Filtra per genere

Viltu finna milljón?

Viltu finna milljón?

viltufinnamilljon

Viltu finna milljón eru fjármála- og fræðsluþættir á Stöð 2. Þáttarstjórnendur eru Hrefna og Arnar Þór Ólafsson.

14 - 7.Þáttur - Keppendur leysa frá skjóðunni (Höskuldarviðvörun)
0:00 / 0:00
1x
  • 14 - 7.Þáttur - Keppendur leysa frá skjóðunni (Höskuldarviðvörun)

    Kæru hlustendur! Þá er það lokaþátturinn og úrslitin eru ljós! Við tökum keppendur tali og förum yfir farinn veg. Við viljum nýta tækifærið og þakka kærlega fyrir áhorf og áheyrn þessa þáttaröðina. Þangað til næst!

    Thu, 05 Mar 2026
  • 13 - 6.Þáttur - Bergur Ebbi ræðir peninga og framtíðina

    Þessi þáttur var aldrei að fara að verða neitt annað en stórkostlegur með Bergi Ebba í slagtogi! Bergur er mikill hugsuður og leggur fram áhugaverðar pælingar í þessum þætti um neyslu íslendinga, gervigreind og framtíð peninga eins og þeir leggja sig. Ekki voga ykkur að missa af þessum! Þátturinn er í boði:Aukakrónur BónusAurbjörgFélag lykilmannaEignaumsjón

    Wed, 25 Feb 2026
  • 12 - 5.Þáttur Gerður í Blush: "Aldrei ákveða fyrirfram að fólk sé ekki tilbúið að borga fyrir eitthvað!"

    Við fengum til okkar hana Gerði Huld í mjög svo innblástursríkt spjall um tekjur, rekstur og hugarfar. Hún hefur lifað tímana tvenna þegar að kemur að rekstri en hún stofnaði sitt aðeins 21 árs og hefur ekki litið um öxl síðan. Ef þú vilt fá vikuskammt af innblæstri á rúmum klukkutíma, þá er þetta þáttur fyrir þig! Þátturinn er í boði:Aukakrónur BónusAurbjörgFélag lykilmannaEignaumsjón

    Thu, 19 Feb 2026
  • 11 - 4. Þáttur - Fasteignamarkaður ásamt Páli Pálssyni og Björku Pálsdóttur

    Í þætti dagsins tökum við fyrir fasteigna- og lánamarkaðinn eins og hann leggur sig með tveimur sérfræðingum. Annar þeirra er hlustendum góðkunnur en Páll Pállson eigandi Pálsson fasteignasölu mætir til okkar annað árið í röð en ásamt honum fengum við til okkar hana Björk Pálsdóttur íbúðarlánaráðgjafa. Áhugavert spjall við fólk sem þekkir leikinn þegar að kemur að fasteignum!  Þátturinn er í boði:Aukakrónur BónusAurbjörgFélag lykilmannaEignaumsjón

    Thu, 12 Feb 2026
  • 10 - 3.þáttur - Georg Lúðvíksson: "Fjármálahegðun og erfðir eru nátengd fyrirbæri"

    Við fengum til okkar einn helsta sérfræðing landsins í persónulegum fjármálum, hann Georg Lúðvíksson, en í lok síðasta árs kom út bókin Sálfræði peninganna í þýðingu hans og Kristrúnar Tinnu Gunnarsdóttur. Georg hefur komið víða við og stofnaði meðal annars Meniga, en er nú að hefja nýja og spennandi vegferð Spesía, sem kynnt verður til leiks á næstu misserum. Fróðlegur og upplýsandi þáttur að vanda þennan fimmtudaginn og að sjálfsögðu hvetjum við alla sem hafa áhuga á heilbrigðum peningavenjum að leggja við hlustir! Þátturinn er í boði:Aukakrónur BónusAurbjörgFélag lykilmannaEignaumsjón

    Thu, 05 Feb 2026
Mostra altri episodi