Podcasts by Category
Run and Gun with Mate Dalmay

- 50 - Run and Gun 26/27 (Þáttur 9 - Power Rank og MVP ladder með Slæma í heimsókn)
Stútfullur þáttur í dag með Steinar Arons loksins mættann. Tommi henti í MVP ladder bæði í Fyrstu og Úrvalsdeild, Steinar Power Rankaði efstu tværi deildir, nokkur stór mál voru rædd og að sjálfsögðu næsta umferð rædd.
Wed, 28 Oct 2026 - 49 - Run and Gun 26/27 (Þáttur 8 - Hitum upp fyrir 3. umferð og æsum okkur eftir bikar)
Þétt dagskrá eftir viðburðarríka bikarhelgi. Manni Vill mætir og rýnir í nýja sign Tindastóls, vandamál Grindvíkinga, það verða "Heitar tökur" og miklu meira.
Thu, 22 Oct 2026 - 48 - Run and Gun 26/27 (Þáttur 7 - Hitum upp fyrir 2. umferð)
Í upphafi þáttar eru 90 sek hljóðlaus. Við hvetjum alla til að fara í Fitness Sport og kaupa sér Test Surge Testabooster. Gunnar Bjartur fór með þáttastjórnendum yfir bestu Íslensku Big3 deildarinnar, hnoðað var í You Go Airport lista eftir eina umferð. Við að sjálfsögðu skoðuðum næstu umferð og fundum lausnir fyrir Tindastól á meiðslum Drungilas og vöntun Kane fyrir Grindavík.
Thu, 15 Oct 2026 - 47 - Run and Gun 26/27 (Þáttur 6 Stóri Upphitunarþátturinn fyrir efstu deild)
Menn skiluðu inn lokaspám fyrir deildina og rýndu í vonbrigði og allskonar fyrir tímabilið sem hefst á morgun. Þjálfari Íslandsmeistara Grindavíkur, Jóhann Ólafsson, var á línunni og skoðaði voru að sjálfsögðu allir leikirnir í fyrstu umferð.
Wed, 07 Oct 2026 - 46 - Run and Gun 26/27 (Þáttur 5 Stóri 1. deildar þátturinn)
Geir Helagson kom til okkar og fór yfir 1. deildina. Ein umferð er búin og hægt að "overreacta" af alvöru.
Tue, 06 Oct 2026 - 45 - Run and Gun 26/27 (Þáttur 4 Tindastóll, Höttur og Sindri)
Biðjumst afsökunar á hversu seint þátturinn kemur inn en hér er hann. Landsbyggðin tekin fyrir í þætti kvöldsins. Gestur í Run and Gun studio er Sauðkræklingurinn Halli Karfa. Rætt er við Arnar Guðjónsson þjálfara Tindastóls og rýnt í liðin fyrir komandi tímabil.
Thu, 01 Oct 2026 - 44 - Run and Gun 26/27 (Þáttur 3 Reykjavík)
Steinar Arons kíkir í Run and Gun og rýnir í liðin fjögur sem eru á Reykjavíkursvæðinu. Valur, ÍR, bikarmeistara KR og Ármenningar sem kláruðu The Great Escape í fyrra.
Thu, 24 Sep 2026 - 43 - Run and Gun 26/27 (Þáttur 2 Suðurnes)
Manni Vill mætti og var farið yfir Keflavík, Njarðvík og Íslandsmeistarana í Grindavík. Rætt var við Rúnar Ingar og Daníel Guðna þjálfara Njarðvíkur og Keflvíkinga en spjallið við Jóhann Ólafsson þjálfara Grindavíkur fáum við í næstu viku í þriðja þætti!
Thu, 17 Sep 2026 - 42 - Run and Gun 26/27 (Þáttur 1 Stjarnan og Álftanes)
Fyrsti þáttur tímabilsins. Hitað verður upp öll miðvikudagskvöld í beinni útsendingu þar til Bónus deildin hefst í október. Í kvöld verður rýnt í tvö af sterkustu liðum deildarinnar, Álftanes og Stjörnuna. Við heyrum í þjálfurum beggja liða og ræðum málin með Gunnari Bjarti og Slæma í settinu.
Thu, 10 Sep 2026 - 41 - Run and Gun - Þáttur 41 (Mið-sumar talning með Slæma og Hrafni Kristjáns)
Það er komið að því að taka stöðuna á öllum liðum efstu deildar fyrir komandi tímabil. Margir alvöru bitar eru búnir að skipta um lið, Run and Gun teymið fékk þjálfara Blika Hrafn Krisjánsson til að koma í þáttinn. Á tveimur klukkutímum var skipt liðum deildarinnar í fjögur þriggja liða level. 1. Álftanes, Tindastóll, Grindavík (menn ósammála hér). 2. Stjarnan, KR, Keflavík. 3. ÍR, Njarðvík, Valur. 4. Ármann, Höttur, Sindri.
Wed, 01 Jul 2026 - 40 - Run and Gun - Þáttur 39 (Sá Slæmi og Manni Vill)
Eftir ákall úr öllum áttum tók Run and Gun upp þátt á sunnudags hádegi eftir messu hjá gestum þáttarins. Úrslita einvígið var loksins rætt í þaula og efnið ekki týnt. Þjálfara möguleikar Garðbæinga voru ræddir, Sindra mönnum óskum við til hamingja með sæti í deild þeirra bestu og gestir þáttarins fóru í giskleik - hvaða þjálfarar og leikmenn hafa fengið tækni villur í vetur?
Mon, 18 May 2026 - 38 - Run and Gun - Þáttur 38 (Tommi og Manni Vill)
Bras á þætti 38 þar sem síðustu 20 mínútur týndust. Umræður í Myntkaup Aréna eru því einungis um 1.deildina, Stjörnuna og Val. Allir spáðu Tindastól sigri í leik tvö. Hlökkum til að ræða leik 2 og 3 eftirá, áfram allir.
Tue, 12 May 2026 - 37 - Run and Gun - Þáttur 37 (Manni og Slæmi beint eftir leik)Tue, 05 May 2026
- 36 - Run and Gun - Þáttur 36 (Tommi og Slæmi í playoffs neyðar pod)
Eftir ákall komu sérfræðingar saman á mánudegi í Myntkaup Aréna og ræddu úrslitakeppnina sem náði um helgina hápúnkti til þessa.
Mon, 27 Apr 2026 - 35 - Run and Gun - Þáttur 35 (Mannig Vill og GB Jr.)
Run and Gun settist niður í Myntkaup Aréna eftir svakalega fyrsta leik í undanúrslitum í gær. Við gerðum leikinn upp með Manna Vill og Gunnari Bjarti og spáðum svo augljóslega í leik kvöldsins. Seth Le Day fékk afsökunarbeiðni í beinni og þá var rýnt í 1.deildina þar sem spennan er að magnast.
Wed, 22 Apr 2026 - 34 - Run and Gun - Þáttur 34 (Sá Slæmi og Rúnar Birgir ráðgjafi þjóðarinnar)
Það var nýr gestur af gamla skólanum í Myntkaup Arena á þessum apríl miðvikudegi. Liðin sem hafa kvatt í bæði Bónus og 1.deild voru rædd og seasoninu gefin einkunn. Hvað gerist svo í næstu einvígum í báðum deildum?
Thu, 16 Apr 2026 - 33 - Run and Gun - Þáttur 33 (Steinar og Tommi Steindórs)
Eftir tvo fyrstu leikina í úrslitakeppninni settust sérfræðingar landsins í Myntkaup Arena og rýndu í það sem við höfum séð. Þáttastjórnandinn er hálfan þáttinn ekki í mynd en það er eins og það er sumir fagna því. Hvernig getum við minnkað skjáfíkn dómara?
Thu, 09 Apr 2026 - 32 - Run and Gun - Þáttur 32 (Steinar og Manni: Uppgjör og Playoffs)
Á þessum mánudegi var tímabilið gert upp í Bónus deildinni í Myntkaup Aréna, gestir gáfu öllum liðum, þjálfurum, íslenskum og erlendum leikmönnum einkunnir. Bragi Guðmunds var kosinn undisputed MVP Run and Gun. Að lokum var að sjálfsöðgu rýnt í playoffs einvígin og opinber spá Run and Gun sett saman.
Tue, 31 Mar 2026 - 31 - Run and Gun - Þáttur 31 (Tommi og Geir gera upp 1.deildina)
31. þáttur tímabilsins í Myntkaup Aréna var helgaður 1.deild karla. Tveir pjúristar mættu í heimsókn og gáfu öllum liðum ítarlegar einkunnir, Geir Elías Úlfur Helgason og Tommi Steindórs. Þátturinn í dag er í boði Myntkaups, Körfufrétta en einnig voru með okkur Chad Grooming menn að þessu sinni.
Wed, 25 Mar 2026 - 30 - Run and Gun - Þáttur 30 (GB Jr. og Bóbódan)
Þrítugasti þáttur Run&Gun og það aðeins tveimur umferðurm fyrir úrslitakeppni. Gestir í Myntkaup sem hafa ekki komið lengi og mikið stuð.
Wed, 18 Mar 2026 - 29 - Run and Gun - Þáttur 29 (Slæmi og Tommi Steindórs)
Tommi Steindórs og Steinar Arons voru gestir dagsins í Myntkaup Aréna þennann miðvikudag þegar þrjár og aðeins þrjár umferðir eru eftir af regular season. Spáð var í næstu umferð Bónus deildar og umferðirnar tvær sem eru eftir í Fyrstu deild karla. Gestirnir hlóðu meðal annars í 5 hötuðustu leikmenn deildarinnar lista og MVP race pælingar.
Wed, 11 Mar 2026 - 28 - Run and Gun - Þáttur 28 (Slæmi og Manni Vill)
Eftir landsliðspásu var tekið upp á fimmtudegi í Myntkaup Aréna. Gestir settu þig í stóla stjórnarmanna liða sem funda á þessum tíma um næsta tímabil. Rýnt var í næstu fjórar umferðir og sett saman loka spá fyrir tímabilið og útlit úrslitakeppninnar.
Thu, 05 Mar 2026 - 27 - Run and Gun - Þáttur 27 (Slæmi og Tommi Steindórs)
Það var mikil stemning í Myntkaup Arena þennan miðvikudag. Rýnt var í 1.deild karla og næstu umferð í þeirri efstu. Farið var yfir þrjá bestu uppöldu leikmenn allra félaga efstu deildar sem enn eru að spila ásamt allskonar öðrum skemmtilegheitum.
Thu, 19 Feb 2026 - 26 - Run and Gun - Þáttur 26 (Slæmi og Mikael Máni)
Steinar Arons og Mikki gerðu upp bikarúrslitaleikinn í Myntkaup Arena nokkrum dögum eftir veisluna, búnir að jafna sig. Hvaða þjálfarteymi hafa mestu verkin að vinna næstu vikur til að koma liðum sínum á þann stað sem þau vilja vera á í vor?
Wed, 11 Feb 2026 - 25 - Run and Gun - Þáttur 25 (Manni Vill og Atli Aðalsteins)
Bikarstemning. Undanúrslitin voru gerð upp og spáð í framhaldið sem og auðvitað bikarúrslitaleikinn sjálfan. Það kostar 20.000 krónur að kýla mótherja og engin leikbönn, því ber að fagna. Menn voru sammála í Myntkaup Arena að það er yfirleitt þess virði.
Wed, 04 Feb 2026 - 24 - Run and Gun - Þáttur 24 (GB Jr. og Mikael Máni)
Geta einhverjir keppt við Stjörnuna á þessum tímapúnkti? Við power rönkuðum með ungum og efnilegum gestum bestu Íslensku leikmenn deildarinnar og spáðum í næstu umferð.
Thu, 29 Jan 2026 - 23 - Run and Gun - Þáttur 23 (Manni Vill og Atli Aðalsteins
Fyrsta deildin var Power Rönkuð þennann miðvikudag í Myntkaup Aréna. Manni fór í trade hugmyndir, leikmannahópar Stjörnunnar og Tindastóls voru bornir saman og að sjálfsögðu var rýnt í leiki umferðarinnar.
Thu, 22 Jan 2026 - 22 - Run and Gun - Þáttur 22 (Tommi Steindórs, GB Jr. og Slæmi)
Farið var yfir allar breytingarnar sem liðin hafa gert síðustu vikur. Eru Tindastóll og Stjarnan að komast í sérflokk? Þrír gestir og meiri hiti en oft áður í Myntkaup Arena fyrir fjórtándu umferð.
Thu, 15 Jan 2026 - 21 - Run and Gun - Þáttur 21 (Slæmi og Manni)Thu, 08 Jan 2026
- 20 - Run and Gun - Þáttur 20 (Nú mega Jólin koma)
Það var fjölmennt í sófunum undir Myntkaup merkinu á jóla sunnudegi. Veitt voru mid season verðlaun í efstu tveimur deildum í 100 mismunandi flokkum. Áhorfendur og hlustendur eru hvattir til að fylgja Runandgunmd á Instagram en þar verða öll spjöldin úr þættinum birt.
Tue, 23 Dec 2025 - 19 - Run and Gun - Þáttur 19 (Bóbó Dan og Manni Vill)
Það var meira slúðrað en yfirleitt í Myntkaup Aréna á þessum miðvikudegi, enda gestir þáttarins í jólastuði. Fundnar voru lausnir fyrir Álftnesinga við öll þeirra vandamál, Fyrsta Deildin var Power Rönkuð og spáð í síðustu umferðina fyrir hið illa jólafrí.
Thu, 18 Dec 2025 - 18 - Run and Gun - Þáttur 18 (Sá Slæmi og GB Jr.)
Tvær umferð eru fram að jólafríinu langa sem sumir hata. Gestir þáttarins fóru aðeins yfir síðustu umferð og spáðu vel í leikina sem framundan eru. Þá var "You go airport" listi Run and Gun uppfærður.
Thu, 11 Dec 2025 - 17 - Run and Gun - Þáttur 17 (Manni Vill og Sá Slæmi)
Sá Slæmi og Manni Vill, Mosfellingur í fótbolta, mættu í Myntkaup Aréna og settu saman sín sterkustu lið eftir ákveðnum reglum. Kani+2x evrópumenn+2xÍslendingar+sjötti maður úr fyrstu deild. Farið var yfir komandi umferð og þjálfarar sendir til Tenerife, reknir.
Thu, 04 Dec 2025 - 16 - Run and Gun - Þáttur 16 (Tommi Steindórs og Fuglinn)
Pása í deild þeirra bestu er í pásu og eftir úrvalsdeildarhjal var fyrsta deildin tekin fyrir. Tómas Steindórsson og Hraunar Karl aka Fuglinn mættu í Myntkaup Aréna að þessu sinni á fimmtudegi.
Fri, 28 Nov 2025 - 15 - Run and Gun - Þáttur 15 (Spáð í 8 umferð Bónus deildar með GB Jr. og Slæma)
Spáð var í 8.umferð Bónus deildarinnar með Seinari Arons og Gunnar Bjarti. Power Rankið var uppfært og nokkur stór mál rædd.
Thu, 20 Nov 2025 - 14 - Run and Gun - Þáttur 14 (Stonyknows og Fuglinn í heimsókn)
Tveir mestu körfubolta spekingar landsins mættu í Myntkaup Arena og spáðu í sjöundu umferð Bónus deildarinnar. Stonyknows fór vandamál hvers liðs í deildinni. ATH fyrsta mínúta þáttarins er í ruglinu.
Thu, 13 Nov 2025 - 13 - Run and Gun - Þáttur 13 (Stöðu tjekk á öllum liðum eftir 5 umferðir og spáð fyrir 6. umferð)
Tveir með jákvætt sigurhlutfall mættu í Myntkaup Arena á miðvikudagskvöldi, Gunnar Bjartur Álftanes prins og Bóbó Dan Breiðhyltingur ársins 2013. Farið var yfir öll liðin í Bónus deild karla, hvaða beytingar hafa verið á liðunum frá því í lok sumars og hvaða breytingar er hægt og ætti að gera. Að sjálfsögðu spáðum við svo í sjöttu umferð sem hefst í kvöld.
Thu, 06 Nov 2025 - 12 - Run and Gun - Þáttur 12 (Spáð í umferð 5 Bónus deildarinnar og margt annað)
Um tveggja tíma þáttur í boði Myntkaups og félaga okkar hjá Körfufréttum þetta miðvikudagskvöldið. Tommi Steindórs mætti ásamt Manna Vill en Grindjánar eru einir taplausir á toppi deildarinnar. Við power rönkuðum 1.deildina, hent var í gestina hot takes og margt fleira en þó ekkert létt hjal.
Thu, 30 Oct 2025 - 11 - Run and Gun - Þáttur 11 (Spáð í umferð 4 Bónus deildarinnar)
Halli Karfa og Sá Slæmi mættu í Myntkaup Arena seint á miðvikudegi til að rýna í fjórðu umferðina sem hefst í kvöld í deild þeirra bestu. Leikmannalistar voru áberandi um þá sem hafa staðið sig vel, MVP race Íslenskra og erlendra leikmanna voru rædd sem og bestu nýju kaupin eins og þau líta við okkur í dag.
Thu, 23 Oct 2025 - 10 - Run and Gun - Þáttur 10 (Spáð í umferð 3 Bónus deildarinnar)
Manni Vill Grindjáni og GB Jr. Álftnesingur mættu í Myntkaup Arena og spáðu í spilin fyrir þriðju umferð Bónus deildarinnar. Stórleikur umferðarinnar er viðureign þar sem lið þeirra beggja einmitt mætast, tvö af fjórum taplausu liðum deildarinnar.
Thu, 16 Oct 2025 - 9 - Run and Gun - Þáttur 9 (Spáð í umferð 2 Bónus deildarinnar)
Þáttur 9 beint frá Myntkaup Arena. Gestir þáttarins eru Sá Slæmi og Gunnar Bjartur sem fékk boðsmiða eftir stórsigur Álftnesinga í fyrstu umferð. Overreaction eftir fyrstu umferð Bónusdeildar, spáin fyrir 1.deildina opinberuð, margir erlendir leikmenn voru sendir heim strax og svo var að sjálfsögðu spáð í 2.umferð. ATH aðeins hálftími af þættinum endaði á youtube í mynd í þetta skiptið en það eru gæði.
Thu, 09 Oct 2025 - 8 - Run and Gun - Þáttur 8 (Stjarnan og spáin)
Stóri upphitunar þátturinn, sérfræðingar skiluðu spám. Farið er yfir Stjörnuna, geta þeir unnið þetta aftur? SÁP, Hraunar og Tommi Steindórs mættu í Myntkaup Arena miðvikudagskvöldið 1.október og spáðu í tímabilið sem hefst Í DAG.
Thu, 02 Oct 2025 - 7 - Run and Gun - Þáttur 7 (Grindavík, Keflavík og Njarðvík)
Næstsíðasti upphitunarþáttur Run and Gun, sá sjöundi. Suðurnes, Falur Harðarson og Ármann Vilbergs köfuðu í Keflavík, Njarðvík og Grindavík í rúmar 90 mínútur í Myntkaup Arena.
Fri, 26 Sep 2025 - 6 - Run and Gun - Þáttur 6 (Valur og ÍR)
Steinar "Sá Slæmi" besti vinur Valsara mætti ásamt tveimur ástríðufullum ÍR-ingum, Bóbó Dan og Elvari Guðmunds í Myntkaup Arena. Umræðuefni dagsins voru tvö Reykjavíkurlið, ÍR og Valur.
Thu, 18 Sep 2025 - 5 - Run and Gun - Þáttur 5 (Álftanes)
Tveir harðir Álftnesingar komu í fimmta þáttinn í Myntkaup Arena og fóru yfir allt sem viðkemur liðinu sem fer nú inn í sitt þriðja tímabil í deild þeirra bestu. Gestir þáttarins eru Brjánsi sem vill bara vera titlaður Álftnesingur og Fannar Ingi sem fólk kannast einnig við sem söngvara hljómsveitarinnar Hipsumhaps.
Wed, 10 Sep 2025 - 4 - Run and Gun - Þáttur 4 (Fallbarátta-Ármann, ÍA og ÞórÞ)
Geta nýliðarnir haldið sér uppi? Haddi Bryll og Hraunar Karl mættu í fjórða þátt Run and Gun og ræddu möguleika Ármenninga og ÍA. Einnig var lið Þórs Þorlákshafnar krufið en þeir enduðu pikkfastir í 10.sæti í fyrra.
Sun, 07 Sep 2025 - 3 - Run and Gun - Þáttur 3 (KR)
Heill þáttur tileinkaður KR. Böddi fyrrum formaður og Auðunn Örn Gylfason mættu og rýndu í komandi tímabil með Brynjari Þór sem var á línunni frá Danmörku.
Mon, 01 Sep 2025 - 2 - Run and Gun - Þáttur 2 (Tindastóll).
Við rýnum í fyrsta liðið í Bónus deildinni fyrir komandi tímabil. Til umræðu er Tindastóll og Tindastóll einungis. Gestir eru Hugi og Halldór Halldórssynir.
Mon, 25 Aug 2025 - 1 - Run and Gun - Þáttur 1.
<p>Fyrsta deild karla, upphitun með Ísaki Wium og Tomma Steindórs rúmlega 6 vikum fyrir fyrstu umferð.<br></p>
Tue, 19 Aug 2025
Podcasts similar to Run and Gun with Mate Dalmay
Wife, Mother, Slave, Sex Goddess A. Heyward
Barangay Love Stories Barangay LS 97.1 Manila | GMA Network Inc.
Good Bad Billionaire BBC World Service
Cyprian Majcher Cyprian Majcher
Die Nachrichten Deutschlandfunk
Podcast Wojenne Historie Historia II wojny światowej
Forensic Files HLN
Nowenna pompejańska. Świadectwa https://pompejanska.krolowa.pl/
ILLVERK Podcast Inga Kristjáns
الشيخ أحمد العجمي islami
True Crime Documentary Justin Kandell Network
WojewódzkiKędzierski Kuba Wojewódzki, Piotr Kędzierski
Dear MOR MOR Entertainment
Snapped: Women Who Murder Oxygen
Papa Dudut Stories Papa Dudut | TAGM Marketing Solutions Inc.
DUDEK o polityce prof. Antoni Dudek i Super Exspress
Przemek Górczyk Podcast Przemek Górczyk
Sceny zbrodni RMF FM
Í ljósi sögunnar RÚV
Þetta nútímalíf RÚV Hlaðvörp
Skuggavaldið skuggavaldid
Money News Tapt Media
Żurnalista - Rozmowy bez kompromisów zurnalistapl
العلم والإيمان - د. مصطفى محمود علم ينتفع يه