Filtrar por gênero

Úti

Úti

Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal

ÚTI er hlaðvarp um útivist, ævintýri og fólkið sem er alltaf að finna sér eitthvað til að brasa úti. Í þáttunum er farið yfir fjallamennsku, hjólreiðar, ferðalög, hálendið, náttúruna og alls konar sögur úr íslenskri útivist. Umsjónarmenn eru Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal. Þættirnir eru gefnir út á tveggja vikna fresti. Email: kristin.lyngdal@gmail.com eða buibjarmar@gmail.com Instagram: @utihladvarp

80 - Kilimanjaro fyrir þrítugt - Steinunn Helgadóttir
0:00 / 0:00
1x
  • 80 - Kilimanjaro fyrir þrítugt - Steinunn Helgadóttir

    Steinunn er ung og metnaðarfull útivistarkona með Bs í jarðfræði og Ms í umhverfisbreytingum á Norðurslóðum. Hún starfar sem náttúruvásérfræðingur á Veðurstofunni, elskar Snæfellsjökulsþjóðgarð, á góða kúkasögu af Kilimanjaro og stefnir á að heimsækja Machu Picchu á næsta ári. Við fengum að kynnast þessari duglegu konu sem væri til í að vera utandyra alla daga, svona eins og við.




    .

    Fri, 23 Oct 2026 - 1h 18min
  • 79 - Úti í borginni og bíllaus lífstíll - Brynhildur Bolladóttir

    Brynhildur Bolladóttir nýkjörinn formaður samtaka um bíllausan lífstíl kíkti í Úti. Já það er líka hægt að vera Úti í borginni. Við förum yfir fréttir af sviði útivistar og rennum svo yfir í virkar samgöngur bæði í borg og úti á landi.

    Wed, 07 Oct 2026 - 50min
  • 78 - Klifursenan og snarbratta Þuríður með Jónasi G. Sig. (Jonna)

    Í þættinum fáum við til okkar Jónas G. Sigurðsson klifrara og útivistargarp. Við vörum yfir helstu fréttir af útivist svona í byrjun hausts og hendum okkur svo í mál málana; hver var fyrstur uppá Þuríði, klettur sem stendur úr Óshyrnu sunnan við Bolungarvík. En Jónas og félagi hans Andri fóru uppá hana í byrjun september en voru þeir fyrstir, það kemur í það minnsta í ljós í þessum þætti. Ásamt mörgu um klifursenuna á Íslandi.


    Hægt er að fá góða vettlinga í Peloton, eins og fram kemur í þættinum. Gott að kíkja þangað.

    Eins má fá flenni fínan vatna- og sjóúbúnað hjá Villimanninum um að gera að græja sig upp þar.



    Wed, 23 Sep 2026 - 1h 32min
  • 77 - Róbert Marshall og meira úti

    Um þessar mundir sýnir RÚV þriðju seríuna af Úti, þáttarseríu Róberts Marshall og Brynhildar Ólafsdóttur. Í þáttunum fá áhorfendur að fylgja hópum þeirra hjóna í gegnum hin ýmsu útivistarævintýri. Okkur fannst því tilvalið að fá Róbert til okkar í spjall um þættina, ævintýrin, útivistina og lýðheilsumál þjóðarinnar. Við mælum eindregið með að kíkja á þættina Úti sem finna má í Sarpinum. Einnig mælum við með að kynna sér haustdagskrá Útihreyfingarinnar.Við þökkum Peloton fyrir gott samstarf og hvetjum ykkur til að kíkja á þangað, þessa dagana er 30% afsláttur af fatnaði og því hægt að gera kjarakaup.

    Fyrir þau sem ætla skella sér í sjóinn er síðan um að gera að kíkja á Villimanninn þar sem er allskyns sjó- og vatnadót til sölu.

    Wed, 02 Sep 2026 - 1h 08min
  • 76 - Reykjavíkurmaraþon og haustið - Kristín og Búi

    Í þessum þætti þá förum við yfir eitt og annað, undirbúning fyrir Reykjavíkurmaraþon og líka skort á undirbúningi. Eins förum við aðeins yfir sumarið okkar og rútínuna sem haustið ber með sér.

    Það er af nægu að taka í dagskrá haustsins, Kristín verður með Fjallakonu námskeið sem byrjar í haust (tilvalið fyrir konur sem vilja ganga á fjöll og eins þær sem stefna á að verða fjallkona næsta júní) og Búi verður með styrktarþjálfun fyrir hlaupara og hjólara uppí Mjölni (meira um það síðar).

    Eins ætlum við að hlaupa til styrktar Reykjadalog hvetjum fólk eindregið til þess að heita á okkur eða önnur flott málefni.

    Eins má sækja sér ævintýrabúnað í versluninni Peloton sem hentar vil til allskyns fjallabrölts.

    Wed, 19 Aug 2026 - 1h 03min
Mostrar mais episódios