, 27 Feb 2017 - 1h 14min - 112 - Hefnendurnir 112 - Game Over, Man!
Piltarnir okkar prúðu reka síðasta líkkistunaglalann í Lalalöndunina áður en þeir jarma aðeins um Jarfa, reyna að skilgreina hvaða ofurhetjur eru eiginlega ofurhetjur og pexa síðan um Paxton sem kvaddi okkur alltof snemma nú fyrir skömmu.
Mon, 20 Feb 2017 - 1h 12min - 111 - Hefnendurnir 111 - Gamli kallinn með umslagið
Ævor Man skríður niður í Hulkbunkerinn og þeir Hulkleikur horfa á óskarinn ásamt góðum gestum. Nánar tiltekið þeim God of Thránder (Þrándur Þórarinsson) og Kill Billgju (Bylgja Babýlons). Tilfinningar eru tjáðar, taugar kitlaðar og snakkskálar tæmdar.
Mon, 13 Feb 2017 - 1h 13min - 110 - Hefnendurnir 110 - Hulli 4-ævar
Hulli og Ævar fara í sjálfhverfasta trúnó allra tíma og tala einungis um Hulla og Ævar. Ævar yfirheyrir Hulla um Hulla og Hulli yfirheyrir Ævar um Ævar. Æ var það ekki? Hull yeah!
Mon, 06 Feb 2017 - 1h 08min - 109 - Hefnendurnir 109 - Ben Off-leck… heh heh… ekki?
Drengirnir dágóðu dútla við hvorn annan í drykklanga stund og þræta um hvort er betra, meyja eða ljón? Hvor sé verri, Batman Forever eða Batman & Robin? Hvor er meira sexist, myndasögubransinn eða tískubransinn? Þetta og margt fleira í Hebb! Nenn! Dumm!
Mon, 30 Jan 2017 - 1h 11min - 108 - Hefnendurnir 108 - Doktor hver nú?
Krútturassarnir fá Sandrés Önd í heimsókn og þau spyrja hvort annað spurninga eins og: Hvernig fljúga risaskjaldbökur? Afhverju hunsar akademían mútanta? Hver verður næsti doktor? Og í alvöru, hvað er svona gott við La La Land? Ég meina í alvöru? HVAÐ?! Ó vorum við búnir að tala um þetta?
Mon, 23 Jan 2017 - 1h 31min - 107 - Hefnendurnir 107 - La La Rant
Hullsubrauðið og Ævarosturinn ræða ljósmyndir af limum, skilning á skaupinu og pönkleysi Potusar áður en þeir rökræða hina ultimate spurningu: hvort er betra, risaeðlur eða dans?
Mon, 09 Jan 2017 - 1h 11min - 106 - Hefnendurnir 106 - Öskrandi sjálfhverfa grínistans
Hulkleikur og Ævorman hittast til að kryfja uppáhalds sjónvarpsþætti sína á síðasta ári en fara fjallabaksleið að því eftir eigin höfði, með stuttum stoppum í Razzievík, Hvíta Forn-Egyptalandi og MonkeySpankfirði.
Mon, 02 Jan 2017 - 1h 49min - 105 - Hefnendurnir 105 - Djöfullinn klæðist normcore
Drengirnir okkar hugprúðu gera sitt best til að afsaka fjarveru sína síðustu viku en tekst það ekki alveg en í staðinn tala þeir um barnagirnd Súpermanns, bessaleyfi Bryans Singer og sex ég meina níu bestu kvikmyndir síðasta árs.
Mon, 26 Dec 2016 - 1h 01min - 104 - Hefnendurnir 104 - Hjálpaðu okkur 2017, þú ert okkar eina von
Hulkleikur og Ævorman reyna að díla við sviplegt fráfall íkonsins Carrie Fisher með veruleikaflótta og hugleiðingum um tímans þunga gang. Þátturinn er seinna á ferð en vanalega. Það var eins og hann tafðist til þess eins að Hefnendurnir gætu kvatt Carrie sem hefur gefið okkur...
Mon, 19 Dec 2016 - 1h 02min - 103 - Hefnendurnir 103 - Hinn Rjóði Ás
Hulkleikur og Ævorman ræða eigin sköpunarverk ofurhetjubækur og fangelsisþætti, óskir sínar hvað gjafir varðar og stærstu kvikmynd ársins, Rogue One.
Mon, 12 Dec 2016 - 1h 42min - 102 - Hefnendurnir 102 - Koss Kapteinsins
Til að fagna því að uppáhaldsbúðin þeirra í heiminum, Nexus, er nýr styrktaraðili Hefnendanna rifja Hulkleikur og Ævorman upp Nexus sýningar á árinu, tala aðeins um trailera og vafra síðan yfir á jarðsprengjusvæði ofursamkynhneigðar og ástir á stríðslínum á sinn klunnalega en einlæga máta.
Mon, 12 Dec 2016 - 1h 42min - 101 - Hefnendurnir 101 - Resurrection
Strákarnir snúa aftur til að verma skammdegishjörtu jarðarbúa með léttu hjali um allskonar skemmtilegt dót. Hvaða dót? Nú til dæmis nútímanasista, hina stöðugu baráttu óreiðu og skipulags, hvað Dr. Strange er flott mynd og svo lesa þeir langan lista um sci-fi þætti. Er það ekki bara fínt? Jú.
Mon, 05 Dec 2016 - 1h 26min - 100 - Hefnendurnir 100 - Hefnendirinn - The Death Of Hefnendurnir
Í tilefni af sínum hundraðasta þætti ætla Hefnendur að gera það sem þeir gera best… tala… bara það… tala… um allskonar… ekkert gimmick, engir dagskrárliðir, bara tveir hefnendur að tala um hluti. Tali tali tali. Í hundraðasta veldi. Knús og kram! Hulkleikur og Ævorman. Þormóður Dagsson sá um flutning á intróinu að þessu sinni.
Mon, 07 Mar 2016 - 1h 25min - 99 - Hefnendurnir 99 - Réttarhöldin yfir Hefnendunum
Réttarhöld eru haldin yfir hetjunum okkar þar sem Ævorman og Hulkleikur þurfa að verja sig gegn ásökunum saksóknarans Erik The Viking og svara fyrir glæpi sína gegn jarðarbúum. Allt er lagt að veði, njósnir, feðraveldið, hár og hunsun í æsispennandi réttardrama og nítugasta og níunda þætti Hefnendanna.
Mon, 29 Feb 2016 - 1h 33min - 98 - Hefnendurnir 98 - Trek Wars (Live! á Húrra)
Hefnendurnir stigu upp á svið á Húrra um daginn ásamt Fílalagsbræðrum og fluttu þátt fyrir framan “live studio audience”. Sú taumlausa gleði var tekin upp og nú geta jarðarbúar hlustað á Hulkleik og Ævorman velta fyrir sér verðleikum Jobsanna, hvað Hulli og pabbi hans horfa á saman á kvöldin; og hvort vinnur í slag, Star Trek eða Star Wars? Njótið heil!
Mon, 22 Feb 2016 - 1h 01min - 97 - Hefnendurnir 97 - Eins og eldgömul sápa
Eftir hressandi hundasund í Dauðalauginni pæla Hullinn og Ævarinn í pésé húmor, Stebba steik, nýjum Refsara og hetjunum í sviðsljósinu, áður en þeir skella sér í eitt verulega feitt maraþonáhvaðertuaðglápa.
Mon, 15 Feb 2016 - 1h 26min - 96 - Hefnendurnir 96 - Rödd Rudds
Hefnendurnir ræða um hvort sé merkilegra umræðuefni, Óskarsverðlaun eða klósettpappír. Svo tala þeir um auglýsingar í súpuskál og fjarlægt fyrirbæri sem kallast ást.
Mon, 08 Feb 2016 - 1h 19min
Podcasts similares a Hefnendurnir
- Conversations ABC listen
- Global News Podcast BBC World Service
- El Partidazo de COPE COPE
- Herrera en COPE COPE
- The Dan Bongino Show Cumulus Podcast Network | Dan Bongino
- Es la Mañana de Federico esRadio
- La Noche de Dieter esRadio
- Hondelatte Raconte - Christophe Hondelatte Europe 1
- Dateline NBC NBC News
- 財經一路發 News98
- La rosa de los vientos OndaCero
- Más de uno OndaCero
- La Zanzara Radio 24
- L'Heure Du Crime RTL
- El Larguero SER Podcast
- Nadie Sabe Nada SER Podcast
- SER Historia SER Podcast
- Todo Concostrina SER Podcast
- 安住紳一郎の日曜天国 TBS RADIO
- アンガールズのジャンピン[オールナイトニッポンPODCAST] ニッポン放送
- 辛坊治郎 ズーム そこまで言うか! ニッポン放送
- 飯田浩司のOK! Cozy up! Podcast ニッポン放送
- 吳淡如人生實用商學院 吳淡如
- 武田鉄矢・今朝の三枚おろし 文化放送PodcastQR