Nach Genre filtern
Hlaðvarp Myntkaupa er nýtt hlaðvarp sem fjallar um allt tengt bitcoin og hvað er að gerast í hinum síbreytilega heimi rafmynta. Við fáum til okkar góða gesti og fjöllum um málefni sem tengjast rafmyntum. Myntkaup er vinsælasti staðurinn fyrir Íslendinga til að stunda viðskipti með Bitcoin og aðrar rafmyntir. Rúmlega 4% Íslendinga nota Myntkaup til þess að kaupa og selja bitcoin. Þú finnur okkur á myntkaup.is eða með því að sækja Myntkaup appið í App Store eða Google Play store.
- 125 - Clarity frumvarpinu hafnað, stýrivextir hækkaðir í USA - Bitcoin segir "og hvað með það?"
Síðastliðinn þriðjudag voru greidd atkvæði um framgang Clarity frumvarpsins í Öldungardeildinni, þ.e. hvort það yrði tekið í efnislega meðferð og færi síðan í atkvæðagreiðslu um hvort það yrði að lögum. Frumvarpið þurfti 60 atkvæði en fékk aðeins 49. Í vikunni hækkuðu stýrivextir í USA einnig um 25 punkta og eru nú 3,75-4%. Einnig frestuðust samningaviðræður í Óman vegna Hormússundsins, en markaðurinn hafði bundið vonir við að lausn væri í sjónmáli. Hins vegar tilkynnti SEC afgerandi undanþágur til fimm ára fyrir crypto iðnaðinn vegna táknvæddra verðbréfa og ekki er annað að sjá en að markaðurinn hafi litið það svo jákvæðum augum að allt sem á undan var nefnt hafi verið léttvægt fundið af fjárfestum.
Sat, 19 Sep 2026 - 1h 00min - 124 - Nýjar verðbólgutölur í USA - Er samkomulag um Hormússund í nánd?
Síðustu verðbólgutölur í Bandaríkjunum voru birtar föstudaginn, 11. september síðastliðinn. Þær voru nokkurn veginn í samræmi við væntingar, en þó ögn verri má segja. Rökrétt hefði því verið að ætla að markaðir myndu lækka örlítið en þvert á móti þá urðu talsverðar hækkanir á sama tíma. Skýrist það af því að samhliða birtingu á verðbólgutölum bárust fréttir um að fundað yrði í Óman um mögulegt samkomulag gagnvart Hormússundi. Ekkert er þó í hendi enn. Þá var fjallað um hinar ýmsu fréttir vikunnar, þar á meðal 100 milljón dollara fjárfestingu Nasdaq í Kraken, nýjustu jarmmynt Hunter Biden, Laptop, og margt fleira.
Sat, 12 Sep 2026 - 51min - 123 - Sterkar atvinnutölur í USA slá BTC niður fyrir 80k
Í gær bárust tölur frá Bandaríkjunum sem sýndu fram á að störfum þar í landi hefði fjölgað umtalsvert meira en spár gerðu ráð fyrir. Fyrir vikið hafa líkur á hækkun stýrivaxta aukist töluvert og rafmyntamarkaðurinn seig nokkuð niður eftir gott gengi vikunnar. Innflæði í kauphallarsjóði helstu rafmynta var mjög sterkt í vikunni og svo virðist sem sífellt fleiri bankar og hefðbundin fjármálafyrirtæki séu í auknum mæli að vinna að stórum verkefnum á sviði bálkakeðjutækninnar.
Sat, 05 Sep 2026 - 54min - 122 - Innflæði BTC kauphallarsjóða nálgast þrjá milljarða USD í ágúst
Í vikunni sem var að líða var minna um fréttir, en rafmyntamarkaðurinn hélt áfram góðri siglingu. Solana náði rétt tæpum 110$, ETH fór yfir 2500$ og BTC hefur sveiflast yfir og undir 80.000$. Þá hefur innflæði í rafmyntakauphallarsjóði verið með því mesta á árinu hingað til. Kevin Warsh, seðlabankastjóri USA, flutti árlega ræðu sína í Jackson Hole á sama tíma og hlaðvarpið var tekið upp og verður efni hennar gert skil í næsta þætti.
Sat, 29 Aug 2026 - 1h 01min - 121 - Nautin vakna til lífsins - BTC hótar 80k
Í þessum þætti er rætt um atburðarás vikunnar sem leiddi til gífurlegra hækkana á öllum helstu rafmyntum. BTC fór næstum í 80.000$, en ETH fór í stutta stund yfir 2.500$ og Solana snerti 100$. Margir samverkandi þættir búa að baki, en allt byrjaði á því að fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna tilkynnti um aukin endurkaup á eigin ríkisskuldabréfum. Þá var einnig mikið innflæði í kauphallarsjóði, Trump var stóryrtur á blaðamannafundi um crypto, ásamt öðru.
Sat, 22 Aug 2026 - 47min - 120 - Verðbólga í USA sýnir merki um hjöðnun - Mikið útflæði úr kauphallarsjóðum í vikunni
Í þessum þætti er farið yfir nýjustu verðbólgutölur í USA, hvernig þær stóðust væntingar og hvaða áhrif þær virðast hafa á markaðinn. Þá er farið yfir uppfærða stöðu Clarity frumvarpsins, en það verður að teljast á brattann að sækja að ætla að ná að gera það að lögum á þessu ári. Þá er einnig fjallað talsvert um öryggismál og samspil þeirra við gervigreind. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Sat, 15 Aug 2026 - 1h 00min - 119 - Clarity frumvarpið verður líklega ekki að lögum í ár
Innflæði hefur einkennt síðustu daga hjá kauphallarsjóðunum. Þeir félagar taka aftur fyrir Coldcard hakkið og gera því betur skil. Sömuleiðis er rætt um stöðu Clarity frumvarpsins hjá öldungardeildinni en allt lítur út fyrir að það verði ekki að lögum í ár. Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, vitnaði í Satoshi þegar hann tjáði sig um mikilvægi þess að Bandaríkin myndu taka af skarið og leiða crypto markaðinn. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Sat, 08 Aug 2026 - 52min - 118 - Hræðsla brýst út vegna öryggisbrests hjá Coldcard
Í vikunni bárust fréttir af því að um 38m USD virði af BTC hefði verið stolið af köldu veskjunum Coldcard vegna öryggisbrests hjá framleiðandanum. Mikil hræðsla brast út í kjölfarið og í kjölfarið vaknar spurningin: Hvernig geymir maður rafmyntir sínar með öruggum hætti? Í öðrum fréttum má nefna að Seðlabankinn í Bandaríkjunum ákvað að halda stýrivöxtum óbreyttum þar í landi í 3,5-3,75%. Þá hafa áhyggjur aukist af svokölluðum DAT fyrirtækjum, sem ganga út á það að kaupa BTC og hafa á efnahagsreikningi sínum, en fjölmörg þeirra hafa neyðst til að selja BTC til þess að geta staðið við skuldbindingar sínar. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Sat, 01 Aug 2026 - 55min - 117 - Magnús Karl ræðir Nassim Taleb og ritverk hans
Í þessum þætti mætir Magnús Karl Ásmundsson, hagfræðingur, í annað sinn í stúdíóið. Viðfangsefni þáttarins er fjárfestirinn og tölfræðingurinn Nassim Taleb, sem hefur gefið út fjölda ritverka sem miða að því að efla lesendur í ákvarðanatökum á mörkuðum. Taleb skrifaði formálann í The Bitcoin Standard en svo virðist sem undanfarin ár hafi hann misst trú á Bitcoin. Fjallað er um fjórar af hans helstu bókum og þær settar í samhengi við rafmyntamarkaðinn.
Sat, 25 Jul 2026 - 1h 11min - 116 - Góðar verðbólgutölur í USA gefa Bitcoin byr í seglin
Vikan hófst á mjög góðum verðbólgutölum í USA og markaðir tóku við sér. Segja má að það sem hafi fylgt á eftir hafi þó dempað viðbrögðin talsvert, en Kevin Warsh, seðlabankastjóri í USA, sagði að of snemmt væri að tala um fullnægjandi grundvöll fyrir vaxtalækkanir. Þá hefur versnandi ástand í átökum Bandaríkjanna og Írans leitt til áhyggna af því að olíuverð hækki á ný sem gæti hleypt verðbólgunni aftur upp. Áfram heldur jákvæð þróun við að færa raunheimaeignir á bálkakeðjur. Citadel Securities fjárfestir í einu stærsta cryptofyrirtæki heims. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Sat, 18 Jul 2026 - 1h 03min - 115 - Óvissuástand skapast á ný milli Írans og USA - Bitcoin reynir að halda sér yfir 60k
Í þessum þætti ræða þeir félagar um það helsta sem gerst hefur frá því að þeir spjölluðu saman síðast. Er vopnahléi lokið milli USA og Írans? Það virtist mega lesa út úr orðum forseta Bandaríkjanna, en málið er kannski ekki svo einfalt eins og fjallað er um í þættinum. Áfram halda vandræði Saylor og Strategy, en Strategy seldi rúmlega 3500 BTC í tapi. Þá vakti umfjöllun Viðskiptablaðsins athygli Kjartans og ekki síst það sem blaðið fjallaði ekki um í tengslum við CASP starfsleyfi á grundvelli MiCA. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Sat, 11 Jul 2026 - 53min - 114 - Lokafrestur MiCA liðinn í Evrópu - Hvaða áhrif hefur það?
Í þessum þætti fara þeir félagar yfir það helsta á markaðnum. Í upphafi mánaðar leið lokafrestur samkvæmt MiCA löggjöfinni í Evrópu. Það þýðir að þjónustuveitendur sýndareigna (rafmyntakauphallir) verða að hafa starfsleyfi sem slíkir (CASP) til að mega veita viðskiptavinum þjónustu innan ESB og EES. Töluvert hátt hlutfall af áður starfandi þjónustuveitendum hefur ekki tekist að tryggja sér starfsleyfið innan frestsins og ber þar helst að nefna stærstu rafmyntakauphöll heims, Binance. Farið er yfir nokkur grundvallaratriði sem fylgja MiCA og hvaða þýðingu þetta hefur fyrir neytendur. Einnig er bókahorn og margt fleira í þessum þætti.
Sat, 04 Jul 2026 - 1h 01min - 113 - Samtal við Magnús Karl Ásmundsson, hagfræðing
Í þessum þætti mætti góður gestur í sitt fyrsta skipti í hlaðvarpið. Magnús Karl Ásmundsson er hagfræðingur að mennt, en starfar sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins Tímaveru. Magnús fer yfir víðan völl, en fjallar meðal annars um mörg grundvallaratriði hagfræðinnar, Bitcoin, hagkerfið og hvernig lífið og þroskinn sem fylgir því fær mann til að átta sig á að stundum er raunveruleikinn flóknari en svo að hægt sé að leysa öll heimsins vandamál með því að beita einfaldri hugmyndafræði. Þetta og margt fleira í þessu skemmtilega spjalli.
Sat, 27 Jun 2026 - 1h 01min - 112 - Nýr seðlabankastjóri USA slær á þunga strengi - Rauðu flöggin halda áfram að versna hjá Strategy
Í þessum þætti er rætt um það helsta sem gerst hefur á mörkuðum. Kevin Warsh, nýskipaður seðlabankastjóri Federal Reserve, fjallaði um í fyrstu ræðu sinni sem seðlabankastjóri hvernig hann sér fyrir sér breytt hlutverk seðlabankans gagnvart mörkuðum. Til þessa hafa fjárfestar treyst á leiðbeinandi stef frá seðlabankastjóra og jafnframt treyst því að seðlabankinn myndi alltaf grípa inn í þegar markaðir hafa lækkað verulega, að hleypa lífi í markaðinn með lækkun vaxta og öðrum tilslökunum. Warsh sagði að fjárfestar skyldu ekki treysta á slík inngrip. Þá halda áhyggjur af Michael Saylor, Strategy og Stretch áfram að aukast og í vikunni fór gengi Stretch, sem á almennt að haldast sem næst genginu 100, niður í 82. Samhliða þessu er Saylor að dreifa óábyrgu myndefni sem gefur til kynna að það að fjárfesta í Stretch sé ávísun á fjárhagslegt öryggi. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Sun, 21 Jun 2026 - 54min - 111 - Verðbólga heldur áfram að aukast í USA - Örlög Clarity Act orðin tvísýn?
Verðbólga jókst um 0,5% á ársgrundvelli milli mánaða í USA og nýjum seðlabankastjóra þar í landi virðist ansi þröngur stakkur sniðinn gagnvart breytingu stýrivaxta. Þá hafa líkur lækkað verulega á veðmálamörkuðum á því að Clarity frumvarpið verði samþykkt á þessu ári og eru þær nú metnar á um 50%. Fjallað er talsvert um þessi atriði, en sömuleiðis fjallar Björn ítarlega um þróun og sögu síðustu tveggja bjarnarmarkaða og varpar fram spurningunni hvort eitthvað megi læra af sögunni. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Sat, 13 Jun 2026 - 59min - 110 - Þrettán dagar af samfelldu útflæði úr kauphallarsjóðum keyrir BTC undir 60k
Í þessum þætti er rætt um stöðuna á crypto mörkuðum sem er vægast sagt uggvænleg um þessar mundir. Látlaust útflæði hefur verið úr kauphallarsjóðum eða um 4,4 milljarðar dollara á 13 dögum. Samhliða því hefur Fear and Greed mælikvarðinn hrapað niður á við og mælist nú 15, eða sem öfgakennd hræðsla. Sömu sögu, og reyndar verri, er að segja um aðrar helstu rafmyntir markaðarins. Tímar sem þessir reyna á jafnvel reyndustu fjárfesta og spurningin sem allir þátttakendur ættu að spyrja sig er einfaldlega: Hef ég trú á þessu fyrirbæri til framtíðar?
Sat, 06 Jun 2026 - 1h 00min - 109 - Útflæði úr kauphallarsjóðum eykst verulega - Bitcoin nálgast 70k
Í þessum þætti er rætt um það helsta á mörkuðum. Crypto markaðurinn heldur áfram að síga niður sem verður að teljast nokkur vonbrigði í ljósi þess að S&P500 vísitalan heldur áfram góðri siglingu. Áfram er óbreytt staða á Clarity frumvarpinu, þ.e. ekki er annað að segja en að reiknað er með því að frumvarpið verði tekið til afgreiðslu öldungardeildarinnar á næstunni. Þá er einnig fjallað talsvert um Ethereum og ýmsar vendingar þar á bæ í bókahorninu.
Sat, 30 May 2026 - 1h 04min - 108 - Bitcoin missir dampinn og strögglar við að komast yfir 80k á ný
Í þessum þætti er rætt um það helsta sem gerst hefur á mörkuðum. Ekkert nýtt er að segja um Clarity-frumvarpið en væntingar standa áfram til þess að það verði lagt fyrir öldungardeildina á næstunni. Útflæði heldur áfram úr BTC og ETH kauphallarsjóðum, en innflæði er sterkt í XRP, SOL og HYPE kauphallarsjóðina. Þá búa fjárfestar sig undir aukna táknvæðingu á eignamörkuðum. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Sat, 23 May 2026 - 1h 02min - 107 - Verðbólgutölur valda vonbrigðum - Clarity frumvarpið færist nær lagasetningu
Í þessum þætti er farið yfir viðburðaríka viku. Vikan hófst á slæmum fréttum, en verðbólga í Bandaríkjunum virðist vera að aukast umfram spár og bjartsýni fjárfesta um stýrivaxtalækkanir þar í landi fer minnkandi. Ekki bætti úr skák að 13. maí var sá dagur sem mest útflæði var úr BTC kauphallarsjóðum, meira en 630 milljónir dollara. Hins vegar bárust stór tíðindi úr öldungardeildinni en Clarity frumvarpið var afgreitt úr bankanefnd öldungardeildarinnar með 15 atkvæðum gegn 9. Í kjölfarið þykja líkurnar hafa aukist allverulega á að lagasetning sé innan seilingar og virðist markaðurinn fastlega gera ráð fyrir því að frumvarpið verði að lögum í nánustu framtíð. En hvað þýðir það nákvæmlega fyrir rafmyntamarkaðinn? Þetta og margt fleira er rætt í þessum þætti.
Sat, 16 May 2026 - 59min - 106 - Ætlar Michael Saylor að selja BTC??
Í þessum þætti ræða þeir félagar helstu vendingar á markaðnum. Bjartsýni heldur áfram að aukast á mörkuðum, en BTC hefur haldið sæmilega velli yfir 80k síðustu daga og hlutabréfavísitölur víðs vegar um heiminn slá endurtekið ný met. Þá hafa líkur á samþykki Clarity Act á þessu ári aukist talsvert og er reiknað með því að það verði að lögum á þessu ári. Helsta fréttin er hins vegar án nokkurs vafa að Michael Saylor, dyggasti kaupandi og talsmaður Bitcoin, sem hefur jafnframt ávallt haldið því fram að hann muni aldrei selja Bitcoin, virðist hafa skipt um skoðun. Hvernig mun markaðurinn bregðast við?
Sat, 09 May 2026 - 1h 00min - 105 - Tveir grænir mánuðir í röð fyrir Bitcoin - Mesta innflæði í kauphallarsjóði á árinu í apríl
Í þessum þætti ræða þeir félagar það helsta sem gerðist á markaðnum í vikunni. Stýrivöxtum var haldið óbreyttum í Bandaríkjunum. Bitcoin ráðstefnan í Las Vegas vekur lítinn áhuga og lítið umtal. Stofnanafjárfestar virðast mjög bjartsýnir gagnvart Bitcoin og bálkakeðjutækninni. Bókahornið og margt fleira í þessum þætti.
Sat, 02 May 2026 - 1h 01min - 104 - Norður-kóreskir tölvuþrjótar valda enn á ný titringi
Bitcoin hefur aðeins sótt í sig veðrið samhliða sannfærandi hækkunum á öðrum mörkuðum. Því miður varð DeFi markaðurinn hins vegar fyrir áfalli þegar hakkarar, sem taldir eru vera á vegum Norður-Kóreu, náðu að komast yfir umtalsverð verðmæti af svokölluðu rsETH og nota það til að taka gríðarleg verðmæti af einum rótgrónasta DeFi vettvangi markaðarins, Aave. Fjárfestar spyrja sig nú hvort raunverulega sé hægt að treysta dreifstýrðum fjármálalausnum eða hvort bæta þurfi öryggi enn frekar áður en slíkt traust er verðskuldað. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Sat, 25 Apr 2026 - 1h 01min - 103 - S&P500 og Nikkei ná hæstu hæðum - Bitcoin hótar 80k
Í þessum þætti er farið yfir það helsta á rafmyntamarkaðnum. Hlutabréf í Bandaríkjunum hafa, þrátt fyrir ólguna í heimsmálunum, náð hæstu hæðum á ný og rafmyntir hafa sömuleiðis haldið áfram upp á við eftir miklar lægðir á undan. Goldman Sachs, einn stærsti fjárfestingabankinn í Bandaríkjunum, hefur bæst í hóp þeirra aðila sem munu bjóða upp á Bitcoin kauphallarsjóð. Þetta og margt fleira er rætt í þessum þætti.
Sat, 18 Apr 2026 - 1h 01min - 102 - Bitcoin heldur sjó yfir 70k samhliða talsverðu innflæði í kauphallarsjóði
Í þessum þætti er farið yfir stöðuna á markaðnum. Morgan Stanley BTC kauphallarsjóðurinn fer ágætlega af stað og Bitcoin hefur tekist ágætlega að halda sér yfir 70k. Þeir félagar Kjartan og Björn velta nokkrum stjórnspekilegum álitaefnum fyrir sér. Þá er fjallað um nýlegar kenningar um hver Satoshi Nakamoto er.
Sat, 11 Apr 2026 - 1h 02min - 101 - Morgan Stanley kynnir til leiks BTC kauphallarsjóð á bestu kjörum markaðarins
Í þessum þætti er rætt um nokkurn veginn óbreytt ástand markaðarins. Allir markaðir virðast um þessar mundir hanga á ummælum Trumps um framgang átakanna í Íran og virðast hver ummæli sveifla mörkuðum í báðar áttir. Eins og rafmyntafjárfestar hafa fengið að venjast virðast góðar fréttir hreyfa takmarkað við markaðnum eins og sakir standa, en það verður að teljast stórfrétt að Morgan Stanley, einn stærsti bankinn í Bandaríkjunum, hefur ákveðið að veðja á Bitcoin. Hefur bankinn nú opnað fyrir sinn eigin BTC kauphallarsjóð á betri kjörum en allir samkeppnisaðilar. Segja má að fréttnæmasta atriðið er sú staðreynd að Morgan Stanley rekur mjög fáa kauphallarsjóði í samanburði við samkeppnisaðilana og hefur það fengið marga til að draga þá ályktun að bankinn sé með þessu framtaki að veðja á Bitcoin sem trausta eign til framtíðar. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Sat, 04 Apr 2026 - 1h 02min - 100 - Hræðsla markaðarins mælist aftur öfgakennd - Villandi fréttaflutningur af Clarity frumvarpinu?
Síðastliðinn föstudag bárust jákvæðar fréttir af framgangi Clarity frumvarpsins þess efnis að það yrði brátt samþykkt án þess að takmarka rétt crypto fyrirtækja til að greiða viðskiptavinum vexti á stöðugleikamyntir. Markaðurinn brást við með talsverðum hækkunum þvert yfir helstu rafmyntir. Nokkrum dögum síðar kom í ljós að þessar fréttir stóðust ekki nánari skoðun og gengu hækkanirnar til baka og rúmlega það. Þá virðist markaðurinn ekki leggja mikið traust í friðarviðræður Bandaríkjanna við Íran og má merkja það bersýnilega á hækkun olíuverðs og lækkunum á hlutabréfamörkuðum úti í heimi. Þeir félagar ræða þetta og margt fleira í þessum þætti.
Sat, 28 Mar 2026 - 59min - 99 - Seðlabankinn í Bandaríkjunum heldur stýrivextum óbreyttum og viðrar áhyggjur um efnahagshorfur
Í þessum þætti halda þeir félagar áfram að fjalla um bjarnarmarkaðinn. Í vikunni átti sér stað klassískt "bear market pump" þegar BTC fór í 76k, sem var síðan selt rakleiðis niður aftur. Fjallað er um afstöðu Seðlabankans í Bandaríkjunum um framtíðarhorfur í efnahagsmálum, Michael Saylor og Strategy, önnur BTC "Treasury" fyrirtæki, og margt fleira.
Sat, 21 Mar 2026 - 56min - 98 - Bjartsýni á markaðnum eykst lítillega - Er meiri sársauki í vændum?
Fear and Greed mælikvarðinn hefur verið fastur vikum saman í "Extreme Fear" en mælist nú í um 30, eða "Fear". Sannleikurinn er þó áfram sá að Bitcoin og rafmyntamarkaðurinn í heild sinni er ekki sannfærandi og virðist sem margir reikni með því að botninn sé ekki að baki enn. Björn og Kjartan eiga samtal um hvernig þetta blasir allt við þeim, ásamt því að fara yfir helstu fréttir markaðarins.
Sat, 14 Mar 2026 - 59min - 97 - Trump tjáir sig um Clarity Act og setur pressu á þingið - Bitcoin reynir aftur að komast yfir 70k
Í þessum þætti fjalla þeir félagar einkum um Clarity Act og ummæli Trump, en hann birti þráð í vikunni þar sem hann sagði að þingið verði að samþykkja Clarity Act og hundsa kröfur banka þar í landi um að rafmyntafyrirtækjum verði meinað að greiða vexti af stöðugleikamyntum. Sömuleiðis var frétt um að Trump hefði fundað með Brian Armstrong, forstjóra Coinbase. Þessi þáttur er fyrsti sinnar tegundar í Hlaðvarpi Myntkaupa, en Björn var staddur í Alicante meðan á upptökum stóð.
Sat, 07 Mar 2026 - 48min - 96 - Er risinn Jane Street arkitektinn að bjarnarmarkaðnum eða er verið að hengja bakara fyrir smið?
Í vikunni sem er að líða bárust fregnir af málshöfðun gegn markaðsrisanum Jane Street fyrir meint lögbrot sem eiga að hafa verið ein helsta ástæðan fyrir verðhruni Terra Luna árið 2022. Samhliða þeim fréttum skapaðist umfjöllun á X og víðar þess efnis að Jane Street hefði markvisst keyrt verð Bitcoin niður með daglegri sölu gífurlegs magns af Bitcoin, sem hefði hætt frá og með málsókninni. Bitcoin og aðrar rafmyntir hækkuðu gríðarlega í verði við þetta, en nú glímir markaðurinn við spurninguna: Er eitthvað að marka þessar staðhæfingar? Við nánari athugun blasir við að skortur er á fullnægjandi gögnum til þess að unnt sé að draga fyrirvaralausar ályktanir. Þetta og margt fleira ræða þeir félagar í þætti vikunnar.
Sat, 28 Feb 2026 - 1h 01min - 95 - Hvað þarf að gerast til að Bitcoin fangi athygli markaðarins á ný?
Fremur tíðindalítið var á rafmyntamörkuðum síðastliðna viku og litlar hreyfingar voru á gengi helstu rafmynta. Stærstu tíðindin eru áframhaldandi stigmögnun í deilum Bandaríkjanna og Íran og virðist sem óhjákvæmilegt sé að til einhverra stríðsátaka komi. Mestur hluti þessa þáttar fór þó í samræður um þær gríðarlegu tækniframfarir sem hafa átt sér stað undanfarið á sviði gervigreindar og er sú tilgáta viðruð, og ekki í fyrsta sinn, að hér sé um að ræða eina helstu skýringu þess að rafmyntamarkaðurinn fær ekki mikla athygli hjá fjárfestum um þessar mundir; þeir eru einfaldlega of uppteknir af gervigreindarkapphlaupinu. Hlaðvarpsfélagarnir eru þó hvergi bangnir og eru sannfærðir um að Bitcoin og bálkakeðjur muni takast að skipa sér mikilvægan sess í breyttri framtíð.
Sat, 21 Feb 2026 - 1h 06min - 94 - Er Bitcoin að glíma við tilvistarkreppu?
Bjarnarmarkaðurinn heldur áfram að sannreyna tilvist sína en rafmyntir, margar hverjar, glíma við spurningar um hvernig þær réttlæta tilvist sína sem tækni og eignaflokkur. Ef Bitcoin er áhættuvörn eða eign sem er til þess fallin að verja verðmæti yfir lengri tíma af hverju er myntin þá um 50% niður á meðan gull hefur átt methækkanir að baki undanfarið? Hvernig nákvæmlega er bálkakeðjutæknin að fara að nýtast í heimi framtíðarinnar þar sem gervigreindin mun mögulega gerbreyta núverandi heimsmynd? Og hvar eiginlega er botninn í öllum þessum lækkunum?? Þessar spurningar munu þeir félagar, Björn og Kjartan, fást við, ásamt öðrum umræðuefnum.
Sat, 14 Feb 2026 - 59min - 93 - Bitcoin fellur undir 60K - Meira en 50% lækkun frá októbermánuði
Segja má að söguleg hræðsla hafi heltekið rafmyntamarkaði síðustu daga. Eftir látlausar lækkanir á gengi BTC niður fyrir 70.000$ fyrstu dagana í febrúar fylgdi fimmtudagurinn, 5. febrúar, eftir með svæsnu verðfalli og fór Bitcoin niður fyrir 60.000$ um stutta stund, í um 59.800$. Solana fór um skamma hríð undir 70$ og sömu sögu mátti segja um flestar aðrar rafmyntir. Hræðsla mældist í 5 í Fear & Greed vísitölunni og hefur þetta reynt á andlegu hliðina hjá jafnvel reyndustu fjárfestum. Í þessum þætti reyna þeir félagar, Björn og Kjartan, eftir fremsta megni að ná utan um hvað veldur þessu og hverju má búast við í framhaldinu.
Sat, 07 Feb 2026 - 1h 03min - 92 - Trump heldur ræðu í Davos - Heitir því að USA verði "Crypto Capital of the world"
Í þessum þætti ræða þeir félagar, Björn og Kjartan, um áframhaldandi lægð á rafmyntamörkuðum. Enn ríkir óvissa um lögmæti tolla Trumps, en reiknað var með niðurstöðu Hæstaréttar í þeim efnum um miðjan janúar. Þeirri niðurstöðu hefur nú verið frestað um óákveðinn tíma, en almennt er búist við að hún muni liggja fyrir í febrúar. Þá hafa áhyggjur um efnahagsmál og stýrivexti í Japan enn á ný vaknað með tilheyrandi áhrifum á gengi rafmynta. Loks er talsvert rætt um viðburð World Economic Forum í Davos, en þar talaði Trump í rúma klukkustund.
Sat, 24 Jan 2026 - 57min - 91 - Sakamálarannsókn hafin gagnvart Jerome Powell - Eru alvarlegir brestir í CLARITY Act?
Í þessum þætti var sjónum einkum beint að tveimur viðfangsefnum. Annars vegar er rætt um nýhafna sakamálarannsókn gagnvart Jerome Powell vegna óhemju mikils kostnaðar á endurbótum við byggingu seðlabankans. Hins vegar er rætt um áhyggjur sem hafa verið opinberaðar, meðal annars af hálfu Brian Armstrong, forstjóra Coinbase, vegna CLARITY frumvarpsins sem markaðurinn hefur bundið miklar vonir við að skerpi á lagalegri stöðu rafmyntamarkaðarins og auki traust fjármálakerfisins á rafmyntum. Einnig er rætt um nýlegar verðbólgutölur í Bandaríkjunum og margt fleira.
Sat, 17 Jan 2026 - 1h 04min - 90 - Stórsigur fyrir Strategy og Bitcoin - Morgan Stanley sækir um þrjá kauphallarsjóði fyrir rafmyntir
Morgan Stanley Capital International (MSCI) hefur ákveðið að hætta við áform sín um að útiloka Strategy og önnur sambærileg félög frá helstu vísitölum sínum. Þetta verður að teljast stórsigur fyrir markaðinn í heild sinni enda hafa margir verið þeirrar skoðunar að þessi áform hafi verið einn helsti drifkraftur hrunsins eftirminnilega, 10. október síðastliðinn. Athygli vekur að á sama tíma tilkynnir Morgan Stanley um að bankinn hyggist setja á laggirnar þrjá kauphallarsjóði fyrir rafmyntir, Bitcoin, Ethereum og Solana. Einnig er fjallað um afskipti USA af Venesúela og margt fleira.
Sat, 10 Jan 2026 - 53min - 89 - Árið 2025 gert upp - Hvað ber árið 2026 í skauti sér?
Í þessum þætti gera þeir félagar, Björn og Kjartan, upp árið sem var að líða. Var 2025 eingöngu ár vonbrigða eða er hægt að tala um einhverja sigra sem skiptu máli? Hvað þarf að gerast á þessu ári til þess að það einkennist af sigrum í stað vonbrigða? Einnig er farið yfir skemmtilega tölfræði um hlaðvarpið sjálft og hlustendum færðar kærar þakkir fyrir árið sem var að líða.
Sat, 03 Jan 2026 - 59min - 88 - Miklar áhyggjur fjárfesta af stýrivaxtahækkun í Japan - Er þetta stormur í vatnsglasi?
Í þessum þætti er meðal annars fjallað um 25 punkta stýrivaxtahækkun í Japan og eru vextir þar í landi nú þeir hæstu í 30 ár, en þó aðeins 0,75%. Fjárfestar hafa miklar áhyggjur haft af stýrivaxtahækkuninni, enda orsakaði slík hækkun einn versta dag síðustu ára í ágúst í fyrra. Margt fleira er þó fjallað um, bæði af jákvæðum og neikvæðum toga, til að mynda er farið yfir fyrsta árið hjá Donald Trump á þessu kjörtímabili. Þá fer Björn yfir þó nokkrar fréttir. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Sat, 20 Dec 2025 - 54min - 87 - Seðlabankinn í USA lækkar stýrivexti um 25 punkta - Bitcoin heldur áfram að ströggla við 90k
Í þessum þætti er rætt um stýrivaxtalækkun í USA, en eins og spár gerðu ráð fyrir voru þeir lækkaðir um 0,25%. Þrátt fyrir lækkun er rafmyntamarkaðurinn áfram lágstemmdur og hræðsla er enn ráðandi tilfinning á markaðnum. Í þessum þætti var einnig rætt talsvert um hvernig rétt væri að meta fyrsta ár Trump í forsetaembættinu með tilliti til rafmynta. Þá var einnig vikið að stöðu Strategy og fjallað um óstaðfestan orðróm þess efnis að JP Morgan sé með verulega skortstöðu gegn Strategy.
Sat, 13 Dec 2025 - 59min - 86 - $11T risinn Vanguard gefur grænt ljós á crypto - Hver verða áhrifin?
Markaðurinn heldur áfram að vera heldur lágstemmdur en Bitcoin strögglar við að halda sér yfir 90k. Miklar áhyggjur hafa skapast um hvort Strategy verði mögulega þvingað til að selja hluta af BTC forða sínum. Þeir félagar, Kjartan og Björn, fjalla um þetta mál og komast að þeirri niðurstöðu að líklega sé ekki grundvöllur fyrir þessum áhyggjum eins og sakir standa. Á hinn bóginn tók markaðurinn vel í fréttir um að 11 biljón (e. trillion) dollara risinn Vanguard, sem hefur lengi verið þekktur fyrir andstöðu sína gagnvart rafmyntum hefur loksins gefið grænt ljós á rafmyntafjárfestingar. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Sat, 06 Dec 2025 - 1h 06min - 85 - Nautin vakna til lífsins og keyra Bitcoin yfir 90k - Mun Seðlabanki Bandaríkjanna liðka fyrir mörkuðum í desember?
Í þessum þætti halda þeir félagar, Björn og Kjartan, áfram að ræða sveiflur síðustu vikna og greina þær frekar. Einnig er fjallað um áhugaverðar fréttir sem hafa ekki farið hátt, en eru þó sannarlega mikilvægar. Sjónarmiðum um að hið versta sé að baka er teflt fram og rök færð fyrir því, meðal annars að fastlega er gert ráð fyrir stýrivaxtalækkun í USA í desember og að fyrir liggur að seðlabankinn þar í landi mun láta af aðhaldsaðgerðum frá og með 1. desember næstkomandi. Einnig er bókahornið tekið fyrir og margt fleira í þessum þætti.
Sat, 29 Nov 2025 - 59min - 84 - Bitcoin í frjálsu falli - Nautin virðast lömuð af hræðslu. Hvar er botninn?
Í þessum þætti halda þeir félagar, Björn og Kjartan, áfram að ræða látlausar lækkanir rafmyntamarkaðarins, en Bitcoin var hársbreidd frá því að falla undir 80.000$ í vikunni. Megináhersla var lögð á að greina ástæður þessa verðhruns, en óhætt er að segja að fæstir greinendur hafi séð eitthvað í líkingu við þetta fyrir. Ýmsar tilgátur hafa þó verið settar fram og var fjallað um nokkrar af þeim og lagt mat á þær.
Sat, 22 Nov 2025 - 1h 03min - 83 - Hið opinbera í USA hefur starfsemi á ný - Crypto markaðurinn heldur áfram á hraðri niðurleið
Eftir lengstu lokun í sögu hins opinbera í Bandaríkjunum tók það aftur til starfa á miðvikudaginn, eftir 43 daga lokun. Langflestir markaðsgreinendur gerðu ráð fyrir að markaðir myndu bregðast við með hækkunum en raunin varð þvert á móti. Bitcoin féll aftur undir 100k og í þetta skiptið kröftuglega, eða niður í 94.000$. Þá fór Ethereum nálægt 3.000$ og Solana fór undir 140$. Í þættinum þá halda þeir félagar, Björn og Kjartan, áfram samtali um hvort sannarlega sé bjarnarmarkaður skollinn á. Eins og sakir standa getur brugðið til beggja vona og ljóst er að falli Bitcoin mikið neðar verður það ekki lengur spurning heldur staðreynd að við séum sannarlega mætt í enn annan bjarnarmarkaðinn.
Sat, 15 Nov 2025 - 57min - 82 - Bitcoin fellur undir 100k og ofsafengin hræðsla grípur um sig
Óhætt er að segja að nautin hafi mátt muna fífil sinn fegurri á rafmyntamarkaðnum undanfarnar vikur og glæstar vonir rafmyntafjárfesta um síðasta fjórðung þessa árs hanga á bláþræði eftir látlausar lækkanir. Bitcoin er í þessum rituðu orðum rétt tæplega 102.000$ eftir rúmlega 20% fall frá toppnum og lítur út fyrir að 100k múrinn gæti fallið aftur á næstu dögum. Þá hafa aðrar rafmyntir farið mun verr út úr dýfunni. Í þessum þætti fjalla þeir félagar, Kjartan og Björn, um hvað veldur og hvort meira af því sama sé í vændum eða hvort markaðurinn sé mögulega að ná að spyrna í botninn á næstunni.
Sat, 08 Nov 2025 - 1h 07min - 81 - Stýrivextir lækkaðir um 25 punkta í USA - Powell varar þó við bjartsýni um frekari lækkanir
Í þessum þætti er fjallað um ákvörðun Seðlabanka Bandaríkjanna um að lækka stýrivexti um 0,25 prósentustig, niður í 3,75-4,00% og af hverju markaðurinn brást skömmu síðar við með talsverðum lækkunum. Þá er vikið að samskiptum Bandaríkjaforseta og forseta Kína sem markaðurinn fylgist grannt með og farið yfir það hvort vænta megi samkomulags milli ríkjanna þar sem Bandaríkin slaka á tollum gagnvart Kína og Kína veitir sömuleiðis greiðara aðgengi að sjaldgæfum jarðmálmum. Stóra rafmyntafrétt vikunnar var hins án efa sú að nú hefur bandaríska verðbréfaeftirlitið, SEC, veitt samþykki fyrir SOL kauphallarsjóð og hefur hann farið vel af stað, þótt ekki sjáist merki þess enn sem komið er á gengi SOL. Þetta og margt fleira í þessum þætti!
Sat, 01 Nov 2025 - 50min - 80 - Ætlar Seðlabanki Bandaríkjanna að taka rafmyntum opnum örmum?
Bitcoin hefur haldið velli sæmilega vel, 100k múrinn hefur haldið samfleytt frá verðfallinu 10. október síðastliðinn. Einn stjórnarmeðlimur í stjórn Seðlabanka Bandaríkjanna flutti ræðu í byrjun vikunnar þar sem hann fjallaði mjög jákvætt um crypto markaðinn og bálkakeðjutæknina og hefur markaðurinn brugðist vel við. Þá náðaði Donald Trump CZ, fyrrverandi forstjóra Binance í vikunni og hafa verið skiptar skoðanir á ágæti þeirrar ákvörðunar. Ljóst er að þangað til hið opinbera í Bandaríkjunum hefur störf að nýju verður nokkur bið eftir því að kauphallarsjóðir fyrir aðrar rafmyntir en Bitcoin og Ethereum verði starfræktir. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Sat, 25 Oct 2025 - 54min - 79 - Mesta hrun í sögu rafmyntamarkaðarins - Er bjarnarmarkaður skollinn á?
Á föstudagskvöldið 10. október síðastliðinn, í kjölfar þess að Donald Trump tilkynnti á Truth Social að vænta mætti 100% tolla á Kína, átti sér stað einhver svakalegasti atburður í sögu rafmyntamarkaðarins. Bitcoin stóð af sér storminn ágætlega og hélt velli yfir 100.000$ genginu og að einhverju leyti má segja það sama um Ethereum og Solana, þótt gengi þeirra mynta hafi lækkað talsvert meira. Aftur á móti lækkuðu aðrar rafmyntir en framangreindar með svo svakalegum hætti að eina orðið sem nær utan um það er algjört hrun, a.m.k. tímabundið, en þær lækkuðu flestar á bilinu 60-80% þegar sem mest lét. Í þessum þætti er gott sem eingöngu fjallað um þennan atburð, hvað nákvæmlega gerðist og af hverju það gerðist og því næst leitast við að svara spurningunni: Er bjarnarmarkaður skollinn á?
Sat, 18 Oct 2025 - 1h 13min - 78 - Var 126.000$ BTC toppurinn?
Þessi þáttur var tekinn upp í hádeginu, föstudaginn 10. október 2025. Fyrr í vikunni hafði Bitcoin náð nýjum hæðum í rétt rúmlega 126.000$. Kvöldið eftir að þátturinn var tekinn fékk rafmyntamarkaðurinn, og þá sér í lagi aðrar rafmyntir en Bitcoin, að kynnast allra hrottalegustu dýfu síðari tíma eftir tilkynningu Trumps um 100% tolla á Kína. Þegar þetta er ritað hefur markaðurinn jafnað sig talsvert, en þó ekki nærri því að fullu. Þessi þáttur fjallar eins og gefur að skilja ekki um það, þar sem þeir atburðir voru þá enn óorðnir, en það verður viðfangsefni næsta þáttar. Í þessum þætti velta Björn og Kjartan hins vegar fyrir sér þeirri spurningu hvort rafmyntamarkaðurinn sé að nálgast ofhitnun, hvað rekstrarstöðvun hins opinbera í USA þýði fyrir rafmyntamarkaðinn og margt fleira.
Sat, 11 Oct 2025 - 1h 00min - 77 - Bergþór Másson - Bitcoin: Sannleikur, sameiningarkraftur og sanngirni
Í þessum þætti tók athafnamaðurinn, Bergþór Másson, hús á okkur og við áttum gott samtal. Bergþór hefur vakið mikla athygli í fjölmiðlum undanfarið fyrir hugrakka ákvörðun um að selja fasteign sína og kaupa Bitcoin í staðinn, en hann fjallaði meðal annars um þá ákvörðun í þættinum Ísland í dag. Í þættinum rekur Bergþór bakgrunn sinn og sögu og fer yfir hvað varð til þess að hann komst að þeirri niðurstöðu að fjárfesta í Bitcoin. Einnig er fjallað um ýmsa strauma og stefnur í samfélaginu og reynt að setja Bitcoin í samhengi við samfélagið í víðara samhengi en bara sem góða fjárfestingu. Við mælum eindregið með hlustun.
Sat, 04 Oct 2025 - 1h 18min - 76 - Víkingur Hauksson snýr aftur - Hvenær nær Bitcoin 1.000.000$?
Í þessum þætti kíkti stórvinur okkar og Bitcoin sérfræðingurinn Víkingur Hauksson í stúdíóið og fjallaði listilega um viðfangsefni sem hefur verið honum mjög hugleikið undanfarin 3 ár: Vöxtur Bitcoin samkvæmt veldislögmáli. Sjón er sögu ríkari og mælum við eindregið með áhorfi, ekki eingöngu hlustun. Víkingur sýnir gröf sem benda til þess að Bitcoin vaxi samkvæmt veldislögmáli, ekki aðeins með tilliti til verðs heldur einnig annarra þátta. Með hefðbundnum fyrirvörum má styðjast við þessi gröf til að álykta um verðþróun framtíðarinnar og fá vísi að svörum við áleitnum spurningum á við hvenær Bitcoin nær 1.000.000$.
Sat, 27 Sep 2025 - 1h 37min - 75 - Stýrivaxtalækkun í USA - Solana fer yfir 250$ - Hverju má búast við á fjórða ársfjórðungi?
Í þessum þætti er fjallað um lækkun stýrivaxta í Bandaríkjunum, en markaðir hafa brugðist vel. S&P500 vísitalan er í hæstu hæðum, og helstu rafmyntir nálgast sömuleiðis hæstu hæðir. Solana heldur áfram að gera gott mót og má rekja það talsvert til skráðra fyrirtækja á markaði sem eru að kaupa SOL, svokallaðra SOL Treasury Companies. Þá er að sjálfsögðu fjallað um helstu fréttir og farið yfir stöðuna almennt á rafmyntamarkaði.
Sat, 20 Sep 2025 - 59min - 74 - Solana leiðir hækkanir í september - Vaxtalækkun framundan
Septembermánuður hefur tvímælalaust farið betur af stað en margir þorðu að vona. Aðrar rafmyntir en Bitcoin hafa staðið sig vel og ber þar helst að nefna Solana, þótt segja megi að flestar af helstu myntunum hafi hækkað talsvert frá byrjun mánaðar. Í þessum þætti er sjónum einkum beint að jákvæðri atburðarás fyrir Solana og Björn fjallar um af hverju hann reiknar með auknu fjármagnsflæði inn í Solana kerfið.
Sat, 13 Sep 2025 - 1h 00min - 73 - Ágústmánuður gerður upp á rafmyntamörkuðum - Hvað er World Liberty Financial?
Í þessum þætti er ágústmánuður gerður upp og gerð grein fyrir forsendum septembermánaðar eins og þær blasa við Birni og Kjartani, en í sögulega samhengi hafa þessir tveir mánuðir verið þeir slökustu á rafmyntamörkuðum. Einnig er fjallað ítarlega um nýjasta framtak Trump fjölskyldunnar í heimi rafmynta; World Liberty Financial (WLFI) og Björn gefur óhlutdrægt álit á því verkefni og hvort WLFI tókenið sé fjárfesting sem vert er að athuga nánar.
Sat, 06 Sep 2025 - 1h 02min - 72 - ETH nær hæstu hæðum frá upphafi, rétt tæplega 5.000$ - Er Solana næst?
Eftir erindi Jerome Powell í Jackson Hole 22. ágúst síðastliðinn eru greiningaraðilar sannfærðir um að vænta megi 25 punkta vaxtalækkun um miðjan september. Markaðurinn brást við með miklum hækkunum og náði Ethereum hæstu hæðum, eða rétt tæplega 5000$ og Solana hefur haldið sér yfir 200$. Bitcoin hefur hins vegar sigið niður frá því að það náði hæstu hæðum í um 124.000$ og vilja margir meina að það sé að miklu leyti rakið til þess að gömul veski hafi verið að selja talsvert magn af Bitcoin. Í þessum þætti ræða þeir félagar Björn og Kjartan hvernig atburðarás síðustu vikna blasir við þeim og hvernig haustið leggst í þá, ekki síst með tilliti til annarra rafmynta en Bitcoin.
Sat, 30 Aug 2025 - 1h 01min - 71 - Guðlaugur Steinarr Gíslason - Hver er staða og hlutverk rafmynta í fjármálum heimsins í dag?
Guðlaugur Steinarr Gíslason, fjármálahagfræðingur og fjárfestingastjóri hjá Visku Digital Assets, fjallar um þróun Bitcoin og bálkakeðjutækninnar síðustu ár og hvernig staða og hlutverk rafmynta er óðum að vaxa og styrkjast í fjármálalífi heimsins í dag. Guðlaugur fjallar um hvernig Bitcoin hefur þroskast og færir rök fyrir því af hverju hann telur ólíklegt að við sjáum bjarnarmarkaði endurtaka sig með jafn ýktum hætti og við höfum hingað til kynnst í sögu. Einnig er fjallað um hlutverk og tækifærin í bálkakeðjutækninni umfram Bitcoin og margt fleira.
Sat, 23 Aug 2025 - 1h 20min - 70 - Ævintýralegar hækkanir ETH halda áfram - Ríkir meiri spenna á Wall Street gagnvart ETH en BTC?
Verðbólgutölur í Bandaríkjunum (CPI) komu betur út en spár gerðu ráð fyrir og brugðust markaðir vel við og greiningaaðilar reikna nú með stýrivaxtalækkun í september. Rafmyntir hafa staðið sig vel það sem af er ágúst, en óhætt er að segja að engin eign hefur haft tærnar þar sem ETH hefur hælana síðustu vikur og nálgast myntin nú óðfluga hæstu hæðir frá nóvember 2021. Í þessum þætti ræða þeir félagar sérstaklega velgengni Ethereum og spá í spilin um markaðinn í heild sinni.
Sat, 16 Aug 2025 - 53min - 69 - Trump veitir 401k lífeyrissjóðum heimild til að fjárfesta í rafmyntum
Í vikunni gaf Donald Trump út forsetatilskipun sem veitir 401k lífeyrissjóðum í Bandaríkjunum heimild til þess að fjárfesta í rafmyntum. Fjárfestar eru mjög bjartsýnir yfir fregnunum, enda sitja sjóðirnir á gríðarlegum fjármunum. Ethereum heldur ótrautt áfram með miklum látum og er gengi ETH myntarinnar yfir 4.000$ í þessum skrifuðu orðum. SEC hefur nú formlega lokið öllum málaferlum gagnvart Ripple og margt fleira sem tekið er fyrir í þessum þætti.
Sun, 10 Aug 2025 - 55min - 68 - SEC tilkynnir "Project Crypto" - Hvað felst í því og hvað þýðir það fyrir altcoins?
Markaðir hafa brugðist illa við blaðamannafundi Jerome Powell, seðlabankastjóra Bandaríkjanna, sem haldinn var á miðvikudaginn eftir að hann hafði tilkynnt að stýrivextir yrðu óbreyttir í 4,25-4,5%. Powell treysti sér ekki til að vera bjartsýnn um vaxtalækkun í september og um leið tóku markaðir að lækka. Þrátt fyrir það eru þeir félagar, Björn og Kjartan, sammála um að mikið tilefni sé til bjartsýni vegna tilkynningar frá bandaríska verðbréfaeftirlitinu, SEC, um "Project Crypto". Í þessum þætti ræða þeir þessa hluti fram og til baka og greina frá því hverju þeir reikna með í framhaldinu.
Sat, 02 Aug 2025 - 46min - 67 - Bitcoin hægir á sér og fjárfestar spyrja: Er Ethereum besta fjárfestingin á markaðnum í dag?
Rafmyntamarkaðir hafa haldið vel í hækkanir undanfarinna vikna, en Bitcoin virðist ætla að þurfa nokkrar tilraunir til að keyra yfir 120k. Ethereum hefur hins vegar hækkað um meira en 50% síðustu 30 daga og gífurlegt fjárstreymi hefur verið í ETH kauphallarsjóðina á Wall Street. Þetta og fjölmargt annað var rætt í þessum þætti, meðal annars að Trump Media félagið keypti BTC fyrir 2 milljarða Bandaríkjadollara og margt fleira. Einnig er hið mánaðarlega bókahorn tekið fyrir í lok þáttarins.
Sat, 26 Jul 2025 - 53min - 66 - Rafmyntamarkaðir áfram á fleygiferð - Þrjú crypto frumvörp samþykkt í Washington - Hvar stoppar XRP?
Í þessum þætti er fjallað ítarlega um atburðarás liðinnar viku í Washington þar sem þrjú lagafrumvörp voru samþykkt með afgerandi og þverpólitískum meirihluta. Litlu munaði að ekkert yrði úr crypto vikunni en forseti Bandaríkjanna beitti sér fyrir, og náði því í gegn, að crypto vikan næði fram að ganga. Ýmis teikn eru á lofti um að aðrar rafmyntir láti nú loks ljós sitt skína eftir marga mánuði í skugga velgengi Bitcoin. XRP heldur áfram ævintýralegum hækkunum og þeir félagar, Björn og Kjartan, reyna að ná utan um þetta allt saman.
Sun, 20 Jul 2025 - 57min - 65 - Bitcoin nær hæstu hæðum á ný - nálgast 120k
Í þessum þætti er fjallað um miklar hækkanir undanfarna daga á rafmyntum, en Bitcoin fór í um 118.800$ á föstudaginn, ETH fór yfir 3000$ og XRP fór nálægt 3$. Athygli vekur að ekki er hægt að benda á neinar sérstakar fréttir sem valda þessum hækkunum. Þeir félagar Björn og Kjartan fara þó yfir nokkur áhugaverð atriði sem styðja bjartsýn viðhorf gagnvart komandi vikum og mánuðum.
Sat, 12 Jul 2025 - 57min - 64 - Hefur Blackrock meiri tekjur af Bitcoin heldur en bandarískum hlutabréfum?
Í þessum þætti ræða þeir félagar Björn og Kjartan um fjölda stórra frétti úr heimi rafmynta í Bandaríkjunum. Má þar nefna að nú hefur verið starfræktur Solana kauphallarsjóður í Chicago. Einnig er rætt um þá áhugaverðu staðreynd, að miðað við núverandi gengi Bitcoin og SP500 hlutabréfavísitölunnar er útlit fyrir að Blackrock hafi meiri tekjur af Bitcoin kauphallarsjóð sínum (IBIT) heldur en S&P500 kauphallarsjóð sínum. Þá er nýsamþykkt frumvarp "Big Beautiful Bill" rætt og margt fleira í þessum þætti.
Sun, 06 Jul 2025 - 1h 00min - 63 - Vopnahlé í Miðausturlöndum - S&P500 nær hæstu hæðum - Hvernig bregst rafmyntamarkaðurinn við?
Í þessum þætti er rætt um hvaða áhrif nýlega umsamið vopnahlé í Miðausturlöndum kann að hafa á rafmyntamarkaði, en nú þegar hefur leiðandi hlutabréfavísitalan í Bandaríkjunum náð hæstu hæðum. Áfram berast góðar fréttir úr heimi rafmynta frá Bandaríkjunum, en nú virðist sem lánastofnunum þar í landi verði gert skylt að taka mið af rafmyntaeign þegar kemur að lánveitingum við fasteignakaup. Þetta og margt fleira er rætt í þessum þætti.
Sun, 29 Jun 2025 - 54min - 62 - Lagafrumvarp um stöðugleikamyntir samþykkt í Washington - hvaða þýðingu mun það hafa fyrir rafmyntamarkaðinn?
Í síðustu viku samþykkti Öldungadeildin í Bandaríkjunum GENIUS Act eða lagafrumvarp sem fól í sér heildstæða löggjöf um stöðugleikamyntir. Frumvarpið fékk sterkt fylgi en 68 öldungardeildarþingmenn sögðu já gegn 30 sem sögðu nei. Eru flestir greinendur á því að þetta muni skapa góðan jarðveg fyrir markað stöðugleikamynta til að vaxa gríðarlega hratt á næstu árum sem að sama skapi ætti að hafa mjög jákvæð áhrif á rafmyntamarkaðinn í stærra samhengi. Þetta og margt fleira er fjallað um í þessum þætti.
Sat, 21 Jun 2025 - 52min - 61 - Bitcoin heldur velli yfir 100k þrátt fyrir óróa heimsmálanna
Bitcoin náði nýjum methæðum í lok síðasta mánaðar í 112K USD og hefur síðan þá aldrei farið undir 100K þrátt fyrir að meira og minna allir markaðir hafi tekið dýfu í kjölfar árásar Ísraela á Íran. Allt stefnir í að Texas verði þriðja fylkið í Bandaríkjunum sem samþykki Bitcoin kaup hins opinbera. Þetta og margt fleira ræða þeir félagar Björn og Kjartan í þessum þætti.
Sun, 15 Jun 2025 - 40min - 60 - Chainlink "deep dive"
Þessi þáttur er hinn síðari af tveimur þar sem fjallað er um ONDO og LINK, að beiðni hlustenda og fjallar þessi um Chainlink eða LINK. Farið er yfir sögu Chainlink, grundvallaratriði keðjunnar og narratífið í dag. Af hverju heldur gengi LINK áfram að valda vonbrigðum þrátt fyrir að tæknin sé ein sú mest notaða í heimi bálkakeðjutækninnar? Þetta og margt fleira er rætt í þessum þætti.
Sat, 07 Jun 2025 - 35min - 59 - Hvað er ONDO Finance?
Í þessum þætti er fjallað um hvernig eignir í raunheimum (Real World Assets) verða mögulega færðar yfir á bálkakeðjur. Til að mynda er Larry Fink, framkvæmdastjóri Blackrock, mjög sannfærður um þessa framtíðarsýn. Ein af mest spennandi bálkakeðjum í þessum efnum er ONDO og fara þeir félagar Björn og Kjartan á dýptina um hvað það er sem gerir ONDO spennandi og markar þeim jafnframt ákveðna sérstöðu.
Sat, 31 May 2025 - 39min - 58 - Bitcoin nær hæstu hæðum á ný - Af hverju vekur það ekki meiri athygli?
Í vikunni sem var að líða náði gengi Bitcoin 112.000 USD. Mörgum Bitcoin eigendum þykir þó sérkennilegt að fæstir gefa því mikinn gaum enn sem komið er. Í þessum þætti fara Björn og Kjartan að sjálfsögðu einnig yfir fréttir liðinnar viku, meðal annars hvernig hin ýmsu fylki Bandaríkjanna virðast í auknum mæli sjá hag sinn í því að tileinka sér Bitcoin. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Sat, 24 May 2025 - 56min - 57 - Stóri Solana þátturinn
Í þessum þætti, sem tekinn var upp 21. apríl 2025, ræða þeir félagar, Björn og Kjartan, um Solana. Farið er yfir grundvallaratriði keðjunnar, söguna, stofnandann og markmið hans og margt fleira. Björn svarar spurningum um fjárfestingu sína í SOL myntinni, til dæmis hvar hann væri spenntur fyrir að selja.
Fri, 16 May 2025 - 53min - 56 - Stóri Ethereum þátturinn
Í þessum þætti, sem tekinn var upp 21. apríl síðastliðinn, fjalla þeir félagar Björn og Kjartan ítarlega um grundvallaratriði Ethereum. Útskýra hvaða áskoranir bíða þeirra, hverjir eru helstu styrkleikar og reyna að svara þeirri spurningu hvort ástæða sé til að vanmeta ekki þá möguleika sem Ethereum býður upp á. Saga Ethereum er rakin og farið er yfir samanburð Ethereum bálkakeðjunnar við aðrar sambærilegar bálkakeðjur og margt fleira.
Fri, 09 May 2025 - 56min - 55 - Innflæði kauphallarsjóða nálgast sömu hæðir og í nóvember á síðasta ári - Er tilefni til bjartsýni gagnvart sumrinu?
Landið heldur áfram að rísa á rafmyntamörkuðum eftir því sem Bitcoin færist nær 100k verðmiðanum. Frumvarp um Bitcoin kaup Arizona-fylkis fékk samþykki bæði í fulltrúa- og öldungardeild fylkisins, en allt bendir þó til þess að ríkisstjórinn muni ekki skrifa undir frumvarpið sökum pólitískrar pattstöðu. Kauphallarsjóðir hafa verið að kaupa talsvert BTC undanfarið og er BTC eign Blackrock komin yfir 600.000 BTC. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Sat, 03 May 2025 - 1h 04min - 54 - Bitcoin nálgast 100k - Eru nautin aftur við völd?
Í þessum þætti er fjallað um hvað veldur hækkunum á gengi Bitcoin undanfarna daga. Meðal annars er fjallað um hvernig Trump virðist hafa hætt við áform sín um að reyna að víkja Jerome Powell úr embætti seðlabankastjóra. Einnig er fjallað um nýjar myntir í vöruúrvali Myntkaupa, en á dögunum bættust við SUI, HBAR og DOT.
Sat, 26 Apr 2025 - 59min - 53 - Páskaþátturinn - Trump lýsir yfir óánægju með Jerome Powell - Hvaða heimildir hefur forseti Bandaríkjanna gagnvart seðlabankastjóra?
Í þessum þætti var farið yfir fréttir síðustu viku. Landið virðist aðeins vera að rísa á rafmyntamörkuðum, þótt enn sé hræðsla ráðandi samkvæmt mælikvörðum. Donald Trump ýjaði að því í vikunni að víkja Jerome Powell úr embætti seðlabankastjóra, en óljóst virðist vera hvort hann hafi heimildir til þess. Frumvarp um Bitcoin varaforða Oklahoma fylkis var naumlega hafnað og athygli vekur að það voru þingmenn Repúblikana sem voru í meiri hluta þeirra sem sögðu nei. Til viðbótar ræða Kjartan og Björn um þeirra fjárfestingaráætlanir og hvort breyttar markaðsaðstæður kalli á breytta nálgun gagnvart rafmyntafjárfestingum.
Sat, 19 Apr 2025 - 1h 08min - 52 - Trump tekur U-beygju í tollamálum - Hvað vakir fyrir manninum?
Í þessum þætti er sjónum fyrst og fremst beint að tollaákvörðunum Trump. Segja má að markaðir hafi byrjað vikuna á því að vera lamaðir af hræðslu vegna tollaákvarðana Bandaríkjanna en réttu heldur betur við sér eftir að forsetinn tilkynnti að Bandaríkin munu fresta gildistöku nýsettra tolla í 90 daga, að undanskildum nokkrum ríkjum, þar með talið gagnvart Kína. Kjartan og Björn ræða atburðarásina og draga rökstuddar ályktanir um hvað mögulega vakir fyrir manninum með þessu öllu saman.
Sat, 12 Apr 2025 - 59min - 51 - Tollar Trumps valda titringi á mörkuðum - Hlutabréf í Bandaríkjunum í frjálsu falli - Hvernig bregst Bitcoin við?
Frétt vikunnar að þessu sinni eru umdeildar ákvarðanir forseta Bandaríkjanna um að setja tolla á öll ríki heimsins, frá 10% og upp í tæplega 50%. Hlutabréf í Bandaríkjunum hafa verið í frjálsu falli frá ákvörðuninni en hingað til hefur Bitcoin haldið sæmilega velli. Kjartan og Björn ræða um hvernig landslagið horfir við þeim og hverju þeir búast við þegar fram líða stundir.
Fri, 04 Apr 2025 - 58min - 50 - Markaðir missa flugið eftir nýlegar hækkanir - Hvað veldur?
Segja má að lítið hafi dregið til tíðinda á rafmyntamörkuðum í síðustu viku. Markaðurinn leit út fyrir að vera að undirbúa sig fyrir frekari hækkanir eftir góða byrjun, en virðist aðeins vera að missa flugið. Í þessum þætti kryfja þeir félagar, Björn og Kjartan, helstu orsakavalda, þar með talið áframhaldandi áhyggjur af tollum Bandaríkjanna, ásamt því að fara yfir helstu fréttir.
Sat, 29 Mar 2025 - 56min - 49 - SEC fellir loksins niður dómsmálið gegn Ripple - Ætlar Seðlabanki Bandaríkjanna að spýta fjármagni í markaðinn?
Í þessum þætti er farið yfir fréttir liðinnar viku. Þar má helst nefna að bandararíska verðbréfaeftirlitið felldi loks niður málsókn á hendur Ripple sem hefur staðið yfir um árabil. Þá gaf Jerome Powell, seðlabankastjóri Bandaríkjanna út að stýrivextir yrðu ekki lækkaði strax. Á hinn bóginn tók hann fram að seðlabankinn ætlaði að draga úr aðhaldi gagnvart markaðnum (Quantitative tightening) og tók markaðurinn vel í það fyrst um sinn, en síðan þá hafa hækkanir að mestu gengið til baka. Þá vaknar spurningin: Styttist í að Seðlabankinn snúi stefnunni við og fari að spýta fjármagni inn í markaðinn (Quantitative easing)?
Fri, 21 Mar 2025 - 52min - 48 - Hvað gerðist á hinum umtalaða "Crypto Summit" fundi í Hvíta húsinu? Eru Kína og Rússland farin að gera upp olíuviðskipti í Bitcoin?
Í þessum þætti fjalla Björn og Kjartan um fréttir liðinnar viku, einkum umtalaðan fund í Hvíta húsinu, svokallaðan "White House Crypto Summit". Einnig fjalla þeir um hvort sjá megi aukningu á peningamagni í umferð í heiminum og hvaða áhrif það kunni að hafa á rafmyntamarkaði. Loks er drepið á nýlegum fréttum um uppgjör olíuviðskipta milli Kína, Rússlands og Indlands í Bitcoin og öðrum rafmyntum.
Fri, 14 Mar 2025 - 58min - 47 - Fundur í Hvíta húsinu með helstu leiðtogum rafmyntageirans - Ætla Bandaríkin að fjárfesta í öðrum rafmyntum en Bitcoin?
Miklar verðsveiflur einkenndu rafmyntamarkaðinn vikuna sem er að líða. Donald Trump ýjaði að því á Truth Social að Bandaríkin ætli sér að fjárfesta í öðrum rafmyntum en Bitcoin, mögulega XRP, SOL og ADA. Þá er mikil spenna á markaðnum vegna fundar í Hvíta húsinu þar sem Donald Trump og áhrifamenn ríkisstjórnar Bandaríkjanna funda með áhrifafólki rafmyntaiðnaðarins. Kjartan og Björn ræða sín á milli hvaða ályktanir megi draga af þessu.
Sat, 08 Mar 2025 - 48min - 46 - Hræðsla grípur um sig á mörkuðum vegna látlausra lækkana - Er ástæða til að hafa áhyggjur?
Bitcoin féll í nótt undir 80k USD samhliða gríðarlegu verðfalli annarra rafmynta og "Fear and Greed Index" er kominn í 20, eða "extreme fear". Í þessum þætti fer Björn Harðarson yfir ástæður sínar fyrir því að hafa ekki áhyggjur af ástandinu heldur líta frekar á það sem tækifæri. Einnig er fjallað um stærsta rafmyntaþjófnað sögunnar, en í síðustu viku náðu tölvuþrjótar að stela tæplega einum og hálfum milljarði dollara af ETH. Þetta og margt fleira í þessum þætti!
Fri, 28 Feb 2025 - 54min - 45 - Björn Harðarson - Fréttir liðinnar viku - Forseti Argentínu flæktur í jarmmyntarhneyksli. Abu Dhabi kaupir BTC fyrir meira en 400m USD. Hafa altcoins náð botninum?
Í þessum þætti fara Kjartan og Björn yfir helstu fréttir liðinnar viku. Javier Milei, forseti Argentínu, sætir nú gagnrýni fyrir aðild í rafmyntinni LIBRA sem féll gífurlega í verði eftir skammvinnar hækkanir. Abu Dhabi tilkynnti um stór Bitcoin-kaup. Farið er vel yfir stöðuna á markaðnum og hvort tilefni sé til bjartsýni fyrir aðrar rafmyntir en Bitcoin fyrir komandi vikur. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Sat, 22 Feb 2025 - 55min - 44 - Fréttir liðinnar viku. Slæmar verðbólgutölur í Bandaríkjunum - hvaða áhrif mun það hafa á stýrivexti í Bandaríkjunum? Með Birni Harðarsyni
Í þessum þætti fara Björn og Kjartan yfir fréttir liðinnar viku. Færst hefur ákveðin ró yfir markaðinn og eru sumir byrjaðir að tala um "boring zone". Verðbólgutölur ullu vonbrigðum í Bandaríkjunum á miðvikudaginn, en verðbólga mældist 3% þar í landi, töluvert verr en spár höfðu gert ráð fyrir. Áhrif þessa og margt fleira er fjallað um í þessum þætti.
Fri, 14 Feb 2025 - 1h 00min - 43 - Mesta hreinsun crypto sögunnar | Voru 8-10 milljarðar USD þurrkaðir út aðfararnótt mánudags? Með Birni Harðarsyni
Í þessum þætti ræða Björn og Kjartan um þær lækkanir sem hafa einkennt rafmyntamarkaði undanfarnar vikur, sérstaklega aðrar rafmyntir en Bitcoin. Met var slegið aðfararnótt mánudags þar sem talað er um að allt að 8-10 milljarðar Bandaríkjadollara voru þurrkaðir út (e. liquidated). Eru hin umtöluðu Trump áhrif að snúast í andhverfu sína? Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Sun, 09 Feb 2025 - 59min - 42 - Kristján Ingi Mikaelsson, meðstofnandi Visku Digital Assets og stjórnarformaður Rafmyntaráðs.
Kristján Ingi mætti í fyrsta skipti í hlaðvarpið. Fáir, ef einhverjir, hafa haft jafnmarga snertifleti við rafmyntir á íslenskum markaði og Kristján. Hann hefur jafnframt talað fyrir Bitcoin á opinberum vettvangi í hartnær áratug. Í þessum þætti er farið yfir vegferð hans í heimi rafmynta og hann deilir með hlustendum sínum viðhorfum um Bitcoin og markaðinn. Mælum eindregið með hlustun!
Sat, 01 Feb 2025 - 1h 22min - 41 - Trump svarinn í embætti og byrjar með látum. Hvað í veröldinni er Trump Coin og hvernig hefur Trump farið af stað? Með Birni Harðarsyni
Í þessum þætti er einkum fjallað um atburði vikunnar sem er að líða og fyrirbærið sem Trump Coin er og áhrifin sem það hefur haft á markaðinn. Björn er ekki ýkja hrifinn af framtaki forsetans að gefa út jarmmynt, en telur þó langtímaáhrifin ekki neikvæð. Þetta og margt fleira er fjallað um í þessum þætti.
Sat, 25 Jan 2025 - 58min - 40 - Hvernig bregst rafmyntamarkaðurinn við fyrstu embættisdögum Trump? Með Birni HarðarsyniSun, 19 Jan 2025 - 55min
- 39 - Daði Laxdal Gautason hjá Sisu Group
Í þessum þætti fengum við Daða Laxdal, framkvæmdastjóra vöruþróunar hjá Sisu Group, sem starfrækir meðal annars Epicbet. Daði fjallar um sína vegferð í heim rafmynta og hvernig vöxturinn hefur verið hjá rafmyntum á sviði veðmála. Fjallað var um veðmál Íslendinga á kosningarnar í nóvember og margt fleira.
Sat, 21 Dec 2024 - 49min - 38 - Heldur altcoin season áfram? Með Birni HarðarsyniSat, 14 Dec 2024 - 1h 06min
- 37 - Brynjar Páll - Allt um Cardano
Í þessum þætti ræðir crypto fjárfestirinn og Cardano maðurinn um grundvallaratriði Cardano bálkakeðjunnar. Farið er yfir víðan völl, þar á meðal er saga keðjunnar rakin, fjallað er um stofnanda keðjunnar, Charles Hoskinson, ásamt því að Brynjar skýrir frá sinni framtíðarsýn gagnvart Cardano. Ef þú hefur áhuga á Cardano er þetta skylduhlustun!
Fri, 06 Dec 2024 - 1h 08min - 36 - Er altcoin season hafið? Með Birni HarðarssyniFri, 29 Nov 2024 - 1h 11min
- 35 - 40% hækkun á gengi Bitcoin í nóvember - Er hægt að hundsa Bitcoin mikið lengur? Með Birni Harðarsyni
Engu líkara er en að Donald Trump sé að setja saman Bitcoin-ríkisstjórn fyrir næsta kjörtímabil. Michael Saylor heldur áfram að kaupa BTC eins og óður maður og fleiri fyrirtæki fylgja eftir hans fordæmi. Solana nær hæstu hæðum og almenningur virðist vera að byrja að kveikja á perunni. Þetta og margt fleira ræðir Kjartan við Björn í þessum þætti.
Fri, 22 Nov 2024 - 1h 06min - 34 - Bitcoin nálgast $100.000. Ætlar ríkissjóður Bandaríkjanna að kaupa 1.000.000 BTC næstu 5 ár? Með Birni Harðarsyni
Atburðarás í heimi rafmynta hefur verið vægast sagt svakaleg undanfarna daga og nú er útlit fyrir að ríki heimsins þurfi að taka afstöðu til þess hvort þau ætli að hafa Bitcoin sem hluta af varaforða sínum. Með fullnaðarsigri Repúblikana yfir báðum deildum þingsins velta margir því fyrir sér hvort frumvarp öldungardeildarþingmannsins Cynthia Lummis þess efnis nái fram að ganga. Kjartan og Björn brjóta þetta viðfangsefni til mergjar í þessum þætti.
Sat, 16 Nov 2024 - 57min - 33 - Bitcoin rýfur hæstu hæðir eftir nýafstaðnar forsetakosningar í Bandaríkjunum. Er $100.000 verðmiði framundan? Með Birni HarðarsyniFri, 08 Nov 2024 - 58min
- 32 - Halldór Armand, rithöfundur ræðir nýútgefna bók sína, Mikilvægt rusl.
Í þessum þætti ræða Halldór og Kjartan saman um bókina Mikilvægt rusl, sem er stórskemmtileg kómedía með Bitcoin ívafi og líklega fyrsta bókin á íslenskum markaði sem hægt er að kaupa fyrir Bitcoin. Einnig ræða þeir félagar um vegferð Halldórs sem rithöfundar og hvernig það kom til að hann varð hugfanginn af Bitcoin.
Mon, 04 Nov 2024 - 1h 07min - 31 - Staðan tekin á helstu rafmyntum. Kosningar væntanlegar í BNA. Er Bitcoin að fara yfir $70.000 í október? - Með Birni HarðarsyniFri, 25 Oct 2024 - 57min
- 30 - Bolamarkaðurinn er farinn af stað. Altseason handan við hornið - Með Birni HarðarsyniSat, 28 Sep 2024 - 1h 04min
- 29 - Rússíbanareið á rafmyntamörkuðum - Svartur svanur eða hvað?Fri, 09 Aug 2024 - 1h 03min
- 28 - Hræðsla á mörkuðum vegna Mt. Gox - Er ástæða til að hafa áhyggjur? - Björn Harðarson mætir í settiðFri, 05 Jul 2024 - 1h 07min
- 27 - Björn Harðarson ræðir Solana og fleiri myntir | Hvað er framundan?
Í þessum þætti fórum við yfir það helsta í heimi rafmynta sem gerst hefur eftir helmingunina 19. apríl, ásamt því að fjalla um lykilatriði þeirra rafmynta sem eru að bætast við vöruúrval Myntkaupa.
Björn fer á dýptina og greinir helstu rafmyntir í þaula. Mælum eindregið með fyrir þá sem hafa áhuga á öðrum rafmyntum.
Fri, 07 Jun 2024 - 1h 21min - 26 - Fréttahornið: SEC samþykkir Ethereum kauphallarsjóði og rafmyntir fá byr undir báða vængi í bandarískum stjórnmálum
Í þessum þætti er fjallað um nýfengið samþykki bandaríska verðbréfaeftirlitsins á Ethereum kauphallarsjóðum (Spot ETF), en Bitcoin kauphallarsjóðir fengu samþykki hjá SEC í janúar á þessu ári. Einnig er fjallað um vendingar í bandarískum stjórnmálum en þar eru nokkuð sterk teikn á lofti um að stjórnmálamenn beggja flokka sjái sér tækifæri í því að taka upp málstað rafmynta þar sem sífellt stækkandi hluti almennings stundar nú viðskipti með rafmyntir.
Mon, 27 May 2024 - 05min
Podcasts ähnlich wie Hlaðvarp Myntkaupa
Friday Night Comedy from BBC Radio 4 BBC Radio 4
Historie českého zločinu Český rozhlas
RADIO MUZYKA CM. TAKOS
Fængsel DR
Drogowskazy Eska ROCK
C dans l'air France Télévisions
Forensic Files HLN
Forensic Files II HLN
Stuff You Should Know iHeartPodcasts
Bag om København Københavns Biblioteker
Kryminalne Historie Kryminalne Historie
Zloději životů Novinky.cz
Snapped: Women Who Murder Oxygen
Solo Salsa Ricky Montana
Sceny zbrodni RMF FM
Laurent Gerra RTL
Tout un monde ‐ RTS Première RTS - Radio Télévision Suisse
Frjálsar hendur RÚV
Í ljósi sögunnar RÚV
Mannlegi þátturinn RÚV
Sögur úr raunveruleikanum RÚV Hlaðvörp
Skuggavaldið skuggavaldid
Żurnalista - Rozmowy bez kompromisów zurnalistapl
Andere Geschäft Podcasts
The Diary Of A CEO with Steven Bartlett DOAC
The Jamie Kern Lima Show Jamie Kern Lima
All Ears English Podcast Lindsay McMahon and Michelle Kaplan
Good Bad Billionaire BBC World Service
Børsmorgen & Økonominyhetene Finansavisen
Tanguy Pastureau maltraite l'info France Inter
The Munk Debates Podcast Munk Foundation / iHeartRadio
財經一路發 News98
下班經濟學 風傳媒
손에 잡히는 경제 MBC
مُلخص كتاب Podcast Record
Eyjan Eyjan
Contas-Poupança Pedro Andersson
Dj candela Metiendo fuego Djcandela
HBR On Strategy Harvard Business Review
Web Strategy Academy Ford's Web Help
Antigua Grecia Estephani Cipriano
Economía Para Todos esRadio
Sommarprat Jonna Persson
Rock Rock Domingos

