Filtrar por género
Flugvarpið

- 177 - #177 - Stöðugar áskoranir og fjölþættar ógnir í flóknum flugrekstri um allan heim hjá Air Atlanta – Ólafur Örn Jónsson
Í þættinum er rætt við Ólaf Örn Jónsson flugrekstrarstjóra Air Atlanta um starfsemi félagsins og hið gríðarstóra leiðakerfi sem félagið rekur út um allan heim. Rætt er um þær fjölmörgu öryggisógnanir sem félagið glímir við í sínum rekstri á hverjum degi, en flugleiðir og áfangastaðir félagsins eru víða nálægt átakasvæðum. Eftir að stríð braust út í Íran fyrr á þessu ári hefur félagið þurft að meta ástandið nánast á hverjum degi í miðausturlöndum og gera ýmsar ráðstafanir vegna flugs nærri og um yfirlýst hættusvæði. Loftrýmum ríkja hefur verið lokað á stórum svæðum sem hefur lengt flugleiðir og GPS truflanir eru nánast daglegt viðfangsefni svo nokkuð sé nefnt. Þá hefur gríðarleg hækkun á flugvélaeldsneyti haft mikil áhrif á síðustu mánuðum sem og tollastríð milli stórvelda heimsins. ´
Wed, 18 Nov 2026 - 1h 18min - 176 - #176 – ETS viðskiptakerfið í endurskoðun – engin varanleg lausn í hendi en vilji til að framlengja sérlausn fyrir flugið – Kristinn Már Reynisson og Ágúst Elvar Bjarnason
ETS viðskiptakerfi ESB með kolefnisheimildir var mikið til umræðu á umhverfisdegi atvinnulífsins fyrir skömmu. Af því tilefni er í þessum þætti rætt við Kristin Má Reynisson lögfræðing hjá Samtökum verslunar- og þjónustu og Ágúst Elvar Bjarnason verkefnisstjóra hjá Samtökum ferðaþjónustunnar, en bæði þessi samtök standa í hagsmunagæslu við enduskoðun á ETS kerfinu og eru að senda umsagnir til Evrópusambandsins í tengslum við það. Farið er yfir stöðu þessara mála í dag og einkum hvernig samkeppnisskekkja í kerfinu hefur áhrif á íslenskan flugrekstur – og þar með íslenskt atvinnulíf.
Wed, 04 Nov 2026 - 52min - 175 - #175 - Góður Q3 hjá Icelandair en mikill mótbyr í kortunum að óbreyttu – sóknarfæri í einfaldari flugflota til framtíðar – Bogi Nils Bogason
Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair um stöðu félagsins í tilefni af uppgjöri fyrir þriðja ársfjórðung 2026. Farið er yfir helstu niðurstöðu uppgjörsins og spáð í spilin varðandi næstu mánuði og misseri. Bogi Nils fer líka yfir stöðu kjarasamningaviðræða við flugvirkja, flugmenn og flugfreyjur sem hafa gengið mjög illa og ekki sér fyrir endann á. Hátt eldsneytisverð og minnkandi varnir félagsins gagnvart eldsneytiskaupum gætu reynst félaginu þungbærar á næstu mánuðum ef ekkert breytist. Í þættinum er einnig rætt um ýmis álitamál sem verið hafa í fréttum eins og kaup Icelandair á flugrekstrarleyfi á Möltu, ETS gjöldin og skattahækkanir, breytingar á flugflota félagsins, fraktflutninga og fleira.
Sat, 24 Oct 2026 - 1h 00min - 174 - #174 – Stýrir rannsóknardeild flugslysa innan ICAO - Eykst að sóst sé eftir aðkomu ICAO vegna milliríkjadeilna og til að tryggja trúverðugleika - Þormóður Þormóðsson
Í þessum þætti er spjallað við Þormóð Þormóðsson sem stýrir sérstakri rannsóknardeild flugslysa innan Alþjóða flugmálastofnunarinnar ICAO með aðsetur í Montreal þar sem hann hefur búið síðustu 20 árin. Þormóður fer yfir ástæður þess að sérfræðingar frá ICAO eru kallaðir til í rannsóknum flugslysa og segir frá nokrum slíkum tilvikum þar sem hann hefur verið í forsvari. Hann segir það hafa aukist á síðastliðnum árum að sérfræðingar ICAO séu kallaðir til við rannsóknir flugslysa. Oft sé það til að auka trúverðugleika rannóknarinnar og ekki síður þar sem ICAO getur haft milligöngu um samskipti við ríki sem eiga í illdeilu eða stríði við nágranna sína þar sem slys hafa orðið. Viðtalið við Þormóð var tekið í lok ágúst s.l.
Fri, 16 Oct 2026 - 1h 02min - 173 - #173 – Skynsemi og öllum landsmönnum til heilla að staðsetja eina þyrlu LHG á Akureyri. – Sigurður Ásgeirsson og Njáll Trausti Friðbertsson
Í þættinum er rætt við Sigurð Ásgeirsson flugstjóra hjá Landhelgisgæslu Íslands og Njál Trausta Friðbertsson alþingismann um kosti þess að staðsetja björgunarþyrlu á Akureyri. Tilefnið er að Njáll Trausti hefur ásamt fleiri þingmönnum lagt fram þingsályktun á Alþingi um að dómsmálaráðherra verði falið að hefja uppbyggingu á Akureyrarflugvelli til að þar megi stðasetja eina björgunarþyrlu Landhelgisgæslunnar til frambúðar. Sigurður og Njáll fara í þættinum yfir rök sem öll hníga í þá átt að þetta sé skynsamleg ráðstöfun og til þess fallið að auka öryggi allra landsmanna.
Fri, 09 Oct 2026 - 49min - 172 - #172 – Skilgreina þarf hlutverk LHG í öryggis- og varnarmálum, en brýnasta verkefnið er að fá fjórðu þyrluna segir forstjórinn í tilefni 100 ára afmælis Landhelgisgæslunnar – Georg Kr. Lárusson
Landhelgisgæsla Íslands fagnar 100 ára afmæli á þessu ári og af því tilefni er rætt við Georg Kr. Lárusson forstjóra. Farið er yfir afmælisfagnaðinn og rætt um ýmis atriði í langri sögu gæslunnar og einkum þær breytingar sem hafa orðið á þeim rúmlega tveimur áratugum sem Georg hefur setið í stóli forstjóra. Fjallað er um öryggis- og varnarmálin sem forstjórinn segir að falli vel að hlutverki og starfsemi Landhelgisgæslunnar. Hins vegar vanti að skilgreina hlutverk LHG betur í þeim málum og til lengri tíma. Sérstaklega er fjallað um flugdeild gæslunnar og hvernig sá þáttur hefur breyst á undanförnum árum og áratugum og hvernig tækninýjungar eins og drónar og ómönnuð loftför geta mögulega gjöbreytt því hvernig eftirliti er háttað. Georg segir líka stuttlega frá sínum bakgrunni, mótunarárunum í Holti í Önundarfirði og það hvernig tilviljun olli því að hann skráði sig í lagadeild Háskóla Íslands.
Sun, 04 Oct 2026 - 1h 07min - 171 - #171 – „Ekki tapa gleðinni” – Ein af síðustu flugferðum PLAY rifjuð upp þegar 1 ár er liðið frá falli félagsins - Una Gísladóttir og Bjarni Jónsson
Rætt er við þau Bjarna Jónsson flugstjóra og Unu Gísladóttur flugmann í tilefni af því að nú er 1 ár liðið frá falli flugfélagsins Play. Þau voru saman í áhöfn á síðasta degi sem félagið starfaði og flugu Airbus vél félagsins frá Keflavík til Dublin að morgni 29. september 2025 þar sem þau fengu fréttirnar um að félagið væri hætt rekstri. Þau segja frá þessum örlagaríka degi, frá vinnunni hjá Play í gegnum árin og ýmsu öðru áhugaverðu á sínum flugferli. Þau Una og Bjarni starfa í dag hjá sitt hvoru flugfélaginu; Una hjá Air Atlanta og Bjarni hjá Marabu Airlines í Þýskalandi.
Wed, 30 Sep 2026 - 58min - 170 - #170 - Neytendavernd flugfarþega í Evrópu kostar flugfélögin um 8 milljarða USD á ári – fjallað um GROUNDED ráðstefnu AVILABS um flugraskanir og ferðarof (IROPS) – Sveinn Akerlie
Grounded ráðstefnan fór fram í Hörpu í Reykjavík 2.–3. september 2026 og var þetta í þriðja sinn sem hún er haldin á vegum íslenska hugbúnaðarfyrirtækisins AVILABS. Í þættinum er rætt við Svein Akerlie forstjóra AVILABS um efni ráðstefnunnar og einnig eru tveir þátttakendur þau Sherly Lee frá United Airlines og Devon Brown frá WestJet tekin tali. Á Grounded ráðstefnuna mæta sérfræðingar og stjórnendur margra af stærstu flugfélögum heimsins til að ræða hugmyndir og deila mögulegum lausnum sem miðað að því að takast á við flugraskanir og þjónustu við farþega þegar rekstur fer úr skorðum (IROPs). Meðal viðfangsefna voru áhrif óveðurs og lokana á loftrými, takmarkanir í flugumferðarstjórn og innviðum, breyttar væntingar farþega, regluverk og hvernig gervigreind og ný tækni geta breytt viðbrögðum flugfélaga við röskunum.
Thu, 17 Sep 2026 - 34min - 169 - #169 – Gríðarleg uppbygging hjá RwandaAir í Kigali - 5 A330 vélar í flotann á næstu mánuðum og margföld stækkun flugvallarins – lægri skattar og gjöld laða flugfélög að Möltu - Andri Geir Eyjólfsson
Rætt er við Andra Geir Eyjólfsson framkvæmdastjóra flugrekstrarsviðs hjá RwandaAir sem gerir út frá Kigali. Andri Geir hefur víðtæka reynslu úr fluginu og var einn af lykilstjórnendum Play allt þar til yfir lauk haustið 2025 og var í forystu þess að stofna Fly Play á Möltu, sem nú er komið að hluta til í eigu Icelandair. Í þættinum segir Andri Geir frá gríðarlegri uppbyggingu flugtenginga í Kigali; endurnýjun flugflota RwandaAir og stækkun flugvallarins til að anna allt að 11 milljónum farþega á ári. Andri Geir stýrir nú m.a. breytingu á flugflota RwandaAir, en félagið er að innleiða fjölda Aribus breiðþotna á allra næstu mánuðum og ætlunin er að félagið verði komið í um 30 þotur á næstu 5 árum. Rætt er líka um samkeppnishæfni flugfélaga og hvernig t.d. Malta laðar að flugfélög og sérhæft starfsfólk með lægri sköttum og gjöldum.
Mon, 14 Sep 2026 - 45min - 168 - #168 – Arnarflug 50 ára - Flugfélag með ferskan blæ og einstakan starfsanda – lítilmagni sem lifði lengi við hlið Flugleiða.
Í þessum þættu er rakin saga Arnarflugs í tilefni af því að á þessu ári eru 50 ár liðin frá stofnun félagsins. Efni þáttarins byggir á samantekt Flugsafns Íslands um Arnarflug, en safnið opnaði sérstaka sýningu tileinkaða félaginu í byrjun sumars í tilefni tímamótanna. Í þættinum er rætt við nokkra fyrrverandi starfsmenn félgsins; flugfreyjurnar Þuríði Sigurðardóttur og Ágústu Halldórsdóttur og einnig Stefán Halldórsson sem gengdi fjölmörgum störfum fyrir félagið í um áratug. Í þættinum er líka birtur viðtalsbútur við Gunnar Þorvaldsson einn stofnenda Arnarflugs, en Gunnar var gestur í þætti #54 í Flugvarpinu sem birtur var í upphafi árs 2023.
Thu, 03 Sep 2026 - 2h 14min - 167 - #167 - Eftir litlu að sljægjast fyrir flugið með inngöngu í ESB – rætt um kosti og galla aðildar Íslands að ESB fyrir flugrekstur, ETS málin og vond áhrif af reglugerð innviðaráðherra eftir fall Play - Erlendur Gíslason
Í tilefni af þjóðaratkvæðagreiðslu Íslendinga um mögulegar aðildarviðræður að Evrópusambandinu fékk Flugvarpið Erlend Gíslason lögmann í viðtal til að ræða stuttlega um hvaða áhrif innganga í ESB hefði fyrir flugið; þessa stóru grein hérlendis sem þúsundir hafa atvinnu af með beinum og óbeinum hætti. Erlendur er einn eiganda LOGOS og hann hefur um árabil sérhæft sig í flugrétti og fjármögnun flugvéla og starfar á því sviði m.a. fyrir flugfélög, flugvélaleigufyrirtæki og fjármögnunaraðila. Í þættinum er líka fjallað stuttlega um ETS umhverfisskattana og hvernig hagsmunagæslu Íslands var óbótavant við innleiðingu kerfisins í gegnum EES á sínum tíma. Þá gagnrýnir Erlendur harðlega hvernig innviðaráðherra setti á afturvirka reglugerð í kjölfarið á falli Play haustið 2025. Reglugerðin hafi komið illa við íslensk fyrirtæki í flugrekstri og rýrt traust og tiltrú í viðskiptum erlendra flugvélaleigusala við Íslendinga.
Wed, 26 Aug 2026 - 45min - 166 - #166 – Hátíðin Flug&fákar framundan á Egilsstaðaflugvelli – von á tugum flugvéla austur og margs konar græjur til sýnis – mikil tækifæri í að nýta flugvöllinn betur en gert er í dag – Þura Garðarsdóttir
Flughátíðin Flug og fákar verður á Egilsstöðum 26. júlí og af því tilefni er rætt við Þuru Garðarsdóttur sem starfar í dag sem flugradíómaður á Egilsstaðaflugvelli og er aðalsprautan í skipulagningu hátíðarinnar. Hún segir að græjumenningin sé rík í Austfirðingum og það verði sannkölluð upplifun fyrir gesti að mæta á hátíðina á Egilsstaðaflugvelli þar sem verði fullt af alls konar græjum til sýnis; flugvélar og ökutæki. Þura hefur alla sína tíð lifað og hrærst í fluginu og nýtur vinnunar í turninum í dag. Hún starfaði um tíma sem atvinnuflugmaður og var fyrsta konan til að fá listflugsréttindi (aerobatic) í flugskírteini hérlendis. Hún segir í spjallinu stuttlega frá skemmtilegum atriðum á sínum flugferli, ræðir um vinnunni í turninum fyrir austan en þar er vakt allan sólarhringinn og hún telur mikil tækifæri til staðar að nýta Egilsstaðaflugvöll betur en gert er í dag fyrir bæði atvinnuflug og flugkennslu.
Sat, 25 Jul 2026 - 20min - 165 - #165 - Forystumaður í grasrót flugsins – hannar og framleiðir Pixweather, nýjar veðurstöðvar sem virka einkar vel fyrir flugið og vill opnari umræðu um flugatvik- og slys til að flugmenn geti lært af þeim – Ágúst Guðmundsson
Ágúst Guðmundsson er tölvunarfræðingur og flugmaður sem er vel þekktur í grasrót flugsins hér á landi. Hann situr í framkvæmdastjórn alþjóða Flugmálafélagsins (FAI) og hefur á undanförnum áratugum tekið virkan þátt í félagsstörfum hér heima og erlendis. Ágúst er þjálfunar- og tæknistjóri Fisfélags Reykjavíkur sem er fjölmennasti flugklúbbur á Íslandi í dag með um 400 félagsmenn. Félagsstarfið þar er blómlegt og Ágúst segir menn ræða opinskátt um atvik og óhöpp sem verða innan hópsins til að aðrir megi læra af þeim, en hann gagnrýnir um leið flugsvið Rannsóknarnefndar samgönguslysa (RNSA) fyrir skort á upplýsingum um flugatvik- og slys á síðustu misserum, til að aðrir flugmenn geti lært af því gerst hefur. Í tengslum við átak til að efla öryggi í almannaflugi þá hefur Ágúst hannað og framleitt nýja tegund af veðurstöðvum sem hafa reynst einstaklega vel við íslenskar veðuraðstæður. Veðurstöðvarnar heita Pixweather og eru komnar upp á mörgum stöðum hérlendis og erlendis og henta flugáhugamönnum einkar vel. Ágúst segir líka í þættinum frá fyrirhuguðu Íslandsmóti í flugi sem áætlað er í ágúst n.k. og fræðir hlustendur um ýmsar þrautir sem flugmenn þurfa að leysa þar.
Tue, 21 Jul 2026 - 1h 28min - 164 - #164 – Fyrstur á fisflugvél yfir Norðurpólinn – ferðasaga tékkneska fisflugmannsins – nú í fjórða skiptið á fisflugvél til Ísland og stefnir á að heimsækja alla flugvelli landsins - Jiří Pruša
Tékkneski fisflugmaðurinn Jiří Pruša flaug yfir Norðurpólinn þann 4. júlí 2026 og var það í fyrsta sinn sem fisflugvél er flogið yfir pólinn og til baka. Jiří er mikill Íslandsvinur og hafði viðkomu hér á landi á leið sinni frá pólnum og heim til Tékklands. Hann segir hér frá ferðalaginu á fisflugvélinni frá Svalbarða til Norðurpólsins, en ferðin krafðist mikils undirbúnings og það tók langan tíma að afla allra tilskilinna leyfa og uppfylla kröfur norskra flugmálayfirvalda um þjálfun og búnað. Viðtalið við Jiří var tekið á Heiði við félagsaðstöðu Fisfélag Reykjavíkur þar sem hann er alltaf aufúsugestur enda á hann orðið marga góða vini í hópi íslenskra fisflugmanna. Jiří segir frá ýmsu fleiru í þessu spjalli og m.a. frá atviki sem hann lenti í þegar fisvél hans skemmdist við lendingu á flugvellinum í Nýjadal fyrir um tveimur árum síðan, en þar komu vinir hans í Fisfélagi Reykjavíkur til bjargar.
Tue, 14 Jul 2026 - 28min - 163 - #163 – 80 ár frá því að Bretar afhentu Íslendingum Reykjavíkurflugvöll – völlurinn öruggari í sessi nú en áður – samantekt frá viðburði ISAVIA innanlandsflugvalla í tilefni tímamótanna.
Þann 6. Júlí 2026 voru liðin 80 ár frá því að Bretar afhentu íslenska ríkinu Reykjavíkurflugvöll með formlegum hætti og af því tilefni efndi ISAVIA innanlands til kaffisamsætis í flugstjórnarmiðstöðinni við Nauthólsveg þar sem tímamótanna var minnst. Í þessum þætti fer samantekt Flugvarpsins á þessum viðburði, viðtöl við nokkra þá sem tóku til máls og við heyrum áhugaverða og sögulega yfirverð Stefáns Pálssonar sagnfræðings um aðdraganda þess að Reykjavíkurflugvöllur varð til og á þeim stað sem hann er enn í dag.
Sun, 12 Jul 2026 - 38min - 162 - #162 – Flughátíðin Allt sem flýgur á Hellu – einn af hápunktum flugsumarsins – margir viðburðir víða um land - Edda Ingibjörg Eggertsdóttir og Matthías Sveinbjörnsson
Árleg flughátíð Flugmálafélags Íslands verður helgina 10. til 12. júlí n.k. og af því tilefni er spjallað við þau Eddu Ingibjörgu Eggertsdóttur varaforseta og Matthías Sveinbjörnsson forseta Flugmálafélagsins. Rætt er um dagskrá hátíðarinnar í ár og við hverju megi búast ásamt því að spjalla almennt um einkaflugið og stöðu mála í grasrót flugsins á Íslandi. Þau Edda Ingibjörg og Matthías segja líka stuttlega frá því sem þau eru að bardúsa þetta flugsumarið og fara yfir ýmsa flugviðburði sem hafa verið og eru í sumar.
Wed, 08 Jul 2026 - 36min - 161 - #161 – Þyrluflugið mikilvægur þáttur í ferðaþjónstunni - Sameining HeliAir og Reykjavik Helicopters lofar góðu – Friðgeir Guðjónsson
Rætt er við Friðgeir Guðjónsson framkvæmdastjóra sameinaðs þyrlufélags HeliAir Iceland og Reykjavik Helicopters. Farið er yfir aðdragandann að sameiningu félaganna nú í vor og hvernig gengur hjá nýju félagi. Friðgeir segir þyrlubransann engu líkann, þar fái viðskiptavinir stúkusæti til að skoða íslenska náttúru og rík eftirspurn sé eftir því að komast á afskekkta staði þar sem þögnin ríkir. Hann segir þyrluþjónustuna m.a. gríðarlega mikilvægan lið í þjónustu við efnameiri ferðamenn og það sem kallað hefur verið lúxus ferðamennska, en verkefnin eru afar fjölbreytt og kúnnahópurinn alls konar. Friðgeir er mikill flugáhugamaður og hefur verið viðriðinn grasrót flugsins í áratugi. Hann er einkaflugmaður og í stjórn Flugmálafélagsins og hlakkar til þess sem hann kallar hápunkt flugsumarsins þegar flughátíðin á Hellu verður í byrjun þessa mánaðar.
Fri, 03 Jul 2026 - 37min - 160 - #160 – „Flugið er lífsstíll“ – Stórveldið í Kópavogi með risaþotur um allan heim - Valdir kaflar úr upptöku frá „Live podcast“ viðburði Air Atlanta í tilefni 40 ára afmælis félagsins.
Það var fjölmenni sem mætti á „live podcast“ viðburð í tilefni af 40 ára afmæli Air Atlanta á þessu ári sem haldinn var í Cafe Atlanta 28. maí 2026. Í þessum þætti er búið að klippa saman viðtalsefni frá kvöldinu en þennan dag var einmitt tilkynnt um viðskipti lykilstjórnenda Atlanta og Atlas flugfélagsins. Atlas kaupir 49% í Atlanta og núverandi stjórnendur Air Atlanta eignast 51%. Í ljósi þessara tíðinda mætti fyrstur á sviðið Baldvin Már Hermannsson forstjóri og skýrði frá þessum tíðindum og hvað þau þýða fyrir félagið. Í öðrum hluta þáttarins mæta þeir Unndór Jónsson V.P Sales & Marketing, Einar Jón Blandon Director Ground Operations og Haukur Eyjólfsson Manager DevOps en þeir eiga allir það sameiginlegt að hafa starfað lengi fyrir Air Atlanta og hófu sinn starfsferil í vinnu sem flugfreyjur. Í þriðja hlutanum er spjallað við flugstjórana Guðrúnu Helgadóttur og Braga Sigþórsson sem bæði eru flugstjórar í dag á Boeing 747 hjá félaginu. Í lokahlutanum segja fyrrverandi flugstjórarnir Bogi Agnarsson og Einar Dagbjartsson nokkrar sögur úr bransanum. Þátturinn var tekinn upp 28.maí 2026 í Cafe Atlanta í Kópavogi.
Mon, 15 Jun 2026 - 2h 09min - 159 - #159 – „Þetta er náttúrulega bara della“ – einstakur ferill í atvinnuflugi í meira en hálfa öld – flaug fyrstu Twin Otter vélinni til Íslands en besta tímabilið var í Þýskalandi – Ómar Ólafsson
Ómar Ólafsson flugstjóri á að baki langan og stórmerkilegan feril í fluginu. Hann fór í flugnám um miðjan sjöunda áratuginn og hefur sinnt ótrúlega fjölbreyttum störfum á langri starfsævi hjá fjölda flugfélaga. Má þar nefna Flugfélagið Þór í Keflavík, flugþjónustu Björns Pálssonar, Vængi, Arnarflug, Transwede ab í Stokkhólmi, Sudflug GmbH og Condor í Þýskalandi. Að loknum atvinnuflugmannsferli réði hann sig til Flugmálastjórnar Íslands, nú Samgöngustofu þar sem hann sinnti eftirliti með flugrekstri í tæpan áratug. Ómar flýgur enn sér til ánægju á Cessnu 185 og stendur að veglegri uppbyggingu ásamt fleirum í Múlakoti í Fljótshlíðinni. Einkar áhugavert spjall við flugstjóra sem hefur upplifað og tekið þátt í gríðarlegum breytingum og þróun atvinnuflugs hérlendis og erlendis um áratuga skeið.
Wed, 03 Jun 2026 - 1h 51min - 158 - #158 – ”Live podcast” - Viðburður Icelandair og Flugvarpsins – upptaka frá 7. maí 2026 – Linda Gunnarsdóttir, Snorri Tómasson og Guðbergur Ólafsson
Upptaka frá ”live podcast” viðburði Icelandair sem haldinn var í samvinnu við Flugvarpið 7. maí 2026. Rætt er við þau Lindu Gunnarsdóttur director chief pilots office, Snorra Tómasson director network and scheduling og Guðberg Ólafsson manager operations control center. Spjallað er um starf þeirra hjá Icelandair og hvernig mismunandi deildir félagsins vinna í sameiningu við að halda tengimiðstöðinni í Keflavík og öllu flugi félagsins í gangi, alla daga allt árið um kring. Áhugavert spjall sem veitir örlitla innsýn í flókin verkefni við rekstur Icelandair.
Wed, 20 May 2026 - 1h 19min - 157 - #157 – Samantekt frá fundi Flugmálafélagsins um Reykjavíkurflugvöll og flugið í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga.
Flugmálafélag Íslands stóð fyrir fundi um Reykjavíkurflugvöll og flugið í aðdraganda sveitastjórnarkosninga. Fulltrúar allra framboða sem bjóða fram í höfuðborginni mættu, hlustuðu á erindi og greindu frá afstöðu sinni og síns flokks. Þessi þáttur er stutt samantekt frá þessum fundi og samanstendur af inngangsorðum frá Matthíasi Sveinsbjörnssyni forseta Flugmálafélagsins, á eftir honum fer Viðar Jökull Björnsson flugvallarstjóri á Reykjavíkurflugvelli yfir stöðu vallarins og þar á eftir koma stutt erindi frá hverjum frambjóðenda um afstöðuna til flugvallarins.
Sat, 16 May 2026 - 43min - 156 - #156 – Efast um heimildir heilbrigðiseftirlits borgarinnar til að setja hömlur á starfsemi flugvallarins - Rætt um skipulagsmál RKV og KEF og af hverju er Malta vinsæl? – Karl Alvarsson
Karl Alvarsson er fyrrverandi flugumferðarstjóri og lögfræðingur og hefur unnið ýmis sérfræðistörf tengd fluginu. Hann er í dag formaður Fagráðs um flugmál sem er innviðaráðherra til ráðuneytis í málaflokknum og er þar að auki formaður skipulagsnefndar fyrir Keflavíkurflugvöll. Í þættinum er rætt við Karl um skipulagsmálin, þá einkum í Reykjavík. Karl gagnrýnir að alþjóðaflugvöllurinn í höfuðborginni, sem jafnrframt er hjartað í innanlandssamgöngukerfinu, skuli háður starfsleyfi frá heilbrigðiseftirliti borgarinnar. Hann ræðir líka um fyrirkomulag skipulagsmála á Keflavíkurflugvelli og um helstu verkefni sem þar eru framundan. Ásælni flugfélaga í að hafa leyfi til flugrekstrar á Möltu eru líka til umræðu í þættinum og þeirri spurningu varpað fram hvort íslensk stjórnvöld geti gert eitthvað til að efla íslenska flugrekendur í alþjóðlegri samkeppni. Áhugavert spjall fyrir alla þá sem vilja fylgjast með í flugmálum.
Wed, 13 May 2026 - 1h 31min - 155 - #155 – Flugfreyja, leikkona, leiðsögumaður og uppistandari með ólæknandi ferðabakteríu – „Samskipti við fólk eru mínar ær og kýr“ segir Helga Braga í spjalli um flugfreyjustarfið, leiklistina o.fl. – Helga Braga Jónsdóttir
Rætt er við Helgu Brögu Jónsdóttur flugfreyju og eina þekkturstu leikkonu landsins. Hún hefur verið í ferðabransanum í um 40 ár, vann um skeið hjá Ferðaskrifstofu Íslands og hóf flugfreyjuferil sinn hjá Iceland Express árið 2011, áður en hún fór til WOW air og síðar Icelandair þar sem hún starfar í dag. Helga Braga segir hér stuttlega frá ýmsu á sínum langa ferli og rifjar upp skemmtileg atvik og líka erfiðar aðstæður eins og þegar WOW varð gjaldþrota. Hún segist njóta þess mjög í dag að geta sameinað flugfreyjustarfið og leiklistina. Bæði súist um samskipti við fólk og í flugfreyjustarfinu eru samskiptin við fólk alls staðar að úr heiminum. Hressandi spjall við stórskemmtilega konu í fluginu.
Mon, 04 May 2026 - 1h 13min - 154 - # 154 - Umhverfisskattar ógna tengimiðstöð flugs um Ísland. ESB vinnur að endurskoðun á ETS kerfinu. Flugvarpið rýnir í skýrslu sem íslensk stjórnvöld sendu til ESB sem innlegg í þessa vinnu og rætt er við Sigurberg Björnsson fulltrúa innviðaráðuneytisins
Í þættinum er fjallað um ETS viðskiptakerfið og áhrif þess á flugrekstur í Evrópu og ekki síst hér á Íslandi. Rýnt er í skýrslu sem íslensk stjórnvöld sendu í samráðsgátt Evrópusambandsins sem innlegg Íslands í vinnu við endurskoðun á ETS kerfinu. Rætt er við Sigurberg Björnsson fulltrúa innviðaráðuneytisins í Brussel en hann hefur á síðustu árum unnið að því að greina áhrif ETS kerfisins á flug og við að koma sjónarmiðum Íslands á framfæri við framkvæmdastjórnina í Brussel. Evrópusambandið er að meta áhrifin af ETS kerfinu á samkeppnishæfni flugfélaga, flugtengingar og fjarlægar byggðir eins og Ísland. Þessari endurskoðun á að ljúka á þessu ári og því mikið undir að vel takist til.
Tue, 28 Apr 2026 - 1h 01min - 153 - #153 – Sérfræðingur í skipulagningu á viðhaldi flugvéla – er ein fárra kvenna í stétt flugvirkja á Íslandi – Guðrún Hrefna Kolbeinsdóttir
Rætt er við Guðrúnu Hrefnu Kolbeinsdóttur flugvirkja hjá Icelandair um hennar starf við skipulagningu á viðhaldi flugvéla sem hún hefur starfað við í á annan áratug. Guðrún Hrefna segir líka frá því hvernig það kom til að hún fór í flugvirkjanámið á sínum tíma til Danmerkur og hvernig hún fann sína fjöl þar þrátt fyrir að hafa aldrei í bernsku haft sérstakan áhuga á að gera við og laga hluti. Guðrún Hrefna er af Suðurnesjunum og er ein þeirra sem bjó í Grindavík þegar rýma þurfti bæinn vegna jarðhræringa og býr nú Keflavík. Áhugavert spjall við öfluga konu þar sem sjónum er beint að fjölbreyttum störfum flugvirkja og ekki síst skipulagi viðhalds á farþegaþotum í dag.
Tue, 21 Apr 2026 - 48min - 152 - #152 – AVIANS tekur við af ISAVIA ANS. Ísland í leiðtogahlutverki í flugleiðsöguþjónustu á Norður-Atlantshafinu. Framkvæmdastjórinn segir metnað um að auka sveigjanleika og bæta þjónustuna við flugið. - Kjartan Briem.
Rætt er við Kjartan Briem framkvæmdastjóra AVIANS dótturfyrirtækis ISAVIA, en fyrirtækið annast flugleiðsöguþjónustu á íslenska flugstjórnarsvæðinu, sem er eitt hið stærsta í heimi. Kjartan segir frá breytingum sem orðið hafa í tækni og þjónustu á liðnum árum og ræðir þær áskoranir sem blasa við. Unnið er að því að fjölga í hópi flugumferðarstjóra til að tryggja að ekki verði skortur sem komi niður á þjónustunni eins og stundum hefur gerst á síðustu árum. Hann segir kynslóðaskipti vera að eiga sér stað í hópi flugumferðarstjóra vill sameina krafta krafta starfsfólks um að auka sveigjanleika og tryggja um leið öfluga þjónustu við flugið.
Fri, 17 Apr 2026 - 42min - 151 - #151 – Icelandair vill kaupa 49% í flugfélaginu Fly Play Europe á Möltu – meiri sveigjanleiki og ný tækifæri segir forstjórinn - Bogi Nils Bogason
Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair í tilefni af viljayfirlýsingu sem félagið hefur skrifað undir um að hefja viðræður um möguleg kaup á 49% hlut í félaginu Fly Play Europe, sem er skráð á Möltu og er með flugrekstrarleyfi þar. Félagið var stofnað af íslenska flugfélaginu Play þegar það var í rekstri og er í eigu íslenskra fjárfesta, þar á meðal lífeyrissjóða. Bogi Nils fer yfir hvers vegna þetta er talið álitlegt fyrir Icelandair og um möguleika sem þetta skapar í að víkka út starfsemi félagsins. Einnig er stuttlega komið inn á ástand heimsmála, hækkun eldsneytisverðs og íslenskan vinnumarkað.
Wed, 01 Apr 2026 - 26min - 150 - #150 - Mikil eftirspurn eftir Grænlandsflugi Norlandair – 7 flugvélar í rekstri og tækifærin mörg – þörf á uppbyggingu víðar en í Keflavík – Arnar Friðriksson
Rætt er við Arnar Friðriksson framkvæmdastjóra flugfélagsins Norlandair um starfsemi félagins sem er með höfuðstöðvar sínar á Akureyri. Félagið er með 7 flugvélar í rekstri og flug félagsins er gríðarlega mikilvægt ekki bara fyrir Akureyringa heldur landsmenn alla. Félagið er með sjúkraflugsvakt allan sólarhringinn allt árið um kring, sinnir áætlunarflugi innanlands og síðast en ekki síst sinnir það fjölbreyttum leiguflugsverkefnum með Twin Otter flugvélum í krefjandi aðstæðum á Grænlandi. Arnar ræðir vítt og breitt um um flugmálin, innanlandsflugið, útboðsmálin og rekstrarumhverfi fyrir lítið flugfélag eins og Norlandair. Einnig er farið yfir þær aðstæður sem sköpuðust 26. febrúar síðastliðinn þegar margar þotur lentu á Reykjavíkurflugvelli og fyrir vikið varð völlurinn ekki nothæfur um tíma fyrir sjúkra- og áætlunarflug. Áhugavert spjall þar sem hlustendur fá örlitla innsýn í rekstur Norlandair. Viðtalið var tekið upp í lok mars inni í F-27 flugvél Landhelgisgæslunnar á Flugsafni Íslands á Akureyri.
Mon, 30 Mar 2026 - 46min - 149 - #149 – Rétt þjálfun, hæfni og skilningur flugmanna getur skilið á milli feigs og ófeigs segir „guðfaðir” UPRT þjálfunar. Sj´álfvirkni, háþróuð kerfi og minna handflug kalla á nýjan nálgun í þjálfun – Dr. Sunjoo Advani
Í þættinum er rætt við Dr. Sunjoo Advani forstjóra og stofnanda IDT (International Development of Technology) sem Boeing hefur kallað guðfaðir UPRT (Upset Prevention and Recovery Training) þjálfunar í heiminum. Tilefni heimsóknar Dr. Sunjoo til Íslands að þessu sinni er samstarf IDT og þjálfunardeildar Icelandair. Hann segir að rétt þjálfun flugmanna sé meginatriðið í að koma í veg fyrir slys eins og þau sem valdið hafa flestum banaslysum í farþegaflugi í heiminum á síðustu árum. Þau eru flest rakin til þess að flugmenn hafa af einhverjum orsökum misst stjórn á flugvélinni og í kjölfarið ekki náð að fljúga vélinni út úr slíkum aðstæðum þar sem flugvélin er komin langt út fyrir það sem kallast getur venjulegt flug. Flugvélin verður það sem skilgreint er sem „UPSET“. Dr. Sunjoo segir samvinnu allra hagsmunaaðila í flugi vera lykil að góðum árangri og hrósar samstarfi þjálfunardeildar Icelandair, Landhelgisgæslunnar og Samgöngustofu í þessum efnum. Fróðlegt spjall við merkan mann sem hefur um áratuga skeið verið í forystu á alþjóðavettvangi fyrir bættu öryggi í atvinnuflugi.
Mon, 23 Mar 2026 - 48min - 148 - #148 – Ólíklegt að eignir þrotabús flugfélagins Play dugi fyrir forgangskröfum uppá um 1 milljarð – kröfurnar í heild um 20 milljarðar - Arnar Þór Stefánsson
Rætt er við Arnar Þór Stefánsson hæstaréttarlögmann og skiptastjóra þrotabús flugfélagsins Play. Farið er yfir stöðuna í þrotabúinu eftir fall félagsins og þá vinnu sem skiptastjórar hafa unnið til þessa. Heildarkröfur í þrotabúið nema um 20 milljörðum króna, eignir eru afar takmarkaðar og þess vegna ólíklegt er að fáist upp í forgangskröfur. Rætt er um skuldabréfaútboð Play skömmu fyrir gjaldþrotið, dótturfélagið á Möltu, stöðu kærumála hjá Samkeppniseftirlitinu og fleira. Í lok þáttar berst talið að fótbolta, nánar tiltekið dómarastörfum í fótbolta, en áhugamál og annað starf Arnars Þórs er að vera dómari í efstu deild og nú styttist óðum í að nýtt tímabil hefjist.
Thu, 19 Mar 2026 - 44min - 147 - #147 – Mildi að varaflugvellirnir virkuðu þann 26. febrúar 2026 – samantekt um veðrið, flugreksturinn, flugvellina og fólkið - Einar Sveinbjörnsson, Ásgeir Gunnar Stefánsson og Sigrún Björk Jakobsdóttir
Í þættinum er fjallað um atburðina þann 26. febrúar þegar veðurskilyrði í Keflavík breyttust undraskjótt sem olli því að margar farþegaþotur og fleiri flugvélar urðu frá að hverfa og neyddust til að lenda á sínum varaflugvöllum í Reykjavík og á Akureyri og á Egilsstöðum. Varaflugvellirnir sönnuðu svo sannarlega gildi sitt þennan dag og á allt starfsfólk í fluginu sem að kom mikið hrós skilið fyrir fagleg vinnubrögð á öllum stigum. Í þættinum er rætt við Einar Sveinbjörnsson veðurfræðing um veðrið sem skall á suðvesturhorni landsins þennan dag, um veðurspárnar og hvenrig megi mögulega bæta þær. Ásgeir Gunnar Stefánsson aðstoðar-yfirflugstjóri Icelandair fer yfir viðbrögð félagsins þegar 15 farþegaþotur þess urðu frá að hverfa í Keflavík og loks er rætt við Sigrúnu Björk Jakobsdóttur framkvæmdastjóra innanlandsflugvalla ISAVIA um viðbrögð á varaflugvöllunum og hvað læra megi af þessum viðburði.
Wed, 04 Mar 2026 - 1h 04min - 146 - #146 – Komu til Afríku áður en þau komu til Akureyrar. Flugsystkynin Anna María og Róbert Magnús spjalla um ferilinn og Air Atlanta sem er að fá 19. breiðþotuna og þjálfa nýja flugmenn. - Anna María Kristmundsdóttir og Róbert Magnús Kristmundsson.
Gestir þáttarins eru systkynin Anna María og Róbert Magnús Kristmundsbörn sem hafa bæði áratuga reynslu úr flugheimunum, hún sem flugfreyja og hann sem flugstjóri. Bæði fengum þau “flugbakteríuna” í vöggugjöf því faðir þeirra Kristmundur Magnússon var loftskeytamaður og síðar flugstjóri fyrir ýmis flugfélög víðs vegar um heiminn. Anna María hóf sinn feril í fluginu hjá Air Atlanta en starfar í dag sem flugfreyja hjá Icelandair þar sem hún er m.a. að sinna VIP ferðum á vegum Loftleiða. Róbert Magnús er yfirflugstjóri hjá Air Atlanta, sem fagnar 40 ára afmæli á þessu ári. Þar er í nógu að snúast við að bæta við breiðþotum og ráða fólk til starfa í ört stækkandi fyrirtæki. Nítjánda breiðþota félagsins er væntanleg í vor.
Fri, 27 Feb 2026 - 51min - 145 - #145 - Skipulagsvald borgarinnar yfir Reykjavíkurflugvelli í öngstræti. Borgin vill starfsemina burt 2032 án tillits til þjóðarhagsmuna. Spjallað við Njál Trausta alþingismann um innanlandsflugvellina, samgönguáætlun o.fl. - Njáll Trausti Friðbertsson
Í þættinum er rætt við Njál Trausta Friðbertsson alþingismann og flugumferðarstjóra um ýmis atriði sem tengjast fluginu í nýrri samgönguáætlun og nú er í meðförum Alþingis. Njáll Trausti hefur fylgst vel með flugmálum á síðustu árum og verið ötull talsmaður uppbyggingar á flugvöllum landsins, einkum til að auka flugöryggi. Í nýlegri umsögn Reykjavíkurborgar um samgönguáætlun er varað við allri uppbyggingu á flugvellinum í Vatnsmýri því flugstarfsemi sé ekki á skipulagi þar eftir árið 2032. Njáll Trausti telur að afstaða borgarinnar byggi á afar þröngum hagsmunum og hefur velt upp þeirri hugmynd að skipulagsvaldi yfir vellinum yrði breytt enda um þjóðarhagsmuni að ræða. Í þættinum er einnig spjallað um mögulega staðsetningu björgunarþyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri, varaflugvallagjaldið og framkvæmdir á alþjóðaflugvöllum landsins og um samkeppnishæfni Evrópu í tengslum við ETS viðskiptakerfi Evrópusambandsins.
Thu, 19 Feb 2026 - 1h 02min - 144 - #144 – Heillaðist af fluginu og stýrir nú flugumferð á Reykjavíkurflugvelli. Vill efla samtalið við flugmenn til að auka skilning milli hópa. Aníta Eik Kjartansdóttir
gestur þáttarins er Aníta Eik Kjartansdóttir en hún lauk námi í flugumferðarstjórn árið 2024 og starfar í dag í turninum á Reykjavíkurflugvelli. Hún heillaðist snemma af fluginu og segir í þessum þætti frá flugumferðarstjóranáminu og uppbyggingu þess. Þá fer hún yfir ýmislegt sem tengist starfinu í dag og gefur þannig hlustendum smá innsýn í starf flugumferðarstjórans í turninum á Reykjavíkjurflugvelli. Aníta Eik segir líka frá verkefni sem hún og samstarfsfélagi hennar eru að fara af stað með og snýst um að heimsækja flugskólana með það fyrir augum að auka betur skilning milli flugmanna og flugumferðarstjóra.
Sat, 14 Feb 2026 - 46min - 143 - #143 – Margt jákvætt í rekstri Icelandair þrátt fyrir tap uppá 1,2 milljarða eftir skatta í fyrra. Umhverfisskattar og gjöld um 5 milljarðar hjá Icelandair 2025. Töf er á afhendingu hjá Airbus og lausir kjarasamningar skapa óvissu. Bogi Nils Bogason
Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair í tilefni af uppgjöri félagisns fyrir árið 2025 sem nú er búið að birta. Þrátt fyrir sterkan fjórða ársfjórðung, góða stundvísi og góða sætanýtingu hjá félaginu þá er niðurstaðan sú að EBIT tapið nam 2,2 milljörðum króna og tap eftir skatta um 1,2 milljörðum. Rætt er um stöðu félagsins og horfurnar framundan, umhverfisskatta, kjarasamninga, flotamálin, hluthafana, innanlandsflugið og margt fleira.
Fri, 06 Feb 2026 - 41min - 142 - #142 - Ferðarof eða raskanir á flugi eru flugfélögunum dýr – AVILABS er íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki sem þjónar flugfélögum um allan heim þegar flug raskast – varð til eftir fall WOW og stækkar hratt – Sveinn Akerlie
Rætt er við Svein Akerlie stofnanda og forstjóra Avilabs sem er öflugt íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki og sérhæfir sig í þjónustu við farþega þegar raskanir verða á flugi eða það sem kallast ferðarof. Í desember s.l. urðu raskanir á meira en 700 þúsund flugferðum vítt og breitt um heiminn sem kallar á skjóta úrlausn mála fyrir milljónir farþega og þar liggur markaðurinn fyrir lausnir frá AVILABS. Kostnaður flugfélaga við raskanir á flugi telur tugi milljarða dollara á hverju ári og það hvernig úr slíkum málum er unnið getur skilið á milli þess hvort flugfélag skilar hagnaði eða ekki. Sveinn segir hér frá þessari einstöku viðskiptahugmynd og tilurð fyrirtækisins þar sem nú starfa 35 manns í sérhæfðum störfum tengdum flugi.
Thu, 22 Jan 2026 - 1h 18min - 141 - #141 – Áramótaspjall – rætt um fréttir og viðburði í fluginu á árinu 2025 og hvað sé framundan á nýju ári – Kristján Már Unnarsson og Matthías Sveinbjörnsson fara yfir málin.
Þáttur #141 er kominn í loftið. Í þessum áramótaþætti er farið yfir ýmsar helstu fréttir úr fluginu á árinu 2025 og spáð í útlit og horfur fyrir 2026. Gestir þáttarins þekkja vel til í flugmálum þeir Kristján Már Unnarsson fréttamaður og Matthías Sveinbjörnsson forseti Flugmálafélags Íslands. Rætt er um Icelandair og flotamálin, fall Play og fækkun flugfélaga, nýjan ráðherra flugmála, pólitíkina kringum Reykjavíkurflugvöll og stefnu nýrrar ríkisstjórnar og margt fleira. Áhugaverður þáttur fyrir alla sem vilja fylgjast með því sem er að gerast í flugmálum okkar Íslendinga.
Sat, 10 Jan 2026 - 1h 31min - 140 - #140 Gamlársdagur á Reykjavíkurflugvelli – spjallað við nokkra flugmenn á rölti um Fluggarða á síðasta degi ársins 2025.
Þáttur #140 var tekinn upp á gamlársdag 2025 í Fluggörðum, en rík hefð er fyrir því að flugklúbbar þar eins og víðar á landinu bjóði gestum í kaffi og kökur í lok ársins. Í veðurblíðunni voru líka margir sem nýttu daginn til að viðra sig og fara í flugtúr. Viðmælendur (sem voru óvænt teknir tali) í þessum þætti eru: Bragi Sigþórsson hjá Flugskóla Reykjavíkur, Einar Dagbjartsson flugstjóri á TF-KAF, Hákon Öder Einarsson í Flugklúbbnum Þyt, Guðmundur Sveinbjörnsson hjá flugskólanum Geirfugli, Sigurgeir Guðbjörnsson flugstjóri á TF-HOT, Viktor Tumi Ólafsson flugmaður hjá Air Atlanta, Kjartan Óli Kristinsson flugkennari, Axel Sölvi Axelsson flugstjóri og Gunnar Ingi Láruson formaður Þyts og flugkennari.
Fri, 02 Jan 2026 - 28min - 139 - #139 – Farþegum um KEF fækkar annað árið í röð – tengifarþegum fækkar mest – forstjóri ISAVIA vill halda dampi í gegnum lægðina og vera tilbúinn þegar farþegum fjölgar á ný - Sveinbjörn Indriðason
Rætt er við Sveinbjörn Indriðason forstjóra ISAVIA um reksturinn á Keflavíkurflugvelli í tilefni af nýrri farþegaspá fyrir árið 2026. Spáin gerir ráð fyrir töluverðri fækkun farþega um völlinn og munar þar mestu um 15% færri tengifarþega. Sveinbjörn segir að þessi fækkun muni hægja á framkvæmdum á vellinum, tekjurnar minnki á sama tíma og kostnaður hækkar sem hefur áhrif á afkomuna. Hann leggur samt áherslu á að ISAVIA horfi í gegnum tímabundna niðursveiflu, haldi uppi góðri þjónustu og allt verði tilbúið til að grípa tækifærin þegar umferð og farþegum fjölgar á ný um tengimiðstöðina. Forstjórinn ræðir einnig málefni Reykjavíkurflugvallar, afturvirka reglugerð innviðaráðherra eftir fall Play, samningamál við flugumferðarstjóra og margt fleira. Áhugavert spjall við forstjóra ISAVIA- fyrirtækis sem er í lykilhlutverki í flugmálum okkar Íslendinga.
Tue, 23 Dec 2025 - 1h 21min - 138 - #138 – Icelandair auglýsir eftir flugmönnum – margar umsóknir nú þegar og félagið mun geta valið úr hópi reynslumikilla flugmanna - Linda Gunnarsdóttir
Rætt er við Lindu Gunnarsdóttur yfirflugstjóra Icelandair um fyrirhugaðar ráðningar flugmanna í millilandaflug félagsins. Á annað hundrað flugmenn misstu vinnuna þegar Play fór í þrot í haust og nú auglýsir Icelandair eftir fólki með reynslu á þotu. En hvað á að ráða marga og hvaða vélum eiga þeir að fljúga? Linda svarar þessum spurningum og fleirum í þættinum þar sem farið er stuttlega yfir ferlið framundan, inntökuprófin, þjálfanir, "cadet" prógrammið og fleira.
Thu, 18 Dec 2025 - 23min - 137 - #137 – Fékk fyrsta flugmannsstarfið á þotu hjá Icelandair, en valdi að snúa aftur heim og flýgur nú hjá KLM út frá Schiphol. Spjallað um flugmannsstarfið hér og þar - Lennart Keizer
Rætt er við Lennart Keizer flugmann á Boeing 737 hjá KLM, en hann byrjaði sinn flugmannsferil hjá Icelandair árið 2017 þegar Icelandair réð nokkurn hóp erlendra flugmanna til starfa hjá félaginu. Lennart flutti aftur til heimalandsins í fyrra þegar honum bauðst vinna hjá KLM og er í dag með heimahöfn á Schiphol í Amsterdam, þar sem viðtalið var tekið upp. Lennart lærði flugvirkjun og verkfræði og vann ýmist störf tengd fluginu áður en hann lét af því verða að læra til atvinnuflugmanns. Hann var kominn á fertugsaldur þegar honum bauðst flugmannsstaða hjá Icelandair á Boeing 757 fyrir um 7 árum síðan. Hollendingurinn segir hér frá upplifuninni að koma til Íslands til að vinna sem flugmaður. Spjallað er um muninn á flugrekstri KLM og Icelandair, kosti og galla og af hverju Lennart valdi að snúa aftur heim til Hollands á þessum tímapunkti á ferlinum. Upptakan fór fram í Amsterdam í byrjun desember 2025.
Mon, 15 Dec 2025 - 1h 13min - 136 - #136 – Það gerist all mannlegt um borð í flugvél og farþegarnir ekki alltaf á leið í skemmtiferð – þakklát fyrir draumastarfið sem flugfreyja í nær hálfa öld - Björg Jónasdóttir
Rætt er við Björgu Jónasdóttur fyrrverandi flugfreyju hjá Icelandair, Flugleiðum og þar áður Loftleiðum um flugfreyjustarfið og ýmsa atburði á hennar langa og fjölbreytta flugferli. Björg hóf störf árið 1972 þegar hún var aðeins tvítug að aldri. Hún segir meðal annars frá fyrstu flugferðunum á DC-8, lærdómsferlinu að vinna í pílagrímaflugi á sjöunda áratugnum, leiguflugi á ýmsum fáförnum og framandi slóðum ásamt mörgu fleiru sem á daga hana dreif í starfinu vítt og breitt um heiminn. Björg hóf ferilinn árið 1972 og óhætt að segja að miklar breytingar hafi átt sér stað í starfsumhverfi flugfreyjunnar á árunum og áratugunum þar á eftir, en um leið eru aðrir þættir sem hafa haldist óbreyttir.
Mon, 08 Dec 2025 - 1h 54min - 135 - #135 - Vinir Gunnfaxa – landssöfnun til að koma þristinum Gunnfaxa á samgöngusafnið á Skógum – Snorri og Jón Karl Snorrasynir
Rætt er við bræðurna Snorra og Jón Karl Snorrasyni um landssöfnun sem nú er í gangi til að bjarga flugvélaflaki þristsins Gunnafaxa af Sólheimasandi. Þeir bræður hafa á undanförnum vikum unnið að verkefninu ásamt Ólafi Eggertssyni bónda á Þorvaldseyri. Gunnfaxi var í eigu Þristavinafélagsins og hafði verið í geymslu í skýli á Keflavíkurflugvelli um árabil. Eigendafélag Sólheimasands keypti vélina fyrr á þessu ári til að koma í stað þeirrar sem brotlenti á Sandinum fyrir rúmlega hálfri öld og hefur verið mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn. Þeir Snorri og Jón Karl segjast hóflega bjartsýnir á að takist að safna nægu fé til að koma vélinni í skjól á Skógum en biðla til áhugasamra, bæði einstaklinga og fyrirtækja að taka þátt í verkefninu. Hægt er að leggja málefninu lið með því að leggja inn á söfnunarreikning Vina Gunnfaxa: kt: 621025-1710 og reikningsnúmer: 0515-26-989860.
Sun, 30 Nov 2025 - 25min - 134 - #134 – Dýrkeyptur metnaður Evrópu í loftlagsmálum – Ísland ber langhæsta kostnað allra landa í Evrópu sem kemur illa niður á íslenskum flugrekstri - Heiða Njóla Guðbrandsdóttir
Rætt er við Heiðu Njólu Guðbrandsdóttur verkfræðing og forstöðumann hjá Icelandair um þann gríðarlega kostnað sem fellur á íslensk flugfélög í formi umhverfisskatta- og gjalda, en hún er sérfræðingur í margs konar kerfum sem sett hafa verið á flugfélögin í nafni loftlagsmála. Heiða Njóla útskýrir í þættinum hvernig ETS viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir virkar og hver þróunin hefur verið og fer yfir plönin framundan. Annar vaxandi kostnaðarliður í rekstri flugfélaga er SAF eða sjálfbært eldsneyti og hefur ESB sett reglur um að notkun á því skuli margfaldast á næstu árum. Þá er einnig til kerfi á vegum ICAO Alþjóðaflugmálastofnunarinnar sem kallast CORSIA og heldur utan um losun gróðurhúsalofttegunda í alþjóðaflugi, svo eitthvað sé nefnt. Öll þessi kerfi þýða marga milljarða króna kostnað á ári fyrir félag eins og Icelandair og útfærslan þýðir að Ísland ber langhæstu kostnaðarbyrðar allra landa Evrópu í formi loftlagsskatta. Núverandi plön og regluverk gerir ráð fyrir að þessi kostnaður muni bara hækka á næstu árum og það verulega. Áhugavert og upplýsandi viðtal um stöðu flugsins í þessu samhengi.
Tue, 25 Nov 2025 - 56min - 133 - #133 – Hagur allra að rekstur Icelandair verði arðbær aftur segir flugmaðurinn og fyrrum forstjóri Play sem nú er framkvæmdastjóri flugrekstrar Icelandair – Arnar Már Magnússon
Rætt er við Arnar Má Magnússon nýjan framkvæmdastjóra flugrekstrarsviðs Icelandair, en hann tók nýlega við stöðunni samhliða skipulagsbreytingum sem gerðar voru hjá félaginu til að einfalda yfirstjórnina. Arnar Már er atvinnuflugmaður og hefur að auki langa reynslu af flugrekstri. Hann var forstjóri Play og einn af stofnendum þess, var yfirflugstjóri og flugrekstrarstjóri hjá WOW og þar áður starfaði hann sem flugstjóri hjá flugfélaginu RyanAir. Arnar fer í þættinum stuttlega yfir sinn feril, aðdragandann að stofnun Play og ekki síst um stöðu Icelandair í dag og stór verkefni sem þar blasa við til að koma félaginu í sjálfbæran rekstur aftur.
Thu, 20 Nov 2025 - 1h 33min - 132 - #132 – Alvarleg flugatvik geta verið undanfari slysa – rætt um flugslysarannsóknir og rýnt í alvarlegt atvik yfir Íslandi sem draga má mikinn lærdóm af - Ragnar Guðmundsson
Rætt er við Ragnar Guðmundsson flugvélaverkfræðing og rannsakanda hjá flugsviði Rannsóknarnefndar samgönguslysa um fjölgun alvarlegra flugatvika á síðustu árum. Þá hefur fjölgun alvarlegra flugumferðaratvika á síðustu misserum orðið tilefni til sérstakrar umræðu á fundum RNSA og Samgöngustofu og ýmsar tillögur í öryggisátt eru þegar komnar til framkvæmda. Ragnar hefur starfað í yfir 25 ár í fluginu hérlendis og þar af í 21 ár við rannsóknir flugslysa og alvarlegra flugatvika. Hann miðlar hér stuttlega af sinni áratuga reynslu og rýnt er sérstaklega í skýrslu RNSA um alvarlegt flugatvik sem varð á breiðþotu yfir Íslandi í febrúar 2023. Draga má mikinn lærdóm af því sem þar gerðist og atvikið hefur þegar stuðlað að ýmsum breytingum til hins betra.
Wed, 12 Nov 2025 - 58min - 131 - #131 – Getur vont skap valdið flugslysum? Spjall um andlega heilsu og flugöryggi - Jóhann Pétur Wium Magnússon
Rætt er við Jóhann Pétur Wium Magnússon flugsálfræðing í tilefni af áhugaverðu erindi hans á flugöryggisráðstefnunni Reykjavik Flight Safety Symposium sem haldin var nýverið. Geðheilbrigðismál hafa á síðustu árum fengið meiri athygli í fluginu eins og víða annars staðar. Nýjar reglur hafa verið settar um eftirlit og flugrekendum einnig gert að hafa úrræði til staðar fyrir sitt starfsfólk. Jóhann Pétur segir að almennt sé fólk að vakna til vitundar um andlega heilsu og umræðan sé af hinu góða því hún vinni gegn fordómum.
Fri, 31 Oct 2025 - 33min - 130 - #130 – Nauðsynlegt að snúa við ósjálfbærum rekstri Icelandair – vonbrigði eftir Q3 og útlit fyrir tap af árinu í heild - Bogi Nils Bogason
Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair í tilefni af uppgjöri félagsins eftir fyrstu 9 mánuði ársins 2025. Þrátt fyrir auknar tekjur og ýmis jákvæð teikn í rekstrinum olli rekstrarniðurstaðan vonbrigðum og spáð er tapi á rekstri félagsins í árslok. Eftir 8 ár af ósjálfbærum rekstri segir forstjórinn nauðsynlegt að snúa rekstrinum við eigi síðar en á næsta ári. Hann segir nauðsynlegt að félagið verði samkeppnisfært og gagnrýnir misvitur gjöld í nafni umhverfisins sem virki ekki og valda félaginu gríðarlegum kostnaði. Bogi varar líka við auknum sköttum á flugrekstur og ferðaþjónustuna og gagnrýnir harðlega vinnubrögð innviðaráðherra nýlega þegar sett var reglugerð eftirá í kjölfar falls Play. Ýmis önnur viðfangsefni ber á góma í spjallinu við Boga eins og breytingar á flotamálum, kjarasamninga og áframhaldandi harða samkeppni við stærstu flugfélög Evrópu og Norður-Ameríku.
Thu, 23 Oct 2025 - 57min - 129 - #129 - Flugvarpið 5 ára - upptaka frá afmælisviðburði í Sykursalnum 14. október 2025.
Hér er á ferðinni upptaka frá afmælisviðburði Flugvarpsins í tilefni af 5 ára afmæli hlaðvarps Íslendinga um flugmál. Ljúfir tónar jasskvintetts Jóns Harðar flugstjóra tóku á móti gestum og á sviðinu var tekið hressilegt spjall um flugmálin við nokkra frábæra viðmælendur og sögur sagðar. Fyrst stigu á sviðið tveir menn sem hafa með orðum og gerðum verið mikið í umræðunni síðustu vikurnar, þeir Jón Þór Þorvaldsson formaður FÍA og Eyjólfur Ármannsson ráðherra flugmála. Að því búnu ræddu þau Linda Gunnarsdóttir yfirflugstjóri Icelandair og Matthías Sveinbjörnsson forseti Flugmálafélagsins um ógnir og tækfæri í flugheiminum. Baldvin Már Hermannsson forstjóri Air Atlanta var svo aðalgestur kvöldsins og fór yfir ótrúlega öfluga starfsemi félagsins víða um heim, umbreytingu félagsins á síðustu árum og hvernig framtíðarhorfurnar blasa við honum. Að endingu steig Jóhann Skírnisson fyrrum flugstjóri og "bush pilot" á svið og sagði nokkrar skemmtisögur.
Sat, 18 Oct 2025 - 2h 14min - 128 - #128 – PLAY á Íslandi gjaldþrota – tilfærslan til Möltu og breytt staða á flugmarkaðnum - Hans Jørgen Elnæs
Rætt er við norska flugreinandann Hans Jørgen Elnæs um gjaldþrot Play og síbreytilega stöðu á flugmarkaðnum í Evrópu. Hann segir það hafa komið á óvart að Play hafi farið í þrot svo skömmu eftir endurfjármögnun íslenska félagsins. Markaður fyrir Airbus flugvélar af þeirri gerð sem Play notaði er góður að mati Hans Jørgen og verður forvitnilegt að sjá hvaða leiðir eru færar fyrir leigusala vélanna í framhaldinu. Hann ræðir líka stuttlega um harða samkeppni á norður Atlantshafinu og hvernig það hafi gert félagi eins og Play erfitt fyrir.
Sat, 04 Oct 2025 - 38min - 127 - #127 –Flugfélagið Bláfugl gjaldþrota eftir margra ára dómsmál – átakamálin sum svipuð og í umræðunni núna um fall PLAY. Karl Ó. Karlsson lögmaður fer yfir ýmsa anga í Bláfuglsmálinu.
Rætt er við Karl Ó. Karlsson lögmann FÍA og sérfræðing í vinnurétti um áralangar deilur Bláfugls og Félags íslenskra atvinnuflugmanna fyrir dómstólum, eftir að 11 flugmönnum Bláfugls var sagt upp störfum og verktakaflugmenn ráðnir í þeirra stað á mun lægri kjörum. Bláfugl skilaði inn íslensku flugrekstrarleyfi árið 2024 og var lýst gjaldþrota fyrr á þessu ári. Karl segir frá stöðu málsins núna og hvernig umgengni Bláfugls um kjarasamninga hafi umturnast eftir að Avia Solutions eignaðist félagið. Fyrrum flugmenn félagsins höfðu fengið dæmdar bætur vegna ólögmætra uppsagna og nú hefur þeim kröfum verið lýst í þrotabúið. Karl reifar málið frá ýmsum hliðum og ræðir um misjafnt ráðningarsamband flugmanna við flugrekendur. Viðtalið var tekið upp skömmu fyrir fall flugfélagsins Play en átakamálin í Bláfuglsdeilunni hafa nokkra skírskotun til umræðuefna núna í tengslum við gjaldþrot Play.
Tue, 30 Sep 2025 - 1h 01min - 126 - #126 – Nauðlendingin á Sólheimasandi enn í fersku minni, segir flugmaðurinn Gregory Fletcher. Ótrúlegt afrek að svífa ísaðri Douglas vélinni langa leið og lenda giftusamlega á sandinum.
Rætt er við Gregory Fletcher flugmanninn sem nauðlenti Douglas C-117D flugvél bandaríska sjóhersins á Sólheimasandi í nóvember 1973. Fletcher sótti Ísland heim nýverið og fór þá á staðinn aftur í fyrsta sinn í rúma hálfa öld. Af því tilefni sló Flugvarpið á þráðinn til hans, til að heyra hans sögu af þessu einstaka afreki þar sem Douglas vélinni var svifið úr erfiðum veðurskilyrðum yfir Vatnajökli og alla leið niður á Sólheimasand þar sem tókst að magalenda vélinni án þess að nokkrum þeirra sjö sem um borð voru yrði meint af.
Tue, 23 Sep 2025 - 49min - 125 - #125 – Íslenskt hugvit í þróun nýrra tæknilausna á flugvöllum – bylting í nýrri hönnun flugbrautarljósa - Velocity Airport Solutions - Frosti Heimisson
Rætt er við Frosta Heimisson eiganda og framkvæmdastjóra Velocity Airport Solutions sem hefur náð eftirtektarverðum árangri í að hanna ljósabúnað fyrir flugvelli. Frosti á sinn bakgrunn í fluginu hérlendis, starfaði um tíma hjá ISAVIA og TERN og hefur á síðustu árum náð að hasla sér völl í fremstu röð þeirra sem geta boðið nýstárlegar lausnir fyrir margs konar tæknibúnað á flugvöllum. Fyrirtæki hans mun í október n.k. sýna í fyrsta sinn nýja byltingarkennda hönnun á brautarljósum fyrir flugvelli á alþjóðlegri sýningu í Munchen og Frosti hefur fulla trú á að sú framleiðsla færi fyrirtæki hans í fremstu röð framleiðanda fyrir flugbrautarljós í heiminum innan fárra ára. Frosti er búsettur í Svíþjóð en kíkti í spjall í Flugvarpið þegar hann var á landinu nýlega.
Tue, 16 Sep 2025 - 1h 38min - 124 - #124 - Þjálfunaraðstaða á heimsmælikvarða – nýr Airbus 320 flughermir kominn í gagnið í þjálfunarsetrinu í Hafnarfirði – Ásgeir Bjarni Lárusson
Rætt er við Ásgeir Bjarna Lárusson framkvæmdastjóra CAE Icelandair training í Hafnarfirði um breytingar á starfseminni í tengslum við nýjan flughermi af gerðinni Airbus 320. Nýi hermirinn hefur nú hlotið alla formlega vottun frá eftirlitsaðilum og er tilbúinn til notkunar. Ásgeir Bjarni fer yfir þetta ferli og segir frá öflugri starfsemi í þjálfunarsetrinu sem hann hefur stýrt síðustu árin, en hann hefur áralanga reynslu í ýmsum störfum innan Icelandair.
Thu, 04 Sep 2025 - 47min - 123 - #123 – Styrkur KEF að njóta velvildar nærsamfélagsins - áskorun að taka við síauknum fjölda farþega og samtímis að bæta þjónustuna - Anna Björk Bjarnadóttir
Rætt er við Önnu Björk Bjarnadóttur framkvæmdastjóra þjónustu og rekstrar ISAVIA á Keflavíkurflugvelli en undir hennar svið falla mörg fjölbreytt verkefni á flugvellinum. Má þar nefna hreinsun og viðhald flugbrauta, turninn í Keflavík, öryggisleit, flugvernd og margs konar þjónusta við farþega. Anna Björk fer í þættinum vítt og breitt yfir verkefnin í Keflavík og hvernig ISAVIA hefur breytt sinni nálgun á síðustu árum í allri þjónustu við flugfélögin og farþega, en á sama tíma að tekist á við áskoranir sem fylgja stöðugum vexti í flugumferð um völlinn.
Sat, 30 Aug 2025 - 1h 08min - 122 - #122 – Oft erfið aðkoma að slysstað þar sem vinir manns höfðu farist - brautryðjandi í flugslysarannsóknum á Íslandi– Skúli Jón Sigurðarson
Í þættinum er rætt við Skúla Jón Sigurðarson sem var brautryðjandi í flugslysarannsóknum á Íslandi um áratuga skeið. Hann vann ötullega að flugöryggismálum í gegnum störf sín hjá Flugmálastjórn Íslands þar sem hann hóf störf árið 1965 og tók síðar þátt í að setja á fót Rannsóknarnefnd flugslysa. Í um 35 ár vann Skúli Jón fórnfúst starf í að rannsaka orsakir næstum allra flugslysa sem urðu hérlendis og naut alla tíð mikillar virðingar fyrir störf sín. Skúli Jón fer stuttlega í þættinum yfir sinn feril og segir meðal annars frá áhugaverðum og erfiðum slysum þar sem hann kom að og lýsir um leið nokkrum samferðamönnum sínum í störfum hjá Flugmálastjórn eins og Agnari Kofoed-Hansen og Sigurði Jónssyni, sem ætíð var kallaður Siggi flug.
Sat, 23 Aug 2025 - 59min - 121 - #121 – Ísland hefur gefið mér allt segir Jose flugstjóri hjá Atlanta sem kom frá Hondúras til Íslands og lærði flug – Jose Alvarado
Rætt er við Jose Alvarado flugstjóra hjá Air Atlanta í þessum þætti, en hann á stómerkilega sögu að baki og hefur á sinni starfævi unnið fyrir fjölda flugfélaga um allan heim og einnig fyrir öll stærstu íslensku flugfélögin, Icelandair, WOW, Play og Air Atlanta. Jose segir frá uppruna sínum og fjölskylduaðstæðum í Hondúras þaðan sem hann flutti ungur að árum ásamt íslenskri kærustu og saman fengu þau vinnu hjá Air Atlanta sem flugfreyjur á meðan Jose steig sín fyrstu skref í flugnáminu. Jose og faðir hans höfðu misjafna sýn á framtíðina og faðir hans sá fyrir sér að sonurinn tæki við rekstri fjölskyldufyrirtækisins, þannig að eftir að Jose hleypti heimdraganum var enga hjálp að fá úr þeim ranni. Jose lét samt ekkert stoppa sig í að láta drauminn um að verða flugmaður verða að veruleika. Hann lærði til flugmanns hjá Flugskóla Helga Jónssonar og segir í þættinum frá ýmsum merkilegum og áhugaverðum atburðum á sínum flugmannsferli.
Fri, 15 Aug 2025 - 1h 43min - 120 - #120 – Útköll í fjölbreytt og krefjandi verkefni í þyrlusveit Landhelgisgæslu Íslands – samhent sveit sem í eru 12 flugmenn og þar af er ein kona - Brynhildur Ásta Bjartmarz
Brynhildur Ásta Bjartmarz þyrluflugmaður segir hér frá ýmsum áhugaverðum hliðum á starfinu en hún er eina konan í 12 manna hópi þyrluflugmanna Landhelgisgæslu Íslands. Hún segir frá nokkrum af þeim fjölbreyttu verkefnum sem hún og kollegar hennar í flugsveit LHG fást við, ræðir kosti og galla vinnunar og fer yfir ýmis erfið útköll sem hún hefur tekist á við. Brynhildur hefur líka starfað að kjarasamningsmálum fyrir flugmannahópinn gagnvart ríkinu og þar er baráttan stöðug og nýlega þurfti miðlunartillögu sáttasemjara til að höggva á hnútinn og koma á samningi. Áhugavert spjall við brautryðjanda í hópi flugkvenna í þyrlusveit landhelgisgæslunnar.
Fri, 08 Aug 2025 - 58min - 119 - #119 – Takmarkanir í flugstjórnarþjónustu ISAVIA í sumar vegna manneklu – flugumferðarstjórar þrýsta á nýjan kjarasamning - Arnar Hjálmsson formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra fer yfir stöðuna
Rætt er við Arnar Hjálmsson formann Félags íslenskra flugumferðarstjóra um stöðu mála í stéttinni. Nokkuð hefur verið um tafir í flugumferð í sumar vegna manneklu á starfsstöðvum flugumferðarstjóra þegar ekki fæst fólk í aukavinnu. Síðasti kjarasamningur flugumferðarstjóra rann út í upphafi þessa árs og deilan er hjá ríkissáttasemjara. Arnar segist samt vongóður um að úr þessari stöðu rætist fljótlega og að samningar takist. Í þættinum er einnig fjallað nýleg tilvik þar sem tölvubilanir hafa valdið verulegri röskun á alþjóðlegu flugi í íslenska flugstjórnarsvæðinu. Arnar segir líka aðeins frá störfum flugumferðarstjóra og hvernig þau hafa breyst á undanförnum árum með tilkomu nýrrar tækni og ýmislegt fleira.
Thu, 31 Jul 2025 - 54min - 118 - #118 – Ástríða fyrir starfinu einkennir fólk í fluginu segir framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Icelandair – góð stundvísi (OTP) er eftirsóknarverð og gefur sýn á hvernig reksturinn gengur en flugöryggið er í fyrsta sæti - Sylvía Kristín Ólafsdóttir
Rætt er við Sylvíu Kristínu Ólafsdóttur framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Icelandair sem er lang fjölmennasta og stærsta svið innan fyrirtækisins. Undir hennar stjórn hefur náðst góður árangur á mörgum sviðum rekstrarins eins og að lækka einingakostnað, framúrskarandi stundvísi og vel heppnuð innleiðing á Airbus flugvélum. Eins og venjulega eru stöðugt nýjar áskoranir í rekstrinum bæði hér heima og erlendis og Sylvía ræðir hér um hluta af þeim fjölmörgu verkefnum sem hún og hennar teymi eru og hafa verið að vinna að innan félagsins. Skömmu fyrir upptöku þáttarins var tilkynnt um að Sylvía hefði verið ráðin sem nýr forstjóri Nova og mun hún því láta af störfum hjá Icelandair síðar á þessu ári.
Mon, 14 Jul 2025 - 1h 39min - 117 - #117 – Flugmálaráðherra í spjalli - vill efla Ísland sem flugþjóð og bæta samkeppnishæfni íslenskra flugfélaga – stendur vörð um Reykjavíkurflugvöll og vill nýja flugstöð – Eyjólfur Ármannsson
Rætt er við Eyjólf Ármannsson innviðaráðherra og ráðherra flugmála á Íslandi. Farið er vítt og breitt yfir sviðið um málefni flugsins og m.a. rætt um varaflugvallagjaldið og uppbyggingu flugvallakerfisins, málefni innanlandsflugsins og Reykjavíkurflugvallar, ISAVIA og uppbyggingu í Keflavík, menntamál flugsins og almennt um stefnu stjórnvalda í þessari stóru atvinnugrein okkar. Eyjólfur hefur vakið athygli fyrir skelegga framgöngu fyrir hagsmunum flugsins og talað opinskátt og af skynsemi þegar kemur að málefnum Reykjavíkurflugvallar og fleira. Hann vill efla Ísland sem flugþjóð allt frá grasrótinni og upp í alþjóðaflugið og tryggja samkeppnishæfni íslenskra flugfélaga.
Fri, 04 Jul 2025 - 1h 22min - 116 - #116 - Flugnámið – olnbogabarn í íslensku menntakerfi en breytingar í vændum – Anna Elvíra Herrera Þórisdóttir og Haukur Gunnarsson
Rætt er við Önnu Elvíru Herrera Þórisdóttur og Hauk Gunnarsson um stöðu atvinnuflugnáms á Íslandi. Námið hefur um langt skeið verið olnbogabarn í kerfinu og menntunin ekki verið metin að neinu leyti til eininga á háskólastigi eins og víða tíðkast í skólum í nágrannalöndunum. Nú hillir undir breytingar og allt útlit fyrir að Háskólinn á Bifrös muni í fyrsta sinn bjóða nám þar sem atvinnuflugmannsskírteinið er metið til eininga. Haukur og Anna segja gríðarleg sóknarfæri til staðar fyrir háskólasamfélagið að vinna í auknum mæli með þessari stóru atvinnugrein, þar sem mikil þörf og eftirspurn er eftir sérfræðingum á ýmsum sviðum til starfa.
Thu, 19 Jun 2025 - 56min - 115 - #115 – Svífa hljóðlaust um loftin blá undir afli náttúrunnar - Svifflugið er heillandi sport, ódýrt en krefjandi - Steinþór Skúlason og Stefán Árni Þorgeirsson
Svifflugfélag Íslands stendur fyrir kynningarátaki til að vekja athygli á Sviffluginu og hvetja fólk til að prófa þetta stórmerkilega sport. Félagið býr að glæsilegri aðstöðu uppi á Sandskeiði rétt austan við Reykjavík. Í þættinum er rætt við svifflugmennina Steinþór Skúlason og Stefán Árni Þorgeirsson um þetta merkilega og sögulega sport, aðstöðuna á Sandskeiði og farið er yfir ýmis praktíst atriði sem nýst geta áhugasömum sem vilja prófa Svifflugið.
Wed, 11 Jun 2025 - 49min - 114 - #114 – Flugsumarið - flugsýningar, viðburðir, vélflugið og nauðsynleg endurnýjun í grasrót flugsins – Matthías Sveinbjörnsson og Steinunn María Sveinsdóttir
Rætt er við þau Matthías Sveinbjörnsson forseta Flugmálafélags Íslands og Steinunni Maríu Sveinsdóttur safnstjóra Flugsafns Íslands á Akureyri um flugsýningar og ýmsa fjölbreytta viðburði sem eru á döfinni í sumar bæði fyrir sunnan og norðan. Farið er yfir margs konar fjölbreytt starf í grasrót flugsins um allt land og hvernig margir vinna gríðarlega mikið og óeigingjarnt starf til að viðhalda og efla flugstarfsemi í landinu. Að kynna flugið fyrir almenningi hefur mikla þýðingu og þar leika ekki síst flugsýningar og flugsafnið fyrir norðan lykilhlutverk.
Fri, 06 Jun 2025 - 1h 01min - 113 - #113 – Play umbyltir rekstrinum með nýju flugrekstrarleyfi á Möltu – kjarasamningar í höfn við flugmenn – Andri Geir Eyjólfsson
Rætt er við Andra Geir Eyjólfsson framkvæmdastjóra flugrekstrarsviðs Play um nýtt rekstrarmódel félagsins sem nú er að taka á sig mynd í kjölfar þess að félagið fékk nýtt flugrekstrarleyfi á Möltu. Þar fetar Play í fótspor margra annarra flugfélaga sem nýta sér hagstæðara rekstrarumhverfi á Möltu og samnýta um leið fólk og tæki á milli flugfélaganna. Play hefur nýlega náð kjarasamningum við flugmenn til næstu tæplega þriggja ára og nokkrar vélar félagsins eru þegar byrjaðar í leiguflugi fyrir erlenda kúnna. Andri Geir á langa og merkilega sögu í fluginu allt frá því hann hóf störf á gólfinu í viðhaldsskýli Íslandsflugs á Reykjavíkurflugvelli. Hann nam flugvirkjun hjá TEC Aviation í Danmörku og hefur gengt ýmsum störfum hjá WOW air, Air Atlanta og Icelandair. Andri Geir hefur verið einn af lykilstarfsmönnum Play allt frá stofnun félagsins árið 2019.
Mon, 02 Jun 2025 - 58min - 112 - #112 – Langtímamarkmið í uppbygginu flugáætlunar Icelandair – flotabreytingar, árstíðarsveiflan og þróun KEF sem tengimiðstöðvar – Tómas Ingason
Í þættinum er rætt við Tómas Ingason framkvæmdastjóra tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair. Nú fer í hönd umfangsmesta áætlun í sögu félagsins og markmiðið er að draga úr árstíðarsveiflunni og auka flugið utan háannatíma. Tómas fer hér m.a. yfir þá breytingu sem er að verða á félaginu með nýjum og langdrægari flugflota, samkeppnina við bæði stóru flugfélögin yfir Atlantshafið og ekki síður við lággjaldaflugfélögin sem fljúga til og frá landinu. Tómas segir að stöðugt sé unnið að þróun á áætlun félagsins bæði til skemmri og ekki síður lengri tíma. Þar er horft til þess hvernig best megi tengja fjarlægari áfangastaði inn í leiðakerfið og efla Keflavíkurflugvöll sem öfluga tengimiðstöð í samvinnu við ISAVIA.
Fri, 02 May 2025 - 1h 23min - 111 - #111 - Reykjavíkurflugvöllur undir hæl borgarinnar – nýjar skipulagsreglur í vinnslu – borgin vill einkaþotur og þyrlur burt og takmörk í starfsleyfið – Viðar Jökull Björnsson flugvallarstjóri BIRK.
Í þessum þætti er rætt við Viðar Jökul Björnsson flugvallarstjóra á Reykjavíkurflugvelli og umdæmisstjóra ISAVIA á Suðurlandi. Á Reykjavíkurflugvelli vinna hundruð manna í sérhæfðum störfum. Völlurinn er miðstöð fyrir Landhelgisgæslu Íslands og er mikilvægasti völlurinn fyrir sjúkraflug í landinu ásamt því að gegna hlutverki sem varaflugvöllur og þar er líka miðstöð fyrir kennsluflug og einkaflug. Nú er unnið að nýjum skipulagsreglum fyrir völlinn sem hafa ekki verið endurnýjaðar síðan 2009. Starfsleyfi heilbrigðiseftirlits borgarinnar þarnast einnig endurnýjunar og á sama tíma óskar borgarráð eftir að takmarka enn frekar umferð um völlinn. Viðar Jökull flugvallarstjóri berst fyrir því að völlurinn geti sinnt sínu hlutverki með sóma og fer hér yfir ýmis mál sem tengjast starfsemi þessa mikilvæga samgöngumannvirkis allra landsmanna.
Mon, 28 Apr 2025 - 52min - 110 - #110 – „Það verður að vera vit í vitleysunni“ – Sögur af STOL operation á Grænlandi og ræningjunum með rauða stélið – Jóhann Skírnisson
Rætt er við Jóhann Skírnisson fyrrverandi flugstjóra hjá Flugfélagi Norðurlands FN, og síðar Flugfélagi Íslands. Hann rifjar upp magnaðar sögur af STOL (Short Take Off and Landing) flugi á Grænlandi þar sem oft var farið að ystu mörkum bæði flugvéla og manna til að láta hlutina ganga upp. Í STOL flugi var flogið á mjög lágum hraða í lítilli hæð og því lítið rúm fyrir mistök eða ónákvæmni. Jóhann er sveitamaður fram í fingurgóma, tillukarl og stoltur „bush pilot“. Hann hóf flugmannsferilinn sem flugkennari á Akureyri, fékk í framhaldi ráðningu á Twin Otter hjá FN. Jóhann er bráðskemmtilegur sögumaður og segir hér frá ótrúlegri elju og dugnaði Íslendinga í flugstarfsemi í afar krefjandi aðstæðum.
Thu, 17 Apr 2025 - 3h 34min - 109 - #109 – WOW air var í raun löngu gjaldþrota – 6 ár frá falli flugfélagsins – Stefán Einar Stefánsson
Rætt er við Stefán Einar Stefánsson rithöfund og blaðamann á Morgunblaðinu um fall WOW air, en um þessar mundir eru 6 ár liðinn frá því félagið fór í þrot. Stefán Einar hefur á síðustu vikum skrifað áhugaverðar greinar um síðustu mánuðina fyrir fall félagsins sem varpa nýju ljósi á atburðarásina. Stefán Einar er einnig höfundur bókarinnar WOW Air – ris og fall flugfélags sem kom út skömmu eftir að félagið féll á vormánuðum árið 2019.
Thu, 20 Mar 2025 - 59min - 108 - #108 – VAFFÞOTAN - Bylting í hönnun farþegaþotu – „Blended wing-body aircraft“ – Nína Jónsson – síðari hluti.
Hér fer síðari hluti viðtals við Nínu Jónsson varformann stjórnar Icelandair Group um feril hennar hjá sumum af stærstu flugfélögum heims. Nína er ráðgjafi hjá Jetzero í Kaliforníu þar sem unnið er að byltingarkenndu þróunarverkefni um smíði nýrrar gerðar farþegaþotu sem kölluð er „blended wing-body aircraft“ eða vaffþotan. Nína segir að þarna gæti komið vélin sem Boeing ákvað á sínum tíma að smíða EKKI til að taka við af B757 og B767. Vonir eru bundnar við að vaffþotan sem er á stærð við B767 verði komin á almennan markað innan sjö ára og fyrsta slíka hönnunin á að fljúga innan tveggja ára á vegum bandaríska flughersins sem eldsneytisflutningavél (tanker). Nýstárleg hönnun vaffþotunnar á að stuðla að um 50% minni eldsneytiseyðslu miðað við hefðbundnar þotur af svipaðri stærð á markaðnum í dag.
Thu, 13 Mar 2025 - 51min - 107 - #107 - Fædd inn í flugið í Lúx og hefur staðið í stafni stærstu flugfélaga heims – varaformaður Icelandair Group – Nína Jónsson – Fyrri hluti.
Rætt er við Nínu Jónsson varaformann stjórnar Icelandair Group en hún á að baki langan og stórmerkilegan feril í fluginu. Nína ólst upp í iðandi flugævintýri Íslendinga í Lúxemborg á áttunda áratugnum og fór í framhaldi af því til Bandaríkjanna að læra til atvinnuflugmanns. Fjöldagjaldþrot flugfélaga varð til þess að hún hélt áfram námi og lauk MBA gráðu frá Rensselaer Polytechnic Institute og B.Sc. gráðu í Air Transport Management. Nína hefur á síðustu árum unnið fyrir mörg stærstu flugfélög heims bæði austan hafs og vestan, einkum varðandi skipulagningu og samsetningu á flugflota félaganna. Þetta er fyrri þáttur af tveimur þar sem rætt er við Nínu. Seinni hluti viðtalsins verður birtur í næsta þætti.
Wed, 12 Mar 2025 - 1h 03min - 106 - #106 – Leiguflugið – Air broker Iceland – Næg verkefni og vantar flugvélar - Ásgeir Örn Þorsteinsson og Einar Hermannsson
Rætt er við Ásgeir Örn Þorsteinsson og Einar Hermansson sem eiga og stýra nýju fyrirtæki sem heitir Air broker Iceland og er leigumiðlun með flugvélar og þyrlur. Þeir hafa báðir langa og miklar reynslu í störfum við flugið hérlendis síðustu áratugina sem nýtist vel í að afla og sinna margvíslegum leiguverkefnum fyrir kúnna hvaðanæva úr heimunum. Þeir segja verkefnin vera margvísleg og eftirspurnin stundum umfram það sem flugvélar fást til að sinna. Rætt er um ýmsar breytingar í innanlandsfluginu, ríkisstyrki á flugleiðum og áhyggjur af yfirvofandi fækkun flugvéla í flugflotanum samhliða því þegar Icelandair hættir rekstri Dash 200 véla og ýmislegt fleira.
Fri, 07 Mar 2025 - 38min - 105 - #105 – Þakklátur fyrir áratuga feril í björgunar- sjúkra og eftirlitsflugi – Jakob Ólafsson
Jakob Ólafsson fyrrverandi flugstjóri á þyrlum og flugvélum Landhelgisgæslunnar segir hér frá ýmsu áhugaverðu sem á daga hans dreif á áratugaferli sem atvinnuflugmaður, lengst af í björgunar- og sjúkraflugi fyrir Landhelgisgæslu Íslands og síðustu árin í gæsluflugi fyrir Frontex. Jakob var einnig flugmaður um tíma hjá flugfélaginu Erni á Ísafirði um það leyti þegar hörmuleg slys urðu hjá félaginu sem m.a. ollu því að hann söðlaði um og fór til Landhelgisgæslunnar. Jakob rifjar upp fyrstu árin í þyrlufluginu, baráttu fyrir að komast í nám í Bandaríkjunum og við að safna reynslu áður en hann var ráðinn til þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar árið 1987. Þá segir hann frá ýmsum merkilegum atburðum sem hann upplifði á sínum langa starfsferli í flugsveit gæslunnar og ekki síst á þyrlunum TF-SIF og TF-LÍF.
Tue, 04 Mar 2025 - 1h 17min - 104 - #104 – PLAY breytir um kúrs – ætla snúa við taprekstri með útleigu véla og nýjum áherslum í KEF– Einar Örn Ólafsson
Rætt er við Einar Örn Ólafsson forstjóra lággjaldaflugfélagsins PLAY í tilefni af ársuppgjöri félagsins fyrir 2024. Tap af rekstrinum var rúmir 4 milljarðar króna á árinu en að teknu tilliti til niðurfærslu á yfirfæranlegu skattalegu tapi nemur heildartapið um 9 milljörðum. Forstjórinn er samt brattur fyrir komandi mánuði en segir það taka tíma að breyta kúrsinum á félaginu eins og boðað hefur verið. Ætlunin er að færa 3 vélar félagsins til dótturfélags Play á Möltu sem leigðar verði í arðvænleg verkefni. Um leið verði fókus á arðbærar flugleiðir til og frá Keflavík og minni áhersla á tengiflug til Bandaríkjanna.
Tue, 25 Feb 2025 - 1h 03min - 103 - #103 – Um flókið viðhald flugvéla – tæknisvið Iceair með verkefni í öllum heimsálfum – Leifur Guðmundsson
Rætt er við Leif Guðmundsson tæknistjóra Icelandair en hann hefur starfað í tækni- og viðhaldsmálum í fluginu allt frá því hann lauk námi í flugvirkjun árið 1998. Flugflotinn sem tæknisvið Icelandair sinnir í dag telur yfir 50 flugvélar út um allan heim og verkefnin eru í öllum heimsálfum. Leifur segir hér m.a. frá því hvernig flókið viðhald á flugvélum er skipulagt, hvað fer í gang þegar flugvél bilar, hvernig viðhaldi nýrra véla versus gamalla er háttað og ýmislegt fleira áhugavert. Tæknisvið Icelandair sem Leifur stýrir telur yfir 400 manns og þar af eru hátt í 300 flugvirkjar í margs konar fjölbreyttum störfum.
Fri, 14 Feb 2025 - 1h 07min - 102 - #102- V-ONE - íslenskt hugvit í þjálfun flugmanna – Kristinn Páll Guðmundsson og Össur Brynjólfsson
Rætt er við þá Kristinn Pál Guðmundsson og Össur Brynjólfsson sem stofnuðu ásamt þremur öðrum fyrirtækið V-ONE þegar kóvid gekk yfir. Stofnendur félagsins sem allir hafa yfirgripsmikla reynslu og þekkingu í þjálfun flugmanna settu á fót flugskóla til að þjónusta erlend flugfélög. Nú örfáum árum síðar hefur fyrirtækið markað sér gott orðspor á alþjóðlegum vettvangi og stærstu kúnnar þess eru flugfélögin DHL Bahrein og DHL Austria. Velta fyrirtækisins hefur vaxið stöðugt síðustu misserin og á árinu 2024 var V-ONE með um 2000 kennslustundir í flughermum Icelandair/CAE í Hafnarfirði. Þá eru umsvif viðskiptavina V-one hérlendis umtalsverð í keyptri þjónustu á hverju ári. Kristinn Páll og Össur segja sér frá tilurð V-One og hvernig þeir sjá fyrir sér að fyrirtækið geti vaxið enn frekar á næstu árum.
Sat, 08 Feb 2025 - 56min - 101 - #101 – Spá hagnaði í ár eftir tap á "24 – LIVE frá MidAtlantic í höllinni – Bogi Nils Bogason
Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair í tilefni af uppgjör félagsins fyrir árið 2024. Icelandair tapaði um 2,5 milljörðum króna á síðasta ári sem í takti við spá stjórnenda félagsins. Tekjur félagsins jukust um 10 af hundraði í fjórða ársfjórðungi og afkoman batnaði töluvert miðað við sama ársfjórðung 2023. Félagið spáir hagnaði á árinu 2025 uppá 5-8 milljarða króna, sem er þó töluvert undir 8% EBIT markmiði stjórnenda félagsins. Viðtalið er tekið á Mid-Atlantic ferðakaupstefnunni sem fram fór í Laugardalshöllinni.
Fri, 31 Jan 2025 - 26min - 100 - #100 – Hæðir og lægðir í fluginu - spjall við formann FÍA í tilefni dagsins – Jón Þór Þorvaldsson
Rætt er við Jón Þór Þorvaldsson flugstjóra og formann í Félagi íslenskara atvinnuflugmanna í tilefni af þætti númer 100. Farið er vítt og breitt yfir sviðið og meðal annnars spjallað um stéttarfélagið, kjarasamninga framundan, Reykjavíkurflugvöll, pólitík og almennt um hæðir og lægðir í flugiðnaðinum. Jón Þór var nýtekinn við embætti formanns þegar ósköpin dundu yfir flugheiminn vegna kóvid faraldurs í ársbyrjun 2020 og þegar Flugvarpið hóf göngu sína í október það ár var Jón Þór fyrsti gesturinn. Það var því viðeigandi að bjóða honum aftur í spjall núna rúmlega fjórum árum síðar og fara aðeins yfir málin.
Sun, 26 Jan 2025 - 1h 19min - 99 - #99 – Ný mið á nýjum flugvélum og framtíðin björt – ótækt ástand í RKV – Guðmundur Tómas Sigurðsson
Rætt er við Guðmund Tómas Sigurðsson nýráðinn flugrekstrarstjóra Icelandair um ýmsar stórar áskoranir framundan í rekstrinum. Endurnýjun flugflota félagsins er hafin og nú þarf að ákveða hvort áfram eigi að reka breiðþotur eða eingöngu mjóþotur í framtíðarleiðarkerfi Icelandair. Guðmundur Tómas fer yfir óásættanlega stöðu á Reykjavíkurflugvelli og útskýrir hvers vegna hindranir í útreiknuðum flugferlum geta aftrað því að flugfélög geti notað völlinn á öruggan og eðlilegan máta. Guðmundur segist bjartsýnn á að Icelandair nái markmiðum í rekstrinum og geti vaxið og dafnað á næstu árum með Keflavík sem öfluga tengimiðstöð.
Wed, 15 Jan 2025 - 52min - 98 - #98 – 2024 gert upp og spáð í 2025 – Örnólfur Jónsson og Matthías Sveinbjörnsson
Í þessum áramótaþætti er farið yfir helstu fréttir úr fluginu á árinu 2024 og spáð í spilin fyrir 2025. Rætt er við tvo sérfræðinga í flugmálum; þá Matthías Sveinbjörnsson forseta Flugmálafélags Íslands sem jafnframt er verkfræðingur og fyrrum forstöðumaður tekjustýringar hjá Icelandair og Örnólf Jónsson flugstjóra og stjórnarmann í FÍA sem er líka hagfræðimenntaður og löggiltur endurskoðandi. Farið er yfir fréttir síðasta árs af Play, Icelandair, Air Atlanta og öðrum íslenskum flugfélögum, málefni flugskóla rædd og ISAVIA ásamt fjölmörgu öðru. Áhugaverður þáttur fyrir alla sem vilja fylgjast með því sem er að gerast í flugmálum.
Fri, 03 Jan 2025 - 1h 37min - 97 - #97 – Ekki í baksýnisspeglinum – yfirflugstjóri PLAY - stéttarfélagið ÍFF – Jóhann Óskar Borgþórsson
Rætt er við Jóhann Óskar Borgþórsson flugstjóra hjá Play og fyrrverandi yfirflugstjóra félagsins, um hans merkilegan feril, starfið og breytingar framundan hjá Play. Eftir meira en áratug sem flugmaður og flugstjóri hjá Icelandair tók Jóhann Óskar stökkið árið 2017, sagði upp störfum og réð sig sem flugstjóra til Wow sem fór síðan í gjaldþrot tæpum tveimur árum síðar. Eftir það tók við ævintýri á framandi slóðum, en þegar Play hóf flugrekstur var Jóhann Óskar ráðinn flugstjóri og síðar yfirflugstjóri hjá félaginu og hefur tekið þátt í að byggja upp flugrekstur félagsins sem hann segir hafa verið einstakt afrek og gefandi vinna. Fyrr á þessu ári hætti hann sem yfirflugstjóri og er nú farinn að sinna stéttarfélagsmálum fyrir ÍFF íslenska flugstéttarfélagið, þar sem hann segir alla vinna af heilindum að bættum hag félagsmanna og segir gagnrýni á félagið oft ómaklega.
Mon, 23 Dec 2024 - 1h 08min - 96 - #96 – Nýir tímar – Airbus í stað Boeing 757 hjá Icelandair – Kári Kárason
Rætt er við Kára Kárason flugstjóra og „fleet chief“ á Airbus hjá Icelandair um nýju flugvélategundina. Fyrsta Airbus flugvélin í flota félagsins er nýkomin til landsins og von er á þremur til viðbótar fyrir vertíðina næsta sumar. Kári segir hér frá innleiðingarferlinu, þjálfunarmálum og ræðir um muninn á því að fljúga eldri Boeing flugvélum og hinni nýju Airbus.
Thu, 05 Dec 2024 - 46min - 95 - #95 - Kosningafundur Flugmálafélags Íslands 2024 – samantekt
Þáttur #95 er samantekt Flugvarpsins frá kosningafundi Flugmálafélags Íslands um flugmál sem haldinn var 19. nóvember 2024. Þar var fulltrúum frá framboðum til Alþingiskosninga boðið að mæta og skýra frá stefnu og áherslum sínum í flugmálum. Auk almennra stefnumiða í flugmálum voru framboðin spurð um menntamál flugsins, Reykjavíkurflugvöll og framtíð hans og rekstrarform ISAVIA svo eitthvað sé nefnt. Fundinum stýrði Matthías Sveinbjörnsson forseti Flugmálafélagsins. Þeir sem mættu frá framboðum til Alþingis voru: Grímur Grímsson frá Viðreisn, Rúnar Sigurjónsson frá Flokki fólksins, Njáll Trausti Friðbjörnsson frá Sjálfstæðisflokknum, Arnar Þór Jónsson frá Lýðræðisflokknum, Jón Þór Þorvaldsson frá Miðflokknum, Indriði Ingi Stefánsson frá Pírötum, Kristján Þórður Snæbjarnarson frá Samfylkingu og Jóhannes Loftsson frá Ábyrgri framtíð. Enginn fulltrúi mætti frá Vinstri grænum og enginn frá Sósíalistum. Fulltrúi Framsóknarflokksins ætlaði að mæta en afboðaði vegna veikinda.
Tue, 26 Nov 2024 - 2h 19min - 94 - #94 – Sykursýkin og baráttan fyrir að fljúga – Þristavinir, Norlandair o.fl.– Tómas Dagur Helgason
Tómas Dagur Helgason segir hér frá fjölbreyttum ferli í fluginu. Það varð honum mikið áfall að missa heilbrigðisvottorðið og þar með flugréttindin vegna sykursýki fyrir um áratug síðan, en hann hefur æ síðan barist ötullega fyrir því að fá reglum breytt í Evrópu í þá átt að heimila sykursjúkum að fljúga að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Hann hefur haldið ótrauður áfram í fluginu og flýgur í dag einkaflug á grundvelli skírteinis frá Bandaríkjunum og hefur viðhaldið fyrsta flokks heilbrigðisvottorði útgefnu í Bretlandi. Tómas Dagur er í dag flugrekstrarstjóri Norlandair og var áður flugrekstrarstjóri Bláfugls. Þar að auki á hann að baki þrjá áratugi sem flugmaður og flugstjóri hjá Icelandair. Tómas Dagur er líka formaður DC-3 Þristavinafélagsins sem í eru hátt í fjögur hundruð manns sem vilja viðhalda Þristinum. Það er því af nógu að taka þegar rætt er við Tómas Dag um flugmálin.
Mon, 18 Nov 2024 - 1h 30min - 93 - #93 – Lakari afkoma Iceair en bjartara framundan – Bogi Nils Bogason
Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair um uppgjör félagsins eftir fyrstu 9 mánuði ársins 2024. Tekjur félagsins dragast verulega saman og hagnaðurinn var tæpum tveimur milljörðum króna lakari miðað við sama tíma í fyrra eða 9,5 milljarðar. Bogi ræðir hér um síkvikar breytingar á samkeppnisumhverfinu í Keflavík, betri árangur í frakflutningum og góða afkomu af leiguflugi á vegum Loftleiða. Málefni innanlandsflugsins og Hvassahraun eru einnig rædd ásamt ýmsu fleiru eins og mögulegu samstarfi Icelandair og Air Atlanta.
Wed, 23 Oct 2024 - 59min - 92 - #92 – Til taks - Þyrlusaga LHG – fyrstu 40 árin – Benóný, Júlíus og Páll.
Rætt er við þá Benóný Ásgrímsson, Júlíus Ó. Einarsson og Pál Halldórsson en þeir eru höfundar nýrrar bókar sem heitir Til taks – þyrlusaga Landhelgisgæslu Íslands – fyrstu 40 árin. Í þættinum er farið yfir aðdraganda þess að þeir réðust saman í þessi skrif og stiklað á nokkrum þáttum úr efni bókarinnar.
Wed, 16 Oct 2024 - 39min - 91 - #91 – Flugöryggismálin og RFSS – BIRK og Hvassahraunið - Jón Hörður Jónsson og Matthías Arngrímsson
Flugöryggismál eru viðfangsefni þessa þáttar. Rætt er við þá Jón Hörð Jónsson formann Öryggisnefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Matthías Arngrímsson skólastjóra Geirfugls og nefndarmann í ÖFÍA um ýmislegt sem hæst ber í flugöryggismálum um þessar mundir. Tilefnið er árleg flugöryggisráðstefna – Reykjavik Flight Safety Symposium sem haldin verður 10. október n.k. og í þættinum er tæpt á helstu viðfangsefnum ráðstefnunnar í ár eins og GPS truflunum í flugi og netárásum. Jón Hörður og Matthías telja ýmislegt gagnrýnivert í nýrri skýrslu varðandi mögulegt flugvallarstæði í Hvassahrauni og í tengslum við það er einnig farið yfir hvernig stöðugt hefur verið þrengt að Reykjavíkurflugvelli mörg síðustu ár. Í þættinum er einnig fjallað um möguleg áhrif vindmylla á flugöryggi, en áætlanir eru uppi um stóra vindmyllugarða bæði í nágrenni höfuðborgarsvæðisins og víða um land.
Sun, 06 Oct 2024 - 1h 10min - 90 - #90 – Enn þrengt að Reykjavíkurflugvelli – bara hnignun og engar lausnir – Sigrún Björk Jakobsdóttir
Sigrún Björk Jakobsdóttir er framkvæmdastjóri innanlandsflugvalla hjá ISAVIA og ræðir í þessum þætti um þau fjölmörgu verkefni sem hún er að fást við. Um innanlandsflugvellina á Íslandi fara um 700 þúsund farþegar á ári og þrátt fyrir smæðina er kerfið afar mikilvægt fyrir alla landsmenn, en um leið brothætt að sögn Sigrúnar. Hún gagnrýnir hvernig stöðugt er þrengt að Reykjavíkurflugvelli og skilur ekki hvers vegna sjónarmið sem varða flugöryggi skuli ekki fá betri hljómgrunn. Sigrún Björk fer einnig yfir uppbyggingu á Akureyrarflugvelli og ræðir um ýmsa aðra flugvelli, ekki síst út frá mikilvægi þeirra í sjúkraflugi ef slys verða út um landið.
Sat, 28 Sep 2024 - 47min - 89 - #89 – Umsvif Air Atlanta aldrei meiri - 17 breiðþotur um allan heim – Baldvin Már Hermannsson
Rætt er við Baldvin Má Hermannsson forstjóra Air Atlanta um starfsemi fyrirtækisins og hvernig það hefur vaxið og dafnað á allra síðustu árum. Flugfélagið var eitt fárra sem var á fullu í covid faraldrinum og á undraskömmum tíma tókst að auka vægi fraktflugs mjög hratt þegar botninn datt úr farþegafluginu. Atlanta er í dag með 11 Boeing 747 breiðþotur í fraktflutningum um allan heim og að auki 6 Boeing 777 vélar í farþegaflutningum. Baldvin Már ræðir hér hvernig félagið hefur oft mætt erfiðri samkeppni í gegnum tíðina og hvernig íslensk þekking, reynsla og gæði í flugrekstri hefur fleytt félaginu á þann stað sem það er á í dag.
Sat, 14 Sep 2024 - 1h 03min - 88 - #88 - Stórframkvæmdir ISAVIA í KEF og farþegum fjölgar – Sveinbjörn Indriðason
Rætt er við Sveinbjörn Indriðason forstjóra ISAVIA en fyrirtækið er í lykilhlutverki í flugmálum landsins með rekstri og uppbyggingu á innviðum fyrir flugið. Sveinbjörn fer yfir reksturinn á Keflavíkurflugvelli, áskoranir með auknum fjölda farþega, einkum tengifarþega, stórframkvæmdir og vöxtinn framundan þrátt fyrir að ferðamönnum til Íslands fjölgi minna en áætlanir gerðu ráð fyrir. Sala á fríhöfninni er á döfinni og Sveinbjörn telur einnig skynsamlegt að fá erlendra fjárfesta inn sem eiganda að Keflavíkurflugvelli líkt og gert hefur verið í nágrannalöndum. Sveinbjörn fer yfir breytingar sem hafa orðið varðandi möguleika ISAVIA til að kyrrsetja flugvélar ef til skuldar kemur hjá flugrekanda, eftir að hæstiréttur sýknaði ALC flugvélaleigusalann af kröfu ISAVIA s.l. vor. Þá er rætt um ANS dótturfélag ISAVIA sem rekur íslenska flugstjórnarsvæðið og vandræðagang í skipulagsmálum á Reykjavíkurflugvelli, trén frægu í Öskjuhlíð og ýmislegt varðandi rekstur annarra innanlandsflugvalla landsins.
Thu, 05 Sep 2024 - 1h 16min - 87 - #87 – Íslenska flugævintýrið er enn í dag – Flugþjóðin – Kristján Már Unnarsson
Rætt er við Kristján Má Unnarsson frétta- og dagskrárgerðarmann um nýja sjónvarpsþáttaröð sem hann hefur umsjón með og er að hefja göngu sína á Stöð 2 í september. Þættirnir heita Flugþjóðin og þar fá áhorfendur innsýn í þessa stóru atvinnugrein okkar Íslendinga í dag bæði hérlendis og ekki síður útrás íslenska fluggeirans á erlendri grundu. Kristján er sjálfur lærður einkaflugmaður og segir hér frá áhugaverðu fólki og fyrirtækjum í fluginu sem hann hefur tekið tali við gerð þessara þátta.
Wed, 28 Aug 2024 - 50min - 86 - #86 - Risaflugfélagið RiyadhAir í bígerð – flugmannslíf í miðausturlöndum – Hannes Ingi Guðmundsson
Hannes Ingi Guðmundsson þjálfunarflugstjóri RiyadhAir segir hér frá atriðum á merkilegum ferli sínum og þáttöku í því stóra verkefni við að koma rekstri RiyadhAir af stað á næstu mánuðum. Áætlanir félagsins eru að stækka mjög hratt á allra næstu árum og hefur félagið nú þegar yfir 70 B787 Dreamliner flugvélar í pöntun frá Boeing verksmiðjunum. Hannes Ingi gefur hlustendum innsýn í líf flugmannsins í miðausturlöndum þar sem hann á mörg ár að baki í vinnu fyrir Emirates í Dubai, en Dalvíkingurinn tók sín fyrstu skref í fluginu hér á Íslandi, en hélt síðan af landi brott til að vinna fyrir RyanAir og svo Emirates.
Thu, 08 Aug 2024 - 1h 18min - 85 - #85 - TERN systems - þróa gervigreind við stjórn flugumferðar - Magnús Már Þórðarson
Rætt er við Magnús Má Þórðarson framkvæmdastjóra hjá Tern systems sem sérhæfir sig í að hanna og framleiða hugbúnað fyrir stjórnun flugumferðar. Fyrirtækið hyggst nýta tækifæri í tæknibyltingu með gervigreind og hlaut nýverið 95 milljóna króna styrk úr rannsóknar- og nýsköpunarsjóði Evrópusambandsins SESAR til að þróa gervigreindarlausn sem ætlað er að auka flugöryggi. Magnús Már segir hér frá þessu og ýmsum öðrum áhugaverðum verkefnum fyrirtækisins til þessa. Tern er með starfsemi í mörgum löndum og starfsmennirnir eru nærri eitt hundrað. Fyrirtækið er í dag í eigu ISAVIA ANS en þreifingar eru uppi um að fá mögulega inn nýtt eignarhald í félagið.
Sat, 03 Aug 2024 - 50min - 84 - #84 – Nýr Flugskóli Íslands – vilja efla flugnám og fá því sess í menntakerfinu – Sölvi Þórðarson
Rætt er við Sölva Þórðarson skólastjóra og einn af eigendum Flugskóla Íslands sem auglýsir nú atvinnuflugnám í samstarfi við Sevenair flugskólann í Portúgal. Sölvi hefur ásamt fleirum rekið skóla undir nafninu Icelandic Aviation Training í nokkur ár þar sem fókusinn hefur aðallega verið að þjónusta flugrekendur bæði hér heima og erlendis með tegundaráritanir og síþjálfun flugáhafna. Nú hefur skólinn tekið upp nafnið Flugskóli Íslands og býður upp á nám til atvinnuflugmanns frá a til ö. Sölvi segir í þættinum ítarlega frá þessu nýja námsframboði og ræðir um stöðu flugnámsins eftir margvíslegar breytingar á þeim markaði á síðustu árum.
Sat, 27 Jul 2024 - 1h 09min - 83 - #83 – Airbus innleiðing Icelandair – flughermir staðfestur – Guðmundur Tómas Sigurðsson
Rætt er við Guðmund Tómas Sigurðsson ábyrgðarmann þjálfunar flugáhafna hjá Icelandair um innleiðingu á Airbus flota hjá félaginu. Fyrsta Airbus vélin er áætluð í nóvember og þjálfa þarf 70-80 flugmenn strax næsta vetur fyrir þær 4 flugvélar sem áætlað er að taka í rekstur fyrir sumarið 2025. Nú hefur verið skrifað undir kaup á nýjum Airbus flughermi sem tekinn verður í notkun á næsta ári, en það tæki mun skipta sköpum í allri þjálfun flugáhafna á eftir því sem Airbus vélum félagsins fjölgar á næstu árum. Guðmundur ræðir einnig um nýja nálgun félagsins í þjálfunarmálum og þá viðleitni til að þjálfa flugmenn fyrir nýjum áskorunum sem geta komið upp í breyttum heimi.
Wed, 26 Jun 2024 - 44min - 82 - #82 – „Eins og sjálf náttúran fyndi til“ – mannskæðu slysin á DC-3 – Þristurinn 80 ára – 3. hluti
Hér fer þriðji hluti í samantekt Flugvarpsins um DC-3 flugvélar á Íslandi í tilefni af 80 ára afmæli fyrstu DC-3 flugvélar Íslendinga. Rifjuð eru upp þrjú mannskæð flugslys sem urðu á þessari tegund flugvélar hérlendis. Tvö þeirra þar sem sérstaklega djúpt skarð var höggvið í íbúafjölda landsins á sínum tíma því þar var um að ræða tvö af mannskæðustu flugslysum sem orðið hafa hér á landi. Hið fyrra þegar 25 manns fórust í Héðinsfirði og hið seinna þegar 20 manns fórust með Þristinum í Faxaflóa.
Wed, 05 Jun 2024 - 46min - 81 - # 81 – Spennið beltin! Heiðkvika og ókyrrð, flugveðrið og spárnar – Einar Sveinbjörnsson
Rætt er við Einar Sveinbjörnsson veðurfræðing um ókyrrð í flugi eins og heiðkviku (clear air turbulence), sem nýleg dæmi sýna að geta valdið stórslysum um borð í flugvélum. Hvar og hvernig myndast heiðkvikan og hvað veldur því hversu mikil hún verður? Eru varasamar aðstæður og öfgar í veðrinu að aukast með breyttu veðurfari og hitastigi? Einar reynir að svara þessum spurningum og fleirum, en hann hefur áratuga reynslu sem veðurfræðingur og sinnir veðurráðgjöf fyrir bæði stofnanir og fyrirtæki. Hann rýnir t.a.m. gögn til að hjálpa flugfélögum við að meta hvort breyta þurfi flugáætlun þegar óveður gengur yfir landið eða eldgos verða.
Wed, 29 May 2024 - 45min - 80 - #80 - Útskrifuð úr háskóla háloftanna – flugfreyja í 40 ár – Guðrún Gunnarsdóttir
Rætt er við Guðrúnu Gunnarsdóttur flugfreyju til 40 ára um ferilinn og starfið. Guðrún ætlaði eins og margir aðrir rétt að prófa flugfreyjustarfið en ílentist í rúm 40 ár. Hún rifjar hér upp ýmis áhugaverð atvik á löngum ferli, allt frá stórkostlegum ferðum til Suðurskautslandsins og til óþægilegra og erfiðra flugferða í vondum veðrum. Guðrún myndi hiklaust velja sama framtíðarstarfið aftur enda hafi það þrátt fyrir mikið álag á köflum, gefið ríkulega til baka. Flugfreyjur deyi aldrei ráðalausar, þurfi oft að bregða sér í alls konar hlutverk og hún segir að það gæti væri áhugavert að taka saman öll hollráð flugfreyjanna í gegnum tíðina. Sjálf segist hún útskrifuð úr háskóla háloftanna eftir farsælan feril og hlakkar til næsta tímabils.
Wed, 22 May 2024 - 57min - 79 - #79 – Stýrði varðskipum, flugvélum, þyrlum og breiðþotum – Bogi Agnarsson
Bogi Agnarsson flugstjóri segir hér frá atriðum á stórmerkum ferli sínum fyrst hjá Landhelgisgæslu Íslands og síðar hjá Air Atlanta á B747 jumbó. Bogi rifjar hér m.a. upp fræknar björgunarferðir við erfiðar aðstæður á gömlu Dauphin þyrlu gæslunnar TF-SIF og hvernig flugreksturinn tók gríðarlegum stakkaskiptum á níunda áratugnum með tilkomu nýrra tækja, betri verkferla og aukinni þjálfun. Bogi söðlaði um á miðjum aldri, hætti hjá Landhelgisgæslunni og fór að fljúga Boeing þotum hjá Air Atlanta þar sem hann fékk útrás fyrir flakk heimshorna á milli og lauk sínum atvinnuflugmannsferli á B747. Hann átti einnig stóran þátt í að sameina flugmenn Atlanta undir hatti Félags íslenskra atvinnuflugmanna og varð um leið síðasti formaður Frjálsa flugmannafélagsins.
Thu, 09 May 2024 - 1h 10min - 78 - #78 – Vöxtur Norlandair – Grænlandsflug, sjúkraflug o.fl. - Friðrik Adolfsson
Rætt er við Friðrik Adolfsson framkvæmdastjóra og einn af eigendum Norlandair á Akureyri, en hann lætur senn af störfum eftir 50 ár í fluginu. Hann skilar öflugu búi því Norlandair hefur vaxið stöðugt og rekstur félagsins gengur vel. Meginstoðirnar í rekstrinum eru Grænlandsflug, áætlunarflug á smærri staði innanlands og nú síðast sjúkraflugið, sem félagið tók yfir um síðustu áramót. Friðrik segist sjá fyrir sér enn meiri eftirspurn eftir flugi til Grænlands og að samhliða geti félagið haldið áfram að vaxa, en til þess vanti tilfinnanlega meira skýlispláss á Akureyrarflugvelli.
Fri, 03 May 2024 - 28min
Podcasts similares a Flugvarpið
El Partidazo de COPE COPE
Herrera en COPE COPE
La Linterna COPE
Es la Mañana de Federico esRadio
La noche de Cuesta esRadio
La Trinchera de Llamas esRadio
Hondelatte Raconte Europe 1
Affaires sensibles France Inter
LEGEND Guillaume Pley
CHRONIQUES CRIMINELLES Jacques Pradel - TF1
El colegio invisible OndaCero
La Rosa de los Vientos OndaCero
Les grands dossiers de l'Histoire par Franck Ferrand Radio Classique
Espacio en blanco Radio Nacional
Entrez dans l'Histoire RTL
Le grand récit RTL
Les Grosses Têtes RTL
L'Heure Du Crime RTL
El Larguero SER Podcast
Nadie Sabe Nada SER Podcast
SER Historia SER Podcast
Todo Concostrina SER Podcast
Un Libro Una Hora SER Podcast
HISTORIAS DE LA HISTORIA VIVA RADIO