Podcasts by Category
Tvær ljósmæður skapa öruggt rými fyrir hrátt spjall um allt sem við kemur fæðingum og fá til sín gesti til að deila sínum fjölbreyttu fæðingarsögum. Rauði þráðurinn er jákvæð upplifun af fæðingu. Okkur finnst að það megi heyrast meira í þeim! Við trúm því að þessar umræður geti styrkt konur í undirbúningi fyrir sína eigin fæðingu ❤️
- 30 - #30 Tvær fæðingasögur Alexöndru kíró
Alexandra, oft kölluð Alexandra kíró (eða kannski erum það bara við?) kemur í Ljósmæðrarýmið og deilir með okkur sínum 2 fæðingasögum, tvær skemmtilegar og góðar sögur af því þegar 19 marka stúlkurnar hennar komu í heiminn.
Alexandra fer jafnframt yfir það sem hún gerir fyrir börn og konur á meðgöngu í sínu starfi og við mælum með hlustun fyrir ykkur sem eruð forvitin að heyra meira um kírópraktík fyrir ungabörn og konur á meðgöngu.
Við lofum skemmtun, gæsahúð og aukinni trú á fæðingaferlinu eftir hlustun á elsku Alexöndru kíró!
Þátturinn er í boði Kappahl, Natracare, Love to dream og Lovemade
Thu, 22 Oct 2026 - 1h 22min - 29 - #29 5 ráð til að massa fæðinguna þína!
Hvernig geturðu undirbúið þig sem best fyrir stóra daginn?
Í þessum þætti deilum við okkar bestu ráðum, sem geta hjálpað þér að takast á við fæðinguna þína.
Við laumum mögulega á einu bónusráði með sem við viljum að allar verðandi mæður hafi í farteskinu.
Njóðið vel! 🤎
Þátturinn er í boði:
Kappahl
Natracare
Love to dream
LovemadeThu, 15 Oct 2026 - 56min - 28 - #28 Fæðingarsögur Emblu
Varúð, fæðingarsögur dagsins gætu valdið alvarlegri gæsahúð!
Embla segir frá báðum fæðingunum sínum á einlægan, jákvæðan og fáránlega fyndinn hátt. Við þáttastjórnendastöllur hlógum allavega, táruðumst OG gæsahúðuðum allan tímann.
Þátturinn er í boði Kapphal, Natracare, Love to dream og lovemade, farið og nælið ykkur í lífræn gæðaföt, lífræn gæðabindi, gæða svefnpoka og lífrænan gæða barnamat
Thu, 08 Oct 2026 - 1h 20min - 27 - 27. Hlutir "Worth the money" fyrir fæðingu og sængurlegu
Þarftu að kaupa allan heiminn fyrir komu barnsins þíns?
Við segjum nei.
Hvað þarftu í alvöru að kaupa fyrir barnið þitt?
Í þessum þætti förum við yfir það sem er must have fyrir komu barnsins og hvað er nice to have, því það er stór munur þar á.
Við deilum okkar reynslu sem mæður og ljósmæður oooog erum mögulega með ákveðnar skoðanir á sumu!
Þátturinn er í boði Kappahl og Lovemade 🤎
Öndun sem heldur taugakerfinu rólegu í fæðingu.
Vertu með okkur á Instagram:
Thu, 01 Oct 2026 - 50min - 26 - #26 Fæðingarsögur: Gangsetning, heimafæðing og tvíburar
Í þætti vikunnar fáið þið að heyra þrjár mismunandi fæðingarsögur sem við lesum fyrir ykkur og ræðum!
Gangsetning á LSH, þrátt fyrir upphafleg plön um að eiga á Selfossi, heimafæðing sem tók líka óvænta stefnu og tvíburafæðing við miklar bráða aðstæður.
Við förum um víðan völl en “take home message” er kannski að þú getur haft óskir fyrir fæðinguna án þess að halda svo fast í þær að allt hrynji ef planið breytist.
Njótið vel 🤎
Vertu með okkur á Instagram:
Öndun í fæðingu:
https://www.sofabordaelska.is/ondun
Thu, 03 Sep 2026 - 58min - 25 - #25 Sigríður - Má hafa gaman í fæðingunni sinni?
Jákvæðni í fæðingu getur skipt sköpum 💛✨
Í þessum þætti kemur Sigríður til okkar og segir frá sinni fæðingarreynslu, meðal annars hvernig hún hélt í jákvæðnina og hvernig maðurinn hennar var duglegur að minna hana á hana alla leiðina 😄
Við tölum um mikilvægi þess að skapa ró, öryggi og góða stemningu í fæðingu – og hvernig það getur stutt við losun oxýtósíns, hormónsins sem gegnir svo mikilvægu hlutverki í fæðingu.
Og svo… herðanuddið! 🙌 Sigríður deilir trixi sem virkaði ótrúlega vel fyrir hana og við förum aðeins nánar í það í kringum 33. mínútu. Kannski eitthvað sem vert er að skrifa niður fyrir fæðinguna? 👀
Þáttur um jákvæðni, stuðning, oxýtósín, góð trix og það að finna sína eigin leið í gegnum fæðinguna 💛
Thu, 27 Aug 2026 - 1h 02min - 24 - #24 Fæðingarplan, er það sniðugt?Fri, 21 Aug 2026 - 47min
- 23 - #23 Alexandra - Tvær heimafæðingar
Elsku Alexandra, þroskaþjálfi og mikill snillingur, kom til okkar í svo skemmtilegt spjall um sínar tvær ólíku heimafæðingar.
Hvað varð til þess að hún valdi heimafæðingu?
Hvernig gengu þær fyrir sig?
Áður en hún varð ólétt af fyrsta barni var hún frekar hrædd við að fæða, en eftir að hún áttaði sig á því að hún hefði val um hvar og hvernig hún fæddi barnið sitt, byrjaði hún að vera spennt fyrir fæðingunni.
Hún átti góða upplifun þrátt fyrir krefjandi lokakafla í fyrri fæðingu, sem endurtók sig heldur betur ekki í seinni fæðingunni.
Njótið vel 🤎
Vertu með okkur á Instagram:
Thu, 13 Aug 2026 - 1h 15min - 22 - #22 Mænurótardeyfing - allt sem þú þarft að vita
Mænudeyfing, mænurótardeyfing, utanbastdeyfing eða hvað sem þú vilt kalla hana, hér kemur góð umfjöllun um kosti, galla, fylgikvilla og verkun deyfinga í fæðingum á Íslandi. Hvenær er best að fá sér deyfingu?Hvað breytist þegar ég fæ mér deyfingu?Og margt margt fleira.Og ekki hafa neinar áhyggjur, að sjálfsögðu tölum við um kúk og piss líka og hlæjum mikið mikið af sjálfum okkur í leiðinni. Allt sem ÞÚ þarft að vita til að taka upplýsta ákvörðun fyrir þig og þína fæðingu!
Vertu með okkur á Instagram:
Fri, 07 Aug 2026 - 51min - 21 - #21 Hildur Grímsdóttir
TW
Þáttur dagsins krefst þess að við setjum Trigger Warning við en Hildur fer yfir allar 5 fæðingarnar sínar, þar á meðal andvana fæðingu sonar síns Hergeirs Þórs sem fæddist eftir 25 vikna meðgöngu.
Hildur lýsir á einlægan hátt erfiðri, sárri en jafnframt fallegri reynslu þegar Hergeir Þór kom í mömmufang. Ef þú treystir þér til mælum við eindregið með að hlusta á þessa fallegu fæðingu og fund yndislegs lítils drengs við mömmu og pabba.
Að auki á Hildur 4 skemmtilegar upplifanir af fæðingum sem allar eiga sameiginlegt að byrja með keimlíkum hætti.
Mannleg, skemmtileg, einlæg og hress, það er Hildur Gríms sem deilir með okkur fæðingum og fleiru í þætti dagsins.
Thu, 30 Jul 2026 - 1h 26min - 20 - #20 Arna Ýr
Arna Ýr, íþróttakona, fyrirtækjaeigandi, fyrrverandi fegurðardrottning og almennur brasari og fiðrildi eins og hún lýsir sjálf segir frá öllum fæðingunum sínum í löngu og skemmtilegu máli.
Allar 3 er ólíkar en þó með sameiginlegum rauðum þræði, S E I G L A.
Arna er mögnuð kona og það er heiður að fá að hlusta á hana segja frá fæðingunum sínum, hún er hreinskilin opin og hrá í þessum þætti.
Getur hver sem er leyft sér að stefna að upplifunum eins og Örnu, fæðing utan sjúkrahúss með fyrsta barn, bað fæðingar og auðvitað blómafæðingarlaugin fræga?
Er það óraunhæft eða á færi allra með góðum undirbúningi að eiga góða fæðingarupplifun?
Ræðum þetta og margt fleira í þætti dagsins
Thu, 16 Jul 2026 - 1h 53min - 19 - #19 ForeldrajátningarThu, 09 Jul 2026 - 45min
- 18 - #18 Fæðingarsögur Dýrleifar - Hvernig áföll geta haft áhrif á fæðingarferlið
Í þessum einstaka þætti segir Dýrleif okkur af svo mikilli einlægni og innsýn frá sínar tveimur ólíku fæðingum og hvernig það var að vera sjálf ljósmóðir þegar kom að því að fæða.
Dýrleif deilir líka reynslu sinni af því hvernig áföll úr fortíðinni komu óvænt upp á yfirborðið í fyrri fæðingunni og hvað hún gerði til að geta átt ánægjulega seinni fæðingu.
Þetta er þáttur sem við höfum beðið spenntar eftir að taka upp og við vonum að sagan hennar Dýrleifar geti veitt ykkur innblástur.
Njótið vel 🤎
Vertu með okkur á Instagram:
Thu, 02 Jul 2026 - 1h 34min - 17 - #17 TW: Missir snemma á meðgöngu, reynslusaga Oddnýjar
Missir snemma á meðgöngu er mun algengari en flestir gera sér grein fyrir. Samt upplifa margar konur sig einar í þessari reynslu og sorginni sem fylgir.
Í þessum einlæga þætti deilir Oddný, annar þáttastjórnanda Ljósmæðrarýmisins, sinni eigin reynslu af missi á 12. viku meðgöngu. Hún segir frá fyrstu einkennunum, greiningunni, lyfjameðferðinni, líkamlega ferlinu við missinn og þeim bjargráðum sem hún nýtti í þeim aðstæðum.
Við ræðum einnig sorgarferlið sem fylgir því að missa barn snemma á meðgöngu. Þegar þú þarft að kveðja litla krílið þitt og þá framtíð sem þú varst búin að sjá fyrir þér og plana lífið í kringum.
Þessi þáttur er fyrir þig ef þú hefur upplifað fósturlát, misst snemma á meðgöngu, ert að ganga í gegnum missi núna eða vilt skilja betur reynslu þeirra sem hafa þurft að kveðja litla krílið sitt snemma á meðgöngu.
Vertu með okkur á Instagram:
Thu, 25 Jun 2026 - 1h 13min - 16 - #16 Fæðingarsögur Írisar Rutar sem upplifði allar þrjár tegundir keisara
Íris Rut þriggja barna móðir í úthverfi, kennari og fellihýsa áhugakona, segir okkur frá keisarafæðingunum sínum. Hún fór í gegnum allar 3 tegundir keisara, bjöllu, bráða og skipulagðan. Hún fer vel yfir hvernig fæðingarnar hófust og hvað varð til þess að fæðingarnar hennar voru keisarafæðingar, dregur upp fallega mynd af því þegar keisarar eru besta mögulega útkoman fyrir konu og barn þegar þörf er á. Hún ræðir upplifun sína af fæðingunum, andrúmsloftinu á skurðstofunni og aumingja manninn sinn sem var bitinn í magann, af henni.
Vertu með okkur á Instagram:Thu, 18 Jun 2026 - 1h 11min - 15 - #15 Hvar vorum við og hvert erum við að fara?
Við erum mættar aftur eftir stutta pásu! Ferskari en nokkru sinni fyrr.
Hvert fórum við? Hvert erum við að fara með hlaðvarpið?
Pælingar: Af hverju heyrum við og sjáum lang mest af hryllingssögum um fæðingu en sjaldan góðu sögurnar?
Af hverju ákváðum við að synda svolítið gegn straumnum og skapa vettvang fyrir jákvæðar fæðingarupplifanir?
🎧 Njóttu vel!
Vertu með okkur á Instagram:
Thu, 11 Jun 2026 - 44min - 14 - #14 Forstig fæðingar - Hvað gerist þegar fæðingin er að byrja?
Er þetta að byrja… eða ekki alveg strax?
Í þessum örþætti talar Oddný um eitt ruglingslegasta og oft vanmetnasta stig fæðingarinnar: forstigið.
Þegar líkaminn er að undi
rbúa sig fyrir fæðingu, en ekkert er alveg komið í gang ennþá.
Verkir geta komið og farið, orðið þéttari og dottið svo niður. Tilfinning um að eitthvað sé að gerast en þú veist ekki alveg hvað.
Rætt er um:– hvernig forstigið getur litið út – hvað er að gerast í líkamanum á þessu stigi– hvað er eðlilegt – hvað þú getur gert á þessu stigi til að vinna með líkamanum þínum
Þetta er þáttur fyrir þig sem vilt skilja líkamann þinn betur og treysta ferlinu.
Vertu með okkur á Instagram:
Fri, 03 Apr 2026 - 27min - 13 - #13 Ljósmæður yappa + fæðingarsaga
Í þessum þætti tókum við gott spjall.
Við svöruðum spurningum sem hlustendur hafa sent inn og fórum út í alls konar pælingar tengdar starfinu.
Þetta er meðal annars það sem við ræðum:
Fetal ejection reflexFylgjulosAf hverju við fórum í ljósmóðurfræðiHvað er skemmtilegast við vinnuna okkarSpangardeyfingu, er alltaf hægt að biðja um hanaVið endum svo á að lesa upp innsenda fæðingarsögu
Léttur, einlægur og notalegur þáttur með smá fræðslu, smá spjalli og svo rúsínu í pylsuendanum.
Við skemmtum okkur mjög vel og vonum að þið gerið það líka <3
Vertu með okkur á Instagram:
Thu, 26 Mar 2026 - 58min - 12 - #12 Örþáttur - Að missa vatniðMon, 23 Mar 2026 - 19min
- 11 - #11 Fæðingarsaga Sólbjartar
Sólbjört elskar að tala um fæðingar og við elskuðum að tala við hana um hennar fæðingu.
Hún missti vatnið, verandi GBS beri og fór í gangsetningu í kjölfarið - sem endaði vitanlega með barni, þó að henni hafi ekki alltaf liðið eins og það myndi gerast neitt í náinni framtíð.
Hlustið og njótið!
Fylgist með okkur á Instagram:
Thu, 19 Mar 2026 - 46min - 10 - #10 Örþáttur - Samdráttaverkir eftir fæðinguMon, 16 Mar 2026 - 11min
- 9 - #9 5 hlutir sem koma mörgum á óvart í fæðingu
Í þessum þætti ræðir Hafdís 5 hluti sem er kannski minna talað um þegar kemur að fæðingum og gæti komið mörgum á óvart.
Við förum yfir:
- Hvernig líkaminn tekur yfir í fæðingu
- Hvernig fæðingarverkir eru oft öðruvísi en fólk ímyndar sér
vernig hugurinn hefur áhrif á ferlið- Hversu óútreiknanlegar fæðingar geta verið
- Hinn heimurinn sem maður fer í, í fæðingu
Allt til þess að gefa þér betri innsýn í fæðingarferlið og hjálpa þér að mæta henni af meiri ró og trausti <3
Fylgist með okkur á Instagram:
Mon, 09 Mar 2026 - 43min - 8 - #8 Fæðingarsaga Huldu Heiðdal
Hulda Heiðdal segir okkur frá sinni upplifun af barneignarferlinu, sem var lituð þeirri staðreynd að hún var í mikilli yfirþyngd.
Hún var í meðgöngueftirliti á LSH vegna þessa og var ráðlagt að fæða með keisaraskurði, en hana dreymdi um fæðingu um leggöng.
Hulda ræðir sína upplifun, fitufordóma og margt fleira.
Fylgist með okkur á Instagram:
Mon, 02 Mar 2026 - 59min - 7 - #7 Fæðingarsögur Kötlu í Systur og Makar
Katla sagði okkur á sinn einstaka hátt frá þremur mismunandi fæðingum.
Fyrsta gangsetning í covid og blæðing eftir fæðingu, önnur heimafæðing á baðherbergisgólfinu og svo hröð þriðja fæðing á sjúkrahúsi.
Þið sem þekkið til Kötlu vitið að hún er ekkert að skafa af hlutunum og það var engin undantekning hér.
Njótði vel!
Fylgist með okkur á Instagram:
Mon, 23 Feb 2026 - 54min - 6 - #6 Fæðingarsögur Helgu Möggu
Helga Magga er ein hraustasta kona sem þið finnið og var "óþolandi heilbrigð" á sínum meðgöngum. Enda gekk hún alls ekki fyrir í gangsetningar röðinni fyrr en hún var að detta í 42 vikur.
Allar þrjár fæðingarnar hennar voru settar af stað um það leiti.
Sú bið var ekki skemmtileg, en fæðingarnar gengu vel og hún átti geggjaðar fæðingar.
Fylgist með okkur á Instagram:
Mon, 16 Feb 2026 - 49min - 5 - #5 Örþáttur - SlímtappinnFri, 13 Feb 2026 - 07min
- 4 - #4 Fæðingarsögur Melkorku Rutar
Fyrsti gestur Ljósmæðrarýmisins er Melkorka Rut Bjarnadóttir. Hjúkrunarfræðingur og þriggja barna móðir en hún átti þriðja barnið sitt 3 dögum eftir að þátturinn var tekin upp!
Melkorka leiddi okkur á skemmtilegan hátt í gegnum fyrstu tvær fæðingarnar sínar og ræddi væntingar og tilfinningar gagnvart þeirri þriðju, sem hún vissi ekki þá að var rétt handan við hornið.
Hér var ekkert skilið eftir. Hlustið og njótið.
Fylgið okkur á Instagram:
Mon, 09 Feb 2026 - 1h 20min - 3 - #3 Fæðingarsögur Hafdísar
Í þessum þætti deilir Hafdís, annar þáttastjórnenda Ljósmæðrarýmisins, sínum fæðingarsögum.
Hún var orðin ljósmóðir þegar hún eignaðist sitt fyrsta barn og fer yfir upplifun sína af tveimur hröðum fæðingum og að lokum tvíburafæðingu sem var mögnuð á svo marga vegu.Þátturinn er persónulegur, einlægur og sýnir hversu fjölbreyttar fæðingar geta verið, jafnvel hjá sömu konu.
Sun, 01 Feb 2026 - 53min - 2 - #2 Fæðingarsögur Oddnýjar
Í þessum þætti heyrum við fæðingarsögur Oddnýjar, annars þáttastjórnanda Ljósmæðrarýmisins.
Hún deilir sínum upplifunum af sínum ólíku fæðingum, fyrsta með löngum aðdraganda og mænurótardeyfingu, annarri sem gerðist hraðar og svo þriðju í Björkinni.Hún ræðir sína upplifun sem fæðandi kona en lítur líka til baka með ljósmæðragleraugun á sér.
Sun, 01 Feb 2026 - 45min - 1 - #1 Hverjar erum við og af hverju ljósmæðrarýmið?Sun, 01 Feb 2026 - 14min
Podcasts similar to Ljósmæðrarýmið
Wife, Mother, Slave, Sex Goddess A. Heyward
Barangay Love Stories Barangay LS 97.1 Manila | GMA Network Inc.
Good Bad Billionaire BBC World Service
Cyprian Majcher Cyprian Majcher
Die Nachrichten Deutschlandfunk
Podcast Wojenne Historie Historia II wojny światowej
Forensic Files HLN
Nowenna pompejańska. Świadectwa https://pompejanska.krolowa.pl/
ILLVERK Podcast Inga Kristjáns
الشيخ أحمد العجمي islami
True Crime Documentary Justin Kandell Network
WojewódzkiKędzierski Kuba Wojewódzki, Piotr Kędzierski
Dear MOR MOR Entertainment
Snapped: Women Who Murder Oxygen
Papa Dudut Stories Papa Dudut | TAGM Marketing Solutions Inc.
DUDEK o polityce prof. Antoni Dudek i Super Exspress
Przemek Górczyk Podcast Przemek Górczyk
Sceny zbrodni RMF FM
Í ljósi sögunnar RÚV
Þetta nútímalíf RÚV Hlaðvörp
Skuggavaldið skuggavaldid
Money News Tapt Media
Żurnalista - Rozmowy bez kompromisów zurnalistapl
العلم والإيمان - د. مصطفى محمود علم ينتفع يه
