Filtrer par genre

Snorri Másson ritstjóri

Snorri Másson ritstjóri

Snorri Másson

Blaðamennska á breyttum tímum. Fréttir, ritgerðir og málefnalegar persónuárásir.Fréttir vikunnar er vikulegur hlaðvarps- og sjónvarpsþáttur. Fáðu aðgang að greinum alla vikuna og meira efni á www.ritstjori.is.

97 - Fréttir vikunnar | Viðreisn í áfalli, falleinkunn Ingu, og sjálfsmynd Sjálfstæðisflokksins
0:00 / 0:00
1x
  • 97 - Fréttir vikunnar | Viðreisn í áfalli, falleinkunn Ingu, og sjálfsmynd Sjálfstæðisflokksins

    Til umræðu: Bókun 35 og málstaður Íslands í höndum utanríkisráðherra, brotthvarf Jóns Gnarr úr Viðreisn, stafarugl í skólakerfinu, öryggisátak í Mjóddinni og grunnskólum og fleiri fjölmenningarplástrar, og svo sjálfsmyndarleit Sjálfstæðismanna í tengslum við ýmis slík mál.

    Kæru vinir, það er föstudagur og hlaðvarpið hefur göngu sína á nýjan leik. Frá því að ritstjórinn, sem þá var, tók sæti á Alþingi hefur hlaðvarpsframleiðslan ekki náð sér á strik en nú er full ástæða til að snúa aftur til reglulegrar framleiðslu. Við tökum upp þráðinn með sömu einföldu kjörorðin: ást á ættjörðu, ást á sannleika. Það er meira en nóg að ræða um lífið, tilveruna og landsins gagn og nauðsynjar.

    Ríkisstjórnin virðist eiga erfitt með að jafna sig eftir Evrópusambandsáfallið og Jón Gnarr er genginn úr Viðreisn. Við gerum grein fyrir þeirri stöðu sem hann hlýtur að hafa verið kominn í gagnvart klíkunni í kringum formanninn og þar kemur erlent hatursrit við sögu! Um leið veltum fyrir okkur hvers vegna utanríkisráðherra virðist áhugasamari um kröfur Brussel en málsvörn Íslands vegna Bókunar 35.

    Síðan förum við yfir einkunnakerfið sem á nú að laga með því að skipta út bókstöfum fyrir tölur. Í raun er þó framkvæmd ráðherra öll meingölluð og fær falleinkunn, en þó ekki lægri en fjóra. Við ræðum líka öryggishlið í skólum, opin landamæri og Sjálfstæðisflokk í leit að sjálfum sér.

    Að lokum: Hvers vegna fær fólk ekki að nýta fæðingarorlofið sitt? Félagsmálaráðherra er með nýtt svar sem felur í sér nöturlega viðurkenningu á því sem marga hefur lengi grunað, að misréttið er sparnaðaraðgerð.

    Fri, 23 Oct 2026 - 33min
  • 96 - Viðtal | Brynjar Karl: Sannleikurinn um Breiðholt og vakning þjóðar

    Brynjar Karl Sigurðsson körfuboltaþjálfari og íþróttaleiðtogi ræðir hér um það hvernig beri að gera kröfur til ungs fólks, körfuboltaliðið Aþenu, stöðuna í Breiðholti, ofbeldisþróun þar, fullkominn skort á stefnu og vonlaus samskipti við Reykjavíkurborg.


    Fri, 28 Mar 2025 - 1h 26min
  • 95 - Alls staðar breytist umræðan! Sigríður Andersen og Kjartan Magnússon.

    Í þessum þætti ræðir Snorri Másson ritstjóri við Sigríði Á. Andersen, þingmann Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, og Kjartan Magnússon, ekki borgarfulltrúa, heldur formann Hjálms – ungliðahreyfingar Miðflokksins í Norðausturkjördæmi. Til umfjöllunar eru þau fimm ár sem liðin eru frá upphafi kórónuveirufaraldurs, evrópsk stjórnvöld sem vakna upp við vondan draum þegar málfrelsi er innleitt á samfélagsmiðlum, innflytjendamál og tálsýnin um inngildingu allra, auk ummæla dómsmálaráðherra um að ekki sé hægt að treysta dómstólum.

    Sat, 15 Mar 2025 - 1h 07min
  • 94 - Ræða: Það er hægt að skipta um trúarbrögð í landinu

    Ég flutti erindi á vegum Stúdentafélags Reykjavíkur þann 23. janúar, þar sem ég fjallaði um það hvernig stjórnmálin hegða sér í sífellt auknum mæli eins og trúarbrögð, bæði hér á landi og erlendis.

    Með öðrum orðum: Hvað annað en hröð trúarleg sinnaskipti hafa leitt til þeirra grundvallarbreytinga sem hafa orðið á ráðandi stjórnmálahugsun á Íslandi á undanförnum árum, hvort sem er í sambandi við viðhorf til þjóðmenningarinnar, tungumálsins eða kynjamála?


    Sat, 25 Jan 2025 - 35min
  • 93 - Jakob Frímann um svakalegan fund, Reykjavíkurborg og þriðju leiðina

    Jakob Frímann Magnússon goðsögn og þingmaður Miðflokksins ræðir hér stjórnmálin, allt frá dapurri upplifun sinni af Reykjavíkurborg á sínum tíma og til nauðsynlegrar uppbyggingar sem er fram undan í íslensku samfélagi. Ekki er hjá því komist að drepa niður fæti á mikilvægum stöðum í sögunni, ferðalög Stuðmanna til Kína og Rússlands, Kalda stríðið og Ísland í fyrri tíð.

    Últrafrjálshyggja eða hardcore kommúnismi - eða þriðja leiðin? Eina málið er að sjá til þess að Reykjavíkurstjórnin verði ekki landsstjórnin, segir Jakob Frímann.

    Tue, 19 Nov 2024 - 49min
Afficher plus d'épisodes