Filtra per genere
Gömlu vinkonurnar Lolla og Linda setjast niður og fræða hvor aðra um tónlist og merkilegar konur. Lolla sem er djúpvitur tónlistargúrú segir frá framúrskarandi konum úr tónlistarheiminum og í seríu 3 segir hún frá hinum ýmsu tónlistarstefnum og merkum atburðum í tónlistarsögunni.
Safnakerlan Linda dregur hins vegar fram sögur af spennandi konum í ljósmyndun.
Þið finnið okkur líka á Facebook og getið hlustað á þættina okkar á Spotify, Apple Podcast og fjölmörgum öðrum hlaðvarpsveitum
- 132 - 32) Soundgarden
Late 80´s var Seattle bara útnári þar sem að ekkert var að gerast og þangað sem enginn fór sem ekki átti erindi en í bílskúrum og kjöllurum víðsvegar um borgina voru hljómsveitir að spila sem áttu svo eftir að leggja heiminn að fótum sér. Soundgarden eru alltaf nefndir sem einn af fjórum risum grunge tímabilsins og sú hljómsveit sem best náði að brúa bilið á milli alternative tónlistar og heavy metal.
Wed, 16 Sep 2026 - 131 - 31) George Michael
Hvað svo sem sumum okkar, og þar á meðal mér, finnst um Wham! þá getur enginn sagt annað en að George Michael hafi verið frábær söngvari og líka lagahöfundur og oft vanmetinn sem slíkur. Hann gaf ekki út margar sólóplötur á ferlinum en þar er að finna fjöldan allan af ódauðlegum popp lögum. Hann átti við allskonar vandamál að stríða seinni hluta æfinnar og lést langt um aldur fram 2016 aðeins 53 ára gamall.
Wed, 08 Jul 2026 - 130 - 30) Guns ´n´ Roses - The Most Dangerous Band in the World
Margir segja að Guns ´n´ Roses séu síðasta risa rokk bandið sem komið hefur fram á sjónarsviðið. Þeir spiluðu sína blöndu af pönki, blues og classic rock og komu með, eins og einhver sagði "danger, attitude and legitimacy" þegar hair metalið hafði gengið allt of langt í hárspreyi og eyliner. Þó þeir hafi bara gefið út 4 stórar plötur með frumsömdu efni á öllum sínum ferli þá er hljómsveitin enn að fylla stórar íþróttahallir út um allan heim og það er hægt að velta fyrir sér hversu mikið...
Wed, 20 May 2026 - 129 - 29) Lou Reed - Með og án Velvet Underground
Einhver blaðamaðurinn sagði um Lou Reed: Það eru til allskonar áhrifavaldar. Sumir hafa áhrif á ákveðna bylgju tónlistar meðan aðrir hafa áhrif á ákveðna kynslóð. Áhrif Lou Reed náðu langt út fyrir eina tónlistarbylgju eða eina kynslóð heldur náði hann að setja sitt mark á allt frá pönkinu á fyrri hluta 8. áratugarins og öllu sem á eftir því fylgdi yfir í alternative rock 10. áratugarins
Tue, 21 Apr 2026 - 128 - 28) Metallica
Metallica er án nokkurs vafa ein áhrifamesta og goðsagnakenndasta metal hljómsveit sögunnar. Ferill þeirra spannar áratugi og milljónir aðdáenda um allan heim hafa hlustað á lögin þeirra, mætt á tónleika og keypt plötur allar götur síðan Kill ´em all kom út. Saga Metallica er saga þrautsegju og ástríðu fyrir tónlistinni og þeir hafa alltaf haldið ótrauðir áfram sama hvað á hefur dunið
Thu, 26 Mar 2026 - 127 - 27) Billy Idol - Breski pönkarinn sem fann frægð og frama í Bandaríkjunum
Billy Idol er eflaust ein af mest áberandi persónum 9. áratugarins í tónlistarbransanum. Það þekkja allir ljósa aflitaða hárið, rámu röddina og glottið sem hann var alltaf með á andlitinu. En hann vann fyrir þessu öllu. Hann flytur frá Bretlandi til Bandaríkjanna með ekkert í höndunum annað en drauminn um að öðlast frægð og frama sem tónlistarmaður og það tókst honum svo sannarlega. Hann var réttur maður á réttum stað á réttum tíma og ásamt útlitinu og grípandi pop/rock lögunum þá var e...
Mon, 23 Feb 2026 - 126 - 26) Aerosmith
Aerosmith eru risastór áhrifavaldur á heila kynslóð rokktónlistarmanna í Bandaríkjunum hvort sem það eru Guns´n´Roses, Van Halen eða Skid Row. Í heil 56 ár hefur hljómsveitin starfað og nánast allan þann tíma með sömu meðlimunum sem byrjuðu að spila saman í íbúðinni sem þeir deildu í Boston sem er alveg ótrúlegt miðað við lífernið. Að þeir séu allir ofan moldu í dag, komnir á áttræðisaldur er hreint magnað.
Mon, 02 Feb 2026 - 125 - 25) Duran Duran
Á sínum 48 ára ferli hafa Duran Duran farið frá því að vera ein vinsælasta hljómsveit heims með með hysterískar unglingsstelpur við hvert fótmál yfir í að vera droppað af þrem mismunandi útgáfufyrirtækjum og vera skítblankir og skulda svimandi háar upphæðir. En sama hvað á dundi þá komu þeir alltaf til baka og er hljómsveitin í dag enn skipuð fjórum af fimm uprunalegu meðlimunum og er enn í fullu fjöri.
Mon, 12 Jan 2026 - 124 - 24) Van Halen
Fyrsta plat Van Halen kom út í febrúar 1978 og rokktónlistin varð aldrei söm aftur. Hún kom eins og skrattinn úr sauðarleggnum inn í tónlistarumhverfi þar sem var disco annars vegar og pönk og nýbylgja hins vegar og ruddi veginn fyrir það sem á eftir kom og dró gítarhetjuna og flamboyant söngvarann aftur fram í sviðsljósið auk þess að sýna að gleði og húmor áttu alveg heima í rokktónlist
Wed, 10 Dec 2025 - 123 - 23) KISS - The hottest band in the land!
KISS hafa verið með okkur í 52 ár og eru ekkert að fara. Þó að tónlistarpressan hafi hatað hljómsveitina allan hennar feril þá létu þeir það ekkert á sig fá og það eru ófáir tónlistarmennirnir sem hafa verið KISS aðdáendur á unglingsárunum og margir eru það enn. En KISS eru ekki bara hljómsveit heldur heimsþekkt vörumerki sem metið er á um 300 milljónir dollara
Mon, 17 Nov 2025 - 122 - 22) Prince - Margur er knár þó hann sé smár
Það eru engar ýkjur að kalla Prince einn áhrifamesta, hæfileikaríkasta og jafnframt afkastamesta tónlistarmann okkar tíma. Hann virtist geta spilað á hvaða hljóðfæri sem var og lögin sem hann samdi teljast í þúsundum. Tónlistin sem hann gaf út spannar allt frá disco, synth poppi og r´n´b til jazz, funk og acid rock og hafa plötur hans selst í um 150 milljón eintökum um allan heim sem gerir hann að einum af söluhæstu tónlistarmönnum allra tíma.
Wed, 22 Oct 2025 - 121 - 21) Bon Jovi
Hljómsveitin Bon Jovi er búin að vera starfandi samfleytt í 42 ár og innihelddur enn þrjá af upprunalegu meðlimunum. Það virðist vera alveg sama hvaða nýju straumar og stefnur koma og fara í tónlistinni, ekkert virðist trufla vinsældir Bon Jovi og þeir standa allt af sér. Ætli galdurinn sé bara ekki sá að geta endalaust samið grípandi lög sem límast við heilann í þér og áður en þú veist af ertu farinn að syngja hástöfum með.
Wed, 01 Oct 2025 - 120 - 20) Ozzy Osbourne - The Prince of Darkness
Ferill Ozzy Osbourne spannaði 6 áratugi. Hann varð stjarna með Black Sabbath á áttunda áratugnum, hóf gríðarlega farsælan sólóferil á níunda áratugnum, gerðist þungarokksfrumkvöðull á tíunda áratugnum með Ozzfest tónlistarhátíðinni og árið 2002 varð hann raunveruleikasjónvarpsstjarna, þökk sé MTV þáttunum The Osbournes. Í sínum villtustu draumum hefur hann örugglega ekki séð þetta fyrir sér þegar hann var að alast upp í litlu tveggja herbergja íbúðinni í Birmingham þar sem 8 manna...
Tue, 02 Sep 2025 - 119 - 19) Bruce Springsteen
Ferill Bruce Springsteen spannar 6 áratugi og hefur hann gefið út 21 stúdíóplötu auk óendalegs magns af safnplötum, live plötum og allskonar box settum sem eru stútfull af lögum sem honum fannst á þeim tíma ekki passa á neina af þeim plötum. Skilgreiningin "heartland rock" hefur verið notuð fyrir tónlist hans þar sem hann tvinnar saman rokktónlist og samfélagslega meðvitaða texta sem endurspegla líf þess fólks sem tilheyrir hinum vinnandi stéttum í Bandaríkjunum og oftast fá litla athygli
Wed, 13 Aug 2025 - 118 - 18) Ramones - Hey ho, let's go!!
Þegar Ramones koma fram á sjónarsviðið í byrjun 8. áratugarins færðu þeir rokkið aftur til upprunans og komu í leiðinni með uppskriftina að pönkinu. Lögin voru einföld og hröð og helst ekki mikið lengri en 2 mínútur. Það væri mjög margt öðruvísi í tónlistarheiminum ef Ramones hefði aldrei notið við. En þó þeir hafi haft gríðarleg áhrif á ekki bara einstaka hljómsveitir og tónlistarfólk heldur á heilu tónlistarstefnurnar þá fengu þeir aldrei þá viðurkenningu sem þeir svo sannarlega áttu skilið...
Mon, 09 Jun 2025 - 117 - 17) Eurovision - Saga keppninnar til dagsins í dag
Eurovision er stórmerkilegt menningarfyrirbæri og stundum veit maður ekki hvort maður er að horfa á grínþátt eða háalvarlega söngvakeppni. En það er einmitt það sem gerir þetta svo heillandi. En hvernig byrjaði þetta ævintýri allt saman? Af hverju er Ísrael með í keppni sem heitir Söngvakeppni Evrópskra Sjónvarpsstöðva? Og af hverju vinnur Svíþjóð?
Mon, 12 May 2025 - 116 - 16) Depeche Mode
Þeir voru kallaðir synthesiser boy band af Bresku pressunni og Bay City Rollers of the electronic age, þegar hljómsveitin var að byrja að vekja athygli. Nintendo tónlist spiluð með einum fingri myndi ég skilgreina tónlistina sem þeirra þarna fyrstu árin. En svo skánaði þetta með hverri plötunni 45 árum síðar, þar sem tískustraumar hafa komið og farið og tónlistarstefnur risið og fallið eru Depeche Mode enn relevant og enn að gefa út plötur og án þeirra hefðum við kannski ekki Nine Inch Nails ...
Mon, 21 Apr 2025 - 115 - 15) Black Sabbath
Þann 5. júlí næstkomandi munu allir upprunalegu meðlimir Black Sabbath stíga á svið í síðasta skiptið á stórtónleikum á Villa Park í Birmingham...ef enginn þeirra hrekkur upp af áður en að þar að kemur. Því er ekki úr vegi að fara í gegn um skrautlegan feril þessarar hljómsveitar sem er án nokkurs vafa ein áhrifamesta rokkhljómsveit allra tíma.
Thu, 27 Mar 2025 - 114 - 14) Phil Spector og "The wall of sound"
Það fór aldrei á milli mála að Phil Spector var hæfileikaríkur. Hann hlóð saman hverju hljóðfærinu ofan á annað og bjó til þetta fyrirbæri sem er kallað "Wall of sound" og dæmi um það er lagið "River deep, mountain high" með Tinu Turner sem væntanlega allir þekkja. Brian Wilson var mikill aðdáandi Spectors og tók þessa hugmynd hans yfir í Beach Boys og Jim Steinman hlustaði örugglega mjög vel og vandlega á það sem hann hafði gert þegar hann gerði plötuna "Bat out of hell" með Meat Loaf. En Sp...
Mon, 10 Mar 2025 - 113 - 13) Iggy Pop - Ber að ofan í rúmlega hálfa öld
Iggy Pop er búinn að vera að gefa út tónlist síðan 1969. Hann hefur verið kallaður "the godfather of punk" og án hans og The Stooges væri örugglega ýmislegt öðruvísi. Hann átti mjög farsælt samstarf við David Bowie, hefur gert ambient jazz plötu, komið fram fyrir hönd Madonnu á innsetningarathöfn hennar í Rock´n´roll hall of fame og gaf út sína vinsælustu plötu þegar hann var orðinn 69 ára gamall. Og sögurnar af honum og hans stór furðulegu uppátækjum eru óteljandi.
Thu, 20 Feb 2025 - 112 - 12) Grunge: Seattle, flannelskyrtur og hermannaklossar
Þegar 70´s rock og punk eignuðust afkvæmi varð útkoman grunge og þetta gerðist í Seattle af öllum stöðum í heiminum. Borg sem fram að þessu hafði verið þekktust fyrir rigningu, ryðgaðar brýr og aðeins of mikið af efnum sem voru ekki holl fyrir neinn. Meðan hair metalið var að tröllríða öllu þá var hrátt gítarrokk með óþarflega þunglyndislegum textum að spretta úr kjöllurum og bílskúrum í þessari borg sem enginn fór til nema eiga nauðsynlega erindi þangað og eins og hendi væri veifað ska...
Thu, 06 Feb 2025 - 111 - 11) CBGB - Litla sóðabúllan á Manhattan sem varð vagga pönksins og nýbylgjunnar
CBGB var miklu meira en bara einhver sóðabúlla með veggjagroti og brotnum klósettum. Í 33 ár átti grasrót rokktónlistar í New York þar sinn samastað og fékk tækifæri til að vaxa og dafna og þar réði sköpunargleðin ríkjum. Þar áttu sitt athvarf allt frá Ramones og Blondie til Patti Smith, Talking Heads og Bad Brains.
Wed, 22 Jan 2025 - 110 - 10) ABBA
ABBA var á sínum gullaldarárum ein allra vinsælasta hljómsveit heims. Þó að hljómsveitin hafi algerlega legið í dvala í einhver 35 ár þá var hún langt frá því gleymd og grafin. Það voru allsstaðar ABBA laumuaðdáendur og komu þeir út úr öllum skúmaskotum þegar safnplatan ABBA Gold var gefin út 1992. Síðan þá hefur hljómsveitin gengið í algerlega endurnýjun lífdaga þar sem gerðar hafa verið bíómyndir byggðar í kring um lögin þeirra, gríðarlega vinsæll söngleikur og núna síðast sýndarverul...
Wed, 08 Jan 2025 - 109 - 9) Þegar Bretar uppgötvuðu blues: Frá Alexis Korner til Led Zeppelin
Hvernig kom það til að Bandarísk blues tónlist náði jafn kirfilega að festa sig í sessi í Bretlandi í byrjun 7. áratugarins og raunin varð á? Tónlist sem engin hefð var fyrir þar í landi, var ekki spiluð þar í útvarpi og var bara fáanleg á plötum eftir krókaleiðum? Sérstaklega þegar horft er til þess að það var engin stemming fyrir blues tónlist í heimalandinu og þeir sem enn ströggluðu við að spila þá tónlist þar rétt skrimtu. Breskir tónlistarmenn tóku ekki bara bluesinn upp á sína arma hel...
Wed, 11 Dec 2024 - 108 - 8) Motown: Litla útgáfan í Detroit sem breytti tónlistarsögunni
Motown útgáfan var stofnuð í Detroit 1959 og á örfáum árum hafði hún breytt tónlistarsögunni. Þar lögðust allir á eitt við að skapa þetta sérstaka sound sem kennt hefur verið við Motown og stórsmellirnir runnu þaðan á færibandi. Frá Motown hafa komið óendanlega mörg lög sem eru löngu orðin klassísk popp lög og við þekkjum öll flytjendur eins og Supremes, Jackson 5, Marvin Gaye og Stevie Wonder
Thu, 28 Nov 2024 - 107 - 7) Britpop - Suede, Oasis, Blur og Cool Britannia
Britpoppið kom fram á sjónarsviðið í Bretlandi fyrri hluta 10. áratugarins. Það var efnahagsuppgangur og aukin bjartsýni hjá ungu fólki í landinu. Bæði tónlistin og textarnir sóttu fyrirmyndir í eldri Breskar hljómsveitir og til Breskrar menningar og það að vera Breti var eitthvað til að vera stoltur af. Og allir voru rosa hressir alla vega til að byrja með nema auðvitað Gallagher bræðurnir. Og við sem vorum á áhrifasvæði Breskrar menningar tókum hljómsveitum eins og Blur, Suede, Oasis ...
Wed, 13 Nov 2024 - 106 - 6) Þegar 80´s synth poppið tók yfir heiminn
Hvað dettur okkur fyrst í hug þegar við hugsum um 80´s? Væntanlega herðapúðar, grifflur, marglitir jogginggallar, rosalega blásið og túberað hár, Miami Vice og rifrildið um hvor væri betri Duran Duran eða Wham. Og svo auðvitað synth allt poppið þar sem að magn og gæði fóru ekki alltaf saman, alla vega þegar líða fór á. Í þessum þætti er farið í gegn um það hvaðan synth poppið kom og hverjum datta þetta eiginlega í hug og hvernig, með aðstoð MTV Breskar hljómsveitir yfirtóku Bandaríkin og brei...
Wed, 30 Oct 2024 - 105 - 5) Laurel Canyon - Þar sem tónlistin hljómaði úr hverju húsi og tónlistarsagan var skrifuð
Frá 1965 til 1979 var Laurel Canyon staðurinn þar sem að ungar og upprennandi tónlistarstjörnur bjuggu. Þar var nóg af lausu húsnæði á góðu verði og eftir að Chris Hillman og Roger McGuinn, sem þá höfðu nýlega stofnað The Byrds, settust þar að fylgdi fjöldi annara tónlistarmanna á eftir. Þú gast átt von á því að sjá Jim Morrison hjóla eftir götunum og hitt Framk Zappa og Alice Cooper í hverfisbúðinni. Allir voru að semja og spila tónlist. En ýmislegt átti eftir að hrista upp í samfélaginu þar...
Wed, 16 Oct 2024 - 104 - 4) Punk - Hvaðan kom það og hvert fór það?
Punkið kom eins og stormsveipur inn í staðnaða og sjálfhverfa tónlistarsenu 8. áratugarins og spörkuðu hressilega í rassinn á öllum uppskrúfuðu og veruleikafyrrtu rokkstjörnum þess tíma sem sátu í villunum sínum og mokuðu í sig kókaíni. Punkið ætlaðist ekki til að þú sætir inni í herbergi og æfðir þig í 5 ár áður en þú stofnaðir hljómsveit. Stofnaðu hljómsveit strax og lærðu á hljóðfærið um leið. En hvaðan tók punkið fyrirmyndir sínar? Alla vega ekki frá Emerson, Lake and Palmer s...
Wed, 02 Oct 2024 - 103 - 3) Þegar allir dönsuðu diskó
Þeir sem að voru unglingar upp úr 1977 fóru væntanlega ekki varhluta af diskó æðinu sem þá gekk yfir. Það voru haldin diskó kvöld í öllum skólum og danskennarar upplifðu líklega sína mestu gósen tíð því allir vildu kunna réttu sporin. Og það var enginn svalari en John Travolta að gera mjaðmahnykki í hvítu jakkafötunum sínum. En nokkrum árum síðar var diskóið horfið af sjónarsviðinu og hafði sums staðar alla vega verið sprengt í loft upp, bókstaflega. En hvaðan kom það og dó það alveg?
Wed, 18 Sep 2024 - 102 - 2) Rolling Stones og Altamont Festivalið: Þar sem Hells Angels héldu öllu í heljargreipum og hugsjón hippanna dó
The Altamont Speedway Free Festival var haldið á samnefndri kappakstursbraut skammt frá bænum Tracy í Kaliforníu 6. desember 1969 að undirlagi Rolling Stones með aðkomu Greatful Dead og nokkura annara hljómsveita úr tónlistarsenunni í San Fransisco. Það sem flestir höfðu vonast til að yrði einhverskonar Woodstock West, þar sem ást og friður myndu svífa yfir vötnunum varð eitthvað allt annað og kallaði Rolling Stone tímaritið Altamont versta dag í sögu rokktónlistarinnar. Allt sem ...
Thu, 05 Sep 2024 - 101 - 1) 80´s Hair Metal: Spandex, hárlakk og eyeliner
80´s hair metal var "Nothin´ but a good time" eins og Poison komust svo skemmtilega að orði. Allir sungu um kvenfólk, partý og áfengi og að skemmta sér var ófrávíkjanleg regla. Enginn pældi í morgundeginum og allt, sem var þess virði að gera, mátti klárlega ofgera. Ekkert hair metal band með sjálfsvirðingu lét sjá sig í öðru en leðri, spandex og blúndum og berar bringur voru þeirra vörumerki. Allir voru með eyeliner, maskara, kinnalit og sítt hár og það var ekkert til sem hét of ...
Tue, 04 Jun 2024 - 100 - 100) Fljúgum hærra - Íslenskar konur 1985
Ljósmyndasýningin Augnablik árið 1985, var líkt og heróp til íslenskra kvenna um að þora að stökkva fram í sviðsljósið og sýna að þær væru jafn góðir ljósmyndarar og karlmenn. Meira en 20 konur sýndu ljósmyndir í Nýlistasafninu og þarna ægði saman verkum mjög ólíkra ljósmyndar. Jóhanna Ólafsdóttir, Svala Sigurleifsdóttir og Valdís Óskarsdóttir voru í fararbroddi en þarna sýndu líka fullt af ljósmyndurum sem áttu langan ferl eða sumar sem hurfu alveg af radarnum. Besta bransasaga á...
Thu, 11 Apr 2024 - 99 - 99) Fljúgum hærra - Janis Joplin
Janis Joplin gaf ekki út nema 4 plötur á sínum stutta ferli og þar af tvær sem bara söngkonan í hljómsveitinni Big Brother and the Holding Company. Við erum enn að hlusta á þessar plötur, 53 árum eftir andlát hennar, jafn heilluð af þessari mögnuðu, tilfinningaþrungnu rödd. En fyrir innan harða skelina var viðkvæm manneskja sem þráði ást og viðurkenningu og að gera foreldra sína stolta en því miður þá gekk það ekki alltaf upp hjá henni.
Wed, 03 Apr 2024 - 98 - 98) Fljúgum hærra - Edith Tudor-Hart. Ljósmyndarinn og njósnarinn
Edith Tudor-Hart var ljósmyndari sem barðist fyrir félagslegu réttlæti og jöfnuði. Hún flúði frá heimalandi sínu, Austurríki þegar nasistar komust til valda og átti framtíðina fyrir sér sem ljósmyndari í Bretlandi. En líf þessarar konu var vægast sagt óvenjulegt og ljósmyndaferilinn fór hálfvegis í vaskinn því Edith lifði tvöföldu lífi og var um tíma elt á röndum af Bresku leyniþjónustunni. Í dag eru margir ákafir í að vita meira um æfi þessarar hugsjónakonu og verk hennar á sviði...
Thu, 28 Mar 2024 - 97 - 97) Fljúgum hærra - Madonna
Í 40 ár hefur Madonna setið í sínu hásæti sem drottning popptónlistarinnar. Madonna er alls staðar; í sjónvarpi, í útvarpi, á forsíðum tímarita og jafnvel í bókabúðum. Hún er sérfræðingur í að halda sjálfri sér í umræðunni. Æðið í kring um Madonnu var eitthvað sem hafði ekki sést síðan á tímum Bítlanna og allan þennan tíma hefur hún náð að feta þessa mjóu línu á milli þess að vera trendy og commercial.
Wed, 20 Mar 2024 - 96 - 96) Fljúgum hærra - Ylla og dýrin stór og smá
Myndir þú fara inni í búr og girðingar með dýrunum í dýragarði til að ná góðum ljósmyndum? Líklegast ekki. En þetta og meira til gerði hin ungverska Ylla (Camilla Koffler) sem sérhæfði sig í ljósmyndun dýra og hlaut verulega frægð sem slíkur ljósmyndari snemma á 20. öld. Meðan aðrir í faginu notuðu myndavélina til að berjast gegn ranglæti og kúgun fasista eða gerðust súríalistar þá notaði Ylla myndavélina til að færa sig eins langt inn í heim dýra og hún komst. Myndir ...
Wed, 13 Mar 2024 - 95 - 95) Fljúgum hærra - Cher
Enginn í sögu skemmtanabransans hefur átt viðlíka feril og Cher. Hún var unglingapoppstjarna, sjónvarpsþáttastjórnandi, tískuicon, rokkstjarna, poppsöngkona, discodíva og vinsælt umfjöllunarefni fjölmiðla í áratugi. Hún hefur selt yfir 100 milljón eintök af plötum á heimsvísu og er ein af þeim fáu sem hefur unnið Emmy, Grammy og Óskarsverðlaun.
Wed, 06 Mar 2024 - 94 - 94) Fljúgum hærra - Graciela Iturbide og frumbyggjar Mexíkó
Síðhærð frumbyggjakona af Seri ætt gengur í eyðilegu landslagi með kassettutæki í hendi og á öðrum stað löngu seinna fer Zapotec kona á markað bæjarins með fjölmargar eðlur á höfðinu. Þetta eru tvær frægar ljósmyndir sem Graciela Iturbide færði okkur frá heimalandi sínu Mexíkó. Graciela lagði sig fram um að mynda samfélög frumbyggja í Mexíkó og oftar en ekki var það veröld kvenna sem heillaði hana. Sú stóra sorg í lífi hennar þegar dóttir hennar deyr aðeins 6 ára gömul...
Wed, 28 Feb 2024 - 93 - 93) Fljúgum hærra - Nico (Velvet Underground)
Hún hafði verið fyrirsæta fyrir Chanel, Elle og Vogue , leikið fyrir Fellini og Andy Warhol, sungið með The Velvet Underground og gert sólóplötur sem taldar eru fyrirmynd goth hljómsveita 9. áratugarins. Hún hitti alla og þekkti alla en glataði öllu og dó ein á sjúkrahúsi á Ibiza þar sem starfsfólkið sá hana bara sem enn einn dópistann að enda sitt ömurlega líf. Dramatískari getur æfi einnar manneskju varla verið en æfi Nico var.
Wed, 21 Feb 2024 - 92 - 92) Fljúgum hærra - Louise L. Serpa og rodeo
Kúrekar á ótemjum og draumsýnin um villta vestrið dró yfirstéttarstelpuna Louise L. Serpa út í það að ljósmynda rodeó sýningar. Hún hóf ferilinn seint og lærði aldrei ljósmyndun en náði 48 árum í bransanum og varð eitt þekktasta andlit ródeóljósmyndara Bandaríkjanna. Hún er ein af þessum konu sem braut múra. Í hennar tilfelli varð hún fyrst kvenna til að fara inn á sjálfan rodeóvöllinn að mynda; þetta var árið 1963. Sama ár trakðaði naut á henni en þessi tveggja barna einstæða móðir lé...
Wed, 14 Feb 2024 - 91 - 91) Fljúgum hærra - PJ Harvey
Polly Jean Harvey er sveitastelpa frá Dorset á suður-Englandi. Hún fór í listanám en ekki í tónlist heldur í höggmynda- og leirlist. Tónlistin var bara skemmtilegt hobbý til að byrja með. En meira en 30 árum og 10 plötum og ótal öðrum tónlistarverkefnum seinna er PJ Harvey enn að. Markmiðin eru enn jafn háleit og þrjóskan við að endurtaka sig aldrei er enn til staðar. Hún hefði aldrei enst í AC/DC
Wed, 07 Feb 2024 - 90 - 90) Fljúgum hærra - Catherine Leroy í Víetnam
Smávaxin ung frönsk kona með fléttur í hárinu, glænýja Leicu um hálsinn og 200 dollara í vasanum keypti sér, árið 1966 flug til Víetnam aðra leið til að byrja þar feril sinn sem stríðsfréttaljósmyndari. Flestir héldu að annað hvort gæfist hún upp eða væri dauð áður en árið væri liðið. Þetta var Catherine Leroy. Stríðið í Víetnam breytti henni fyrir lífstíð og hún átti einstakan og langan feril sem stríðsfréttaljósmyndari. Catherine var með það á heilanum að verða fyrsta konan til...
Wed, 31 Jan 2024 - 89 - 89) Fljúgum hærra - Adele
Adele skaust upp á stjörnuhimininn aðeins 19 ára gömul meða samnefndri plötu. Það er eitthvað við lögin hennar sem náði að höfða til milljóna manna út um allan heim og hún hafði söngrödd sem fékk fólk til að fá gæsahúð við að hlusta. Þó að hún sé bara a 35 ára og hafi aðeins gefið út 4 sólóplötur þá er hún með söluhæstu tónlistarmönnum í heimi hafandi selt yfir 120 milljón eintök af þessum 4 plötum sínum á heimsvísu. Eitthvað sem hún hefur örugglega ekki séð fyrir í sínum allra villtust...
Wed, 24 Jan 2024 - 88 - 88) Fljúgum hærra - Marie, Bolette og kynusli í Noregi
Norsku ljósmyndararnir Marie Høeg og Bolette Berg pökkuðu vandalega niður þeim glerplötum sem sýndu hluta af viðkvæmu einkalífinu og merktu sem „privat“. Þær voru lífsförunautar, ráku saman ljósmyndastofu og útgáfufyrirtæki og börðust fyrir bættum kjörum kvenna um aldamótin 1900. Frægð þeirra sem ljósmyndarar er hins vegar tilkomin vegna þess að litla leyni myndasafnið þeirra fannst óvænt í hlöðunni á sveitasetrinu þeirra löngu eftir þeirra daga. Það sem þótti tabú þá þykir í dag fremur sakla...
Wed, 17 Jan 2024 - 87 - 87) Fljúgum hærra - Cyndi Lauper
Cyndi Lauper varð stórstjarna strax með sinni fyrstu plötu og litagleði og skrautlegt útlit var hennar vörumerki. En svo er eins og hún hverfi af sjónarsviðinu nokkrum árum seinna en við komumst að því að hún hafði alls ekki sest í helgan stein, langt því frá. Hún finnur fjölina sína á Broadway þar sem hún semur tónlistina við söngleikinn Kinky Boots sem rakaði inn verðlaunum og hún fer að gera plötur þar sem tónlistarstefnan var bara það sem hana langaði að gera á hverjum tíma og spreytti hú...
Wed, 10 Jan 2024 - 86 - 86) Fljúgum hærra - Cristina Garcia Rodero. Trúarhefðir á Spáni
Spænski ljósmyndarinn Cristina Garcia Rodero tók ekkert mark á því þegar fólk sagði að hún myndi fljótt gefast upp þegar hún lagði af stað um sveitir landsins til að mynda hina undarlegustu trúarsiði og hefðir. Verkefnið tók hana 15 ára og bókin hennar „Hidden Spain“ sem kom út árið 1989, er enn í dag hennar frægasta verk. Kuflklæddir þorpsbúar, lifandi fólk í líkkistu og dvergar sem taka þátt nautaati eru meðal þess sem hún fangar í mynd. Og hún er enn að þvælast um heiminn og lj...
Wed, 03 Jan 2024 - 85 - 85) Fljúgum hærra - Jóla! Jóla!
Það eru skiptar skoðanir um það hvenær sé ásættanlegt að byrja að spila jólalög en það ætti að vera óhætt núna þegar komið er fram í aðventu. Við spilum nokkur vel valin jólalög, öll sungin af konum auðvitað, segjum aðeins frá þeim og nokkrar góðar sögur fá að fylgja með. Og að sjálfsögðu kemur litla Ísland líka við sögu í þættinum að mis góðu tilefni þó.
Wed, 13 Dec 2023 - 84 - 84) Fljúgum hærra - Leyniþáttur Lindu
Í þætti vikunnar fer Linda all hressilega út af sporinu í efnisvalinu.Hér eru engar ljósmyndakonur en nokkur vel valin lög (að henni fannst) fá að fljóta með. Lolla vissi ekkert um hvað þátturinn fjallaði fyrr en hún ýtti á Rec og Linda byrjaði að lesa. Það má deila um það hversu hrifin hún var þegar sannleikurinn kom í ljós.
Wed, 06 Dec 2023 - 83 - 83) Fljúgum hærra - Lady Gaga
Lady Gaga hefur átt alveg magnaðan feril, ekki bara sem tónlistarkona og trendsetter heldur líka sem leikkona. Hún fór frá því að vinna sem gogo dansari á sveittum rokk klúbbum í New York yfir í að verða ein áhrifamesta tónlistarkona seinustu 15 ára og syngja bæði danstónlist, ofurballöður og jazz og gera það allt frábærlega vel.
Wed, 29 Nov 2023 - 82 - 82) Fljúgum hærra - Claire Aho. Finnsk gleði
Glaðværð og litadýrð einkenndi auglýsingamyndir hinnar finnsku Claire Aho sem myndaði Marimekko fatnað við fæðingu þess fræga vörumerkis. Claire fæddist inn í bransann og var ekki há í loftinu þegar hún fékk að fara með pabba sínum og frænda í kvikmyndaleiðangra til Lapplands. Seinna varð hún hluti af hinu þekkta kvikmyndafyrirtæki fjölskyldunnar, Aho&Soldan og varð svo fræg fyrir að vera eina konan sem kvikmyndaði Ólympíuleikana í Finnlandi árið 1952. Hún var þrælsnjöll...
Wed, 22 Nov 2023 - 81 - 81) Fljúgum hærra - Katy Perry
Katy Perry átti frekar óhefðbundið uppeldi þar sem báðir foreldrar hennar voru ofsatrúaðir predikarar. Hún feta þó ekki í fótspor þeirra heldur eltir tónlistardraumana þó það gangi mjög brösuglega til að byrja með og hefðu einhverjir örugglega bara gefist upp og farið heim. Og þolinmæðin borgaði sig því á endanum fær hún bæði konungsríkið og prinsinn sjálfan
Wed, 15 Nov 2023 - 80 - 80) Fljúgum hærra - Margaret Bourke-White. Stríðsljósmyndari í háloftunum
Sem barn lærði hún að nöfnin á öllum stjörnunum og átti froska og slöngur sem gæludýr. Þegar hún fullorðnast sást hún gjarnan utan á háhýsum stórborga með myndavélina með sér. Þetta var hin bandaríska Margaret Bourke-White sem varð stríðsfréttaljósmyndari í seinni heimstyrjöldinni og vann fyrir tímaritin „Fortune“ og „Life“. Hún varð heimsfræg fyrir bæði frábærar myndir og einstakt hugrekki og heppni.
Wed, 08 Nov 2023 - 79 - 79) Fljúgum hærra - Dolly Parton
Dolly Parton er goðsögn í lifanda lífi. Hún braust ung úr sárri fátækt í Tennessee og varð ekki bara ein af ríkustu konum Hollywood á tímabili heldur stórstjarna í heimi tónlistar og gríðarlega afkastamikill lagahöfundur. Og þrátt fyrir að vera orðin rúmlega sjötug þá lætur hún engan bilbug á sér finna og hennar 49. sólóplata er væntanleg næuna í þessum mánuði þar sem fjöldinn allur af heimsþekktum tónlistarmönnum er þess heiðurs aðnjótandi að fá að syngja eða spila með henni.
Wed, 01 Nov 2023 - 78 - 78) Fljúgum hærra - Karimeh Abbud og hennar Palestína
Karimeh Abbud fangaði í ljósmyndum sínum Palestínu fyrir seinni heimstyrjöld og samfélagið sem leystist upp í kjölfar Nakba - hörmunganna miklu. Hún var fyrsti kvenkyns ljósmyndari Palestínu og mögulega fyrsta palestínska konan til að keyra sinn eigin bíl. Í dag eru myndir hennar mikilvæg söguleg heimild um horfinn tíma.
Wed, 25 Oct 2023 - 77 - 77) Fljúgum hærra - Kim Gordon (Sonic Youth)
Kim Gordon ætlaði sér aldrei að verða tónlistarkona. Hún fór í listaháskóla og stefndi á feril í myndlist eða sviðslistum en örlögin höguðu því þannig að fólk sem hún hittir á námsárunum og stuttu eftir það var margt í einhverju tónlistar- og hljómsveitastússi og áður en hún veit af er hún bæði farin að syngja og spila á bassa í mjög framúrstefnulegu rokkbandi.
Wed, 18 Oct 2023 - 76 - 76) Fljúgum hærra - Þórdís, Sigríður og garðálfar á Laugarvatni
Ljósmyndararnir Þórdís Erla Ágústsdóttir og Sigríður Marrow unnu saman að því í þrjú sumur að ljósmynda veröld frístundaíbúa í hjólhýsabyggðinni á Laugarvatni. Lífið þar virðist hverfast um samveru og notalegheit í sólríku umhverfi með garðálfum og blómum. Þessi paradís er horfin í dag, því stuttu eftir að verkefninu lauk var öllum hjólhýsaeigindum tilkynnt að byggðin yrði aflögð. Í Þjóðminjasafni er nú sýning á þessu verki þeirra og fær sýningin að heita „Ef garðálfar...
Wed, 11 Oct 2023 - 75 - 75) Fljúgum hærra - Diana Ross
Diana Ross er búin að eiga sleitulausan feril frá árinu 1959 til dagsins í dag og er hvergi nærri hætt. Hún var aðal rödd The Supremes, eins vinsælasta söngtríós allra tíma, hún leikur í kvikmyndum og nær að gefa út gríðarlega vinsæla discoplötu þegar disco tímabilinu var eiginlega lokið. Og hún stendur alveg undir því að vera kölluð díva eins og við heyrum í þættinum.
Wed, 04 Oct 2023 - 74 - 74) Fljúgum hærra - Toyoko Tokiwa og konurnar í Rauða hverfinu
Hún var þrettán ár gömul þegar faðir hennar deyr í sprengjuárás Bandaríkjahers og seinna þetta sama ár, 1945 falla kjarnorkusprengjur á Hiroshima og Nagasaki. Þegar Toyoko Tokiwa verður seinna ljósmyndari beinir hún linsunni að óvininum, bandarískum hermönnum í rauða hverfinu í Yokohama, heimaborg hennar. Frægastu myndirnar sýna nöturlegar aðstæður vændiskvenna í samskiptum við hermenn og hún skapar sér frægð með ljósmyndabókinni „Kiken na Adaba“ (Dangerous Poisonous Flowers) sem ...
Wed, 27 Sep 2023 - 73 - 73) Fljúgum hærra - Marie Fredriksson (Roxette)
Þó Marie Fredriksson sé þekktust sem annar helmingur dúettsins Roxetta þá er hún líka ein af ástsælustu söngkonum Svíþjóðar þar sem hún gaf út 8 sólóplötur sem allar náðu miklum vinsældum þar í landi. Hún var orðin mjög þekkt tónlistarkona í heimalandinu þegar þau Per Gessle stofna Roxette sem fyrir ótrúlega tilviljun slær í gegn í Bandaríkjunum án þess þó plöturnar þeirra, sem á þeim tíma voru tvær hefðu nokkurntíma verið gefnar þar út.
Wed, 20 Sep 2023 - 72 - 72) Fljúgum hærra - Lynn Goldsmith. Rock´n´roll ljósmyndarinn
Lynn Goldsmith er töffari frá Detroit borg sem fékk snemma titillinn rock 'n' roll ljósmyndarinn. Hún hefur myndað allar stjörnur í rokkheiminum frá hippatímanum fram til okkar daga. Grand Funk Railroad hefur strippað fyrir hana, mamma hans Gene Simmons í Kiss hefur rekið út úr sér tunguna í myndavélina hennar og Patti Smith er besta vinkona hennar. Lynn er ótrúlega fjölhæf og sló meira að segja í gegn árið 1983 með plötu sem hún gerði í flippi með vinum sínum.
Wed, 13 Sep 2023 - 71 - 71) Fljúgum hærra - Taylor Swift
Þó Taylor Swift sé ekki nema 33 ára gömul þá er hún fyrir löngu orðin ein allra vinsælasta tónlistarkonan í heiminum í dag og þarf að fara alla leið í Bítlana, Elvis, Michael Jackson, Elton John og aðra slíka tónlistarmenn sem eru búnir að gefa út tónlist áratugum samna til að skáka henni í sölutölum. Hún er á listum hjá Time Magazine og Forbes yfir áhrifamestu konur samtímans og New York magazine segir um hana "the one bending the music industry to her will".
Wed, 06 Sep 2023 - 70 - 70) Fljúgum hærra - Eve Arnold; Marilyn Monroe og allir hinir
Frægustu ljósmyndir Eve Arnold voru óvenjulegar myndir af leikkonunni Marilyn Monroe. Eve var líka önnur af tveimur til að verða fyrstu kvenkyns ljósmyndarar Magnum og tók eftirminnilegar myndir af Malcom X þrátt fyrir mikið mótlæti við það verkefni. Hún var þekkt fyrir þolinmæð og ósérhlífni og þessi spræka kona hafnaði ekki spennandi ljósmyndaverkefni fyrr en 84 ára gömul.
Wed, 30 Aug 2023 - 69 - 69) Fljúgum hærra - Skin (Skunk Anansie)
Skin, söngkona Skunk Anansie er fædd og uppalin í Brixton hverfinu í Suður-London en í stað þess að fara út í r&b, hip hop eða reggea tónlist eins og mörgum hefði þótt eðlilegast þá dembir hún sér á kaf í kraftmikið gítarrokk. En hún hefur líka gert allskonar annað eins og að vera plötusnúður, X-Factor dómari og tísku icon.
Wed, 23 Aug 2023 - 68 - 68) Fljúgum hærra - Stúdíó Luisita og næturdrottningar Argentínu
Systurnar Luisita og Chela Escarria opnuðu ljósmyndastofu á frægasta breiðstræti Buenos Aires höfuðborgar Argentínu árið 1958. Næturdrottningar, gamanleikarar, dansarar og tónlistarfólk mætti í myndatöku í stássstofu þeirra systra sem breyttist í stúdíó dag hvern. Myndir þessara samhentu systra hefðu mögulega fallið í gleymsku ef þær hefðu ekki eignast sinn bjargvætt. Nú veit öll Argentína af tilvist þeirra og við dreifum gleðinni í þessum þætti.
Wed, 16 Aug 2023 - 67 - 67) Fljúgum hærra - Aretha Franklin
Þegar við hugsum um soul tónlist dettur eflaust flestum okkar Aretha Franklin í hug enda hafði hún mjög verðskuldað titilinn The Queen of Soul. Hún átti feril sem spannaði næstum 70 ár og gaf út 39 sólóplötur. Hún fékk 18 sinnum Grammy verðlaun og var fyrsta konan til að vera vígð inn í Rock´n´roll hall of fame. Rolling Stone kallaði hana stórkostlegustu söngkonu sinnar kynslóðar og hún fékk sérstök heiðursverðlaun Pulitzer Prize fyrir framlag sitt til tónlistar og menningar í Bandaríkjunum
Wed, 09 Aug 2023 - 66 - 66) Fljúgum hærra - Dora Maar, drottning súríalistanna
Það má sannarlega kalla franska ljósmyndarann og listamanninn Doru Maar drottningu súríalistanna. Ljósmyndir hennar voru eins og úr annarri veröld, hönd skríður úr skel, skrímsli situr á bæn og mannslíkamar taka á sig dýrslega mynd. Þessi dulúðlega kona var ein örfárra kvenna í innsta hring súríalsita í París á millistríðsárunum. Stjarna hennar skein skært sem listljósmyndari þegar hún tók þá örlagaríka ákvörðun að þræða líf sitt saman við listamanninn Picasso. Verk hennar eru í d...
Wed, 02 Aug 2023 - 65 - 65) Fljúgum hærra - Sumarsmellir
Í þessum lauflétta þætti rennum við í gegn um nokkra sumarsmelli sem eru ómissandi á sumarplaylistann. Hvort sem fólk er að grilla, skella sér í roadtrip, stússast í garðinum eða bara súpa freyðivín á svölunum hjá sér í þeim landshlutum þar sem sést til sólar þá gerir tónlist réttu stemminguna.
Wed, 28 Jun 2023 - 64 - 64) Fljúgum hærra - Patti Smith
Patti Smith ætlaði sér aldrei að verða tónlistarkona. Hún var ljóðskáld og hafði fengið gefnar út nokkrar ljóðabækur og ætlaði bara að halda áfram á þeirri braut. En svo þegar Sam Shepard vinur hennar stakk upp á því að hún væri með undirspil við ljóðaupplesturinn þá breyttist það allt. Það eru engar íkjur að segja að hún sé goðsögn í lifanda lífi þrátt fyrir að hafa tekið sér langar pásur til að sinna kallinum og börnunum. Linda heldur því fram að ég sé bitur yfir því að hann hafi látið hana...
Wed, 21 Jun 2023 - 63 - 63) Fljúgum hærra - Hou Bo, ljósmyndari Maós
Hou Bo var munaðarlaus sveitastelpa í Kína sem lærði ljósmyndun af japönskum stríðsföngum og reis til metorða sem einn mikilvægasti ljósmyndari í hirð Mao Zedong leiðtoga Kína. Ljósmyndir hennar sýndu gríðarlega glansmynd af leiðtoganum meðan þjóðin dó úr hungri. Hún var harður kommúnisti og mikill aðdáandi Maós þrátt fyrir að lenda sjálf í þrælkunarbúðum í Menningarbyltingunni.
Wed, 14 Jun 2023 - 62 - 62) Fljúgum hærra - Alicia Keys
Hún elst upp hjá einstæðri móður í hinu alræmda Hells Kitchen hverfi í New York þar sem vændiskonur voru á hverju götuhorni og glæpir og ofbeldi daglegt brauð. Hún eyðir löngum stundum við píanóið þar sem Chopin og Nina Simone eru í miklu uppáhaldi og það skilaði sér í því að hún var komin með plötusamning fyrir tvítugt. Hún kemst líka að því að það borgar sig að þekkja Opruh Winfrey og svo kemur hún fyrir í taxta lags hjá einum frægasta og áhrifamesta tónlistarmanni samtímans án þess þó að h...
Wed, 07 Jun 2023 - 61 - 61) Ellen von Unwerth - kynþokki og súpemódel
Gáskafull erótík og geislandi kabarettandrúm er einkennandi fyrir tískuljósmyndir þessarar konu. Ellen von Unwerths er frá Þýskalandi og sló í geng með sexý gallabuxnamyndum af Claudiu Schiffer á níunda áratuginum. Sirkus, karnival, ofurfyrirsætur og poppdívur var veröld Ellenar og henni finnst ekkert skemmtilegra en að lokka fyrirsætur og frægt fólk úr fötunum fyrir framan myndavélina.
Wed, 31 May 2023 - 60 - 60) Fljúgum hærra - Alanis Morissette
Alanis Morissette fór frá því að vera gleymd unglingastjarna frá Kanada í það að verða frægasta, reiða kona heimsins. Hún talaði beint til milljóna ungra kvenna á plötunni sinni Jagged little pill sem fundu sjálfar sig í textunum hennar og hún varð súperstjarna aðeins 21 árs gömul.
Wed, 24 May 2023 - 59 - 59) Fljúgum hærra - Valentina Kulagina og sovésk áróðursplaköt
Bóndakonur með skóflur og reistan hnefa, byltingakonur með riffla eða keyrandi traktor, reykspúandi verksmiðjur, risastórir akrar, múgurinn og leiðtoginn. Áróðursveggspjöldin sem hin rússneska Valentina Kulagina skapaði voru fullar af slíkum ljósmyndum. Maðurinn hennar Gustav Klutsis var stjarna í þessu fagi og fyrir þessi kommúnísku hjón átti lífið í Sovétríkjunum, hinu nýja ríki jafnræðis að vera dans á rósum. En í staðin var það stöðug barátta við ritskoðun og tortryggni undir ægival...
Wed, 17 May 2023 - 58 - 58) Fljúgum hærra - Eurovision
Þar sem að Eurovision keppnin er núna í fullum gangi þá þótti okkur tilvalið að skella í einn laufléttan þátt um það stórmerkilega fyrirbæri. Við rennum yfir sögu keppninnar og spilum nokkur vel valin lög sem sum eru töluvert betri en önnur en öll fanga þau anda Eurovision síns tíma
Wed, 10 May 2023 - 57 - 57) Fljúgum hærra - Grace Jones
Hún fer frá því að alast upp í litlum bæ á Jamaica í að verða tískumódel í París, kynnast Andy Warhol, halda uppi stuðinu með discotónlist í Studio 54 og gefa síðan út reggae skotnar pop plötur og láta taka af sér iconic ljósmyndir. Og svo koma James Bond, Arnold Schwarzenegger og Pavarotti líka við sögu
Wed, 03 May 2023 - 56 - 56) Fljúgum hærra - Eliza Scidmore. 19.aldar ferðalangur og Japans unnandi.
Víðförla 19. aldar konan Eliza Ruhamah Scidmore ber titilinn fyrsti kvenljósmyndari tímaritsins National Geographic. Hún skrifaði sjö ferðabækur og yfir 300 greinar í blöð og tímarit. Hún var mikil aðdáandi Japans og má þakka henni að hin frægu sakura tré voru flutt til höfuðborgar Bandaríkjanna. Svo er jökull í Alaska skírður eftir henni, ekki amarlegt það.
Wed, 26 Apr 2023 - 55 - 55) Fljúgum hærra - Pink
Pink átti að verða r&b stjarna en gafst upp á því eftir eina plötu og fór að semja og syngja tónlist eins og hana langaði til að gera. Hún stóð með sjálfri sér og tók sénsinn þegar allir voru að segja henni að hún væri að gera mikil mistök. Hún lætur ekki vaða yfir sig en er líka með húmorinn í lagi og kann þá list að taka sér pásur frá sviðsljósinu og vera ekki upptekin af frægðinni frægðarinnar vegna og koma alltaf til baka með tónlist sem hittir í mark
Wed, 19 Apr 2023 - 54 - 54) Fljúgum hærra - Dorothea Lange
Hin bandaríska Dorothea Lange er risanafn í ljósmyndun. Hún var töffari með næmt auga og fór í sögubækurnar fyrir heimsfræga mynd af farandverkakonu með börnin sín, mynd sem varð táknmynd Kreppunnar miklu . Þótt Dorothea hafi haltrað alla ævi eftir að hafa fengið lömunarveiki sem barn, þá stoppaði það hana ekki frá því að eyða stórum hluta ævinnar á vegum úti með myndavélina á lofti.
Wed, 12 Apr 2023 - 53 - 53) Fljúgum hærra - Carole King
Þó nafn Carole King hringi ekki strax bjöllum hjá einhverjum þá er hún einn virtasti og farsælasti kvenkyns lagahöfundur 20. aldarinnar í Bandaríkjunum. Auk þess að eiga sjálf eina af mest seldu plötum allra tíma þá hefur hún samið yfir 100 lög sem hafa náð inn á Billboard Hot 100 listann og hafa yfir 1000 tónlistarmenn flutt lögin hennar í gegn um tíðina.
Wed, 05 Apr 2023 - 52 - 52) Fljúgum hærra - Ljósmyndaherdeildin og FBI njósnarinn
Einn af sögufrægum ljósmyndahópum Bandaríkjanna var hin róttæka og kraftmikla Ljósmyndaherdeild – The Photo League í New York. Óvenju marga konur voru í þessum hópi sem börðust gegn félagslegu óréttlæti með myndavélina að vopni. En í hópi þeirra var líka uppljóstrari FBI sem sá kommúnista í hverju horni.
Wed, 29 Mar 2023 - 51 - 51) Fljúgum hærra - Nina Simone
Nina Simone ætlaði aldrei að spila jazz eða dægurlög heldur stefndi hún á það frá unga aldri að verða konsertpíanisti. Hún var mjög ósátt með þá uppgjöf sem henni fannst réttindabarátta svartra í Bandaríkjunum hafa endað í og flytur þaðan 1968 og til dauðadags 2003 býr hún annarsstaðar og þá lengst af í Frakklandi. Hún þótti skapmikil og oft erfið í samskiptum en enginn efaðist um hæfileika hennar á píanóinu.
Wed, 22 Mar 2023 - 50 - 50) Fljúgum hærra - Madame Yevonde. Meistari litljósmyndunar
Yevonde var brautryðjandi í ljósmyndatækni og þá sérstaklega á sviði litljósmyndunar sem hún fór að stunda á undan flestum öðrum.
Wed, 15 Mar 2023 - 49 - 49) Fljúgum hærra - Sinéad O´Connor
Sinéad O´Connor hefur gengið í gegn um margt á sinni ævi. Á nokkrum vikum fór hún frá því að vera ein skærasta stjarnan á popp himninum og eftirlæti allra yfir í að vera úthrópuð og smánuð fyrir það eitt að rífa eina ljósmynd í beinni útsendingu í sjónvarpi. En eins og hún hefur sjálf sagt þá ætlaði hún aldrei að verða poppstjarna heldur aðgerðasinni að berjast fyrir réttlæti
Wed, 08 Mar 2023 - 48 - 48) Fljúgum hærra - Faye Schulman. Ljósmyndun, björgun frá helförinni
Faye Schulman var pólsk gyðingastúlka sem slapp undan klóm Nasista í seinni heimstyrjöldinni vegna ljósmyndakunnáttu sinnar. Hún líkt og fleiri gyðingar, gekk til liðs við sovéska skæruliða. Íklædd pardusloðfeldi og með riffilinn og myndavélina að vopni dvaldi hún tvö ár í skóginum. Ljósmyndir hennar eru einstakar og mikilvæg söguleg heimild.
Wed, 01 Mar 2023 - 47 - 47) Fljúgum hærra - Debbie Harry (Blondie)
Debbie Harry varð ein af stærstu stjörnum pönk- og nýbylgjusenunnar í New York á átta áratugnum þegar konur áttu oft enn í erfiðleikum með að vinna sér inn viðurkenningu í tónlistarbransanum á eigin forsendum. Hún leikur í kvikmyndum, gefur út sólóplötur og dregur svo vagninn þegar Blondie snúa aftur með látum eftir margra ára dvala. Og svo var hún vinkona Andy Warhol
Wed, 22 Feb 2023 - 46 - 46) Fljúgum hærra - Emma Schenson. Ljósmyndarinn og dómkirkjan í Uppsala
Hin sænska Emma Schenson var fyrsti ljósmyndarinn til að opna stofu í hinni sögufrægu borg Uppsala. Saga dómkirkjunnar, frægir vísindamenn og jafnvel stórbruni tengjast sögunni um Emmu. Og svo þekkja bæði Linda og Lolla borgina.
Wed, 15 Feb 2023 - 45 - 45) Fljúgum hærra - Dusty Springfield
Dusty Springfield fór frá því að vera eina af stærstu poppstjörnum 7. áratugarins í það að vera öllum gleymd, grafin og umkomulaus í Bandaríkjunum þar sem engin eftirspurn var eftir henni. Gefandi út plötur sem enginn nennti að hlusta á. Þar til að tveir ungir tónlistarmenn sem sem voru miklir aðdáendur hennar draga hana aftur fram í dagsljósið og dusta af henni rykið.
Wed, 08 Feb 2023 - 44 - 44) Fljúgum hærra - Zanele Muholi
Zanele Muholi frá Suður Afríku kallar sig ekki ljósmyndar heldur aktívista. Við kíktum á yfirstandandi sýningu Muholis á Listasafni Íslands sem fjallar bæði um ranglæti og ofbeldi gangvart hinsegin fólki í Afríku en líka um samhug, ást og stolt.
Wed, 01 Feb 2023 - 43 - 43) Fljúgum hærra - Sia
Á einhverjum tímapunkti á ferlinum komst Sia að því að hún vildi ekki verða þekkt andlit, bókstaflega. Hún vildi bara bara vera konan bak við tjöldin sem semdi lög fyrir margar af stærstu tónlistarstjörnum dagsins í dag. En þegar hún svo sjálf átti hvern risa smellinn eftir annan þá voru góð ráð dýr og þannig kom hárkollan fræga, sem náði niður fyrir nef til sögunnar.
Wed, 25 Jan 2023 - 42 - 42) Fljúgum hærra - Lee Miller
Lee Miller var ljósmyndari sem átti mörg líf. Hún fór frá því að vera módel í New York yfir að mynda átök í seinni heimstyrjöldinni í návígi, nokkuð sem fáir kvenkyns stríðsljósmyndarar gerðu. Ævi hennar var ævintýraleg og verkin hennar mjög eftirminnileg.
Wed, 18 Jan 2023 - 41 - 41) Fljúgum hærra - Stevie Nicks (Fleetwood Mac)
Stevie Nicks er búin að eiga einstakan tónlistarferil sem spannar heil 50 ár bæði sem meðlimur Fleetwood Mac, einnar vinsælustu hljómsveitar seinni tíma og svo sem sóló listamaður. Hún hefur samið hvern risa smellinn eftir annan og verið fyrirmynd fjölda tónlistarkvenna í gegn um árin. Sveipuð dulúð og ljóma og átt afskaplega litríka æfi svo ekki sé meira sagt.
Wed, 11 Jan 2023 - 40 - 40) Fljúgum hærra - Álfastelpurnar Elsie og Frances
Frænkurnar Elsie Wright og Frances Griffiths voru bara táningar þegar þær tóku saman fimm ljósmyndir í fallegum gróðurlundi í smá þorpinu Cottingley í West Yorkshire í Englandi. Þær urðu heimsfrægar sem og bærinn þeirra og myndirnar sköpuðu umtal og deilur frá birtingu þeirra árið 1920 langt fram á 20 öldina.
Wed, 04 Jan 2023 - 39 - 39) Fljúgum hærra - Annie Lennox (Eurythmics)
Hún kemur úr verkamannafjölskyldu í Skotlandi og verður síðan ein af skærustu poppstjörnum 9. áratugarins auk þess að eiga glæstan sólóferil. Í 34 ár hefur hún unnið ötullega að málefnum tengdum HIV smituðum í Afríku og arinhillan hennar er hlaðin verðlaunagripum og viðurkenningum sem hún hefur hlotið í gegn um tíðina bæði fyrir bæði fyrir tónlistarsköpun og ekki síður fyrir störf sín að mannúðarmálum.
Wed, 21 Dec 2022 - 38 - 38) Fljúgum hærra - Zofia Rydet
Pólski ljósmyndarinn Zofia Rydet varð frægust fyrir þá brjálæðislegu hugmynd sem hún fékk árið 1978; að ljósmynda öll heimili í landinu. Þá var hún 67 ára gömul en setti það alls ekki fyrir sig. Hún myndaði í meira en hundrað þorpum og skildi eftir sig stórkostlegt myndasafn sem vottar um hverfandi heim.
Wed, 14 Dec 2022 - 37 - 37) Fljúgum hærra - Jóla Jóla! - Jólatónlist
Þessi þáttur er með aðeins óhefðbundnu sniði þar sem það eru jú að koma jól. Hér tökum við fyrir nokkur klassísk jólalög, segjum aðeins frá þeim og heyrum útvaldar konur syngja þau. Já hver hefði trúað því að sumir færu að grúska í jólalögum alveg af sjálfsdáðum og án þess að vera búin að sturta í sig kakó og Stroh 80% allan daginn?
Wed, 07 Dec 2022 - 36 - 36) Fljúgum hærra - Grace Slick (Jefferson Airplane)
Grace Slick var í miðri hringiðu psychedelic tónlistarsenunnar í San Francisco um miðjan sjöunda áratuginn. Hún spilaði með hljómsveit sinni Jefferson Airplane á Woodstock og á hinu fræga Monterey festivali 1967. Hún verður svo óvænt 80´s poppstjarna komin á fimmtugs aldurinn þannig að tónlistin hennar er spiluð bæði af hippakynslóðinni og MTV kynslóðinni. Richard Nixon, Hells Angels og veitingahúsakeðjan alræmda Chick-fil-A koma líka við sögu.
Wed, 30 Nov 2022 - 35 - 35) Fljúgum hærra - Grace Robertson
Ljósmyndarinn Grace Robertson tók ljósmyndir á eftirstríðsárunum sem vöktu gleði og vellíðan. Verk hennar voru þó alls ekki grunhyggin og í dag telst hún til frum femínista þar sem viðfangefni hennar var mest veröld kvenna.
Wed, 23 Nov 2022 - 34 - 34) Fljúgum hærra - Florence Welch (Florence + the Machine)
Florence Welch skaust upp á stjörnuhimininn 2009 með hljómsveitinni sinni Florence + the Machine sem hún stofnaði með Isabellu vinkonu sinni í pínulitlu upptökustúdíói í London. Hún hafði bæði sérstaka rödd og klæddi sig allt öðruvísi en tónlistarkonur á hennar aldri gerðu á þeim tíma. Svona eins og sambland af Stevie Nicks og persónu úr renaissance málverki en í grunninn er hún bara bókaormur sem vill svo til að hefur líka gaman að syngja og dansa.
Wed, 16 Nov 2022 - 33 - 33) Fljúgum hærra - Alice Seeley Harris – Mannréttindasinni í ljósmyndaherferð
Breska viktoríudaman Alice Seeley Harris hafði engan sérstakan áhuga á að verða ljósmyndari þegar hún gerðist trúboði í Kongó. Ljósmyndir hennar af þjáningu íbúanna urðu þó sögulegar myndir sem spiluðu lykilhlutverk í að hrekja frá völdum nýlenduherrann Leopold II, konung Belgíu. Geri nú aðrir betur!
Wed, 09 Nov 2022
Podcast simili a <nome>
Alles Geschichte - Der History-Podcast ARD
The Bomb BBC World Service
Historie českého zločinu Český rozhlas
RADIO MUZYKA CM. TAKOS
The Diary Of A CEO with Steven Bartlett DOAC
Fængsel DR
Drogowskazy Eska ROCK
C dans l'air France Télévisions
Forensic Files HLN
Forensic Files II HLN
Stuff You Should Know iHeartPodcasts
Bag om København Københavns Biblioteker
Zloději životů Novinky.cz
Fakty w RMF FM RMF FM
Sceny zbrodni RMF FM
Tout un monde ‐ RTS Première RTS - Radio Télévision Suisse
Frjálsar hendur RÚV
Í ljósi sögunnar RÚV
Mannlegi þátturinn RÚV
Sögur úr raunveruleikanum RÚV Hlaðvörp
Sastre y Maldonado SER Podcast
Skuggavaldið skuggavaldid
The Matt Walsh Show The Daily Wire
武田鉄矢・今朝の三枚おろし 文化放送PodcastQR

