Nach Genre filtern

Á ég að hend'enni?

Á ég að hend'enni?

Á ég að hend'enni?

Halldóra Geirharðsdóttir og Steinunn Ólína hafa marga fjöruna sopið, stundum saman, stundum sundur. Nú í miðju lífsins er tiltekt innra jafnt sem ytra efst á baugi og því ætla þær að bera saman bækur sínar í orðsins fyllstu merkingu. 


Þær ætla að byrja á því að gera rassíu í bókaskápunum. Skilja sauði frá höfrum, finna gersemar og handsama lygaþvælu og rusl. 


Í hverjum þætti draga þær fram skruddur og meta hvort nauðsynlegt sé að eiga skræðuna áfram, hvort lærdómur hafi verið meðtekinn eða alls ekki. 

Fer hún í öndvegi, í Hirðinn, eða er öruggast að brenna hana á báli?

Rannsóknarspurningin er: Eiga, eyða eða gefa?


Því einhvers staðar þarf tiltektin að byrja!


73 - Bless - Halló - Lokaþáttur 2025-2025
0:00 / 0:00
1x
  • 73 - Bless - Halló - Lokaþáttur 2025-2025

    Send us Fan Mail Tímabær andlátsfrétt en afskaplega eldheitur útfararstjóri;) Á ég að hend´enni kveður því hér, í bili að minnsta kosti, því nú leita vinkonurnar á ný mið eftir ríflega 70 þætti sem allir eru aðgengilegir á öllum helstu streymisveitum. Í lokaþættinum réða þær til sín útfararstjóra enga aðra en manneskjuna sem þekkir og jarðar þær vitanlega best, æskuvinkonu beggja, Möggu Örnólfs sem er heimsfrægur Sykurmoli og handritshöfundur með meiru! Hlustendum og á...

    Wed, 04 Feb 2026
  • 72 - 72. Braselíski frumskógurinn og íslenska lækningakonan Ravi

    Send us Fan Mail Á veitingastaðnum Mama áttu þær Halldóra og Steinunn óvæntan fund við lækningakonuna Raví Jenný en hún er nýkomin til Íslands eftir 11 mánuða dvöl með Huin- Kuin þjóðflokknum. Raví segir okkur frá ferðum sínum, hvers hún leitaði og hvera hún var vísari. Kannski er lykillinn að okkar eigin plöntu og alþýðulækningamenningu fundin með hjalp þjóða sem enn hafa varðveitt lækningavisku þá sem hefur lifað með manninum frá örófi alda. langt áður en nokkrum datt í hug að eitthvað yrði...

    Wed, 07 Jan 2026
  • 71 - 71. Áramótaþáttur III. og síðasti hluti

    Send us Fan Mail Þessi III. hluti Áramótaþáttarins er rúsínan í pylsuendanum! Hér fer stuðið fram úr hófi og auðvitað fer nánast allt úr böndunum. Gleðilegt ár kæru hlustendur! Takk fyrir samstarfið Eldum rétt og Sjáðu Support the show

    Mon, 05 Jan 2026
  • 70 - 70. Áramótaþáttur II.hluti

    Send us Fan Mail Þessi II. hluti Áramótaþáttarins fer einnig fram á uppáhaldsstaðnum, Mama, í Bankastræti og þar taka þær Steinunn Og Halldóra á móti gestum við hringborð. Þar er sötrað heilagt Kakó og Kambucha og rýnt í himinhvolfin. Nú æsast leikar! Fegurðardrottningar, völvur, lögmenn, kærastar, söngkonur og atvinnu álfkonur mæta á svæðið! Takk fyrir samstarfið Eldum Rétt og Sjáðu Support the show

    Mon, 05 Jan 2026
  • 69 - 69. Það eru að koma áramót 25/26 - Spjallað við merkar konur I. hluti

    Send us Fan Mail Í þessum þætti sitja vinkonurnar á sínum uppáhaldsstað, Mama, í Bankastræti og taka á móti gestum við hringborð. Þar er sötrað heilagt Kakó og Kambucha og rýnt í himinhvolfin. Í þessum fyrsta hluta eru gestir enginn annar en Nikkó, eða Nicolas Pétur Blin eiginmaður Halldóru sem er neyddur í stutt viðtal en svo kemur engin önnur en Esjudóttirin vitra, Linda Mjöll Stefánsdóttir, drottningin á Skrauthólum, sem nemur og les fjöllin og árnar, hafbrimið og hvísl v...

    Wed, 31 Dec 2025
Weitere Folgen anzeigen