Podcasts by Category
- 480 - Gullkastið - Atletico Arsenal
Liverpool voru bókstaflega flautaðir úr leik á Anfield gegn svari Englands við Atletico Madrid. Hroðaleg úrslit og ákaflega pirrandi leikur en frammistaða Liverpool ekki alslæm og liðið ennþá í mótun.
Áhugaverð úrslit í öðrum leikjum í deildinni og tími á uppfært PowerRank. Er Liverpool ennþá hvað helst í baráttu við Man Utd eins og við töldum fyrir mót?
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi
Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks.
Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins
Gull áfengislaus - Okkar Bjór
Mon, 02 Nov 2026 - 1h 08min - 479 - Gullkastið - Handbragð Iraola
Handbragð Iraola er smátt og smátt farið að sjást á Liverpool liðinu og miklu betri liðsheild farin að myndast en við sáum oft síðasta vetur. Frábær sigur gegn Brighton um helgina og í gærkvöldi skoraði Joe Gomez sigurmarkið!
Spáðum í deildinni almennt með áherslu á stórskemmtilegt United lið Michael Carrick, nýtt Ögurverk lið er farið af stað og framundan er risaslagur gegn Arsenal á Anfield.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn
Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks.
Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins
Gull áfengislaus - Okkar Bjór
Thu, 29 Oct 2026 - 1h 03min - 478 - Gullkastið - Pennahittingur
Það er hittingur hjá Kop.is samsteypunni og við hentum í Gullkast af því tilefni.
Staðan á liðinu í dag, leikir vikunnar og alvöru Ögurverk lið.
Stjórnandi: Maggi Viðmælendur: Daníel, Óli Haukur, Hannes, Ingimar og Ívar Örn
Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks.
Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins
Gull áfengislaus - Okkar Bjór
Sat, 24 Oct 2026 - 1h 13min - 477 - Gullkastið - Framfarir frá síðasta tímabili
Liverpool vann tvo útileiki í þessari viku og skoraði samtals átta mörk sem er einmitt það sem þurfti eftir þunga helgi þar á undan. Frábær útisigur gegn erfiðu liði Brentford í hörkuleik þrátt fyrir töluvert mótlæti og markaveisla í Austurríki gegn LASK.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks.
Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins
Gull áfengislaus - Okkar Bjór
Mon, 19 Oct 2026 - 55min - 476 - Gullkastið - Leiðinlegur Farsi
Vörumerkið Enska Úrvalsdeildin er í vanda og verður það þar til búið er að afgreiða refsingu Man City. Leikurinn um helgina var sá fyrsti eftir að dómurinn fellur og skilur vægast sagt eftir óbragð í munni knattspyrnuáhugamanna. Svona getur þetta ekki gengið áfram, það er flestum ljóst.
Liverpool missti þrjá lykilmenn í meiðsli í lengsta landsleikjahléi sögunnar sem hjálpaði ekkert til við undirbúning á leik gegn liði sem hefur komist upp með að svindla á áður óþekktum skala í 15 ár. Hrikalega óstöðugur dómari frá stór Manchester svæðinu hjálpaði alls ekki til og í raun kálaði annars sæmilegum leik. Það hjálpaði ekki til með óbragðið.
Næst eru það útileikir gegn LASK Í Austurríki og Brentford í London og ljóst að Iraola þarf að fara ná að innleiða sína hugmyndafræði í liðið og ná betra flæði í leik liðsins.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks.
Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins
Gull áfengislaus - Okkar Bjór
Mon, 12 Oct 2026 - 58min - 475 - Gullkastið - Athyglin á Anfield
Viðureign Liverpool og Man City var áhugaverð fyrir þetta landsleikjahlé en áhuginn á þeim leik hefur heldur betur margfaldast eftir að niðurstaða fékks loksins í 115 ákærur sem hangið hafa yfir Man City undanfarin ár.
Spáum í þeim leik og stöðunni á þessu risa máli. Ögurverk liðið er á sínum stað og við spáum í leikjum helgarinnar.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi
Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks.
Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins
Gull áfengislaus - Okkar Bjór
Wed, 07 Oct 2026 - 59min - 474 - Ævintýralegt Svindl
Átta árum eftir að Football Leaks síðan birti upplýsingar um ótrúlegt fjármálasvindl Man City er enska knattspyrnusambandið loksins búið að komast að því að þeir voru sekir. Þetta var öllum ljóst fyrir þennan stóra leka árið 2018 en hann girti svo rosalega niður um Man City að ekki var lengur hægt að horfa framhjá þessu. Samt hefur þetta tekið átta ár! Flest af þeim ár þar sem Liverpool var með frábært lið og ætti að skoðast í enn betra ljósi núna. Augljóst að þetta var stórt umræðuefni í annars daufu landsleikjahléi.
Julian Ward er tekinn við DoF stöðunni og það stefnir í meiðslavandræði í sóknarlínunni hjá Liverpool eftir þessa bölvuðu landsleiki.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Verdi Travel - Minnum á Kop.is Hópferðina á leikinn gegn Crystal Palace helgina 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks, þetta er símtalið ef ykkur vantar smiði
Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins
Gull áfengislaus - Okkar Bjór
Wed, 30 Sep 2026 - 51min - 473 - Gullkastið - Fyrsti Kafli
Litla örmótið fram að fyrsta landsleikjahléi er á enda og smá mynd komin á mótið. Fórum yfir stöðuna hjá toppliðunum og byrjunina á mótinu. Liverpool náði í þrjú góð stig gegn Bournemouth um helgina og var fyrsta liðið til að fara með öll þrjú stigin þaðan síðan í janúar.
Minnum á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Leeds helgina 11.- 14. desember (Örfá sæti laus) Crystal Palace helgina 15. - 18.janúar. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Wed, 23 Sep 2026 - 55min - 472 - Gullkastið - Work In Process
Ungu strákarnir komu með orku í leikinn gegn Tottenham í deildarbikarnum sem sárlega vantaði í helstu lykilmenn Liverpool gegn Fulham. Hellingur eftir þessa viku fyrir Iraola að greina á meðan hann lærir inn á hópinn sem hann er með hjá Liverpool.
Ögurverk liðið er á sínum stað, Gullstund(ir) vikunnar og framundan deildarleikur fyrir voðalega langt landsleikahlé
Minnum á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Leeds helgina 11.- 14. desember Crystal Palace helgina 15. - 18.janúar. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Wed, 16 Sep 2026 - 50min - 471 - Gullkastið - Framfarir
Tveir sigurleikir í röð í þessari viku og Liverpool lið sem við þekkjum mun betur og líkar betur við. Það eru framfarir milli leikja þessa dagana og spennandi breytingar á leik liðsins sem enn á þó töluvert í land.
Spáum aðeins í leikmannaglugganum og tíma Richard Hughes hjá Liverpool
Ögurverk liðið er á sínum stað og tveir leikir framundan í næstu viku líka.
Minnum á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Leeds helgina 11.- 14. desember Crystal Palace helgina 15. - 18.janúar. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Thu, 10 Sep 2026 - 49min - 470 - Gullkastið – Leikmannaglugganum Lokað
Liverpool gekk loksins frá kaupum á Bradley Barcola frá PSG en létu bara þar við sitja á lokavikum leikmannagluggans, innkaup langt undir væntingum flestra stuðningsmanna félagsins. Spáum í glugganum hjá Liverpool sem og hinum toppliðunum í deildinni. Hverjir eru sáttir eftir sumarið og hverjir ekki.
Notthingham Forest fór þriðja tímabilið í röð með eitthvað frá Anfield í leik helgarinnar sem er óþolandi trend og leikurinn um helgina eftir því. Næst er það svo Ipswich á föstudagskvöldið á Portmann Road.
Minnum á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Leeds helgina 11.- 14. desember Crystal Palace helgina 15. – 18.janúar. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Óli Haukur
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
Wed, 02 Sep 2026 - 45min - 469 - Gullkastið - Stór vika
Tímabilið er farið af stað og eitt stig á endanum niðurstaðan í Newcastle með flautumarki annað árið í röð. Spáum í spilamennsku Liverpool og umferðina í heild.
Þetta er jafnframt síðasta vika leikmannagluggans og sjaldan sem Liverpool á svona mikið eftir að gera á leikmannamarkaðnum. Það verður því fróðlegt að sjá hvernig hópurinn breytist áður en við fáum Nottingham Forest í heimsókn næstu helgi.
Bendum einnig sérstaklega á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Annarsvegar á leikinn gegn Leeds helgina 11.- 14. desember og svo Crystal Palace helgina 15. – 18.janúar. Þetta er t.d. tilvalin jólagjöf. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Wed, 26 Aug 2026 - 1h 04min - 468 - Gullkastið – Er Liverpool tilbúið í Tímabilið?
Æfingaleikir að baki og nýtt tímabil byrjar um helgina á útivelli gegn Newcastle. Er Liverpool liðið tilbúið í mótið og fáum við fleiri leikmenn áður en glugganum lokar?
Bendum einnig sérstaklega á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Annarsvegar á leikinn gegn Leeds helgina 11.- 14. desember og svo Crystal Palace helgina 15. – 18.janúar. Þetta er t.d. tilvalin jólagjöf. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Mon, 17 Aug 2026 - 1h 02min - 467 - Gullkastið – Araujo mættur til æfinga
Liverpool bætti Araujo miðverði frá Barceolna við leikmannahópinn í vikunni og kom það nokkuð óvænt upp. Hann hefur átt erfitt uppdráttar eftir að Hansi Flick tók við liðinu en var lykilmaður hjá Xavi og hefur verið í fyrirliðahópi Barcelona. Þetta er strákur frá Úruvgæ sem kom til Barcelona árið 2018. Spáum í honum og slúðri af leikmannamarkaðnum.
Liverpool spilaði æfingaleik um helgina sem var mjög svipaður leikjum gegn Leeds í Bandaríkjunum, gríðarlega kaflaskiptur og mikið hrun í leik liðsins þegar lykilmenn fóru að fara af velli. Iraola var ekki sáttur við hlaupagetu hópsins eftir leik sem klárlega er verið að vinna í á æfingasvæðinu og vonandi leikmannamarkaðnum líka.
Héldum áfram með Power Rank á deildina, Ögurverk liðið o.fl.
Bendum einnig sérstaklega á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Annarsvegar á leikinn gegn Leeds helgina 11.- 14. desember og svo Crystal Palace helgina 15. – 18.janúar. Þetta er t.d. tilvalin jólagjöf. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
Wed, 12 Aug 2026 - 50min - 466 - Gullkastið – Lífsmark á Leikmannamarkaðnum?
Æfingaferðin til Bandaríkjanna er afstaðin og Iraola búinn að endurheimta alla núverandi leikmenn Liverpool til æfinga eftir HM. Spáum í hvað við lærðum af ferðinni til Ameríku. Leikmannamarkaðurinn er farinn að sýna eitthvað smá lífsmark en þó ekkert mikið meira en það eins og er. Vonandi spennandi vika og vikur framundan þar. Létt Power Rank á liðin í deildinni eins og staðan er í dag
Bendum einnig sérstaklega á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Annarsvegar á leikinn gegn Leeds helgina 11.- 14. desember og svo Crystal Palace helgina 15. – 18.janúar. Þetta er t.d. tilvalin jólagjöf. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
Wed, 05 Aug 2026 - 1h 16min - 465 - Gullkastið – Barcola og Æfingaleikir
Liverpool verður ekki sakað um að spila leiðinlega fótbolta í fyrsta æfingaleik undirbúningstímabilsins þó varhugavert sé að lesa of mikið í slíka leiki. Fjölmargir ungir leikmenn fengu tækifæri inná vellinum að sýna sig fyrir Iraola og verður fróðlegt að sjá hvernig hann metur þær frammistöður. Fréttir þess efnis að barcola sé á leiðinni til Liverpool eru farnar að hitna töluvert í þessari viku og klárlega það langheitasta tengd leikmannaslúðri Liverpool þessa dagana. Framundan er svo leikur gegn Wrexham í New York rétt fyrir miðnætti annað kvöld.
Bendum einnig sérstaklega á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Annarsvegar á leikinn gegn Leeds helgina 11.- 14. desember og svo Crystal Palace helgina 15. – 18.janúar. Þetta er t.d. tilvalin jólagjöf. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
Tue, 28 Jul 2026 - 47min - 464 - Gullkastið – HM búið
Liverpool er farið með 31 manna leikmannahóp til Bandaríkjanna í æfingaferð og spilar fyrsta æfingaleik í þessari viku. HM er loksins búið og því hægt að snúa sér aftur af alvöru fótbolta sem skiptir máli. Örlítið uppgjör á HM og eins skoðum við auðvitað stöðuna á leikmannamarkaðnum og hópnum hjá Liverpool.
Bendum einnig sérstaklega á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Annarsvegar á leikinn gegn Leeds helgina 11.- 14. desember og svo Crystal Palace helgina 15. – 18.janúar. Þetta er t.d. tilvalin jólagjöf. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Óli Haukur
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Tue, 21 Jul 2026 - 1h 24min - 463 - Gullkastið – Iraola mættur til starfa
Leikmann Liverpool sem ekki voru uppteknir með landsliðum sínum í sumar eru mættir aftur til æfinga og Iraola því formlega mættur til starfa og hélt blaðamannafund í morgun. Ofsalega lítið að frétta af leikmannamarkaðnum hjá Liverpool enn sem komið er en öllu meira hjá hinum toppliðunum. Skoðum aðeins helstu breytingar í deildinni og helstu fréttir tengdar Liverpool.
Bendum einnig sérstaklega á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Annarsvegar á leikinn gegn Leeds helgina 11.- 14. desember og svo Crystal Palace helgina 15. – 18.janúar. Þetta er t.d. tilvalin jólagjöf. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
Mon, 13 Jul 2026 - 1h 11min - 462 - Gullkastið - Hvaða Kaupir Liverpool fyrir Iraola
Liverpool náði ekki að sannfæra hinn 19 ára Yan Diomande sem var helsta skotmark sumarsins í stöðuna hans Mo Salah á hægri vængnum og því áfram töluverð óvissa hvernig brottför hans verður leyst. Þetta er síður en svo það eina sem Liverpool þarf að gera á leikmannamarkaðnum í sumar. Skoðum aðeins hvað bíður Iraola hjá Liverpool og hvernig leikmannamarkaðurinn er í þeim stöðum sem Liverpool þarf að styrkja.
Nýtt leikjaplan er komið út og Kop.is. ferðir á leið í sölu.
HM er svo auðvitað í fullum gangi og átta leikmenn Liverpool ennþá á mótinu núna þegar 32.liða úrslit eru hafin.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
Mon, 29 Jun 2026 - 1h 08min - 461 - Gullkastið – Arne Slot Rekinn
Liverpool hélt spilunum þétt að sér varðandi framtíð Arne Slot voru voru flestir farnir að búa sig undir hann áfram sem stóra liðsins þrátt fyrir að hans staða væri orðin allt að því vonlaus. Það lá því ekkert í loftinu að fréttin Arne Slot rekinn væri yfirvofandi þó það sé ekki hægt að segja að hún komu á óvart.
Andoni Iraola yfirburða langlíklegastur til að taka við. Hann hefur gert frábæra hluti með Bournemouth og var auðvitað ráðin þangað af Richard Hughes.
Liverpool hefur ekki skipt oft um stjóra í sögulegu samhengi og þegar það gerist er jafnan tilefni fyrir Neyðarþátt.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
Sat, 30 May 2026 - 54min - 460 - Gullkastið – Tölum Aldrei Um Þetta Aftur
Liverpool spilar í Meistaradeild Evrópu næsta vetur þannig að það er óhætt að nota gamla góða Men In Black pennann á þetta tímabil og gleyma því. Tímabilið 2025-26 gerðist ekki.
Skoðuðum lokaumferðina, stöðuna á toppliðunum í upphafi leikmannagluggans og hentum í létt uppgjör á tímabilinu
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
Tue, 26 May 2026 - 1h 10min - 459 - Gullkastið – Lokavikan
Blessunarlega er þetta síðasta vika tímabilsins og Meistaradeildarsæti á næsta tímabili ekki enn í höfn. Liverpool er ennþá með þetta í sínum höndum og getur tryggt sæti í Meistardeild á erfiðum heimavelli sínum Anfield Road á sunnudaginn. Ekki tókst það á föstudaginn á Villa Park, alls ekki.
Salah baunaði félagið og hefur umræða vikunnar heldur betur snúist um hans yfirlýsingi og ekki síst viðbrögð leikmanna Liverpool við henni, það er augljóslega ekki allt með felldu innan herbúða félagsins.
Spáðum einnig í helstu fréttum vikunnar.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
Tue, 19 May 2026 - 1h 13min - 458 - Gullkastið – Erfiður Heimavöllur?
Anfield Road í vetur hefur verið völlurinn þar sem lið í frjálsu falli geta mætt og fengið sjálfstraust á ný. Amorim vann sem stjóri United, Totenham og Chelsea voru búin að tapa sex leikjum í röð áður en þau mættu á Anfield, Sean Dyche náði í 3-0 sigur áður en hann var rekinn og ekkert af nýliðunum hefur tapað á Anfield. Frammistaðan og leikurnn gegn Chelsea var alveg á pari við þessa verslu leiki og stuðningsmenn á Anfield orðnir það langþreyttir að baulað var hraustlega á liðið, það er ekki eðlilegt ástand á Anfield.
Meistaradeildarsæti á næsta tímabili er ekki staðfest ennþá en Liverpool fær gott tækifæri á Villa Park á föstudaginn. Sigurvegari í þeim leik verður í Meistaradeildinni á næsta tímabili.
Staða Arne Slot hefur töluvert mikið verið til umræðu þessa vikuna
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Óli Haukur
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
Tue, 12 May 2026 - 57min - 457 - Gullkastið – Stórleikur um helgina
Liverpool fer næst á Old Trafford og getur með sigri náð djöflunum að stigum sem væri hressandi eftir allt sem á undan er gengið í vetur. Risaslagur að vanda en Meistaradeildarsætið að ári er orðið ansi líklegt eftir annan góðan sigur í deildinni gegn Crystal Palace.
Drógum svo m.a. tvo heppna í Bræðsluleiknum okkar en þeir fá sitthvora tvo miðana á Bræðsluna á Borgarfirði Eystri í sumar.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
Wed, 29 Apr 2026 - 1h 08min - 456 - Gullkastið – Leiðtogarnir Afgreiddu Everton
Trölla sigurmark fyrirliðans gegn Everton á 100.mínútu er nokkuð auðveldlega besta moment þessa tímabils og tryggði í leiðinni ákaflega mikilvæg þrjú stig og 100% árangur Liverpool á þessum nýja heimavelli Everton. Borgin er svo sannarlega rauð eftir sem áður. Meistaradeildarsæti er því enn meira innan seilingar eftir helgina.
Það er hinsvegar ekki nóg að komast í Meistaradeildina það þarf spila eins og menn þar líka, Liverpool gerði það vissulega öllu betur á Anfield heldur en í París um daginn en niðurstaðan varð sú sama, 0-2 tap og samanlagt 0-4 gegn PSG sem er bara alls ekkert ásættanlegt hjá Liverpool. Tvö vonbrigðatímabil í röð í Meistaradeildinni og klárlega eitthvað sem félagið þarf að stefna á að laga strax í sumar.
Allar fréttir frá klúbbnum eru líka á þá leið að félagið þurfi að láta taka til sín á leikmannamarkaðnum enda stór skörð sem þarf að fylla og ljóst í vetur að stórar holur eru í hópnum fyrir. Skoðum aðeins þann markað líka.
Bræðslan 2026 – Gjafaleikur Við framlengjum gjafaleikinn okkar með Bræðslunni í nokkra daga. Bræðslan er ríkishátíð Kop.is og gefum tveimur heppnum tvo miða á Bræðsluna í ár. Það er koluppselt á hátíðina og því um að gera að freista gæfunnar að vinna miða. Eina sem þarf til að vera með er að skilja eftir ummæli við þessa færslu á Facebook síðu Kop.is
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
Mon, 20 Apr 2026 - 1h 20min - 455 - Gullkastið – Er Ennþá Séns?
Einvígið gegn PSG er í brennidepli og ljóst að Liverpool er í gríðarlegri brekku núna þegar einvígið er hálfnað eftir vond úrslit og enn verri frammistöðu í París. Ef það er eitt lið sögulega sem getur snúið svona stöðu þá er það að sjálfsögðu Liverpool þannig að höldum ennþá aðeins í vonina.
Meistaradeildarsæti á næsta tímabili er hinsvegar ennþá möguleiki eftir nokkuð góða helgi í ensku deildinni. Chelsea og Aston Villa töpuðu stigum á meðan Liverpool vann góðan sigur á Fulham. Spáum aðeins í stöðuna í deildinni almennt enda áhugaverð staða á flestum vígsstöðvum.
Bræðslan 2026 – Gjafaleikur Áskell Heiðar Bræðslustjóri var með okkur að þessu sinni en þeir bræður eru einmitt að fara hefja sölu miða á Bræðsluna 2026 og kynntu byrjunarliðið á Bræðslunni í dag. Sjá nánar hér Bræðslan er ríkishátíð Kop.is og af þessu tilefni hlöðum við í gjafaleik og gefum tveimur heppnum tvo miða á Bræðsluna í ár.
Eina sem þarf til að vera með er að skilja eftir ummæli við þessa færslu eða þessa færslu á Facebook síðu Kop.is og hafa netfang með.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og Áskell Heiðar
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
Mon, 13 Apr 2026 - 1h 10min - 454 - Gullkastið – Allt Undir
Frammistaða Liverpool um helgina var í beinu framhaldi af tímabilinu í heild og því lá við að skoða hvað væri raunverulega í boði á þjálfaramarkaðnum í sumar. Hvaða nöfn eru þetta sem eru efst hjá veðbönkum og er hægt að máta þá stjóra við Liverpool? Verkefni þessarar viku ráða svo líklega úrslitum um þetta tímabil og jafnvel næsta tímabil líka. Ef að Liverpool liðið ætlar að sýna eitthvað baráttuþrek og hjarta í vetur þá þetta tímapunkturinn til að byrja.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
Tue, 07 Apr 2026 - 1h 01min - 453 - Gullkastið – Sumarið Er Tíminn
Hvað gerir Liverpool í sumar? Það þarf að fylla fleiri stór skörð en bara það sem Mo Salah skilur eftir sig til að koma Liverpool aftur á rétta braut. Landsleikjapásunni er lokið og komið er að stórleik á útivelli í FA Cup.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
Thu, 02 Apr 2026 - 58min - 452 - Gullkastið – Salah Kveður í Sumar
Sprengja á meðan við vorum að taka upp, Egypski kóngurinn Mo Salah tilkynnti að hann ætlar að kveðja í sumar, við bregðumst við þeim fréttum þegar um 10 mínútur eru liðnar af þættinum. Brottför hans þurfum við auðvitað að gera mun betri skil þegar líður á vorið enda Salah einn af þeim allra stærstu í sögu félagsins. Hér er t.d. dæmi um þá gleði sem hann hefur gefið okkur sem kannski sést ekki á metalistanum Including Man Utd players, Mohamed Salah is the eighth-highest PL scorer at Old Trafford in the 2020s
Liverpool er annars í frjálsu falli í deildinni og Meistaradeildarsæti ólíklegt eins og liðið er að spila. Framundan eru fjórir leikir í þremur keppnum sem gætu haft töluvert að segja um framhaldið. Staða Arne Slot er vægast sagt ekki góð, skoðum aðeins hvaða nöfn við gætum verið að horfa sig í sumar (eða fyrr) geri Liverpool breytingar á toppnum sem verða að teljast ansi líklegar (nauðsynlegar) eins og staðan er núna. Skoðum leiki vikunnar, góðan sigur á Gala og ömurlegt tap í kjölfarið gegn Brighton.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
Tue, 24 Mar 2026 - 1h 12min - 451 - Gullkastið – Algjört þrot á Anfield
iverpool afrekaði það bara að vinna ekki þetta Tottenham lið sem kom inn í leikinn með eitt minnsta sjálfstraust sem nokkuð lið hefur verið með í sögu ensku úrvalsdeildarinnar og þar að auki með 13 leikmenn fjarverandi. Þeir hlupu 9 km meira en Liverpool í þessum leik þrátt fyrir þetta og höfðu næga orku í lokin til að kvitta fyrir mark Liverpool sem auðvitað kom úr föstu leikatriði því liðið tengir varla saman venjulega sókn núorðið. Þetta var næsti deildarleikur á eftir tapinu gegn Wolves um daginn, einu versta liði í sögu ensku úrvalsdeildarinnar fram að þeim leik. Viðbrögð fjölmiðla og ekki síst stuðningsmanna Liverpool hafa verið í takti við þetta sem eðlilegt er. Félagið virkar fast í handbremsu innan sem utan vallar!
Næsta verkefni er seinni leikurinn gegn Galatasaray en Liverpool afrekaði að sjálfsögðu að tapa fyrri leiknum gegn þeim í síðustu viku, það var í annað skipti í vetur sem Liverpool tapaði á þeirra heimavelli. Takist Liverpool ekki að vinna Galatasaray í þremur tilraunum hefur liðið nákvæmlega ekkert að gera í Meistaradeild Evrópu.
Minnum annars áfram á Árshátíð Liverpool klúbbsins í 21.mars í Kaplakrika sem við hvetjum alla til að tryggja sér miða á. Miðasala fer fram í gegnum abler
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
Mon, 16 Mar 2026 - 47min - 450 - Gullkastið – Óstöðugleikinn er stöðugleikinn
Ósöðugleiki Liverpool er eini stöðugleiki liðsins. Liverpool leiðrétti hærðilegt tap gegn Wolves með 1-3 sigri á sama velli í bikarnum en tapaði svo í annað skipti í vetur 0-1 gegn Galatarsaray í Tyrklandi. Liverpool er því núna búið að tapa gegn Wolves og Galatarsaray á einni viku sem er bara alls ekkert nógu gott. Næst er það Tottenham sem hafa ekki unnið leik á þessu tímabili en voru vissulega með Liverpool í köðlunum í fyrri leiknum þrátt fyrir að vera 9 gegn 11 undir lokin.
Minnum annars áfram á Árshátíð Liverpool klúbbsins í 21.mars í Kaplakrika sem við hvetjum alla til að tryggja sér miða á. Miðasala fer fram í gegnum abler
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
Thu, 12 Mar 2026 - 49min - 449 - Gullkastið – Dalglish
Gullkastið var tekið upp í Smárabíó að þessu sinni þar sem Liverpool klúbburinn var með viðhafnarsýning á heimildarmynd um King Kenny Dalglish sem er 75 ára í dag. Björg Arna mætti í byrjun þáttar og kynnti einni árshátíð Liverpool klúbbsins í 21.mars í Kaplakrika sem við hvetjum alla til að tryggja sér miða á. Miðasala fer fram í gegnum abler
Liverpool spilaði tvo leiki í vikunni, flottur 5-2 sigur á West Ham og allt í blóma en svo algjört skiptsbrot í gærkvöldi gegn Wolves sem var svolítið tímabilið í hnotskurn.
Bikar og Meistaradeild framundan í næstu viku
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
Wed, 04 Mar 2026 - 47min - 448 - Gullkastið – Liverpool fór með öll stigin frá Skíriskógi
Fógetinn í Nottingham var vondi kallinn í Hróa Hetti og það á svo sannarlega líka við um vægast sagt skrautlegan fógeta Nottingham Forrest liðsins og því sérstæklega sætt að sækja öll þrjú stigin þangað á eins ógeðslegan hátt og mögulegt var. Frammistaða Liverpool var vægast sagt áhyggjuefni en tvö flautumörk dugðu til að breyta allri umfjöllun um leikinn til hins betra. Risastór þrjú stig í baráttunni um Meistaradeildarsæti sem er ekki eins dökk og fyrir nokkrum dögum.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
Mon, 23 Feb 2026 - 58min - 447 - Gullkastið – Jákvæð vika
Liverpool var mun líkara liðinu sem við þekkjum í síðustu viku, tveir sigrar, ekkert mark fengið á sig og leikjaprógram framundan þar sem krafan er áframhald af þessum frammistöðum.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
Wed, 18 Feb 2026 - 57min - 446 - Gullkastið – Toxic Tap
Það fellur gjörsamlega ekkert með Liverpool þessa dagana og sæti í Meistaradeild á næsta ári að verða ólíklegra með hverri umferð. Hópurinn er orðin verulega þunnur í ofanálag og það lagaðist ekki fyrir leikina í þessari viku.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
Mon, 09 Feb 2026 - 1h 01min - 445 - Gullkastið – Leikmannaglugganum Lokað
Tveir góðir sigrar á Anfield þar sem Liverpool skoraði samanlagt 10 mörk gegn 1. Nauðsynleg þrjú stig í deildinni og 3.sæti tryggt í Meistaradeildinni og situr Liverpool því hjá í næstu umferð. Öguverk liðið var á sínum stað og um næstu helgi mætir Man City á Anfield.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Mon, 02 Feb 2026 - 50min - 444 - Gullkastið - Endurkoma til Einskis
Liverpool tapaði stigum í fimmta skipti á þessu tímabili eftir að hafa fengið á sig mark í uppbótartíma. Hugarfarið virðist vera í molum hjá liðinu og gjörsamlega ekkert fellur með Liverpool í ár. Bournemouth sem hafði unnið einn leik af síðustu 14 tók öll þrjú stigin og niðurstaðan engin sigur það sem af er þessu ári og ekki var staðan beint glæsileg fyrir áramót. Hvar liggur vandinn og hvað gerir Liverpool síðustu daga þessa leikmannaglugga?
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn, Maggi og Ingimar
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Mon, 26 Jan 2026 - 54min - 443 - Gullkastið – Eru batamerki á Liverpool liðinu?
Flottur sigur í Marseille í gærkvöldi og nokkuð góð staða í Meistaradeildinni fyrir lokaumferðina. Hinsvegar afleit úrslit í annars frábærri Kop.is ferð á Anfield þar sem Burnley náði í verulega pirrandi stig. Stigasöfnun í deildinni undanfarið klárlega töluvert áhyggjuefni en viss batamerki á liðinu inn á milli. Leikjaprógrammið framundan er töluvert þyngra á pappír, hentar það Liverpool?
Bournemouth á útivellli er næsta verkefni seinnipartinn á laugardaginn.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Delottie / Ögurverk ehf
Thu, 22 Jan 2026 - 51min - 442 - Gullkastið – Engar Fréttir Af Leikmannamarkaðnum
Þjálfaramarkaðurinn er öllu líflegri þessa dagana en leikmannamarkaðurinn þó hvorugur hafi mikið með Liverpool að gera. Ágætt jafntefli í London og sigur í bikarnum afrakstur síðustu viku og framundan er Kop.is ferð á Liverpool – Burnley á Anfield.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Delottie / Ögurverk ehf
Tue, 13 Jan 2026 - 55min - 441 - Gullkastið – Skemmtanagildið Vandamál
Fyrir utan ákaflega ósannfærandi stigasöfnun undanfarið er eitt helsta vandamál Arne Slot þessa dagana hvaða leikur Liverpool liðsins er hrútleiðinlegur. Það er ekkert hugrekki í leik liðsins, leikplanið virðist meira snúast um að tapa ekki frekar en að vinna og flest öll tölfræði sem við tengjum við leik Liverpool er orðin áhyggjuefni.
Liverpool gerði fyrsta 0-0 jafnteflið sitt í tæplega tvö ár gegn Leeds á Anfeild og afrekaði þar með að fara í gegnum báða leikina gegn nýliðum Leeds án þess að vinna. Klárlega einn leiðinlegasti Liverpool leikur í seinni tíð. Því var fylgt eftir með örlítið betri spilamennsku gegn vængbrotnu liði Fulham sem á endanum skilaði sömu niðurstöðu. Fjórða skipti í vetur sem Liverpool fær á sig mark í uppbótartíma og tapar stigum fyrir vikið. Hufarfars skrísmli eru okkar menn alls ekki þessa dagana.
Það voru heldur betur vendingar hjá United og Chelsea sem bæði ráku stjórann í þessari viku en þetta eru helstu keppinautar Liverpool í vetur eins slæmt og það nú er. Áhugavert að skoða hvaða stjórar koma helst til greina hjá þessum liðum.
Leikmannamarkaðurinn er opinn en helstu fréttir þessa dagana eru að flestir þeir leikmenn sem við vorum að vonast til að Liverpool myndu klára í janúar eru á leiðinni til Man City. Ekkert staðfest ennþá samt.
Næstu verkefni eru svo Arsenal á útivelli á fimmtudaginn og svo bikarleikur gegn Barnsley strax eftir helgi. Það eru ekki alltaf jólin og þau eru svo sannarlega búin núna.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Delottie / Ögurverk ehf /
Mon, 05 Jan 2026 - 1h 16min - 440 - Gullkastið – Horft Um Öxl og Áfram Veginn
Lokaþáttur ársins og þáttur númer 550 af Gullkastinu, geri aðrir betur. Hlóðum í uppgjör á afar sveiflukenndu og áhugaverðu ári og spáðum aðeins í spilin fyrir nýtt ár. Þrjú stig á Anfield gegn botnliði Wolves og tveir deildarleikir framundan í þessari viku, Leeds á nýársdag og Fulham úti á sunnudaginn. Ögurverks liðið var klárað og Fagmaðurinn í boði Deloitte að sjálfsögðu á sínum stað.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Delottie / Ögurverk ehf / Happatreyjur.is
Mon, 29 Dec 2025 - 1h 15min - 439 - Gullkastið – Blóðug Rauð Jól
Sigur á Spurs í London í lokaleiknum fyrir Jól þannig að jólin verða sannarlega rauð en blóðugur var hann blessaður leikurinn. Spáum í því helsta í slúðrinu enda ljóst að Liverpool bara verður eitthvað að láta til sín taka í janúarglugganum. Úlfarnir mæta svo á Anfield milli jóla og nýárs, reynum að púsla saman Liverpool liði í þeim leik.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Delottie / Ögurverk ehf / Happatreyjur.is
Mon, 22 Dec 2025 - 56min - 438 - Gullkastið - Er það versta afstaðið?
Staðan innan sem utan vallar hefur heldur betur lagast frá því í síðustu viku. Tveir góðir sigurleikir og framtíð Salah hjá Liverpool er kannski ekki eins neikvæð og hún leit út fyrir að vera. Spáum í leiki vikunnar og næsta verkefni. Eins spáum við í spilin fyrir janúargluggan og hvaða möguleika Liverpool á þar.
Dregið var út vinningshafa í gjafaleik a Happatreyjur.is og Ögurverk liðið var á sínum stað.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Delottie / Ögurverk ehf / Happatreyjur.is
Wed, 17 Dec 2025 - 57min - 437 - Gullkastið – Salah að kveðja?
Mo Salah tók því heldur betur ekki þegjandi að vera settur á bekkinn í heila viku og í kjölfarið á eldfimu viðtali eftir leik helgarinnar er raunverulegur möguleiki á að hann hafi nú þegar spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool. Svo innilega alls ekki það sem félagið vantaði ofan á allt annað akkúrat núna.
Uppreisn Salah gæti mögulega tekið aðeins hitann af Arne Slot því félagið virðist enn sem komið er ætla að halda tryggð við Slot og spurning hvernig skilaboð það væri til lengri tíma að reka stjórann til að friða súperstjörnu.
Fjarvera Salah í útileik gegn Inter Milan einfaldar verkefnið alls ekki og hópurinn orðin ansi þunnur. Endilega rennið yfir frábæra upphitun Ívars fyrir leikinn annað kvöld gegn Inter
Eins og við ræddum í þættinum stendur til að vera með gjafaleik í samstarfi við Happatreyjur.is. Við setjum færslu inn í fyrramálið um þann leik sem og á facebook.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni út
Mon, 08 Dec 2025 - 56min - 436 - Gullkastið – Jafntefli er tap með betra orðspor
Þrír leikir á rúmlega viku sem skiluðu öðru hræðilegu tapi á Anfield, fyrsta úti sigrinum í 77 daga og svo ákaflega ósannfærandi jafntefli gegn nýliðum Sunderland á Anfield þar sem á köflum var erfitt að greina hvort liðið væri á heimavelli. Spilamennska Liverpool liðsins er lítið sem ekkert að batna og frekar en trúin á verkefnið, hvorki innan sem utan vallar.
Arne Slot er næst líklegastur allra stjóra í deildinni til að verða rekinn næst, aðeins Daniel Farke er líklegri og þeir mætast einmitt um helgina
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti og bjóðum Happatreyjur velkomna til leiks á ný en þeir verða með okkur núna út árið, Happatreyjur.is er alveg tilvalin jólagjöf.
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Delottie / Ögurverk ehf
Thu, 04 Dec 2025 - 59min - 435 - Gullkastið - Viðspyrnan er best frá botninum...
Það gengur gjörsamlega ekkert upp hjá Liverpool þessa dagana, liðið er rosalega brothætt og andlaust og ljóst eftir helgina að breytinga er þörf, bara spurning í hvaða formi þær verða.
Félagið okkar var ekkert að vinna með okkur á Kop.is sem fórum í annars frábæra Verdi Travel hópferð til Englands, kudos á alla þá miklu meistara sem fóru með okkur til borgarinnar góðu. Það eru ekki alltaf jólin í þessu, en þau eru blessunarlega í næsta mánuði.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti og bjóðum Happatreyjur velkomna til leiks á ný en þeir verða með okkur núna út árið, Happatreyjur.is er alveg tilvalin jólagjöf.
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Delottie / Ögurverk ehf
Tue, 25 Nov 2025 - 53min - 434 - Gullkastið – Forest um helgina
Liverpool mætir Nottingham Forest um helgina eftir langt landsleikjahlé og Kop.is verður á leiknum með stórgóðan hóp. Leikmannaslúður, vangaveltur um sumargluggann og nýtt Ögurverk lið einnig á dagskrá.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti og bjóðum Happatreyjur velkomna til leiks á ný en þeir verða með okkur núna út árið, Happatreyjur.is er alveg tilvalin jólagjöf.
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Delottie / Ögurverk ehf
Wed, 19 Nov 2025 - 1h 01min - 433 - Gullkastið – Believers í Doubters aftur
Liverpool voru ekki lengi að henda öllu því jákvæða frá vikunni á undan út um gluggann á Etihad með einni linustu frammistöðu tímabilsins og er þá nú töluvert mikið sagt. Það féll sannarlega ekkert með Liverpool í þessum leik og niðurstaðan því stærsta tap Arne Slot sem stjóri Liverpool. Hann er heldur betur að slá flest sín met hvað slæma tölfræði varðar þessa dagana því miður. Hjálpaði sannarlega ekki á Etihad að öll vafaatriði og "vafaatriði" féllu með aðeins öðru liðinu en það afsakar lítið heildar frammistöðu liðsins.
Mjög langt landsleikjahlé framundan núna og svo áhugavert leikjaprógramm fram að jólum sem ætti að gefa Liverpool tækifæri til að sýna okkur eitthvað betra en við höfum séð hingað til.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og Sveinn Waage
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Delottie / Ögurverk ehf
Mon, 10 Nov 2025 - 55min - 432 - Gullkastið - Hið Raunverulega LiverpoolWed, 05 Nov 2025 - 1h 02min
- 431 - Gullkastið – Klárar Slot Tímabilið?
Klárar Slot tímabilið sem stjóri Liverpool? Spurning sem við bjuggumst ekki við að þurfa að velta upp sl. sumar. Hlutirnir eru fljótir að breytast í fótbolta og Liverpool þarf sannarlega alvöru viðsnúning og það strax. Ömurlegt tap gegn Brentford strikaði alveg út góðan sigur á Frankfurt í miðri viku.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Delottie / Ögurverk ehf
Mon, 27 Oct 2025 - 45min - 430 - Gullkastið – Hvert er leikplan Liverpool?
Fjórða tapið í röð og núna óboðlegt tap á heimavelli gegn United. Slot er fyrir vikið kominn undir pressu sem enginn stjóri Liverpool hefur verið í áratug núna. Hann þarf að finna gáfulegri lausnir og liðið þarf að finna betra svar í þessari viku gegn Frankfurt og Brentford.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
Mon, 20 Oct 2025 - 54min - 429 - Gullkastið – Man Utd á Anfield um helgina
Liverpool tapaði þremur leikjum í röð fyrir landsleikjahlé, þar af tveimur deildarleikjum sem töpuðust á marki í uppbótartíma. Það má því léttilega færa rök fyrir því að þetta landsleikjahlé er búið að vera þrjá mánuði að líða en er nú blessunarlega að renna sitt skeið. Alvöru verkefni strax á sunnudaginn þegar Amorim mætir á Anfield með Man United. Liverpool er eitt af örfáum liðum sem ekki hefur enn unnið United undir hans stjórn og því þarf að breyta.
Spáum í leik helgarinnar, gefum leikmannahópnum einkunn fyrir tímabilið so far, Ögurverk liðið er á sínum tíma og eins spáum víð í þeim tímamótum að FSG er búið að eiga félagið í 15 ár í dag.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Delottie / Ögurverk ehf
Wed, 15 Oct 2025 - 1h 01min - 428 - Gullkastið – Hveitibrauðsdagar Slot Á Enda
Enn ein ósannfærandi spilamennskan hjá Liverpool, þriðji tapleikurinn í röð og annað skipti á rúmlega viku sem Liverpool tapar á flautumarki á útivelli í London. Hveitibrauðsdagarnir eru á enda hjá Arne Slot og stuðningsmenn réttilega farnir að spyrja þyngri spurninga en hingað til.
Liverpool fer inn í landsleikjahlé með þrjá tapleiki í röð á bakinu en það sem verra er þá hefur liðið ekki ennþá spilað sannfærandi 90 mínútur í neinum leik það sem af er þessu tímabili.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
Tue, 07 Oct 2025 - 55min - 427 - Gullkastið - Pre-Season Power RankingWed, 24 Jul 2019 - 53min
- 426 - Gullkastið - Húkkaraballið byrjað í boltanum
Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: Maggi og SSteinn
Æfingatímabilið er farið að stað og spurning hvort við lærðum eitthvað í fyrstu tveimur æfingaleikjunum? Coutinho hefur verið fyrirferðarmikill í slúðrinu í vikunni, er líklegt að Liverpool kaupi hann og viljum við hann yfirhöfuð? Hvað eru hin liðin að gera í sumar og hvaða væntingar geta þau haft til næsta tímabils? Veltum þessum spurningum og fleiri fyrir okkur í framlengdum Gullkastþætti.
Thu, 18 Jul 2019 - 1h 33min - 425 - Gullkastið - Hvar og hvernig er hægt að styrkja liðið?
Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: Maggi og SSteinn
Greindum Liverpool liðið stöðu fyrir stöðu til að reyna finna út hvar og hvernig væri hægt að styrkja Liverpool liðið með hliðsjón af misalvarlegum orðrómum tengdum félaginu það sem af er sumri. Tókum einnig aðrar fréttir úr enska boltanum og horfðum til fyrstu umferðar í ágúst.
Thu, 27 Jun 2019 - 1h 31min - 424 - Gullkastið - Þjálfaraklám!Wed, 12 Jun 2019 - 1h 26min
- 423 - Gullkastið: EVRÓPUMEISTARAR
Það mun taka einhverja daga að melta þennan geggjaða sigur í Meistaradeildinni. Leiðin hefur verið svo mikið lengri en bara þetta tímabil. Bara við hæfi að Liverpool færi til Madríd og næði í helvítis bikarinn sem við áttum svo skilið í fyrra.
Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: SSteinn, Maggi, Maggi Beardsley, Daníel, Ingimar og Óli Haukur
Mon, 03 Jun 2019 - 1h 11min - 422 - Gullkastið - Forsætisráðherra á lokaorðið
Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Maggi og SSteinn
Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar er í Madríd annað kvöld, það er loksins komið að þessu. Til að reka endahnútinn í upphitun Kop.is fyrir þennan risaviðburð héldum við félagarnir í Stjórnarráðið á fund Forsætisráðherra sem er að sjálfsögðu stuðningsmaður Liverpool.
Fri, 31 May 2019 - 23min - 421 - Gullkastið - Lokaleikurinn!Tue, 28 May 2019 - 1h 07min
- 420 - Gullkastið - Lognið á undan storminum
Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Það eru ennþá heilir 11 dagar í veisluna í Mddríd sem verða góða 48 daga að líða. Fókusinn var því ekki á Madríd í þessum þætti heldur meira hvað sé næst hjá okkar mönnum á leikmannamarkaðnum. Eins snertum við aðeins á vandamálum Man City utanvallar, þrumuskitu UEFA þegar kemur að úrslitaleikjunum í báðum Evrópukeppnunum og enduðum á því að skoða aðeins Arsenal og Chelsea.
Tue, 21 May 2019 - 1h 07min - 419 - Gullkastið - Hatrið hefur sigraðThu, 16 May 2019 - 1h 03min
- 418 - Gullkastið - "We must turn from doubters to believers"
Vorum við að horfa á besta kvöld sem Anfield Road hefur séð? Ef að Liverpool klárar dæmið í Madríd verður þetta ekki spurning. Meira er ekki hægt að fara fram á frá þessu liði, ótrúlegir. Það var ekki hægt annað en að taka upp þátt strax eftir leik.
Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: Maggi og Istanbul-Steini
Tue, 07 May 2019 - 1h 02min - 417 - Gullkastið - Fari það í kolbölvað!Wed, 01 May 2019 - 1h 01min
- 416 - Gullkastið - Gamla skólanum lokað
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn, Maggi og Maggi Þórarins (Beardsley)
Stórundarleg vika þar sem flestir stuðningsmenn Liverpool halda meira með Man Utd en flestir stuðningsmenn djöflanna. Cardiff var afgreitt um helgina og Huddersfied bíður á föstudaginn og Barcelona í næstu viku. Það er allt galopið ennþá.
Tue, 23 Apr 2019 - 1h 06min - 415 - Gullkastið - Yfir til ykkar Man City
Stærstu hindruninni á pappír var rutt úr vegi um helgina og pressan færð yfir á Man City í bili. Barcelona bíður í undanúrslitum fyrir það lið sem vinnur einvígið annað kvöld og ljóst að Meistaradeildin verður engin aukabrúgrein áfram komist Liverpool þangað. Cardiff með alla sína Neil Warnock-a bíður svo næstu helgi. Þetta og mun fleira í þætti vikunnar en með okkur að þessu sinni var meistari Jón Þór stjórnarmaður í Liverpool klúbbnum. Hann sá um Berger og Smicer um daginn og er oftar á Anfield en SSteinn.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn, Maggi og Jón Þór Júlíusson stjórnarmaður í Liverpool klúbbnum.
Tue, 16 Apr 2019 - 1h 14min - 414 - Gullkastið - Mörk frá miðjunni!
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn, Maggi og Ívar Örn Reynis.
Miðjumenn Liverpool með fyrirliðann í fararbroddi sáu til þess að Árshátíðarhelgi Liverpool klúbbsins var stórvel heppnuð með Liverpool á toppnum. Liverpool nýtti svo gærdaginn í að útbúa nesti fyrir ferðalagið til Porto í næstu viku en áður en þeir fara þangað mætir óstöðugt og undarlegt lið Chelsea á Anfield.
Thu, 11 Apr 2019 - 1h 09min - 413 - Gullkastið - LOLrisTue, 02 Apr 2019 - 1h 14min
- 412 - Gullkastið - München
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn, Maggi og Áskell Heiðar Ásgeirsson
Mættir aftur heldur betur ferskir eftir góða ferð til München í síðustu viku, helst á dagskrá var auðvitað München og leikurinn gegn Bayern, torveldur sigur á Fulham og næstu mótherjar í Meistaradeildinni. Heiðar Bræðslustjóri kom með okkur út og var að sjálfsögðu líka með okkur í þætti vikunnar.
Wed, 20 Mar 2019 - 1h 09min - 411 - Gullkastið - Hatrið hafði betur
Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Liverpool gaf eftir toppsætið eftir ákaflega pirrandi 0-0 jafntefli á Goodison Park og ljóst að Man City ætlar ekkert að gefa eftir í þessum slag. Watford var tekið í kennslustund nokkrum dögum áður og vonandi gefur sá leikur meira fyrirheit um það sem koma skal hjá Liverpool á lokakaflanum en leikurinn um helgina. Næst er það Burnley og ferð til Munchen.
Thu, 07 Mar 2019 - 1h 01min - 410 - Gullkastið - Toppsætið endurheimt á Old Trafford
Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælandi: SSteinn, Maggi og Maggi Þórarins
Andi Mourinho sveif ennþá yfir Man Utd á Old Trafford um helgina í hrútleiðinlegum leik. Rétt eins og Bayern pakkaði United í vörn og komst allt of léttilega upp með það. Það var nóg annað að frétta í þessari viku, Kepa bjargaði deildarbikarnum, Rodgers er mættur aftur í Úrvalsdeildina og Tottenham tapaði stigum. Liverpool svo á tvo leiki framundan á mjög skömmum tíma.
Tue, 26 Feb 2019 - 1h 14min - 409 - Gullkastið - Þýska stálið sterkt
Stjórnandi: Einar
Viðmælendur: SSteinn og Maggi.
FC Bayern sýndi afhverju þeir eru langstærsta lið Þýskalands en um leið gaf upplegg þeirra á Anfield til kynna þá virðingu sem borin er fyrir Liverpool um þessar mundir. Þeim fækkar hratt liðunum sem þora að mæta á Anfield og leggja upp með að spila sinn leik. Næstu helgi er svo enn stærri leikur, stærsti leikur Liverpool og Man United í langan tíma.
00:00 – Intro – Berger og Smicer á Árshátíð Liverpoolklúbbsins 05:20 – Rimman gegn Bayern 37:50 – United umræða
Wed, 20 Feb 2019 - 1h 02min - 408 - Gullkastið - Aftur á sigurbrautTue, 12 Feb 2019 - 1h 10min
- 407 - Gullkastið - Bullandi mótvindurTue, 05 Feb 2019 - 1h 08min
- 406 - Gullkastið – RAFA BENITEZ
Stjórnandi: Einar Viðmælendur: SSteinn, Maggi og Skúli Brynjólfsson stuðningsmaður United (og bróðir Steina).
Ef að Ölgerðin hannaði fótboltakvöld þar sem Liverpool á ekki leik… Rafa Benitez gerði sér lítið fyrir og vann Manchester City fyrir okkur og það eftir að hafa lent undir. Skítt með leikmenn Newcastle, við skrifum þennan fullkomlega á okkar mann. Liverpool hefur ekki spilað leik síðan við tókum upp síðast og því tilvalið að taka hús á Man Utd enda mikið gengið á hjá þeim undanfarið og var sómadrengurinn Skúli Brynjólfsson (bróðir SSteins) með okkur sem fulltrúi þeirra fyrsta hálftímann. Newcastle, Man City, Leicester og West Ham fá öll sinn tíma í seinni hluta þáttarins.
Tue, 29 Jan 2019 - 1h 13min - 405 - Gullkastið - Skrautlegur sigur og Arsenal umræða
Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: SSteinn og Einar Guðna (Arsenal)
Crystal Palace gerði sitt allra besta til að eyðileggja partýið og þyrfti hin heilaga þrenning í framlínu Liverpool að bjarga félögum sínum í vörninni til að landa öllum þremur stigunum. Toppbaráttan er því áfram í algleymingi en baráttan um síðasta Meistaradeildarsætið er ennþá jafnari og vert að skoða betur á þessum tímapunkti. Einar Guðna stuðningsmaður Arsenal var með okkur að þessu sinni hress eftir góðan sigur í Lundúnaslag helgarinnar.
00:00 - 2013/14 style sigur á Crystal Palace
1:28- Egils Gull
28:45 - Einar Guðna um Arsenal
01:04:20 - Hvaða lið nær 4.sætinu
Thu, 24 Jan 2019 - 1h 20min - 404 - Gullkastið - Fyrsti sigur ársins
Brighton hefur verið það lið í vetur sem hvað erfiðast var að brjóta niður og því gott að taka öll sex stigin úr viðureignum liðanna. Hver/hvor verður stjóri United í ágúst? Roy Hodgson er með 1% betri árgangur hjá Palace en vanalega. Miðamál á Liverpool leikjum. Þetta er það helsta á dagskrá í þætti vikunnar.
Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: Maggi og SSteinn
Tue, 15 Jan 2019 - 1h 09min - 403 - Gullkastið - Hvar er Clean Sheet Klavan?Fri, 11 Jan 2019 - 1h 11min
- 402 - Gullkastið - Rock & RollWed, 02 Jan 2019 - 1h 12min
- 401 - Gullkastið - HálfleikurThu, 27 Dec 2018 - 1h 09min
- 400 - Gullkastið – Schadenfreude, jólin eru komin
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi, SSteinn og Hreimur Örn Heimisson
Vikan eftir sigur á Manchester United er sjálfkrafa góð og hvað þá United liði undir stjórn Mourinho sem er fullkomlega í upplausn. Vinur okkar Hreimur Örn Heimisson söngvari Made In Sveitin var á Anfield um helgina og mætti með stemminguna þaðan í þáttinn. Það eru ekki alltaf jólin en þau hófust svo sannarlega á sunnudaginn, veisla.
00:00 – Intro – Hreimur skoðaði Man City 06:20 – Sigur sem þjófstartar jólunum 40:00 – #JoseOut – hvað næst? 01:03:15 – FC Bayern í 16-liða úrslitum 01:14.20 – Hættulegir Úlfar
Tue, 18 Dec 2018 - 1h 25min - 399 - Gullkastið - Álíka þægilegt og að sk*** gaddavír
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi, SSteinn og Ingimar Bjarni
Liverpool fann mojo-ið aftur í þessari viku og tryggði sér farseðilinn í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar. Burnley og Bournemouth voru þar að auki afgreitt sannfærandi og því létt yfir mönnum. Það er svo risaslagur um næstu helgi og kominn tími á sigur gegn djöflunum. Ingimar Bjarni nýjasti meðlimur Kop.is var með okkur að þessu sinni.
00:00 – Hvað viljum við næst? 13:00 – Okkar Peter Schmeichel 19:40 – Þetta er alvöru Liverpool 27:30 – Team of Carraghers miðja 38:20 – Salah stimplar sig inn 43:00 – Meistarar í vor? 48:00 – Klopp vs Mourinho 58:10 – Sameiginlegt lið Liverpool og United 01:06:10 – Spá
Thu, 13 Dec 2018 - 1h 08min - 398 - Gullkastið - Aukaþáttur - Jói Kalli í spjalliWed, 05 Dec 2018 - 26min
- 397 - Gullkastið - D1V0CK ORIGI!
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi, SSteinn og Eyþór Guðjóns
Divock Origi maður, honum gleymum við ekki. Eyþór Guðjóns mætti aftur í podcast beint frá Liverpool og kom með stemminguna á Anfield beint í æð. PSG var ekki jafn mikið partý og það er tveir ólíkir útileikir framundan í þessari viku.
00:00 – Stemmingin á Anfield og spretturinn hjá Klopp 12:40 – 20 ár og frábær flautumörk 26:30 – Óvenju gott Everton lið 32:50 – Fabinho loksins að spila sig inn í liðið? 48:00 – PSG sami viðbjóður innanvallar og þeir eru utanvallar 56:20 – Dómarahorni – Versti dómari ársins 58:00 – Burnley og Bournemouth
Wed, 05 Dec 2018 - 1h 16min - 396 - Gullkastið - Innistæðulaus neikvæðni
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn
Jólatörnin hófst með góðum sigri á Watford og PSG og Everton eru næstu í rosalegri tíu leikja hrinu sem endar á Etihad strax eftir áramót.
00:00 – Toppbaráttan um helgina 10:00 – Þéttur sigur á Watford 24:30 – Van Dijk er besti leikmaður deildarinnar 34:20 – Samningar og sölur lykilmanna – King Michael Edwards 44:20 – Allt undir gegn PSG 58:50 – Gylfi Sig og félagar
Wed, 28 Nov 2018 - 1h 10min - 395 - Gullkastið - Steini Success
Næsti leikur er gegn Watford í London og af því tilefni fengum við meistara Róbert Haraldsson stuðningsmann Watford með okkur en hann er einn af þremur ættliðum sem verið hefur á mála hjá Watford og er ættaður þaðan. Fulhamleikurinn og ferð okkar þangað fékk sinn sess auðvitað ásamt öðru.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi, SSteinn og Róbert Haralds
Tue, 20 Nov 2018 - 1h 09min - 394 - Gullkastið - Ekkert léttöl - þungt í mönnum
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn
Ekki besta vika Liverpool undir stjórn Klopp svo mikið er víst. Líklega hefur liðið aldrei spilað eins illa og gegn Rauðu Stjörnunni og frammistaðan gegn Arsenal var ekki mikið betri, þó aðeins. Næsti leikur er tilvalin til að finna mojo-ið frá því í fyrra og byrja spila alvöru Klopp fótbolta. Kop.is verður á Anfield og öskrar liðið í gang.
Thu, 08 Nov 2018 - 1h 02min - 393 - Gullkastið (213) - Don't mention the WARnock
Rosaleg toppbarátta, auðveldir sigrar á Cardiff og Rauðu Stjörnunni, ótrúlegur Salah, Lallana í leikformi, dómarahornið, Iker Munain og upphitun fyrir Arsenal. Það var af nægu að taka í þætti vikunnar.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi, SSteinn og Maggi (Beardsley)
00:00 – Tappbaráttan 15:40 – Þolinmæði gegn Cardiff 27:10 – En andstæðingurinn lélegri en hversu góðir Liverpool eru? 31:00 – Salah einn okkar besti í sögunni? 35:30 – Lallana í engu leikformi default stillingin hans? 43:00 – Dómarahornið – Evrópa vs England 49:30 – Helstu fréttir vikunnar – Harmleikur í Leicester og Red Sox meistarar 54:20 – Frábær Fabinho 01:01:40 – Arsenal komið aftur?
Wed, 31 Oct 2018 - 1h 14min - 392 - Gullkastið - 212
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi, SSteinn og Guðlaugur Helgi Sigurjónsson
Enn eina vikuna fáum við ekki að sjá Liverpool spila af sama krafti og við fengum að sjá á síðasta tímabili en það eru skiptar skoðanir um hversu stórt vandamál það er. Aðalatriði er að liðið heldur áfram að vinna. Keflvíkingurinn Guðlaugur Helgi Sigurjónsson var með okkur að þessu sinni en ásamt því að ræða Huddersfield leikinn gerðum við upp fyrsta fjórðung tímabilsins og spáðum í spilin fyrir leikina í næstu viku.
00:00 – Of mikið af iðnaðarframmistöðum? 15:10 – Shaqiri á miðjunni 19:30 – Vafaatriðin með Liverpool? 23.00 – Sturridge spilaði 90.mín og Fake News að Van Dijk sé heill 35:30 – Uppgjör á fyrsta fjórðungi tímabilsins. 1:02:10 – Sérfræðingar í dýfingum og töfum
Wed, 24 Oct 2018 - 1h 08min - 391 - Gullkastið á Kop.is - 211
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi, SSteinn og Katrín Ómarsdóttir
Það er sannarlega ekki á hverjum degi sem við fáum fyrrum leikmann Liverpool á gestalistann hjá okkur og þáttur vikunnar því sannkallaður viðhafnarþáttur. Katrín Ómarsdóttir gerði auðvitað gott betur en það enda var hún partur af fyrsta meistaraliði kvennaliðs Liverpool í sögunni og fékk tvær gullmedalínur á þremur árum í borginni. Við fórum í Vesturbæinn og fengum Katrínu til að segja okkur aðeins frá tíma sínum hjá Liverpool, lífinu í borginni ásamt því auðvitað að skoða stöðu bæði karla og kvennaliðsins í dag.
Wed, 17 Oct 2018 - 59min - 390 - Gullkastið á Kop.is - 210
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn
Liverpool stendur jafnfætis Chelsea og Man City þrátt fyrir erfiðustu mögulegu byrjun og prógrammið frammundan er töluvert frábrugðið því sem nú var að enda. Samt hefur liðið ekki unnið neinn af síðustu fjórum leikjum og er langt frá því að vera fullkomið. Gerðum okkar besta til að greina þetta í þætti vikunnar.
00:00 – Erfiðasta byrjun Liverpool í Úrvalsdeildinni 14:50 – Upplegg Guardiola mikið hrós 28:50 – Kominn tími á þessar £110m af nýjum miðjumönnum 42.40 – Algjörlega hörmulegur Napoli leikur 57:00 – Jurgen Klopp veisla í þrjú ár.
Wed, 10 Oct 2018 - 1h 10min - 389 - Gullkastið á Kop.is - 209
Stjórnandi: Einar Matthías - Viðmælendur: Maggi og SSteinn
Rimma við Chelsea að baki og önnur eins vika framundan gegn Napoli og Man City. Þétt dagskrá og langur þáttur að þessu sinni. Alveg tveir Gull á mann en rétt er að biðjast fyrirfram afsöknuar á öllum bröndurum Steina í þættinum.
Kafli 1: 00:00 – Klopp vs Sarri - Kafli 2: 13:40 – Sturridge og Hazard áttu fyrirsagnirnar - Kafli 3: 32:20 – Dýrt að detta úr deildarbikar - Kafli 4: 38:20 – VAR dugar ekki til þegar Kevin Friend er að dæma - Kafli 5: 44:00 – Sterkasta miðja Liverpool? - Kafli 6: 58:50 – Harry Wilson á Old Trafford - Kafli 7: 01:06:30 – Napoli og Man City
Wed, 03 Oct 2018 - 1h 24min - 388 - Gullkastið á Kop.is - 208
Southmapton var ekki vandamál og Liverpool fer á fullri ferð í tvær viðureignir við Chelsea. Hin toppliðin eru á meðan í misjafnlega góður standi. Fórum yfir allt það helsta úr síðustu viku og höfðum Svenna Waage í banastuði með okkur. Hann fer að hafa hashtagið sitt í hástöfum bráðum #meistararívor.
Kafli 1: 00:00 – #meistararívor Kafli 2: 09:30 – Shaqiri stækkaði úr 1,54 í 1,63 Kafli 3: 19:40 – Matip spilaði eins og hann sé 1,95m á hæð. Kafli 4: 22:30 – Fækkar hratt músahjörtunum í liðinu Kafli 5: 27:00 – Besta Úrvalsdeildarlið Liverpool? Kafli 6: 34:20 – Alisson snarlagar varnartölfræði Kafli 7: 38:30 – Hvað er líklegast af United, Spurs og Arsenal? Kafli 6: 54:10 – Chelsea eru alvöru í vetur
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og Sveinn Waage
Tue, 25 Sep 2018 - 1h 09min - 387 - Gullkastið á Kop.is - 207
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn sem var staddur í anddyrinu á hóteli á Spáni með tilheyrandi stemmingu frá hótelbarnum skammt frá.
Kafli 1: 00:00 – Engin evrópuþynnka eftir Kiev Kafli 2: 07:30 – Tottenham og PSG óvanalega léleg? Kafli 3: 15:20 – Rangstöðureglan og önnur vafaatriði Kafli 4: 23:30 – Aukin samkeppni eins og vítamín fyrir miðjuna Kafli 5: 39:40 – Er Salah áhyggjuefni? Kafli 6: 45:10 – Endurkoma Sturridge hápunktur vikunnar Kafli 7: 48:30 – Ein besta varnarlína í heimsfótboltanum? Kafli 6: 56:50 – Southampton um næstu helgi
Thu, 20 Sep 2018 - 1h 07min - 386 - Gullkastið í boði Egils GullTue, 11 Sep 2018 - 1h 01min
- 385 - Gullkastið 205Thu, 06 Sep 2018 - 1h 00min
- 384 - Kopcast 204Sun, 26 Aug 2018 - 47min
- 383 - Kopcast 203Wed, 22 Aug 2018 - 1h 09min
- 382 - Kopcast 202Wed, 15 Aug 2018 - 1h 10min
- 381 - Kopcast 201Wed, 08 Aug 2018 - 1h 27min
Podcasts similar to Gullkastið
Barangay Love Stories Barangay LS 97.1 Manila | GMA Network Inc.
Good Bad Billionaire BBC World Service
Cyprian Majcher Cyprian Majcher
Die Nachrichten Deutschlandfunk
Orlofið Hafdís Arna Sigurðardóttir og Jasmín Guðrún Abu Libdeh
Podcast Wojenne Historie Historia II wojny światowej
Forensic Files HLN
Nowenna pompejańska. Świadectwa https://pompejanska.krolowa.pl/
الشيخ أحمد العجمي islami
True Crime Documentary Justin Kandell Network
WojewódzkiKędzierski Kuba Wojewódzki, Piotr Kędzierski
Læknavarpið Læknablaðið
بودكاست عقلية Moneim
Snapped: Women Who Murder Oxygen
DUDEK o polityce prof. Antoni Dudek i Super Exspress
Przemek Górczyk Podcast Przemek Górczyk
Sceny zbrodni RMF FM
Frjálsar hendur RÚV
Í ljósi sögunnar RÚV
Skuggavaldið skuggavaldid
Money News Tapt Media
Nauka To Lubię Tomasz Rożek
Żurnalista - Rozmowy bez kompromisów zurnalistapl
العلم والإيمان - د. مصطفى محمود علم ينتفع يه
Dr. Football Podcast Hjörvar Hafliðason
Steve Dagskrá Steve Dagskrá
Sjöan Sjöan
Fotbolti.net Fotbolti.net
Seinni níu Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson
Pitturinn Pitturinn
Handkastið Handkastið
Besta sætið bestasaetid
Út að hlaupa Marteinn Urbancic og Þorsteinn Roy Jóhannsson
Einn Tveir Gula Spjaldið
Þungavigtin Tal
The Athletic FC Podcast The Athletic
Karfan Karfan
The Bill Simmons Podcast The Ringer
Draumaliðið Jói Skúli
Last Word On Spurs Last Word On Spurs
Real Survival Stories NOISER
Football Weekly The Guardian
High Performance Racing High Performance
The Rest Is Football Goalhanger
