Filtra per genere

Sjöan

Sjöan

Sjöan

Sjöan er fótboltahlaðvarp Jóhanns Berg Guðmundssonar og Harðar Snævars Jónssonar.

Jóhann Berg er fyrrum landsliðsmaður Íslands með yfir 100 A-leiki og hefur spilað meðal annars með AZ, Charlton og Burnley. Hörður Snævar er ritstjóri 433.is og einn þekktasti umræðumaður íslensks fótbolta.

Saman fara þeir yfir helstu deildir í evrópu sem og aðrar deildir sem stundum gleymast. Fá íslenska atvinnumenn til að útskýra sína deild, daglegt líf og það sem gerist á og utan vallar. Þegar það á við er stutt stopp heima: Besta deildin og landsliðið.

Nafnið kemur af númerinu 7 sem Jóhann Berg hefur borið í áratug. Hlaðvarpið er samt tvíeyki: Jói opnar dyrnar, Hörður heldur umræðunni skarpri.

Nýr þáttur vikulega á Spotify, Apple Podcasts og YouTube.


4 - Sjöan - Gylfi Sig vill alltaf meira og hvað gerist þegar þjálfari er rekinn?
0:00 / 0:00
1x
  • 4 - Sjöan - Gylfi Sig vill alltaf meira og hvað gerist þegar þjálfari er rekinn?

    Gylfi Þór mætir í þáttinn og fer yfir allt það helsta. Förum yfir ástandið hjá Manchester United, skoðum Liverpool og ræðum margt fleira. Þjálfaramálin á Íslandi aðeins skoðuð.

    Mon, 26 Oct 2026 - 1h 05min
  • 3 - Sjöan - Alfreð Finnboga gestur - Toddi gat ráðið Freysa

    Alfreð Finnbogason er fyrsti gestur Sjöunnar, hann fer ítarlega yfir málin. Þá er farið yfir enska boltann og aðeins kíkt í þá Bestu.

    Sjöan er í boði Lengjunnar, Peroni 0,0 prósent og Númereitt.is

    Mon, 19 Oct 2026 - 1h 01min
  • 2 - Sjöan - Er í lagi að landsliðsmenn helli í sig?

    Íslenskir landsliðsmenn gómaðir á barnum, Manchester City og stóri dómur JBG yfir því máli. AskBigBerg og fleira gott í þessum öðrum þætti af Sjöunni.

    Mon, 12 Oct 2026 - 1h 08min
  • 1 - Sjöan - Skórnir á hilluna

    Fyrsti þáttur af Sjöunni - Jóhann Berg Guðmundsson hefur lagt skóna á hilluna. Jóhann mun í vetur fræða íslenskt knattspyrnuáhugafólk um leikinn sem allir elska. 102 landsleikir, spilaði á Íslandi, Hollandi, Englandi og í sandinum.

    Thu, 08 Oct 2026 - 59min