246 - Símasex
Strákarnir hringja grallaralega í símadömu og reyna að fá að tala við hana, djók, það er ekki lengur í boði, því miður, en af hverju? Hvaða númer voru í boði, hvað nákvæmlega var í boði? Sjáum til.
Thu, 15 Oct 2026
245 - Amma Lo-Fi
Strákarnir tala um Sigríði Níelsdóttur og hennar tónlist, tala reyndar líka um Bingo Dorthe en það er allt önnur saga. Af hverju var Sigríður kölluð Amma Lo-Fi? Hlustið og komist að því. K bæ
Wed, 28 Jan 2026
244 - Bruninn í Skildi
Sorry þungur þáttur, en mikilvægur. Bruninn í Skildi er einn mannskæðasti eldsvoði á Íslandi á 20. öldinni. Tékkið á reykskynjurum heima hjá ykkur og þó það sé kósy passið að slökkva á öllum kertum áður en farið er að sofa.
Wed, 07 Jan 2026
243 - Jólabjór, Julebrygg og J-Dag (kannski Ora baunir líka).
Gleðileg jól! Jólakarlar ræða jólahluti og drekka jóla(hvít)öl á meðan! Sumir myndu segja að Julebrygg Tuborgs sé ekki jólabjór Íslendinga, en þær manneskjur væru að ljúga að sjálfum sér… í bili.
Wed, 24 Dec 2025
242 - Gamlar jólahefðir
Hó hó hó! Hvaða myndir skerið þið í laufabrauðið? Hér er heill þáttur stútfullur af gömlum íslenskum jólahefðum.
Wed, 10 Dec 2025
241 - Sæmundur Hólm
Enn einn kynlegi kvisturinn... en við elskum kynlega kvista er það ekki? Sæmundur Hólm, við megum vera mjög þakklát fyrir honum, Sóli Hólm er líka alveg fínn sko! En þetta er Sæmundur Hólm!
Sun, 30 Nov 2025
240 - Gíslaklettar
Trúir þú á álfa? En að álfar geti framið morð? Fylgist með í næsta þætti af CSI: Elfe Edition á Skjá Einum!
Wed, 12 Nov 2025
239 - Íslenzk fyndni
Villi las sig til um allskonar grín, náði samt ekki að skrifa mikið niður, þáttur eftir minni, smá old skool, smá gerður í mikla vinnutörn. Staðreyndirnar á afslætti á forlagid.is með kóðanum jaokhladvarp
Sat, 08 Nov 2025
238 - Hallbjörg Bjarnadóttir
Eru þið nokkuð með rödd sem spannar fjórar áttundir? Nei? Það var hún Hallbjörg Bjarnadóttir með! Shiiiii
Wed, 15 Oct 2025
237 - Heklína
Í þessum þætti fer Villi í lélegasta drag íslandssögunnar, enda ekki hver sem er sem getur gert þetta bara sísvona, svo er drag ekki bara að "setja á sig meik". Villi segir Fjölni frá bestu dragdrottningu Íslandssögunnar. Það er mikið í þessum þætti, gleði, sorg, og allt inn á milli. Heklína, we love you.
Wed, 01 Oct 2025
236 - Herbert Guðmundsson
Í þessum þætti Villi and Fjölnir can't walk away from hearing all about Herbert Guðmundsson. En ætli Hebbi hlusti á Já OK? Hebbi?! Svaraðu...kallainu...frá mééééér!
Wed, 17 Sep 2025
235 - Hannes Hafstein
Strákarnir mæta aftur! Að þessu sinni eru þeir að reyna sitt besta til að halda sig á dagskrá, sem þýðir að héðan í frá kemur brakandi ferskur þáttur aðra hverja viku! Við skoðum líf Hannesar Hafsteinar, um leið og við tökum stöðutjékk á hvor öðrum líka.
Kóði hjá Forlaginu : jaokhladvarp
Wed, 03 Sep 2025
234 - Hannes Boy aka Hannes Beggólín
Hannes Boy er geggjaður veitingastaður á Siglufirði, en hvaðan kemur nafnið? Fylgisti með í næsta þætti...nei djók í þessum þætti.
Sat, 05 Apr 2025
233 - Falun Gong
Wed, 12 Mar 2025
232 - Sæfinnur Vatnsberi
Kallaður Sæfinnur með sextán skó, við köllum hann vatnsbera frekar því það var vinnan hans. Maður sem beið eftir því alla sína ævi að fá að byrja að lifa.
Wed, 26 Feb 2025
231 - Guðlast og Spaugstofan
Er maður gamall því manni finnst Spaugstofan aftur fyndin eða var hún alltaf fyndin og maður fór í gegnum tímabil? Bara pælingar. Heyrumst.
Wed, 19 Feb 2025
230 - Þegar Ísland vildi kaupa Grænland
Jú krakkar mínir það var ekki bara Bandaríkin sem vildi kaupa Grænland, heldur Íslendingar líka. Sjálfur vil ég bara kaupa mér flugmiða til Tene. Fátt íslenskara en að fljúga til Tene. Væri samt gaman að heimsækja Grænland.
Wed, 05 Feb 2025
229 - Þvottabirnir á Íslandi
Þvottabirnir eru hálfbirnir. Villi er hálfur Íslendingur, en hann er samt Íslendingur. Fjölnir er hálft legend og hálfur meistari, en samt 100% kóngur? Hversu gott er það? Villi er að skrifa þennan texta bsþsáh (bara svo það sé á hreinu) ekki Fjölnir.
Wed, 29 Jan 2025
228 - Saga flugelda á Íslandi
Hvernig skrifar maður flugeldahljóð? vííííííjjjúúúúúúúuuuum....BANG!
Wed, 18 Dec 2024
227 - Gleymdu jólasveinarnir
Villi og Fjölnir eru auðvitað líka jólasveinar en það eru MÖRG sem hafa gleymst í gegnum tíðina. Hér förum við yfir þau öll, hverja má bæta við á listann? Það er spurning... Kannski litla-pung.
Wed, 11 Dec 2024
226 - Strompaslys
Desemberuppbót? Hvað er það? Meiri pening? Kíkið á vr.is fyrir frekari upplýsingar. Þessi þáttur er í boði VR.
Ef þið viljið styrkja okkur með kaffibollum þá er slóðin hér: https://buymeacoffee.com/jaok
Annars er þessi þáttur um slys í strompum...á íslandi...
Wed, 04 Dec 2024
225 - Steina Vasulka
Kaupa kaffi : https://buymeacoffee.com/jaok
Þetta er hljóð en hér fjöllum við mest um vídeó, vídeólist. Did vídeolist kill the podcast star? Það er stóra spurning, eða nei samt ekki. Við spjöllum allavega við Maríu Guðjohnsen (@mariagudjohnsen) um hina stórmerkilegu Steinu Vasulka.
Wed, 27 Nov 2024
224 - Sirry Steffen
Hi. Villi and Fjölnir take a trip though the time machine and all the way to Hollywood just to meet the first Icelandic woman to work as an actress on the big screen. That's impressive! Hope you know that! Does anybody read this??
Thu, 21 Nov 2024
223 - Flámæli
Kaupa kaffi: https://buymeacoffee.com/jaok
Í þessum þæti tala strákarnir um akveðna hluti sem gaman er að. Kannski fá þeir sér sker ef engin flöga lendir á því. Það er aldrei að vita.
Fri, 15 Nov 2024
222 - Hin ungu fórnarlömb hernámsins.
Þessi þáttur er kannski ekki mikið sprell, en þannig er lífið stundum og þannig umræðuefni þarf að taka fyrir af og til, en það er sprellað fyrir og eftir umræðuefnið er tekið.
Wed, 06 Nov 2024
221 - Hrekkjavöku bland í poka Part 2 (Apótek á Íslandi)
Saga Apóteka á Íslandi er rúmlega 260 ára gömul og húsakynni fyrsta apóteksins á Íslandi munu helst hafa líkst fangaklefa frá miðöldum.
Villi og Fjölnir fara yfir söguna og skoða margar hryllilegar sögur sem fylgt hafa lyfjasölum Íslands.
Wed, 30 Oct 2024
220 - Hrekkjavöku bland í poka Part 1 (Spítalar á Íslandi)
https://buymeacoffee.com/jaok
Þegar talað er um reimleika er oftar en ekki verið að vitna í sögur sem tilheyra stöðum sem geyma mikil áföll og erfiði, þó ekki sé minnst á sjálfan dauðan. Slíkir staðir eru allt um kringum okkur, en þó eru nokkrir sem eru ríkari slíkum sögum en aðrir.
Wed, 23 Oct 2024
219 - VIP Partý
Kaupa köff : buymeacoffee.com/Jaok
Myndu Villi og Fjölnir fá samviskubit yfir því að vera ekki boðnir í VIP Partý á Replay? Myndu þeir reyna að komast inn eftir hálf tólf? Hvaða myndi Geiri Goldfinger segja við þá? Villi og Fjölnir ræða menninguna frá 2011, en hvaða menning er það?
Wed, 16 Oct 2024
218 - Kallarnir
Velkomin í Metróskólann þar sem við kennum Villa og Fjölni að vera hörkufolar í áfangakerfi.
Wed, 09 Oct 2024
217 - Nonni
Nonni var merkilegur maður. Var þessi þáttur kannski of stór biti fyrir Villa? Vonandi ekki. Hann vonar það allavega ekki. Vonandi hefur fólk gaman að þessum þætti. Við skulum vera góð við Villa <3 Takk fyrir leynikaffið Mr. Big!
Wed, 02 Oct 2024
216 - Nágrannaerjur
Hver hefur lent í því að vera komin í góða íbúð eftir langa leit, allt virðist vera að ganga upp í lífinu en svo allt í einu færðu kvörtun frá nágrana "engin læti eftir kl18!" og þú fattar "ónei, ég á erfiða nágrana". Jú margir íslendingar. En leiðindin ganga þó stundum í báðar áttir og enda jafnvel með ofbeldi og dómstólum. Og já talandi um það þá fór Fjölnir smá að tala um eitthvað svona lögmanna dæmi í lok þáttarins og hann skildi ekki neitt sjálfur! Þannig já...verum góð við Fjölni <3
Wed, 25 Sep 2024
215 - Forræðisdeila Sophiu og Halims
Kaupið okkur kaffi :
buymeacoffee.com/Jaok
Í þessum þætti reyna Villi og Fjölnir að skilja dómstóla Tyrklands, en fyrst og fremst eru þeir mjög kátir að sjá hvorn annan í stúdíóinu eftir langan aðskilnað.
Wed, 18 Sep 2024
214 - Sailesh á Íslandi (live þáttur)
Þú finnur hvernig augun verða þyngri og þyngri þar sem dáleiðslumáttur Já OK dregur þig dýpra og dýpra inn í dáleiðslu ástand. Þú ert villisvín VILLISVÍN! Þessi þáttur er um dávaldinn Sailesh og þegar hann kom til Íslands og tryllti líðinn bókstaflega! Minnum á Umræðugrúbbu Já OK á facebook þar sem hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni.
Wed, 11 Sep 2024
213 - Allt í grænum sjó! (live þáttur)
Þessi þáttur var tekinn upp í sumar, þegar fólk var enn vongott um að framundan væri betra veður. Það kom ekki, en læv showið kom og það var algjör stemning! Strákarnir sátu sveittir í Háskólabíóhitanum og reyndu að fræða sitt besta fólk um eina frægustu revíu Íslandssögunnar.
Wed, 04 Sep 2024
212 - Fjölnismenn (Live þáttur)
Nú vil ég ekki þetta orðlengjandi vera, heldur Yður guði bífalandi, bréfinu slúttandi og því
lokandi, item utan á það skrifandi, mín stígvél upp á mig dragandi, í minn "kjól" farandi
(snústóbakslitaðan verandi), mína skikkju eða yfirhöfn yfir mig látandi, minn hatt á mitt
höfuð setjandi, lykilinn upp úr mínum vasa takandi, hurðinni upp ljúkandi, út úr dyrunum
gangandi, hurðina síðan aftur látandi, lyklinum þar í stingandi og honum við snúandi,
dyrunum þannig læsandi, oft nefndan lykil síðan út úr skráargatinu dragandi, niður af
öðrum sal labbandi, og út úr þessu húsi - Skindergaden Nr. 24, Uhrmager Kyhls Gård -
gangandi, í hverju húsi égg til þessa mánaðar loka er væntanlegur verandi, en nú í burtu
branandi og niður á pósthús farandi, bréfunum þar skilandi og eftir það heim til minna
híbýla snautandi, Yðar þjónustureiðubúinn vinur verandi,
Konráð Gíslason heitandi.
Wed, 26 Jun 2024
211 - Charles Manson í síldinni
Umræðuefnið byrjar á 14:04 - Villi, Fjölnir og Tinna ræða þjóðarmálin á milli sín í þessum rammpólitíska þætti, en þar eru stóru málin rædd. Orkupakkinn, auðlindir og nýju airbnb lögin.
Wed, 19 Jun 2024
210 - Álögin í Málmey
Strákarnir sjá flott í hús í sínum draumum, fjölskyldur kalla á þá... "talið um okkur" segja þær, "segið okkar sögu". Villi hlustar, og svarar kallinu.
Wed, 12 Jun 2024
209 - Björn "ríki" Þorleifsson
Umræðuefni þáttarins byrjar á 17:32.
Þessi nýr fídus er fyrir þá sem eru (skiljanlega) óþolinmóð yfir því að þátturinn byrji.
Við fjöllum um alveg gammel gammel dag rifrildi og rugli.
Wed, 05 Jun 2024
208 - Íslenska neftóbakið
Tóbakið hreint, fæ gjörla ég greint, gjörir höfðinu létta, skerpir vel sýn, svefnbót er fín, sorg hugarins dvín. Sannprófað hefi ég þetta.
Tóbak nef neyðir, náttúru eyðir, upp augun breiðir, út hrákann leiðir, minnisafl meiðir, máttleysi greiðir og yfirlit eyðir.
- Hallgrímur Pétursson
Wed, 29 May 2024
207 - S.Í.B.S kubbarnir
Í þessum þætti fara Villi og Fjölnir í Legoland Billund og velta fyrir sér hvort það væri ekki skrýtið að búa til S.Í.B.S-land út á landi.
Wed, 22 May 2024
206 - Óeirðirnar á Austurvelli
Óður kommúnistaskríll eða landráð framin í skjóli ofbeldis?
Wed, 15 May 2024
205 - Charles Thorson
Villi og Fjölnir og 5 aðrir dvergar fara og rannsaka slóðir Vesturfarans Charles Thorson, hver var þessi maður, í stuttu máli?
Pun not intended
Wed, 08 May 2024
204 - Draugurinn "að sunnan"
Voru ódæðisverkin eftir draug eða voru þau af mannavöldum? Við viljum benda á að í þessum þætti verður talað um gróft ofbeldi gegn dýrum.
Wed, 01 May 2024
203 - Herfylkingin
Villi og Fjölnir fá ný vopn, derru með rauðan punkt fyrir ofan derið og fara síðan á æfingu með alla fellana sína undir stjórn Kaptein Kohls. Sá maður er auðvitað danskur fýr og mjög annt um lýðheilsu okkar, og það kunna þeir vel að meta!
Wed, 24 Apr 2024
202 - Þáttur 200! ft. Berglind Ósk og Kilo
Já OK! á afmæli! Þáttur 200! Og með okkur eru skemmtilegir gestir að spjalla um daginn inn og daginn út. Förum aðeins á upprunaslóðir Villa og Fjölnis en annars bara glens og grín!
Wed, 17 Apr 2024
201 - Gísli á Uppsölum
Villi sagði aðeins of oft Gísli í Uppsölum því hann ruglaðist og hélt það ætti að segja það þannig, hann er smá lítill í sér yfir því þannig ekkert vera að minnast á það við hann eða í grúppuni. Hann gengst við þau mistök.
Wed, 10 Apr 2024
200 - Skrítnar íslenskar mataruppskriftir
Éttu mig! Uppskrift: 5 Egg, 75gr Sítróna, 250ml Rjómi, 125gr Sykur, 125ml Vatn, 24gr Matarlím.
Aðferð fyrir Éttu mig! er í þættinum. Njótið! Bon Appetit!
Wed, 03 Apr 2024
199 - Tónlistarbland í poka
Það er of seint núna fyrir Villa og Fjölni að stofna barnahljómsveit, en það er kannski alls ekki of seint fyrir þá að taka ábreiðu af ítölsku lagi... eða hvað?
Wed, 27 Mar 2024
198 - Live and Reloaded
Fyrri live þátturinn okkar í Borgarleikhúsinu. Verði ykkur að því! Um Jörund Hundadagakonung
Wed, 20 Mar 2024
197 - Klaustursmálið
Í þessum þættir fara Fjölnir og Villi á bar og tala um alsskonar hluti, þeir eru í 36 tíma "blackouti" og munu ekki muna eftir neinu. Það sem þeir vita þó ekki er að það er upptökutæki þarna nálægt.
Wed, 13 Mar 2024
196 - the Björk stalker
Þessi þáttur er um mann sem var með mikil andleg vandamál. Við vörum við umfjöllunarefninu.
Wed, 06 Mar 2024
195 - Megrunarkúrar á Íslandi
Í þessum þætti fara Fjölnir og Villi yfir alsskonar megrunarkúra, þeir vita ekki mikið en eitt vita þeir, þeir virka sjaldan til lengdar.
Hægt að syðja Já OK hér : https://www.buymeacoffee.com/jaok
Wed, 28 Feb 2024
194 - Stripp á Íslandi: Pan-hópurinn (18+)
Já OK hefur opnað hjálpartækjaverslun ástarlífsins. Hvað má ykkur? Við eigum til Ruddann, Ótemjuna, Didda hrekkjótta, Tortímandann, Kjaftakerlinguna, Þroskahjálp, Broddgöltinn, Bragðarefinn, Limakrúnuna, Frikka fljóta, Skeiðvarginn og margt margt fleira.
Wed, 21 Feb 2024
193 - Frakkarnir í Surtsey
Í þessum þætti fara Villi og Fjölnir í Surtsey og reyna að detta í slag við þrjá frakka sem halda þau séu eitthvað betri en við, bara því þeir mæta með uppgjafarfánann á glænýja eyju? Frekar myndum við kalla þessa eyju Squirtey frekar en einhverntíman Frakkaey. Aldrei!
Miðar fyrir Já OK Live! fást hér : https://tix.is/is/event/16745/ja-ok-live-/
Wed, 14 Feb 2024
192 - Issei Sagawa
Árið er 1998 fyrir utan Næpuna í Reykjavík. "Afsakið getur þú nokkuð tekið mynd af okkur fyrir utan þetta fallega hús? Ég er nefnilega frægur og er í smá fríi á Íslandi. Fyrir hvað spyrð þú? Fyrir að borða mannakjöt!"
Wed, 31 Jan 2024
191 - Lífsdjúsinn frá Kína
Villi og Stefán tala um djúsinn góða frá Kína (eða hvað) sem Íslendingar voru að stúta sig þarna um aldamótin. Í gamla daga var það lífsdjús, í nútíma daga er það hvað… sykurlaus orkudrykkur?
Wed, 29 Nov 2023
190 - Hringt í Bush
Villi og Stefán mæta í Stúdíó Harmur og spjalla þar, Egill duglegi mætir og hjálpar þeim. Ef þeir gætu hringt í einhvern, þá myndu þeir auðvitað hringja í einhvern meistara, en annar gaur sem þau spjalla um, hringdi í Bush... næstum því.
Wed, 22 Nov 2023
189 - Kynlíf með álfum
Í þessum þætti fara Fjölnir og Villi út í Heiðmörk og hitta álf, hann veit nákvæmlega hvað þeir vilja, hann veit líka veit hvað þeir vilja en vita ekki að þeir vilja. Heiðmörkin gefur.
Wed, 15 Nov 2023
188 - Opinberun Hannesar
Í þessum þætti ætla strákarnir að gera 10 milljóna króna þátt en fá síðan líka styrk uppá 22 millur og síðan styrk líka upp á 10 millur og síðan annan styrk, þannig more money in the bank, en hvaða bank? Ekki gleyma að kaupa (bara ef þið viljið) handa okkur kaffi á https://www.buymeacoffee.com/jaok
Wed, 25 Oct 2023
187 - Íslenskt hryðjuverk eða náttúruvernd?
Villi og Fjölnir eru staddir í bílalest á leið í átt að Akureyri til að mótmæla Laxárvikrjun. Burt með stífluna eða það mun skapast hættuástand í héraði, sem leitt getur til óhappa, sem vér getum ekki borið ábyrgð á...djók
Wed, 18 Oct 2023
186 - Eau de Portugal
Í þessum þætti ætla einn portúgalinn íslendingur og einn íslenskur portúgali að tala um að vera með portúgala í vasanum, en hvað er það? Það er spurning. Það er líka spurning hvort strákarnir ættu að byrja að vera með sjóðandi heit atriði í heimahúsum.
Wed, 11 Oct 2023
185 - Sundafrek íslenskra dýra
Villi og Fjölnir eru mættir í boxhringinn. Fjölnir er team beljur, en Villi team rollur. Hvor þeirra mun vinna í sundafrekum dýra? Nei ég segi svona! En það er allavegana mikið talað um nautgripi í þessum þætti.
Wed, 04 Oct 2023
184 - Rasmus Rask
Kannast þú við nafnið Rasmus Rask? Fjölnir vill ekki kannast við nafnið en Villi kannaðist við það, hvaðan? Það veit hann ekki, en hann kannaðist við nafnið, og ef maður kannast við nafnið er vert að kanna hvaða manneskja það er sem maður kannast við.
Wed, 27 Sep 2023
183 - Reimleikinn á Höfða
Í þessum þætti tala strákarnir um hvaðan draugagangurinn á Höfða kemur eða í öðrum orðum um Sólborgarmálið. Smá spooky, smá mistería, smá grín. Góður Já OK kokteill!
Wed, 20 Sep 2023
182 - White Top ævintýrið
Í þessum þætti setjast strákarnir niður og súpa á ólöglegum bjór frá Akureyri. Hann er frekar dýr, en hann er allavega góður! Samt ekki.
Wed, 13 Sep 2023
181 - Fangar og fangelsi
Fjölnir og Villi tala um fanga og fangelsi...þeir vilja samt ekki fara sjálfir í fangelsi...en það gæti gerst einn daginn...ef þeir prakara yfir sig...
Wed, 06 Sep 2023
180 - Kynjaskepnur (seinni hluti)
Umræðan um kynjaskepnur heldur áfram. Hvort segir maður fjörulalli eða fjörulalli? Hvað eru fjörulalli og eiturgedda að gera saman?
Wed, 30 Aug 2023
179 - Kynjaskepnur (fyrri hluti)
Kynjaskepnur eru ekki kynæsandi skepnur. Þetta eru skepnur samt, þetta eru algjör kvikindi, sum ógeðsleg, sum krúttleg, sum steikt, en öll íslensk.
Wed, 23 Aug 2023
178 - Íslenski "cult" leiðtoginn
Í þessum þætti fara Villi og Fjölnir í gegnum viðamikla ævi manns sem lítur í fyrstu út eins og hann hafi lifað lífi sex einstaklinga. Gæti verið að hann sé að ljúga? Hvað er Fight Club for Children? Hvað er The Modern Mystery School? Hvað er eiginlega í gangi?
Wed, 16 Aug 2023
177 - Skurðlæknir Oppenheimers
Í þessum þætti fara Fjölnir og Villi stuttlega yfir ævi merkilegs Íslendings, sem fór til New York, og varð helvíti stórt nafn þar. Hversu margir faðmar eru á milli Íslands og New York? Hversu langur tími eru 100 ár? Heimspeki og heimskspeki í þætti dagsins.
Wed, 09 Aug 2023
176 - Hvalfjarðargangaganga (feat. Eygló Höskuldsdóttir Viborg)
Skaginn bíður góðann daginn! Í þessum þætti fá Villi og Fjölnir góðann gest, en það er enginn annar en hún Eygló Höskuldsdóttir Viborg, einnig þekkt sem Alter Eygló. Þau hefja göngu sína við norðurmunna hvalfjarðarganganna ásamt fjölda fólks sem ákváðu að ganga í gegnum göngin árið 1998.
Wed, 02 Aug 2023
175 - Ávaxtasjúklingar (feat. Kolbeinn Ari Hauksson)
Í þessum þætti fá Villi og Fjölnir annan gest til sín, að þessu sinni er það sagnfræðingurinn, grunnskólakennarinn og æskuvinur Villa, hann Kolbeinn Ari Hauksson. Það verður talað um alsskonar ávexti, það verður talað um alsskonar pólitík, og það verður talað um alsskonar bull, enda er það hin klassíski Já OK þáttur, að fræða og bulla.
Wed, 26 Jul 2023
174 - Fyrstur manna til að ganga hringinn (feat. Palli)
Í þessum þætti ætlar Fjölnir að ganga hringinn í kringum Ísland, ásamt honum Palla. En þeir eru þó ekki fyrstir til að fá þá flugu í hausinn. Heldur feta þeir í fótspor Reyni Péturs, fyrsti Íslendingurinn til að ganga hringinn í kringum Ísland.
Tue, 18 Jul 2023
173 - Hjálpum þeim/Help Them
Í þessum þætti tala Villi og Fjölnir um góðgerðalög, hvað lætur góðgeralag hljóma eins og góðgerðalag? Fara allir peningar í eitt nákvæmt málefni eða alsskonar? Væri "Live Aid" á íslensku "Hjálp í beinni"?
Wed, 12 Jul 2023
172 - Dillibossaauglýsingarnar
Þessi þáttur er ekki kúluvarp, þessi þáttur er ekki andvarp, þessi þáttur er ekki æðavarp, þessi þáttur er hinsvegar hlaðvarp og algjört fever dream, líkt og "dillibossaauglýsingarnar" voru.
Wed, 05 Jul 2023
171 - Jamestown strandið
1881, riiiisastór tómur bátur strandar á Íslandi. Eru það góðar fréttir fyrir Íslendinga? Hverjir ættu að vera á þessum bát? Hvað gerðist? Hvað er ballasti? Hvað er einn faðmur stór?
Wed, 28 Jun 2023
170 - Háfjallasól
Ef þú ert að lesa þetta eftir að þú hlustaðir á þáttinn, BUSTED! hahaha! En allavega þessi þáttur er um Háfjallasól og tan.
Wed, 21 Jun 2023
169 - Bland í poka með Villa 2
Villi reynir sóldasaður að kenna Fjölni á hitt og þetta, Þrettándaógleðin eða Þrettándalætin og líka íslenskur eigandi á Premier League liði og svo líka sjónvarpslausir fimmtudagar. Les einhver þennan texta? Má ég pliiiis fá keks.
Wed, 14 Jun 2023
168 - Laddi lengi lifi
Í þessum þætti fara strákarnir ekkert voða langt aftur í tímann, heldur bara til ársins 2018. En þá fékk íslenska þjóðin fyrir hjartað þegar ákveðin mynd var deilt á facebook af einum ástkærasta grínista þjóðarinnar.
Tue, 06 Jun 2023
167 - Loftárásirnar á Seyðisfirði
Fólk sem fer í reglulegar Wikipedia ferðir vissu kannski af þessu, en ekki vissu Villi og Fjölnir að þýskar flugvélar hefðu flogið yfir Seyðisfjörð. Vissu þið þetta? Því ekki vissum við það.
Wed, 31 May 2023
166 - Náttfari
Í þessum þætti rifja Villi og Fjölnir upp sögu Náttfara sem lét greipar sópa um eignir borgarbúa sumarið 1976. Lengi fram eftir sumri stóð lögreglan gjörsamlega ráðþrota gagnvart þessum "Skugga" næturinnar.
Wed, 24 May 2023
165 - Iceland: The Movie
Í þetta skiptið setjast Villi og Fjölnir fyrir framan skjáinn og horfa á eina góða Hollywood ræmu. "Hver er myndin?" spyrji þið. Jú auðvitað Iceland: The Movie. "En um hvað er myndin?" spyrji þið. Jú auðvitað um hermanninn James Murfin sem er ekki kunnugur íslenskum siðum. Þegar hann daðrar við Katinu, lítur íslenska fjölskyldan hennar á gjörðir hans sem hjónabandstillögu. Þetta kemur James í afar slæma stöðu þar sem hann vill ekkert með hjónaband gera. Til að koma sér úr klípunni fær James vin sinn til að hjálpa sér. Gangi honum vel!
Tue, 16 May 2023
164 - Fyrsta Eurovision lag Íslands
Villi Neto og Fjölnir Gísla fara yfir fyrsta Eurovision-lag Íslands, Gleðibankinn, eða Bank of Fun eins og það fékk að heita á ensku. Þeir fara einnig léttilega yfir sögu Eurovisions á Íslandi og reyna að koma með réttar staðreyndir svona af og til.
Wed, 10 May 2023
163 - Góðkunningi lögreglunnar með stóru g-i
Í þessum þætti skoða Villi Neto og Fjölnir Gísla líf manns sem þeim þykir nú bara ágætlega vænt um. Hann var smáglæpamaður sem gaf með sér og fékk jafnvel samviskubit yfir glæpum sínum. "Hann gaf manni jafnvel síðustu sígarettuna sína" og "gerði aldrei flugu mein". Þetta er auðvitað hinn landsfrægi og góðkunningi lögreglunnar, Lalli Johns.
Tue, 02 May 2023
162 - Sauðnautin á Íslandi
Moskusuxar voru einu sinni heitasta dæmið á Íslandi, allir vildu moskusuxa frá Grænlandi. Kannski ekki allir en þónokkrir, alveg nógu margir til að þingið þyrfti að ræða það mál í þaular og að lokum gefa undir.
Af hverju er sauðnautin ekki til á Íslandi nú til dags? Vildi hún ekki vera hér? Var leigan of há? Þekkti hún of fáa og átti erfitt með að læra tungumálið? Var það kannski útaf því Islendingar drápu svona mikið af foreldrum þeirra? Við skulum upplýsa ykkur!
Wed, 26 Apr 2023
161 - E-pillu hátíðin - Uxi 95
Nú ferðast strákarnir Villi og Fjölnir "to the top of the world: Kirkjubæjarklaustur". Í landi Geirlands og Skaftárhrepps, um kílómetra frá Kirkjubæjarklaustri, fór fram tónlistarhátíð árið 1995. En fyrir hvað er hún frægust? Þessi hátíð er sögð hafa rutt brautina á vissan hátt fyrir þær komandi tónleikahátíðir á Íslandi.
Wed, 19 Apr 2023
160 - Ásta Sigurðardóttir
Hvernig er hægt að tala um Ástu Sigurðardóttur? Í þessum þætti reyna Villi og Fjölnir að fara yfir ævi Ástu. Vorum hlustendum við viðkvæm umræðuefni.
Wed, 12 Apr 2023
159 - Þegar hundar voru bannaðir í Reykjavík
Í þessum þætti fara Villi og Fjölnir yfir mikla harmsögu og jafnvel eitt af mestu deilumálum sem Íslendingar hafa gengið í gegnum. Þáttur nær yfir 80 ára baráttusögu. Þetta er kannski mál sem eflaust margir vilja gleyma, enda ekki skrítið, þó svo allir voru ekki á sama máli.
Tue, 04 Apr 2023
158 - Blossi, Astró og óútskýranleg nostalgía
Í þessum þætti kíkja Villi og Fjölnir á nokkra hluti. Hluti sem okkar kynslóð horfir á með nostalgískum augum. Hvað er það sem er að láta tiktok kynslóðina dýrka Blossa? Af hverju viljum við, þúsaldarkynslóðin, fá að djamma á Astró? Ef hlutir eru slæmir, verða þeir alltaf að vera þannig? Kíkjum aðeins á þetta!
Wed, 29 Mar 2023
157 - Kynsælustu Íslendingarnir
Úff! Í þessum þætti eru strákarnir smá þunnir...bara smá! Þeir lofa! En þeir láta samt ekkert stoppa sig og fara um víðan völl í þættinum, T.d skoða þeir hverjir eiga íslandsmet í að vera kynsælastir? Og hvað er Jörfagleðin og afhverju var hún bönnuð með dómi?
Tue, 21 Mar 2023
156 - Flakkarar Íslands
Íslenskir flakkarar hafa ekki alltaf verið heitið fyrir einhverja grunsamlega tækni sem þú getur keypt í næstu raftækjabúð. Þessir flakkarar komu til þín, og voru kallaðir ýmsum nöfnum, en þó flestir kallaðir Gvendur.
Ef þið viljið vita hvað það þýði að "dúlla fyrir aðra", þá verðið þið að hlusta á þennan þátt.
Wed, 15 Mar 2023
155 - Skógalín hin dauðadæmdi
Skógalín, listrænn ungur maður, sem dæmdur var til dauða á sínum tíma, fyrir svo lítinn glæp að bæði Villi og Fjölnir hefðu getað verið dæmdir til dauða á þessum tíma.
Hver var Schovelin? Nei, Skógalín? Nei! Schovelin!
Allavega, hver var hann, og hvernig dó hann?
Wed, 08 Mar 2023
154 - Myntbreytingin
Hvað þýðir það að 2 núll voru tekin af krónunni? Hvernig lagaði það ástandið? Hvað er verðbólgudraugur? Í þessum þætti er Villi fjarri staddur, en örvæntið ekki því Stefán, góðvinur Já OK, stekkur inn og kennir okkur allt um myntbreytinguna á Íslandi
Wed, 01 Mar 2023
153 - Agaskóli
Í þessum þætti kryfja Fjölnir og Villi stóra sprengjumálið í Hagaskóla. Hverjir stóðu á bak við verknaðinn? Var það kannski kennari? Er þessi nemandi kannski lögga? Hann er allavegana full gamall til að vera í grunnskóla... jiiiiiii
Wed, 22 Feb 2023
152 - Geimverur níunnar
Hvað myndir þú gera ef þú myndir fara allt í einu fram í tímann 30 mínútur og ekkert hafði breyst? Nema að 30 mínútur hefðu liðið? Kannski myndir þú halda áfram með daginn þinn, eða kannski voru það geimverur.
Fólk á þessum tíma var að horfa á FRIENDS, fólk var að horfa á Harrison Ford og fólk voru líka að horfa á geimverur og geimskip.
Tue, 14 Feb 2023
151 - Leitin að Gullskipinu
Í þessum þætti fara Villi og Fjölnir um víðann völl. Gellur, sprengingar, sassy sálfræðingar og fjarsjóðsleit!
Wed, 08 Feb 2023
150 - Makt myrkranna (hin íslenski Drakúla)
Bram Stoker er vel þekktur fyrir að hafa skrifað Drakúla, en skrifaði hann Makt Myrkranna? Það eru margar pælingar á lofti varðandi Makt Myrkranna og þessi saga er í raun og veru enn að þróast. Í þessum þætti ætla strákarnir að upplýsa hlustendur og sjálfa sig um stöðu mála í þessu stórfurðulega máli.
Wed, 01 Feb 2023
149 - Flugræningjar á Íslandi
Í þessum þætti ræða Villi og Fjölnir um atburð sem gerðist 11. september, en þó ekki sá atburður sem okkur minnisstæðastur.
Wed, 25 Jan 2023
148 - Skítug helgi á Íslandi
Fjölnir og Villi ætla sér að taka neðanjarðarlest þegar skilti frá Icelandair lætur þá stoppa og hugsa. Hvers vegna er þetta skilti þarna? Hverjum datt í hug að þetta væri sniðug hugmynd? Hvað hafa íslenskar konur að segja um þetta skilti?
Wed, 18 Jan 2023
147 - Nylon
Góðir hlustendur! Hin íslenska Spice Girls hljómsveitin!
Wed, 11 Jan 2023