Podcasts by Category

Hlaðvarp Myntkaupa

Hlaðvarp Myntkaupa

Myntkaup

Hlaðvarp Myntkaupa er nýtt hlaðvarp sem fjallar um allt tengt bitcoin og hvað er að gerast í hinum síbreytilega heimi rafmynta. Við fáum til okkar góða gesti og fjöllum um málefni sem tengjast rafmyntum. Myntkaup er vinsælasti staðurinn fyrir Íslendinga til að stunda viðskipti með Bitcoin og aðrar rafmyntir. Rúmlega 4% Íslendinga nota Myntkaup til þess að kaupa og selja bitcoin. Þú finnur okkur á myntkaup.is eða með því að sækja Myntkaup appið í App Store eða Google Play store.

125 - Clarity frumvarpinu hafnað, stýrivextir hækkaðir í USA - Bitcoin segir "og hvað með það?"
0:00 / 0:00
1x
  • 125 - Clarity frumvarpinu hafnað, stýrivextir hækkaðir í USA - Bitcoin segir "og hvað með það?"

    Síðastliðinn þriðjudag voru greidd atkvæði um framgang Clarity frumvarpsins í Öldungardeildinni, þ.e. hvort það yrði tekið í efnislega meðferð og færi síðan í atkvæðagreiðslu um hvort það yrði að lögum. Frumvarpið þurfti 60 atkvæði en fékk aðeins 49. Í vikunni hækkuðu stýrivextir í USA einnig um 25 punkta og eru nú 3,75-4%. Einnig frestuðust samningaviðræður í Óman vegna Hormússundsins, en markaðurinn hafði bundið vonir við að lausn væri í sjónmáli. Hins vegar tilkynnti SEC afgerandi undanþágur til fimm ára fyrir crypto iðnaðinn vegna táknvæddra verðbréfa og ekki er annað að sjá en að markaðurinn hafi litið það svo jákvæðum augum að allt sem á undan var nefnt hafi verið léttvægt fundið af fjárfestum.

    Sat, 19 Sep 2026 - 1h 00min
  • 124 - Nýjar verðbólgutölur í USA - Er samkomulag um Hormússund í nánd?

    Síðustu verðbólgutölur í Bandaríkjunum voru birtar föstudaginn, 11. september síðastliðinn. Þær voru nokkurn veginn í samræmi við væntingar, en þó ögn verri má segja. Rökrétt hefði því verið að ætla að markaðir myndu lækka örlítið en þvert á móti þá urðu talsverðar hækkanir á sama tíma. Skýrist það af því að samhliða birtingu á verðbólgutölum bárust fréttir um að fundað yrði í Óman um mögulegt samkomulag gagnvart Hormússundi. Ekkert er þó í hendi enn. Þá var fjallað um hinar ýmsu fréttir vikunnar, þar á meðal 100 milljón dollara fjárfestingu Nasdaq í Kraken, nýjustu jarmmynt Hunter Biden, Laptop, og margt fleira.

    Sat, 12 Sep 2026 - 51min
  • 123 - Sterkar atvinnutölur í USA slá BTC niður fyrir 80k

    Í gær bárust tölur frá Bandaríkjunum sem sýndu fram á að störfum þar í landi hefði fjölgað umtalsvert meira en spár gerðu ráð fyrir. Fyrir vikið hafa líkur á hækkun stýrivaxta aukist töluvert og rafmyntamarkaðurinn seig nokkuð niður eftir gott gengi vikunnar. Innflæði í kauphallarsjóði helstu rafmynta var mjög sterkt í vikunni og svo virðist sem sífellt fleiri bankar og hefðbundin fjármálafyrirtæki séu í auknum mæli að vinna að stórum verkefnum á sviði bálkakeðjutækninnar.

    Sat, 05 Sep 2026 - 54min
  • 122 - Innflæði BTC kauphallarsjóða nálgast þrjá milljarða USD í ágúst

    Í vikunni sem var að líða var minna um fréttir, en rafmyntamarkaðurinn hélt áfram góðri siglingu. Solana náði rétt tæpum 110$, ETH fór yfir 2500$ og BTC hefur sveiflast yfir og undir 80.000$. Þá hefur innflæði í rafmyntakauphallarsjóði verið með því mesta á árinu hingað til. Kevin Warsh, seðlabankastjóri USA, flutti árlega ræðu sína í Jackson Hole á sama tíma og hlaðvarpið var tekið upp og verður efni hennar gert skil í næsta þætti.

    Sat, 29 Aug 2026 - 1h 01min
  • 121 - Nautin vakna til lífsins - BTC hótar 80k

    Í þessum þætti er rætt um atburðarás vikunnar sem leiddi til gífurlegra hækkana á öllum helstu rafmyntum. BTC fór næstum í 80.000$, en ETH fór í stutta stund yfir 2.500$ og Solana snerti 100$. Margir samverkandi þættir búa að baki, en allt byrjaði á því að fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna tilkynnti um aukin endurkaup á eigin ríkisskuldabréfum. Þá var einnig mikið innflæði í kauphallarsjóði, Trump var stóryrtur á blaðamannafundi um crypto, ásamt öðru.

    Sat, 22 Aug 2026 - 47min
Show More Episodes