Filtrar por gênero
Draumaliðið

- 156 - Svona var HM spurningakeppnin: Draumaliðið v. Sýn Sport
LENGJAN - THULE - UPPBOÐ.COM - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Síðasti þáttur Draumaliðsins í þónokkurn tíma er lentur. Við fengum Val Pál Eiríksson og Henry Birgi Gunnarsson til þess að keppa við okkur í spurningakeppni. HM þema, allir léttir. Takk fyrir okkur.
Tue, 09 Jun 2026 - 2h 19min - 155 - Svona var: HM 2002 - Það var Hyundai sem bjargaði mérFri, 22 May 2026 - 3h 02min
- 154 - Svona var HM 1998: Margmiðlun, flogaköst og hvítir bjargvættirThu, 07 May 2026 - 2h 39min
- 153 - Svona var: HM 1994 - Rothenberg, Romario og Roberto Baggio
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - UPPBOÐ.COM - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Sem upphitun fyrir Heimsmeistaramótið í Bandaríkjunum í sumar ætlum við að skoða hvernig nokkrar nútímaknattspyrnukeppnir fóru fram.
Thu, 30 Apr 2026 - 2h 21min - 152 - Simon Tibbling
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - UPPBOÐ.COM - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Simon Tibbling hefur orðið bikarmeistari í Hollandi og Danmörku, hann hefur unnið gullverðlaun á Evrópumóti U21 árs sem lykilmaður og spilað djúpt inn í frumskógi Amazon á móti John Obi Mikel á Ólympíuleikum.
Fri, 24 Apr 2026 - 1h 25min - 151 - Svona var: HM - Draumalið HMlegra leikmanna
LENGJAN - THULE- DOMINO'S - UPPBOD.COM - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Við völdum Draumalið skipað af þeim leikmönnum sem okkur finnst HMlegustu leikmenn nútímaknattspyrnu. Því miður komst enginn af þeim leikmönnum sem eru á myndinni í liðið en það má alltaf skoða það seinna. Gleymdum við einhverjum? Finniði okkar á instagram (@draumalidid) og hendið á okkur skilaboðum!
Fri, 17 Apr 2026 - 1h 59min - 150 - Svona var: Greenland Cup (1980) - Freyr Ófeigsson, Min Tanaka og kjúklingabúið í Sveinbjarnargerði
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - UPPBOÐ.COM - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Grænlendingar sigldu yfir og spiluðu sína fyrstu landsleiki á sama tíma og Norðurlandið fe´kk lyklana að því að búa til þessa ekta landsleikjastemningu. skráið ykkur sem viðurkenndan söluaðila á UPPBOÐ.COM og notið kóðann DRAUMA fyrir 25% afslátt af söluþóknun.
Fri, 03 Apr 2026 - 1h 40min - 149 - Svona var: Valur - Hamburger SV (1979): Keegans kvöld, keisarinn Kikkí og KranklFri, 20 Mar 2026 - 2h 11min
- 148 - Svona var: ÍA - Dynamo Kiev (1975): Brennsi, Blohkin og BakarinnThu, 05 Mar 2026 - 2h 12min
- 147 - Svona var: ÍBV - B. Mönchengladbach (1973): Netagerðarmenn frammi, Eyjageðveikin og Jupp Heynckes
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Skoðuðum magnað einvígi Eyjamanna við Mönchengladbach sem dróg fjárhagslegan dilk á eftir sér og rak, samkvæmt söguskýringum þáttastjórnenda, stóran fleyg ofan í samskipti Vestmannaeyinga og meginlandsins sem má enn í dag skynja í öllum samskiptum.
Fri, 06 Feb 2026 - 2h 01min - 146 - Pétur Marteinsson
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Social Pete fór yfir ferilinn sem inniheldur sögur um flugslys, Hästens rúm, töskuna hans Bruce Grobbelar, enn eina eineltisfrásögnina af Tony Pulis og Rúnar Frey Gíslason á kantinum í 5. flokki Fram.
Mon, 19 Jan 2026 - 1h 30min - 145 - Svona var: Jólalög, jólatónleikar og fótbolti á parketi ft. Hjörvar Hafliðason
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Hvenær hættu jólin að verða hátíð barnanna og urðu að sumbl festivali fyrir foreldra? Af hverJU þArf þettaaa a veeeraa svonaaaa? Skoðuðum svo hvernig innanhúsbolti þróaðist úr nostalgíu festivalinu sem er íslandsmótið innanhúss yfir í fútsal hátíð spænskra atvinnumanna. Til þess fengum við í settið Hjörvar Hafliðason og hringdum símtal í einn af okkar mestu fútsal sérfræðingum, fyrrum futsal landsliðsmanninn Heimi Þór Ásgeirsson.
Thu, 11 Dec 2025 - 2h 01min - 144 - Svona var: Keflavík - Real Madrid (1972) - Golden Ears
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Á grunni Kanaútvarpsins komu gullaldarár Keflavíkur í knattspyrnu og lífinu þar sem þeir mættu Real Madrid og Hafsteinn Guðmundsson, Herra Keflavík, skipulagði magnaða tveggja vikna ferð til Costa del Sol með viðkomu á Santiago Bernabeau.
Thu, 04 Dec 2025 - 1h 40min - 143 - Björn Daníel Sverrisson
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Björn Daníel Sverrisson, fyrrum knattspyrnumaður og núverandi þjálfari Sindra, fór yfir helvíti margar góðar sögur frá ferlinum og valdi Draumaliðið sitt af uppáhalds samherjunum sínum.
Wed, 26 Nov 2025 - 2h 00min - 142 - Svona var: Valur - Benfica (1968) - Svarta Perlan í ÖskjuhlíðinniThu, 20 Nov 2025 - 1h 53min
- 141 - Svona var: KR - Liverpool (1964) - REYKJAVÍK! REYKJAVÍK! REYKJAVÍK!
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Tókum fyrir tíðaranda, aðdraganda og leik KR og Liverpool, fyrsta leik íslensks liðs í evrópukeppni þegar við fengum Englandsmeistarana til landsins. Maður hefði haldið að hér hefði ríkt gleði og ánægja en hinar ýmsu brennur en sitt sýndist hverjum með hversu góð landkynning það yrði að stilla upp laganema í innherja og nemanda í Menntaskólanum í Reykjavík í framverði. Svo kynnum við fyrir hlustendum hina upprunalegu Prófessora.
Thu, 06 Nov 2025 - 1h 58min - 140 - Svona var: Draumalið þjóðþekktra nafna
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Við veltum fyrir okkur hliðarveruleika þar sem þjóðþekktir Íslendingar væru leikmenn í efstu deild á Íslandi. Þannig létum við leikskáld standa á milli stanganna, við sáum fyrir okkur Alþingismann í hafsentinum hjá Víkingi Ólafsvík og raunveruleikastjörnu dreifa spilinu við hliðina á honum. Kærar þakkir til allra sem lögðu hönd á plóg með tilnefningum í gegnum Instagram síðuna okkar. Guð má vita hvar þetta hefði annars endað!
Thu, 30 Oct 2025 - 1h 31min - 139 - Pablo Punyed
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Freddy Adu var eins og Messi, Shahab Zahedi er ekkert eðlilegur góður í fótbolta og af hverju Pablo skipti Nike og Adidas út fyrir Under Armour og Mizuno.
Thu, 16 Oct 2025 - 1h 40min - 138 - Svona var: One Hit Wonders
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Deep dive manneskjan á bakvið tónlistina þegar kom að plötunni Out of Alda sem tröllreið Bretlandi. Sögur hvunndagshetja eins og Villa á Bensanum, Lady Queen og skartgripasalans geðuga af Skaganum. Fékk þetta fólk nægilega virðingu? Einhverirsennilega alltof mikla, en þeir eru til sem eiga skilið að vera hampað oftar. Takk.
Thu, 09 Oct 2025 - 1h 58min - 137 - Svona var: Saga og draumalið íslenskra stuðningsmanna
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - SUIT UP REYKJAVÍK - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD B-hliða stuðningsmannalög, handrið, skortur á jarðtengingu og ábyrgð 365, identity chanting, nauðsynleg og baráttan um bongótrommurnar. Við skoðuðum það hverja við þyrftum fyrir erfiðan útileik í Evrópukeppni til þess að #takayfir stúkuna og til að vera tólfti maðurinn.
Thu, 02 Oct 2025 - 1h 57min - 136 - Svona var: Draumalið Lengjudeildarinnar
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - SUITUP REYKJAVÍK - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Hver er sá mesti? Ekki besta Lengjudeildarliðið síðustu 20 ár, en 100% það mesta. Við fengum mesta spekúlant landsins í 1. deildinni, Elvar Geir Magnússon ritstjóra Fótbolta.net og son Magnúsar Einarssonar til þess að aðstoða okkur við valið. Sennilega í kringum 100 nöfn á blaði, en einungis 11 fengu kallið.
Wed, 17 Sep 2025 - 1h 20min - 135 - Svona var: West Ham - Af hverju kaupiði ekki Beckham?
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - SUIT UP REYKJAVÍK - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Hello is this Real Madrid? Yes, this is Bjöggi calling. Would you by any chance be interested in securing the services of Julien Faubert on loan?
Wed, 10 Sep 2025 - 1h 58min - 134 - Steven Caulker
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - SUIT UP REYKJAVÍK - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Best skipaða Draumalið sem nokkurn tímann hefur farið yfir. Steven Caulker names the best eleven from his career.
Wed, 27 Aug 2025 - 1h 06min - 133 - Svona var: Stoke Holding SA - Var Stoke djók?
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - SUIT UP REYKJAVÍK - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD "Út vil ek að íslenskum sið, til þess að kaupa fótboltalið". Í nóvember 1999 mætti íslensk-lúxemborgíska félagið Stoke Holding SA á vettvang í Stoke-on-Trent, rak Gary Megson og hóf vegferð sem átti að enda í ensku úrvalsdeildinni. Það gekk ekki alveg, en what a ride!
Thu, 21 Aug 2025 - 1h 44min - 132 - Svona var: Danskir leikmenn á Íslandi - Handbolti og Pulsur
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - SUIT UP REYKJAVÍK - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Fórum yfir sögu danskra leikmanna á Íslandi, brautryðjendur og sprengjuna danska vorið 2003. Er hægt að lesa eitthvað í lýð- og landfræðilegan uppruna danskra leikmanna sem koma til Íslands? Fengum sömuleiðis fróðari menn til að velja uppáhaldsleikmenn ásamt því að velta fyrir okkur upphafi danskra daga hjá verslunarkeðjum landsins, minnimáttarkennd þjóðarinnar gagnvart dönsku kennslu og heimsóknarverkefni Verslunarskóla Íslands til Danmerkur árin 2007 og 2008 þar sem Orri eyðilagði baðherbergi.
Wed, 13 Aug 2025 - 1h 34min - 131 - Alfreð Finnbogason
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - SUIT UP REYKJAVÍK - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Alfreð Finnbogason valdi alvöru Draumalið frá félagsliðaferlinum sínum gjörsamlega stútfullt af gæðum og alvöru leikmönnum.
Wed, 16 Jul 2025 - 2h 10min - 130 - *Rétt útgáfa* Svona var: Íslenskar innrásir - Hver er Prince Polo knattspyrnunnar?
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - SUIT UP REYKJAVÍK - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD *Það var gömlum þætti uploadað í nótt, hér er nýjasti!*The Icebreakers syntu til sigurs á Suðurnesjunum, James Bett ruddi leiðina fyrir Marcelo og Rene Housemann á meðan Júggarnir sýndu okkur hvernig þetta var gert. Svo kom allt ruslið og mexíkóska kjúklingasúpan.
Wed, 09 Jul 2025 - 1h 51min - 129 - Svona var: Að smíða Íslandsmeistaralið - hver er sá mesti?
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - SUIT UP REYKJAVÍK - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Eftir einstaklega ströngum reglum smíðuðum við lið stútfullt af týpum og minnum úr Íslandsmeistaraliðum í nútímaknattspyrnu, hinar íslensku bitru b-hliðar. Við fengum lífskúnstnerinn og fjölmiðlamanninn Jóhann Pál Ástvaldsson, einn veikasta launþega Ríkisútvarpsins, til þess að aðstoða okkur við valið. Grindvíkingar, Keflvíkingar, Þróttarar, Framarar, Fylkismenn og allir aðrir sem eiga sorgarsögur. Þessi þáttur er fyrir ykkur.
Wed, 02 Jul 2025 - 1h 42min - 128 - Svona var: Íslenskar útrásir - Platvinnumennska og PITSUR
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - SUIT UP REYKJAVÍK - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Hvað er platvinnumennska og hvernig er hún skilgreind? Af hverju gátu Kínverjar ekki búið til sínar einu pizzur og það þurfti hvern einasta pizzabakara á Íslandi til að færa út kvíarnar í Kína fyrir Pizza 67? Við vitum það ekki en giskuðum.
Wed, 25 Jun 2025 - 1h 43min - 127 - Svona var: Litli Stóri - Mótað af handritsskrifum George Lucas, fullkomnað með móttökum Tómasar Inga
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - SUITUP REYKJAVÍK - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Nógu mikið höfum við rætt um sérstaka þætti fyrir hin ýmsu málefni. Við köfuðum loksins ofan í samband litla og stóra, innan sem utan vallar, í gegnum árin. Hvenær hófst þetta? Hvað gerir lítinn að litlum og stórum að stórum? Hvernig skilgreinum við þegar lítill hagar sér eins og stór? Hefur Dinka ættbálkurinn á bökkum Nílar svarið eða er það Walt litli Disney sem ætlar að svara því hvað Gummi Ben gerði fyrir Rikka Daða eða hvað Beggi gerði fyrir Pacas í Hæðinni á Stöð2? Þið fáið sennilega ekki svarið en við vonum að þið hlustið.
Wed, 18 Jun 2025 - 1h 24min - 126 - Baldur Sigurðsson
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Smalinn, einn af okkar alvirtustu Pepsimönnum, mætti og fór yfir langan og farsælan feril sinn hjá Völsungi, smá í Þór, Keflavík, Bryne, KR, SonderjyskE, Stjörnunni og FH og minntist á að hann hefði spilað með Fjölni.
Tue, 20 May 2025 - 2h 32min - 125 - Svona var Ísland LOKAÞÁTTUR ft. Kári Árna
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Kári Árna fór með okkur yfir upphaf sitt í landsliðinu á the banter years áður en hann krufði gullaldarárin og varpaði ljósi á þær rannsóknarspurningar sem við vörpuðum fram í upphafi seríunnar.
Thu, 03 Apr 2025 - 2h 31min - 124 - SVÍ Special: Þróun fjölmiðla og landsliðsins ft. HB Grande
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Henry Birgir Gunnarsson aka HB Grande mætti og fór yfir hvernig það var að vera í fjölmiðlum á dimmustu tímunum og hvernig fréttaumfjöllun hefur þróast frá aldamótum. Í lokin settum við saman lista af inductees af fjölmiðla Hall of Fame frá Draumaliðinu.
Thu, 27 Feb 2025 - 1h 45min - 123 - SVÍ Special: HM 2018
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD “The Decision” hjá Tólfunni sem var fyrst og síðast í vinnuferð en ekki skemmtiferð. Skerjafjarðarskáldið Ferðasaga pípulagningamannsins um sveitir Rússlands á limmu og lúðrasveitin sem tók á móti Fálkunum. 23 manna leikmannahópur og auðvitað 32 manna starfslið. “Takk fyrir leikinn Messi” Var það einhver shaman með hestaleg sem kom Jóa Berg í gegnum meiðslin fyrir Króatíu leikinn? Svona var HM2018
Fri, 07 Feb 2025 - 3h 05min - 122 - Svona var Ísland '16-'18: Snúsað til tvö, twittingar og #road2russia
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Landsliðsþynnka einkenndi árið 2016 eftir þennan ótrúlega dag á Arnarhóli. Við skröltum af stað, á sama tíma og ferill Charlie Keller fór á flug. Rúnar Eff sigraði hug og hjörtu þjóðarinnar þegar hann söng um hversdagslegan dag í lífi einstaklings á listamannalaunum og Fókushópurinn stappaði stálinu í íslensku þjóðina eftir erfiðan dag í Finnlandi og kallaði eftir því að við gætum ekki lifað í eftirsjá. Hendiði í Leiðrettingahornið!
Thu, 30 Jan 2025 - 3h 26min - 121 - SVÍ Special: EM 2016: Farð inn á teiginn
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Við komumst til fyrirheitna landsins.Tólfan samdi söngskrá. Við fórum að tapa öllum vináttuleikjum. Það var klassískt drama um hverjir áttu að vera í hópnum. Orri var heima og prumpaði á leið til Nice. Joe fór heim á sama tíma og mamma hans skildi ekkert á leikdegi þegar hann labbaði inn með hóp fólks og sagði "ha?? ertu mættur með mat að utan? ég ætlaði að búa til leðju!" Svona var EM god damn 2016!
Fri, 13 Dec 2024 - 2h 22min - 120 - SVÍ '14-'16: Leiðin til fyrirheitna landsins
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Eftir að herramaðurinn úr norðri nánast einn síns liðs kostaði okkur sætið á HM 2014 héldu einhverjir að við myndum slaka á. Sá eini sem slakaði á var Almar þegar hann hékk í kassa í viku. Sigmundur Davíð leiðrétti en fékk svo stígvélið. Take your pick á það besta sem gerðist; skallinn hjá Aroni á móti Tékkum, The Sig á móti Hollandi, endurkoma Gudjohnsen í Kazakhstan, Jón Daði á móti Tyrklandi. Haldið áfram að sturta inn í leiðréttingarhornið.
Fri, 29 Nov 2024 - 2h 35min - 119 - SVÍ 12-14: Lars, Lundi, Landi, Lopapeysa
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 ráðgjöf og bókhald Óumbeðinn hafði Karlsvagninn samband við útvarpsstöð og sagðist vera með þjóðhátíðarlag sem myndi fanga stemningu landans. Meginatriði lagsins voru hæðir sem enduðu í lægðum sem kallaðar voru ævintýrareisa. Ekkert nær að súmmera upp meira þá tíð sem ríkti frá 12-14, eftir að hafa hafið leik með Skattgrím og endað í gósentíð. Þegar Eggert mætti á flugvöllinn án Roy Keane með fulllan toll. Þegar Gunnar Bragi komst á þing. Þegar Gylfi smurði hann í samskeytin á móti Slóvenum úti. Þegar Þorbjörn Þórðar mætti á Vesturlandsveginn. Svona var Ísland 2012-2014. Viðmælendur þáttarins: Kolbeinn Tumi Daðason, herramaður úr norðri Haukur Harðarson, stuðningsmaður Chelsea frá unga aldri Ingimar Helgi Finnsson, forsvarsmaður Fálkanna, stúdentahópur FSU Archive efni: Fjölmiðlamenn elta Eggert Magnússon út úr Leifsstöð í upptöku frá Fótbolta.net (Arnar Björnsson, Eiríkur Stefán Ásgeirsson, Eggert Magnússon) Fótbolti.net þáttur á leikdegi Ísland Króatía (Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Sveppi Krull) Viðtal Fótbolta.net við Aron Einar fyrir leik Albaníu og Íslands (Magnús Már Einarsson og Aron Einar Gunnarsson) Frumflutningur á Lundi, Landi, Lopapeysa í flutningi Brynhildar og Karlsvagnsins í Magasín þætti FM957.
Thu, 21 Nov 2024 - 2h 25min - 118 - Uppgjör 2000-2012: Fjórar árstíðir á tólf árum
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 ráðgjöf og bókhald Það var súpergrúppa sem við þurftum að fara yfir og rifja upp sem gleymdist. Að öðru leyti veltum við fyrir okkur af hverju fótbolta landsliðið gæti aldrei verið jafn gott og handbolta landsliðið, þ.e.a.s á sama tíma. Já einmitt svo kom Indriði Sig og sagði milljón geggjaðar sögur, m.a. frá því þegar Freddy Kanoute jarðaði hann. Dælið í Thule hornið, þeir eiga að skilið!
Thu, 14 Nov 2024 - 1h 58min - 117 - Jón Daði BöðvarssonFri, 11 Oct 2024 - 1h 21min
- 116 - Svona var EM u21 2011
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - BIRTA CBD - R3 ráðgjöf og bókhald Árið 2011 greip um sig algjört fjölmiðlafár í kringum Vormenn Íslands, stráka fædda á árunum 1988-1991 og þáttöku þeirra á EM u21 sem haldið var á Jótlandi. Við fórum í gegnum allt ferlið og allt sem gerðist á bakvið tjöldin, eða á veitingahúsum eða karíókístöðum. Gestur: Bjarni Þór Viðarsson Aðrir viðmælendur: Haraldur Björnsson - Halli Landsliðs Skúli Jón Friðgeirsson - Móði jr. Þórður Ingason - Íslands- og bikarmeistari úr Grafarvogi Friðrik Dór Jónsson - Hefði getað gefið boltann meira
Fri, 27 Sep 2024 - 2h 03min - 115 - Svona var Ísland YOUTH SPECIAL: EM U17 2012 ft. Emil Ásmunds og Sindri Björns
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINOS - BIRTA CBD - PRÓTÍN.IS - R3 ráðgjöf og bókhald Emil og Sindri eru hluti af hinum mjög svo spennandi 1995 árgangi sem kannski náði ekki því flugi sem búist var við af þeim en djöfull voru þeir seigir sem YOUTH! Vicente úr Valencia, Sá þýski að skóla til Thomas Frank, Leon Goretzka að hægelda menn, Sindri Björnsson dansandi um ganga Verzlunarskólans að fagna meiðslum, Grunnskólamót höfuðborga Norðurlandanna. Viðmælendur: Orri Sigurður Ómarsson Oliver Sigurjónsson Daði Bergsson Hljóðbrot: Adam Örn Arnarsson (tekið úr útvarpsþætti fótbolti.net) Oliver Sigurjónsson (viðtal við 433) Sindri Björnsson (viðtal við fótbolti.net)
Wed, 18 Sep 2024 - 1h 31min - 114 - Svona var Ísland '10-'12: Þeir sem eru í bransanum kunna að haga sér í sviðsljósinu
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - BIRTA CBD - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Kreppan er alltumlykjandi en rykið er þó farið að setjast. Við tekur auðn, menningarleg og knattspyrnuleg. Trúðanám nær flugi. Tveir fiskar og 5 brauð sagði Jesús en Óli Jó hafði ekki húmor fyrir einu rauðvínsglasi og tveimur bjórum. Þjóðin reynir að keyra í gegn changing of the guards og íþróttamiðlar reyna það sömuleiðis.
Fri, 23 Aug 2024 - 2h 22min - 113 - Svona var Ísland ‘08-‘10: Smíðum upp á nýttWed, 14 Aug 2024 - 2h 57min
- 112 - Svona var Ísland ‘06-‘08: Landslið plötusnúða og mannlegir harmleikirFri, 02 Aug 2024 - 3h 35min
- 111 - EMU17 2007 hidden bonus track: Frásagnir í heild
Í þeirri röð sem þeir heyrast: Brynjar Benediktsson, eigandi og framkvæmdastjóri Soccer and Education. Guðlaugur Victor Pálsson, landsliðsmaður og fyrrum samherji Thierry Henry. Finnur Orri Margeirsson, Bliki og líkamsræktarstöðvareigandi Frans Elvarsson, Keflvískur Hornfirðingur Hólmar Örn Eyjólfsson, einn leikjahæsti unglingalandsliðsmaður Norður Evrópu. Arnar Sveinn Geirsson, bakvörður og mannauðsstjóri Trausti Sigurbjörnsson, kóngur Arnar Darri Pétursson, stáltakka kúreki
Thu, 25 Jul 2024 - 27min - 110 - Svona var Ísland YOUTH SPECIAL: EMU17 EURO 2007 ft. Ragnar Þór Gunnarsson frkvstjóri
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINOS - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD KAGGI MÁS SPECIA. Fórum yfir það þegar Ísland komst í fyrsta skipti á stórmót í gegnum alvöru dæmi, ekki í gegnum það að vinna Lettland og gera jafntefli við Austurríki. Undankeppni, milliriðill og stemning. Gullkynslóðin er mætt en það sem meira er, týnda gullkynslóðin er alls ráðandi og hún er mætt til að skila skömminni! Gestur: Ragnar Þór Gunnarsson, fyrrum unglingalandsliðsmaður og núverandi kóngur Viðmælendur Guðlaugur Victor Pálsson Hólmar Örn Eyjólfsson Arnar Sveinn Geirsson Frans Elvarsson Trausti Sigurbjörnsson Brynjar Benediktsson Finnur Orri Margeirsson Arnar Darri Pétursson Alexander Lúðvígsson
Fri, 12 Jul 2024 - 2h 11min - 109 - Svona var Ísland '04-'06: Ást á pöbbnum
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Konan hans Viktors í Sandgerði sagði farir sínar ekki sléttar, af nokkrum sköpuðum hlut. Ívar Ingimars og Jói Kalli voru í sambærilegum hugleiðingum en Ásgeir og Logi gáfust ekki upp. DV setti upp álitshópa við minnsta tilefni og Jakob Bjarnar hélt úti sýningum í hverju blaði. Svona var Ísland '04-'06! Haldiði áfram að negla á okkur í leiðréttingahorninu!
Thu, 04 Jul 2024 - 3h 19min - 108 - SVONA VAR ÍSLAND '02-'04: Tómatsósuslettur og skoska haustið
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF #WeGoAgain með Atla Mikson, en on a short lease. Gleðitíðindi fyrir Guðmund Felix en einn stórtækasti íslenski slöngueigandinn varð fyrir tjóni. Guðjohnsen tekur við keflinu og Helugson öskrar í andlitið á Kahn. Þjóðin leyfði sér að dreyma eftir að Astro breyttist í Pravda en Valentin Ivanov var á öðru máli.
Sun, 23 Jun 2024 - 3h 11min - 107 - Svona var Ísland '00-'02: Gísli á Napster og Atli á Parken
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD The Rise and fall of Einar Bárðarson. Ísland á HM innistæðulaust chantað í stúkunni á sama tíma og virtustu blaðamenn DV skrifuðu greinar sem hefðu helst átt heima á folk.is svæðinu þeirra. Gísli Marteinn gjörsamlega elskaði að brjóta á hugverkaréttindum og Eyjólfur Sverris raðaði inn mörkum. Svona var Ísland.
Sat, 15 Jun 2024 - 2h 32min - 106 - Aron Einar Gunnarsson
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR -DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 Ráðgjöf og bókhald Aron Einar valdi Draumalið skipað af bestu leikmönnum sem hann spilaði með frá tíma sínum í Þór, AZ Alkmaar, Coventry, Cardiff og Al-Arabi. Frá Louis van Gaal til Neil Warnock og frá Einari Sigþórssyni, bróður Kött Grá Pjé, til Rafinha Alcantara. Allt sviðið var skoðað.
Mon, 03 Jun 2024 - 1h 23min - 105 - Svona var Ísland ft. Rúnar Kristinsson (1986-2000)
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - PRÓTÍN.IS - DOMINO'S R3 RÁÐGJÖF Við fengum eina leikmanninn sem spilaði í öllum undankeppnunum sem við höfum farið yfir til þessa upp í stúdíó og bárum undir hann alla þá vitleysu sem við höfum matreitt í síðustu þáttum (Byrjar þarna eftir ca 20 mínútur eftir mikilvæga umræðu um Köttinn Kela, sem þarf meiri ást (brúðan ekki punditinn). Enduðum þáttinn á að fá fyrri viðmælendur til þess að fara yfir að þeirra mati bestu leikmennina sem þeir spiluðu með í landsliðinu á þessum tíma. Því miður fundum við ekki símtölin við Hörð Magnússon og Pétur Ormslev. Formleg kvörtun hefur verið lögð inn hjá tölvudeild ónefnds tölvufyrirtækis.
Tue, 20 Feb 2024 - 1h 48min - 104 - Svona var Ísland '98-'00: Elsku drengurinn
Það styttist í aldamót og þjóðin fer að taka sénsa. Þorfinnur Ómarsson og lærisveinar hans í Kvikmyndasjóði byrja að veita Edduverðlaun og leikmenn keppast við að hætta að leika fyrir íslenska landsliðið. Fórum yfir það þegar DV hrútskýrði fyrir þjóðinni hverjir væru gáfuðustu Íslendingarnar og svo var nóg að gera hjá Ingólfi Hannessyni. Á meðan er Guðjón að smíða eitthvað skrímsli og nei þá erum við ekki að meina stúkurnar sem settar voru fyrir aftan mörkin fyrir leikinn á móti Frökkum, enda voru þær leigðar frá Svíþjóð #ÞærSænsku. Tvö stig skilin eftir í Jerevan, barningur við Barthez, rýtingur frá Rebrov, eitt stykki Ingólfur kampakátur Karpin og give it Kio Briggsy til the end of the season. "Þetta er liðið okkar". Svona var Ísland '98-'00 Viðmælendur: Pétur Hafliði Marteinsson aka Social Pete Steinar Dagur Adolfsson, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs Akraness og tengiliður gerður að hafsent. Rikki Daða og Rúnar Kristins (viðtal fengið frá www.fótbolti.net), sérfræðingar í málefnum Íslands og Frakklands Þórður Guðjónsson, áhugamaður um ferðatilhaganir Negliði á Thule og félaga sögum og leiðréttingum, ekki veitir af.
Sun, 11 Feb 2024 - 3h 18min - 103 - Svona var Ísland '96-'98: Enter the Dragon
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Við tókum upp þráðinn frá Svona var Sumarið og fórum enn dýpra í Fjölnis sögu Þorgeirssonar og ævintýri hans með "Mel krydd". Hefndarklám var sent inn í stuttmyndakeppni á sama tíma og óveðursskýið hlóð upp regni og eldingum yfir Laugardalnum. Eggert Magnússon hélt þó áfram að skrifa undir hina ýmsu samninga. Changing of the guards, farewell to legends og svo gerðum við upp talsetningar á teiknimyndum á 10. áratugnum. Svona var Ísland 96-98. Dæliði inn í Thule hornið!
Fri, 26 Jan 2024 - 3h 02min - 102 - Svona var Ísland '94-'96: Ræktun og Roland litli Macintosh
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Benjamin, the Dove kom út og veitingamaður í miðbæ Reykjavíkur barðist í bökkum við að fullnægja kúnnum sínum á þá vegu sem þeir ætluðu. Á sama tíma hafa skin og skúrir aldrei komið og farið jafn oft hjá einum manni og Ásgeiri Elíassyni þrátt fyrir metfjölda af tengiliðum í bakvörðum og Þorgeir Ástvaldsson með myndavélina í andlitinu á honum allan leikinn fyrir hönd VISAsport. Við krufðum það hvernig POX kom til landsins og viljum fá að vita meira um skemmtistaðina Síbería og Ingólfskaffi. Ásgeir lét undan þrýstingi og setti lyfjafræðing í vörnina eftir nákvæmar skallaæfingar. Under the Solna Sun þar sem Ravelli blindaðist. Svona var Ísland 94'96. Viðmælendur: Ólafur Adolfsson, skallamaður. Dæliði í Thule leiðréttingahornið, takk!
Fri, 19 Jan 2024 - 3h 24min - 101 - Kristján Finnbogason
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Kristján Finnbogason er næst sigursælasti leikmaður íslenskrar nútímaknattspyrnu með 8 Íslandsmeistaratitla með skammstöfunarliðunum ÍA, KR og FH yfir feril sem teygði sig yfir fjóra áratugi frá 1987 til 2016. Draumalið frá manni sem spilaði með báðum risum íslenskrar knattspyrnu á 10. áratugnum. Hverjir fá sénsinn og hverjir eru settir á bekkinn?
Thu, 04 Jan 2024 - 1h 28min - 100 - Svona Var Ísland '92-'94: Það eru töfrar
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 ráðgjöf og bókhald Þjóðin eignaðist að öðrum ólöstuðum mesta Íslandsvin fyrr og síðar þegar georgískur málvísindamaður tók ástfóstri við Ísland og komst með krókaleiðum og Guðna Th. til Íslands. Á sama tíma er Ásgeir Elíasson setjandi tengiliði í bakvarðastöðurnar og prófandi allar útfærslur sem til eru í leit Eggerts Magnússonar að sæti á Heimsmeistaramótinu 1994 í Bandaríkjunum. Það voru ferskir vindar, sem þó stundum blésu á móti okkur. Það var maður sem vildi berbrjósta þjónustukonur á pizzastað. Það voru súpergrúppur og það voru nýliðar. En fyrst og síðast, það voru töfrar. Svona var Ísland 1992-1994. Dritiði á okkur leiðréttingum. Viðmælendur: Hörður Magnússon, kóngur úr Hafnafirði.
Fri, 22 Dec 2023 - 3h 07min - 99 - Svona var Ísland '90-'92: Til hvers?
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 ráðgjöf og bókhald Úr þýskum aga í sænskan toppfótbolta(?). Eggert mætti, Davíð fær lyklana að flokknum og í Vesturbænum er alls konar vitleysisgangur í boði. Það var sárt að sakna en þjóðin flykktist á bakvið eftirmanninn þegar Spánverjar voru bakaðir. Svo fór Diddi Fiðla til London. Svona var Ísland '90-92.
Fri, 01 Dec 2023 - 2h 59min - 98 - Svona var Ísland '88-'90: Það sem næstum sást
Jóhannes litli Páll kíkti til landsins og Hjammi þreif bílinn hans. Sigi Held fékk a month of friendlies í ágúst en ekkert meir eftir það. Goðsögn kvaddi og handhafar forsetavalds kíktu í ríkið. Bjórinn fékk að flæða á ný, Valgeir Guðjóns ákvað að ganga heim á öllum vígsstöðum en fyrst og síðast setti geðþekkur Akureyringur 85 þúsund sovéska áhangendur hljóða á Lenínvellinum. Viðmælendur: Ólafur Helgi Kristjánsson, prófessor, Pétur Úlfar Ormslev, tía, og Halldór Ómar Áskelsson, Sovétbani.
Fri, 24 Nov 2023 - 3h 09min - 97 - Patrik Andersson
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Patrik Andersson picks the best eleven of his former teammates and goes over his career highlights. Patrik Andersson spilaði með m.a. með Bayern Munchen og Barcelona. Veltum steinum um hvernig er að klúðra víti í úrslitaleik Champions League en samt vinna, hvernig er að skora sigurmarkið með síðustu spyrnu í Bundesligunni sem tryggir titilinn og
Tue, 14 Nov 2023 - 53min - 96 - Svona var Ísland '86-'88: Mikið lagt inn, lítið tekið út
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - SESSION CRAFT BAR - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Svona var Ísland kryfur tíðaranda og stemningu landans tvö ár í senn, sérstaklega í tengslum við þátttöku karlalandsliðs Íslands í fótbolta í undankeppnum stórmóta. Viðmælendur þáttarins: Sigmundur Ó Steinarsson, geit í blaðamennsku, og Arnór Guðjohnsen, methafi yfir flestar aukaspyrnur á einu tímabili í efstu deild á Ísland.
Mon, 13 Nov 2023 - 2h 36min - 95 - Svona var sumarið 2014
LENGJAN - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTIN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Það hlaut að koma að því að 5 klukkustunda múrinn yrði rofinn en það var einfaldlega nauðsynlegt að koma til skila að Sölvi Fannar lék í tónlistarmyndbandi hljómsveitarinnar Angel at my Table og hverjir fengu mention á kreditlistanum á Algjör Sveppi 4. Metrómenn voru út og Timburmenn komnir inn og mesti timburmaðurinn færði almúganum og öreigum flöskuborðsmenningu með ótrúlegu útspili. Ein af allra fyrstu vegferðum íslenskrar knattspyrnu var keyrð af stað með BG4 við stýrið og það er svo sannarlega eitthvað brewing í Garðabænum undir stjórn powerpoint sérfræðingsins Rúnars Páls. Þetta er síðasti skipulagði þátturinn af Svona var sumarið í bili. Bíðið spennt eftir þáttunum Svona var Ísland fyrir meiri nostalgíu og meiri fótbolta. Sama húsnæði, sama starfsemi.
Fri, 20 Oct 2023 - 5h 00min - 94 - Svona var sumarið UPPGJÖR 2003-2013 - ft. AGG10 og Brunnurinn
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S Orri er kominn í tvöfalt barneignarleyfi og Joe er að flytja til Kaliforníu svo til að kveðju með einhverju var ákveðið að hlaða í uppgjör á síðustu 10 þáttum þar sem áherslan var á því sem gerðist after dark í miðbæ Reykjavíkur eða heimapartýjum í Hafnafirði og góðir gestir voru fengnir til að kryfja gullaldarárin. Svona var sumarið verður ekki lengra að sinni, við þökkum fyrir hlustunina og sjáusmt vonandi eftir ca ár. Til allra sem hafa hlustað, það er bara takk! Til þeirra sem eru ennþá að hlusta og vilja koma að sögum í leiðréttinga- og söguhornið, ekki hika við að heyra í okkur!
Tue, 26 Jul 2022 - 1h 54min - 93 - Lárus Orri Sigurðsson
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSION CRAFT BAR - DOMINOS Lárus Orri spilaði í 10 ár í Championship, League 1 og Premir League með Stoke og WBA. Þess utan er hann harðasti Þorpari landsins og fór upp í gegnum yngri flokkanna í sennilega hæfileikaríkasta hópi leikmanna sem þjóðin hefur séð, spilaði 42 A-landsleiki og var næstum því keyptur af Newcastle.
Sun, 10 Jul 2022 - 1h 38min - 92 - Svona voru viðtölin 2013 - Extremely hidden bonus track
Guðmundur Steinn Hafsteinsson og Viðar Örn Kjartansson fóru yfir stormasöm ár í neðri hluta Pepsi deildarinnar 2013 hjá Víkingi Ólafsvík og Selfossi.
Thu, 07 Jul 2022 - 24min - 91 - Hannes Þór Halldórsson
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - DOMINO'S - SESSION CRAFT BAR Hannes Halldórsson fór á toppinn sem besti markmaður Shellmótsins 94, á botninn þegar hann eyðilagði á sér öxlina 99, aftur á toppinn þegar hann vann MORFÍS þökk sé Dóra DNA sem talaði of lengi og svo aftur á botninn þegar hann kostaði Leiknisljónin hverfishátíð og skrúðgöngu árið 2004. Frá botninum spyrnti hann sér og stoppaði ekki uppflotinu fyrr en ca 16. júní 2018 eins og allir vita. Hannes valdi Draumaliðið sitt eingöngu skipað leikmönnum úr íslenskum félagsliðafótbolta af því það er fyrir löngu búið að tæma allt árangri íslenska landsliðsins í fótbolta undanfarin ár. Við ræddum allt frá Vali Gunnarssyni tölvukennara til Jens Petter Hauge leikmanns AC Milan, en þó aðallega Frá Magnúsi Einarssyni og Dr. Leður til Rúnars Kristins og Heimis Guðjóns í íslenska boltanum.
Thu, 30 Jun 2022 - 1h 59min - 90 - Svona var sumarið 2013
LENGJAN - SJÓVÁ - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S Eftir að hafa íhugað það í tvö ár ákváðum við að hleypa lofti út um lúgur(NB - á kolsvörtum rúðum) og gefa South Centralesque rappara sénsinn á að veita okkur fullnægingu í eyrun. Nýtt 5 ára plan er í smíðum á Hlíðarenda og það er lúður klár fyrir þá sem láta röng orð af sinni tungu. Orri fór yfir það þegar hann hægði sér í hnéháa hvönn og upp í Árbæ æfði ungur Selfyssingur tvisvar á dag til að uppfylla drauma sína sem áttu að rætast á næstu þremur árum. Leikmenn hentuðu ekki gildum Breiðabliks og leikmaður KR smalaði saman öllum helstu listamönnum landsins og tók þá með sér á sannkallaðan revenge tour yfir 22 leiki. Svona var sumarið 2013. Minnum á leiðréttingahornið, það er heldur betur að reynast nauðsynlegt! Viðmælendur: Viðar Örn Kjartansson - leikmaður Fylkis 2013 og fyrrum söngvari hljómsveitarinnar Casio. Guðmundur Steinn Hafsteinsson - leikmaður Víkings Ólafsvíkur 2013 og harðasti Top Gun maður þjóðarinnar. Kristján Óli Sigurðsson - viðmælandi í Akraborginni veturinn 2012 og sannleiksvél.
Thu, 23 Jun 2022 - 4h 21min - 89 - Hannes Þorsteinn Sigurðsson
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - SJÓVÁ - DOMINOS Hannes Sig á einhvern ótrúlegasta atvinnumannaferil nokkurs Íslendings sem spannar níu lönd, þám Rússland (að sjálfsögðu sá hluti sem liggur að Tsjetsjeníu) og Kazakhstan þar sem haugur af þekktum leikmönnum, þjálfurum og stjórnarmönnum spila rullu. Í dag er hann svo gerandi magnaða hluti í þýska boltanum sem þjálfari og dósent í knattspyrnufræðum. Gárungarnir jafnvel farnir að tala um hann sem Nýi Prófessorinn en fyrst og fremst er hann stórskemmtilegur sögumaður og geggjaður gaur.
Sat, 04 Jun 2022 - 2h 22min - 88 - Svona voru viðtölin 2012 (Very hidden and secret bonus track exclusive)
Baldur Sig gaf in depth skýringar á innkomu Gary Martin í KR, hruni liðsins eftir Verslunarmannahelgina og gæðin í Birni Jónssyni. Alexander Scholz fór yfir tíma sinn á Íslandi eins og þegar amma hans hræddi líftóruna úr Kennie Chopart. Jón Daði rifjaði upp erfitt ár á Selfossi sem þó var gott persónulega og hvernig Hannes Halldórs hefur ekki enn jafnað sig á screamernum sem hann setti í grillið á honum.
Tue, 24 May 2022 - 49min - 87 - Svona var sumarið 2012
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - DOMINO'S- SESSION CRAFT BAR Karíókímenningu Íslendinga voru gerð góð skil og enn og aftur gefur Kristmundur Axel út an absolute banger. KRingar fóru í rebrand og 5 ára plan Valsara virtist komið aftur á byrjunarreit. Deildin fékk nýjan villain og það er spurning hvor hendur hefðu ekki átt að koma í handa stað varðandi landsliðsþjálfara íslenska landsliðsins í fótbolta? Breskt raunveruleikasjónvarp átti sér stað á Akranesi, Stjarnan sóttu danskan dreng í Himalaya fjöllin og Lee litli Bucheid hefur ekki sagt sitt síðasta. Svona var sumarið 2012. Viðmælendur: Alexander Scholz Baldur Sigurðsson Jón Daði Böðvarsson
Mon, 23 May 2022 - 4h 36min - 86 - Svona voru viðtölin 2011 Hidden Bonus Track
Viðtöl í fullri lengd vegna sumarsins 2011 Pétur Georg Markan fór yfir ástandið í Víkinni ásamt því að svara spurningum um Power of Love og þrennuna í Efra-Breiðholtinu. Atli Sigurjónsson ræddi við okkur um gullkynslóð Þórsara, byr undir báða vængi og bakpokaferðalag sitt með Pall Gísla til Hollands á miðju tímabili. Kjartan Henry fór yfir hina ýmsu hluti á mögnuðu sumri KRinga, ruglaðist reyndar á Gary Martin og Gauja Baldvins en það kemur fyrir á bestu bæjum.
Mon, 02 May 2022 - 31min - 85 - Svona var sumarið 2011
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - DOMINOS - SESSION CRAFT BAR Það birtir alltaf til. Við erum að vinna okkur upp úr öskufallinu og hruninu og upprisan hefst með nýjum morgunþætti FM957. Valsmenn henda 5 ára planinu í ruslið eins og hverri annarri kúkableyju og við fáum eina af okkar fyrstu þjáfaratvennum í íslenska boltann. Óskar Hrafn mætti aftur og hlutir gengu nærri honum en hver verður efnilegasti leikmaður mótsins? Ætli það verði ekki einhver KRingurinn? Er þetta eitthvað sem er hægt að halda utan um í Excel skjali eða er kannski bara best að vita þetta sjálfur? Hvað svo sem gerist þá ætti þessi þáttur að veita ykkur byr undir báða vængi, hvort sem þið eruð andskotans karlmenn eða andskotans konur. Svona var sumarið 2011.
Thu, 28 Apr 2022 - 4h 21min - 84 - Svona voru viðtölin 2010 - HIDDEN BONUS TRACK
Full length viðtölin við prófessor Ólaf Helga Kristjánsson, Viðar Örn Kjartansson og Arnar Svein Geirsson. Prófessorinn fór yfir allt milli himins og jarðar sem náði ekki að troða öllu í endanlega útgáfu þáttarins Svona var sumarið 2010 en einfaldlega verður að fara í loftið, eins og til að mynda aðdraganda og örlög fjólubláu peysunnar. Of gott material til að henda því í recycle bin og sömuleiðis allt frá Arnari Sveini og VÖK.
Sun, 10 Apr 2022 - 48min - 83 - Svona var sumarið 2010
LENGJAN - THULE - DOMINOS - SJÓVÁ - SESSION CRAFT BAR Við erum enn að jafna okkur á því að hér varð hrun en í staðinn poppar upp a little fella called Eyjafjallajökul sem skilur Hásteinsvöll eftir í 2000cm öskufalli en Eyjamenn hugsa sér gott til glóðarinnar. Það var rifist alltof lengi um hvort hefði verið skemmtilegra á Karamba eða Oliver og við sviptum hulunni af því að hinn íslenski David Beckham er í raun og veru hinn íslenski Rory Delap. Fórum yfir hnefasamlokuna sem var matreidd fyrir Jóa og fengum play-by-play greiningu á seasoninu frá Prófessornum sem við stóðum með Hlið við Hlið og Keyrðumettígang ásamt því að við heyrðum samsæriskenningar og magnaðar sögur frá unglingi sem elti hypeið á Selfoss en endaði á að grípa í skottið á vonbrigðum. Svona var sumarið 2010. Viðmælendur: Ólafur Kristjánsson, prófessor. Arnar Sveinn Geirsson, sérfræðingur í löngum innköstum. Viðar Örn Kjartansson, einn markahæsti Íslendingurinn í atvinnumennsku.
Fri, 08 Apr 2022 - 4h 30min - 82 - Svona var sumarið 2009
Hér varð hrun! Myntkörfulán. Icesave. Guð blessi Ísland. Lehman brothers, Hvanndals brothers og Tillen brothers áttu misjöfnu gengi að fagna en hverjir stóðu uppi sem sigurvegarar? Allir og ömmur þeirra voru sendir heim, samningum var rift en í gömlum kústaskáp fannst rykfallna bókin YOUTH by Kaggi Más sem prófessorinn reif blaðsíðu úr. Yohanna kom sá og sigraði enn eitt silfrið í sögu þjóðar og Valsmenn voru staðráðnir í að láta efnahagsástand ekki hafa áhrif á leikmannahópinn sinn. Risinn var þó álíka illviðráðanlegur og Bubbi Morthens var úrillur þegar hann vaknaði við vondan draum og ákvað að rebranda sig. Svona var sumarið 2009 Viðmælendur: Matthías Guðmundsson, fórnarlamb camphylobacteriu Ólafur Páll Snorrason, sonur heiðursforseta Fjölnis. Halldór Orri Björnsson, lenti í það að ruðst var inn í tjaldið hans á þjóðhátíð af snargeðveikum handboltamanni sem vildi fá eiginhandaráritun.
Thu, 17 Mar 2022 - 3h 45min - 81 - Svona var sumarið 2008
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSIONCRAFTBAR - DOMINO’S Við höldum áfram að eyða umfram og óveðursskýið er byrjað að myndast en samt hendum við í biluðustu Eurovision undankeppni allra tíma. Silfur náðist í Peking um miðja nótt eftir djamm á Hverfisbarnum og Heimir Guðjóns fór í nostalgíukast til að styrkja liðið sitt. Kristján Guðmunds bjó til nýjan Bjargvætt í Keflavík en myndi það duga? Logi Ólafs gaf Rúnari Kristins rétta formúlu fyrir Íslandsmeistaratitli en þekkti Rúnar allar breyturnar? Changing of the guards, we’ve been here before, pallaleikur og Höskuldur Eiríksson að snúast í hringi í kringum Ashley litla Young. Svona var sumarið 2008. Viðmælendur: Simun Eiler Samuelsen, besti færeyski leikmaður efstu deildar frá upphafi. Atli Viðar Björnsson, hýsti um stund Kristinn Björnsson, Hlíðamann ekki skíðamann, í fjölskylduhúsi sínu á Dalvík.
Mon, 28 Feb 2022 - 4h 00min - 80 - Svona var sumarið 2007
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSION - DOMINO’S. Íslenska þjóðin hefur aldrei haft það jafn gott. Íslenskar Lúxussnekkjur voru lagðar við Thames, afmæli haldin á Jamaica og leikmenn keyptu sjálfa sig fyrir metfé í Landsbankadeildinni. FH voru með rosalegt lið og gott bakland eftir sigursæl ár, en í Miðbæ og Hlíðum var einhver ástríða að kvikna sem erfitt getur reynst að stöðva. Hundurinn Lúkas fór upp á fjall og Ellý Ármanns skrifaði kynlífsfantasíu um 16 ára starfsmann Garðlistar. Svona var sumarið 2017. 2017? nei nei, 2007. Viðmælendur: Sigurbjörn Hreiðarsson, kennari í Kópavogi.
Thu, 03 Feb 2022 - 3h 48min - 79 - Hörður Magnússon
LENGJAN - DOMINO'S - SESSION CRAFT BAR - SJÓVÁ - THULE Hörður Magnússon vann þrjá gullskóa í röð árin 1989, 1990 og 1991. Það hafði enginn gert í að verða 30 ár og enginn hefur leikið eftir síðan.
Thu, 02 Dec 2021 - 1h 33min - 78 - Svona var sumarið 2006
Það eru Magni-ficent hlutir að eiga sér stað í íslenska samfélaginu og þjóðin tekur ástfóstri við Gilby Clarke og Dave Navarro. Hetja yfirgefur Vesturbæinn og er staðráðinn í að kenna þeim lexíu og stjórnarmenn halda áfram að reyna að fella Börkinn. Splash TV og MySpace ryðja sér til rúms, Sigursteinn Gíslason semur við leikmann af lagernum hjá Eimskip. Óli Jó þarf að fara í hefilbekkinn og hlustendur þurfa að taka afstöðu og ákveða hvort þau séu B-hliðar fólk eða alætur á tónlist, takk.
Fri, 26 Nov 2021 - 3h 40min - 77 - Svona var sumarið 2005
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSION CRAFT BAR - DOMINO’S Það myndast gjá milli áskriftarþjónustu sem íslenska ríkið neyðir fólk til þess að kaupa af sér og þjóðar við val á því hvernig skal velja Eurovision lag. Lúðurinn lætur í sér heyra í Vesturbænum og Börkur er tekinn af appelsínum á Hlíðarenda með flugbeittum hníf. Risinn er vaknaður, búinn að tannbursta sig og klár í daginn og poppstjörnur slá sig til riddara. "Jónschi!? Haaaaaaa?!" Viðmælendur Þorbjörn Atli Sveinsson - Herra September Gunnar Hilmar Kristinsson - bomban.
Fri, 12 Nov 2021 - 3h 12min - 76 - Svona var sumarið 2004
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - SJÓVÁ - DOMINO'S Kennaraverkfallið kom eins og himnasending í líf bólugrafinna unglinga með tilheyrandi áhorfi á Paradise Hotel á sama tíma og leikmönnum var bannað að fagna með því að fara úr að ofan. Gefum Nylon þá virðingu sem þær eiga skilið. Veigar Páll er í eigu kýpverska fjárfestingafélagsins Urania Trade Ltd og sjómaður frá Grindavík syngur sig inn í hug og hjörtu þjóðarinnar. Risinn vaknaði, og hélt svo sína leið.... Jáááááááá, hann hafði fengið huuuuuuugmyyyynd!
Fri, 29 Oct 2021 - 3h 09min - 75 - Svona var sumarið 2003
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - DOMINO'S - SESSION CRAFT BAR Það er tilgerð að halda því fram að Botnleðja hefði átt að fara fyrir hönd Íslands í Eurovision árið 2003. Kveður við nýjan tón í íþróttaumfjöllun með tilkomu stórs karakters inn á íþróttadeild DV og KR gerir tilraunir til þess að stofna ofurlið. Bragi Valdimar semur fótboltalag og goðsagnir snúa aftur í íslenska landsliðið. Þróttarar raða inn mörkum í boði hins eina sanna Domino's Tríós, en bald and beautiful Carnell bíður færis fyrir aftan þá eins og sláttumaðurinn slyngi.
Fri, 15 Oct 2021 - 2h 54min - 74 - Svona var sumarið UPPGJÖR: 1992-2002
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - DOMINO'S - SESSION CRAFT BAR Litum yfir farinn veg í ljósi þess að changing of the guards er svo sannarlega að ganga í garð. Völdum draumalið þessa tíma, hömruðum á því sem að þurfti að hamra á og hringdum eitt mikilvægasta símtal þáttanna til þessa. Hver skrifaði barnabókaseríurnar "Fjör í"? Hver er útibússtjóri Sjóvá á Akranesi? Viðmælendur: Óskar Ófeigur Jónsson, sá maður sem hefur fært íslenskri íþróttaumfjöllun mest í nútímaknattspynru.
Fri, 08 Oct 2021 - 1h 57min - 73 - Svona var sumarið 2002
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S Árið er 2002. Við fáum ekki að vera með í Eurovision en Skífan kaupir upp allar rapphljómsveitir landsins og gefur þeim plötusamning. Fólk kaupir sér hringitóna eins og það eigi lífið að leysa og starfsmenn Skjás Eins vöknuðu á bömmer á fyrsta sunnudegi hvers mánaðar. Gylfi Orrason skapar sér nafn í Árbænum og í Kastljósinu, Willum veðjaði á réttan hest þegar mest var undir (þó honum finnist ís ekki góður) og Mr. September heldur í hefðir. Minni á leiðréttingahornið Viðmælendur: Jón Skaftason, geit í Vesturbænum og maki oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Kristinn Tómasson, á stuðningsmannaklúbb skírðan í höfuðið á sér.
Thu, 30 Sep 2021 - 2h 32min - 72 - Svona var sumarið 2001
LENGJAN - DOMINO'S - THULE - SESSION CRAFT BAR - SJÓVÁ Árið 2001 vorum við relegated úr Eurovision og sendir í eins árs bann eftir að hafa sent Noel Gallagher eftirhermu og suðrænan Sauðárkróksstrák til leiks. Skagamenn voru gjaldþrota og hringt var í kunnuglegan menn sem átti að baka þá út úr vandræðunum. KRingar reyndu að fá Daniel Amokachi til að fylla í skarð Andra Sigþórsson en fyrir því var lítil innistæða. XXX Rottweiler héldu partý í Árbænum og buðu engum sem Þormóði Egils líkaði ekki en á endanum stóð eitt lið uppi sem sigurvegari. Þeir voru ólíkir innbyrðis, en mynduðu eina sterka heild. Minnum á leiðréttinga og söguhornið í skilaboðum á miðlunum! Viðmælendur: Sturlaugur Haraldsson, 6 faldur Íslandsmeistari sem var að senda boltann á staðinn sem átti að taka aukaspyrnuna en ekki að taka aukaspyrnuna sjálfa. Gunnar Heiðar Þorvaldsson, fyrrum landsliðsmaður sem heldur því fram að Sturlaugur hafi verið að taka aukspyrnuna. Leifur Grímsson, fyrrum rekstrarstjóri KR-sport, Húsvíkingur og Leedsari
Thu, 23 Sep 2021 - 2h 42min - 71 - Svona var sumarið 2000
LENGJAN - DOMINO'S - THULE - SESSION - SJÓVÁ Sumarið 2000 hætti ungt fólk að spila fótbolta upp á Akranesi og fór að rúnta. Eyjamenn voru nokkrum sekúndum frá því að klófesta tíunda besta markmann heims. KR færði sig yfir í normal fit XXL Reebok treyjur og Páll Guðlaugsson sótti nýja Brasilíumenn. Áhorfendur fengu lítið fyrir peninginn þegar kom að gæðum knattspyrnunnar og umdeildur leikur í lokaumferðinni. Minnum sem endranær á leiðréttinga- og söguhornið. Dæliði þessu á okkur Viðmælendur: Jens Martin Knudsen, eini Færeyingurinn til að þjálfa í efstu deild á Íslandi og goðsögn á Ólafsfirði sem elskaði fyndnar húfur.
Thu, 16 Sep 2021 - 2h 45min - 70 - Danny Guthrie
LENGJAN - DOMINOS - THULE - BLUSH Danny Guthrie spilaði með Liverpool, Newcastle, Bolton og Reading í Premier League og spilaði með haug af geggjuðum spilurum. Þvílíkur gentleman and a scholar og valdi draumaliðið sitt og svaraði öllum þeim spurningum sem í hann voru fleygðar. Danny Guthrie picks his best starting eleven of players that he played with in his career.
Mon, 06 Sep 2021 - 1h 35min - 69 - Bjarni Benediktsson
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - BLUSH.IS Bjarni Ben reif Stjörnuna upp í hæstu hæðir ásamt fyrstu gullkynslóð Garðabæjar og spilaði ca 170 leiki með félaginu oftar en ekki sem fyrirliði áður en hann lagði skóna á hilluna vegna meiðsla.
Mon, 30 Aug 2021 - 1h 16min - 68 - Svona var sumarið 1999
LENGJAN - DOMINO'S - THULE - BLUSH Biðin var á enda árið 1999, við vorum loksins mætt aftur í Eurovision! Popptíví hóf göngu sína og Þórhallur miðill spáði fyrir um framtíð Heimi Guðjónssonar. KRingar settu allt traust sitt á nýtt rekstrarform þar sem gildi félagsins voru JÁKVÆÐNI-TRÚ-GLEÐI, það var hrækt í andlitið á Loga Ólafssyni og ælt yfir Ólaf Ragnar Grímsson í stúkunni á Ísland-Rússland. Met féllu, sársaukar voru linaðir og hjörtu voru brotin. Svona var sumarið 1999. Viðmælendur: Magnús Orri Schram
Thu, 15 Jul 2021 - 2h 35min - 67 - Svona var sumarið 1998
LENGJAN - DOMINO'S - THULE - BLUSH Allir og ömmur þeirra fóru í atvinnumennsku eftir tímabilið 1997 en íslenska þjóðin samdi við félagsfælin háhyrning til að fylla í það skarð. Knattspyrnufólk landsins flykktist af Astró þegar handboltamenn fóru að gera sig gildandi þar og færðu sig yfir á Skuggabarinn. Íslandsvinurinn Louis Saha og Nicolas Anelka léku listir sínar á Akranesi, við gerðum ekkert í Evrópu og tveir ástsælustu feðgar þjóðarinnar kíktu á íslenska grasvelli. Viðmælendur: Magnús Orri Schram, hluti af hinni mögnuðu B. Schram ætt og fyrsti framkvæmdastjóri KR-sport. Þórarinn Brynjar Kristjánsson, Bjargvætturinn 2.0 frá Keflavík.
Wed, 07 Jul 2021 - 2h 25min - 66 - Svona var sumarið 1997
LENGJAN - DOMINO'S - THULE - BLUSH.IS Árið 1997 kynntist Melanie Brown Fjölni Þorgeirssyni, Geir Sveinsson var með minnstu hendur íslenska handboltalandsliðsins og Skítamórall gerðu einhver farsælu félagsskipti í íslenskri tónlistarsögu. Utan þess var allt í báli brand upp á Akranesi og í Frostaskjólinu en Keflvíkingar og Eyjamenn lifðu í undralandi goðsagnar sem hafði snúið heim annars vegar og sérfræðings í landsbyggðarþjálfun hins vegar. Viðmælendur: Þorsteinn Þorvaldsson, fyrrum sparisjóðsstjóri á Ólafsfirði og maðurinn á bakvið ævintýri Leifturs í efstu deild. Valdimar Kristófer Sigurðsson, lengi vel markahæsti leikmaður Íslandsmótsins og á að eiga styttu af sér í Borgarnesi.
Thu, 01 Jul 2021 - 2h 31min - 65 - Svona var sumarið 1996
LENGJAN - DOMINO'S - THULE - BLUSH.IS Árið 1996 hóf Séð&Heyrt göngu sína, Sigurjón Kjartansson x Baltasar Kormákur collabið byrjaði með sýningunni Áfram Latibær og tímamóta risaeðlusýning var haldin í Kolaportinu. Hilmir snéri heim upp á Skaga og gerði allt til þess að halda Íslandsmeistaratitlinum frá Mordor eftir 28 ár af sársauka hjá KR sem voru komnir með nýjan Sauron í brúnna. Hajrudin Cardaklija varði síðan klikkað mörg víti. Viðmælendur: Gunnlaugur Jónsson, annar hluti tvíeykisins Gulli&Geiri og hafsent af Skaganum. Hilmar Björnsson, umdeildur hægri bakvörður/kantmaður KRinga og núverandi íþróttastjóri fréttadeildar RÚV.
Fri, 25 Jun 2021 - 2h 17min - 64 - Svona var sumarið 1995
LENGJAN - DOMINO'S - THULE - BLUSH.IS Skaginn átti ekki bara besta fótboltalið landsins heldur fannst þar líka elsta KitchenAid vél Evrópu. Valsmenn ætluðu að kaupa sér lyklana að árangri FH undanfarin ár á leikmannamarkaðnum. Landsbyggðin upplifði sitt mesta blómaskeið í íslenskri knattspyrnu en allt saman blikknaði þetta í samanburði við mannlega harmleikinn sem heimsmeistaramótið í handbolta á Íslandi var. Viðmælendur: Víðir Sigurðsson, einn stofnenda Draumaliðsdeildar DV, fyrstu íslensku fantasy deildarinnar, og einn af íþróttafréttamönnunum sem sniðgekk Olgu Færseth sem íþróttamann ársins árið 1994. Arnar Gunnlaugsson, lenti í 2. sæti í 1á1 móti hollensku deildarinnar þar sem hann vann Philip Cocu og Gerald Sibon en tapaði fyrir Edgard Davids í úrslitaleik
Wed, 16 Jun 2021 - 1h 51min - 63 - Svona var sumarið 1994
LENGJAN - DOMINO'S - THULE - BLUSH.IS SVIPTINGAR! Guðjón Þórðarson færir sig yfir í Vesturbæinn og reynir að taka allt Skagaliðið með sér. Hver var eini knattspyrnumaðurinn sem komst á lista yfir 25 bestu elskhuga landsins? Hvernig er hægt að vera yfirburðarleikmaður í deildinni 15 ára gamall? Fórum svo yfir ævarandi smánarblett íþróttafréttamanna vegna kjörs á íþróttamanni ársins fyrir árið 1994. Viðmælendur: Rúnar Kristinsson, mögulega besti leikmaður Íslandsmótsins sem aldrei varð Íslandsmeistari.
Wed, 09 Jun 2021 - 1h 48min - 62 - Svona var sumarið 1993
Lengjan - Domino's - Thule - Blush.is Hvernig fóru Skagamenn að því að gera enn betur þrátt fyrir að missa tvo af sínum bestu leikmönnum? Hverjir voru raunverulega bestu skemmtistaðir landsins? Hvernig fóru Rage Against The Machine að því að gera FH að toppliði? Hvernig gerist það að einu börnin í heiminum fædd á árunum 1983-1995 sem þekkja teiknimyndina Prinsessan og Durtarnir séu frá Íslandi? Farið yfir sumarið 1993 í íslenskum fótbolta, tíðarandinn krufinn og reynt að komast að því hvað virkilega var að eiga sér stað innan sem utan íslenskra knattspyrnuvalla. Viðmælendur: Guðjón Þórðarson, geit. Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins og drekkur frítt til dauðadags í Vestmannaeyjum fyrir að vera Bjargvætturinn
Wed, 02 Jun 2021 - 1h 28min - 61 - Svona var sumarið 1992
Lengjan - Domino's - Thule - Blush.is Pele á Egilsstöðum, óstöðvandi tvíburar í fullkomnu valdajafnvægi og hassneysla hjá menningarelítu Akureyrar. Farið yfir sumarið 1992 í íslenskum fótbolta, tíðarandinn krufinn og reynt að komast að því hvað virkilega var að eiga sér stað innan sem utan íslenskra knattspyrnuvalla. Viðmælendur í þættinum: Guðmundur Hreiðarsson, fyrrum landsliðsmarkvörður og professional hand model. Eysteinn Húni Hauksson, miðjumaður í liði Hattar sem setti Íslandsmet í því að halda hreinu árið 1992.
Wed, 26 May 2021 - 1h 36min - 60 - Auðunn Blöndal
LENGJAN - R3 RÁÐGJÖF (www.r3.is) - DOMINO'S - TUBORG - WHITEFOX OG SKRUF FJARÞJÁLFUN.IS - SESSION CRAFT BAR - SUIT UP REYKJAVÍK Auðunn Blöndal ætlaði að verða atvinnumaður í fótbolta þangað til hann áttaði sig á því að hann nennti því ekki alveg. Alvöru Draumalið úr grasrótinni af landsbyggðinni.
Wed, 17 Mar 2021 - 44min - 59 - Arnar Sveinn Geirsson
Fyrrum unglingalandsliðsmaðurinn, Íslandsmeistarinn, forseti leikmannasamtakanna og pistlahöfundurinn Arnar Sveinn Geirsson gerði upp meistaraflokksferilinn sem hófst árið 2008 þegar Óskar Bjarni og Willum háðu hatramma deilu um örlög hans í íþróttum. Tveir klukkutímar af tandurhreinni íslensku.
Tue, 09 Mar 2021 - 2h 11min - 58 - Bjarni Jóhannsson
LENGJAN - DOMINO'S - WHITE FOX OG SKRUF - FJARÞJÁLFUN.IS - TUBORG - SESSION CRAFT BAR - SUIT UP REYKJAVÍK Við Bjarni möluðum saman í tæplega 140 mínútur og náðum ekki einu sinni að fara yfir allt frá þjálfaraferlinum hans þegar hann valdi draumalið þeirra leikmanna sem hann hefur þjálfað á ferlinum. Þjálfaraferill sem spannar einhver 40 ár og lið frá öllum landshornum hjá sennilega leikjahæsta þjálfara Íslandsmótsins.
Wed, 03 Mar 2021 - 2h 16min - 57 - Gunnar Nielsen
Lengjan - Domino’s - White Fox og Skruf - Tuborg - Fjarþjálfun.is - Session Craft Bar - Suit Up Reykjavík Hálf íslenski Færeyingurinn geðþekki var í aðalliðshóp hjá Blackburn og spilaði með Manchester City. Draumalið eins og þið hafið aldrei heyrt það áður.
Thu, 25 Feb 2021 - 1h 36min
Podcasts semelhantes a Draumaliðið
Barangay Love Stories Barangay LS 97.1 Manila | GMA Network Inc.
Good Bad Billionaire BBC World Service
Cyprian Majcher Cyprian Majcher
Die Nachrichten Deutschlandfunk
Orlofið Hafdís Arna Sigurðardóttir og Jasmín Guðrún Abu Libdeh
Podcast Wojenne Historie Historia II wojny światowej
Forensic Files HLN
Nowenna pompejańska. Świadectwa https://pompejanska.krolowa.pl/
الشيخ أحمد العجمي islami
True Crime Documentary Justin Kandell Network
WojewódzkiKędzierski Kuba Wojewódzki, Piotr Kędzierski
Læknavarpið Læknablaðið
بودكاست عقلية Moneim
Snapped: Women Who Murder Oxygen
DUDEK o polityce prof. Antoni Dudek i Super Exspress
Przemek Górczyk Podcast Przemek Górczyk
Sceny zbrodni RMF FM
Frjálsar hendur RÚV
Í ljósi sögunnar RÚV
Skuggavaldið skuggavaldid
Money News Tapt Media
Nauka To Lubię Tomasz Rożek
Żurnalista - Rozmowy bez kompromisów zurnalistapl
العلم والإيمان - د. مصطفى محمود علم ينتفع يه