Podcasts by Category
Úti

ÚTI er hlaðvarp um útivist, ævintýri og fólkið sem er alltaf að finna sér eitthvað til að brasa úti. Í þáttunum er farið yfir fjallamennsku, hjólreiðar, ferðalög, hálendið, náttúruna og alls konar sögur úr íslenskri útivist. Umsjónarmenn eru Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal. Þættirnir eru gefnir út á tveggja vikna fresti. Email: kristin.lyngdal@gmail.com eða buibjarmar@gmail.com Instagram: @utihladvarp
- 80 - Kilimanjaro fyrir þrítugt - Steinunn Helgadóttir
Steinunn er ung og metnaðarfull útivistarkona með Bs í jarðfræði og Ms í umhverfisbreytingum á Norðurslóðum. Hún starfar sem náttúruvásérfræðingur á Veðurstofunni, elskar Snæfellsjökulsþjóðgarð, á góða kúkasögu af Kilimanjaro og stefnir á að heimsækja Machu Picchu á næsta ári. Við fengum að kynnast þessari duglegu konu sem væri til í að vera utandyra alla daga, svona eins og við.
Fri, 23 Oct 2026 - 1h 18min - 79 - Úti í borginni og bíllaus lífstíll - Brynhildur BolladóttirWed, 07 Oct 2026 - 50min
- 78 - Klifursenan og snarbratta Þuríður með Jónasi G. Sig. (Jonna)
Í þættinum fáum við til okkar Jónas G. Sigurðsson klifrara og útivistargarp. Við vörum yfir helstu fréttir af útivist svona í byrjun hausts og hendum okkur svo í mál málana; hver var fyrstur uppá Þuríði, klettur sem stendur úr Óshyrnu sunnan við Bolungarvík. En Jónas og félagi hans Andri fóru uppá hana í byrjun september en voru þeir fyrstir, það kemur í það minnsta í ljós í þessum þætti. Ásamt mörgu um klifursenuna á Íslandi.
Hægt er að fá góða vettlinga í Peloton, eins og fram kemur í þættinum. Gott að kíkja þangað.
Eins má fá flenni fínan vatna- og sjóúbúnað hjá Villimanninum um að gera að græja sig upp þar.
Wed, 23 Sep 2026 - 1h 32min - 77 - Róbert Marshall og meira úti
Um þessar mundir sýnir RÚV þriðju seríuna af Úti, þáttarseríu Róberts Marshall og Brynhildar Ólafsdóttur. Í þáttunum fá áhorfendur að fylgja hópum þeirra hjóna í gegnum hin ýmsu útivistarævintýri. Okkur fannst því tilvalið að fá Róbert til okkar í spjall um þættina, ævintýrin, útivistina og lýðheilsumál þjóðarinnar. Við mælum eindregið með að kíkja á þættina Úti sem finna má í Sarpinum. Einnig mælum við með að kynna sér haustdagskrá Útihreyfingarinnar.Við þökkum Peloton fyrir gott samstarf og hvetjum ykkur til að kíkja á þangað, þessa dagana er 30% afsláttur af fatnaði og því hægt að gera kjarakaup.
Fyrir þau sem ætla skella sér í sjóinn er síðan um að gera að kíkja á Villimanninn þar sem er allskyns sjó- og vatnadót til sölu.
Wed, 02 Sep 2026 - 1h 08min - 76 - Reykjavíkurmaraþon og haustið - Kristín og Búi
Í þessum þætti þá förum við yfir eitt og annað, undirbúning fyrir Reykjavíkurmaraþon og líka skort á undirbúningi. Eins förum við aðeins yfir sumarið okkar og rútínuna sem haustið ber með sér.
Það er af nægu að taka í dagskrá haustsins, Kristín verður með Fjallakonu námskeið sem byrjar í haust (tilvalið fyrir konur sem vilja ganga á fjöll og eins þær sem stefna á að verða fjallkona næsta júní) og Búi verður með styrktarþjálfun fyrir hlaupara og hjólara uppí Mjölni (meira um það síðar).
Eins ætlum við að hlaupa til styrktar Reykjadalog hvetjum fólk eindregið til þess að heita á okkur eða önnur flott málefni.
Eins má sækja sér ævintýrabúnað í versluninni Peloton sem hentar vil til allskyns fjallabrölts.
Wed, 19 Aug 2026 - 1h 03min - 75 - Birta & Emil - Allir í skátana!
Birta Hall og Emil Kjartan Valdimarsson, skátar og verðandi menntaskólanemar komu og spjölluðu um nýliðið Landsmót skáta og sjálfboðaliðastarf sitt í skátamiðstöð í Svíþjóð fyrr í sumar.Landsmót skáta var haldið á Akureyri dagana 20.-26. júlí. Þar komu saman skátar alls staðar að úr heiminum, skelltu upp tjaldbúðum og sóttu veglega og fjölbreytta dagskrá. Birta og Emil komu reynslunni ríkari heim og þau hvetja alla til að koma í skátana.
Úti er í boði Peloton ævintýra-verslunar, um að gera að sækja sér útbúnað þangað.
Um að gera að kynna sér dagskránna hjá Úti hreyfingunni fyrir þau sem vilja keyra á útivist næsta haust.
Eins erum við með fréttabréffyrir áhugasöm. Þar koma tilkynningar um nýja þætti og einhverjar hugrenningar dagskrárstjóra svona af og til.
Wed, 05 Aug 2026 - 51min - 74 - María Ögn, leiðsagnarlífið og Rift
Fimmti þáttur, gjörðu svo vel. Förum aðeins yfir vegferðina hjá Maríu úr stífu keppnisprógrami og yfir í hjólaleiðsögn, rútuprófið og fleira stuð. Tökum aðeins stöðuna á endurstillingu á markmiðum og forsendum gagnvart útivist og hreyfingu og allskonar eins og smá Rift yfirferð séð frá hliðarlínunni.
Þessi þáttur er í boði Peloton þar sem er hægt að fá allskonar snilld í ævintýrin.
Eins má endilega kynna sér snildina sem er í boði hjá Útief einhver áhugi er á að gíra sig í útið.
Wed, 22 Jul 2026 - 1h 19min - 73 - Þroskaferlar á fjöllum og þermistigið
Í þættinum förum við yfir ævintýri síðustu daga hjá Kristínu og Búa. Kristín endaði bæði í á og á vegg í hjólaferð og er farin að uppgötva sjarma tjaldlífsins. Búi átti hins vegar eftirminnilega stund uppi á heiði – þar sem náttúran var bæði yfirþyrmandi og hans innri náttúra minnti á sig (hann kúkaði uppá heiði).
Þátturinn er í boði Peloton hvar fást frábærar útivistarvörur gegn vægu gjaldi.
Bestu þakkir fá BL fyrir að lána okkur Dacia Bigster sem kom að mjög góðum notum við andlega krefjandi aðstæður.
Eins viljum við benda fólki á Villimanninn, verslun með vörur fyrir sjó- og vatnasport.
Wed, 08 Jul 2026 - 1h 16min - 72 - Eru allir að hneykslast á hlunknum? - Kristín og Sigga Bára
Í þetta sinn er gestur þáttarins Sigríður Bára Ingadóttir, 2ja barna móðir, vélaverkfræðingur, og útivistarkona með meiru.Frænkurnar Kristín og Sigga Bára ræða saman reynslu sína af því að hreyfa sig lítið, vera of þungar, andlega og líkamlega yfir í að gera útivist að lífsstíl sem þær geta ekki hugsað sér að vera án í dag.
Þær tækla spurningar eins og hvernig megi komast yfir óttann við vera hægastur, hvaða námskeið skal velja, hvernig maður öðlast sjálfstraust til að byrja og gefast ekki upp, hvernig maður heldur sér við eftir barnsburð og margt fleira.Takk fyrir komuna Sigga Bára.
Peloton er ævintýraverslun með allskonar gotterí fyrir útivistarfólk, endilega að gera sér ferð þangað eða skoða vöruúrvalið á netinu.
Tónlist í þáttunum er eftir DJ flugvél og geimskip
Wed, 24 Jun 2026 - 1h 04min - 71 - 90% meira næs með súkkulaði, Guðrún Sóley Gestsdóttir
Í þætti dagsins er þemað að komast af stað, það eru fá betur til þess fallin en hún Guðrún Sóley enda fá sem nenna jafn miklu og eru jafn peppuð gagnvart því að peppa aðra. Guðrún fer yfir brothvarf úr hlaupum, endurstillingu gagnvart hreyfingu og talar mikið og fallega um kajak ástundun.
Pelotoner ævintýraverslun með allskonar gotterí fyrir útivistarfólk, endilega að gera sér ferð þangað eða skoða vöruúrvalið á netinu.
Tónlist í þáttunum er eftir DJ flugvél og geimskip
Wed, 10 Jun 2026 - 1h 06min - 70 - Hvað er planið? - Fyrsti þáttur af Úti ævintýra hlaðvarpi
ÚTI er nýtt hlaðvarp um útivist í öllum sínum myndum — fjallamennska, ferðalög, hjólreiðar, ævintýri og allt sem fær okkur af stað og í útið.
Umsjónarmenn eru Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal sem kafa ofan í sögur, fólk og upplifanir úr íslenskri útivistarmenningu.
Úti er í boði Peloton þar sem hægt er að versla frábæran ævintýraútbúnað.
Wed, 27 May 2026 - 1h 02min - 69 - 69. Síðasti þátturinn - Hjólavarpið þakkar fyrir sig
Jæja, þá er komið að þessu síðasti þátturinn. Þakka öllum ofboðslega vel fyrir þessa vegferð, þeim sem hlustuðu og þeim sem komu í þáttinn. Ég er búinn að eignast góða vini á þessari vegferð og verð hjólasamfélaginu ævinlega þakklátur.
Eins er ég þákklátur öllum styrktaraðilinum sem hafa komið að þessu verkefni, Pelaton er þar efst á blaði sem hefur staðið baki þáttunum núna í að verða ár, en þar má versla ýmiskonar ævintýraútbúnað.
Það er annað ævintýri fram undan, endilega fylgist með.
Thu, 07 May 2026 - 34min - 68 - 68. Hamfaraástand og eElja, nýtt rafmagnsfjallahjól frá Lauf
Í þættinum kemur Benedikt Skúlason stofnandi og framkvæmdastjóri Lauf og lýsir vendingum sem hafa átt sér stað síðustu vikur og segir frá nýju rafmagnsfjallahjóli sem var sett á markað núna á dögunum.
Hjólavarpið er í boði PELOTON reiðhjóla- og útivistarverslunar. PELOTON er í Klettagörðum 23 og vefverslunin er alltaf er opin á https://www.peloton.is/
Wed, 01 Apr 2026 - 49min - 67 - 67. Holdafar er ekki heilsa með Töru Margréti Vilhjálmsdóttur
Í þessum þætti ræðum við tengsl milli holdafars og heilsu eða öllu heldur skortin á tengslum milli holdafars og heilsu. Á dögunum voru sett fram drög að aðgerðaráætlun um málefni offitu. Í umsögnum eru mörg sem fagna þessum drögum en önnur sem benda á vankanta þess, þar á meðal er Tara Margrét Vilhjálmsdóttir sem er viðmælandi í þætti dagsins. Í þættinum ræðum við þessi drög ásamt örðu þeim tengdum; fitufordóma og þyngdarhlutlausa nálgun.
Hjólavarpið er í boði Peloton hjólreiða og útivistarverslun sem staðsett er í Klettagörðum 23. Þar má finna frábæran fatnað til að takast á við ævintýri við íslenskar aðstæður.
Wed, 18 Mar 2026 - 1h 09min - 66 - 66. Mæja Sæm og gullhjálmurinn
Mæja María Sæm Bjarkardóttir er handhafi Gullhjálmsins í ár sem er viðkenning veit þeim sem hafa lagt mikið til hjólasamfélagsins á Íslandi. Hún var í fyrstu tilnefnd og síðar kosinn í kostningu á vegum Hjólavarpsins og Hjólreiðasambands Íslands. Í þættinum tökum við aðeins stöðuna á Mæju, en hún hefur áður komið til mín eða í þætti 46.
Hjólavarpið er í boði PELOTON reiðhjóla- og útivistarverslunar. PELOTON er í Klettagörðum 23 og vefverslunin er alltaf er opin á peloton.is @pelotoniceland
Wed, 18 Feb 2026 - 25min - 65 - 65. Rafmagnshjól
Ég og Hafsteinn Ægir rennum yfir helstu málaflokka sem snúa að rafmagnshjólum og hvað maður ætti að pæla í þegar maður ætlar að kaupa eitt slíkt.
Endilega deilið með vinum og félögum sem spyrja um rafmagnshjól.
Hjólavarpið er í boði Peloton þar sem má finna frábær hjól og geggjað ævintýradót. Þá má finna í Klettagörðum ef þú vilt kíkja í heimsókn.
Wed, 04 Feb 2026 - 45min - 64 - 64. Uppgjörið 2025
Í þessum þætti förum við yfir allt sem gerðist á hjólaárinu 25, gleymdum samt helling en gerðum okkar besta. Þau Auðunn, Ása, Bríet og Magne kíktu til mín í Podcaststöðina og við rendum yfir árið bæði það súra og það sæta. Eins tilkynnum við um þann aðila sem hlýtur Gullhjálminn árið 2025.
Hjólavarpið er í boði PELOTON reiðhjóla- og útivistarverslunar. PELOTON er í Klettagörðum 23 og vefverslunin er alltaf er opin á peloton.is
Wed, 14 Jan 2026 - 1h 27min - 63 - 63. „Gaman að vera með erfiða samkeppnisaðila“ - Einar Bárða og nýja keppnin Cuckoo
Yfirferð yfir nýja gravel keppni sem bætist við flóruna næsta sumar. Við rennum yfir aðdragandann og síðan helstu einkenni þessarar nýju keppni. Í lokinn rennum við aðeins yfir sveitastjórnarmálin í ljósi kostninga sem verða næsta vor.
Hjólavarpið er í boði Pelaton reiðhjóla- og útivistarverslunar. Pelaton er í Klettagörðum 23 og vefverslunin er alltaf er opin.
Wed, 17 Dec 2025 - 1h 38min - 62 - 62. Hafsteinn Ægir og vetrarhjólerí
Í þessum þætti veltum við upp áskorunum vetrarhjólreiða. Við ræðum hvernig best sé að laga sig að breyttum aðstæðum þegar myrkrið lengist og göturnar verða hálar. Gestur þáttarins er Hafsteinn Ægir Geirsson deilir reynslu sinni af búnaði, vetrardekkjum, lýsingu og viðhaldi sem gera hjólið traustara yfir köldustu mánuðina. Einnig förum við yfir hvernig hægt er að halda hvatningunni gangandi, skipuleggja æfingar yfir veturinn og nýta hjólreiðar allt árið um kring. Reynum líka aðeins yfir nýjustu vendingar í malarhjólreiðunum en í næsta þætti ætlum við að heyra meira af því.
Hjólavarpið er í boði PELOTON reiðhjóla- og útivistarverslunar. PELOTON er í Klettagörðum 23 og vefverslunin er alltaf er opin á peloton.is.
Wed, 10 Dec 2025 - 48min - 61 - 61. Efni
Í þætti dagsins förum við yfir helstu efnin sem eru í reiðhjólum. Stál, ál og koltrefjar - vonandi lærum við eitthvað á þessum þætti.
Hjólavarpið er í boði Pelaton, hjólreiða- og útivistarverslun í Klettagörðum. Þar má finna frábær hjól og vörur tengdar hjólreiðum.
Wed, 26 Nov 2025 - 34min - 60 - 60. „Það voru mistök að taka þessi lyf“ - afbrigðilegar niðurstöður Þorsteins Bárðarsonar
Í þessum þætti ræðum við umtalaðasta íslenska hjólamál þessa árs, Þorsteinn Bárðarson hefur verið úrskurðaður í bráðabirgðabann eftir að lyfjapróf sýndi tilvist fjögurra efna sem öll eru á bannlista WADA – þar á meðal Ligandrol, Ostarine og RAD140. Eins hefur Þorsteinn sjálfur gefið út yfirlýsingu þar sem hann gengst við því að hafa notið þessi efni.
Gestur þáttarins er lyfjafræðingurinn Ingimar Jónsson, sem útskýrir hvernig þessi efni virka, af hverju þau eru bönnuð, og lyfjaeftirliti í íþróttum. Við köfum aðeins í þetta mál og tölum líka almennt um viðfangsefnið.
Hjólavarpið er í boði PELOTON reiðhjóla- og útivistarverslunar. PELOTON er í Klettagörðum 23 og vefverslunin er alltaf er opin á peloton.is.
Wed, 05 Nov 2025 - 1h 09min - 59 - 59. „Ógeðslega gott að næstum því missa eitthvað“ með B-boy Hot Take @Reynisson
Í þætti dagsins kemur enginn annar en Böðvar Tandri Reynisson, hann hefur verið virkur í hreyfingu, þjálfun og næringafræði og við förum yfir þessi viðfangsefni í þættinum.
Böddi hefur verið virkur í athugasemdum um næringu og hreyfingu á samfélagsmiðlum og við förum dálítið yfir stemninguna í þessu.
Hjólavarpið er í boði PELOTON reiðhjóla- og útivistarverslunar. PELOTON er í Klettagörðum 23 og vefverslunin er alltaf er opin á peloton.is @pelotoniceland
Hjólavarpið er líka í boði Fors.is, þið fáið 15% afslátt með því að nota HJOLAVARPID15
Wed, 22 Oct 2025 - 1h 25min - 58 - 58. Viku á undan Tour de France
Félagarnir Magnús Fjalar Guðmundsson og Bjarni Birgisson, eigendur hjólreiðaverslunarinnar Peloton, létu drauminn rætast og hjóluðu þvert yfir Frakkland – sömu leið og farin er í Tour de France.
Í þættinum fjöllum við um þetta ævintýri, hvernig þeir undirbjuggu sig fyrir 3.338 kílómetra og 51.550 metra hækkun á þremur vikum, áskoranirnar sem fylgdu – og einnig um rekstur á hjólaverslun og hjólastemninguna á Íslandi og hvernig hún er að þróast.
Hjólavarpið er í boði Peloton reiðhjóla- og útivistarverslunar. PELOTON er í Klettagörðum 23 og vefverslunin er alltaf er opin á peloton.is.
Eins mæli ég með að chékka á Fors þau eru með geggjuð gel og allskonar bætiefnakruðerí sem er vert að gluða í sig, 15% afsláttur ef þú notar: HJOLAVARPID15
Tue, 07 Oct 2025 - 1h 06min - 57 - 57. Fjallahjólin kalla - RIFT MTB yfirferðin
Í þessum þætti förum ég og Erlingur nágranni, vinur og hjólafélagi yfir þetta 5 daga hjólaævintýri sem Rift MTB er. Fjallahjólakeppni sem fer fram í og í kringum Akureyri. Keppnin er skipulögð af Lauf. Í þættinum förum við yfir alla dagana, hvernig okkur gekk og svo svona hvað okkur fannst stand uppúr.
Hjólavarpið er í boði Peloton þar sem þú færð allt fyrir hjólreiðarnar.
Eins mæli ég með Fors þar getur þú fengið 15% afslátt ef þú slærð inn HJOLVARPID15
Wed, 24 Sep 2025 - 1h 28min - 56 - 56. RIFT MTB SPECIAL with Starla Teddergreen and Lauren Zimmer
We’re heading into the rugged landscapes of The Rift MTB 5 day stage race. I sat down at the end of Day 4 with two riders who were leading the race. By the close of Day 5, they had claimed every single stage and the overall victory: Starla TeddergreenandLauren Zimmer.
Starla is the co-owner of Distance to Empty, a not-for-profit dedicated to getting more women in Colorado onto gravel bikes. Living with MS, she’s turned cycling into both a personal fightback and a platform to empower others. She’s also no stranger to the podium and will represent Team USA at the upcoming MTB Marathon World Championships.
Lauren is an elite mountain bike racer who’s represented Team USA in both 2024 and 2025. Off the bike, she coaches through Distance to Empty, guiding more women into the sport. Known for her speed, strength, and generosity, she’s a force on and off the trail.
In this conversation, we dig into the race, their teamwork, the journey that brought them here, and what it really takes to not just win—but to lead, inspire, and lift others along the way.
Wed, 10 Sep 2025 - 51min - 55 - 55. Súlur Vertical - nýjasta útspil norðursins
Umfjöllun um þessa nýjustu viðbót malarheimsins. Talað við góðkunningja þáttarins Hafdísi Sigurðardóttur og eins mótastjórann knáa Rögnvald Má Helgason.
Þessi þáttur er unninn í samstarfi viðFors.is sem selur úrvals vítamín og fæðubótaefni. Þau eru með Kinetica orkugelin sem bragðast sjúllað vel, myndi prófa. Þú færð 15% afslátt af heildarkaupum á vefsíðunni hjá þeim ef þú notar kóðann: HJOLAVARPID15
Wed, 27 Aug 2025 - 34min - 54 - 54. Grefillinn yfirferðWed, 13 Aug 2025 - 39min
- 53 - 53. Le Tour de France Special með Snorra Björns og Auðunn Eiríks
Að þessu sinni fékk ég hlaðvarpsfrömuðinn Snorra Björnsson og hjólaköttinn Auðunn Eiríksson til mín og við fórum aðeins yfir helstu stærðirnar í þessari keppni frönsku hjólakeppni. Í þættinum förum við aðeins yfir tengsl viðmælenda við hjóla síðan rennum við yfir helstu eigindir í þessari keppni og ástæður þess að öll ættu að horfa. Til viðbótar komum við að helstu keppendum þetta árið og þeim vendingum sem hafa átt sér stað í ár.
Endilega hlustið ef þið viljið vita meira um Tour de France.
Hjólavarpið fær stuðning frá Stillingu sem getur græjað hjól á hvaða bíl sem er, Happy Hydrate sem getur selt þér vörur sem bæta upp steinefnaskort og Pedal.is sem selur hjólavarning sem hentar við öll tilefni.
Fri, 25 Jul 2025 - 1h 21min - 52 - 52. The Rift uppgjörið
Í þættinum er farið yfir aðdraganda og undirbúning minn fyrir Riftið, eins tók ég upp mjög skrautlegt efni í brautinni sjálfri og er síðan með smá play-by-play brautarlýsingu. Eins er í þættinum viðtal við Dönu Rún Hákonard. markaðsstjóra Laufeins heyrum við aðeins í Ingvari Ó. nýkríndum íslandsmeistara í malarhjólreiðum.
Eftirfarandi aðilar stiðja við Hjólavarpið:
Stilling - allt hjólatengt fyrir bílinn
Pedal.is - næs hjóladót
Happy Hidrate - steinefni og sölt
Bestu þakkir til Lauf sem hefur staðið þétt að baki Hjólavarpinu og verið mér innan handar í ýmsu baxi.
Hjólavarpið er líka á insta endilega fylgiði því þar.
Wed, 23 Jul 2025 - 1h 11min - 51 - 51. Nú er það gult - Rynkeby ævintýrið
Við fáum Elvar Jóns. sem kemur og segir okkur frá Rynkeby. En á hverju ári fer galvaskur hópur fólks frá Íslandi á gulum hjólum og ferðast frá Danmörku til Parísar. Verkefnið snýr þó ekki bara að hreyfingu og heilsueflingu heldur er líka góðgerðarbatterí og eitthvað miklu meira.
Hópurinn fer út núna á næstu dögum og hægt að fylgjast með þeim víða, eins er opið fyrir umsóknir og um að gera að henda sér á þetta tækifæri.
https://www.instagram.com/teamrynkebyisland/
Hjólavarpið er styrkt af Stillingusem selur allskonar hjólafestingar á bíla, tilvalið til hjólaflutninga.
Wed, 02 Jul 2025 - 58min - 50 - 50. Götuhjól á þingvöllum > Bríet, Ingvar og Daninn (Alfred Grenaae))
Í þættinum renni ég aðeins aftur yfir þennan árekstur og ég renni aðeins yfir umfjöllun sem tengist því, en síðan hendi ég mér bara beint í stutta yfirferð frá götuhjólamóti síðustu helgar og fæ smá viðbrögð frá þátttakendum í elite karla og kvenna. Það var Ingvar Ó. sem varð í öðru sæti, næst hann Alfred Grenaae sem vann og síðan Bríet K. Gunnarsdóttir eins ræddi ég við Martein mótastjóra.
Þessi þáttur var styrktur af Stillingu þar sem er hægt að fá úrvals þakboga og hjólafestingar.
Wed, 18 Jun 2025 - 18min - 49 - 49. Fokkin jeppi sem klessti á mig og ferð yfir alpana
Í þessum þætti deili ég fyrst hrakförum úr eigin lífi áður en ég fer yfir 10 daga ævintýraferð yfir Alpana, frá Þýskalandi til Ítalíu, með Brynjari vini mínum. Við ræðum útsýni, mat, áskoranir – og veltum fyrir okkur því helsta sem stóð uppúr ferðinni. Síðan erum við með hagnýtar pælingar fyrir þau sem dreyma um svipaða ferð.
Þátturinn er í boði Stillingar – fyrir þá sem vilja sniðuga hluti fyrir hjól og bíla.
Wed, 11 Jun 2025 - 1h 18min - 48 - 48. Tyler Wacker and the Westfjords Way
Ath. þessi þáttur er að mestu á ensku / this episode is mostly in english.
Tyler Wacker er ævintýrahjólari sem hefur komið víða við, eins og stendur er hann potturinn og pannan í hjólauppbyggingu á vestfjörðum og kemur að skipulagi og undirbúningi Westfjords Way Challenge. Í þættinum förum við yfir það hvernig strákur frá Texas fer að reka hjólabúð á Vestfjörðum margt þar á milli.
Tyler Wacker is an adventure cyclist who has been around quite a bit; currently, he is the driving force behind bike development in the Westfjords and is involved in organizing and preparing the Westfjords Way Challenge. In the episode, we go over how a guy from Texas ends up running a bike shop in the Westfjords — and a lot in between.
Skráning í Westfjords Way er í fullum gangi og líka hægt að finna upplýsingar um hjól og Vestfirði.
Wed, 28 May 2025 - 1h 07min - 47 - 47. Afrek og almenningur, samtal við ÍSÍ
Í þættinum förum við yfir starfsemi ÍSÍ, íþrótta og ólympíusambands íslands, þó fyrst og fremst það sem snýr að almenningsíþróttum og því hvernig er hægt að koma lýðnum af sófanum. Eins förum við yfir átaksverkefni sambandsins og stöldrum aðeins við hjólað í vinnuna.
Wed, 07 May 2025 - 1h 08min - 46 - 46. Hjólasumarið með Mæju Sæm
Við kynnumst María Sæm Bjarkardóttir og því hvernig hún flæktist í hjólreiðum. Eins förum við yfir hjólasumarið hjá henni þar sem standa upp úr fararstjórn fyrir hönd Íslands samhliða mótastjórn fyrir hönd Breiðabliks. Þar eyðum við mestum tíma í Grefilinnen hann fer fram 9. ágúst næstkomandi.
Wed, 30 Apr 2025 - 48min - 45 - 45. Buying Your First Bike in Iceland
In this episode, I’m joined by Matthew Kanaly to break down what you need to know before buying your first bike in Iceland—from where to shop and what’s available, to price points, maintenance, bike types, and that all-important question: What are you actually going to use your bike for? Whether you're cruising downtown or dreaming of gravel trails.
If you know of someone that is thinking about buying there first bike, please share this episode with them.
Brought to you by Tri – your local bike experts.
Wed, 09 Apr 2025 - 1h 18min - 44 - 44. Hjól vs. bíll - sjálfbærar samgöngur?Wed, 26 Mar 2025 - 1h 17min
- 43 - 43. Ákall eftir róttækum hugmyndum - Spjall við Gísla Martein BaldurssonWed, 05 Mar 2025 - 1h 16min
- 42 - 42. Röggi og Súlur Vertical
Frábærar fréttir að norðan, ný hjólakeppni bætist við og tilheyrir núna Súlum Vertical sem fer frá því að vera hlaupaviðburður í hlaup, hjól og gönguskíði. Rögnvaldur Már fer aðeins yfir sína vegferð í hjóleríi og lýsir síðan aðeins þessari viðbót við hjólasenuna.
https://www.sulurvertical.is/
Svo er #gefaljós í fullum gangi endilega senda mér línu ef ykkur langar að taka þátt og dreifa ljósum - þá eru ljós aðgengileg hjá Reiðhjólabændum Sævarhöfða 31. Bakhjarl verkefnisins er Sjóvá.
Wed, 19 Feb 2025 - 45min - 41 - 41. Enduro BörkurWed, 05 Feb 2025 - 1h 01min
- 40 - 40. Gull Special - Hafdís SigurðardóttirWed, 22 Jan 2025 - 30min
- 39 - 39. Gull, póstkort og ljós á nýju áriWed, 08 Jan 2025 - 16min
- 38 - 38. Mælingar og Siggi í Greenfit
Í þættinum fer ég aftur til Greenfit og við tökum stöðuna á gamla. Eins ræðum við aðeins hvað þessar tölur standa fyrir og hvernig þær geta aðstoðað okkur. Siggi er líka kominn úr risa ólympíu verkefni með Guðlaugu Eddu og við fórum aðeins yfir það og hvað er framundan hjá Sigga.
Ath kostning til Gullhjálmsins í fullu fjöri endilega kjósa. Ath. introið í þættinum var tekið upp í flugvél af ýmsum ástæðum en restin af þættinum er í góðu standi.
Wed, 25 Dec 2024 - 59min - 37 - 37. Hjólaárið 2024Wed, 11 Dec 2024 - 1h 14min
- 36 - 36. Fundur um bíllausan lífsstílTue, 26 Nov 2024 - 40min
- 35 - 35. Á hjóli sögunnarWed, 13 Nov 2024 - 20min
- 34 - 34. „Mikilvægi styrktarþjálfunar vanmetið“ Hildur Guðný
Í þættinum kemur hún Hildur Guðný Káradóttir til okkar og fer yfir sína vegferð í hreyfingu og íþróttum. Ferðalagið úr fimleikum og yfir í ultrahlaup. Hún er þjálfari hjá Mjölniog MFL kvenna hjá KR. Hildur hefur staðið sig flenni vel í hlaupum og tók núna síðast þátt í landsliðs bakgarðshlaupi í Elliðaárdal þar sem hún fór 30 hringi sem gerir litla 201 kílómetra. Eins förum við yfir styrktarþjálfun í seinni hluta þáttar.
Hjólavarpið er í boði Hreysti
Hjólavarpið er styrkt af Reykjavíkurborg
Wed, 30 Oct 2024 - 40min - 33 - 33. „Shit! Við erum með hugmynd“ - samtal við Benna og Berg hjá Lauf
Í þessum þætti fáum við að heyra frá þróun innan Lauf, aðeins hvernig þetta hefur verið keyrt áfram og síðan hvernig staðan er á þeim. Farið yfir nýjustu viðbótina í Lauf hjólafjölskylduna hana Elju sem er fulldempað fjallahjól með pláss fyrir stór dekk. Eins fáum við að heyra um nýja fjallahjólakeppni RIFT MTB sem verður á Akureyri og eins um nýja leið í RIFT og meira til. Þetta er þáttur stúttfullur af kruðeríi.Skráning í Rift opnar fimmtudaginn 17 okt.
Hjólavarpið er í boði Hreysti - 10% af ef þú notar Hjolavarpid sem afsláttarkóða
Hjólavarpið hefur fengið stuðning frá Reykjavíkurborg
Wed, 16 Oct 2024 - 52min - 32 - 32. Hætti að kenna og fór að hjóla - samtal við Hafdísi Sigurðardóttir
Hafdís Sigurðardóttir er ein af fremstu götuhjólurum á Íslandi og hefur tekið þátt í fjölda landsliðsverkefna ásamt því að hafa gert mjög gott mót á Íslandi, margfaldur Íslandsmeistari. Hún er nýlega byrjuð að éta möl og tók þátt í HM í gravel núna síðastliðna helgi. Förum yfir þetta og stöðuna Hafdísi.
Hjólavarpið er í boði Hreysti
Hjólavarpið hefur fengið stuðning frá Reykjavíkurborg.
Thu, 10 Oct 2024 - 57min - 31 - 31. Íslandsmeistarar í downhill - Sól og Jóhann
Fékk til mín frábæra viðmælendur sem bæði urðu Íslandsmeistarar í downhill/fjallabruni núna í sumar. Í þættinum er farið yfir sportið og síðan svona stöðuna á Íslandi. Óskað er eftir fleiri þátttakendum og miklu fjármagni til að gera besta og flottasta náttúru bikepark í heimi.
Hjólavarpið er styrkt af Hreysti
Hjólavarpið hefur fengið stuðning frá Reykjavíkurborg vegna gerð þessara þátta.
Wed, 02 Oct 2024 - 41min - 30 - 30. Hjólafélagið Víkingur
Í þættinum kynnumst heyrum við örlítið um hjólafélagið Víking og dagskránna hjá þeim. Þetta er fyrsti þátturinn þar sem hjólafélögin verða kynnt eitt af öðru og er hugsað fyrir fólk sem er áhugasamt um að byrja að æfa með einhverju þeirra. Endilega sendið mér línu ef þið viljið að ykkar hjólafélag fái umfjöllun.
Hjólavarpið er styrkt af Hreysti
Hjólavarpið hefur fengið stuðning frá Reykjavíkurborg
Wed, 25 Sep 2024 - 19min - 29 - 29. Fyrsta HM í Enduro og EM í götuhjólerí - Jonni og SiljaWed, 18 Sep 2024 - 1h 03min
- 28 - 28. Glöð að ég hætti ekki - Guðlaug EddaWed, 11 Sep 2024 - 1h 00min
- 27 - 27. Grasrótin - Sesselja Traustadóttir
Sesselja Traustadóttir kíkti í þáttinn og við fórum yfir aðkomu hennar að hjólreiðum. Sesselja hefur komið að mímörgum verkefnum og staðið fyrir frábæru grasrótarstarfi sem fólst meðal annars í kynningum á hjólafærni, hjólavottunum, kortlagningu á hjólastígum um allt land o.s.frv. o.s.frv.
Sesselja er alveg frábær og hefur skilað miklu inní hjólasamfélagið og bestu þakkir fyrir það skilið.
Tenglar:
Hjólavarpið er styrkt af Hreysti
Wed, 04 Sep 2024 - 48min - 26 - 26. Hjólalandið ÍslandWed, 21 Aug 2024 - 42min
- 25 - 25. Grefillinn uppgjör og viðtöl
Í þessum þætti er farið yfir Grefilinn, brautinalýsing, smá uppgjör og hugleiðingar. Við förum svo í viðtöl við nokkra keppendur:
Natalía Reynisdóttir sem var sjöunda konan í mark
Valborgu Hlín Guðlaugsdóttir sem varð þriðja overall og vann 45+ flokkinn
Ingvar Ómarsson sem vann pro/elite
Við heyrum líka í Andra Má Helga. sem er mótastjóri Grefilsins ásamt henni Maríu Sæm fyrir hönd Breiðabliks.
Hjólavarpið er í boði Arnarins.
Wed, 14 Aug 2024 - 1h 06min - 24 - 24. ÓlympíuleikarTue, 13 Aug 2024 - 17min
- 23 - 23. Það tókst - Rift uppgjör, viðtöl og fleira
Í þessum þætti er farið yfir aðdragandann að Rift undirbúning og uppgjör á því hvernig gekk og hugleiðingar tengdar því. Við förum svo í viðtöl við nokkra þátttakendur Cecily Decker sigurvegar 200k Pro/Elite, Kötu Páls. sigurvegara í opnum flokki, Natalíu Reynis., Bergi Lauf og svo í Óla mótastjóra.
Ps. það er skúbb í þessum þætti.
Hjólavarpið er í boði Arnarins.
Wed, 24 Jul 2024 - 1h 10min - 22 - 22. Tour de FranceWed, 17 Jul 2024 - 21min
- 21 - 21. „Leyfa sér að vera amatör“ Natalía ReynisWed, 10 Jul 2024 - 36min
- 20 - 20. Póstkort frá ToskanaWed, 03 Jul 2024 - 25min
- 19 - 19. „Það þarf að sinna þörfum hjólsins“ María ÖgnWed, 26 Jun 2024 - 1h 14min
- 18 - 18. Hjólabýlið og fulldempuð fjallahjólWed, 12 Jun 2024 - 31min
- 17 - 17. Rétta leiðin inní sportið - samtal við Ingvar Ó.
Ingvar Ómarsson er þrátíu og sexfaldur íslandsmeistari í hjólreiðum og hefur verið að borða malbik og möl í öll mál í að verða 19 ár. Á þeim tíma hefur hann stoppað víða við í þjálfun bæði hjá börnum og fullorðnum. Í þessum þætti förum við yfir stöðuna á æfingalandslagi hjólreiðaheimsins; hvað gengur vel og hvað mætti betur fara. Eins heyrði ég aðeins í honum símleiðis útaf spurningu sem var borin upp í síðasta þætti.
Wed, 29 May 2024 - 37min - 16 - 16. „Ég er ennþá keppnishjólarinn“ Ingvar ÓmarssonWed, 22 May 2024 - 30min
- 15 - 15. Hver Grefillinn og meira Einar Bárða
Hver grefillinn hugsa eflaust mörg því hér er á ferðinni fyrsti aukaþáttur Hjólavarpsins. Í þættinum fáum við aðeins að kynnast greflinum og heyrum aðeins meira í Einari Bárða. Ég kom ekki öllu efninu fyrir í síðasta þætti þannig ég ákvað að splæsa í einn rándýran aukaþátt, eins er ég búinn að ákveða að taka þátt í Greflinum og heyrði því í Andra Má hjá Breiðablik sem þekkir þessa keppni mjög vel.
Thu, 16 May 2024 - 31min - 14 - 14. Keppnishald og fleira kruðerí með Einari BárðaWed, 08 May 2024 - 1h 16min
- 13 - 13. Ágætis líkur á aukinni gremju
Í þessum þætti heyri ég í Írisi konunni minni og tek stöðuna. Hvernig gengur og svona. Þátturinn er tekinn upp á starfsdegi og því nokkuð virkt hljóðumhverfi heima hjá mér sem fer ekki framhjá neinum í þessum þætti - biðst afsökunar á því.
Wed, 24 Apr 2024 - 22min - 12 - 12. Mál að tryggja sig
Í þessum þætti kemur samgönguhjólarinn og hjúkrunarfræðingurinn Sigrún Þorsteinsdóttir til mín og fer yfir sín hjólamál og fjallar svo tryggingar og forvarnir en hún starfar sem forvarnarfulltrúi hjá Vís. Við rennum yfir svona lykil atriðin í tryggingarmálum, bæði sem snýr að heilsutjónu, tjóni á búnaði og þjófnaði eins förum við aðeins yfir það hvernig megi koma í veg fyrir slys og tjón.
Thu, 02 May 2024 - 44min - 11 - 11. Cycling in Iceland with Chris Burkard, part 2
I'm excited to share the second part of my conversation with Chris Burkard. So if you like continuation there is a part 1 to this part 2 episode.
Chris is an amazing photographer, explorer, speaker, and author who loves cycling and sharing stories of his adventures. We're fortunate that one those adventures brought him to this remote island in the middle of the Atlantic. His explorations of Iceland, through photographs and stories, have most definitely played a significant role in making Iceland a popular destination, particularly for cycling as well as nudged Icelandic riders to further explore this amazing island.
In this episode, Chris shares his experience of riding in Iceland, his take on Icelandic cycling culture and then he gives advice to those planing on riding in Iceland.
Wed, 27 Mar 2024 - 22min - 10 - 10. It has to be fun with Chris Burkard, part 1
My name is Bui and I am a newcomer to cycling, this podcast serves as my journey of discovery and understanding as I delve into the world of cycling. Through my discussions with people that know more than me, I aim to not only uncover the essentials of becoming a cyclist but also to inspire others to embrace a more active lifestyle preferably on a bike.
In this Episode I meet with Chris Burkard. Since Chris speaks English, this intro is also in English. So sorry to my Icelandic speaking audience.
I'm excited to share this conversation with you. Chris is an explorer, photographer, speaker, and author who loves cycling and sharing stories of his adventures. We're fortunate that one of Chris's adventures brought him to this remote island in the middle of the Atlantic. His explorations of Iceland, through photographs and stories, have most definitely played a significant role in making Iceland a popular destination, particularly for cycling.
Cycling's popularity in Iceland has grown in leaps, with the rise of gravel riding being the latest one. Since Iceland is predominantly made out of gravel, it's an ideal place for gravel riding. Chris's photos and adventures have likely pushed many Icelanders to discover and appreciate their landscapes by bike.
In this episode, we delve into the joys of cycling, explore the importance of finding fun in exercise, discuss the experience of relocating to Iceland, and much more.
I hope you enjoy this episode, and if you do, we'd be thrilled if you could leave a review, comment, or subscribe.
Wed, 13 Mar 2024 - 41min - 9 - 9. Ragga Nagli
Ragnhildur Þórðardóttir aka Ragga Nagli er sálfræðingur að mennt, nældi sér í bákkalársgráðu í Háskóla íslands, húrraði einni mastersgráðu í heilsusálfræði á bakið og hennti svo í eitt stykki embættispróf í sálfræði í lokin. Hún rekur sína eigin sálfræðistofu í DK og er með marga viðskiptavini víða um heim í gegnum fjarfundarbúnað. Hún býr í Denmark med manninn sinn som heder Snorri. Fyrir utan allt þetta þá er hún mjög virk á samfélagsmiðlum, þar sem hún segir ótrúlega margt rosalega sniðugt um hluti sem tengjast hreyfingu og heilsu. Svo þegar einhver hefði sagt þetta er komið gott henti okkar kona í eitt rusalegsta hljóðvarp fyrr og síðar Heilsuvarpiðsem er án efa með betri hlaðvörpum og eflaust það besta sem snýr að heilsu. Hún fær til sín ótrúlega áhugaverða viðmælendur og rekur úr þeim garnirnar. Ragga er mögnuð og ein af fáum einstaklingum sem ég hef kynnst sem dansar svona vel á milli þess að vera auðmjúk og beinskeitt. Hlustar og tekur tillit en þorir alveg að segja sína skoðun án þess að það sé verið að skreyta það eitthvað.
Í þessum þætti förum við Ragga um víðan völl en mest erum við samt að ræða þessa áskorun sem það er að komast af stað í hreyfingu, hvernig maður setur sér markmið og hvað maður getur gert til að auka líkurnar á því að þetta takist. Færist frá þetta að vera þetta sífelda strögl og vesen og verði að vana. Það eru fá sem geta leiðbeint af jafn mikilli þekkingu og Naglinn. Það var ótrúlega gaman að fá Röggu í spjall og ég vona að þið hafið jafn gaman af þessu og ég.
Thu, 29 Feb 2024 - 1h 15min - 8 - 8. Óhjólandi grísir
Þáttur númer 8 er samsuða tveggja hlaðvarpsþátt - Hjólavarpið og Grísirnir þrír.
Í þættinum er farið yfir hvernig grísunum gengur að hjóla og farið síðan um víðan völl, bæði tengt hjólreiðum og mörgu örðu.
Að grísunum standa félagarnir Guðmundur Einar, Guðmundur Felixsson og Pálmi Freyr Hauksson. Grísirnir þrír er illa skipulagt grínpodcast sem er mjög gaman að hlusta á. Í þáttunum eru ýmsir skemmtilegir liðir en það sem stendur uppúr er spruðlið milli þáttastjórnendanna. Ég hef þekkt þáttastjórnendur í nokkurn tíma og kynntist þeim eflaust best þegar ég var hluti af sýningarhóp improv ísland. Ég mæli eindregið með því að hlusta á Grísina sem gefa út nýja þætti í hverri viku.
Fri, 16 Feb 2024 - 1h 05min - 7 - 7. Reiðhjólabændur
Þátturinn fjallar um Reiðhjólabændur sem eru félagasamtök hjólreiðafólks og hafa verið virk í umræðu um hjólreiðaöryggi ásamt því að koma að ýmsum átaksverkefnum, fræðslu og innanbæjarsamhjóli. Í þættinum er rætt við Birgi Birgison sem er ein aðalsprautan í samtökunum um þessar mundir. Félagið var stofnað fyrir um 15 árum síðan og hefur vaxið og breyst umtalsvert á þeim tíma.
Í þættinum ræðum við um samgöngumál á Íslandi, breytingar sem hafa orðið og þau mál sem þarf að bregðast við svo að hjól verði útbreiddari.
Hjólavarpið er í boði Örnu
Wed, 07 Feb 2024 - 32min - 6 - 6. Sönn Íslensk Hjólamál - Glundroði á Grenimel
Í þessum þætti spjalla Búi og Arna um æfingar, keppnir og lífið í Ástralíu. Arna segir frá svaðilför með nýju vinkonu sinni Glam-Ma og tilraunum sínum við að hitta hjólavinkonu sína Tiffany Cromwell og fylgifisk hennar Valtteri Bottas.
Síðar í þættinum snúum við okkur svo að hjólaráni sem átti sér stað á Grenimel. Þar er farið yfir atburði ránsins og eftirmála.
Hjólavarpið er í boði Örnu
Mon, 22 Jan 2024 - 42min - 5 - 5. Samgönguhjólreiðar
Í þessum þætti förum við yfir samgönguhjólreiðar og ræðum við Jökul Sólberg Auðunsson og Brynhildi Bolladóttur sem eru bæði virkir samgönguhjólarar. Jökull hefur lengi skrifað um samgöngur og skipulag í fréttabréfinu Reykjavík Mobility og haldið úti síðunni örflæði.is þar sem hægt er bera saman rafhjól sem seld eru á Íslandi. Brynhildur varð nýlega virk í umræðunni um hjól þar sem hún hélt erindið „Bara venjuleg gella á hjóli“ á viðburðinum Léttum á umferðinni sem var á vegum Reykjavíkurborgar og fjallaði um samgöngumál í borginni. Þau fara bæði yfir sína vegferð og sömuleiðis stærra samhengið, hjólamenningu og innviði.
Hjólavarpið er í boði Örnu.
Wed, 03 Jan 2024 - 52min - 4 - 4. Mælingar
Í þessum þætti förum við aðeins yfir uppleggið í þáttunum og dembum okkur síðan í mælinga pælingar. Við skeltum okkur í álagsmælingu í Greenfit og förum aðeins yfir það og tökum svo stöðuna á æfingum hjá Búa og Örnu sem er komin til Ástralíu.
Ef þig langar í lungna- og álagsmælingu geturu fengið 20% afslátt með því að nota kóðan HJOLAVARPID.
Hjólavarpið er í boði Örnu.
Wed, 03 Jan 2024 - 58min - 3 - 3. Að byrja að hjólaWed, 06 Dec 2023 - 26min
- 2 - 2. Tempúr koddiWed, 03 Jan 2024 - 42min
- 1 - 1. Ágætis byrjunWed, 08 Nov 2023 - 24min
Podcasts similar to Úti
Wife, Mother, Slave, Sex Goddess A. Heyward
Barangay Love Stories Barangay LS 97.1 Manila | GMA Network Inc.
Good Bad Billionaire BBC World Service
Cyprian Majcher Cyprian Majcher
Die Nachrichten Deutschlandfunk
Podcast Wojenne Historie Historia II wojny światowej
Forensic Files HLN
Nowenna pompejańska. Świadectwa https://pompejanska.krolowa.pl/
ILLVERK Podcast Inga Kristjáns
الشيخ أحمد العجمي islami
True Crime Documentary Justin Kandell Network
WojewódzkiKędzierski Kuba Wojewódzki, Piotr Kędzierski
Dear MOR MOR Entertainment
Snapped: Women Who Murder Oxygen
Papa Dudut Stories Papa Dudut | TAGM Marketing Solutions Inc.
DUDEK o polityce prof. Antoni Dudek i Super Exspress
Przemek Górczyk Podcast Przemek Górczyk
Sceny zbrodni RMF FM
Í ljósi sögunnar RÚV
Þetta nútímalíf RÚV Hlaðvörp
Skuggavaldið skuggavaldid
Money News Tapt Media
Żurnalista - Rozmowy bez kompromisów zurnalistapl
العلم والإيمان - د. مصطفى محمود علم ينتفع يه