Podcasts by Category

Týndu Strákarnir: Hlaðvarp um börnin sem kerfið nær ekki utan um.

Týndu Strákarnir: Hlaðvarp um börnin sem kerfið nær ekki utan um.

Framleitt af Samson.is fyrir samtökin Strax í dag

Týndu Strákarnir er hlaðvarp um kerfið, veggina og afleiðingarnar, framleitt af samson.is og í umsjón Steindórs Þórarinssonar og Jóns K. Við ræðum við fólk sem hefur lent í kerfinu, aðstandendur, fagfólk og þegar færi gefst fólk í ábyrgðarstöðum. Við leitum ekki að hávaða heldur skýrum dæmum, samhengi og ábyrgð og greinum á milli þess sem gestir segja, þess sem er staðfest með heimildum og þess sem er óljóst. Milli þátta er Nonni á gólfinu og Steindór að fara yfir gögn, skrifa pistla og halda umræðunni á lofti í minningu barna sem fóru of snemma frá okkur. Tekið upp í stúdíóinu Raddir.

10 - Sería 2 Þáttur #3: Jón Ferdínand Estherarson: Kerfi sem bregst þarf að breyta
0:00 / 0:00
1x
  • 10 - Sería 2 Þáttur #3: Jón Ferdínand Estherarson: Kerfi sem bregst þarf að breyta

    þriðja þætti annarrar seríu ræða Steindór Þórarinsson og Jón K. Jacobsen við Jón Ferdínand Estherarson, formann Sósíalistaflokks Íslands og virkan talsmann leigjenda.

    Jón F. segir frá reynslu sinni af fátækt og lífinu á jaðrinum, kvíðakastinu sem hann fékk 22 ára og ákvörðuninni um að snúa við blaðinu. Hann ræðir einnig vini sem fóru aðra leið og hvað geti ráðið úrslitum þegar ungt fólk stendur á krossgötum.

    Samtalið færist síðan yfir á stöðu barna, fátækt, húsnæðisóöryggi, leigumarkaðinn og pólitíska ábyrgð. Hvar á að grípa inn í áður en vandinn verður óviðráðanlegur? Hver ber ábyrgð þegar barn fellur á milli kerfa? Og hvaða raunhæfu breytingar þarf að gera svo fólk fái aðstoð áður en allt er komið í óefni?

    Þetta er hreinskiptið samtal þriggja manna sem eru ekki sammála um allt en sammála um grundvallaratriðið: Kerfið er ekki að virka sem skyldi og lausnirnar skipta meira máli en að vinna rökræður.

    Týndu Strákarnir er hlaðvarp um börn og ungmenni sem kerfið nær ekki utan um, fólkið sem berst fyrir þeim og ábyrgð þeirra sem hafa vald til að breyta stöðunni.

    Fri, 21 Aug 2026 - 1h 25min
  • 9 - Sería 2 Þáttur #2: Móðir, barn og kerfi án svara

    Ingibjörg Einarsdóttir kemur í Týndu Strákana og segir frá syni sínum, baráttu fjölskyldunnar við kerfið og ákvörðuninni um að leita meðferðar í Suður Afríku eftir að íslensk úrræði dugðu ekki.

    Í þættinum ræðum við reynslu foreldris sem þurfti að berjast fyrir hjálp, skort á sérhæfðum úrræðum, spurningar um gagnreyndar aðferðir Barna og fjölskyldusstsofu og það sem Ingibjörg lýsir sem óheiðarlegum vinnubrögðum í kerfi sem á að vernda börn í bráðum vanda.

    Við förum einnig inn á Stuðla, brunann þar sem Geir Örn Jacobsen lést, ábyrgð, eftirlit og alvarlegar frásagnir um öryggi barna í vistun. Þar tengist saga Ingibjargar sögu Jóns K. Jacobsen, föður Geirs Arnar. Þau koma að umræðunni frá ólíkum stöðum, en snerta sama kjarna: börn í lífshættu, foreldra sem treysta á kerfið og spurninguna um hvað gerist þegar það kerfi bregst.

    Í þættinum kemur einnig fram að Týndu Strákarnir hafa óskað eftir gögnum frá Barna og Fjölskyldustofu um verklag, gæðaviðmið, gagnreyndar aðferðir, árangursmat, frávik, kvartanir, úttektir og ábyrgð.

    Þetta er ekki þáttur um orðróm. Þetta er þáttur um reynslu, gögn og ábyrgð.


    Tue, 14 Jul 2026 - 1h 06min
  • 8 - Sería 2 #1 Þáttur - Það er auðvelt að tala um börnin fyrst.

    Týndu Strákarnir eru mættir aftur. Beittari, ákveðnari og með minni þolinmæði fyrir fallegum orðum sem breyta engu.


    Í fyrsta þætti Seríu 2 fara Steindór Þórarinsson og Jón K. Jackopssen yfir stöðuna eftir stutt hlé, hvað hefur gerst síðustu vikur og hvert verkefnið stefnir næst. Rætt er um börn með fjölþættan vanda, barnavernd, fósturheimili, Lækjarbakka, Týndu börnin, samfélagsmiðla, slæmar fyrirmyndir og þann þröskuld sem virðist aftur og aftur rísa þegar börn, foreldrar og fagfólk þurfa skýr svör.


    Við förum líka yfir samskipti við ráðuneytið, boð okkar til barna og fjölskylduráðherra um að koma í þáttinn, yfirlýsingar ráðherra og bilið sem getur myndast milli orða, áforma og raunverulegrar stöðu barna og fjölskyldna.


    Í þættinum er einnig rætt um unga konu sem segir frá alvarlegri reynslu af lyfjameðferð, sjálfsvígshugsunum og viðbrögðum læknis. Sú frásögn er sett fram sem reynsla einstaklings, ekki sem almenn niðurstaða um alla lækna eða allt heilbrigðiskerfið.

    Týndu Strákarnir gagnrýna kerfi, verklag, ábyrgð og afleiðingar. Ekki fólk til að skora stig. Markmiðið er ekki að öskra hæst, heldur að spyrja spurninga sem of lengi hafa verið skilin eftir ósvaraðar.

    Þátturinn var tekinn upp 24. júní 2026

    Nánari upplýsingar um þáttinn, siðareglur verkefnisins, hlekki á miðla og stuðningsvörur eru á:

    https://tyndustrakarnir.is

    Týndu Strákarnir eru framleiddir af Samson.is.

    Fri, 26 Jun 2026 - 1h 06min
  • 7 - Þáttur #6 | Brynjar Karl Sigurðsson: Stelpur, kerfi og rými sem stendur tómt

    Brynjar Karl Sigurðsson, stofnandi Aþenu körfuboltafélagsins, er gestur í þætti #6 af Týndu Strákunum.Í þættinum ræðum við Aþenu, baráttu Brynjars og það sem gerist þegar fólk reynir að byggja upp starf fyrir börn og ungmenni en mætir kerfi sem virðist of oft verja sjálft sig betur en þau sem það á að þjóna.Við ræðum gaslýsingu, stjórnsýslu, þöggun og það hvernig mikilvægt starf getur lent í veggjum sem erfitt er að útskýra með almennri skynsemi.Við þáttastjórnendur fórum á æfingu hjá Aþenu og ræddum þar við móður einnar stúlku. Hún lýsti starfinu sem einstöku og sagði það í raun hafa bjargað dóttur sinni. Það samtal situr eftir og setur umræðuna í skýrt samhengi. Hér er ekki verið að tala um hugmynd á blaði. Hér er verið að tala um börn, traust, öryggi og starf sem skiptir raunverulegu máli.Brynjar segir meðal annars frá sláandi atviki þar sem matur sem félagið ætlaði að gefa stelpum hafi verið skemmdur. Hann lýsir líka hvernig rými sem gæti nýst til að skapa samfélag, styrk og skjól fyrir ungar stelpur standi tómt í stað þess að vera nýtt.Við ræðum einnig okkar eigin samskipti við stjórnvöld og stofnanir. Það vekur spurningar þegar mál sem varða börn, úrræði, ábyrgð og kerfisbresti mæta þögn eða undanbrögðum. Hvorki heilbrigðisráðherra né mennta og barnamálaráðherra hafa svarað boði okkar um að koma í þáttinn.Barna og fjölskyldustofa hafnaði einnig þátttöku og vísaði til þess að stofnunin geti ekki tjáð sig um einstök mál eða málefni skjólstæðinga. Við skiljum að stofnunin sé bundin trúnaði í einstökum málum. En þegar alvarlegar frásagnir, gögn og endurtekin mynstur birtast aftur og aftur, þá er ekki nóg að vísa allri umræðu frá sér. Kerfið þarf að geta rætt ábyrgð, verklag og almennar brotalamir án þess að fela sig á bak við þagnarskyldu.Þessi þáttur er um íþróttir, börn, vald, kerfi og fólk sem syndir á móti straumnum þegar straumurinn liggur í ranga átt.Þátturinn er jafnframt fyrsti þáttur Týndu Strákanna sem kemur út í mynd og á YouTube og Spotify.Týndu Strákarnir eru framleiddir af Samson.is í samstarfi við Raddir hlaðvarpsupptökuver.

    Sat, 25 Apr 2026 - 1h 03min
  • 6 - Þáttur #5 | Kristján Halldór Jensson | Frá kerfinu í fangelsið og til baka

    Í þætti #5 af Týndu Strákunum ræðum við við Kristján Halldór Jensson sem flakkaði ungur á milli kerfa, fór snemma í neyslu og endaði síðar í fangelsiskerfinu.

    Við ræðum leiðina þangað, botninn, viðsnúninginn og hvernig hann fann loks leið til að róa taugakerfið og horfast í augu við sjálfan sig. Einnig förum við inn í það hvernig Nonni tók á móti honum þegar hann var hvað lengst niðri.

    Í dag helgar Kristján líf sitt því að hjálpa öðrum mönnum að snúa við blaðinu og vinnur meðal annars með Tolla að því að ná til þeirra sem eru enn fastir í sama vítahring.

    Týndu Strákarnir er hlaðvarp um kerfið, veggina og afleiðingarnar.


    Bak við þættina fer líka fram vinna utan stúdíós. Við hittum aðstandendur, fagfólk og ráðafólk og reynum að knýja fram raunverulegar breytingar.

    Hægt er að styðja við gerð þáttana hér: Kennitala: 430818 2360 / Reikningur: 0133 26 014369

    Thu, 16 Apr 2026 - 53min
Show More Episodes