Filtra per genere
- 116 - 106. Sigurður Tómas: Íslandsmet í 24 tímum, hraðasta hlaup í Kona, sub3 maraþon, sub5 LV, sub10 Ironman
Sigurður Tómas er rafmagnverskfræðingur sem telur að "flestir væru betur settir með meiri sársauka í þeirra lífi."
Ég veit hvað þið eruð að hugsa... þessi gæi yrði góður í úthaldsíþróttum. Sigurður hefur náð lengra en flestir á þeirri hillu: Nýbakað Íslandsmet í 24 tíma hlaupi (undir 6 pace í sólarhring), sub3 maraþon í Ironman (einn af tveimur Íslendingum 👀), hraðasti hlaupatími Íslendings í Kona, 9:06 Ironman, sub5 Laugavegur, 10. sæti í Julian Alps 120km og fleiri fleiri áskoranir sem við kryfjum í þessum þætti.
Tue, 27 Oct 2026 - 2h 22min - 115 - 105. Bakgarðs-kapítalistar, dulúð yfir félagi 100km hlaupara og Asía tekur yfir utanvegahlaup
Fræga fólkið, grínistarnir og einkaþoturnar eru mættar í bakgarðinn, Steindi Jr. er tilbúinn til þess að deyja við að reyna að fá 100km derruna, heimsmet (í nafni ástarinnar) og Íslandsmet fellur í sömu keppninni, Andrea keppir í Kóreu og stærstu nöfn trail senunnar (Jim Walmsley, Courtney Dauwalter, Tove Alexandersson, Remi Bonnet...) eru mætt til Kína! Eru Kínverjar að reyna að skáka UTMB senunni eða munu bakgarðshlaupinn verða fyrri til?
Fri, 23 Oct 2026 - 1h 51min - 114 - 462km bakgarður, LJÓSIN SLOKKNA, 0mm drop á ofurskó og besta Kona hingað til
LANGA snýr aftur við mjög langt tilefni, POST-LANGA-DEPRESSION, er bakgarðurinn toppa sig? Einlægur Þorleifur, endurkoma Mari, hvaða mælikvarði spáir best fyrir um árangurinn þinn í bakgarðinum, POST-LANGA-DEPRESSION, eru ofurskór að slíta hásinarnar á þér? Tárvotur Gustav Iden er maður fólksins og Íslandsmet í 24 klukkustunda hlaupi.
Wed, 21 Oct 2026 - 2h 16min - 113 - 103. TOBBI vill að þú sýnir karakter, egódauði í ultrahlaupum, hvernig talaru við sjálfan þig og 2-0 fyrir UTMB
Tobbi er búinn að tryggja sér miða í UTMB 2027, hlaupið sem að kláraði hann tvö ár í röð, og nú er kominn tími til að ganga í gin ljónsins í þriðja skipti og loka þessum kafla. Við ræðum væntingastjórnun og sjálfstal í löngum ultrahlaupum, hvernig Elísa snerist frá því að hætta í CCC, að vera með hátt gólf eða hátt þak, Ben Dhiman og hans óvanalega nálgun á íþróttina, tveggja höfuðljósaframmistöðu í Julian Alps og markmið Tobba í götumaraþoni undir lok árs.
Tue, 22 Sep 2026 - 1h 12min - 112 - 102. Af hverju æfir Klæbo ekki í zone 2? Steindi í Bakgarðinum, Almgren heimsmeistari, Johaug og BLUMMENFELT
Rígurinn á milli Steinda og Latsa nær dýpra en ég hélt, 360° greining á 5 hringja Bakgarðs-frammistöðu, Tobbi er kominn í UTMB 2027, Klæbo æfir ekki í zone 2 til að passa upp á samsetningu vöðvaþráðanna sinna (vísindahorn Latsa), mikill ávinningur af 20 æfingum í hita, Theresa Johaug eignast barn í janúar og hleypur hraðast allra evrópskra kvenna á heimsmeistaramótinu (1:08 🤯), Blummenfelt tapaði en stal allri athyglinni, Andreas Almgren er bestur í heimi og The Icelandic Hypetrain eru að æfa eins og skepnur!
Sun, 20 Sep 2026 - 1h 48min - 111 - 101. Besta frammistaða allra tíma, Ben Dhiman deep dive, skóleikurinn breytist og Courtney er búin.
Ben Dhiman æfir sig á skíðum, rústar UTMB og segir að við höfum lifað á steinöld hvað varðar frammistöður í 100 mílna hlaupum - má skjóta svona fast á Kilian og Walmsley þegar þú nærð lang bestu frammistöðu allra tíma? Gulli tók út Chamonix (sem er sprungið) og Egill kemur með fréttir af sviptingum hjá skóframleiðendum Slúður um íslenskt UTMB hlaup, minkur sást í Heiðmörk og allar helstu fréttir sem úthaldsíþróttafólk landsins þarf að fá veður af.
Fri, 04 Sep 2026 - 1h 51min - 110 - 100. Elísa Kristins – stálheiðarlegt CCC uppgjörWed, 02 Sep 2026 - 47min
- 109 - 99. Baldvin Þór - Íslandsmet á EM
Baldvin gerir upp viðburðarríkt Evrópumeistaramót, þar sem hann setti Íslandsmet í 10.000m, og vegferðina fram að mótinu. Við förum yfir æfingabúðirnar, rauðrófu+koffín kokteilinn fyrir keppni, VLOG fram að Ólympíuleikunum, hvernig hann bregst við æfingum í háfjallalofti, að hafa áhyggjur alla keppnisvikuna, yfirburði Andreas Almgren, taktíkina í keppninni og möguleikann á því að hlaupa nálægt 13 mínútum í 5km hlaupi í næsta mánuði!
Fri, 21 Aug 2026 - 1h 15min - 108 - Elísa í CCC, Baldvin á Íslandsmeti, Arnar á brautarmeti? og ÍBR vill ekki hraða tíma
ÍBR virðist ætla að breyta 10km götuhlaupinu í 10km hindrunarhlaup - Reykjavíkurmaraþonið samt alltaf best mælda, best skipulagða og best tímatekna hlaup landsins.
Endurkoma Jakob Ingebrigtsen, Íslandsmet Baldvins, 800m rimman, ALMGREN og viðburðarríkt Evrópumeistaramót gert upp.
SLÚÐUR um miðbik þáttar sem mun ekki fara framhjá neinum íþróttaáhugamanni á næstu dögum.
Er Arnar Pétursson skemmtilegasti maðurinn í hlaupasenunni? Á hann brautarmetið í Laugaveginum?
Elísa og Andrea eru komnar til Chamonix - Andrea lifir í einhverskonar draumi og Elísa var fædd til þess að gera góða hluti í CCC.
Tue, 18 Aug 2026 - 2h 07min - 107 - 97. Jón Diðriksson - Maðurinn sem setti markið hærra
„Hver er þessi Jón Diðriksson?“
Sveitastrákurinn úr Borgarfirði sem setti Íslandsmet í öllum greinum frá 800m og upp í 10km götuhlaup. Jón setti markið svo hátt fyrir þá sem á eftir komu að metin hans stóðu sum hver í meira en 40 ár og eitt þeirra stendur enn þann dag í dag, þó það hafi verið sett fyrir algjöran misskilning!
“Það var bara regla… maður var aldrei ánægður. Maður vildi alltaf hlaupa betur - og hraðar”
Fri, 14 Aug 2026 - 1h 35min - 106 - 96. Stundin er runnin upp: Baldvin og Hlynur reima skóna, Arnar hamrar Laugaveginn og sub2 maraþon sjokk
Gunnar Páll er sendur til Birmingham í nafni LANGA hlaðvarps þar sem hann mun fylgjast með Baldvini Þór keppa í 10.000m og Hlyni Andréssyni í maraþoni fyrir Íslands hönd.
Evrópumeistaramótið er feykna sterkt í ár en Gunni Palli upplýsir þig um allt sem þú þarft að vita fyrir mótið: Meiðsli og endurkoma Jakob Ingebrigtsen, Baldvin héraði 5km á 15mín og mældist 1,7mmol í mjólkursýru, Nordås er hættur í þjálfun hjá Gjert Ingebrigtsen, Hlynur virðist leggja allt í sölurnar, Keely Hodgkinson ógnar ósnertanlega metinu, Andreas Almgren (LANGA favorite) mun skrúfa upp í 10.000m fyrir Baldvin, Femke Bol lengir og Gunni Palli mun, þó það sé þyngra en tárum taki, missa af maraþon göngunni.
Það var í þokkabót ekki annað hægt en að bera undir Gunnar tímann hans Arnars á Laugaveginum og fá viðbrögð við stórbætingu á heimsmetinu í maraþoni.
Fri, 07 Aug 2026 - 1h 29min - 105 - Mjólkursýra = óvinurinn eða leynivopnið? Lyfjapróf að næturlagi, Tour De France, HYROX og hitabylgja
Af hverju eru hlauparar að æfa undir mjókursýruþröskuldi til þess að forðast mjólkursýru en ætla núna að borða hana? Eru lactate gel næsta byltingin í úthaldsíþróttum eða bara snilldar markaðssetning? Stærsta þrekraun úthaldsíþróttamannsins, Tour de France, er í fullum gangi - hjólarar eru lyfjaprófaðir að næturlagi með ófyrirséðum afleiðingum, Latsi setti hæstu wöttin sín í pedalana eftir stutta og snarpa HYROX blokk í miðju hvíldartímabili og LANGA hlaðvarp fjallar um hjólreiðakeppnir svo lengi sem hlauparar vinni þær.
Thu, 23 Jul 2026 - 1h 45min - 104 - 94. Tove Alexandersson
Sú albesta, stigahæsta og æfingaglaðasta er mætt í LANGA hlaðvarp. 30 klukkutíma hlaupavikur, sænska leiðin, rjómaþamb á æfingum, hákolvetnainntaka, magn fram yfir gæði - en stundum gæði framyfir magn, UTMB > götumaraþon, sænska leiðin > norska leiðin og af hverju eru rathlauparar svona góðir í utanvegahlaupum?
Fri, 10 Jul 2026 - 37min - 103 - 93. Arnar Péturs spáir Laugaveginum - hvað gerist, hvað gerist ekki, sub4, sub5, sigurvegarar og pallsætin.Thu, 09 Jul 2026 - 1h 26min
- 102 - 92. Offramboð af úthaldi - Synir LANGA létta af sér
Western States vannst á sögulega hröðum tíma af mesta myrkrahesti hlaupasenunnar - en það er Elísa Kristinsdóttir sem á afrek helgarinnar og lokar þriðja UTMB sigrinum á 8 mánuðum. Helgin var smekkfull af úthaldsafrekum: Tove vinnur Mont Blanc Marathon á tíma sem fær menn til að spá henni sigri gegn íslensku körlunum í Dyrfjallahlaupinu í næstu viku, Norðmenn sýna enn og aftur að þeir eru bestir í Ironman og LANGA gefur rautt spjald fyrir að skipta um vegalengd í miðju hlaupi.
Sun, 28 Jun 2026 - 1h 40min - 101 - 91. Tilhneigingin til að ofgera sér, beinbjúgur, hjól fyrir hlaupara, WSER og The Swedish Method
Handbolta- hjóla- og hlaupadrottningin Ágústa Edda og bakgarðs- og brokkolíspírukóngurinn Andri Guðmundsson mæta í stúdíóið til þess að ræða tilhneiginguna til þess að gera eins mikið og mögulegt er (👀🫵), hjólaæfingar fyrir hlaupara (hvað er hægt að læra af Tour de France hjólara sem hleypur hálft maraþon á 61 mínútu?), REDs og beinmeiðsli sem koma aftan að manni, sterkustu ráslínu í Western States frá upphafi, red zone sprengjuárásir í hjólreiðum, sænsku hlaupasenuna - og leggja síðast en ekki síst drög að Langathoninu.
Thu, 25 Jun 2026 - 1h 51min - 100 - 90. Latsi & Geir Ómars - Kominn til Kona!
Latsi er kominn til Kona, Björgvin Karl er kominn í þríþraut og Andrea Kolbeins er komin í hjólreiðarnar.
Geir Ómarsson og Einar Sigurjónsson eru komnir frá Filippseyjum með hálfan og heilan járnkarl undir beltinu til þess að gefa okkur ferðasöguna og fara yfir helstu vendingar í heimi úthaldsíþrótta.
Tue, 16 Jun 2026 - 1h 47min - 99 - 89. Þorbergur Ingi eftir EMMon, 08 Jun 2026 - 1h 10min
- 98 - 88. Enhanced Games, peptides, sál til sölu og hvað fara margir undir 4 í Laugaveginum? - Synir LANGA
Engir gíslar teknir: Foreldrafélag LANGA hlaðvarps fordæmir Enhanced Games, hvað munu margir hlauparar fara undir 4 tíma í Laugaveginum? Gera þeir það í síðbuxum? Sage Canaday tilkynnir Cameron Hanes (58 ára… 2:39 maraþon… ???) til lyfjaeftirlitsins útaf peptíðum, Francesco Puppi efast um að 400km hlaup flokkist sem utanvegahlaup og Íslendingar munu valda skaða á Evrópumeistaramótinu næstu helgi.
Sun, 31 May 2026 - 2h 08min - 97 - DOPING, gráa svæðið, HGH, EPO og löglegar leiðir að heimsmetum - Ingimar Jónsson, Msc. molecular medicine
Á ég rétt á því að vera skeptískur þegar ég horfi á besta árangur mannkynssögunnar nást, þvert á íþróttagreinar? Ingimar Jónsson, Msc. í molecular medicine (Sameindalífvísindi. Takk.), er í beinni frá Afrekslandinu til þess að ræða um árangur íþróttafólks með tilliti til frammistöðuaukandi efna: Testesterón, HGH, EPO, örvandi efni (hvað ertu búin með marga kaffibolla í dag?) og insúlín - hefur þetta einhver áhrif? Eru allir á sterum? Eru lyfjaprófin að virka sem skildi? Munu Enhanced Games sýna að allir eru að dópa? Af hverju fá sumir undanþágur fyrir frammistöðuaukandi efnum?
Ingimar er bjartsýnn, yfir meðalgreind og trúir á það góða í manneskjunni - rétt eins og hlustendur LANGA hlaðvarps. Eigið góða helgi!
Fri, 22 May 2026 - 1h 36min - 96 - 86. Hlynur Andrésson - tilraun við Íslandsmet, maraþonæfingar, sub 1:59, kolvetni og koltrefjar
Hlyni Andréssyni rænt í viðtal beint eftir Kaupmannahafnarmaraþonið þar sem hann hljóp á öðrum hraðasta tíma Íslandssögunnar, 2:15:30, en tókst ekki að slá eigið Íslandsmet. Hlynur veltir hér öllum steinum er viðkoma maraþonundirbúningi og þeirri staðreynd um hversu erfitt það er að framkvæma gott maraþon: Kolvetnainntaka, magaóþægindi, carbon skór, maraþon undir 1:59 á árinu, vafasöm hematókrítgildi, að fá ekki mynd af sér með Jakobi Ingebrigtsen (?), Íslandsmetið í hálfu maraþoni og allt hitt sem langhlauparar landsins hugsa um þegar þeir leggjast á koddann eftir erfiðan æfingadag.
Sun, 10 May 2026 - 1h 11min - 95 - 85. KRISTIAN BLUMMENFELT
Coming off an epic win streak in early 2026, live from Bergen, the one and only: Kristian Blummenfelt.
What could he run for the marathon with a year of marathon-specific preparation? How does he knock off multiple half Ironmans and Ironmans in the span of a couple of weeks? What happened to only running 2 marathons a year? When did the high-carb revolution hit the Norwegians? Can recent endurance performances be attributed to the super shoes and carbohydrates alone? Did Kristian hit the coach jackpot when he entered triathlon?
We discuss the high-milage approach, cleaning up his diet while eating 7.000 calories, not being good at any sport as a kid but still wanting to be an Olympic champion, Norseman, Klæbo’s isolation tactics, training with the Ingebrigtsen brothers, almost not being accepted for class, knocking out a 1:08 half marathon in his off season, the possibility that he absorbs more calories from food than the average person, the 100+ VO2max test, deviating from the Norwegian measure-everything approach, and not signing with the Norwegian national team.
Thu, 07 May 2026 - 1h 16min - 94 - 84. Baldvin Þór MagnússonThu, 30 Apr 2026 - 1h 05min
- 93 - BREAKING2, skórnir, lyfjaprófin, kolvetnin og bicarb?
Latsi var sem betur fer á bakvakt þegar Sebastian Sawe og Yomif Kejelcha brutu tveggja tíma múrinn í London maraþoninu. Vænleg yfirferð á Breaking 2 verkefni Nike sem byrjaði þetta allt saman, hvernig Adidas stal þrumunni og setti báða sub2 hlauparana í Adidas skó, lyfjaprófin 25 sem Sawe bað um aukalega til að sanna sakleysi sitt, ný tegund ofurskóa ryður sér rúms, eru fleiri sem geta hlaupið undir tveimur en eru með samning við vitlausan skóframleiðanda? Virkaði bicarb á keppnisdegi og hvað tóku þeir inn mörg grömm af kolvetnum?
Mon, 27 Apr 2026 - 1h 36min - 92 - 82. PENINGAR, frægð, athygli og samstörf - Snorri Barón
Eru íþróttamenn bara fáklæddir áhrifavaldar með hátt VO2max??
Snorri Barón, hlaupari, hefur áratuga reynslu úr auglýsingabransanum sem hann heimfærði á umboðsmennsku og listina við að leiða saman íþróttamenn og fyrirtæki. Snorri veitir hér sína skoðun á því hvort leikurinn snúist um að verða sá besti eða sá vinsælasti: hver ber ábyrgð á vinsældum íþróttamanns, fjölmiðlar eða íþróttamaðurinn sjálfur? Er það vinsælasti eða besti íþróttamaðurinn sem á peninginn skilið? Eru einstaklingar að þykjast vera sponsaðir? Eiga íþróttamenn peninga skilið yfir höfuð? Hverjir fá samninginn við Nike og Adidas? Hvað vilja fyrirtæki fá út úr samstarfi? Þarf að sýna frá öllu lífi sínu ef maður ætlar að hafa eitthvað upp úr íþróttinni? Eru fyrirtæki of varkár?
Snorri rekur einnig samstarf sitt við Björgvin Karl (lirfan sem varð að fiðrildi), að hjálpa íþróttafólki sem fellur á lyfjaprófi og eigin raunir af því að fá annan séns í lífinu.
Thu, 23 Apr 2026 - 1h 38min - 91 - Hæsta VO2max Íslendings, KRISTIAN BLU óstöðvandi, leiðir til að bæta sig/meiðast og lygilegar mælingar
Hans fræðsla, þinn árangur.
Latsi heldur uppi ábyrgri umræðu um hæstu VO2max mælingar Íslandssgöunnar (official), ástæðu (eintala) þess að Arnar hægði á sér undir lok 100km hlaupsins, konur sem hlaupa Boston maraþonið 🤨, tilraun Hlyns við hraðasta maraþon Íslendings, YFIRBURÐIR Kristians Blummenfelt og hrottalegar (leynilegar) hlaupaæfingar, lygilegar mjólkursýrumælingar og nokkrar leiðir til að hlaupa hraðar og meiðast.
Fri, 17 Apr 2026 - 2h 01min - 90 - Fraser mútar BKG, VO2max genafrík, KLÆBO, komdu þér á framfæri og Northaug í neyslu
Þurfa þessir íþróttamenn stanslausa styrki til þess að iðka íþróttina sína eða er hægt að taka málin í eigin hendur?
Gunni Birgis og Björgvin Karl mæta nýklipptir í stúdíóið til að ræða ótrúlegan uppgang og vinsældir CrossFit, hvernig íslensku CrossFittararnir byggðu feril sinn á gríðarlegum vinsældum (og hvaða tækifæri opnuðu dyrnar að stóru samningunum), LYGILEGAR mútugreiðslur frá Matt Fraser til Bjögga, hvatningu til íþróttafólks um að trana sér meira fram, bekkjarbróðir Gunna mældist með hæsta VO2max í sögunni og varð heimsmeistari í hjólreiðum án þess að nenna því neitt sérstaklega, hard work vs. talent, Bjögga-bölvunin og byltan hans Klæbo, HEGGEN26, Ethereum vs. Bitcoin (fjárfestingarráðgjöf), Petter Northaug með ökklaband í heimagymminu og síðast en ekki síst - er kominn tími til að setja íþróttafólk utan á matvörur?
Thu, 09 Apr 2026 - 1h 57min - 89 - 79. Hlaupari með Íslandsmet í kraftlyftingum - Björn Margeirsson
Björn Margeirsson er einn af 5 systkinum sem öll eru doktorar. Hann er einn besti millivegalengdahlaupari Íslandssögunnar, lengdi upp í maraþonið og Laugaveginn, tók brautarmetið hans Þorbergs Inga og sneri sér svo að kraftlyftingum - þar sem Íslandsmetin fengu heldur engan frið.
Bjössi er úr sveit og segir hlutina þess vegna eins og þeir eru. Eiga allir að flytja út 15 ára? Eru frjálsar að deyja út? Er CrossFit íþrótt? Af hverju vilja crossfittarar ekki lyfjapróf? Er hægt að fá athygli ef maður hleypur styttra en 10km?
Thu, 02 Apr 2026 - 1h 38min - 88 - 78. BONK æfingar, árangur út frá bakgarðinum, UTMB deilur, ketó og lexíur brautryðjandans - Elísabet Margeirs fer yfir áratug af ULTRA
Elísabet Margeirs með væææna yfirferð á hlaupasenunni allt frá því að hér varð hrun. Ekki nóg með að ryðja brautina fyrir ultrahlaupum á Íslandi þá er hún að auki með frábæra innsýn í hlaupasenuna úti um allan heim ásamt því að vera næringarfræðingur, hlaupahaldari og þjálfari. Við ræðum hvernig bakgarðurinn spilar inn í ótrúlegan árangur Elísu, BONK æfingarnar sem hefði mátt sleppa, hvað Elísabet sagði við Elísu til að ýta henni nokkra hringi í viðbót á ögurstundu, breytingar á mataræði hlaupara í gegnum tíðina („guð minn góður hvað ég er búin að vera vannærð í gegnum tíðina í þessum löngu hlaupum“), hvað Tobbi var að gera öðruvísi en allir hinir, dramað sem fylgir vinsældum UTMB og vöxtinn frá litlu derhúfu-nördasamfélagi í þjóðaríþrótt Íslendinga.
Fri, 27 Mar 2026 - 1h 53min - 87 - 77. Elísa Kristinsdóttir – Gott form, harður haus.
Elísa keppti í Chianti 75km síðustu helgi og sigldi sigrinum heim á móti Judith Wyder. Þetta er ekki eini UTMB sigurinn hennar síðan hún kom síðast í viðtal hjá LANGA og í millitíðinni var hún tekin inn í landsliðið, lenti í 11. sæti á HM og hljóp 10km undir 35 mín.
Á sama tímabili fór hún í gegnum meiðsli og þjálfaraskipti sem við ræðum í þættinum ásamt ótrúlegri (og nákvæmri) kolvetnainntöku í Chianti, að líta ekki of mikið upp til Judith Wyder, hugarfarinu sem þarf til að ákveða að taka fram úr henni með tugi kílómetra eftir af hlaupinu, hvaða hugarleikfimi Elísa stundar í ultra halupum, hvernig henni tekst að ná öllu úr sér í hverju einasta keppnishlaupi, að vera hörð við sjálfa sig og af hverju hún þarf þjálfara.
Wed, 25 Mar 2026 - 1h 27min - 86 - 76. Hlauparar með myndavélar, KILIAN, Elísa & Andrea á móti heiminum, landsliðsvalið og Arnar Péturs stigahæstur
Synir LANGA, Egill Örn og Guðlaugur Ari, fara yfir liðna atburði og veisluna sem er í vændum:
Þarf að vera besti hlaupari landsins OG áhrifavaldur til þess að leggja íþróttina fyrir sig?Óánægja með landsliðsvaliðPendúllinn sveiflast: er FH að skemma partýið? Er brautin snúin aftur?Annað hvort er Arnar Péturs í formi lífs síns eða að hlaupa á biluðu hlaupabretti.Hvort myndirðu frekar: 27:40 í 10km eða 6:20:00 í 100km?Elísa og Andrea keppa á móti bestu hlaupurum í heiminum eftir nokkra daga!Hlynur Andrésson með sub29 í 10km og keppir stíft næstu vikur.UFA Hype Train er bremsulaus.SISUKilian Jornet gaf fólkinu nákvæmlega það sem það vildi. 2026 er árið.Sat, 07 Mar 2026 - 1h 57min - 85 - 75. KLÆBO djúpköfun: yfirburðirnir, æfingarnar, spretturinn og afinn.
Það dugði ekki minna til en að fá ólympíufarann, og fyrrum keppniaut Klæbo, Sævar Birgisson til þess að kafa djúpt í árangur og yfirburði Johannes Høsflot Klæbo sem við erum að horfa upp á þessa dagana. Hvernig varð hann svona góður? Er eðlilegt að geta unnið bestu sprettarana og líka mestu úthaldsvélarnar? Er þetta grunsamlegt? Hvernig æfir hann? Af hverju gera hinir ekki bara eins og hann? Hver er afi hans og af hverju geta þeir tveir farið gegn kerfinu og sigrað heiminn? Sævar fer með stórleik í sögugreiningu og fróðleik, gegn misgáfulegum spurningum Snorra Björnssonar, í þessum þætti.
Fri, 27 Feb 2026 - 2h 01min - 84 - Á ég að létta mig til að verða betri? Hormónar, fituprósenta, Vo2max og þreyttir íþróttamenn.Fri, 20 Feb 2026 - 1h 31min
- 83 - KLÆBO ER FARINN, íþróttamenn eða áhrifavaldar, afrek eða athygli, hver er ábyrgð fréttamanna? - Gunnar Birgisson
Djúpköfun á árangri Johannes Klæbo: besta skíðagöngu- og sýklahræddasta íþróttamanni sögunnar. Afrek hans eru öll samkvæmt plani en afi hans og þjálfari lagði upp með að gera Klæbo að þeim besta í heiminum fyrir mörgum árum - þegar engar tölur bentu til þess að þarna væri „talent“ á ferðinni.
Gunnar Birgisson mætir til þess að fræða okkur um afrek Klæbo og annarra Ólympíufara en við krefjum hann einnig um svör við valinu á Íþróttamanni ársins, hvernig Baldvin endaði í 17. sæti og hvort að íþróttamenn þurfi að vera duglegri við að láta bera á sér.
Þessi þáttur er ekki bara smekkfullur heldur funheitur í þokkabót.
Mon, 16 Feb 2026 - 2h 04min - 82 - 72. Baldvin Þór – Tímamótaskref
Baldvin tók 10km tímann sinn úr 29:30 niður í 27:40 á aðeins nokkrum vikum. Íslandsmetið er núna 2 sekúndum frá landsmeti Breta og 8 sekúndum frá landsmeti Bandaríkjamanna. Baldvin lýsir sjálfstraustinu sem byggðist upp vikurnar fyrir hlaup, ákvörðuninni um að breyta keppnisrútínunni (sleppa koffíni, sleppa rauðrófusafa) og treysta sjálfum sér, hvort að hann hefði getað hlaupið þetta hraðar (svarið er já), léttinn við að koma í mark og afleiðingarnar dagana eftir. Við ræðum þessi tímamótaskref sem eru án vafa að setja feril Baldvins í veldisvöxt með tilheyrandi athygli almennings og styrktaraðila.
Sun, 25 Jan 2026 - 1h 28min - 81 - 71. Baldvin, double threshold og hugarfar heimsmeistara - Siggi og Latsi
Siggi og Latsi mættu með 13.000 efnaskiptapróf og glósubók undir beltinu til að athuga hvað sé hægt að læra af manninum sem þjálfaði upp fjóra heimsmeistara:
Hugarfarið, magnið, ákefðin, kaloríurnar, hvíti djöfullinn og mjólkursýrumælingarnar, og hvernig þetta nýtist þér á þínum æfingum – ásamt greiningu á VO2max og mögulegum maraþontíma Baldvins Þórs eftir sögulegt 10km hlaup og vegferð Andreas Almgren úr 200m yfir í hálft maraþon (hrottaleg meiðslasaga yfir í besta hlaupara Evrópu).
Mon, 19 Jan 2026 - 1h 45min - 80 - 70. Svona verðuru heimsmeistari - í alvörunni.
Arild Tveiten tók við Kristian Blummenfelt árið 2011, sem þá var "not good at anything," og gerði hann að besta þríþrautarmanni heims. Þjálfunaraðferðir Arilds hafa getið af sér þrjá Ironman heimsmeistara til viðbótar og orðið heimsfrægar undir formerkjum The Norwegian Method.
Arild leyfði norsku krökkunum ekki að efast í eina sekúndu um að þau gætu orðið best í heimi og ræðir í þættinum lykilinn að árangrinum: double threshold, freistinguna til að byggja upp hraða, Norwegian 4x4mín, álagsstýringu, mjólkursýrumælingar, krossþjálfun fyrir hlaupara og magn magn magn.
Fri, 16 Jan 2026 - 1h 19min - 79 - 69. Hlaup: aldrei stærri, aldrei hraðari. Vorri og Snorri með augun á 2026.Tue, 06 Jan 2026 - 2h 12min
- 78 - „Reynum eitthvað sem að enginn trúir“ - Kristinn og Davíð JónssynirTue, 23 Dec 2025 - 1h 27min
- 77 - 67. Hafdís Sigurðardóttir - Hjólreiðakona ársins fjögur ár í röð
Hafdísi finnst lengra betra, LANGA hlaðvarp er sammála. 17.000 hitaeiningar fyrir tvo sólarhringa af hjóla-bakgarðinum, áherslur á þyngdarstjórnun í hjólreiðum, úr sundi í þríþraut og svo hjólreiðar, hausinn sem þarf til að verða góður úthaldsíþróttamaður og mörg önnur góð umræðuefni í þessum þætti.
Fri, 12 Dec 2025 - 1h 46min - 76 - Íþróttamannalaun, yfirburðir Karenar Axels, Kilian snýr aftur og bestu járnkarlarnir
Ætla Tobbi og Þorsteinn loksins í götumaraþon? Munu þeir hafa Arnar Péturs? Hversu hratt þarftu að hlaupa keppnishlaup til að mega húðflúra tímann á þig?
Tilnefningar til besta járnkarlsins, yfirferð á íþróttamannalaunum, hröð maraþon frá fjallahlaupurum og vinsælasti skór ársins 2025.
Það var af nægu að taka.
Fri, 05 Dec 2025 - 1h 54min - 75 - 65. Arnar Péturs tæklar Valencia, Ármannsdóminn og Víðavangsvígið en ekki Ironman
Arnar Péturs hefur svo sannarlega fengið augu á langhlaupin síðasta áratugin og tekur hér væna yfirferð á Valencia maraþoninu næstu helgi, málaferlinu eftir Ármannshlaupið, hvort hann sé bestur í 100km vegalengdinni, ÍBR, ábyrgð hlaupahaldara gagnvart bestu hlaupurum landsins, hvort almenningi langi að skokka eða keppa, Víðvangs-víginu, Why Always Arnar og Laugaveginn 2026.
Tue, 02 Dec 2025 - 1h 56min - 74 - 64. Tobbi í Ironman? 5 ástæður árangurs og hvað viltu heyra þegar þér líður sem verst?
Sigurður Örn og Latsi gæddu sér á hlaðborði umræðuefna á einlægan, hvetjandi og fræðandi máta! Bjargaði happaeistað mannslífi síðustu helgi? Ætti Tobbi séns í Íslandsmetið í Ironman? Hvaða hvatning virkar best í erfiðri keppni? Hvað viltu heyra og hvað viltu alls ekki heyra yfir erfiðasta kaflann? Síðast en ekki síst fengum við Top 5 ástæður fyrir árangri Norðmanna (hefur þetta viðfangsefni verið tekið fyrir áður?) frá Latsa með viðbótargreiningu Sigga. Þessi þáttur hressir, bætir og kætir.
Fri, 28 Nov 2025 - 2h 12min - 73 - Einvígi aldarinnar™
Latsi í þráðbeinni frá Cozumel, Mexíkó, þar sem Geir Ómars og Siggi Tri mætast á sunnudaginn næsta í Einvígi aldarinnar™. Íslandsmethafinn á móti besta þríþrautarmanni Íslands í heilum Ironman: 3,9km sund, 180km hjól og heilt maraþon!
Hver ber sigur úr býtum? Er verið að horfa framhjá myrkrahestinum? Hvernig eru aðstæður og hvað koma þeir mörgum grömmum af kolvetnum ofan í sig?
Fri, 21 Nov 2025 - 45min - 72 - Why always Arnar? Handalögmál, lyfjapróf, íslensk atvinnumennska og Harry Styles
Synir LANGA fengu aldeilis umræðuefnin í hendurnar þessa helgina. Hér er farið yfir dramatíkina í víðavangshlaupunum, kærumenningu í hlaupasenunni, stór nöfn möguleg í Laugaveginn, íslenska atvinnumennsku, niðurstöður úr lyfjaprófum, Courtney Dauwalter og Harry Styles í götumaraþoni, enn annar norskur sigur og nýtt "heimsmet" hringinn í kringum Ísland.
Sun, 19 Oct 2025 - 1h 40min - 71 - Latsi og Geir Ómars: Noregur snýr aftur, 183gr carbs á klst, lægra lactate í carbon skóm og Siggi Tri reynir við Íslandsmet
Íslensku Kristian Blummenfelt og Gustav Iden, þríþrautarkóngarnir Latsi og Geir Ómarsson mæta í settið og fara yfir víðan völl: Norsku þríþrautarprinsarnir sem röðuðu sér í fyrstu þrjú sætin á heimsmeistarmótinu nýverið, vendingar í þjálfarteyminu þeirra og ný nálgun á æfingar, Siggi Örn reyndi við Íslandsmet í Ironman og ætlar að gera aðra tilraun eftir nokkrar vikur, Casper Stornes innbyrti 183gr af kolvetnum á klukkustund í frammistöðu lífs síns, Latsi greinir low-efficiency og high-efficiency skó og Geir Ómars mætir með glænýja (eins manns) rannsókn á carbon skóm og mjólkusýrumælingum.
Fri, 10 Oct 2025 - 1h 54min - 70 - Fyrir og eftir – Dóri & Guðfinna gera upp HM
Guðfinna Kristín og Halldór Hermann (your favorite runner's favorite runner) mæta fyrir og eftir sín hlaup á heimsmeistaramótinu í utanvegahlaupum hér í Canfranc. Þau glímdu (og glíma enn) bæði við beinbrot á árinu og þurftu að hagræða æfingum til þess að komast á mótið – sem gekk líka svona vel hjá þeim báðum. Allt um það og aðrar frammistöður í þessum þætti.
Sun, 28 Sep 2025 - 1h 22min - 69 - Sigurjón Ernir: Bakslög, breyttar áherslur, bílslys og bætingar!
Sigurjón Ernir hefur átt brösótt ár sökum bílslyss en náð gríðar góðum árangri þrátt fyrir það. Hann ræðir landsliðsverkefnin sín síðasta áratuginn, hvernig hann breytti æfingum og fór að geta hlaupið meira/hraðar og bætingarárið sem hann átti fyrir tveimur árum. Hann deilir einnig með okkur litlum miða sem hann tekur með í hlaupið sitt á laugardaginn til þess að minna hann á fyrir hvern og af hverju hann er að gera þetta.
Fri, 26 Sep 2025 - 31min - 68 - Andrea Kolbeins – Búin að bíða eftir þessu í tvö ár!Thu, 25 Sep 2025 - 21min
- 67 - Þorsteinn Roy er í besta formi lífs sínsThu, 25 Sep 2025 - 44min
- 66 - Íris Anna & Anna Berglind - báðar með sub5 Laugaveg og tilbúnar í Short TrailThu, 25 Sep 2025 - 27min
- 65 - Upphitun fyrir HM: Tobbi greinir keppnina og árangur ÍslendingaThu, 25 Sep 2025 - 40min
- 64 - 60. Gleði vs. árangur, Kenía mætt í UTMB, sigurformúla í ruslið og eru hlaup að breytast í Formúlu 1?
Vænleg yfirferð yfir stærstu utanvegahlaupaveislu ársins: UTMB. Kenía er farin að láta finna fyrir sér í trail-heiminum, með tilheyrandi efasemdum og spurningarmerkjum, er Courtney Dauwalter að taka keppninni of léttúðlega? Er Jim Walmsley ósnertanlegur? KK og KVK sigurvegarar UTMB þjálfaðir af sama aðilanum - sama aðila og Caleb Olson segir upp eftir stórsigur sinn í Western Sates! Hvað getur 100kg skíðagöngumaður hlaupið 10km hratt (hratt) og eru utanvegahlaup að breytast í Formúlu 1?
Fri, 05 Sep 2025 - 1h 52min - 63 - 59. Sigrar RM 21,1km og bestur í skíðagöngu - Dagur Benediktsson
Dagur mætti inná skrifstofu til framkvæmdastjóra sjávarútvegsfyrirtækis fyrir 8 árum, þá 20 ára gamall, og lagði fyrir hann áætlun um markmið fyrir glæstan skíðagönguferil sem hann þurfti hjálp við að framkvæma.
Í dag er hann besti skíðagöngumaður landsins, hleypur 10km á 33:28 og sigraði hálft maraþon í Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst síðastliðnum. Dagur er hér krafinn um svör við þjálffræði, álagsstjórnun, æfingamagn, kolvetnainntöku, besta tíma upp að Steini, hvernig hann fór úr 39:29 í 10km niður í 33:28, Norwegian method, hvernig skíðaganga og hlaup vinna saman, lífið sem atvinnuíþróttamaður og fleira til.
Tue, 02 Sep 2025 - 1h 25min - 62 - ÍBR svarar fyrir sig
Óánægju gætir innan hlaupasamfélagsins með framkvæmd á Reykjavíkurmaraþoninu, en í fyrsta skipti í 40 ára sögu hlaupsins voru hlauparar ræstir í tveimur flokkum: keppnis- og almennum flokki. Ringulreiðin sem því fylgdi bitnaði á upplifun og frammistöðu keppenda.
Hrefna Hlín, sviðsstjóri viðburðarsviðs ÍBR, gefur okkur innsýn inn í ákvörðunartöku og framkvæmd hlaupsins og segir sína hlið á málinu.
Tue, 26 Aug 2025 - 37min - 61 - 58. Hlynur & Baldvin: RM, maraþonæfingar, single threshold, lyfjapróf og 100kmSun, 24 Aug 2025 - 1h 39min
- 60 - 57. Sprengjur í RM, léleg ITRA stig, maraþon vs. Laugavegur og Andrea vs. Elísa
Við fylgjum eftir viðtölum við Baldvin Þór og Hlyn Andrésson með sjóðheitri umræðu um Reykjavíkurmaraþonið. Viktor Orri mætti á DURA drykkjarstöðina til að ræða möguleika Baldvins og Hlyns til að slá met, Elísu á móti Andreu í hálfu, hvað hlaupahaldarar þurfa að gera til að fá skráningu í hlaupin sín, hvað 100km afrekið hans Arnars fær mörg stig í samanburði við önnur met íslenskra hlaupara, "illa stiguð" utanvegahlaup, val Landsliðsmanna á betur stiguðum hlaupum, hvort sub 5 Laugavegur jafngildi sub 3 maraþoni, nýjungar í carbon skóm, og hvað þú þarft að gera til að komast inn á top 100 lista yfir hröðustu tíma í 10km, hálfmaraþoni og maraþoni.
Wed, 20 Aug 2025 - 1h 49min - 59 - 56. Hlynur reynir við hraðasta maraþon á Íslandi
Brautarmetið í Reykjavíkurmaraþoninu var sett um það leyti sem Hlynur Andrésson var að fæðast. Hann er búinn að strengja saman góðar æfingavikur og mánuði og er tilbúinn í atlögu að metinu. Hlynur fer hér yfir breytingar í æfingum fyrir maraþonið, „maraþon specific“ æfingar, hvernig sumum tekst ekki að höndla síðustu 12km af maraþonvegalengdinni, skóbúnaðinn sinn og zone æfingar.
Tue, 19 Aug 2025 - 19min - 58 - 55. Baldvin Þór í vígahug fyrir RMTue, 19 Aug 2025 - 19min
- 57 - 54. Halli Gilli & Sigfinnur – 100km haus, magaflóran, líkamsklukkan og LaugavegurinnMon, 04 Aug 2025 - 1h 32min
- 56 - 53. Elísa Kristinsdóttir – Viðstöðulausar bætingar, frá 10km upp í 400km
Elísa vann í dag Súlur Vertical Gyðjuna 100km á tímanum 10:45. Hún tekur brautarmetið af Andreu Kolbeinsdóttur og slær það um rúmar 90 mínútur. Óstaðfestar tölur gefa henni hæsta ITRA stig sem íslensk kona hefur náð. Ever.
Planið var þó allt annað komandi inn í þetta hlaup… Elísa ræðir hlaupið, hvað fór úrskeðis og hvað fór vel, lægðina eftir 400km bakgarðinn í október, að snúa baki við bakgarðshlaupunum og nokkrar af bestu frammistöðum hlaupaferilsins sem hafa allar átt sér stað á síðustu vikum.
Sat, 02 Aug 2025 - 1h 10min - 55 - 52. Hugarfarsbreyting eftir heilaæxli: 50 ára sjómaður verður Íslandsmeistari í hjólreiðum - Þorsteinn Bárðarson
Þorsteinn Bárðarson hefur varið lífi sínu á sjónum. Hann kepptist við að vera aflamestur, fór út í öllum veðrum og tók lengri róðra en hinir með þeim afleiðingum að hann klessti á vegg og þurfti að breyta um lífsstíl til að lágmarka streitu og hámarka heilsu. Á sama tíma koma hjólreiðar inn í líf Þorsteins en hann rekur söguna af því hvernig hann náði að para saman sjómennsku og erfiðar æfingar á Snæfellsnesi, fréttirnar af því þegar hann greinist með heilaæxli sem verður til þess að hann leyfir sér að elta ástríðuna og reyna við markmiðið sem hann þorði varla að viðurkenna fyrir sjálfum sér: Að verða Íslandsmeistari í götuhjólreiðum. Þess má geta að Þorsteinn landaði titlinum fyrir fáeinum dögum síðan, fimmtíu ára gamall og 29 árum eldri en næsti maður.
Wed, 23 Jul 2025 - 1h 57min - 54 - Andrea Kolbeinsdóttir - Sigurvegari í Laugavegshlaupinu 2025Sat, 12 Jul 2025 - 15min
- 53 - Elísa Kristinsdóttir - 2. sæti í Laugavegshlaupinu 2025Sat, 12 Jul 2025 - 14min
- 52 - Þorbergur Ingi - 2. sæti í Laugavegshlaupinu 2025Sat, 12 Jul 2025 - 19min
- 51 - Þorsteinn Roy - Sigurvegari Laugavegshlaupsins 2025Sat, 12 Jul 2025 - 28min
- 50 - 50. Hvernig vinnuru Laugaveginn?
Sterkasta ráslína sumarsins verður samankomin í virtasta utanvegahlaupi landsins.
Hver vinnur? Hvernig? Verður brautarmet slegið? Er 10 ára Íslandsmet Þorbergs Inga í hættu? Er komið að Þorsteini? Á einhver séns í Andreu? Hverjir eiga mest inni? Fáum við nýtt fólk á pallinn? Hvað fara margir undir 5? Öllu svarað og meira til.
Thu, 10 Jul 2025 - 1h 44min - 49 - 49. Caleb Olson, WSER winner: "How the worst race of my life changed my running forever"
“Podium would be way cooler than 5th.” Caleb wrote, after the fastest debut in history at Western States 2024. He made it to the podium this year, and then some.
Caleb generously sits down with us just 6 days out from his incredible victory at WSER, where he finished less than two minutes short of Jim Walmsley's legendary course record and beat a stacked field of competitors.
We discuss:
The worst race of his career that forever changed his running trajectory.Changes made in training and fueling that support his incredible ultra racing winning streak.Jim Walmsley doubting that the course record would've been broken and that "people have a disconnect to how fast that time is"Being chased by Kilian Jornet and getting over the mental barrier that it's possible to beat him.Being hard on yourself after races and focusing only on what went wrong.The white long-sleeve shirt!!!Making a living as a runner + a generous support from NikeAn Icelandic dude that refused to let him DNF at Worlds 2023.The temptation of slowing down and giving up the first place at WSER when things felt bad.Saying goodbye to the "underdog" days.Fri, 04 Jul 2025 - 40min - 48 - 48. Norwegian Method, lágt testósterón, pottur vs. sauna, Kilian Jornet, hjól fyrir hlaup, WSER og not Breaking4 - Guðfinna og Latsi
Guðfinna Kristín og Latsi ræða af manískum áhuga um vísindin, viðburðina og hugmyndafræðina sem ráfar um úthaldsíþróttaheiminn í dag:
Noregur er mættur afturThe Norwegian Method - uppruni, útskýring og fyrir hvern?Lionel Sanders greinir sig með REDs: risvandamál, tíð veikindi, lélegur svefn, beinmeiðsliHitaþjálfun - heitur pottur eða sauna?Breaking4 - Faith Kipyegon á betra skiliðÓtrúlegar senur í Western StatesNæringarinntaka í IronMan og ultrahlaupumHeimsmet í Bakgarðinum - förum við að kalla þetta gott?Thu, 03 Jul 2025 - 1h 57min - 47 - 47. Western States – Það er að sjóða uppúr!Thu, 26 Jun 2025 - 1h 25min
- 46 - 46. Nýjar leiðir að árangri: Hitaþjálfun og hákolvetnainntaka – Sigurður Örn Ragnarsson
Siggi TRI er einn besti þríþrautarmaður okkar Íslendinga með manískan áhuga á bætingum. Hann er bæði vísindamaðurinn og tilraunadýrið og í þættinum förum við yfir nýstárlegar leiðir að árangri sem eru að ryðja sér til rúms í úthaldsíþróttaheiminum:
Fyrir hvern er hitaþjálfun?Hitaþjálfun fyrir íþróttamann í tímaþröngHvað varð um low-carb og að 'taka hlutina á fitunni'?Hákolvetna inntaka, af hverju og hvernig? Frammistaða og endurheimt.Æfingaaðferðir Norðmanna og æfingabúðir með Kristian BlummenfeltHraðasta maraþon allra tíma í IronmanBrekkur og niðurbrot í framanálæriTilraun Sigga við Íslandsmetið í IronmanMon, 16 Jun 2025 - 2h 11min - 45 - 45. Vinsæll hlaupari vs. góður hlaupari, verðlaun í hlaupum, hitaþjálfun, hver mætir í Laugaveginn? – Egill Örn & Guðlaugur Ari
Smekksneisa í dag. Gulli og Egill mæta sjóðheitir og rjóðir í kinnum eftir hitaþjálfun dagsins. Við gagnrýnum og setjum út á allt frá markaðssetningu hlaupara, línuna á milli vinsælda og getu hlaupara, Bakgarðinum, "DQ" Hlyns á Smáþjóðaleikunum, mætingunni í Laugaveginn, WSER, frammistöðu Yngvild Kaspersen í Mýrdalshlaupinu til ITRA stiga og óáreiðanleika þeirra. Egill og Gulli rekja einnig vegferð og ástæður bætinga sinna í langhlaupum síðustu misseri.
Wed, 04 Jun 2025 - 1h 48min - 44 - 44. Yngvild Kaspersen - 10 years on top: Highs, lows and lessons.
“Only 20 years old! These guys are the future (and present) of the sport!” said Kilian Jornet, in 2015, about Yngvild Kaspersen and Remi Bonnet - and man was he right.
Yngvild quit the Norwegian national soccer team to pursue running, with great results. She was 21 years old when she won Zegama, placed 1st in CCC 2023, 5th in WSER 2024 and is ranked #3 female trail runner in the world. Like that wasn’t enough, Yngvild balances all that with being a full-time doctor, working night shifts and going for a 6 hour run afterwards.
Her career has seen some tough periods and setbacks: burn-out in 2018, hip fracture in 2021, disappointing CCC in 2022 and a car crash right before WSER 2024.
We discuss all of that in detail, along with topics like training theory, The Norwegian Method, pressure,being coached byTom Evans, high-carb fueling, Norway's excellencein sports, perfectionistattitude and work/run balance.
Fri, 30 May 2025 - 1h 08min - 43 - 43. Næsta bylting í íþróttum er... íslensk? Frá Harvard til Team Visma, Kilian Jornet og Norska Ólympíusambandsins.
Arnar Lárusson og teymið hans kepptu gegn Boston Dynamics í keppni á vegum DARPA (klikkuðu þróunardeildinni sem leitar að mörkum hins mögulega á vegum bandaríska hersins) um að bæta skilvirkni og orkunotkun mannslíkamans með utanáliggjandi stoðgrind (glöggir hlauparar eru strax farnir að tengja þessa flóknu skilgreiningu við carbon skó).
Teyminu tókst að bæta hagkvæmni líkamans og við mælingar á rannsóknunum fæðist hugmynd Arnars um að mæla innri starfsemi mannslíkamans í gegnum loftflæði. Hann segir skilið við Harvard og endar í háfjallaæfingabúðum með Team Visma, fær 2x Tour De France meistarannJonas Vingegaard til að kenna sér á kaffivélina, sendir Kilian Jornet með prótótýpuna sína á Everest og vinnur nú m.a. með Norska Ólympíusambandinu að því að safna gulli á Vetrarólympíuleikunum 2026. Þessir aðilar halda varla vatni yfir tölunum og gögnunum sem næsta bylting í úthaldsíþróttum er að veita þeim.
Lokaðu augunum og hlustaðu vel, you're in for a ride.
Wed, 28 May 2025 - 1h 48min - 42 - 42. "Ekki bestur... betri!" – Sigurbjörn Árni Arngrímsson
Ekki bara lýsandinn Sigurbjörn Árni heldur doktorinn í lífeðlisfræði, skólameistarinn og 40x-faldur Íslandsmeistari í hlaupum.
Sigurbjörn stundaði verulega áhugaverðar rannsóknir við doktorsnám sitt í Bandaríkjunum. Niðurstöðurnar eru nýttar í tengslum við hámarksframmistöðu íþróttamanna á hæsta getustigi úti um allan heim.
Sömuleiðis gerði hann ýmsar tilraunir á sjálfum sér með t.d. sodium bicarbonate/matarsóda, svíngrófu æfingaprógrammi og lagði allt í sölurnar til þess að hámarka árangur sinn í hlaupum–ekki til þess að verða bestur... heldur til þess að verða betri!
Thu, 15 May 2025 - 1h 18min - 41 - Backyard BBQ #3 - Áhugalæknir/atvinnuhlaupari, 200km múrinn, besti Íslendingurinn í Bakgarðinum?Sun, 11 May 2025 - 37min
- 40 - Backyard BBQ #2 – Hálf lungu, „Bjarni Ármanns hættir ekki í stólnum!“, örmögnun og CPH maraþon
Bjarni Ármanns kallar þetta gott, Pétur Ívars gefur okkur innsýn í CPH maraþonið (þar sem Andrea gerði atlögu að Íslandsmeti nú í morgun), "Bjarni Ármanns hættir ekki í stólnum", Mari fær orku út úr því að leiða aðra í gegnum þjáninguna og Ósk Gunnars deilir með okkur ástæðunni og hvatanum á bakvið Bakgarðinn sinn.
Í boði NOW, Sjóvá, Hlaupár, Bodylab og Kia EV3!
Sun, 11 May 2025 - 28min - 39 - Backyard BBQ #1 - Mari með mækinn, Bjarni Ármanns reiðubúinn í 111 hringi, ketó-bakgarður og Elísabet Margeirs.
Sein útsending frá Bakgarðinum! Mari Jaersk stendur undir nafni, Bjarni Ármanns gerir grein fyrir áformum sínum (111 hringir?), Egill Trausti reyndi við Ketó-Bakgarð og Elísabet Margeirs mun taka Bakgarð þegar hún nennir því.
Fylgið okkur á Instagram og fylgist með hér á Spotify, við verðum að alla helgina í boði Kia EV3, Hlaupár, Bodylab, SjóváogNOW!
Sat, 10 May 2025 - 30min - 38 - 38. Íslandsmet í maraþoni, brautarmet í Puffin, vonbrigði, pressa og næstu sigrar... á eigin forsendum! – Hlynur Andrésson
Sigurvegari Puffin Run og Íslandsmethafi í maraþoni kemur funheitur inn í stúdíóið og ræðir sigurinn í Puffin Run síðustu helgi.
Hlynur átti Íslandsmetin frá 3000m upp í maraþon árið 2021 en við ræðum erfiða tíma sem fylgdu árangrinum: 3x misheppnaðar tilraunir til að slá eigið Íslandsmet, næring á hlaupum, þjálffræðin sem hann aðhyllist, hvernig þjálfaraskipti og flutningar til Ítalíu sem fóru illa með hann, að missa áhugann á hlaupunum, finna ekki gleðina í íþróttinni lengur og upprisan úr þessu öllu saman!
Svo kemst enginn elítuhlaupari út úr stúdíóinu án þess að segja sína skoðun á sodium bicarbonate, hitaþjálfun, high-carb fueling, carbon skó, krossþjálfun og fleiri þætti sem eru að skila okkur nýrri gullöld af langhlaupum.
Mon, 05 May 2025 - 1h 12min - 37 - Hvernig vinnuru Puffin Run 2025? (Sterkasta utanvegahlaup ársins)
Það stefnir í að sterkustu hlauparar landsins mæti á startlínuna í Puffin Run 2025. Þorbergur Ingi kemur með greiningu á hlaupinu:
Hlynur Andrésson er hraðasti hlauparinn, Arnar Pétursson á brautarmetið og Þorsteinn Roy hefur yfirnáttúrulega hæfileika í erfiðri braut. Hvernig halda menn á vopnum sínum og hvenær þurfa þeir að höggva?Andrea Kolbeins, Guðlaug Edda og Elín Edda keppast kvennamegin. Hversu hratt þarf Andrea að fara til að tryggja sér sigur – og Íslandsmet í maraþoni helgina eftir? Munu Eddurnar gera hennir erfitt fyrir?Verðlaunaféð í Puffin: Samanburður við Reykjavíkurmaraþon og vangaveltur um hvata fyrir elítuhlaupara.Fri, 02 May 2025 - 40min - 36 - Míluðustu menn landsins: Ofurskórnir - eitthvað shady í gangi? „Milage is king,“ London, Boston, 40km túr á bretti og Vorri gegn Ingebrigtsen.
Það eru fáir Íslendingar sem hlaupa jafn marga kílómetra og Guðmundur Magnússon og Viktor Orri Pétursson þessa dagana. Þeir uppskera eins og þeir sá: báðir með maraþon PB í aprílmánuði... eftir að hafa náð maraþon PB seint á síðasta ári.
Þeir veltu stóru steinunum í þættinum:
Hvað er í gangi með ofurskóna? Puma segist hafa í höndunum 3+% betri skó miðað við bestu skóna á markaðnum.Var Nike löngu búið að finna upp carbon skóinn?Hvernig æfir Gummi til að fara maraþon á 2:46 í fyrstu tilraun?Hvernig var fyrir Viktor að mæta Jakob Ingebrigtsen á brautinni.Röntgen myndir til að sanna að Jakob Kiplimo sé 15 ára.Sifan Hassan vs. Tigist Assefa: The Rematch.Baldvin Magnússon chippar inn í umræðuna, alla leið frá Bretlandi.Gummi (sérfræðingur) gefur gefur grænt eða rautt ljós á hlaupatrend og hlaupatísku.Vecct - Íslenskt hlaupafatamerkiYfirferð á London/Boston maraþonunum.Wed, 30 Apr 2025 - 1h 43min - 35 - 35. Afrekslandið heimsótt: beinheilsa & beinmeiðsli, Ingebrigtsen dómsmálið, hitaþjálfun, kolvetni, VLOG og maraþon season.
Ekki trúa neinu sem þú heyrir og bara helmingnum af því sem þú sérð. LANGA hlaðvarp er mætt til Afrekslandsins og fær á hreint, í eitt skiptið fyrir öll, af hverju Norðmenn eru svona góðir í íþróttum.
Guðfinna Kristín stýrir þættinum með okkur, við förum í saumana á árangri Bergenbúa í íþróttum, samstarf Olympiatoppen við almenning, Ingebrigtsen dómsmálið, fræðumst um beinheilsu (og beinmeiðsli) hlaupara, spáum fyrir um árið 2025, ræðum hitaþjálfun og saununotkun samhliða hlaupum (bætingar), Boston maraþonið, London maraþonið og fleira af hlaðborði langhlaupanna.
Wed, 23 Apr 2025 - 2h 13min - 34 - „Ég legg það ekki á mig, fjölskylduna og neinn í kringum mig að við höldum þessu áfram.“ – Hreinskilið uppgjör eins besta þríþrautarmanns Íslands.
Rúnar Örn setti Íslandsmetið í Ironman í fyrstu tilraun árið 2016. Margur myndi áætla að þetta væri gríðarlega ánægjulegt augnablik á ferli Rúnars en það var margt í gangi á bakvið tjöldin sem gerði honum erfitt fyrir að vera stoltur af sjálfum sér. Næstu tvö árin voru svo mikill rússíbani að Rúnar tók þá ákvörðun að hætta frekar í íþróttinni en halda áfram að reyna.
Það kemur fljótt í ljós í þessu viðtali að Rúnar er einstaklega hreinskilinn og einlægur í sinni frásögn og hikar ekki við að tala um allar hliðar þess að hætta í vinnunni og fórna tíma með fjölskyldu og vinum til að ná lengra í íþróttinni sinni.Við ræðum um:
Hugrekkið sem þarf til þess að taka fyrsta skrefið í átt að stórum markmiðum.Hvað verður um þá sem ná ekki stóru markmiðunum.Glansmyndina þegar vel gengurÁkvörðunina að hætta í vinnunni til þess að gefa allt í íþróttina.Sætustu sigrana og dýfuna og sjálfsniðurrifið sem fylgdi því að hætta í miðri keppni.Vinnan og hjálpin sem hann fékk til að ná sér upp aftur.Hvernig það fjaraði undan gleðinni þegar Rúnar fór að æfa einn.Augnablikin (í fleirtölu) þegar hann vissi að nú væri kominn tími til að hætta.„Fyrir hvert eitt skipti sem við sjáum glansmyndina þá eru miklu fleiri svona móment – þar sem einhver lét vaða og það gekk ekki upp. Það ratar ekki alltaf á Instagram, flestir bara loka hurðinni og hverfa. Það er líka bara hollt að tala um það því það er alveg jafn mikið afrek.Afrekið er að þora að láta vaða, það er bara bónus ef það gengur upp. Hugrekkið er að taka fyrsta skrefið.“
Grein Rúnars um ferðalagið til Kona sem var kveikjan að þessu viðtali.
Thu, 17 Apr 2025 - 1h 39min - 33 - 33. Andrea & Vignir - pitstop í Kenía á leiðinni að Íslandsmeti
Vignir Már hefur æft hlaup síðan um aldarmótin (á þeim tíma voru hlauparar spurðir hvort þeir „kæmust maraþon“). Hann hefur margsinnis farið til Kenía, mekku langhlaupa, í æfingabúðir en fyrr á árinu fór Andrea Kolbeinsdóttir í sína fyrstu ferð sem hluta af undirbúningi fyrir Kaupmannahafnarmaraþonið (það eru 7stk „A“ í þessu orði) þar sem tilraun verður gerð til að slá 26 ára gamalt Íslandsmet Mörthu Ernstsdóttur: 2:35:15.
Umræðuefni:
Hvernig æfir maður fyrir það að hlaupa á hraðasta maraþontíma Íslandssögunnar?Aðstæður í Kenía og hvað gerir Kenísku hlauparana svona góða? (aðstæður, umhverfi, hvatar, gen, lyf?)Háfjallaloftið og bætingarEliud Kipchoge er einhversstaðar á bilinu 30-50 ára gamall. Frá því að hlaupa tannlaus á brautinni yfir í hraðasta maraþontíma sögunnar (og milljónir dollara inná bankareikning).Samsæriskenningin um dauða Kelvin Kiptum.Vignir hefur hlaupið frá aldarmótunum, greining á hlaupasenunni, hvað er að breytast? Hvar liggja vinsældirnar? Er maraþonið að missa virðinguna sem það á skilið? Hvernig hafa æfingar breyst?Óhugnaleg heimsmet í götuhlaupum.Kolvetni og ofurskór.Thu, 10 Apr 2025 - 1h 31min - 32 - 32. Geir Ómars - Besti tími Íslendings í Ironman
Geir Ómars ættu allir úthaldsíþróttamenn að þekkja. Hann byrjaði í þríþraut 35 ára gamall, setti sér 5 ára markmið um að keppa í Ironman og setti Íslandsmet í vegalengdinni ári eftir sinn fyrsta járnkarl. Geir er verkfræðingur að mennt og nálgast íþróttina sem slíkur, hann er járnagaður og skipuleggur hlutina niður í minnstu smáatriði - með góðum árangri enda stendur Íslandsmetið hans frá 2017, 8:39klst, enn þann dag í dag!
Thu, 03 Apr 2025 - 2h 32min - 31 - 31. Kári Guðmundsson, líffæraþegi og maraþonhlaupari: „Ég hafði ekkert annað en brosið til að fara í gegnum þetta.“
Kári Guðmundsson greindist með sykursýki 5 ára gamall. Nýrun í honum gáfust að lokum upp og erfið veikindi tóku við þar sem eina tiltæka orkan var nýtt til að fara fram á baðherbergi, kasta upp og svo aftur uppí rúm. Eitt kvöldið barst símtal þar sem hann var beðinn um að pakka í töskur og koma sér upp á flugvöll, hann væri á leiðinni í bris- og nýrnaígræðslu í Svíþjóð. Kári segir söguna af veikindunum og vegferðina frá því að vanvirða heilsuna yfir í að hlaupa maraþon.
Thu, 27 Mar 2025 - 54min - 30 - 30. Haukur Ingi: Markmiðasetning, hraðari framfarir, þægindaramminn, samanburður, sjálfstal og hugsanir fyrir árangur.
Haukur Ingi Guðnason er sáfræðimenntaður, fyrrum leikmaður Liverpool og kennir íþróttasálfræði við HÍ.
Í þættinum förum við yfir aðferðir sem hægt er að nýta sér til að hámarka eigin árangur, hvort sem það er í íþróttum eða á öðrum sviðum lífsins:
Hvernig markmið á að setja sér til að ná árangri (frammistöðumarkmið, niðurstöðumarkmið og ferlamarkmið).Ef þú veist ekki hvert þú vilt fara skiptir ekki máli hvernig þú kemst þangað.Að setja sig í erfiðar og óþægilegar aðstæður til að hraða framförum.Gildrurnar sem fylgja árangri og aftra framförum.Samkeppni og samanburður.Sjálfstal og viðmið.Ímyndunaraflið og sjónsköpun (visualization).Hvernig gervigreind var þjálfuð til að sigra besta Go spilara í heiminum og hvað þú getur lært af því ferli.Thu, 20 Mar 2025 - 1h 54min - 29 - 29. Færri kaloríur, minni árangur? Birna Varðar: REDs og orkuskortur í íþróttum
Það er erfitt að blanda saman líkamssamsetningu, tölunni á vigtinni, frammistöðu í keppni, bætingum á æfingum, andlegri líðan og almennri heilsu. Orkuinntaka tengist öllum þessum breytum á einn eða annan hátt og Birna Varðardóttir, doktor í íþrótta- og heilsufræði, mætir í þáttinn til þess að upplýsa okkur um hættur og afleiðingar þess að mæta ekki orkuþörf líkamans.
Fri, 14 Mar 2025 - 1h 03min - 28 - 28. Hafsteinn Ægir - 25 ára keppnisreynsla: „Djöfull eruði að missa af miklu“
Hafsteinn fór á tvenna Ólympíuleika í siglingum og hóf síðan keppnisferil í hjólreiðum. Reynslan drýpur af honum eftir rúmlega tvo áratugi af keppnisíþróttum á hæsta stigi og það er mikið hægt að læra af 45 ára íþróttamanni sem er að eiga sín bestu ár á ferlinum. Haffi fer yfir hvernig áherslan hans fór af árangri og yfir á leiðina að árangrinum, hvernig keppnisstressið hvarf, tilraunir á lágkolvetna- og hákolvetnamataræði, bætingar í úthaldsíþróttaheiminum, fjögurra daga gravel keppni í Sahara (á móti fyrrverandi Tour de France keppnishetjum), hvernig honum hefur tekist að brenna út á miðju keppnistímabili en líka ná því besta úr sér á meðan hann sinnir 100% vinnu og fjölskyldu.
Sat, 08 Mar 2025 - 1h 49min - 27 - 27. „Ég hleyp af því ég get það" - Gunnar Ármannsson og hugarfarið í langhlaupum, veikindum og ástvinamissi.
Gunnar hefur hlaupið 62 maraþon, hann er með sub3 undir beltinu og á þriðja besta tíma Íslendings í 100km hlaupi þrátt fyrir að hafa nokkrum árum áður fengið að vita að hann eigi nokkrar vikur eftir ólifað. Gunnar lánaði Krabbameinsfélaginu slagorðið sitt „Ég hleyp af því ég get það,” en þó hann skilgreini sig ekki sem sjúkling þá marka veikindi stóran hluta af hans lífi. Veikindi, áföll og ástvinamissir hafa mótað aðdáunarvert og fallegt hugarfar sem Gunnar notar í lífinu og þar spila hlaupin stóra rullu - svo stóra að hann íhugaði að gerast atvinnuhlaupari eftir að hafa bæði greinst sjálfur með blóðkrabbamein og misst konuna sína úr leghálskrabbameini. Það er erfitt að komast ekki við þegar maður hlustar á Gunnar og sagan hans fær mann til að kunna betur að meta litlu hlutina í lífinu, sem og lífið sjálft.
Fri, 28 Feb 2025 - 1h 38min - 26 - 26. Gunnar Páll, þjálfari þriggja Ólympíufara: "Þetta er það skemmtilegasta sem ég geri."
“Menn eiga kannski einhverjar afrekaskrár í félögunum en það var bara verið að lesa heimsafrekaskrána, það var ekkert öðruvísi. Menn bara litu á hver er bestur í heiminum? Þangað ætlum við að stefna.”
Gunnar Páll Jóakimsson þjálfaði Mörthu Ernst, Kára Stein og Anítu Hinriks og fór með þau öll á Ólympíuleikana. Þar með má titla hann sem árangursríkasta hlaupaþjálfara landsins og einstaklega hæfan til að gefa innsýn inní einkenni sem góður hlaupari þarf að hafa til að ná langt - hratt. Hann á sjálfur feril og fjölda Íslandsmeistaratitla sem 800m hlaupari og lítur hér yfir hugarfar og æfingaaðferðir þeirra tíma og hvernig sú reynsla og þekking sem hann hefur sópað að sér yfir áratugina hefur breyst og bæst.
Wed, 19 Feb 2025 - 2h 00min - 25 - 25. Að sigra sjálfan sig - Gunnlaugur Júlíusson
Gunnlaugur fór frá því að að vera reykjandi skrifstofumaður yfir í að ryðja braut ultrahlaupa á Íslandi. Vegferð hans er tilviljunum háð en Gunnlaugur hljóp ekki sitt fyrsta maraþon fyrr en hann var 48 ára gamall. Þar hófst mikil vinna, agi og markmiðasetning sem tók hann gegnum m.a. 400km keppnishlaup þegar hann var kominn á sjötugsaldurinn.
Gunnlaugur var járnagaður í sínum undirbúningi og deilir hér ýmsum hindrunum og aðferðum sem hann nýtti sér til að herða hausinn. Hann hljóp sem dæmi maraþon kl. 05:30 alla laugardagsmorgna en á sunnudögum svaf hann út og hljóp ekki fyrr en 06:30.
Hér er mikill innblástur og fróðleikur á ferðinni.
Wed, 12 Feb 2025 - 2h 01min - 24 - 24. Arnar Pétursson - bætingar, heimsmet, persónuleg met og erfiðustu hlaupin á ferlinumThu, 06 Feb 2025 - 2h 11min
- 23 - 23. Martröð allra Íslandsmeta: Baldvin Þór Magnússon
2024 var viðburðarríkt ár hjá besta hlaupara landsins. Fyrri hluti ársins fór í að slá nokkur Íslandsmet (þmt. 44 ára gamalt Íslandsmet) en seinni hluti ársins litaðist af vonbrigðum af því að komast ekki inn á EM og Ólympíuleikana. Baldvin gerir hér upp væntingarnar, Íslandsmetin, Vo2max-ið sitt, leiðir til að bæta sig í hlaupum, hvaða græjur hann notar til að bæta sig, áhugaverða keppnisrútínu (rauðrófoskot (ft.) og koffíntyggjó (ft.)), og stundum ósjarmerandi lífsstíl atvinnuíþróttamanna.
+ Hvað kemst Baldvin marga hringi í bakgarðinum?
Fri, 20 Dec 2024 - 1h 22min - 22 - 22. Ágústa Edda Björnsdóttir
Í þættinum er kíkt undir húddið og komist að því hvað íþróttafólk þarf til að ná árangri. Ágústa veit sitt hvað um málið enda spannar ferillinn fimleika, handbolta, hjólreiðar og nú hlaup.
Ágústa lék 62 handboltalandsleiki og varð 3x Íslandsmeistari, hún var hjólreiðakona ársins 2017, 2018 og 2019 og hljóp nú í desember Valencia maraþonið á 3 tímum og 14 mínútum.
ATH. Þátturinn inniheldur innblástur.
Fri, 13 Dec 2024 - 1h 33min - 21 - Fulla ferð: Fyrirtækjarekstur, fjögur börn og langhlaup - Íris Anna & Sigurgísli
Íris Anna og Sigurgísli deila miklum metnaði fyrir langhlaupum en þetta áhugamál þeirra þarf að deila klukkutímunum í sólarhringnum með 6 manna heimili og fyrirtækjarekstri. Íris er sjálf á sínum 'öðrum hlaupaferli' en hún tók fjögurra-meðgöngu-pásu frá íþróttinni áður en hún mætti aftur til að sækja sér Íslandsmeistaratitla. Sigurgísli yfirgaf málarastarfið fyrir draum um skrifstofulífið en það tók hann ekki langan tíma að átta sig á því að þetta væri ekki fyrir hann svo hér rekjum við söguna af endurkomu hans í iðnaðinn, edrúlífið, fyrirtækjakaup, yfirmannastöðuna, ráðningu Írisar og listina við það að fara alltof hratt af stað í keppnishlaupum.
Fri, 06 Dec 2024 - 1h 27min - 20 - Áratugir af ultra - feðgin Þóra Bríet og Pétur Helgason
Pétur Helgason er flestum Íslendingum kunnugur sem maðurinn í kraftgallanum með gjallarhornið í Powerade hlaupunum. Hann hefur haldið hlaupið sleitulaust síðan um aldamótin og á sjálfur 30 ára hlaupaferil, með sub3 maraþon, fyrsta Laugaveginn (1997) og Ironman undir beltinu.
Dóttir hans, Þóra Bríet, horfði upp á föður sinn smitast af langhlaupabakteríunni og er sjálf komin í ultra vegalengdirnar, en þau eru einu feðgin í Félagi 100km hlaupara. Þóra lauk nýverið 100 mílna hlaupi í Svíþjóð og að sjálfsögðu lét Pétur sig ekki vanta í hlaupið.
Fri, 29 Nov 2024 - 1h 30min - 19 - 19. Hvað borða ég til að bæta mig? Næring fyrir æfingar og keppnir - Lilja hjá NutreleatFri, 22 Nov 2024 - 1h 24min
- 18 - 18. Andlega tilbúin í IronMan... og krabbamein - Kata Páls
Kata Páls áttaði sig á því að hún yrði að vera andlega sterk ef hún ætlaði sér að komast til Kona á heimsmeistaramótið í IronMan. Langar vetraræfingar á Vestfjörðum og 'heilaæfingar' alla morgna klukkan 5 bjuggu til það sterkan haus að þegar hún greindist óvænt með lungnakrabbamein árið 2019 var hún andlega tilbúin að slátra því verkefni - og járnkarli í kjölfarið, með hálft annað lungað fjarlægt.
Kata segir okkur frá aganum sem fylgir því að vinna í frystihúsi sem barn, æfingarnar á Bolungarvík, hugarfarið fyrir íþróttina, hörðustu íþróttamenn í heimi, 1500km hjólakeppni yfir Malasíu og margt fleira skemmtilegt.
Fri, 15 Nov 2024 - 1h 39min - 17 - 17. Siggi P - Íslandsmet í maraþoni í 26 ár
Siggi P er stórt númer og brautryðjandi í íslenskri hlaupasögu. Flestum er kunnugt um Íslandsmetið hans í maraþoni, sem stóð í 26 ár áður en Kári Steinn sló það, en færri þekkja leiðina sem lá að árangri hans í langhlaupum.
Við ræðum hvaða eiginleika langhlauparar þurfa að hafa, fókusinn sem hann hafði á árangur í íþróttinni, tenging afreksíþrótta við sveitalífið, fyrirmyndir, hvað hann hefði gert öðruvísi til að lengja í ferlinum (sem lauk fyrir þrítugt), æfingabúðir með Gunna Palla og Jóni Diðrikssyni og greiningu á hlaupasenunni í dag.
Fri, 08 Nov 2024 - 1h 52min
Podcast simili a <nome>
Wife, Mother, Slave, Sex Goddess A. Heyward
Barangay Love Stories Barangay LS 97.1 Manila | GMA Network Inc.
Good Bad Billionaire BBC World Service
Cyprian Majcher Cyprian Majcher
Die Nachrichten Deutschlandfunk
Podcast Wojenne Historie Historia II wojny światowej
Forensic Files HLN
Nowenna pompejańska. Świadectwa https://pompejanska.krolowa.pl/
ILLVERK Podcast Inga Kristjáns
الشيخ أحمد العجمي islami
True Crime Documentary Justin Kandell Network
WojewódzkiKędzierski Kuba Wojewódzki, Piotr Kędzierski
Dear MOR MOR Entertainment
Snapped: Women Who Murder Oxygen
Papa Dudut Stories Papa Dudut | TAGM Marketing Solutions Inc.
DUDEK o polityce prof. Antoni Dudek i Super Exspress
Przemek Górczyk Podcast Przemek Górczyk
Sceny zbrodni RMF FM
Í ljósi sögunnar RÚV
Þetta nútímalíf RÚV Hlaðvörp
Skuggavaldið skuggavaldid
Money News Tapt Media
Żurnalista - Rozmowy bez kompromisów zurnalistapl
العلم والإيمان - د. مصطفى محمود علم ينتفع يه
