Nach Genre filtern
Sumarfríið er alveg að byrja og sumarhátíð skólans á næsta leiti. Vinirnir Úlla og Mási spá ekki mikið í það, þau hafa mikilvægari hnöppum að hneppa. Þau ætla að sinna mikilvægu og háleynilegu verkefni sem amma Úllu hefur lagt fyrir þau. Nærbuxurnar í Hamraborg er framhaldsleikrit í fimm hlutum fyrir börn eftir Viktoríu Blöndal.
Persónur og leikendur:
Úlla: Kría Valgerður Vignisdóttir
Mási: Róbert Ómar Þorsteinsson
Magnea: Guðný Þórarinsdóttir
Sæbjörn: Kári Páll Thorlacius
Teitur: Baldur Davíðsson
Unglingur: Ragnar Eldur Jörundsson
Amma: Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
Skarphéðinn: Hákon Jóhannesson
Vaka Líf : Álfrún Örnólfsdóttir
Afi: Þröstur Leó Gunnarsson
Forsetinn: Hjörtur Jóhann Jónsson
Olga: Þórdís Björk Þorfinnsdóttir
Diddý: Maríanna Clara Lúthersdóttir
Aron: Ágúst Örn Wigum
Fréttamaður: Starkaður Pétursson
Tónlist: Úlfur Úlfur
Hljóðvinnsla: Hrafnkell Sigurðsson
Leikstjóri: Viktoría Blöndal
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
- 5 - 5. þáttur
Þessi síðasti þáttur hefst í miðjum eltingaleik og allt í einu eru allir á leiðinni á Ægissíðu, meira að segja amman sem fer aldrei út úr húsi. Flækjan virðist óleysanleg.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Fri, 06 Dec 2024 - 32min - 4 - 4. þáttur
Eins og fram kom í síðasta þætti gleymdist pakkinn góði í strætóskýlinu á Ægissíðunni. Nú eru góð ráð dýr. Það kemur svo í ljós að pakkinn er langt frá því að vera óhultur, hann kemst í hendurnar á manneskju sem reynist áður en yfir lýkur vera flagð undir fögru skinni. Amma sér í sjónaukanum sínum að áætlunin er öll úr skorðum og því þarf hún að taka erfiða ákvörðun.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Fri, 06 Dec 2024 - 19min - 3 - 3. þáttur
Úlla og Mási eru komin í strætó þar sem þau hitta Aron sem segist vera strætóbílstjóri. Þau hafa ekki fyrr jafnað sig á sprengingunni sem heyrðist í lok síðasta þáttar þegar þau uppgötva að þau hafa misstigið sig, planið hennar ömmu er úr skorðum gengið og þau þurfa að bjarga málunum. Skarphéðinn kennari uppgötvar loksins að Úlla og Mási eru horfin á braut og það verður uppi fótur og fit í skólanum.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Fri, 06 Dec 2024 - 27min - 2 - 2. þáttur
Ferðalagið með pakkann leiðir Úllu og Mása í strætóskýli á Ægissíðu þar sem þau hitta afar sérstaka konu. Amma er hins vegar heima eins og reyndar alltaf, hún fer nefnilega aldrei út. Hún er alltaf mikið í símanum og í þessum þætti fær hún dularfull símtöl úr ýmsum áttum. Mási og Úlla komast að lokum í strætó.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Fri, 06 Dec 2024 - 29min - 1 - 1. þáttur
Skarphéðinn kennari er spenntur fyrir keppni í pylsuáti sem er hápunktur sumarhátíðar skólans en vinirnir Úlla og Mási láta sér fátt um finnast, þau eru með hugann við verkefnið sem amma Úllu hefur fengið þeim. Þau eiga að koma pakka til skila en vandamálið er að þau hafa ekki hugmynd um hvert ferðinni er heitið, þau vita ekki einu sinni hvað er í pakkanum. En þau halda nú samt af stað.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Fri, 06 Dec 2024 - 25min
Podcasts ähnlich wie Nærbuxurnar í Hamraborg
Friday Night Comedy from BBC Radio 4 BBC Radio 4
Historie českého zločinu Český rozhlas
RADIO MUZYKA CM. TAKOS
The Diary Of A CEO with Steven Bartlett DOAC
Fængsel DR
Drogowskazy Eska ROCK
C dans l'air France Télévisions
Forensic Files HLN
Forensic Files II HLN
Stuff You Should Know iHeartPodcasts
Bag om København Københavns Biblioteker
Kryminalne Historie Kryminalne Historie
Zloději životů Novinky.cz
Snapped: Women Who Murder Oxygen
Solo Salsa Ricky Montana
Sceny zbrodni RMF FM
Laurent Gerra RTL
Tout un monde ‐ RTS Première RTS - Radio Télévision Suisse
Frjálsar hendur RÚV
Í ljósi sögunnar RÚV
Mannlegi þátturinn RÚV
Sögur úr raunveruleikanum RÚV Hlaðvörp
Skuggavaldið skuggavaldid
Żurnalista - Rozmowy bez kompromisów zurnalistapl

