Filtra per genere

Ljósmæðrarýmið

Ljósmæðrarýmið

Hafdís og Oddný

Tvær ljósmæður skapa öruggt rými fyrir hrátt spjall um allt sem við kemur fæðingum og fá til sín gesti til að deila sínum fjölbreyttu fæðingarsögum. Rauði þráðurinn er jákvæð upplifun af fæðingu. Okkur finnst að það megi heyrast meira í þeim! Við trúm því að þessar umræður geti styrkt konur í undirbúningi fyrir sína eigin fæðingu ❤️

30 - #30 Tvær fæðingasögur Alexöndru kíró
0:00 / 0:00
1x
  • 30 - #30 Tvær fæðingasögur Alexöndru kíró

    Alexandra, oft kölluð Alexandra kíró (eða kannski erum það bara við?) kemur í Ljósmæðrarýmið og deilir með okkur sínum 2 fæðingasögum, tvær skemmtilegar og góðar sögur af því þegar 19 marka stúlkurnar hennar komu í heiminn.


    Alexandra fer jafnframt yfir það sem hún gerir fyrir börn og konur á meðgöngu í sínu starfi og við mælum með hlustun fyrir ykkur sem eruð forvitin að heyra meira um kírópraktík fyrir ungabörn og konur á meðgöngu.


    Við lofum skemmtun, gæsahúð og aukinni trú á fæðingaferlinu eftir hlustun á elsku Alexöndru kíró!


    Þátturinn er í boði Kappahl, Natracare, Love to dream og Lovemade

    Thu, 22 Oct 2026 - 1h 22min
  • 29 - #29 5 ráð til að massa fæðinguna þína!

    Hvernig geturðu undirbúið þig sem best fyrir stóra daginn?

    Í þessum þætti deilum við okkar bestu ráðum, sem geta hjálpað þér að takast á við fæðinguna þína.

    Við laumum mögulega á einu bónusráði með sem við viljum að allar verðandi mæður hafi í farteskinu.

    Njóðið vel! 🤎


    Þátturinn er í boði:
    Kappahl
    Natracare
    Love to dream
    Lovemade

    Thu, 15 Oct 2026 - 56min
  • 28 - #28 Fæðingarsögur Emblu

    Varúð, fæðingarsögur dagsins gætu valdið alvarlegri gæsahúð!

    Embla segir frá báðum fæðingunum sínum á einlægan, jákvæðan og fáránlega fyndinn hátt. Við þáttastjórnendastöllur hlógum allavega, táruðumst OG gæsahúðuðum allan tímann.


    Þátturinn er í boði Kapphal, Natracare, Love to dream og lovemade, farið og nælið ykkur í lífræn gæðaföt, lífræn gæðabindi, gæða svefnpoka og lífrænan gæða barnamat

    Thu, 08 Oct 2026 - 1h 20min
  • 27 - 27. Hlutir "Worth the money" fyrir fæðingu og sængurlegu

    Þarftu að kaupa allan heiminn fyrir komu barnsins þíns?

    Við segjum nei.

    Hvað þarftu í alvöru að kaupa fyrir barnið þitt?

    Í þessum þætti förum við yfir það sem er must have fyrir komu barnsins og hvað er nice to have, því það er stór munur þar á.

    Við deilum okkar reynslu sem mæður og ljósmæður oooog erum mögulega með ákveðnar skoðanir á sumu!


    Þátturinn er í boði Kappahl og Lovemade 🤎

    Öndun sem heldur taugakerfinu rólegu í fæðingu.


    Vertu með okkur á Instagram:

    ⁠⁠⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠⁠⁠

    ⁠⁠⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠⁠⁠

    ⁠⁠⁠⁠Oddný ljósmóðir

    Thu, 01 Oct 2026 - 50min
  • 26 - #26 Fæðingarsögur: Gangsetning, heimafæðing og tvíburar

    Í þætti vikunnar fáið þið að heyra þrjár mismunandi fæðingarsögur sem við lesum fyrir ykkur og ræðum!

    Gangsetning á LSH, þrátt fyrir upphafleg plön um að eiga á Selfossi, heimafæðing sem tók líka óvænta stefnu og tvíburafæðing við miklar bráða aðstæður.

    Við förum um víðan völl en “take home message” er kannski að þú getur haft óskir fyrir fæðinguna án þess að halda svo fast í þær að allt hrynji ef planið breytist.

    Njótið vel 🤎


    Vertu með okkur á Instagram:

    ⁠⁠⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠⁠⁠

    ⁠⁠⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠⁠⁠

    ⁠⁠⁠⁠Oddný ljósmóðir⁠


    Öndun í fæðingu:

    https://www.sofabordaelska.is/ondun

    Thu, 03 Sep 2026 - 58min
Mostra altri episodi