Filtra per genere

Flugvarpið

Flugvarpið

Jóhannes Bjarni Guðmundsson

Fjallað er um flugmál á Íslandi, viðburði, málefni og áhugavert fólk tekið tali. Jói Baddi hefur langa reynslu sem atvinnuflugmaður og flugkennari og starfaði einnig um tíma við fjölmiðla. Flugvarpið er þannig góður farvegur til að sameina þetta tvennt - flugið og fjölmiðlun.

177 - #177 - Stöðugar áskoranir og fjölþættar ógnir í flóknum flugrekstri um allan heim hjá Air Atlanta – Ólafur Örn Jónsson
0:00 / 0:00
1x
  • 177 - #177 - Stöðugar áskoranir og fjölþættar ógnir í flóknum flugrekstri um allan heim hjá Air Atlanta – Ólafur Örn Jónsson

    Í þættinum er rætt við Ólaf Örn Jónsson flugrekstrarstjóra Air Atlanta um starfsemi félagsins og hið gríðarstóra leiðakerfi sem félagið rekur út um allan heim. Rætt er um þær fjölmörgu öryggisógnanir sem félagið glímir við í sínum rekstri á hverjum degi, en flugleiðir og áfangastaðir félagsins eru víða nálægt átakasvæðum. Eftir að stríð braust út í Íran fyrr á þessu ári hefur félagið þurft að meta ástandið nánast á hverjum degi í miðausturlöndum og gera ýmsar ráðstafanir vegna flugs nærri og um yfirlýst hættusvæði. Loftrýmum ríkja hefur verið lokað á stórum svæðum sem hefur lengt flugleiðir og GPS truflanir eru nánast daglegt viðfangsefni svo nokkuð sé nefnt. Þá hefur gríðarleg hækkun á flugvélaeldsneyti haft mikil áhrif á síðustu mánuðum sem og tollastríð milli stórvelda heimsins. ´

    Wed, 18 Nov 2026 - 1h 18min
  • 176 - #176 – ETS viðskiptakerfið í endurskoðun – engin varanleg lausn í hendi en vilji til að framlengja sérlausn fyrir flugið – Kristinn Már Reynisson og Ágúst Elvar Bjarnason

    ETS viðskiptakerfi ESB með kolefnisheimildir var mikið til umræðu á umhverfisdegi atvinnulífsins fyrir skömmu. Af því tilefni er í þessum þætti rætt við Kristin Má Reynisson lögfræðing hjá Samtökum verslunar- og þjónustu og Ágúst Elvar Bjarnason verkefnisstjóra hjá Samtökum ferðaþjónustunnar, en bæði þessi samtök standa í hagsmunagæslu við enduskoðun á ETS kerfinu og eru að senda umsagnir til Evrópusambandsins í tengslum við það. Farið er yfir stöðu þessara mála í dag og einkum hvernig samkeppnisskekkja í kerfinu hefur áhrif á íslenskan flugrekstur – og þar með íslenskt atvinnulíf.

    Wed, 04 Nov 2026 - 52min
  • 175 - #175 - Góður Q3 hjá Icelandair en mikill mótbyr í kortunum að óbreyttu – sóknarfæri í einfaldari flugflota til framtíðar – Bogi Nils Bogason

    Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair um stöðu félagsins í tilefni af uppgjöri fyrir þriðja ársfjórðung 2026. Farið er yfir helstu niðurstöðu uppgjörsins og spáð í spilin varðandi næstu mánuði og misseri. Bogi Nils fer líka yfir stöðu kjarasamningaviðræða við flugvirkja, flugmenn og flugfreyjur sem hafa gengið mjög illa og ekki sér fyrir endann á. Hátt eldsneytisverð og minnkandi varnir félagsins gagnvart eldsneytiskaupum gætu reynst félaginu þungbærar á næstu mánuðum ef ekkert breytist. Í þættinum er einnig rætt um ýmis álitamál sem verið hafa í fréttum eins og kaup Icelandair á flugrekstrarleyfi á Möltu, ETS gjöldin og skattahækkanir, breytingar á flugflota félagsins, fraktflutninga og fleira.

    Sat, 24 Oct 2026 - 1h 00min
  • 174 - #174 – Stýrir rannsóknardeild flugslysa innan ICAO - Eykst að sóst sé eftir aðkomu ICAO vegna milliríkjadeilna og til að tryggja trúverðugleika - Þormóður Þormóðsson

    Í þessum þætti er spjallað við Þormóð Þormóðsson sem stýrir sérstakri rannsóknardeild flugslysa innan Alþjóða flugmálastofnunarinnar ICAO með aðsetur í Montreal þar sem hann hefur búið síðustu 20 árin. Þormóður fer yfir ástæður þess að sérfræðingar frá ICAO eru kallaðir til í rannsóknum flugslysa og segir frá nokrum slíkum tilvikum þar sem hann hefur verið í forsvari. Hann segir það hafa aukist á síðastliðnum árum að sérfræðingar ICAO séu kallaðir til við rannsóknir flugslysa. Oft sé það til að auka trúverðugleika rannóknarinnar og ekki síður þar sem ICAO getur haft milligöngu um samskipti við ríki sem eiga í illdeilu eða stríði við nágranna sína þar sem slys hafa orðið. Viðtalið við Þormóð var tekið í lok ágúst s.l.

    Fri, 16 Oct 2026 - 1h 02min
  • 173 - #173 – Skynsemi og öllum landsmönnum til heilla að staðsetja eina þyrlu LHG á Akureyri. – Sigurður Ásgeirsson og Njáll Trausti Friðbertsson

    Í þættinum er rætt við Sigurð Ásgeirsson flugstjóra hjá Landhelgisgæslu Íslands og Njál Trausta Friðbertsson alþingismann um kosti þess að staðsetja björgunarþyrlu á Akureyri. Tilefnið er að Njáll Trausti hefur ásamt fleiri þingmönnum lagt fram þingsályktun á Alþingi um að dómsmálaráðherra verði falið að hefja uppbyggingu á Akureyrarflugvelli til að þar megi stðasetja eina björgunarþyrlu Landhelgisgæslunnar til frambúðar. Sigurður og Njáll fara í þættinum yfir rök sem öll hníga í þá átt að þetta sé skynsamleg ráðstöfun og til þess fallið að auka öryggi allra landsmanna.

    Fri, 09 Oct 2026 - 49min
Mostra altri episodi