Podcasts by Category

hún hlaðvarp

hún hlaðvarp

Erna Hrund Hermannsdóttir

Hún er hlaðvarpssería um konur sem hafa farið sínar eigin leiðir í íslensku atvinnulífi. Þær koma úr ólíkum áttum en eiga það sameiginlegt að hafa byggt upp sterkan feril og tekist á við krefjandi ákvarðanir á leiðinni. Í þáttunum segja þær frá ferðalaginu, áskorunum og ákvörðunum sem hafa mótað þær. Markmiðið er að veita innsýn og innblástur og skapa rými fyrir umræðu um konur sem vilja ná langt, taka pláss og skapa sér sterkan sess í atvinnulífinu, læra hver af annarri og miðla reynslu og þekkingu.

21 - hún hlaðvarp #20 Ásdís Kristjánsdóttir
0:00 / 0:00
1x
  • 21 - hún hlaðvarp #20 Ásdís Kristjánsdóttir

    Gestur þáttarins er Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, iðnaðarverkfræðingur og hagfræðingur.

    Í dag ætlum við að tala um konuna á bak við embættið. Um stelpuna úr Breiðholti sem ætlaði að verða læknir, um móðurhlutverkið samhliða stjórnendastöðu, um samning um eldhúsið, og um það hvernig maður stígur enn lengra inn í sviðsljósið þegar maður þarf þess ekki.

    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur , Elko, Nespresso og Mango.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

    Thu, 22 Oct 2026 - 1h 47min
  • 20 - hún hlaðvarp #19 Viktoría Hermannsdóttir

    Gestur þáttarins er Viktoría Hermannsdóttir, dagskrárgerðarkona hjá RÚV, mannfræðingur og meistari í hagnýtri menningarmiðlun.

    Í þættinum tölum við um það hvernig atvinnuspyrjandi er sjálf spurð. Um barn sem fékk frí í skólanum til að fara í jarðarfarir með ömmu sinni og afa, um þrettán ára sölukonu sem var strax komin með sinn eigin kúnnahóp, um skólablað í Breiðholti sem seldi auglýsingar út um allt hverfið, um símtalið sem hún hringdi sjálf komin fimm mánuði á leið, um eitt útvarpsviðtal sem varð að verðlaunum, meistaragráðu og bíómynd, um draumaverkefni sem byrjar þegar hún er 39 ára og um það hvernig kona hættir að bíða eftir að vera uppgötvuð.

    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur , Elko og Mango.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

    Wed, 14 Oct 2026 - 1h 47min
  • 19 - hún hlaðvarp #18 Jenna Huld Eysteinsdóttir

    Gestur þáttarins er Jenna Huld Eysteinsdóttir, húðsjúkdómalæknir, doktor í læknavísindum, meðeigandi Húðlæknastöðvarinnar og stofnandi Húðvaktarinnar.

    Í dag ætlum við að tala um hvernig vísindakona verður frumkvöðull, í geira þar sem flestir láta sér nægja að vinna vinnuna sína. Um stærsta líffærið okkar, sem við tökum bara eftir þegar það er fallegt. Um biðlista sem varð að fyrirtæki, um doktorsritgerð sem var skrifuð með þrjú börn og lista af barnapíum, um sólarvörn í október og ljósabekki sem enginn hefur bannað, og um það hvernig kona lærir að segja hlutina upphátt.

    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

    Tue, 06 Oct 2026 - 2h 12min
  • 18 - hún hlaðvarp #17 Safa Jemai

    Gestur þáttarins er Safa Jemai, hugbúnaðarverkfræðingur, forstjóri og meðstofnandi Treyst.ai, stofnandi hugbúnaðarfyrirtækisins Víkonnekt og kryddfyrirtækisins Mabrúka.

    Safa er fædd í Túnis árið 1994. Hún kom fyrst til Íslands sumarið 2017 sem sjálfboðaliði í gróðurhúsi í Hveragerði og fór heim með þá tilfinningu að hún ætti eitthvað óklárað hér. Ári síðar flutti hún, ein, lærði íslensku á fimm mánuðum, kláraði hugbúnaðarverkfræði í HÍ og stofnaði á meðan hún var enn í námi tvö fyrirtæki og vann Gulleggið með því þriðja. Hún var valin Rising Star of the Year á Nordic Women in Tech Awards 2023, situr í útflutnings- og markaðsráði Íslandsstofu og kynnti í vor gervigreindarlausn sem íslensk ráðuneyti, EFTA og ESA komu að og sem nágrannalöndin eru farin að spyrja um.

    Í dag ætlum við að tala um hvernig maður byggir sér líf og fyrirtæki í landi þar sem allir þekkja alla, nema þig. Um móður sem vann frá sex á morgnana til níu á kvöldin, um krydd sem varð að fyrirtæki, um forritara í Túnis og lögfræðinga í ráðuneytum, og um það hvernig traust er unnið.

    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

    Wed, 30 Sep 2026 - 1h 47min
  • 17 - hún hlaðvarp #16 Lilja Birgisdóttir

    Gestur þáttarins er Lilja Birgisdóttir, listakona, ljósmyndari og ein af stofnendum og eigendum Fischersunds.

    Lilja er fyrsti gesturinn í Hún sem ég ætla að kjósa aðkalla listakonu, fyrst og fremst. Kona sem hefur breytt listinni sinni í rekstur. Fischersund byrjaði með einum ilmi í tómu, svörtu húsi í Grjótaþorpinu fyrir tæpum níu árum. Í dag eru ilmirnir seldir hjá yfir hundrað söluaðilum víða um heim, fjölskyldan hefur haldið ilmtónleika í París, Seattle og Kaupmannahöfn, og í fyrra var Fischersund valið verk ársins á Hönnunarverðlaunum Íslands. Og samhliða öllu þessu heldur Lilja áfram að sýnasem myndlistarkona.

    Það sem mér finnst merkilegast við hana er ekki hvað húnhefur byggt, heldur hvernig. Engar auglýsingar, enginn fjárfestir, engin hefðbundin leið. Bara listafólk sem ákvað að vinna saman og treysta því að fólk fyndi þau.

    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

    Wed, 23 Sep 2026 - 1h 25min
Show More Episodes