Podcasts by Category

4. vaktin

4. vaktin

Hlaðvarpið 4 vaktin

Við heitum Sara Rós Kristinsdóttir og Lóa Farestveit Ólafsdóttir og erum mæður á 4. vaktinni. Þegar við tölum um 4. vaktina þá erum við að vitna í þær vaktir sem við erum ósjálfrátt sett á í lífinu okkar. 1 vaktin er þá hefðbundinn vinnudagur, endurhæfing eða annað, 2. vaktin er það sem við þurfum að gera utan vinnutíma og 3. vaktin er huglæg og einsskonar verkstjórn yfir 2 vaktinni. Fyrir foreldra langveikra og eða fatlaðra barna þá er 2 og 3 vaktin umfangsmeiri og þess vegna ætlum við að tala um hana sem 4. vaktina. Við spjöllum um réttindi, þjónustu ofl og við aðra foreldra og fagfólk.

96 - 94. Eygló Guðmundsdóttir, móðir Benjamíns sem barðist við hvítblæði - f. 28 júlí 2003 d. 1 maí 2015
0:00 / 0:00
1x
  • 96 - 94. Eygló Guðmundsdóttir, móðir Benjamíns sem barðist við hvítblæði - f. 28 júlí 2003 d. 1 maí 2015

    Í þætti dagsins fáum við til okkar Eygló Guðmundsdóttur, sálfræðing, sem hefur rannsakað lífsörmögnun hjá foreldrum krabbameinssjúkra barna.

    Við kynntumst Eygló ámálþingi Umhyggju, þar sem hún hélt afar áhugavert og mikilvægt erindi um lífsörmögnun foreldra. Það mun koma annar þáttur í framhaldinu með Eygló þar sem hún segir betur frá vinnu sinni en í þessum þætti segir hún okkur á einlægan hátt frá sögu Benjamíns Nökkva sonar síns sem fæddist í Júlí 2003 og fjölskyldunnar. 

    Benjamín lést í Maí 2015 vegna lungnasjúkdóms en hann hafði barist við hvítblæði. Hann greindist aðeins nokkurra vikna gamall með hvítblæði sem nefnist Infant-ALL og er afar sjaldgæft. Afleiðingar af hvítblæðinuog líffæraskiptum höfðu áhrif á líf Benjamíns og ollu ákveðnum sjúkdómum, meðal annars alvarlegum lungnasjúkdómi. Benjamín var búin að vera krabbameinslaus í um 10 ár þegar hann lést.


    Benjamín Nökkvi Björnsson 

    f. 28 júlí 2003 d. 1 maí 2015


    Þessi þáttur er í boði:

    -Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra. Hægt er að styrkja Góðvild og með því er verið að styðja við fjöldann allan af verkefnum sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna. 

    godvild.is - Kt. 660117-2020 Reikn. 0301-26-660117

    Mobility Aid:

    Mobility er með bæði verslun sem er staðsett í Urriðaholtsstræti 24 - og hjálpartækjaleiga sem býður uppá ýmis hjálpartæki til leigu. Til að skoða úrvalið í verslun kíktu inn á mobility.is

    Childs Farm

    Childs Farm er margverðlaunuð bresk húð- og hreinlætislína.

    Í henni eru nær eingöngu náttúruleg innihaldsefni og kjarnaolíur. 

    Vörurnar eru einstaklega mildar, ilma vel og henta einstaklega vel viðkvæmri húð.

    Sölustaðir:

    Childs Farm fæst í Hagkaup, Krónunni, Fjarðarkaupum og apótekum um land allt. Vöruúrval getur verið

    ögn breytilegt eftir verslunum.


    Wed, 28 Oct 2026 - 2h 07min
  • 95 - 93. Bráðaeitilfrumuhvítblæði -Acute lymphocytic leukemia- ALL

    Þáttur 3 í seríu um hvítblæði

    Nú ætlum við að kafa dýpra í ALL, bæði hjá fullorðnum og börnum.

    Svo í kjölfarið infantile ALL sem er að mjög sjaldgæf undirtegund af ALL og greinist hjá börnum yngri en eins árs. 

    Bráðaeitilfrumuhvítblæði eða acute lymphocytic leukemia- Skammstöfun ALL.

    Okkur langar að benda á nokkur félög á Íslandi sem sinna ráðgjöf, fræðslu og eða endurhæfingu vegna krabbameins.

    -Börn með krabbamein-sérstaklega fyrir börn sem greinast með krabbamein og fjölskyldur þeirra. Félagið er sjálfstætt og óháð Krabbameinsfélagi Íslands. Það veitir m.a. fjárhagslegan, félagslegan og faglegan stuðning, einnig eftir að meðferð lýkur. 

    -Krabbameinsfélag Íslands -regnhlífarsamtök með fræðslu, ráðgjöf, réttindamál, rannsóknir og stuðning. Aðildarfélög þess eru nú 27 talsins: 20 svæðafélög og 7 stuðningsfélög.

    -Ljósið- endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur.

    -Kraftur- stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þess. Kraftur er eitt af stuðningsfélögum Krabbameinsfélagsins.

    Þessi þáttur er í boði:

    -Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra. Hægt er að styrkja Góðvild og með því er verið að styðja við fjöldann allan af verkefnum sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna. 

    godvild.is - Kt. 660117-2020 Reikn. 0301-26-660117

    Mobility Aid:

    Mobility er með bæði verslun sem er staðsett í Urriðaholtsstræti 24 - og hjálpartækjaleiga sem býður uppá ýmis hjálpartæki til leigu. Til að skoða úrvalið í verslun kíktu inn á mobility.is

    Childs Farm

    Childs Farm er margverðlaunuð bresk húð- og hreinlætislína.

    Í henni eru nær eingöngu náttúruleg innihaldsefni og kjarnaolíur. 

    Vörurnar eru einstaklega mildar, ilma vel og henta einstaklega vel viðkvæmri húð.

    Sölustaðir:

    Childs Farm fæst í Hagkaup, Krónunni, Fjarðarkaupum og apótekum um land allt. Vöruúrval getur verið

    ögn breytilegt eftir verslunum.


    Fri, 02 Oct 2026 - 59min
  • 94 - 92. Hvítblæði

    Í þætti 2 í seríu um hvítblæði förum við yfir helstu tegundir af blóðkrabbameini eða hvítblæði og hvaða meðferðir er helst notast við. Einnig förum við yfir söguna hvenær hvítblæði var fyrst uppgötvað, hvenær og hvernig þessi sjúkdómur var rannsakaður. Það hafa orðið miklar framfarir í læknavísindum og lyfja og meðferðar möguleikum í dag. Lífslíkur fyrir þá sem greinast eru orðnar mun betri á seinustu árum en þó geta síðbúnar afleiðingar meðferðar verið töluverðar fyrir þá sem þurfa að ganga í gegnum meðferð vegna krabbameins.

    Þessi þáttur er í boði:

    -Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra. Hægt er að styrkja Góðvild og með því er verið að styðja við fjöldann allan af verkefnum sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna. 

    godvild.is - Kt. 660117-2020 Reikn. 0301-26-660117

    Mobility Aid:

    Mobility er með bæði verslun sem er staðsett í Urriðaholtsstræti 24 - og hjálpartækjaleiga sem býður uppá ýmis hjálpartæki til leigu. Til að skoða úrvalið í verslun kíktu inn á mobility.is

    Childs Farm

    Childs Farm er margverðlaunuð bresk húð- og hreinlætislína.

    Í henni eru nær eingöngu náttúruleg innihaldsefni og kjarnaolíur. 

    Vörurnar eru einstaklega mildar, ilma vel og henta einstaklega vel viðkvæmri húð.

    Sölustaðir:

    Childs Farm fæst í Hagkaup, Krónunni, Fjarðarkaupum og apótekum um land allt. Vöruúrval getur verið

    ögn breytilegt eftir verslunum.


    Sun, 27 Sep 2026 - 1h 01min
  • 93 - 91. Fræðumst um blóðið okkar

    Fyrsti þáttur í þátta seríu um krabbamein hjá börnum en þetta er viðfangsmikið efni og við fjöllum aðalega um hvítblæði til að byrja með. Þetta málefni stendur mörgum fjölskyldum nærri og við vonum að þættirnir geti hjálpað til við að auka fræðslu og skilning í samfélaginu.

    Fyrst vildum við fara yfir það hvað blóð og blóðmergur er, því til að skilja hvítblæði betur þá þarf maður að vita aðeins um blóðið sjálft og hlutverk þess.

    Þessi þáttur er í boði:

    -Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra. Hægt er að styrkja Góðvild og með því er verið að styðja við fjöldann allan af verkefnum sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna. 

    godvild.is - Kt. 660117-2020 Reikn. 0301-26-660117

    Mobility Aid:

    Mobility er með bæði verslun sem er staðsett í Urriðaholtsstræti 24 - og hjálpartækjaleiga sem býður uppá ýmis hjálpartæki til leigu. Til að skoða úrvalið í verslun kíktu inn á mobility.is

    Childs Farm

    Childs Farm er margverðlaunuð bresk húð- og hreinlætislína.

    Í henni eru nær eingöngu náttúruleg innihaldsefni og kjarnaolíur. 

    Vörurnar eru einstaklega mildar, ilma vel og henta einstaklega vel viðkvæmri húð.

    Sölustaðir:

    Childs Farm fæst í Hagkaup, Krónunni, Fjarðarkaupum og apótekum um land allt. Vöruúrval getur verið

    ögn breytilegt eftir verslunum.


    Sun, 30 Aug 2026 - 45min
  • 92 - 90. Tabú

    Í þætti 90 fengum við Tabú konur til okkar þær Jönu Birtu Björnsdótturverkefnastýru Tabú 

    og Þorberu Fjölnisdóttur sem hefur verið virk í starf Tabú lengi og er núna í stjórn NPA miðstöðvarinnar. Öflugar konur sem hafa unnið ötullegt starf í þágu fatlaðs fólks.

    Við fengum að skyggnast í starfið hjá Tabú,

    sögu samtakanna og einnig áttum við  virkilega góðar

    samræður um samfélagsleg málefni sem snýr að aðgengi,

    hvað er feminismi, stöðu fatlaðra og fleira. 


    Tabú safnar áheitum í Reykjavíkur maraþoninu sem er 22. Ágúst 2026...


    Tabú þarf á stuðningi okkar að halda svo þær geti haldið áfram að veita fötluðum og langveikum konum stuðning og styrk, geti haldið úti mikilvægri fræðslu og unnið áfram að berjast fyrir jafnrétti. Það skiptir samfélagið virkilega miklu máli að hafa samtök eða konur eins og eru í Tabú sem vinna í þágu fólksins.


    https://www.rmi.is/hlaupastyrkur/godgerdamal/834-tabu-feminisk-fotlunarhreyfing


    Tabú er femínisk fötlunar hreyfing sem er með skrifstofu í Mannréttindahúsi. Tabú vinnur að félagslegu réttlæti og gegn margþættri mismunun gagnvart fötluðu fólki. Þau bjóða upp á fræðslu bæði í formi fyrirlestra eða námskeiða , faglega ráðgjöf og jafningastuðning.

    Þau hjá Tabú hafa verið virkar að vekja athygli á og að skapa þarfar umræður í samfélaginu, við mælum með að að kíkja á heimasíðu samtakanna en þar er að finna allt um starfið og einnig pistla.

    tabu.is 

    Þið finnið Tabú á helstu samfélagsmiðlum og við mælum við með að fylgja þeim og skyggnast í starfið og lífið hjá þeim.


    Fötlun er bæði sýnileg og ósýnileg og skilgreinist fyrst og fremst út frá upplifun og sjálfsmynd hverrar manneskju. Enginn er of lítið eða of mikið fatlaður til að geta tekið þátt í starfi Tabú.

    Sun, 16 Aug 2026 - 1h 31min
Show More Episodes