Podcasts by Category

Sterk saman

Sterk saman

Tinna Gudrun Barkardottir

Sterk saman er spjallþáttur þar sem fólk með reynslu kemur og segir söguna sína auk þess sem við fáum sérfræðinga og fagfólk í settið til okkar.

196 - #194 Ívar Örn
0:00 / 0:00
1x
  • 196 - #194 Ívar Örn

    Ívar ólst upp í Vestmannaeyjum í miklum sársauka og sorg en þegar hann fæddist höfðu foreldrar hans þegar misst tvo syni. Hann varð afar meðvirkur og þróaði síðan með sér fíkn.

    Sun, 25 Oct 2026 - 1h 13min
  • 195 - #193 Hilma - Hávarður Máni

    Hávarður Máni lést 2. september 2025 eftir að hafa verið fastur í geðrofi í rúmt ár. Hilma Dögg, móðir hans segir okkur söguna hans og ferlið eftir að hann lést.

    Sun, 18 Oct 2026 - 1h 44min
  • 194 - #192 Klara - Geðdeild og fangelsið reyna að koma Anítu í gröfina

    Klara, móðir Anítu, sem nú er vistuð í einangrunarklefa á Hólmsheiði vegna plássleysis segir okkur frá stöðunni og meðferðinni sem dóttir hennar þarf að þola.

    Sun, 11 Oct 2026 - 1h 58min
  • 193 - #191 Óskar Brynjólfsson

    Óskar er þriggja barna faðir að vestan sem ólst upp við mikinn alkóhólisma, rótleysi og vanrækslu. Hann byrjaði ungur í neyslu til að deifa eigin vanlíðan og flýja raunveruleikann. Hann hefur verið í bata í rúm fimm ár.

    Sun, 04 Oct 2026 - 1h 47min
  • 192 - #190 Gugga Inga

    Guðbjörg Inga sem var þekkt áður sem önnur af tvíeykinu Jói og Gugga er búin að vera edrú og í bata í 15 ár. Hún byrjaði ung í neyslu og segir okkur sína sögu.

    Sun, 13 Sep 2026 - 1h 45min
Show More Episodes