Nach Genre filtern
- 76 - 75 – Er heimurinn eins og ég held að hann sé?
Gunnlaugur og Ármann eru „vinir litla mannsins“ og ræða aukapersónur í íslenskum fornsögum og yfirleitt. Talið berst að þætti áheyrandans í sköpun merkingar og hvernig tilfinningarlíf griðkvenna og smalamanna eru ekki minnsta framlag höfundarins til sögunnar. Einnig ræða þeir samsömunarmöguleika forfeðra okkar, Derrick og Harry Klein, völvu Vikunnar, þægindarammann, smásögur í klámblöðum, kvíða ónefnda empatíska fólksins, langan upplestur og launhelgar fræðibókaheimsins. En er mikilvægt...
Mon, 09 Nov 2026 - 75 - 74 - Þórðargleðin er besta gleðin
Gunnlaugur og Ármann ræða bókmenntaflokka sem nefnast Sígildar sögur, hvort sem í myndum eða ekki, og hvernig persónuleg bókmenntasaga einstaklinga er bæði með innlendum og þýddum bókum. Einnig ræða þeir kaup á uppstoppuðum dýrum sem yfirbót, sýslumenn með stálminni, danska yfirburðamenn, Nóbelsverðlaun, Walter Scott og Eyrbyggju, hundahræðslu Ármanns, árin þegar Háskólabókasafnið var í sláturhúsi, götunöfn í Reykjavík og hve margir þingmenn hafi borið Gunnlaugsnafnið. En er Kenneth plebbaleg...
Mon, 26 Oct 2026 - 74 - 73 - Gubbað á salerni
Gunnlaugur og Ármann ræða meistaraverk Svövu Jakobsdóttur, Gunnlaðarsögu, skáldskaparmjöðinn og Sonatorrek Egils Skalla-Grímssonar. Talið berst m.a. að landi sektarinnar, skjallbandalögum, hinum dæmigerða Íslendingi, Snorra Sturlusyni, Clarice Lispector, hinu háleita, Stórbókum, Nietzsche og fólki sem lifir á því að þekkja frægt fólk. En hversu einstakur var skáldskapur Svövu? Hvernig eru systkinasambönd ólík öðrum? Fíla rithöfundar aðra höfunda? Og treystir Gunnlaugur sér til að tala m...
Sun, 11 Oct 2026 - 73 - 72 — Jónas og hinir
Gunnlaugur og Ármann bregða af vananum með því að ræða þátt íslenskar bókmennta sem hvorugur hefur rannsakað, strákagengi og önnur burðarvirki menningarinnar á borð við „salon“ 19. aldar. Talið berst að Fjölnismönnum (íslensku bítlunum), Unuhúsi, skáldunum í Hveragerði 0g fleiri listamannahópum. Eins ræða þeir kvikmyndina The Odyssey, Kompuna í Þjóðviljanum, merkar heildarútgáfur og hina ævisögulega rannsóknaraðferð. Fram kemur að Jónas Hallgrímsson gat verið kvikindi, Gunnlaugur hlustar ekki...
Mon, 28 Sep 2026 - 72 - 71 — Selshöfuð og samsæriskenningar
Flimtan og fáryrði tekur nú nýja stefnu og fjallar nú um íslenska bókmenntasögu í víðum skilningi. Gunnlaugur og Ármann ræða nú íslenskar hrollvekjur, einkum óvættina Selkollu og hið dularfulla Katanesdýr. Meðal annars er fjallað um merkingu stórra stafa og upphrópunarmerkja, martraðarlógík, miðdegisdjöfla, myndatökur lækna, munúðarþyrst vinnufólk og menningarlegt mikilvægi táninga í hryllingi. En eru álfar til? Hvað er líkt með hundi og nautgrip? Hví hafa hægrimenn tekið samsæriskenningar í ...
Mon, 21 Sep 2026 - 71 - Sumarþáttur — Vellíðan er aukaatriði
Gunnlaugur og Ármann fagna 70. þætti og ræða söngleikinn Koppafeiti (Grease), meðal annars Grís-æði vorsins 1979 og Grease Horror sýningu Fjölbrautarskóla Suðurlands sem þó er ekki djarfasta sýning söngleiksins á Íslandi. Talið berst að samskiptum í foreldrahópum, hugmyndum Schopenhauers um þjáningu og leiðindi, bók Ármanns um smápersónur, of fullkomnu fólki, hugarfari listaskólanema, method-leik Dustin Hoffman, himnaflugi og stjörnuhrapi Travolta, eldri konum í stjórnunarstöðum, áhrifum Marí...
Mon, 08 Jun 2026 - 70 - 69 – Brosnan baular
Gunnlaugur og Ármann fá góðan gest, Kristínu Lilju Thorlacius til að ræða frægasta glymskrattasöngleik sögunnar, Mamma Mia sem Judy Craymer, Catherine Johnson og Phyllida Lloyd spunnu upp úr lögum Björns og Benny úr ABBA og er hugsanlega lægsti mögulegi tónlistarsamnefnarinn. Tvö af þremur eru afar hrifin af lögum ABBA en Gunnlaugur furðu ósnortinn. Talið berst að miklu viðskiptaviti Svíanna, hvernig ABBA fundu upp tónlistarmyndböndin, tregðu þeirra til endurfunda, flughræðslu Agnethu, aðdáun...
Sun, 05 Apr 2026 - 69 - 68 – 18. aldar fuckboi
Gunnlaugur og Ármann (oft kallaðir Statler og Waldorf óperuheimsins) ræða stórvirki Mozarts, Don Giovanni, og eru aldrei þessu vant frekar hrifnir þó að Mozart fari illa með tenórinn. Sönn iðrun, flókin sögusamúð, hefndarþyrstar aukapersónur og hinn nýlátni José van Dam koma við sögu en talið berst líka að auðginntum sveitapiltum, líkindum Leporello og Fígaró, allsnöktum púkum og RÚV-börnum sem þrá efni frá Stöð 2. En hvor er betri, Anthony Hopkins eða Brian Cox? Er Don Giovanni heitari en He...
Mon, 23 Feb 2026 - 68 - 67 – Byltingin er eilíf
Gunnlaugur og Ármann ræða nú óperu John Adams, Nixon in China (1987) og um leið kínverk stjórnmál 1960–1980 og hvernig kaldrifjað útspil á kosningaári tryggði framhaldslíf mannkynsins. Talið berst einnig að hinum erótíska sjónvarpsþætti Heated Rivalry, hipp og kúl rithöfundum, mönnum sem svitna mikið, stórleikaranum Paul Giamatti, kvikmyndinni Tillsammans, Maófötum 8. áratugarins, svarthvítum kvikmyndum um atómvísindamenn, ódýrum vinsældum listrænna markaðsafurða, fólki sem tekur hvatningu mj...
Mon, 26 Jan 2026 - 67 - 66 – Geta Þjóðverjar dansað?
Gunnlaugur og Ármann eru komnir til New York og búnir að kynna sér Sögu úr Vesturbænum (West Side Story) sem upphaflega hét East Side Story og hefur tvisvar verið kvikmynduð og auk heldur verið flutt á Íslandi. Þeir ræða líka tegundaflokkun sviðsverka með miklum söng, stöðu Puerto Rico í Bandaríkjunum, hið mikla nef Bernsteins, muninn á grínmyndum og Green-myndum, þjóðerni Morgan Kane, dularfullan dauða Natalie Wood, Two Set Violin grínistana og nýja fjórtán binda skáldsögu Ármanns. En hvað m...
Mon, 06 Oct 2025 - 66 - 65 – Maðurinn sem æpti bravó!
Gunnlaugur og Ármann geta ekki haldið sig frá Verdi og nú er það óperan sem mörgum finnst sú besta í heiminum, Rigoletto, sem var fyrsta íslenska óperusýningin hjá Þjóðleikhúsinu árið 1951. Talið berst meðal annars að sjálfum Stefanó Íslandi, líkindum Rigoletto við Ölkofraþátt, tyrkneskum teppasölumönnum, hörðum kennurum, dauðarómantík 19. aldar og Íslandsmeti Guðmundar Jónssonar í löngum tón. En er Rigoletto aðeins Figaro fátæka mannsins? Er Pavarotti sannfærandi í dulargervi? Hvað er líkt m...
Mon, 22 Sep 2025 - 65 - 64 – Batman á heima á Selfossi
Ármann og Gunnlaugur ræða frægustu leðurblöku menningarsögunnar, þ.e. Die Fledermaus eftir sjálfan valsakónginn Johann Strauss yngri sem hugsanlega fann upp söngleikinn. Eins hvernig snobb og lágkúra fara saman eða hvernig góð gagnrýni eigi að vera. Þá berst talið að íslensku uppfærslunni 1999 sem látin var gerast í Grafarvoginum, rússablæti tveggja metra Íslandsvinarins Rolf Rippert, hundinum Snoopy og brennuvarginum Eduard Strauss. En hvað gerist þegar dívurnar Lucia Popp og Gruberova eru s...
Tue, 17 Jun 2025 - 64 - 63 – Pavarotti rekur tána í
Gunnlaugur og Ármann halda alla leið til Egyptalands að ræða frumsýningu Aidu sem Ismail khediv pantaði af Giuseppe Verdi þegar Súezskurðurinn var opnaður. Talið berst einnig að brottför Roberto Alana úr sýningu Zeffirellis, Sam Wanamaker og dóttur hans, Oddi lögmanni og Gyldenløve stiftamtmanni, hinum austur-evrópska framburði á þ og eina núlifandi konung heimsins sem ekki man eftir ríkisári sínu. Að sjálfsögðu er líka rætt um Íslandsvininn Pavarotti, besta vin Kryddpíanna, og þeir reyna eft...
Tue, 27 May 2025 - 63 - Páskaþáttur – Guð er með öll spilin á hendi
Gunnlaugur og Ármann eru uppfullir af heilögum anda þegar þeir ræða rokkóperuna Jesus Christ Superstar sem fyrst var konseptplata og hefur verið sýnd um heim allan og er líka afar „meta“. En þeir ræða líka eina nótt í Bangkok með öllu nema Yul Brynner, dansverkið Hringi Orfeusar, Amal og næturgestina, Getsemane-falsettuna, þrjá of fjórum meðlimum ABBA, sjakalagaul Sebastians Bach og byltingar sem fara út af sporinu, En hvernig voru helgileikir í Langholtsskóla haustið 1976? Hvor syngur betur,...
Sun, 20 Apr 2025 - 62 - 61 – Puccini og kynlífsbyssurnar
Nú eru Gunnlaugur og Ármann komnir að hinum tilfinningasama stórreykingamanni Puccini og óperu hans Madame Butterfly sem Malcolm McLaren gerði fræga á ný árið 1984 og varð síðar að söngleiknum Miss Saigon. Talið berst einnig að leikriti David Hwang, tónleikaflutningi á aríum, menningarnámi Gwen Stefani, Susan Boyle og háa tóninum, Chuck og Bob í Löðri, „the willing suspension of disbelief“ og að fílnum í herberginu (sem er ekki endilega bleikur). En er sjónvarpsgerðin af Flimtani og fáryrðum ...
Mon, 14 Apr 2025 - 61 - 60 – Krípí stelpur og kexát
Gunnlaugur og Ármann hafa afar misjafnar skoðanir á Töfraflautunni, hinstu óperu Mozarts, en eru sammála um ágæti kólóratúrsöngkonunnar Cristinu Deutekom. Talið berst að sjálfsögðu að frímúrurum, stolnum jólalögum, Hanswursthefðinni, þrítölunni, Rokklingunum, rassabókum, Herra Bean og „krípi stelpunni“. Um leið upplýsa þeir ungviðið um hvað ipod var, lýsa yfir aðdáun á ódýrum páskaeggjum, ræða eftirhermuleik og glæpastarfsemi á Jersey, og Ármann fær tækifæri til að viðra aðdáun sína á Valdima...
Wed, 02 Apr 2025 - 60 - 59 – Í þessum mjúka þræði ...
Fáir tengja Gilbert og Sullivan við hrollvekjur en Gunnlaugi og Ármanni tekst samt að gera það í þessum þætti þar sem rætt er um The Mikado, Savoy-óperuna, „patter song“, grínbarítóna, rímsnilld Gilberts og fleiri einkenni þessara ágætu bresku samstarfsmanna. Talið berst einnig að framlínustarfsfólki, samfélagsmiðlahegðun James Blunt, gaslýsingum Mary Poppins, sjálfsmorðshugleiðingum lítilla fugla og hættunni á að mannkynið þróist aftur í apa. En fann Egill Skalla-Grímsson upp endarímið? Eru ...
Mon, 17 Mar 2025 - 59 - 58 – Brúðkaupið!
Gunnlaugur og Ármann eru á leið í brúðkaup og fyrir því stendur sjálft undrabarnið Wolfgang (ásamt Lorenzo Da Ponte). Brúðkaup Fígarós er iðulega talin besta ópera allra tíma þó að aðalandstæðingarnir reynist óvænt vera foreldrar söguhetjunnar. Talið berst einnig að tegundaflokkun gamanópera, endurnýtingu óperustefja, fornu bakkelsi og eldri talsetningarhefðum, mistryggum aðlögunum og gagnrýni, prima noctis reglunni alræmdu, löngu týndum föðurbræðrum, gröðum unglingum, tólf ára hjákonum, fegu...
Mon, 10 Mar 2025 - 58 - 57 – Húmor flyst ekki alltaf vel
Gunnlaugur og Ármann gæða sér á tournedos og ræða þriðja frægasta Jóakim nútímans, tónskáldið Rossini og hina vinsælu óperu hans, Rakarann í Sevilla. Rossini sló snemma í gegn en þróaðist frá opera buffa yfir í ellisyndir á langri ævi og var jafnan spaugsamur lífsnautnamaður. Talið berst einnig að 18. aldar ævintýramanninum Beaumarchais, mikilvægi dulargerva fyrir gamansögur, samskiptum Rossini og Beethoven, þekktum ólífuolíum, fornu barnabókunum um Kim, Greifanum af Montecristo, tönnum og há...
Mon, 10 Feb 2025 - 57 - Jólaþáttur V: Kjöthleifsát og kynusli
Ármann og Gunnlaugur snúa aftur í fimmta jólaþátt þessa langlífa, sívinsæla og sumir myndu segja sígilda hlaðvarps en sérstakur gestur þessa sögulega þáttar er Kristín Lilja Thorlacius Björnsdóttir kvikmyndafræðingur og eiginkona Gunnlaugs. Í tilefni jólanna er ekki rætt um óperur heldur söngleikinn The Rocky Horror (Picture) Show og næstum samnefnda kvikmynd. Auk þess er rætt aðeins um konfekt og kjötsvita, bandaríska neytendavernd, framburð Englandsdrottningar, þátttökusýningar og hvernig a...
Mon, 23 Dec 2024 - 56 - 55 – Brothætta konan og eitraða karlmennskan
Gunnlaugur og Ármann ræða Carmen eftir franska tónskáldið Bizet og í leiðinni óhjákvæmilega 19. aldar rithöfundinn Prosper Mérimée og söngkonuna Mariu Callas. Gunnlaugur segir hræðilegan brandara um Bach og Offenbach og eftir það getur þátturinn ekki annað en batnað. Sögunni víkur að tækniblæti Frakka, hollenska sjálfræðinu, barnabókum með smyglurum og sígaunum, covidtímanum sællar minningar og muninum á matador og picador. En getur verið að þeir séu sammála um ágæti Carmen? Eru 17 àra ...
Wed, 11 Dec 2024 - 55 - 54 – Óhefðbundin fegurð óperusöngvara
Gunnlaugur og Ármann ræða óperettu sem Ármann hefur raunar séð á sviði, Kátu ekkjuna eftir Franz Lehar sem var meistari léttleikans og gleðinnar fyrir utan að hefja þrítugu konuna til vegs og virðingar í óperettuheiminum og semja mörg „Tauberlied“. Árið 1905, staðurinn er keisaraveldið Austurríki-Ungverjaland og meðal þess sem ber á góma eru latir tenórar, Parísarbragurinn, fullorðinsaldur hobbita, íhaldssemi 16 ára unglinga, samúðarleysi Ármanns með barnastjörnum, smáríkjakomplexinn, Framsók...
Wed, 27 Nov 2024 - 54 - 53 – Nazgúlaskrækir brjóstmylkinga
Nú beina Gunnlaugur og Ármann sjónum að sjálfum Richard Wagner og tveimur af þekktustu óperum hans, Rínargullinu og Valkyrjunni. Gunnlaugur rekur raunir sínar úr alþjóðlegum Wagner-hópum og síðan berst talið að jafnvel enn verri aðdáendum hans sem höfðu listamannsmetnað sjálfir. Eins ræða þeir Gesamtkunstwerk og „willing suspension of disbelief“, framburðarslekju, „verkamannaklassík“ og hið mikla dúettatímabil, ofstuðlun Wagners, áhrif hans á John Williams og JRR Tolkien, ægishjálma og ...
Wed, 13 Nov 2024 - 53 - 52 – Leiksoppar og rannsóknaræfingar
Ármann og Gunnlaugur eru ekki sérfróðir um óperur eins og þeir hamra á en hafa báðir horft á Ævintýri Hoffmanns (1881) eftir Frakkann Jacques Offenbach, samtíðarmann Verdi og Wagners. Þar með hafa þeir hætt sér inn í fúafenjasvæði gamanóperunnar og umræðuna um hvort grín þýðist yfirleitt. Fram kemur að Ármann þekkir tónlistina mjög vel en hafði ekki hugmynd um efni óperunnar eða að hún sé um E.T.A. Hoffmann (1776-1822). Eins ræða þeir vélmenni, hugtakið „impresario“, karaktertenóra, buxnahlut...
Wed, 06 Nov 2024 - 52 - 51 – Varasamir vasaklútar
Nú fer hlaðvarpið rækilega út fyrir þægindarammann, yfirgefur Íslendingasögur í bili og beinir sjónum að óperum í staðinn. Í fyrsta þætti er rætt um Ótello (1887) eftir græningjann Giuseppe Verdi og vin hans Boito. Enginn man eftir Busseto en Gunnlaugur og Ármann ræða sameiningu Ítalíu, nýlendustefnuna, Odd lögmann, hugtakið FOMO, Ivan heitinn Rebroff, eldri skilgreiningar á offitu, Nietzsche og sjálfsvorkunn, Karate Kid endi, hinn stórkostlega Paul Robeson og fyrstu óskarstilnefningu Maggie ...
Wed, 30 Oct 2024 - 51 - Jólaþáttur IV: Jólatré í janúar
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra Íslands kemur í heimsókn í jólaþáttinn sem er jafnframt 50. þáttur hlaðvarpsins og hefur Gunnlaugur mandarínur á borðum af því tilefni. Þar sem þau Ármann eru systkini er rætt um dálæti formæðra þeirra á Bolla og Ítalíuferð Katrínar með Njálu í farangrinum. Meðal annars sem ber á góma er hvort tekist sé á um Íslendingasögurnar á ríkisstjórnarfundum, dálæti Katrínar á bókaflokknum Landið þitt Ísland, rútuferðir íslenskunema á öldinni sem leið, Hallgerðargat...
Sat, 23 Dec 2023 - 50 - 49 – Drottningar breyta sér í svölur og skáld flytja kvæði
Gunnlaugur og Ármann ræða hina gömlu lummu um sannleiksgildi Íslendingasagna og fornrita yfirleitt sem almenningur (einkum eldra fólk) hefur mikinn áhuga á. Talið berst einnig að Landnámu og landamerkjadeilum, Kristínu Geirsdóttur og trú aldamótakynslóðarinnar á að Íslendingasögur séu sannar, yfirheyrslum lögreglu sem skemmtiefni, óvinsældum Sveinbjarnar Rafnssonar, fegurð sannleikans, hvort Kristur frelsaði mannkynið með fórnardauða sínum, morðinu á Kitty Genovese, hinni hundrað ára gömlu Er...
Mon, 20 Nov 2023 - 49 - 48 – Jekyll og Hyde á íslenskum miðöldum
Gunnlaugur og Ármann ræða Fóstbræðrasögu og þá glannalegu hugmynd Ármanns að Þorgeir Hávarsson og Þormóður Kolbrúnarskáld séu dæmi um tvífaraminnið sem síðar komst í tísku og tákngervingar tvöfeldninnar í mannssálinni. Þetta tengist umræðunni um raunsæi, tilfinningalega dýpt, sögusamúð, táknsæi og hugmyndaheimi vísindabyltingarinnar. Þeir ræða líka Gerplu og hugmyndir Helgu Kress um að Fóstbræðra saga sé paródía. Talið berst einnig að stöðu skáldsins í menningunni, ungum vandræðagemsum, frama...
Mon, 06 Nov 2023 - 48 - 47 – "Ei ber því að leyna"
Gunnlaugur og Ármann ræða bókmenntagrein sem varðveittist í öðrum textum, dróttkvæði í Íslendingasögum og konungasögum. En eru þau eftir skáldin sem þau eru kennd? Hvort eru flokkar eða drápur betri? Var Gísli súrrealisti? Hvers vegna er engin vísa eftir Sviðu-Njál í sögu hans? Hverjir fara helst í hungurverkfall og hver var sælkeri mikill og matvandur mjög? Talið berst líka að þriggja manna hjónaböndum, Lata-Geir á Lækjarbakka, Tolkien og Gvendi bónda á Svínafelli, Elton John og Þormóði kolb...
Mon, 23 Oct 2023 - 47 - 46 – Elskið friðinn, strjúkið orðskviðinn
Gunnlaugur og Ármann fá Vigdísi Hafliðadóttur sem eitt sinn var fyndnasti háskólaneminn í heimsókn og þau ræða orðskviði og almennan fróðleik í Grettis sögu og Hávamálum. Vigdís reynir að stela titlinum „rödd almennings“ frá Gunnlaugi þó að hún sé með BA-próf í heimspeki og síðan ræða þau þriggjadísabækling, Mjallhvíti og Lenín, kviksetningu, bitlinga Hallgerðar, kómíska talgalla, sundvenjur og hvaða Davíð keypti ölið. En er hægt að treysta einlægni? Er fólki um þrítugt óhætt að sækja endurme...
Mon, 09 Oct 2023 - 46 - 45 – Sennur á Þingvöllum
Hlustendur völdu Ölkofra sögu sem umföllunarefni 45. þáttar og Ármann og Gunnlaugur ræða hann en um leið 119. og 120. kafla Njáls sögu þegar Skarphéðinn auðmýkir alla helstu höfðingja Íslands með orðkynngi sinni. Talið berst líka að Jane Austen og Charlotte Brontë, tákngildi mjólkur sem lekur um „litlaskarð“ karlmanna, mansöngsdrápum lögsögumanns sem stundum kallaði sig Burstakoll, mökum skordýra, Gardemoen-flugvellinum og Gunnlaugur segir óborganlegan brandara um SS- og Goðapylsur. En er sag...
Mon, 25 Sep 2023 - 45 - 44 – Bárðar saga og miðaldasagnfræðin
Gunnlaugur og Ármann ræða hina lítt þekktu Bárðar sögu Snæfellsáss sem hefur öll helstu einkenni sagnfræðirita en er misskilin í nútímanum vegna fjölda annarsheimsvætta og vegna þess að nútímafræðimenn meta stundum miðaldarit vegna þess hversu vel þau falla að heimsmynd nútímans. Eins kemur fram að Bárðarsöguhöfundur einn skilur muninn á risa og trölli. Þá er rætt um náttúrunafnakenninguna, vinsældir hlaðvarpsins í heiminum, hinn ástsæla Kim Il Sung, söngvarann Erling Ágústsson, ferð Ármanns ...
Mon, 11 Sep 2023 - 44 - Króka-Refs saga – Upplestur
Fyrir áskrifendur okkar á Patreon les Gunnlaugur upp vel valdar Íslendingasögur og þætti. Hérna birtist brot úr fyrstu sögunni, Króka-Refs sögu, en þar sem hér er komið sögunni segir frá því hvernig Refur fór með óvini sína þá Gunnar og Bárð. Ef þú vilt hlusta á söguna í heild sinni þá geturðu gerst áskrifandi að Patreon síðunni okkar: https://bit.ly/44EZknZ
Tue, 05 Sep 2023 - 43 - 43 – Dularfullu bréfin
Gunnlaugur og Ármann ræða Snorra Sturluson sagnaritara og bróðurson hans Sturlu Þórðarson en Sturla er helsta heimildin um víg Snorra í september 1241 og segir ólíkt frá því í Hákonar sögu og Íslendinga sögu í Sturlungusafninu. Talið berst einnig að hlýjum mánuðum, orðheldni jarla, Ólafi krónprins, ríkum ekkjum, mildi aldraðs fólks, ráðstefnudólgum og merkingu orðanna út og utan. En hver voru hinstu orð Snorra Sturlusonar? Hvað stóð í bréfum Hákonar konungs? Hvað voru Gissur Þorvaldsson og Ko...
Mon, 28 Aug 2023 - 42 - 42 – Erfiðar hálfsystur
Í þessum þætti berst talið að fornaldarsögum Norðurlanda og einkum Hrólfs sögu kraka en líka að skrítnum smekk 15. aldar manna, sifjaspellum í fornsögum, Indiana Jones, Prins Valíant og Andrew prins. Gunnlaugur og Ármann ræða Rafn ofursta og Skuld drottningu, andsetna gelti og þýskar prinsessur sem eru eins og mý á mykjuskán, þættar sögur, hinn heilaga gral, fégræðgi Svía, galdra og hamskipti, valdabaráttu Dana og Svía á 17. öld, stigveldi fornsagna og sælustundir í Nýja-Garði. En er Svíþjóð ...
Mon, 14 Aug 2023 - 41 - 41 – Loki og unglingaveikin
Loki kemur við sögu í Snorra-Eddu og eddukvæðum. Hann er guð og ekki guð, karl og kona, jötunn en þó ekki, stundum í hryssulíki og getur breytt sér í flugu og lax. Margt á Loki sameiginlegt með Óðni – en var hann heimsendaguð eða kannski skólafélagi Gunnlaugs? Og í hvaða höfuðátt búa jötnarnir? Eru Loki og Útgarða-Loki sama veran? Skrópaði tröllkonan Þökk í lýðveldiskosningunum 1944? Er letin kannski mjög jákvæð? Um hvað eru íslenskar bókmenntir fyrri alda heimildir, er sögnin „hrauna“ ofnotu...
Mon, 31 Jul 2023 - 40 - 40 – Pabbapólitík miðalda
Gunnlaugur og Ármann ræða eddukvæðið Vafþrúðnismál, visku og háan aldur jötna, hvernig guðirnir svindla alltaf, fjölþætta merkingu ergihugtaksins á miðöldum, merkingarkjarna og merkingarauka en víkja einnig að hómóerótískum málverkum af Kain og Abel, fornu íslensku sjónvarpsefni, spennumyndinni Red Eye og bandarísku stafsetningarkeppninni. En myndi Ármann ekki fara með sigur í samsvarandi íslenskri stakyrðakeppni? Mun Gunnlaugur stofna sérstakt hlaðvarp um hollenska menningu? Hvers konar gyðj...
Mon, 17 Jul 2023 - 39 - 39 – Bókablætið og Íslenzk fornrit
Íslenzk fornrit eru virðulegasta útgáfa fornsagna og hafa komið út í rúm 90 ár. Í þessum þætti ræða Gunnlaugur og Ármann þennan þjóðrækna bókaflokk sem þátt í viðleitni sinn til að endurvekja bókablæti á Íslandi. Á dularfullan hátt leiðir þetta þá í að ræða söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Einnig berst talið að tilraunum Ármanns til að búa til nýja Íslendingasögu og því hvernig Gunnlaugur varð poppakademíker. En hvað eru Íslenzk fornrit og getur talist heilbrigt fyrir tvítug ungmenni a...
Mon, 03 Jul 2023 - 38 - 38 – Vandræðabarnið Gunnlaugur (sýnishorn)
Gunnlaugur og Ármann ræða Gunnlaugs sögu en óminnishegrinn sveimar yfir þeim þannig að úr verður kátlegt minnisleysingjaleikrit. Meðal annars berst talið að fjárfestingarstefnu Gunnlaugs ormstungu, óhefðbundnum lækningaraðferðum hans, Gunløgsgade í Kaupmannahöfn, hvort Gunnlaugur og Hrafn hafi verið rapparar síns tíma eða hvort óskynsamlegt sé að færa særðum andstæðingi vatn. En afsannaði Jón Sigurðsson fornsögurnar? Er verra að þola ekki Þorstein Egilsson en vera búinn að steingleyma honum? ...
Thu, 29 Jun 2023 - 37 - 37 – Illmenni fornsagnanna
Gunnlaugur og Ármann ræða helstu fanta og fúlmenni fornsagnanna, m.a. í ljósi skrifa Einars Ólafs Sveinssonar, Åsfrid Svensen og Carol Clover. Í ljós kemur að Gunnlaugur hefur steingleymt miðjunni á Njálu og feluleikjasnilld Þráins Sigfússonar. Einnig ræða þeir sjónarhorn í frásögnum, vísu Þóris jökuls, hnyttin tilsvör unglingsdrengja, íslenskan Sherlock Holmes á 10. öld, f-orðið, norsku gamansemina, Richard Nixon, „miles gloriosus“ manngerðina, Bíólagið og hvort illmennin hafi verið Baader-m...
Mon, 19 Jun 2023 - 36 - Jólaþáttur III - Þessi hnífur á að vera þungur
Gunnlaugur og Ármann ræða kvikmyndaaðlaganir norræns miðaldaarfs út frá eigin brigðula minni. Til umræðu eru ást Ármanns á Three Billboards Outside Ebbing, Missouri, Njáluaðlögun Gunnlaugs með eiturlyfjasöluþema, endasleppur söngvakeppnisframi hans og „unheimlich“ atvik í Danmörku. Einnig Hávamálasiðferðið, áhugaleysi fornmanna á Norðurljósum, gagnrýnin hugsun, táknfræðilegur tilgangur brossins, latar vinnukonur og „willing suspension of disbelief“. Glímt er við spurningar á borð við: Hvernig...
Fri, 23 Dec 2022 - 35 - Jólaþáttur II – Guð pissar á sig
Séra Sveinn Valgeirsson kemur í heimsókn í sérstökum jólaþætti þar sem rætt er um muninn á prestsstörfum í borg og landsbyggð, kraftaverk miðalda og jarteinasögur, íslenska dýrlinga, sérgreiðslur til presta, hversu illa Svíar voru liðnir á miðöldum, áhuga Gunnlaugs á Hallmark-bíómyndum og muninn á Lúter og Luther. Einnig um jólasiði í ýmsum löndum, gjafir vitringanna, presta í fjölskyldu Ármanns, setningagerð í guðspjöllunum, útvarpsmessuna á jólunum, Sinterklaas og fylgdarmenn hans, áfengisl...
Mon, 20 Dec 2021 - 34 - 34 – Á morgni hins endurreista lýðveldis
Guðni Jónsson gaf út 42 fornsögur nánast á ljóshraða á 5. og 6. áratugnum og á undan honum gerði Sigurður Kristjánsson bóksali Íslendingasögur að þjóðareign. En hversu mikilvægar eru þær í þjóðarsálinni, hve lengi hafa þær verið vinsælar og hver er þáttur bóksala í Bankastræti í vinsældum þeirra? Er Ármann nógu háfleygur til að hafa samið heiti þáttarins upp úr sér? Hvað varð um Torfa sögu Valbrandssonar? Var aðdáendaspuni til á 19. öld? Hvað varð um Sverris sögu sem Ármann samdi níu ára? Árm...
Mon, 29 Nov 2021 - 33 - 33 – Drekar og smáfuglar
Hvaða dreka nennti J.R.R. Tolkien að telja með sem alvöru norræna dreka? Og hver eru tengsl drekans við pabba þinn? Hversu gaman er að hefja ævistarfið eftir 73 ára aldur? Eru unglingar aðeins hættulegir í hóp? Voru loðbrækur CGI síns tíma? Gunnlaugur og Ármann ræða mælsku og kurteisi dreka, fólk sem talar við gæludýrin sín og Júragarðinn í ljósi kenninga Sigmund Freud um „das unheimliche“ í þessum æsispennandi þætti sem lýkur á að Gunnlaugur segir: „Þá er betra að vera hobbiti“.
Mon, 22 Nov 2021 - 32 - 32 – Rebbasögur 14. aldar
Ármann og Gunnlaugur glíma við hugmyndina um „unglegar Íslendingasögur“ og ræða tæknibrellur í Króka-Refs sögu. Getur verið að Hrafnkell Freysgoði hafi líka haft 15. aldar klippingu og hver var Remo Giazotto og hvernig tengist hann Íslendingasögunum? Eru „trúverðugt“ og „sagnfræðilegt“ samheiti? Hefði sonur Gunnlaugs átt að heita Refur? Hvers vegna töldu menn smekk Íslendinga hafa hnignað á 14. öld og hvers vegna eru áheyrendur ekki þegar búnir að lesa allt Kulturhistorisk leksikon?
Mon, 15 Nov 2021 - 31 - 31 – Ari fróði og mæðraveldið
Hver fann upp ostaskerann? Eru menn enn óljúgfróðir eða er nútíminn ekkert nema falsfréttir? Var Ingólfur Arnarson fyrsti landnámsmaðurinn? Voru landnámsmenn umhverfisböðlar? Var fræðimennska fyrri tíma stundum eins og skyggnilýsingar? Hefði höfundur Egilssögu nefnt son sinn Órækja þegar systir hans notaði nafnið Egill? Voru konur Íslendingasagnakennarar? Mun Gunnlaugur verða þekktur í sögunni sem Gunnlaugur fróði? Alveg rugluð? Þið verðið það ekki eftir þennan þátt af Flimtani og fáryrðum!
Mon, 08 Nov 2021 - 30 - 30 – Allir norskir stýrimenn heita Bárður
Gunnlaugur og Ármann ræða áhugaleysi fræðimanna á austmönnum í sögunum sem hefur snúist við seinustu áratugi. Margt fleira bera á góma, m.a. skrárnar í útgáfum Guðna Jónssonar, dönsku og bresku kvennablöðin, heimildagildi Íslendingasagna, hvernig sé að vera tvíburi, Velvakandi, innflytjendauppruni Ármanns, verð á skírnarathöfnum fyrir hlaðvarpsstjórnendur og Ármann nær að koma að tilvitnun í þýska heimspekinginn Georg Simmel.
Mon, 01 Nov 2021 - 29 - 29 – Bestu vinir Mjallhvítar
Framdi Þór fyrsta hatursglæpinn? Voru Íslendingar hræddir við dverga? Hvers vegna gleymir Ármann stöðugt nafninu Alvís? Hverjir breytast í steina? Er Möndull erótískt nafn? Hvers vegna man fólk um fimmtugt aðeins dönsk nöfn dverganna sjö? Ármann og Gunnlaugur ræða dverga í eddukvæðum og Snorra-Eddu, þróun þeirra til nútímans og atvinnumöguleika dvergaleikara á öld tölvutækninnar.
Mon, 25 Oct 2021 - 28 - 28 – Plebbalegur matarsmekkur Norðlendings
Á að bera fram d í nafninu Halli? Er Ármann hörgabrjótur? Hversu lengi þurfa menn að burðast með syndir fortíðarinnar og hversu fákænn þarf maður að vera til að hengja sjálfan sig? Gunnlaugur og Ármann fjalla um einn af áhugaverðustu Íslendingaþáttunum í Morkinskinnu sem Gunnlaugi finnst þó ekki fyndinn (fyrr en Ármann hermir eftir Maggie Smith).
Mon, 18 Oct 2021 - 27 - 27 – 900 ára samtalsmeðferð
Gunnlaugur og Ármann huga að Íslendingaþáttum og ræða hvor sé fremri, Freud eða Jung. Voru dróttkvæði flutt með fyndinni röddu? Fundu Þjóðverjar upp rómantíkina á 19. öld? Hvað er betra en að láta kónginn hjala við sig? Og að lokum: hvað er hægt að kaupa hjá Bókmenntafélaginu á Hagatorgi?
Mon, 11 Oct 2021 - 26 - 26 – Grettir og galdranornin
Ármann og Gunnlaugur snúa aftur vegna fjölda áskorana, gæta þess að minnast ekki á pestina en ræða þess í stað neista heiðninnar árið 1030. En hvernig var Grettir klipptur? Var hann hinn íslenski Van Helsing? Hver eru tengsl múmínálfa við kristnitökuna? Hvað er Gunnlaugur aldrei kallaður? Er Ármann snjallari en Sauron? Og hvern hringirðu í?
Mon, 04 Oct 2021 - 25 - Sérstakur jólaþáttur – Jólin eru tími álfa og óvætta
Flimtan og fáryrði hafa lokið göngu sinni í bili og þá kemur að aukaefninu! Jólin eru hátíð ljóss og friðar – og berserkja, álfa og annarra óvætta. Gunnlaugur og Ármann eru í jólaskapi í sérstökum jólaþætti sem vegna fjölda áskorana var bætt við hlaðvarpið þar sem þeir ræða eigin jólahefðir og afstöðu Íslendinga fyrr og síðar til yfirnáttúrulegra afla. Meðal annars berst talið að 109 ára konum og „túristaálfinum“.
Wed, 23 Dec 2020 - 24 - 24 – Á slóðum væringja
Hverjir voru Væringjar og hvernig varð sagnaritun um þá til? Og er Grís gott nafn á sveinbörn? Ármann og Gunnlaugur ræða við Sverri Jakobsson sagnfræðing sem sendir brátt frá sér bók um Væringja og dvelja að mestu í Miklagarði en þó er einnig vikið að Rússum og talið berst að seinasta skipti sem Sverrir og Ármann voru saman á öldum ljósvakans. Þetta er seinasti þáttur Flimtans og fáryrða í bili en orðrómur er í gangi um jólaþátt og jafnvel aðra þáttaröð ef áskoranir verða margar.
Mon, 16 Nov 2020 - 23 - 23 – Stjörnulögfræðingar
Hrafnkels saga er fáum öðrum Íslendingasögum lík. Höfundur hefur takmarkaðan áhuga á ættfræði og nennir ekki að lýsa útliti manna en hefur áhuga á nýríkum stjörnulögfræðingum, hefndarþyrstum griðkonum og slyngum skósveinum. En tekst Ármanni að koma Friedrich Nietzsche að í þættinum? Og taka þeir virkilega ekki eftir því að Sámur er hundsnafn? Gunnlaugur og Ármann eru komnir alla leið til Austfjarða sem ævinlega voru of litlir á Íslandskortum fyrri alda.
Mon, 09 Nov 2020 - 22 - 22 – Unglingagengi ræðst á varnarlausa
Gunnlaugur og Ármann fá góðan gest, Guðrúnu Nordal, og aftur er haldið á Sturlungaöld og rætt um eitt helsta voðaverk aldarinnar þegar hópur af vopnuðum unglingum réðst á konur og börn á Sauðafelli. Þessi þáttur er alls ekki fyrir þá sem finnst of mikið ofbeldi í Game of Thrones!
Mon, 02 Nov 2020 - 21 - 21 – Börn eru hættuleg
Börn virðast sakleysisleg en enginn er óhultur þegar þau taka að leika „alþingisleikinn“ og afhjúpa leyndarmál fullorðinna. Ekki er heldur snjallræði að fá erfiðan ungling til að hugsa um fiðurfé heimilisins. Og hver vill vera á Hufflepuff-vistinni? Enn eru Gunnlaugur og Ármann að velta fyrir sér hvernig raddir hinna raddlausu hljóma í fornum textum.
Mon, 26 Oct 2020 - 20 - 20 – Sjáum við rauðálfinn?
Í sumum Íslendingasögum birtist brothætt karlmennska þar sem jafnvel mestu hetjur verða fyrir skensi gárunga. Gunnlaugur og Ármann velta því upp hvort harða gagnrýni á kynjakerfið og kúgunartilburði þess megi finna í 13. aldar sögum og hvaða áhrif það hafi haft fyrir 20 árum að vekja máls á þessu.
Mon, 19 Oct 2020 - 19 - 19 – Stétt með stétt
Hvað segir ástarsaga Hallfreðar og Kolfinnu okkur um stéttamun á miðöldum? Gunnlaugur og Ármann fá Torfa H. Tulinius í heimsókn og ræða skáldasögur miðalda og hinar miklu vinsældir þeirra. Einnig berst talið að skynsamlegum hjónaböndum.
Mon, 12 Oct 2020 - 18 - 18 – Mállausa ambáttin Melkorka
Gunnlaugur og Ármann ræða ævintýraleg atvik í Íslendingasögunum, meðal annars söguna af Melkorku sem kom með konunglegt blóð inn í Laxdælaætt. Jafnframt um óhugnanlega þrælamarkaði í Danmörku á 10. öld og hvort Gilli hinn gerski sé hliðstæða Watto úr Stjörnustríði.
Mon, 05 Oct 2020 - 17 - 17 – Húsbændur og hjú
Ýmsir smalamenn og griðkonur birtast í Íslendingasögunum. Hvaða máli skipta nafnlausar persónur í sögu? Hvaða ljósi varpar Roland Barthes á málið? Gunnlaugur og Ármann velta fyrir sér hvort sögurnar séu yfirstéttarbókmenntir og hvað gerist þegar alþýðufólk fær orðið.
Mon, 28 Sep 2020 - 16 - 16 – Legið í gömlum bréfum
Ekki eru allir íslenskir miðaldatextar fornsögur. Í þessum þætti verður skyggnst í heim öðruvísi heimilda, bréfa frá miðöldum sem varðveist hafa og Jón Sigurðsson sjálfur gaf út fyrstur. Gunnlaugur og Ármann ræða við Láru Magnúsardóttur sagnfræðing sem gjörþekkir þessar heimildir. Um leið berst talið að flóknum samskiptum andlegs og veraldlegs valds á 13. öld.
Mon, 21 Sep 2020 - 15 - 15 – Kassandra Íslands var gömul kerling
Það var hlegið að Sæunni kerlingu þegar hún varaði við arfanum á Bergþórshvoli. Gunnlaugur og Ármann ræða hvernig farið er með eldra fólk á miðöldum. Var því sýnd virðing, hvernig brást það við þegar unga kynslóðin hunsaði það og hvaða máli skipti Krónosargoðsögnin á 13. öld á Íslandi?
Mon, 14 Sep 2020 - 14 - 14 - Töffarar teknir af
Þó að líklega sé enginn miðaldakonungur meira áberandi í nútímamenningunni en Haraldur blátönn urðu örlög hans snautleg samkvæmt Jómsvíkingasögu. Gunnlaugur og Ármann fá í heimsókn Þórdísi Eddu Jóhannesdóttur og ræða meðal annars langdregna aftöku Jómsvíkinga.
Mon, 07 Sep 2020 - 13 - 13 - Skarphéðinn er fyndinn
Hverju verða menn fróðari með því að athuga allar setningar sem hafðar eru eftir Íslendingasagnapersónu í beinni ræðu? Gunnlaugur og Ármann ræða hvað danska heimspekingnum Kierkegaard hefði fundist um Skarphéðin Njálsson og hvort hann sé fyrirmyndin að Mr Bennett í skáldsögu Jane Austen.
Mon, 31 Aug 2020 - 12 - 12 - Þorbjörg dregur fram hnífinn
Varð helsta heimildin um norræna goðafræði til vegna hnífaárásar á föður skrásetjarans? Ármann og Gunnlaugur ræða einn helsta „spaða“ 12. aldar og tengsl hans við paurinn úr neðra.
Mon, 24 Aug 2020 - 11 - 11 - Snorri goði grínast
Gunnlaugur og Ármann ræða hvort snjöll tilsvör Snorra goða séu ævinlega fyndin og þó enn frekar hvort og hvernig þau endurspegla vísindalega heimsmynd.
Mon, 17 Aug 2020 - 10 - 10 - Grátandi elskendur
Í þáttinn kemur Kristín Ragna, rithöfundur og listamaður sem hefur mikið unnið með miðaldabókmenntir í list sinni og segir Gunnlaugi og Ármanni frá því en talið berst einnig að miðaldahetju sem er fríður sem stúlka og fellur reglulega í yfirlið.
Mon, 10 Aug 2020 - 9 - 9 - Ekki bara Chelsea
Ármann og Gunnlaugur ræða hinn mikla herkonung Harald harðráða sem raunar féll ekki á Chelseavellinum heldur Stamford Bridge í Yorkshire (eins og þeir vita báðir í endurupptöku þáttarins) en þó féll hann og það árið 1066. Vanstilling og sovéskur einræðisherra koma einnig við sögu.
Mon, 03 Aug 2020 - 8 - 8 - Færeyskir draumar
Færeyskan dreng dreymir stóra drauma en þessir færeysku draumaráðendur hugsa ekki nógu hátt. Ármann og Gunnlaugur skyggnast um í sögu Sverris konungs.
Mon, 27 Jul 2020 - 7 - 7 - Viðræður um varúlfa
Hrikaleg óheppni Ála flekks er til umfjöllunar í þessum þætti þar sem meðal annars er rætt hvernig mannssálin endurspeglast í ævintýrinu. Sérstakur gestur er Aðalheiður Guðmundsdóttir, prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda við Háskóla Íslands og sérfræðingur um varúlfa.
Mon, 20 Jul 2020 - 6 - 6 - Kamarorg
Í sögu dagsins er ekkert kammerorkester eða kamarorghestar en hins vegar mikið kamarorg. Gunnlaugur og Ármann ræða púka og saur í þætti sem aldrei þessu vant er mjög við hæfi barna innan tólf ára.
Mon, 13 Jul 2020 - 5 - 5 - Um ósýnilega greind kvenna
Hún var jafnoki greindustu karlmanna Íslands en fjölmargir lesendur sjá það ekki og Gunnlaugur og Ármann ræða þessa útþurkkun gáfukonu
Sun, 05 Jul 2020 - 4 - 4 - Skaðlegar skikkjur
Ýmsum verður ekki kápan úr því klæðinu í þessum þætti. Ármann og Gunnlaugur fá til sín góðan gest, hana Ásdísi Egilsdóttur, og haldið er til hirðar Artúrs konungs.
Sun, 28 Jun 2020 - 3 - 3 - Hvað ráða þriggja ára við?
Ekki trúa öllu sem fólk segir um aðra er boðskapur þessa þáttar þegar Gunnlaugur og Ármann ræða meintan drykkjuskap þriggja ára drengs.
Sun, 28 Jun 2020 - 2 - 2 - Ónytjungurinn Þorkell Súrsson
Gísli Súrsson var bestur í öllu nema kannski á nóttunni. En myndu Ármann og Gunnlaugur ráða bróður hans í vinnu?
Sun, 28 Jun 2020 - 1 - 1 - Um misheppnað galdranám Gunnlaugs
Frumþátturinn þar sem Ármann og Gunnlaugur kynna leiðarljós hlaðvarpsins og íslensku 10. aldar útgáfuna af Hogwarts.
Sun, 28 Jun 2020
Podcasts ähnlich wie Flimtan og fáryrði
Barangay Love Stories Barangay LS 97.1 Manila | GMA Network Inc.
Friday Night Comedy from BBC Radio 4 BBC Radio 4
Global News Podcast BBC World Service
Good Bad Billionaire BBC World Service
Cyprian Majcher Cyprian Majcher
Deep Sleep Tibetan Singing Bowls Sounds Deep Sleep Podcasts
Die Nachrichten Deutschlandfunk
Podcast Wojenne Historie Historia II wojny światowej
Forensic Files HLN
Nowenna pompejańska. Świadectwa https://pompejanska.krolowa.pl/
True Crime Documentary Justin Kandell Network
WojewódzkiKędzierski Kuba Wojewódzki, Piotr Kędzierski
بودكاست عقلية Moneim
Snapped: Women Who Murder Oxygen
Off Menu with Ed Gamble and James Acaster Plosive
DUDEK o polityce prof. Antoni Dudek i Super Exspress
Przemek Górczyk Podcast Przemek Górczyk
Sceny zbrodni RMF FM
Frjálsar hendur RÚV
Í ljósi sögunnar RÚV
Money News Tapt Media
The Daily The New York Times
Nauka To Lubię Tomasz Rożek
Żurnalista - Rozmowy bez kompromisów zurnalistapl
