Podcasts by Category
Trivíaleikarnir færa pub quiz stemninguna beint heim til þín, hvar sem þú ert og hvað sem þú ert að gera. Tvö tveggja manna lið etja kappi í léttri og skemmtilegri spurningakeppni þar sem spurningar um allt milli himins og jarðar dynja á keppendum. Hvort sem þú elskar pub quiz og spurningaspil eða veist varla hvað Gettu Betur er, að þá er eitthvað fyrir þig í Trivíaleikunum. Hlustaðu, hlæðu með okkur og lærðu eitthvað nýtt í leiðinni. Fáðu fleiri þætti í hverjum mánuði með áskrift á Patreon: https://www.patreon.com/trivialeikarnir
- 67 - 58. Halloween-leikarnir (þemaþáttur)
Fyrsti Halloween þátturinn í sögu Trivíaleikanna! Djöfullegur Daníel settist niður með liðunum tveimur og skaut hátt í 50 alblóðugum og hryllilegum hrekkjavökuspurningum á þau án afláts. Andsetinn Arnór og Jarðafarar-Jón mættu Myrkrahöfðingjanum Magnúsi og Martraðar-Marínu í stúdíói sem sett var upp í drungalegri pyntingardýflissu á ónefndum stað einhvers staðar á hálendi Íslands. Hlustaðu strax - hér er hrekkjavaka eða Halloween eins og þú hefur aldrei kynnst henni áður. Komdu þér fyrir, helltu þér upp á kaldann drykk og hlustaðu á fyrsta Halloween þáttinn okkar!
Keppendur: Arnór Steinn, Magnús Hrafn, Jón Hlífar og Marín Eydal.
Sun, 11 Oct 2026 - 2h 01min - 66 - 57. Ég kom, ég sá, ég Kröddaði
Jæja sumarfríið er á enda og Trivíaleikarnir snúa aftur með hvelli! Við droppuðum líka 9 þáttum á Patreon í sumar - tékkaðu á því og þig mun aldrei skorta þátt. Að þessu sinni kíktu Kristján, Ingi, Öddi og Heiðdís María í stúdíóið í einn löðrandi sveittan þátt af smáþekkingu og fróðleik. Hvaða evrópska höfuðborg stendur hæst yfir sjávarmáli? Hvers konar drykkur er Chablis? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Einnig settum við upp auglýsingu fyrir umsóknum fyrir þá sem vilja vera með í þáttunum, þú finnur hlekk á umsóknarformið inni á heimasíðu okkar trivialeikarnir.net.
Keppendur: Heiðdís María, Ingi, Kristján og Haraldur Örn.
Sun, 06 Sep 2026 - 1h 44min - 65 - Refskák II (Patreon þáttur)
Já það er smá sumarfrí í gangi hjá okkur í Trivíaleikunum og því enginn þáttur í júlí - en það er aldrei sumarfrí á Patreon og því bjóðum við hlustendum í staðinn upp á einn af nýju Patreon þáttunum okkar til að prófa. Arnór Steinn, Heiðdís María, Ingi og Marín Eydal kíktu öll í stúdíóið til Daníels og spreyttu sig á nýju Refskákinni en hún samanstendur af hraðaspurningum og þremur umferðum af "Einvíginu" - Það hljómar bara eins og ansi góður kokteill ef þú spyrð okkur!
Mon, 27 Jul 2026 - 28min - 64 - 56. Suðumark - hlustist til enda*
Já það er komið að fimmtugasta og sjötta þátt Trivíaleikanna og aldrei verið mikilvægara að hlusta á allan þáttinn til enda en nú. Það sauð upp úr og ofan í stúdíóinu en að þessu sinni skellti Öddi sér í dómarasætið og Jón Hlífar, Daníel, Ingi og Heiðdís María öttu kappi. Hver er hinn gríski guð víns? Í hvaða mánuði forna tímatalsins er allra heilagra messa? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Daníel Óli, Jón Hlífar, Ingi & Heiðdís María.
Mon, 22 Jun 2026 - 1h 26min - 63 - 55. Stefán Gyrðir og Glæsibærinn
Já það er komið að fimmtugasta og fimmta þætti Trivíaleikanna - afsakið hve seint þessi þáttur kemur út, það hefur verið erfitt að ná tökum upp á síðkastið. Shoutout líka á nýja sponsorinn okkar Frisbígolfbúðinni - tékkið á þeim í Glæsibænum! Í þennan kyngimagnaða þátt mættu þau Arnór, Heiðdís, Ingi og Bjarni Halldór í sinn annan þátt. Hver er söluhæsta breiðskída Kendricks Lamar? Hvaða Studio Ghibli mynd varð innblásturinn að útliti Youtube rásarinnar Lofi Girl. Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Arnór Steinn, Heiðdís María, Ingi og Bjarni Halldór.
Tue, 26 May 2026 - 1h 18min - 62 - 54. Magnus Carlsen lausnin
Fimmtugasti og fjórði þáttur Trivíaleikanna, í stúdíóið mættu Daníel Óli, Kristján, Ingi og splunkunýr keppandi úr fortíðinni, Bjarni Halldór sem keppti við Daníel, Arnór og Inga eitt sinn í Gettu Betur en Arnór Steinn skellti sér einmitt í dómarasætið að þessu sinni og því um sannkallaða endurfundi að ræða. Í hvaða landi er að finna höfuðborgina Dhaka? Fyrir hvað stendur skammstöfunin BSÍ? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Daníel Óli, Kristján, Ingi & Bjarni Halldór.
Wed, 15 Apr 2026 - 1h 30min - 61 - 53. Kröddi og cuckstólarnir
Já það er komið að 53. þætti Trivíaleikanna en að þessu sinni kíktu þeir Kristján, Jón Hlífar, Ingi og Öddi í sjóðblautt stúdíó hlaðvarpsins. Hvaða tveimur löndum í Suður-Ameríku á Brasilía ekki landamæri að? Hvað hefur hver spilari mörg spil á hendi þegar spilaður er skítakall með hefðbundnum spilastokki? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Kristján, Öddi, Ingi og Jón Hlífar.
Sun, 08 Mar 2026 - 1h 19min - 60 - 10P. Rottan í horninu (Patreon þáttur)
Vegna gríðarlegra anna spurningahöfundar að þá hefur þáttur mánaðarins tafist um nokkra daga - við vildum þó brúa aðeins bilið fyrir ykkur kæru hlustendur og leyfum ykkur því að heyra einn gamlan Patreon þátt frá því í haust í millitíðinni. Njótið vel kæru hlustendur og endilega kíkið á Patreon hjá okkur, þar getið þið fengið tugi þátta fyrir litla 8$.
Thu, 19 Feb 2026 - 1h 33min - 59 - 52. 2000's-leikarnir (þemaþáttur)
Fimmtugasti og annar þáttur Trivíaleikanna og þið vitið hvað það þýðir, þemaþáttur! Að þessu sinni varð fyrsti áratugur 21. aldarinnar fyrir valinu eða 2000's þema. Tvö kunnugleg lið, Arnór Steinn og Marín Eydal kepptu við Jóni Hlífari og Kristjáni í svakalegum 2000's slag þar sem Britney Spears, MP3 spilarar og DVD diskar komu víða við sögu. Hver var Region kóði Evrópu á DVD diskum? Hvaða goðsagnakennda lag Backstreet Boys var fyrsta lagið sem niðurhalað var af Napster? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Marín Eydal, Arnór Steinn, Kristján og Jón Hlífar.
Wed, 14 Jan 2026 - 1h 50min - 58 - 51. Formalínið hans Gísla Marteins
Já það er komið að nýjum þætti. Að þessu sinni skellti Arnór Steinn sér í dómarasætið og okkar eigin Ingi & Haraldur Örn tóku á móti glænýjum keppendum Þorra Líndal & Andreu í svakalegum þætti. Úr hvaða ávöxt eru sveskjur myndaðar? Hvaða knattspyrnulið hét upprunalega Newton Heath? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Ingi, Haraldur Örn, Þorri Líndal og Andrea.
Sun, 14 Dec 2025 - 1h 11min - 57 - Jóladagatalið 2025 (tilkynning)
VIÐ ERUM AÐ GEFA ÚT JÓLADAGATAL Í ÁR! Dagatalið inniheldur sjö þætti af Trivíaleikunum sem byrja að droppa 1. desember nk. og svo droppar nýr þáttur áfram á 3-4 daga fresti alveg fram að Jólum þegar lengri úrslitaþáttur droppar á aðfangadagsmorgun!
Um er að ræða fyrstu útsláttarkeppni í sögu Trivíaleikanna, átta lið tóku þátt með sextán keppendum, í hverri umferð detta út tapliðin og sigurliðin halda áfram þar til einungis tvö lið standa eftir og mætast í úrslitaþættinum á aðfangadag. Ekki missa af besta dagatalinu Jólin 2025 - farðu inn á Patreon vef okkar til að finna dagatalið (það þarf EKKI að vera í áskrift til að kaupa það). Þar undir Collections ættiru að sjá það, þegar þú hefur keypt dagatalið hefuru aðgang að því hvenær sem er og getur hlustað á þættina þegar þeir byrja að droppa á netið frá og með 1. desember þegar fyrsta umferð átta liða úrslitanna hefjast!
Dagatalið finnuru hér: Jóladagatalið 2025.
Liðin eru eftirfarandi:
Marín Eydal & Arnór Steinn
Hnikarr Bjarmi & Alvin Smári
Stefán Geir & Öddi
Valdi & Tinna
Kristján & Jón Hlífar
Alvin Máni & Tommi
Heiðdís María & Ingi
Magnús Hrafn & Arnar Tómas
Þættirnir droppa svona:
1. Umferð átta liða úrslit droppa þann 1. desember
2. Umferð átta liða úrslit droppa þann 5. desember
3. Umferð átta liða úrslit droppa þann 9. desember
4. Umferð átta liða úrslit droppa þann 13. desember
Fyrri undanúrslit droppa þann 17. desember
Seinni undanúrslit droppa þann 21. desember
Úrslitin sjálf droppa svo þann 24. desember
Tue, 25 Nov 2025 - 03min - 56 - 50. Live á Arena (50th episode special)
Við fögnum 50 þáttum af Trivíaleikunum með fyrsta live þættinum okkar, sem tekinn var upp á Arena í Kópavogi þann 17. okt 2025 fyrir framan fullan sal. Við erum ennþá agndofa yfir móttökunum sem við fengum - takk allir sem mættu og allir sem hlusta og gera okkur kleift að halda þessari veislu gangandi. Liðin tvö voru mynduð af tveimur af íkonískustu liðum Trivíaleikanna frá upphafi: Marínu og Arnóri ásamt Jóni og Kristjáni. Daníel skellti sér í dómarasætið og spurði liðin spjörunum úr en útkoman varð einn lengsti og skemmtilegasti þáttur í sögu hlaðvarpsins! Hver er fjölmennasta borg heimsálfunnar Afríku? Fyrir hvað stendur skammstöfunin WiFi? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Í gegnum þáttinn er einnig að finna Pub Quiz sem við vorum með fyrir salinn en þú kæri hlustandi getur tekið þátt í því heima fyrir sömuleiðis með litlu meira en hvítu blaði og penna. Myndaspurningarnar sem komu má finna með því að leita að "þáttur 50" á heimasíðu okkar trivialeikarnir.net.
Keppendur: Arnór Steinn, Marín Eydal, Jón Hlífar og Kristján.
Sat, 01 Nov 2025 - 2h 18min - 55 - 49. Við rændum Pittinum
Já þið lásuð rétt kæru hlustendur, við fengum stórmeistarana Braga Þórðarson og Kristján Einar Kristjánsson úr Pitturinn Podcast til að kíkja við í stúdíóið með tilheyrandi gleðskap og formúlufróðleik. Kristján Einar og Kristján úr Trivíaleikunum mynduðu lið og Bragi ásamt okkar allra besta Inga gáfu þeim góða samkeppni. Hvað heitir sidekick Radioactive Man í sjónvarpsþáttunum The Simpsons, hvað eru Bee Gees bræður margir? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Leiðrétting: Spurningin í Náttúra og Vísindi um laxa hefði átt að vera ógild - þannig að 5 stigin fyrir spurninguna um laxveiði áttu ekki að fara til Braga og Inga - blessunarlega hafði þessi spurning ekki áhrif á úrslit þáttarins.
Keppendur: Kristján, Ingi, Kristján Einar og Bragi Þórðarson.
Wed, 22 Oct 2025 - 1h 40min - 54 - Fimmtugasti þáttur live á Arena! (tilkynning)Tue, 14 Oct 2025 - 03min
- 53 - 48. Eitt þúsund ár af skírlífi
Já það er komið að fertugasta og áttunda þætti Trivíaleikanna. Í sjóðblautt stúdíóið mættu Arnór Steinn, Jón Hlífar, Kristján og Ingi. Hart var barist og mikið svitnað, ekki missa af þessari veislu! Hvort var það Benito Mussolini eða Voldemort sem sagði "Mikilleiki vekur öfund, öfund elur illsku, illska elur lygar"? Hvað hétu ræningjarnir þrír í leikverkinu um Kardemommubæinn? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Arnór Steinn, Jón Hlífar, Kristján og Ingi.
Sat, 06 Sep 2025 - 1h 29min - 52 - 47. Blái mörðurinn
Fertugasti og sjöundi þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni brá hópurinn sér í stúdíó Sánu að nýju og okkar allra besti Kristján settist í fyrsta sinn í spyrils- og dómarasætið. Tvö þungarvigtarlið tókust á í kjölfarið en Daníel og Ingi mættu Arnóri og Jóni í títanískum hamfaraslag vitsmuna og fræðimennsku. Ekki missa af þessari veislu. Hvaða leikari fór með hlutverk Blade í Blade þríleiknum. Frá hvaða heimsálfu koma tómatar upprunalega? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Daníel Óli, Arnór Steinn, Jón Hlífar og Ingi.
Mon, 04 Aug 2025 - 1h 28min - 51 - 46. Kröddi og grunsamlega þunga skútan
Já það er komið að fertugasta og sjötta þætti Trivíaleikanna og að þessu sinni var þátturinn algjör negla. Marín Eydal og Daníel Óli mynduðu stórskemmtilegt teymi sem tókst á við hörkusterkt lið Ödda og Kristjáns á meðan að Arnór Steinn vermdi þáttastjórnendasætið. Júlí markar tímamót í sögu Trivíaleikanna þar sem við munum héðan í frá vera að gefa út þrjá þætti í hverjum mánuði og lækkuðum einnig áskriftargjaldið okkar á Patreon úr 10$ í 8$. Það þýðir að allir sem eru í áskrift munu vera að fá þrjá þætti í hverjum mánuði fyrir litla 8$. Ekki missa af þessari veislu, kíktu inn á www.patreon.com/trivialeikarnir og vertu með! Hvað heitir síðasta kvikmyndin í Dollars trilógíunni? Úr hvaða stöðuvatni rennur Laxá í Aðaldal? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Marín Eydal, Daníel Óli, Haraldur Örn og Kristján.
Mon, 07 Jul 2025 - 1h 38min - 50 - Fleiri þættir & ódýrari áskrift (tilkynning)Tue, 01 Jul 2025 - 03min
- 49 - 6P. Nespresso Halli (Patreon þáttur)
Við vildum leyfa ykkur öllum að prófa að hlusta á einn af þeim fjölmörgu frábæru þáttum sem við erum að bjóða upp á inni á Patreon þessa dagana. Kíktu á Patreon vef okkar, komdu í áskrift og fáðu hátt í 20 þætti sem eru þar inni nú þegar! Heyrst hefur að áskriftargjaldið hafi lækkað á síðustu dögum, mæli með að tékka á því!
Keppendur: Arnór Steinn, Marín Eydal, Ingi & Haraldur Örn.
Mon, 30 Jun 2025 - 1h 38min - 48 - 45. Lana Del Reykjavík
Fertugasti og fimmti þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mættu Arnór Steinn, Ástrós Hind, Jón Hlífar og Kristján í gamla góða stúdíó 9A seint á þriðjudagskvöldi. Chi-húa-húa og Lanmótið Lana Del Reykjavík - ekki missa af þessari veislu. Nafn hvaða eftirréttar merkir á ítölsku „eldaður rjómi.” Hvaða land á flesta páfa á eftir Ítalíu? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Arnór Steinn, Ástrós Hind, Jón Hlífar og Kristján.
Thu, 29 May 2025 - 1h 30min - 47 - 44. Íslensk skyrglíma
Fertugasti og fjórði þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mættu Kristján og Hnikarr þeim Inga og Ödda í títanískum reginslag í gamla góða stúdíói 9A. Ekki missa af þessari skyrþöktu veislu! Hver var fyrsta skáldsagan sem var skrifuð í allri heild sinni á ritvél? Hvaða tæknirisi framleiddi fyrsta örgjörvann sem var seldur almenningi? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Kristján, Ingi, Hnikarr Bjarmi og Öddi.
Mon, 28 Apr 2025 - 1h 35min - 46 - 43. Imodium félagar
Fertugasti og þriðji þáttur Trivíaleikanna en að þessu sinni mættu Kristján, Jón Hlífar, Ingi og Heiðdís María í upprunalega stúdíó hlaðvarpsins, hið yndislega Stúdíó 9A. Ekki missa af þessari Imodium veislu. Hvert er fjölmennasta landlukta land heims? Hvað gefur verðmætasta prikið í Míkadó mörg stig? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Kristján, Jón Hlífar, Ingi og Heiðdís María
Sun, 30 Mar 2025 - 1h 38min - 45 - 42. 80's-leikarnir (þemaþáttur)
Já þið lásuð rétt, það er loksins komið að þemaþætti! Að þessu sinni vorum við með kosningu á Instagram þar sem hlustendur sendu inn tillögur og níundi áratugurinn (80's) var valinn úr þeim uppástungum. Magnús Hrafn og Jón Hlífar tóku á móti Daníel Óla og Kristjáni í gamla góða stúdíó 9A en í dómarasætið brá sér okkar allra besti Arnór Steinn. Fyrir hvaða Bond kvikmynd samdi Duran Duran þemalag? Hve langur var Berlínarmúrinn? Hver lék eltihrellinn ógurlega í Fatal Attraction? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Daníel Óli, Jón Hlífar, Kristján og Magnús Hrafn.
Tue, 25 Feb 2025 - 1h 16min - 44 - Heima Quiz III (Patreon þáttur)
Já þið lásuð rétt - við ætlum að leyfa ykkur að prófa einn af Patreon þáttunum okkar frítt. Heima Quiz er í rauninni Pub Quiz sem þú getur spilað heima hjá þér eða hvar sem þú ert. Þú getur ýmist keppt á móti Inga og Kristjáni eða keppt við maka, vin, foreldra eða hvern sem er - þú ræður algjörlega ferðinni. Daníel ber upp 16 flokkaspurningar, eina textabók og þríþraut og þú svarar á blað (við bjóðum upp á blað sem þú getur prentað út á heimasíðu okkar trivialeikarnir.net) og svo förum við yfir spurningarnar og svörin í lokin.
Hefur þig alltaf langað að prófa að spreyta þig á Trivíaleikaspurningunum sjálfur? Langar þig að skora hærra en keppendur Trivíaleikanna? Núna er tækifærið, helltu þér upp á drykk, komdu þér fyrir með blað og byrjaðu að svara!
Thu, 13 Feb 2025 - 1h 17min - 43 - 41. Sumarbúðir í Jemen
Fertugasti og fyrsti þáttur Trivíaleikanna en í þennan kyngimagnaða þátt mætti Haraldur Örn frá hlaðvarpi Fótbolti.net þar sem hann er með spurningakeppnisþáttinn "Fótbolta nördinn." Í liði með Haraldi var enginn annar en okkar allra besti Stefán Geir en á móti þeim tveimur keppti eitt kunnuglegasta lið hlaðvarpsins "Heiðingi" eða Heiðdís María og Ingi. Hvaða þrjú ríki kallaði George W. Bush, Öxulveldi hins Illa? Hvaða norræni rithöfundur skrifaði ævintýrið um Snædrottninguna? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Stefán Geir, Haraldur Örn, Heiðdís María og Ingi.
Wed, 22 Jan 2025 - 1h 24min - 42 - 40. Krókódílar, baunir og kokteilar
Fertugasti þáttur Trivíaleikanna en að þessu mættu Marín Eydal og Ingi þeim Kristjáni og Hnikarri sem létu vel um sig fara í Stúdíó Frystikistu. Hvert er enska og þekktara heiti eitursins Kristspálma? Hvaða íslendingur lék stórt hlutverk í lokaseríu sjónvarpsþáttanna um Dexter? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Marín Eydal, Ingi, Kristján og Hnikarr Bjarmi.
Sat, 04 Jan 2025 - 1h 21min - 41 - Pub Quiz Trivíaleikanna (tilkynning)Sat, 30 Nov 2024 - 05min
- 40 - 39. Við rændum Villa Naglbít
Þrítugasti og níundi þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni rændum við tónlistarmanninum og spurningaþáttagoðsögninni Vilhelm Antoni eða Villa Naglbít eins og hann er kallaður og buðum honum sæti í ísköldu stúdíó Sána. Auk hans mættu til leiks Trivíaleikakempurnar Arnór Steinn, Ingi og Kristján í einhverjum eftirminnilegasta þætti hlaðvarpsins. Nafn hvaða pastategundar merkir einfaldlega „litlar tungur” á ítölsku? Hvað byrja spilarar með mörg spil á hendi í Ólsen Ólsen? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Áríðandi tilkynning: Við viljum minna ykkur öll á að Trivíaleikarnir verða með fyrsta Pub Quizið í sögu hlaðvarpsins þann 5. desember nk. í Arena (turninum) í Kópavogi klukkan 21:00. Ekki missa af þessari veislu og láttu sjá þig á Arena 5. des!
Keppendur: Vilhelm Anton, Arnór Steinn, Kristján og Ingi.
Thu, 28 Nov 2024 - 1h 26min - 39 - 38. Kanilhellar í Egyptalandi
Þrítugasti og áttundi þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mætti stórgott lið Jóns Hlífars og Kristjáns sterku liði Arnórs Steins og Inga í Stúdíó Sánu. Ekki missa af þessari rjúkandi heitu skemmtun af hlaðvarpsþætti, komdu þér fyrir, ýttu á play og njóttu vel. Hvaða land sem liggur ekki að sjó (er landlukt) er stærst allra landluktra landa að flatarmáli? Hvers konar dýr er persónan fræga Tom Nook sem kemur fyrir í Animal Crossing tölvuleikjaseríunni? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Arnór Steinn, Ingi, Jón Hlífar og Kristján.
Tue, 05 Nov 2024 - 1h 19min - 38 - 37. Ljúfmundur snýr aftur!
Þrítugasti og sjöundi þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni hefur lukkudýr hlaðvarpsins snúið aftur í framhaldsþætti sem allir hafa beðið eftir! Marín Eydal og Arnór Steinn tókust á við sterkt lið Ástrósar Hindar og Kristjáns í gígantískum vitsmunaslag í hinu gamla og góða stúdíói 9A. Hvert er algengasta orðið í enskri tungu? Hvert er háværasta dýr jarðarinnar? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Arnór Steinn, Marín Eydal, Ástrós Hind og Kristján.
Wed, 02 Oct 2024 - 1h 32min - 37 - 36. Hundrað ára mjálmsemd
Þrítugasti og sjötti þáttur Trivíaleikanna en að þessu sinni mættu Magnús Hrafn, Ástrós Hind, Ingi og Kristján til leiks í stúdíó Sána. Ekki missa af þessari veislu og hlustaðu á hundrað mismunandi leiðir til að mjálma vitlaust. Undir hvaða listamannsnafni er tónlistarmaðurinn Richard Starkey betur þekktur? Hvað er Cosa Nostra? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Magnús Hrafn, Ástrós Hind, Ingi og Kristján.
Thu, 05 Sep 2024 - 1h 35min - 36 - 35. Eldborg, ælubogar og gaddavír
Þrítugasti og fimmti þáttur Trivíaleikanna en Daníel er mættur aftur og tók á móti Stefáni Geir, Jóni Hlífari, Kristjáni og Inga í meðalheitu stúdíó Sána. Er ælubogi færeyskt orð yfir hringtorg eða regnboga? Hvaða land hefur flesta staði á heimsminjaskrá? Hvaða áfengi drykkur er notaður þegar búið er til Sangria? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Stefán Geir, Jón Hlífar, Kristján og Ingi.
Fri, 16 Aug 2024 - 1h 22min - 35 - 34. Fúeró Brúedós
Þrítugasti og fjórði þáttur Trivíaleikanna, Daníel er ennþá týndur en það er víst góð ástæða fyrir því samkvæmt spurningahöfundi þáttarins Arnóri Steini. Að þessu sinni mættu Marín Eydal, Ástrós Hind, Heiðdís María og Ingi í löðrandi heitt stúdíó undir súð í Grafarvoginum þar sem spænskunni var slett óspart og ekkert var tilsparað. Í hvaða borg er að finna hina frægu Karlsbrú? Hvaða fyrirtæki kom með fyrstu stafrænu myndavélina á almennan markað árið 1999? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Marín Eydal, Ástrós Hind, Heiðdís María og Ingi.
Tue, 02 Jul 2024 - 1h 50min - 34 - 33. Ozempic ævintýri
Þrítugasti og þriðji þáttur Trivíaleikanna en að þessu sinni brá Arnór Steinn sér í dómarasætið þar sem Daníel er stunginn af út á land yfir sumarið. Kristján og Jón Hlífar tókust á við Inga og Heiðdísi Maríu í löðrandi sveittu stúdíói 33 þar sem engu var til sparað. Hvers konar matvæli er Paneer? Hvernig eru skeljarnar á litinn sem skjóta má á fremsta ökumann í Mario Kart tölvuleikjaseríunni? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Kristján, Jón Hlífar, Ingi og Heiðdís María.
Wed, 29 May 2024 - 1h 17min - 33 - 32. 90's-leikarnir (þemaþáttur)
Þrítugasti og annar þáttur Trivíaleikanna en að þessu sinni er það þemaþáttur um tíunda áratuginn. Arnór Steinn og Daníel Rósinkrans fara um allar trissur tíunda áratugarins er þeir taka á móti Jóni Hlífari og Kristjáni í 90's slag sem lætur Jean-Claude van Damme líta út eins og nýfæddan kettling frænku þinnar. Hver vinanna í Friends átti flestar talaðar línur? Hver Kryddpíanna hætti fyrst í hljómsveitinni? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Arnór Steinn, Daníel Rósinkrans, Jón Hlífar og Kristján.
Fri, 19 Apr 2024 - 1h 41min - 32 - 31. Tveir plús tveir fellar
Þrítugasti og fyrsti þáttur Trivíaleikanna en í stúdíó 9A mættu að þessu sinni meistararnir Einar og Óli úr hlaðvarpinu vinsæla Tveir Fellar. Einar gekk til liðs við okkar allra besta Inga og Óli plús Kristján mynduðu saman ofurliðið "Króli." Í þessari viku opnuðum við einnig fyrir áskrift að hlaðvarpinu inni á Patreon.com/trivialeikarnir fyrir þá sem vilja fá fleiri þætti og meira efni frá Trivíaleikunum - endilega tékkið á því! Hvaða ógeðfellda hráefni er í Sardinska ostinum Casu Martzu? Hvaða spendýr má sjá í skjaldarmerki Hufflepuff heimavistar í sögunum um Harry Potter? Hvaða þjóð hefur unnið fleiri verðlaun á Vetrarólympíuleikum en nokkur önnur? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Ingi, Kristján, Einar og Óli Þorbjörn.
Fri, 15 Mar 2024 - 1h 41min - 31 - Framtíð Trivíaleikanna (tilkynning)
Stærsta tilkynning í sögu Trivíaleikanna!
Vertu með og komdu í áskrift: https://www.patreon.com/trivialeikarnir
Tue, 12 Mar 2024 - 14min - 30 - 30. Smá vísindi fyrir börnin
Þrítugasti þáttur Trivíaleikanna! Í þennan stórmerkilega tímamóta þátt mættu þau Ástrós Hind, Magnús Hrafn, Ingi og Arnór Steinn í stúdíó 9A og létu til sín taka. Hver er fjölmennasta þjóðin sem hefur aldrei unnið til verðlauna á Ólympíuleikum? Hver er mest seldi PEZ karl allra tíma? Hvaða frumefni og gastegund er notuð til að vernda bandarísku stjórnarskrána? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Arnór Steinn, Ástrós Hind, Ingi og Magnús Hrafn.
Tue, 13 Feb 2024 - 1h 44min - 29 - 29. Við rændum landsliðsmanni í handbolta
Tuttugasti og níundi þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mætti atvinnu- og landsliðsmaðurinn í handbolta Donni Kristjáns ásamt góðvini sínum Tomma í stúdíó 9A. Á móti þeim tóku reynsluboltarnir Kristján og Ingi í hörkuslag þar sem reynt var á nýtt fyrirkomulag nokkurra spurningaliða. Hver er refsingin fyrir að gleyma að segja „ólsen” í spilinu Ólsen Ólsen? Bílamerki hvaða bílategundar er ekki bara fyrsti bókstafurinn í nafninu heldur er einnig talið tákna handaband kaupanda og seljanda bílsins? Hver var síðasti forsætisráðherra Íslands til að útskrifast úr Menntaskólanum við Sund? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Kristján, Ingi, Donni og Tommi.
Mon, 22 Jan 2024 - 2h 02min - 28 - 28. Rapphljómsveitin Genghis Khan
Tuttugasti og áttundi þáttur Trivíaleikanna. Til leiks mættu Jón Hlífar, Marín Eydal, Kristján og Ástrós Hind í stúdíó 9A. Hver var Borgarstjóri Reykjavíkur áður en að Jón Gnarr tók við embættinu árið 2010? Hvert er algengasta fyrsta eiginnafn kvenna á Íslandi sem hefst á bókstafnum „E”? Af hvers konar dýri er kasmírull unnin? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Jón Hlífar, Marín Eydal, Kristján og Ástrós Hind.
Sat, 06 Jan 2024 - 1h 48min - 27 - 27. Jólaleikarnir (bónusþáttur)
Tuttugasti og sjöundi þáttur Trivíaleikanna og fyrsti bónusþáttur í sögu hlaðvarpsins! Í bónusþáttum leyfum við okkur að breyta út af venjulega formattinu og prófa nýja dagskrárliði, ný þemu og algjörlega ný formött. Að þessu sinni var Jólaþema tekið fyrir og mættu til leiks bræðurnir Valdi og Bjarki en þeir tóku á móti Kristjáni og Heiðdísi Maríu í Jólaslag vitsmuna og kímni þar sem miklu meira en Macintoshi og piparkökum var tortímt. Hver er mest selda Jólasmáskífa allra tíma? Hvaða skrápdýr vill Ómar Ragnarsson fá í skóinn í laginu Gefðu mér gott í Skóinn? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Valdi, Bjarki, Kristján og Heiðdís María.
Mon, 11 Dec 2023 - 1h 34min - 26 - 26. Þunglyndur á hnetubar í Vín
Tuttugasti og sjötti þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mættu Marín Eydal og Arnór Steinn þeim Kristjáni og Hnikarri Bjarma í títanískum slag vitsmuna og kómedískrar fagurfræði. Hvaða tvö tónskáld sömdu The Sound of Music? Hvaða söngkona átti smellinn Milkshake sem kom út árið 2004? Sýklalyf eru stundum kölluð fúkkalyf en hvað þýðir orðið „fúkki"? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Marín Eydal, Arnór Steinn, Kristján og Hnikarr Bjarmi.
Mon, 20 Nov 2023 - 1h 24min - 25 - 25. Heyrðu, ég er með ristil!
Tuttugasti og fimmti þáttur Trivíaleikanna. Við opnum þáttinn með glænýju og geggjuðu þemalagi en að þessu sinni mættu reynsluboltarnir Ingi og Kristján til leiks á móti Leifi úr 20. þætti og bróður hans Bjarka. Hvaða rómantíska gamanmynd átti upprunalega að heita 3000? Um hve margar gráður hallar skakki turninn í Pisa? Hvaða spænski listamaður hannaði vörumerki Chupa Chups sleikjóa? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Bjarki, Ingi, Kristján og Leifur.
Mon, 30 Oct 2023 - 1h 18min - 24 - 24. Erótískt skeggnudd
Tuttugasti og fjórði þáttur Trivíaleikanna. Jón Hlífar og Marín Eydal tóku á móti Ástrós Hind og Kristjáni í rosalegum þætti af hlaðvarpinu skemmtilega. Hvaða hljómsveit ber skammstöfun sem stendur fyrir Bangtan Sonyeondan? Hver var fyrsta þjóðin til að senda kött út í geim? Hvers konar baunir eru notaðar í hefðbundið mexíkóst Chili con carne? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Ástrós Hind, Jón Hlífar, Kristján og Marín Eydal.
Sat, 07 Oct 2023 - 1h 50min - 23 - 23. Líkamsverkfræðingur að mennt
Tuttugasti og þriðji þáttur Trivíaleikanna sem útvarpað var í beinni á Útvarp Mosfellsbæ sem partur af bæjarhátíðinni Í túninu heima. Arnór Steinn og Ástrós Hind tóku á móti Inga og Kristjáni í hörkuþætti þar sem snert var á einu og öðru úr heimabæ hlaðvarpsins. Hvert er lengsta fljót Bandaríkjanna? Hvaða tæki skapaði Alexander Graham Bell til að bjarga lífi James A. Garfield forseta Bandaríkjanna? Í upphafsatriði hvaða sjónvarpsþátta grípa aðalpersónurnar epli sem dettur af skilningstrénu? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Arnór Steinn, Ástrós Hind, Ingi og Kristján.
Sun, 27 Aug 2023 - 1h 24min - 22 - 22. Tölvuleikarnir (þemaþáttur)
Tuttugasti og annar þáttur Trivíaleikanna sem og annar þemaþátturinn í sögu hlaðvarpsins. Að þessu sinni var þemað tölvuleikir sem þýðir að allar spurningar þáttarins snúast um tölvuleikjasenuna en í þáttinn mættu tveir fyrrum keppendur Arnór Steinn og Marín Eydal en einnig Óli Jóels og Daníel Rósinkrans frá Gametíví. Hvort er Dartrix pokémon eða stinningarlyf? Hvaða svindlkóða notuðu spilarar til að fá pening í upprunalega Sims leiknum? Hve mörg rauð ljós blikkuðu í hinu hrikalega Red Ring of Death sem Xbox eigendur óttuðust meira en allt? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Marín Eydal, Arnór Steinn, Óli Jóels og Daníel Rósinkrans.
Tue, 15 Aug 2023 - 1h 48min - 21 - 21. Flautarinn í Rotterdam
Tuttugasti og fyrsti þáttur Trivíaleikanna en í þessum þætti mættu gömlu reynsluboltarnir til leiks í stúdíó 9A þegar Jón Hlífar og Magnús Hrafn tókust á við Kristján og Inga í einhverjum rosalegasta þætti hlaðvarpsins hingað til. Frá hvaða landi kemur rétturinn Massaman Karrí upprunalega, í hvaða blóðflokki eru fæstir íslendingar, hvaða ár komu leikjatölvurnar Playstation 3 og Nintendo Wii fyrst út? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Jón Hlífar, Magnús Hrafn, Kristján og Ingi.
Wed, 28 Jun 2023 - 1h 45min - 20 - 20. Djúnessekva og aðrir söngvar
Tuttugusti þáttur Trivíaleikanna en í þennan tímamótaþátt mættu tveir nýjir keppendur til leiks Valdi og Leifur frá borðspilahlaðvarpinu Pant vera Blár!Kristján og Ástrós mættu til leiks á ný eftir svekkjandi endi á síðasti þætti og freista þess hér að sækja sigur í hinu goðsagnakennda stúdíó 9A. Hvað heitir mennski strákurinn í sögunni um Bangsímon? Hvað kallast túnfífill eftir að hann hefur afblómgast? Hvaða kvikmynd frá tíunda áratugnum gerði línuna „Hasta la vista, baby" ódauðlega í poppkúltúr? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.Keppendur: Kristján, Ástrós Hind, Þorvaldur og Leifur.
Tue, 30 May 2023 - 1h 41min - 19 - 19. Allt nema Ljúfmund
Nítjándi og einn allra besti þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mættu tveir nýir keppendur til leiks, Marín Eydal frá Gametíví og Ástrós Hind frá hlaðvarpinu Listin og Lífið. Með Marínu í liði var okkar allra besti Arnór Steinn og með Ástrós í liði var okkar einnig allra besti Kristján. Er Bambi Elínmundur löglegt nafn samkvæmt Mannanafnanefnd? Hvað heitir erkióvinur pabba Ronju Ræningjadóttur? Safi hvaða ávaxtar er notaður í kokteilinn „Screwdriver?" Hvaða frægi leikari talar fyrir persónuna Sideshow Bob í sjónvarpsþáttunum vinsælu The Simpsons? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Arnór Steinn, Marín Eydal, Kristján og Ástrós Hind.
Fri, 31 Mar 2023 - 1h 58min - 18 - 18. Þyrlupallar og flotabryggjubrauð
Átjándi þáttur Trivíaleikanna og sá fyrsti á árinu 2023. Í þessum frábæra þætti mættu tvö lið til leiks í Mekka Trivíaleikanna í stúdíó 9a. Kristján og Hnikarr Bjarmi tókust á við Inga og Heiðdísi Maríu eða Heiðingja eins og liðið er orðið þekkt nú til dags. Í hvaða ríki Bandaríkjanna er að finna Miklagljúfur? Hvaða leikkona talaði fyrir gervigreindina í kvikmyndinni Her frá árinu 2013? Hvort eru fleiri umferðarljós á höfuðborgarsvæðinu eða bílastæði í bílastæðahúsi Hörpu? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Kristján, Hnikarr Bjarmi, Ingi og Heiðdís María.
Mon, 27 Feb 2023 - 1h 33min - 17 - 17. Þau áttu barn og nýfætt barn
Sautjándi þáttur Trivíaleikanna og sá síðasti á þessu ári. Við bombuðum í þennan aukaþátt sem jólagjöf til ykkar kæru hlustendur, gleðilega hátíð og takk fyrir að hafa fylgt okkur í gegnum þetta fyrsta ár okkar sem kornungt hlaðvarp. Þið eruð einfaldlega best. Að þessu sinni tók lið Stefáns Más og Stefáns Geirs eða Stefán í öðru veldi á móti reynslumiklu liði Kristjáns og Jóns Hlífars í glænýju stúdíói eða Stúdíó 2. Hver er næst fjölmennasta borg Grikklands? Hvaða ávöxtur er þurrkaður til þess að búa til sveskjur? Hver var fyrsta leikjatölvan sem var gefin út með innbyggðum hörðum disk? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Stefán Geir, Stefán Már, Jón Hlífar og Kristján.
Fri, 23 Dec 2022 - 1h 30min - 16 - 16. Það er smá gruns
Sextándi þáttur Trivíaleikanna en að þessu sinni mættu liðin tvö til leiks í stúdíó 22 í annað skiptið. Kristján og Heiðdís María tóku á móti Inga og nýja keppandanum Fanneyju Ósk í stórskák vitsmuna og vitneskju afar seint um kvöld. Hver er stærsta eyja Breiðafjarðar? Hvaða lið hefur fallið næst oftast úr ensku úrvalsdeildinni? Hvað heitir kaffihúsið í sjónvarpsþáttunum Seinfeld? Í hvaða mánuði fæðast flest börn í Bandaríkjunum? þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Kristján, Heiðdís María, Ingi og Fanney Ósk.
Sun, 18 Dec 2022 - 1h 38min - 15 - 15. Ölverjar við ána
Fimmtándi þáttur Trivíaleikanna en í þessum magnaða þætti tókust á tvö lið reynslubolta þegar Arnór Steinn og Ingi mættu Kristjáni og Jóni Hlífari yfir glasi af öli. Ekkert var til sparað og útkoman varð ein af betri þáttum hlaðvarpsins hingað til. Hver er besti árangur Afríkuríkis á HM karla í knattspyrnu? Hvað hefur gamla útgáfan af kettinum Klóa margar tær á hvorum fæti? Eftir hvaða leikriti Williams Shakespeare var unglingakvikmyndin 10 Things I Hate About You skrifuð? Hver slapp einn úr Njálsbrennu og hefndi þeirra sem brunnu inni á Bergþórshvoli? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Arnór Steinn, Ingi, Kristján og Jón Hlífar.
Fri, 25 Nov 2022 - 1h 50min - 14 - 14. Miðbæjarjárnmaðurinn
Fjórtándi þáttur Trivíaleikanna en í þessum yndislega þætti mættu Magnús og nýliðinn Stefán Már til leiks gegn Inga og Hnikarri Bjarma. Engu var haldið aftur og stoðir íslensks trivíasamfélags titruðu undan stúdíói 9A. Að þessu sinni bættist A4 og Kubbabúðin í hóp styrktaraðila hlaðvarpsins ásamt ELKO. Hvor hefur gengið í gegnum fleiri skilnaði Kevin Bacon eða Ted Bundy? Hvenær lokaði McDonalds skyndibitakeðjan á Íslandi? Úr hvaða ávöxt er meðlætið „Asíur" framleitt? Hvert er íbúaheiti einstaklinga frá Kyrgyzstan? Í formum hvaða fyrirbæra eru sykurpúðarnir í morgunkorninu Lucky Charms? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Magnús Hrafn, Stefán Már, Ingi og Hnikarr Bjarmi.
Sun, 30 Oct 2022 - 1h 49min - 13 - 13. Dórótea og simpansinn í Oz
Þrettándi þáttur Trivíaleikanna. Í þessum frábæra þætti mættu í stúdíó 9A tvö lið reynslubolta en Jón Hlífar og Kristján tókust á við Inga og Hnikarr Bjarma. Að þessu sinni var ekkert til sparað og þá er þetta einnig fyrsti þátturinn í nýju samstarfi ELKO og Trivíaleikanna þar sem ELKO er orðinn styrktaraðili hlaðvarpsins. Í hvaða landi eru flestir pýramídar heims? Hvort hefur Jackie Chan gefið út fleiri stúdíóplötur eða unnið fleiri óskarsverðlaun? Hvort eru fleiri tröppur fyrir framan Akureyrarkirkju eða einbreiðar brýr á hringveginum? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Jón Hlífar, Kristján, Ingi og Hnikarr Bjarmi.
Fri, 23 Sep 2022 - 1h 35min - 12 - 12. Potterleikarnir (þemaþáttur)
Tólfti þáttur Trivíaleikanna sem og allra fyrsti þemaþátturinn en þemaþættir eru eins konar bónusþættir fyrir hlustendur þar sem tekið er fyrir eitthvað eitt þema og allar spurningar þáttarins eru úr því efni. Að þessu sinni var þemað Harry Potter heimurinn en fengnir voru fjórir Potter-sérfræðingar til að keppa sín á milli. Lið Heiðdísar Maríu og Inga eða Heiðingi líkt og það hefur verið kallað tók á móti liði Stefáns Geirs og Sólveigar í títanískum slag ófyrirgefanlegra bölvana og galdra. Af hvaða drekategund var drekinn sem varði bankahvelfingar Gringotts í sjöundu bókinni? Hvort eru fleiri nemendur úr heimavistum Ravenclaw eða Hufflepuff í Dumbledore's Army? Hvaða persóna Harry Potter bókanna ber sama nafn og ítalska heitið á einum af borgum Ítalíu? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Ingi, Heiðdís María, Stefán Geir og Sólveig.
Fri, 02 Sep 2022 - 1h 18min - 11 - 11. Þríbólusettur með Michelle Pfizer
Ellefti þáttur Trivíaleikanna en í þessum frábæra þætti mættu Stefán Geir og Kristján til leiks gegn splunkunýju liði Inga og nýs keppanda að nafni Heiðdísar Maríu sem keppti sinn fyrsta Trivíaleikaþátt. Hið goðsagnakennda stúdíó 9A titraði undan þessum reginslag gáfna og fimmaura en bæði lið tefldu fram öllu mögulegu allt fram á síðustu metrana. Við hvaða haf stendur hafnarborgin Jeddah sem er talin höfuðleiðin til Mekka? Hvaða ár yfirgaf bandaríski herinn Keflavíkurflugvöll? Hvaða ber var lengi vel talið hættulegt í Evrópu eftir að það eitraði fyrir ríkum aristókrötum við aldamótin 1700? Hvað heitir aðalpersóna tölvuleikjaseríunnar God of War? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Stefán Geir, Kristján, Heiðdís María og Ingi.
Thu, 25 Aug 2022 - 1h 28min - 10 - 10. Olíuborin beðmál í Bolungarvík
Tíundi þáttur Trivíaleikanna en í þessum tímamótaþætti var ekkert til sparað! Stefán Geir og Arnór Steinn mættu Jóni Hlífari og Kristjáni í reginslag vitsmuna og kímni í hinu goðsagnakennda stúdíói 9A. Takk kærlega fyrir góðir hlustendur að hafa fylgt okkur þetta lengi og hjálpað okkur að komast að þessum tímamóta-tíunda-þætti. Ég held að orð ömmu rokksins segi allt sem segja þarf: „You're simply the best." Er Fatal Devastation kvikmynd með Sylvester Stallone eða ávöxtur ímyndunarafls spurningahöfundar? Hvar í Afríku voru flest eyðimerkuratriðina úr upprunalegu Star Wars kvikmyndinni tekin upp? Hvaða Bandaríkjaforseti lét smíða keilubraut í kjallara hvíta hússins á áttunda áratugnum? Hvort er krabbinn eða skjaldarmerkið skilgreint sem framhliðin á íslenskri 50 krónu smámynt? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Stefán Geir, Arnór Steinn, Jón Hlífar og Kristján.
Fri, 22 Jul 2022 - 1h 32min - 9 - 9. Þumlalaust réttlæti
Níundi þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mættu þrír splunkunýjir keppendur til leiks, eitthvað sem hefur ekki gerst frá árdögum fyrsta þáttar hlaðvarpsins. Í hið goðsagnakennda stúdíó 9A mætti til leiks lið Jón Arnars og Viktors Huga sem mætti liði Hnikars Bjarma og Hrafns Splidt í sannkölluðum reginslag vitsmuna og seiglu. Er Love in the Time of Sewage rómantísk gamanmynd með John Cusack í aðalhlutverki eða brot af ímyndunarafli spurningahöfundar? Á landamærum hvaða tveggja bandarísku ríkja liggur Hoover stíflan? Hvert er eina ríkið í heiminum utan Íslands til að nota einn stakan listabókstaf fyrir stjórnmálaflokka sína? Af hvaða hundategund voru kvikmyndahundarnir Beethoven og Cujo? Í hvaða nútímalandi má finna Transylvaníu? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Hnikarr Bjarmi, Hrafn Splidt, Jón Arnar og Viktor Hugi.
Fri, 01 Jul 2022 - 1h 21min - 8 - 8. Ölverjar allra landa, sameinist!
Áttundi þáttur Trivíaleikanna en í þessum frábæra þætti skáluðu keppendur og dómari í öli og kepptu einn magnaðasta þátt Trivíaleikanna hingað til. Að þessu sinni var þátturinn tekinn upp utan stúdíó 9A eða það er að segja í stúdíó 22. Það voru svo reynsluboltarnir Stefán Geir og Jón Hlífar sem tókust á við fyrrum stigamethafana Inga og Kristján í títanískum vitsmunaslag þar sem ekkert var til sparað. Er Code of Ethics kristilegt rokkband eða þáttur af hinum goðsagnakenndu þáttum Baywatch? Hvaða rauðvínsþrúga er niðurtalað í kvikmyndinni Sideways? Hvaða bókstafur kemur oftast fyrir í efnatáknum frumefna lotukerfisins? Hvert var fyrsta breska knattspyrnuliðið til að vinna Evrópukeppni Félagsliða eða Meistaradeildina? Hvert fara bræðurnir tveir úr Bróðir Minn Ljónshjarta þegar þeir andast? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Stefán Geir, Jón Hlífar, Kristján og Ingi.
Fri, 10 Jun 2022 - 1h 24min - 7 - 7. Skolpmaðurinn snýr aftur!
Sjöundi þáttur Trivíaleikanna, en að þessu sinni var hið goðsagnakennda stúdíó 9A fyllt trivía-reynsluboltum sem og tveimur nýjum keppendum. Þá var einnig eitthvað bogið við dómara, spurningahöfund og þáttastjórnanda að þessu sinni því hann líkist ekkert fyrrum þáttastjórnanda, hvorki í skeggvexti né í skoðunum á ágæti íslenska vegakerfisins. Já það var enginn annar en Arnór Steinn sem tók að sér stöðu þáttastjórnanda að þessu sinni og í fyrsta sinn settist enginn annar en stofnandi Trivíaleikanna Daníel Óli í keppnissætið ásamt Hnikarri Bjarma. Þeir tveir kepptu gegn Trivíaleika-reynsluboltunum Inga og Jóni Hlífari í reginslag vitsmuna og fimm-aura sem hristi stoðir stúdíósins. Hvort er Mancop ofurhetja á vegum Marvel og DC eða ávöxtur ímyndunarafls Arnórs Steins? Hvaða íslenska skáld gaf frá sér ljóðabókina Svartálfadans? Hver var eina skáldsaga Oscars Wilde í fullri lengd? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Jón Hlífar, Ingi, Daníel Óli og Hnikarr Bjarmi.
Mon, 30 May 2022 - 1h 05min - 6 - 6. Systurborgirnar Napólí og Húsavík
Sjötti þáttur Trivíaleikanna, að þessu sinni var ekkert til sparað og voru gerðar miklar breytingar á dagskrárliðum þáttanna til framtíðar. Í hið goðsagnakennda stúdíó 9A mættu tveir nýjir keppendur til leiks, Embla Kristín og Magnús Orri sem tókust á við Trivíaleika-reynsluboltana Inga og Kristján. Hvaða borg er komið að ef siglt er beint í hánorður frá eyjunni Capri? Er Molluscum Contagiosum galdur úr heimi Harry Potter eða kynsjúkdómur? Hvað þýðir nafn ítalska eftirréttsins Tiramisu á ítölsku? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Kristján, Ingi, Magnús Orri og Embla Kristín.
Tue, 26 Apr 2022 - 1h 10min - 5 - 5. Brenninetluvín og yfirdráttarheimild
Fimmti þáttur Trivíaleikanna, í þessum frábæra þætti mættu fjórir reyndir keppendur til leiks í hið goðsagnakennda stúdíó 9A. Arnór Steinn og Ingi tókust á við Magnús Hrafn og Jón Hlífar í títanískum vitsmunaslag þar sem ekkert var til sparað. Hvaða ríki Bandaríkjanna liggur landfræðilega næst Afríku? Hvaða íslenska jurt gefur Brennivíni sitt sérstaka bragð? Hvað kallast skaginn sem liggur milli Eyjafjarðar og Skjálfandaflóa? Á hvaða tölustaf hefjast öll VISA kreditkortanúmer? Á hvaða setningu hefst hið vinsæla lag Togga Þú komst við Hjartað í mér? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Arnór Steinn, Ingi, Magnús Hrafn og Jón Hlífar.
Fri, 25 Feb 2022 - 1h 16min - 4 - 4. Sértrúarsöfnuðurinn Latibær
Fjórði þáttur Trivíaleikanna. Í ljósi aðstæðna í samfélaginu m.t.t. covid-19 urðu keppendur og spyrill því miður að bera andlitsgrímur sem hafði áhrif á hljóðgæði þáttarins. Að þessu sinni mættu tveir nýjir keppendur til leiks, Ólafur Patrick og Hafsteinn tókust á við stigahæsta lið Trivíaleikanna hingað til, Stefán Geir og Inga. Er The Circle of Friends sértrúarsöfnuður eða þáttur af Latabæ? Hvaða bandarísku borg var lyft upp af jörðinni hús fyrir hús og hækkuð um nokkra metra um miðja 19. öld? Hver var eini aðalleikaranna fjögurra úr Seinfeld sem lék gestahlutverk í sjónvarpsþáttunum Friends? Hvaða litur er algengastur sem eftirnafn í Bandaríkjunum? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Stefán Geir, Ingi, Ólafur Patrick og Hafsteinn.
Fri, 14 Jan 2022 - 46min - 3 - 3. Billy er borg í Kyrgyzstan
Þriðji þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni komu tveir nýjir keppendur í þáttinn, Ingi gekk til liðs við Stefán Geir og Kristján gekk til liðs við Jón Hlífar er liðin tókust á í gígantískum trivíaslag. Er Kant borg í Kyrgyzstan eða IKEA húsgagn? Hvaða Bandaríkjaforseti kastaði upp á forsætisráðherra Japans? Hver er yngsti og elsti gestaleikari í sögu sjónvarpsþáttanna Saturday Night Live? Hver var fyrsti frægi einstaklingurinn til að leika sjálfan sig í Grand Theft Auto tölvuleik? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Jón Hlífar, Kristján, Stefán Geir og Ingi.
Thu, 23 Dec 2021 - 58min - 2 - 2. Strákabönd frá Kákasusfjöllum
Annar þáttur Trivíaleikanna þar sem pöbbkviss stemmarinn er færður heim til þín í miðjum heimsfaraldri. Eftir hnífjafna keppni í fyrsta þætti kom ekki annað til greina en að tapliðið fengi annað tækifæri til að bera sigur úr býtum. Arnór Steinn og Jón Hlífar mæta Stefáni Geir og Magnúsi Hrafni á ný í gígantískum vitsmunaslag. Er Urban Justice bandarískt strákaband eða kvikmynd með Steven Seagal? Í baði af hvers konar matvælum átti Kleópatra að hafa baðað sig til að viðhalda fegurð sinni samkvæmt sögunni? Hvaða leikari og leikkona eiga metið fyrir flestar Óskarstilnefningar án sigurs? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Arnór Steinn, Jón Hlífar, Magnús Hrafn og Stefán Geir.
Sun, 12 Dec 2021 - 1h 11min - 1 - 1. Pilot
Allra fyrsti þáttur Trivíaleikanna þar sem við færum ykkur pöbbkviss stemninguna heim í stofu í miðjum heimsfaraldri. Magnús Hrafn og Stefán Geir takast á við Arnór Stein og Jón Hlífar í reginslag í þessum fyrsta þætti. Hver er eini aðalleikaranna sex úr Friends sem lék gestahlutverk í Seinfeld? Hver söng bakrödd í lagi Dire Straits Money for Nothing? Hvað þarftu að vera ríkisborgari lengi til að geta boðið þig fram í forsetakosningum Bandaríkjanna? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Þátturinn var remasteraður og uppfærður þann 01. desember 2023 í tilefni tveggja ára afmælis hlaðvarpsins.
Keppendur: Arnór Steinn, Jón Hlífar, Magnús Hrafn og Stefán Geir.
Wed, 01 Dec 2021 - 1h 00min
Podcasts similar to Trivíaleikarnir
Wife, Mother, Slave, Sex Goddess A. Heyward
Barangay Love Stories Barangay LS 97.1 Manila | GMA Network Inc.
Good Bad Billionaire BBC World Service
Cyprian Majcher Cyprian Majcher
Die Nachrichten Deutschlandfunk
Podcast Wojenne Historie Historia II wojny światowej
Forensic Files HLN
Nowenna pompejańska. Świadectwa https://pompejanska.krolowa.pl/
ILLVERK Podcast Inga Kristjáns
الشيخ أحمد العجمي islami
True Crime Documentary Justin Kandell Network
WojewódzkiKędzierski Kuba Wojewódzki, Piotr Kędzierski
Dear MOR MOR Entertainment
Snapped: Women Who Murder Oxygen
Papa Dudut Stories Papa Dudut | TAGM Marketing Solutions Inc.
DUDEK o polityce prof. Antoni Dudek i Super Exspress
Przemek Górczyk Podcast Przemek Górczyk
Sceny zbrodni RMF FM
Í ljósi sögunnar RÚV
Þetta nútímalíf RÚV Hlaðvörp
Skuggavaldið skuggavaldid
Money News Tapt Media
Żurnalista - Rozmowy bez kompromisów zurnalistapl
العلم والإيمان - د. مصطفى محمود علم ينتفع يه
