Podcasts by Category
Með lífið í lúkunum

Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunumfær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt.
Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.
- 181 - 130. Dugnaður drepur. (Heilsuorlof, ofurkonan, mygla og leitin að heilsunni). Guðrún Hafþórs
Í þessum þætti ræðir Erla við alveg hreint dásamleg stelpukonu, Guðrúnu Hafþórs, um lífið og tilveruna, heilsumissi, streitu, myglu, áhrif áfalla, leitina að heilsunni, um ofurkonuna og dugnaðinn sem drepur! Á Instagram síðu sinni deilir Guðrún raunveruleikanum á einlægan og hispurslausan hátt undir slagorðinu „vott jú sí is vott jú get“. Þar fjallar hún um lífið eins og það er í heilsuorlofi, bæði hæðir og lægðir og reynir að smita gleði og dreifa glimmeri. Þessi þáttur er einnig í mynd og v...
Fri, 23 Oct 2026 - 180 - Eru skjáir að ræna okkur félagslegum töfrum? Viðar Halldórsson (Heilsumoli 50)
Í þessum Heilsumola ræðir Erla við Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands um nýju bókina hans “How Digital Screen Use Alienates Human Societies: A treatise on social magic and its decadence”. Bókin fjallar um neikvæð áhrif skjábyltingarinnar og varpar ljósi á þá þversögn hvernig fjölbreyttari og víðtækari samskiptahættir hafa stuðlað að auknu samskiptaleysi og firringu, sem birtist meðal annars í auknum einmanaleika og angist, pólariseringu og á...
Thu, 15 Oct 2026 - 179 - 129. Þú getur ekki hafnað þér til heilsu. Guðni Gunnarsson
Í þættinum ræðir Erla við Guðna Gunnarsson um vitund, athygli, ábyrgð, viðnám, höfnun, þakklæti og hvað þarf að gera til þess að vera virkur þátttakandi í eigin lífi. Guðni hefur verið áberandi í umræðunni um heilsu, hreyfingu, jóga og sjálfsrækt um árabil. Guðni sem notar íslenskuna svo fallega með skilgreingum á orðum sem við notum hugsunarlaust, hefur meðal annars skrifað bækurnar Máttur athyglinnar, Máttur viljans og Máttur þakklætis. Hann hefur í gegnum tíðina talað mikið um athygli, áby...
Fri, 09 Oct 2026 - 178 - 128. Hvernig fjölgum við heilbrigðum æviárum? Kristján Þór Gunnarsson
Í þættinum ræðir Erla við Kristján Þór Gunnarsson, heimilislækni um áhrif lífsstíls á heilsu, samfélagssjúkdóma, skaðsemi gjörunninna matvæli á almenna heilsu, næringarlæsi, stöðu heilbrigðiskerfisins á Íslandi og hver eða hvað ber ábyrgð á versnandi heilsu þjóðarinnar, hvernig við getum mögulega snúið þeirri þróun við og um leið fjölgað heilbrigðum æviárum. Erla og Kristján ræða einnig um heildræna heilsu og hvernig þættir eins og svefn, mataræði, hreyfing, streitustjórnun, félagsleg s...
Fri, 25 Sep 2026 - 177 - 127. Að virða ekki eigin mörk endar með kulnun. (Kærleikur, umhverfisvernd, hormónaraskandi efni og meðvitund). Heiðrún Birna Rúnarsdóttir.
Í þættinum ræðir Erla við Heiðrúnu Birnu Rúnarsdóttur. Heiðrún hefur verið ötull talsmaður fyrir umhverfisvernd og er stofnandi og eigandi Grænu stofunnar sem er eina umhverfisvottaða hárgreiðslustofan á Íslandi. Þær stöllur ræðu um áhrif þess að alast upp í sveit, hvaðan áhuginn og virðingin fyrir umhverfinu spratt, hvernig gildi okkar geta verið leiðarvísir í lífi og starfi og hve mikilvægt það er að setja sér og öðrum mörk. Við ræddum einnig um muninn milli á umhverfisvottaðra vara o...
Sat, 12 Sep 2026 - 176 - Kvennakvöld HeilsuErlu (Heilsumoli 49)
Kvennakvöld HeilsuErlu í samstarfi við Femarelle og Nutrilenk verður haldið á Spírunni í Garðheimum laugardaginn 10.október. Þetta verður ekkert venjulegt kvöld… því get ég lofað. 😉 Hlátur. Fræðsla. Tónlist. Matur. Stemmning. Miðasala er hafin hér. Húsið opnar kl.18:15 Fordrykkur og kvöldmatur* innifalinn. Formleg dagskrá hefst kl.19 og lýkur um kl.22. Erla Guðmundsdóttir- Heildræn heilsaEdda Björgvins- Húmor og heilsaElísabet Reynis- Næring og heilsaHalldóra Skúla- Hormónar og heilsaKvöldi...
Thu, 10 Sep 2026 - 175 - Sterkur september- heilsuáskorun (Heilsumoli 48)
Langar þig að koma þér aftur í þínar góðu venjur eftir sumarfrí og þarft smá aðhald? Taktu þátt í Sterkum september og nærðu þig andlega, líkamlega og félagslega sterkur líkami 💪🏻 sterkur hugur 🧠 sterk næring 🌱 sterk tengsl 🫶 = Sterk heild! Taktu þátt! Þetta er afar auðvelt. Hér er hlekkur á sniðmátið af áskoruninni.Prentaðu út blaðiðSkrifaðu inn þær venjur sem þig langar að tileinka þér í september. (1-10 venjur)Merktu við daglega. Þetta snýst ekki um fullkomnun, bara að gera sitt besta ...
Sat, 05 Sep 2026 - 174 - 126. Að treysta líkamanum aftur. (Saga um meiðsli, mótlæti, seiglu og sjálfsmynd). Sara Sigmundsdóttir
Í þessu viðtalið ræðir Erla við Söru Sigmundsdóttur afrekskonu í CrossFit um ótrúlega þrautargöngu hennar síðastliðin ár. Saga Söru snýst alls ekki bara um CrossFit heldur einnig um meiðsli, mótlæti, seiglu, pressu, sjálfsmynd, andlegt þol og það að læra að þekkja sjálfa sig og treysta líkama sínum aftur. Síendurtekin meiðsli og mótlæti hafa breytt sýn hennar á lífið og hún hefur nú fundið nýjan tilgang. ✨ Settu 10.október í dagatalið! ✨ Kvennakvöld HeilsuErlu á Spírunni. Það ve...
Sun, 30 Aug 2026 - 173 - 125. Fordómar þrífast í þögninni. (Fíkn, jaðarsetning, meðvirkni, viðhorfsbreyting, meðvitund og von). Hlynur Kristinn Rúnarsson
Í þessum þætti ræðir Erla við Hlyn Kristinn Rúnarsson, pabba, lögfræðing, fíkniráðgjafa og stofnanda félagasamtakanna Það er Von um fíkn, hvað hún er í raun og veru, hvernig hún getur haft áhrif á einstaklinginn sjálfan og fólkið í kringum hann og hvers vegna við þurfum að tala um hana með meiri skilningi og minni skömm. Þetta er ekki auðveld umræða en hún er mikilvæg. Ég vona að þetta samtal veki upp samkennd og skilning en kannski fyrst og fremst minnki fordóma. Takk til ykkar sem hlusti...
Sun, 16 Aug 2026 - 172 - 124. Konur eru alls konar. (Áhrif næringar, svefns, streitu, álags og endurheimtar á frammistöðu og heilsu). Lára Hafliðadóttir.
Í þættinum ræðir Erla við Láru Hafliðadóttir um konur í íþróttum og áhrif næringar, svefns, streitu, kvenheilsu, álags og endurheimtar á frammistöðu og almenna heilsu, bæði andlega og líkamlega. Þær stöllur ræða um alls kyns mýtur varðandi þjálfun og hreyfingu, hvort að það sé munur á konum og körlum, hvort að æfa þurfi á mismunandi hátt eftir því hvar konar er stödd í tíðarhringnum, hvernig æfingar henta á breytingarskeiði og fleira. Á vef verkefnisins má finna fjölda faglegra fræðslum...
Tue, 11 Aug 2026 - 171 - Hugleiðingar um venjur - ertu fórnarlamb eigin væntinga? (Heilsumoli 47)
Hlaðvarpið er orðið 3 ára og Season 4 er mætt. TAKK öll fyrir að hlusta! Í þessum heilsumola velti ég upp spurningunum: Af hverju er svona erfitt að breyta venjum? Hvernig get ég gert góða hegðun auðveldari og slæma hegðun erfiðari? Hvar á ég að byrja? Hvernig á ég að byrja? Hvernig verður eitthvað að venju? Venjur móta líf okkar meira en við gerum okkur grein fyrir. Við hugsum oft um stórar ákvarðanir sem það sem mótar lífið okkar. Hvar við búum. Hvað við lærum. Hvaða starf við veljum en í r...
Tue, 04 Aug 2026 - 170 - 123. Ekki láta samviskubitið éta þig. (Uppeldi, mörk, samskipti, skjánotkun og hegðunarvandi). Jasmín Guðrún Abu Libdeh
Í þessum þætti ræðir Erla við Jasmín Guðrúnu foreldraþjálfa um samskipti, uppeldi, skjánotkun, mörk, tengsl, samviskubitið fræga og áhrif þess á velferð og heilsu barna. Virkiega skemmtilegt og fræðandi spjall. Þið finnið Jasmín á TikTok þar sem hún setur inn alls konar fræðsluefni og er einnig nýbyrjuð með hlaðvarpið Orlofið þar sem rætt er um foreldrahlutverkið af einlægni. Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins: 💙 -HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir mikið með vörum frá New...
Sat, 25 Jul 2026 - 169 - Það er ekki til hættulaus kyrking! María Hjálmtýsdóttir. (Heilsumoli 46)
Í þessum heilsumola kom hún María Hjálmtýsdóttir kynjafræðikennari í spjall til Erlu til að ræða um nýtt átak og vitaundavakningu varðandi hættu kyrkinga, en átakið ber sama heiti og hlaðvarpið og vakti því sérstakan áhuga minn. Samtök og stofnanir sem vinna með brotaþolum ofbeldis hafa haft vaxandi áhyggjur af kyrkingartökum hin síðari ár, bæði sem hluta af öðru ofbeldi en líka sem hluta af kynlífi þar sem klámáhrifa gætir. Slík valdbeiting er iðulega kynbundin, þ.e. karlar eða drengir að ky...
Wed, 15 Jul 2026 - 168 - 122. Spilafíkn er dauðans alvara. (Kvíði, þunglyndi, skömm og sjálfsvígshugsanir). Börkur Reykjalín Brynjarsson
Nýlega settumst við Börkur Reykjalín Brynjarsson niður og ræddum um kvíða og þunglyndi, burnout, spilafíkn, skömm, sjálfsvígshugsanir og fleira. Hann segir í viðtalinu á einlægan hátt frá fallegri en sorgleg lífsreynslu þegar hann leitaði til Píeta samtakanna eftir að lífið hafði leikið hann grátt. Berki finnst mikilvægt að ræða opinskátt um hlutina í stað þess að byrgja þá inni og fela. Það er skömmin sem dregur allt of marga til dauða en einungis 10% þeirra sem eru með spilafíkn leita...
Fri, 10 Jul 2026 - 167 - 121. Það velur enginn að vera með offitu. (Sjúkdómurinn offita, megrunarmenning, matarsuð, átkastaröskun og fordómar). Rut Eiríksdóttir
í þættinum ræðir Erla við Rut Eiríksdóttur hjúkrunarfræðing um sjúkdóminn offitu. Rut segir frá megrunarmenningu í æsku, erfiðum bróðurmissi og hvers vegna hún stofnaði SFO samtök fólks með offitu. Þær stöllur ræða um skilgreininguna á sjúkdómnum, hlutverk erfða og umhverfis, matarsuð, átkastaröskun og fordóma. Rut hefur glímt við offitusjúkdómin frá barnæsku og alin upp í megrunarmenningu. Aðeins þrettán ára gömul þróaði Rut með sér átröskun og eftir að hafa barist áfram í áraraðir og ...
Sat, 27 Jun 2026 - 166 - Djúpslökun 2 (Heilsumoli 45)
Ég fékk ósk um að gera Djúpslökun án undirspils/tónlistar og varð að sjálfsögðu við þeirri beiðni. Í amstri dagsins er nauðsynlegt að gefa sér tíma til þess að ,,hlaða batteríin" okkar reglulega, bæði andlega og líkamlega. Við pössum flest að ræftæki okkar séu hlaðin fyrir daginn enn munum við eftir því að hlaða okkur sjálf? Til eru margar leiðir til þess að ,,hlaða" sig en djúpslökun er afar áhrifarík leið til þess að öðlast innri ró og losa um spennu og eða streitu sem situr í líkama...
Fri, 19 Jun 2026 - 165 - 120. Geðhvarfasýki og heilsa. (Geðrof, bataferli, umræða og fordómar). Anna María Jónsdóttir
Í þættinum ræðir Erla við Önnu Maríu Jónsdóttur um Geðhvarfasýki og heilsu en Anna María fór í sitt fyrsta geðrof fyrir um ári síðan. Hún segir okkur frá sjúkdómnum og bataferlinu og hvað það er mikilvægt að tala opinskátt um andlega sjúkdóma til þess að minnka fordóma. Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins: 💙 -HEILSUHILLAN. Breytingarskeið? Femarelle sem fyrsta meðferð. 🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘 -VIRKJA. Töfrandi nám í ...
Fri, 12 Jun 2026 - 164 - Hvað er hugrekki? Laufey Haraldsdóttir (Heilsumoli 44)
Þar sem að Hugrekki hefur verið mér ofarlega í huga síðan ég lauk námi mínu hjá Virkja og þau voru að byrja með hlaðvarpið Virkja spjallið, fékk ég leyfi til þess að deila þessum fallegu hugleiðingum Laufeyjar með ykkur. „Virkja Spjallið“ er podcast um markþjálfun, meðvitund og mannlegan vöxt. Við ræðum uppbyggileg málefni, skoðum eiginleika markþjálfunar og veltum fyrir okkur hvernig við getum innleitt markþjálfahugarfarið í daglegt líf og starf. Hlý og innihaldsrík spjöll fyrir ...
Wed, 10 Jun 2026 - 163 - 119. The transformative power of strength. (Nutrition, macros, mental toughness, menopause and lifestyle). Pia Marangoni
In this insightful interview, Pia Marangoni shares her journey from banking to health and strength coaching, emphasizing the importance of personalized nutrition, resilience, and the transformative power of strength sports. Discover practical tips on pre- and post-workout nutrition, managing menopause and hormonal changes through lifestyle and living in alignment with your true self. Pia Marangoni’s InstagramThe Fiercely Fueled Podcast A huge shoutout to the podcasts sponsors: 💙 -HEILS...
Fri, 05 Jun 2026 - 162 - 118. Beinþynning er hinn þögli sjúkdómur. (Næring, hreyfing, þyngdarstjórnunaraðgerðir, lyf og beinþéttni). Dr.Sigríður Björnsdóttir
Í þættinum ræðir Erla við Sigríði Björnsdóttur, innkirtla- og efnaskiptalækni um beinheilsu, hvað ákvarðar beinþéttni og hvers vegna við töpum beinþéttni í kringum tíðahvörf, hinn þögla sjúkdóm sem beinþynning er og hvað við getum gert með lífstíl okkar til þessa að fyrirbyggja eða snúa við þeirri þróun. Þær ræða einnig um áhrif ofþjálfunar, átröskunar, þyngdarstjórnunaraðgerða og lyfja á beinheilsu okkar og hversu mikilvægt það er að reyna að koma í veg fyrir að beinþéttni minnki til þ...
Fri, 29 May 2026 - 161 - 117. How Challenges Fuel Growth. (Resilience, self-sabotage, self-love and building habits). Katie Boshko
In this inspiring interview, Katie shares her journey through injury, mental health, and resilience, offering deep insights into mindset, habits, and holistic health. Discover how her experiences shaped her approach to coaching and life, emphasizing the importance of self-love, connection, and perseverance. She also shares practical strategies to enhance your well-being, performance, and self-love through stories and expert advice, helping you build habits for a fulfilling life. F...
Mon, 25 May 2026 - 160 - 116. Við þurfum að finna veikleikana okkar til að finna hugrekkið. (Mia Magic, langveik börn, hugarfar og andleg heilsa). Þórunn Eva G. Pálsdóttir
Viðmælandi þáttarins er hin dásamlega Þórunn Eva stofnandi Mía Magic. Þær Erla ræða um lífið og tilveruna, andlega heilsu, heilsubrest, langveik börn, hugarfar, hugrekki og margt fleira. Hvað er Mia Magic? Það er íslenskt góðgerðarfélag sem einbeitir sér að því að gleðja og styðja langveik börn og foreldra þeirra. Félagið gefur út fræðslubækur um sjúkdóma og aðgerðir sem hjálpa börnum að skilja algenga sjúkdóma og inngrip á þeirra forsendum, svo sem Mía fær lyfjabrunn, Mía fer í blóðpru...
Fri, 15 May 2026 - 159 - Næringarpælingar og heilsulæsi í boði Erlu (Heilsumoli 43)
Erla er að gera smá ,,tilraun" á sjálfri sér þessa dagana. Hún er að breyta til í mataræði sínu og borða eins og ráðlagt er fyrir íþróttakonur á besta aldri (sem eru að lyfta þungt). Þetta er frábrugðið því mataræði sem hún hefur tamið sér hingað til og talið vera æskilegt fyrir góða heilsu. Það er nauðsynlegt að gera tilraunir að sjálfum sér og prófa sig áfram því að það er ekki það sama sem hentar öllum. Við berum ábyrgð á eigin heilsu og það er því mikilvægt að læra að þekkja ...
Wed, 13 May 2026 - 158 - 115. Hvernig lifum við lengur? (Næringarlæsi, gjörunnin matvæli, trefjar, hugleiðsla og bláu svæðin). Helga Arnardóttir
Í þættinum ræðir Erla við Helgu Arnardóttur fjölmiðlakonu, handritshöfund og heilsuáhrifavald um langlífi, próteinæðið í heiminum, mikilvægi trefja, gagnsemi þyngdarstjórnunarlyfja, lífsbreytandi áhrif hugleiðslu, gjörunnin matvæli og hvað við getum gert til þess auka líkurnar á því að lifa vel og lengi. Helga hefur meðal annars gert þættina Lifum lengur og Blóðbönd sem ég mæli mikið með að þið horfið á. Helga hefur einnig gert kvikmyndirnar Birta og Röskun ásamt eiginmanni sínum Brag...
Fri, 01 May 2026 - 157 - Hver er HeilsuErla 2.0? (Heilsumoli 42)
Hver er HeilsuErla? Er hún enn sama manneskjan og tók upp kynningarþáttinn í júlí 2023? Í þessum Heilsumola veltir Erla því fyrir sér hvernig hún varð ,,jáhrifavaldur" í eigin lífi og hvernig hún hefur vaxið og þroskast með aukinni þekkingu, reynslu og viðtölum. Ert þú jáhrifavaldur í eigin lífi? Ert þú með lífið í lúkunum? Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Wed, 29 Apr 2026 - 156 - 114. Fjárhagslegt frelsi. (Sjálfstraust, fjármálahegðun og hagnýt ráð). Íris Líf Stefánsdóttir
Viðmælandi þáttarins er Íris Líf Stefánsdóttir bókari og gleðisprengja. Þær Erla ræða um sparnað, fjárhagslegt frelsi, mikilvægi sjálfstrausts, fjármálahegðun Íslendinga, fjárhagslega heilsu og svo veitir Íris Líf hlustendum frábær fjármálaráð til að bæta heimilisbókhaldið. Íris Líf sem er aðeins 25 ára rekur eigið bókhaldsfyrirtæki, Accounta.is, og er meðstofnandi nýsköpunarfyrirtækisins Virkum. Á TikTok og Instagram deilir hún góðum ráðum um fjármál og sparnað fyrir áhugasama. Sérst...
Sat, 18 Apr 2026 - 155 - 113. Healthy at 98 years. (Diet, attitude, purpose, excercise and never stop moving). Zona Merryman
In this interview Erla speaks with Zona Merryman a remarkable 98 year old lady and inspiration to everyone. She tells us how she has maintained good health over the years. Zona says that we are responsible for our own health and that our mindset is extremely important. In addition to how diet and social factors play a big role in good health, she emphasizes that we should never stop exercising and moving. She lives by herself, walks her dog several times a day and travels alone by plane fro...
Sat, 11 Apr 2026 - 154 - 112. Að draga úr ótímabærri öldrun. (Mataræði, hormónar, bætiefni, sykurfíkn, styrktarþjálfun ofl). Þorbjörg Hafsteinsdóttir
Í þættinum ræðir Erla við Þorbjörgu Hafsteinsdóttur, hjúkrunarfræðing, næringarþerapista, rithöfund og lífsstíls þjálfara um hennar bakgrunn og nálgun á heilsu, mýtur í mataræði, hormóna og konur, ótímabæra öldrun, sykurfíkn, bætiefni, þarmaflóru, mikilvægi styrktarþjálfunar, breytingarskeið kvenna og margt fleira. Þorbjörg er einn helsti brautryðjandi landsins á sviði heilsueflingar og mataræðis og hefur í áratugi aðstoðað fólk bæði á Íslandi og í Danmörku, þar sem hún er búsett, að bæta h...
Fri, 03 Apr 2026 - 153 - 111. Öndun er mitt hjartans mál. (Streita, öndunaræfingar, ferðalöngun, ADHD, að eiga barn í óreglu og meðvirkni). Lilja Steingrímsdóttir
Í þætti vikunnar ræðir Erla við Lilju Steingrímsdóttur, hjúkrunarfræðing og öndunarkennara um streitu, gagnsemi öndunaræfinga, mikla ferðalöngun, ADHD, að eiga barn í óreglu, meðvirkni og að snúa neikvæðum hlutum upp í jákvæða. Lilja sem hefur starfað sem hjúkrunarfræðingur í 44 ár segir öndun hafa bjargað lífi sínu og geðheilsu þegar hún skildi, flutti og fékk nýja vinnu allt á sama tíma. Hún kynntist þá óvænt öndunaræfingum sem hún gerði daglega í 9 ár og stundar enn 20 árum seinna. L...
Fri, 20 Mar 2026 - 152 - 110. Allt mótlæti kemur frá okkur sjálfum. (Ævintýri, ögrun og sjálfsþroski). Inga Þóra Ingadóttir
Í þættinum ræðir Erla við Ingu Þóru Ingadóttur, dásamlega stelpukonu um ævintýri lífsins, áskoranir, að ögra sjálfum sér, sjálfsvinnu, tækifæri og hvernig það er að flytja í ný lönd og kynnast ólíkri menningu. Inga er algjör nagli en samt með svo ótrúlega róandi og trausta nærveru sem skín í gegn í viðtalinu. Hún er íþróttakona, þjálfari og móðir sem brennur fyrir það að hjálpa fólki að vera besta útgáfan af sjálfu sér. Hún þjálfar nú hjá Mayhem perfomance coaching hjá Rich Froning sem ...
Sat, 07 Mar 2026 - 151 - 109. A better you. (Declining nutrient status, food processing, soil degredation, absorption of supplements and wellness.) Andrew Thomas
In this conversation, Andrew Thomas, founder of Better You, shares his personal journey from the fashion industry to the health sector, driven by his own health challenges as an asthmatic. He discusses the importance of magnesium and its role in overall health, the decline in nutritional quality of food, and the significance of vitamins and minerals in our diets. Andrew emphasizes the need for education in making informed health choices and the benefits of innovative supplementation met...
Sat, 28 Feb 2026 - 150 - 108. Lífið og tilveran. (Tilvistarkreppa, breytingarskeið, streita, foreldramissir, ADHD og draumar). Kristborg Bóel Steindórsdóttir
Í þættinum ræðir Erla við Kristborgu Bóel Steindórsdóttur, fyrrum blaðamann, dagskrárgerðarkonu, rithöfund og nú nýjast ömmu og hlaðvarps stjórnanda. Þær stöllur ræða um lífið og tilveruna og öllu sem því fylgir, um það að vera einstætt foreldri, að missa foreldra, tilvistarkreppu, breytingarskeið, streitu, ADHD og drauma. Ástríða Kristborgar liggur í því að segja sögur og fá aðra til þess að segja sögur og stóri draumurinn er að ferðast um heiminn, standa á sviði og tala, vera nokkurs konar ...
Fri, 20 Feb 2026 - 149 - 107. Óútskýrðir langvinnir verkir. (Verndarkerfi líkamans, næming, öryggi, ótti og aðlögunarhæfni taugakerfisins). Hera Rut og Thelma Rut Hólmarsdætur
Í þættinum ræðir Erla við samrýmdu systurnar Thelmu Rut og Heru Rut um óútskýrða langvinna verki. Þær eru báðar sjúkraþjálfarar í fæðingarorlofi og eru saman með námskeiðið Náðu stjórn á verkjum auk þess að vera með ókeypis fræðslu á Hreyfilausnir bæði á Instagram og Facebook. Í þættinum ræða þær um skilgreiningu óútskýrðra langvinnra verkja og hvað er til ráða þegar þeir eru til staðar. Það sem er afar áhugavert er að slíkir verkir eru sjaldan beintengdir skaða heldur mótast af taugakerfinu,...
Sat, 07 Feb 2026 - 148 - Hvað er blóðsykurstjórnun? Elísabet Reynisdóttir. (Heilsumoli 41)
Í þessum þriðja Heilsumola frá Betu Reynis er fjallað um Blóðsykustjórnun, en með því er átt við að nota mataræðið til að stjórna blóðsykrinum. Þær stöllur ræða um skammtastærðir, sterkju, tímasetningu máltíða, kynjamun, að taka ábyrgð á eigin mataræði og eigin heilsu með því að hlusta á líkamann og margt fleira. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Fri, 30 Jan 2026 - 147 - Magasýrur, hvers vegna skipta þær miklu máli? Elísabet Reynisdóttir. (Heilsumoli 40)
Í þessum öðrum Heilsumola af þremur ræðir Erla við Betu Reynis um magasýrur, einkenni um lágar magasýrur og einkenni ef magasýrur eru háar, hvernig við eigum að bregðast við og hvað við getum gert með mataræði til þess að hafa góð áhrif. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Fri, 30 Jan 2026 - 146 - Hvað er Nikkel óþol? Elísabet Reynisdóttir. (Heilsumoli 39)
Í þessum fyrsta Heilsumola af þremur ræðir Erla við Elísabetu Reynisdóttir næringarfræðing og næringarþerapista um Nikkel óþol. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Fri, 30 Jan 2026 - 145 - Frábær febrúar, 28 daga heilsuáskorun HeilsuErlu. (Heilsumoli 38)
Hefur þig lengi langað til þess að gera einhverjar breytingar á heilsuhegðun þinni en það gerist einfaldlega bara ekki eða þú kemur þér ekki í að fara af stað? Stundum þurfum við einfaldlega smá spark í rassinn til þess að komast af stað og þá verður allt auðveldara í kjölfarið. Ein af uppáhalds tilvitnunum mínum er ACTION OFTEN COMES BEFORE MOTIVATION en þýðir að stundum þurfum við einfaldlega að bara byrja, taka ábyrgð og gera eitthvað í málunum og síðan kemur hvatningin. Ekki bíða ef...
Thu, 29 Jan 2026 - 144 - 106. Að veikjast á dularfullan hátt. (Óþol fyrir tækni, hljóðfælni, verkir, P-DTR meðferð, samvægi og núllstilling taugakerfisins). Sölvi Freyr Valdimarsson
Í þættinum ræðir Erla við Sölva Frey Valdimarsson, nýútskrifaðan dúx Menntaskólans við Hamrahlíð, sem veiktist á mjög dularfullan hátt þegar hann var í 10.bekk. Eftir að hafa gengið á milli lækna og annara fagmanna eins og barnalækna, taugalækna, heimilislækna, sjúkraþjálfara, naprapata, heilara, nálastungu og margra fleiri fann hann loksins bót meina sinna eftir 10 kvalarfulla og krefjandi mánuði. Sölvi segir okkur frá þessari erfiðu lífsreynslu sinni og stefnir nú sjálfur á nám ...
Fri, 23 Jan 2026 - 143 - Byrjaðu árið með stæl. (Heilsumoli 37)Sat, 17 Jan 2026
- 142 - Hjartsláttarbreytileiki (HRV). Sigrún Haraldsdóttir. (Heilsumoli 36)
Í þessum stutta Heilsumola útskýrir Sigrún hvað Hjartsláttarbreytileiki (HRV) er og hvernig við getum mælt hversu sterk Vagus taugin er og bætt svokallað Vagal tone með öndun. Heilsumolinn er framhald af viðtali nr. 105. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Sat, 10 Jan 2026 - 141 - 105. Ert þú með ofþanið taugakerfi? (Vagus taugin, öndun, bandvefur, líkamsvitund og jafnvægi.) Sigrún Haraldsdóttir
Í þættinum ræðir Erla við Sigrúnu Haraldsdóttur stofnanda Happy hips um Vagus taugina (Flökkutaugina), bandvef, ofþanið taugakerfi, hraðann í nútíma samfélagi, öndun, líkamsvitund og hvernig hægt er að núllstilla taugakerfið. En hvað er Vagus taugin? Vagus taugine að Flökkutaugin eins og hún er líka nefnd er oft séð sem “umferðarstjórnandi”, þar sem hún er mikilvæg samskiptabraut milli líkamans og heilans en hún vinnur við að stýra öndun, hjartslætti, vöðvum, meltingu, koki, raddböndum...
Fri, 09 Jan 2026 - 140 - Box öndun í boði Sigrúnar Haralds (Heilsumoli 35)
Á næstu dögum fer í loftið alveg frábært viðtal við Sigrún Haraldsdóttur eiganda Happy hips um Vagus taugina. Hún talar meðal annars um mikilvægi öndunar til þess að róa taugakerfið og býður ykkur hér upp á stutta öndunaræfingu sem þið getið nýtt ykkur hvar og hvenær sem er. Box öndun (Kassaöndun) 6-4-8-4. Sigrún Haraldsdóttir leiðir okkur í gegnum áhrifaríka öndunaræfingu til þess að róa taugakerfið. Innöndun á 6 sek- halda inn andanum í 4 sek- fráöndun á 8 sek og svo halda aftur í 4 s...
Wed, 07 Jan 2026 - 139 - 2026 Himnastigar- Sjáumst á nýársdag (Heilsumoli 34)
Sjáumst í Himnastiganum í Kópavogi á nýársdag. Síðustu þrjú ár (á nýársdag) hef ég haldið viðburð í Himnastiganum sem er nú orðinn ómissandi hefð fyrir marga. Í þessum örstutta Heilsumola segi ég frá því hvernig þetta byrjaði allt á 365 Himnastigum árið 2023, sem urðu svo 1000 Himnastigar árið 2024 og loks 2025 Himnastigar árið 2025. Á nýársdag 1.janúar 2026 ætlum við að endurtaka leikinn hafa gaman saman og vekja athygli á mikilvægi daglegrar hreyfingar. Öll eru velkomin og við æ...
Wed, 31 Dec 2025 - 138 - 104. Mataræði er kóngur. (Heilsuvenjur, föstur, kríur, jarðtenging og fleira.) Sigurjón Ernir Sturluson
Í þættinum ræðir Erla við Sigurjón Erni Sturluson, íþróttafræðing, ofurhlaupara og frumkvöðul um æsku hans og hvernig hún hefur mótað hann, heilsuvenjur, jarðtengingu, kríur, föstur, næringarþéttni, ranghugmyndir í samfélaginu, tilgang lífsins og fleira. Sigurjón er eigandi UltraForm og er einnig með hlaupaþjálfun og lífsstílsþjálfun. Hann hefur reynt flest á eigin skinni til að komast að því hvernig hægt sé að hámarka heilsu og deilir þekkingu sinni á Instagram og Facebook. Þátturinn er un...
Fri, 26 Dec 2025 - 137 - 103. Að dúxa endurhæfingu. (Lýðheilsa, heilaheilsa, öndunaræfingar, næringarþéttni, hreyfing og svefn). Sonja Sif Jóhannsdóttir
Í þættinum ræðir Erla við Sonju Sif Jóhannsdóttur, íþróttafræðing um lýðheilsu, heilaheilsu, endurhæfingu eftir höfuðhögg, Vagus taugina, mikilvægi öndunaræfinga, næringarþéttni, svefn, hreyfingu, spennandi rannsókn sem hún gerði á heilsu sjómanna og margt fleira. Sonja starfar í Menntaskólanum við Hamrahlíð og Háskóla Íslands, hún er íþróttakona og mögnuð heilsufyrirmynd. Hún hefur starfað í „heilsubransanum" í yfir 30 ár. Ekki missa af þessu frábæra spjalli við þessa fróðu konu. Þát...
Fri, 12 Dec 2025 - 136 - Svo lengi lærir sem lifir. Ólympískar lyftingar, HM ævintýrið og hugarfar. Kári Walter og HeisluErla (Heilsumoli 33)
Í undirbúningi mínum fyrir HM í ólympískum lyftingum stakk Kári þjálfari upp á því að við myndum taka smá hlaðvarpsspjall um vegferðina. Úr varð skemmtilegur og óhefðbundinn þáttur þar sem að ég er ekki spyrillinn heldur er þetta spjall um muninn á ólympískum lyftingum og kraftlyftingum, hvers vegna styrktarþjálfun er mikilvæg fyrir alla og hvers vegna ólympískar lyftingar eru frábær stuðningur við aðrar íþróttagreinar. Svo ræðum við auðvitað um undirbúninginn fyrir mótið, ferðalagið á HM, ke...
Fri, 05 Dec 2025 - 135 - 102. Hvað eru „triggerar"? (Áfallastreita, sjálfsvitund, taugakerfið og leiðavísir að ósýnilegum sárum). Anna Sigurðardóttir
Í þessum þætti ræðir Erla við Önnu Sigurðardóttur sálfræðing um triggera eða kveikjur. Leitast er við að svara ýmsum áhugaverðum spurningum. Hvað eru triggerar? Hver ber ábyrgð á því að við triggerumst? Afhverju bregðumst við við á ólíkan hátt og hvað getum við gert í kjölfarið? Hvað er áfallasteita? Hvað er kveikjuviðvörun? Trigger getur verið leiðavísir að ósýnlegum sárum og tækifæri til sjálfsvitundar. Viðbrögð okkar eru samspil af líffræðilegri næmni, sögulegri reynslu og persónuleika og ...
Fri, 28 Nov 2025 - 134 - Sambandið við okkur sjálf. Anna Sigurðardóttir (Heilsumoli 32)
Skemmtilegt spjall við Önnu Sigurðardóttur sálfræðing um tengslin eða sambandið við okkur sjálf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Fri, 28 Nov 2025 - 133 - Hvað liggur að baki þörfinni fyrir að hafa stjórn? Anna Sigurðardóttir (Heilsumoli 31)
Í þessum Heilsumola ræðir Erla við Önnu Sigurðardóttur sálfræðing um þörfina fyrir það að hafa stjórn. Hvað liggur að baki? Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Fri, 28 Nov 2025 - 132 - Hugleiðsla fyrir triggera. Anna Sigurðardóttir (Heilsumoli 30)
Á næstunni kemur út þáttur um triggera eða kveikjur. Frábært viðtal við Önnu Sigurðardóttur sem lýsir á mannlegan og um leið faglegan hátt hvað gerist í líkamanum og afhverju þegar við ,,triggerumst". Hér kemur ein stutt hugleiðsla sem hægt er að nýta við þessar aðstæður. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Fri, 21 Nov 2025 - 131 - 101. Sorg er eins og öldugangur. (Íþróttir, ofþjálfun, missir, áföll, örmögnun, lífsgleði og drifkraftur). Silja Úlfarsdóttir
Í þættinum ræðir Erla við Silju Úlfarsdóttur um lífið, sorgina, missir, áföll, mikilvægi íþrótta, eldmóð, fyrirmyndir og margt fleira. Farið er yfir allan tilfinningaskallann frá hlátri til gráturs. Silja er að eigin sögn íþróttapönkari sem brennur fyrir málefni sem tengjast íþróttum og hefur verið mikill jáhrifavaldur í þeim málefnum síðustu ár. Hún er algjör gleðisprengja, vinur vina sinna, stórkostleg mamma og er með alveg magnaðann og smitandi drifkraft. Á nokkurra ára tímabili dund...
Sat, 15 Nov 2025 - 130 - 100. Heilsuspjall fegðina. (Fyrirmyndir, lágkolvetna mataræði, heilbrigðiskerfið, örmögnun og lífsstíll). Dr. Guðmundur Björnsson
Í þættinum ræðir Erla við Guðmund Björnsson föður sinn og heilsufyrirmynd um starfsferil hans sem læknir, lífstíl, lágkolvetna mataræði, heilbrigðiskerfið, mikilvægi þess að hugsa vel um heilsuna, vera ekki fastur í vítahring þess að þurfa að taka þátt í öllu sem er í boði, stressaðu sig ekki of mikið og taka hlutunum ekki of alvarlega. Guðmundur er sérfræðingur endurhæfingarlækningum og hefur starfað á ýmsum sviðum á sinni starfsævi, t.d. á slysadeild Borgarspítalans, í heilsugæslu og í áhöf...
Sat, 01 Nov 2025 - 129 - 99. Ekki vera hrædd við að gera mistök. (Móðurmissir, dugnaður, þrjóska, mörk og hættuleg ímynd ofurkonunnar). Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir
Í þættinum ræðir Erla við hina dásamlegu Ragnhildi Steinunni Jónsdóttur um lífið og tilveruna, að alast upp hjá einstæðum föður, eldmóð í starfi, mikilvægi þess að setja mörk, hvernig það er að eiga tvíbura, hættulega ímynd ofurkonunnar, metnað, dugnað og þrjósku. Ragnhildur Steinunn er líklega flestum landsmönnum kunnug enda hefur hún verið ein öflugasta sjónvarps- og dagskrárgerðarkona landsins í yfir 20 ár. Nýjasta verkefni hennar er heimildarmyndin Takk Vigdís sem hún hefur unnið hörðum...
Sat, 25 Oct 2025 - 128 - Sníðum okkur stakk eftir vexti (Heilsumoli 29)
Hugleiðingar HeiluErlu á mánudagsmorgni! Ert þú að gera of miklar kröfur til þín? Ert þú að brjóta þig niður þegar allt fer ekki eins og þig langar? Hvaða boltum ert þú að halda á lofti? Er hægt að leggja einhverja til hliðar tímabundið? Ert þú að sýna þér mildi? Ert þú að stefna á ,,vegginn"? Hvað nærir þig? Hvað hentar þér akkúrat núna? Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Mon, 20 Oct 2025 - 127 - 98. Settu athyglina á gnægð en ekki skort. (Þakklæti, núvitund, náttúran, hamingja og bjargráð). Erla Súsanna Þórisdóttir
Í þættinum ræðir Erla við nöfnu sína Erlu Súsönnu Þórisdóttur og þakklætisdrottningu. Erla Súsanna er með heimasíðuna Töfrakistan og gaf fyrir nokkrum árum út Þakklætisdagbókina, sem er verkfæri sem getur hjálpað þér að innleiða hugarfar þakklætis inn í daglegt líf. Erla er að eigin sögn fróðleiksfús manneskja, jarðbundin en líka fiðrildi, lífsglöð og jákvæð. Henni þykir gaman að grúska í og skoða hvað gerir lífið þess virði að lifa því. Hún stafaði sem grunnskólakennari í 13 ár og var ...
Sat, 11 Oct 2025 - 126 - HEILSUÁSKORUN- Ef þú breytir engu þá breytist ekkert! (Heilsumoli 27)
Hvernig væri að breyta gömlum venjum sem eru ekki að gagnast þér lengur? Þessi áskorun snýst um að velja sér EITT atriði sem mun hafa jákvæð áhrif á heilsu þína og gera það daglega eða vikulega (fer eftir þínu markmiði) fram til 1.janúar 2026. Þú getur annað hvort bætt einhverju góðu inn í líf þitt eða tekið út eitthvað sem er að hafa neikvæð áhrif á heilsuna. Þetta getur t.d verið að bæta inn daglegu þakklæti, hreyfingu, lesa í 15 mínútur eða taka út áfengi, sykur, hætta að taka síman...
Sat, 04 Oct 2025 - 125 - Ungbarnasund Erlu (Heilsumoli 28)
Í þessum heilsumola fer Erla yfir praktísk atriði fyrir alla sem hafa áhuga á því að koma á námskeið hjá Ungbarnasundi Erlu í Suðurbæjarlaug. Ungbarnasund hefur gífurlega jákvæð áhrif á heilsu barna, líkamlega, andlega og félagslega. Ungbarnasund örvar hreyfiþroska barna og styrk, stuðlar að betri svefni og matarlyst, örvar skynfæri barnsins og hækkar streituþröskuld. Einnig styrkir ungbarnasund tengslamyndun foreldra og barna sem hefur áhrif á líðan og heilsu bæði foreldra og barns til...
Sat, 04 Oct 2025 - 124 - 97. Sálfélagslegt öryggi og heilsa. (Vinnustaðamenning, heilsumissir og innri vöxtur). Harpa Þrastardóttir
Í þessum þætti ræðir Erla við Hörpu Þrastardóttur, hugrakka stelpukonu um erfiða lífsreynslu sem varð til þess að hún missti heilsuna. Hún hefur nýtt þessa reynslu og aukna þekkingu til innri vaxtar og til þess að fræða og valdefla aðra. Hún stofnaði í kjölfarið Kjarkur ráðgjöf sem býður upp á alhliða ráðgjöf og fræðslu á sviði vinnuverndar svo sem mannauðsmála, stjórnunar, EKKO mála, gæðamála, umhverfismála og öryggis- og heilsumála. Allt eru þetta þættir sem fyrirtæki þurfa að huga að...
Sat, 27 Sep 2025 - 123 - Hvað er Virkja og hvernig getur markþjálfun hjálpað þér að vaxa? (Heilsumoli 25)
Í þessum heilsumola ræða Erla og Laufey um Virkja og hvernig markþjálfun hefur hjálpað þeim að vaxa. Virkja er einn af dyggu samstarfsaðilum hlaðvarpsins og ég get ekki mælt meira með náminu hjá þeim en eins og þið heyrið í spjallinu þá hefur það gefið mér mjög mikið. Hægt er að bóka fría 20 mínútna námskynningu á virkja.is <3 Kíktu á Virkja á Instagram Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Fri, 19 Sep 2025 - 122 - Núllstilling -8 mínútur. Laufey Haraldsdóttir (Heilsumoli 26)
Laufey Haraldsdóttir eigandi Virkja færir hlustendum hlaðvarpsins þessa dásamlegu gjöf. Hún leiðir okkur í gegnum 8 mínútna núllstillingu en æfinguna getur þú hlustað á hvar og hvenær sem er þegar þér hentar. Tilvalið til þess að hægja á í amstri dagsins, minnka streitu og kyrra hugann. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Fri, 19 Sep 2025 - 121 - 96. Við erum bara mannleg. (Heildræn heilsa, þakklæti, taugakerfið, vöðvauppbygging og frelsi). Arnaldur Birgir Konráðsson
Í þættinum ræðir Erla við Arnald Birgi Konráðsson sem er þjálfari og heilsuáhrifavaldur með yfir 20 ára reynslu. Hann hefur þjálfað bæði almenning og afreksfólk og er þekktur undir ýmsum nöfnum, m.a. Coach Birgir, Birgir Þjálfun og Biggi Bootcamp. Þau ræða um heildræna heilsu, þakklæti, taugakerfið, vöðvauppbyggingu á gamals aldri, hreyfingu, svefn, næringu, muninn á Íslendingum og Dönum og margt fleira í afar skemmtilegu og gefandi viðtali. Áhugasamir geta fundið Coach Birgi á Instagra...
Sat, 13 Sep 2025 - 120 - 95. Hvatberaheilsa. (Vannæring, PCOS, næringarráðleggingar, faraldsfræði, efnaskipti og fræolíur). Ragnheiður Vernharðsdóttir
Í þættinum ræðir Erla við Ragnheiði Vernharðsdóttur, sérnámslækni í augnlækningum og fjögurra barna móður sem er nýlega flutt heim til Íslands eftir nám í Noregi. Ragnheiður brennur fyrir bætta heilsu og vellíðan, bæði hjá sjálfri sér og öðrum og hefur í raun prófað allt milli himins og jarðar til að bæta heilsu sína. Til dæmis ólíkar tegundir mataræðis eins og vegan, grænmetisfæði og keto, fjölbreytta hreyfingu og ýmsar leiðir til sjálfsræktar. Hún skilur í dag að heilsa snýst ek...
Sat, 30 Aug 2025 - 119 - 94. Aldrei gefast upp. (Seigla, þolinmæði og óbilandi viljastyrkur 15 ára drengs). Magnús Máni Magnússon
Í þættinum ræðir Erla við Magnús Mána Magnússon sem er aðeins 15 ára en hefur þegar sýnt meiri seiglu, þolinmæði og viljastyrk en margir upplifa á langri ævi. Sumarið 2023 breyttist líf Magnúsar á örfáum dögum. Eftir stutt veikindi missti hann mátt og alla skynjun frá bringu og niður. Bakteríusýking hafði náð alla leið inn í mænuna og olli alvarlegri bólgu sem lamaði hann. Síðastliðin 2 ár hefur hann staðið í gríðarlega krefjandi endurhæfingu með óbilandi markmið, að ná sér að fullu. Hann hef...
Sat, 16 Aug 2025 - 118 - 93. Að týnast í myrkrinu. (Andleg heilsa, áskoranir, sjósund og seigla). Sigurgeir Svanbergsson
Í þættinum ræðir Erla við Sigurgeir Svanbergsson, íslenskan sjósundskappa sem lét ekki veðrið, öldurnar né marglyttur stoppa sig þegar hann lagði upp í eitt stærsta sundævintýri sem hægt er að ímynda sér, að synda yfir Ermasundið. Markmið hans var ekki aðeins að takast á við þessa gríðarlegu áskorun heldur einnig að vekja athygli og safna áheitum fyrir Píeta samtökin, sem vinna ómetanlegt starf í forvarnar- og stuðningsstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða. Við ræddum um undirbúninginn, andl...
Sat, 02 Aug 2025 - 117 - 92. Frjósemi og heilsa. (Mögulegar ástæður ófrjósemi, mýtur, offita, úrræði og hlutverk lífsstíls). Snorri Einarsson
Í þættinum ræðir Erla við Snorra Einarsson sérfræðing í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum um áhrif lífsstíls á frjósemi, mögulegar ástæður ófrjósemi, mýtur og hvaða úrræði eru í boði. Snorri hefur starfað við ófrjósemislækningar frá 2006 og er framkvæmdastjóri, yfirlæknir og einn af stofnendum Livio Reykjavík. Í frítímanum er það fjölskyldan og börnin fjögur sem skipa stærstan sess og ekki er það verra ef öll fjölskylda...
Sat, 26 Jul 2025 - 116 - 91. Turning obsession into purpose. (Mental health, OCD, passion and healing). Matt Moreman
In this first English speaking episode Erla´s guest is Matt Moreman, the creator of the hugely popular YouTube channel “Obsessed Garage.” With over half a million followers, Matt has built a loyal audience by sharing his deep passion for quality, detail, and all things garage-related. But behind the videos is a personal story. Matt was diagnosed with OCD, and what started as a personal struggle became the foundation of his business and purpose. We talk about his journey, how OCD shaped his li...
Sat, 12 Jul 2025 - 115 - 90. Hvað er fjórða vaktin? (Foreldrakulnun, hindranir í kerfinu og úrræði). Lóa Farestveit Ólafsdóttir og Sara Rós Kristinsdóttir
Í þætti vikunnar komu til Erlu í afar áhugavert spjall þær Sara Rós Kristinsdóttir og Lóa Farestveit Ólafsdóttir til að ræða um fjórðu vaktina, foreldrakulnun, hindranir í kerfinu, podcastið 4.vaktina og margt fleira. En hvað er fjórða vaktin? Þriðja vaktin hefur fengið töluverða umræðu síðustu ár og er þar verið að vitna í það huglæga sem fólk þarf að sinna umfram daglega vinnu. Fyrir foreldra fatlaðra og langveikra barna er töluvert meira álag og vinna en á aðra foreldra og því er oft talað...
Sat, 28 Jun 2025 - 114 - 89. Ertu að hella upp á gleði eða sorg? (Öryggi, tengslamyndun, tengslarof, taugakerfið, uppeldi og sjálfsvinna). Angelía Fjóla Vilhjálmsdóttir
Í þættinum ræðir Erla við Angelíu Fjólu Vilhjálmsdóttur um öryggi, tengslamyndun, tengslarof, tilfinningar, viðbrögð taugakerfisins, ég og þú boð, uppeldi, bjargráð, mikilvægi þess að tilheyra og sjálfsvinnu. En þetta eru allt þættir sem hafa mikil áhrif á heilsu okkar. Angelía Fjóla segir á einlægan hátt sögu sína sem er átakanleg og mótaði hana mikið. Hún segir að lífsreynslan hafa skilið eftir dýpra spor í sálinni en hún gerði sér grein fyrir og að óöryggi hafi fylgt sér síðan hún muni eft...
Sat, 14 Jun 2025 - 113 - Núvitund- 4 mínútna hleðsla (Heilsumoli 24)
Þú getur nýtt þér þessa örstuttu núvitundaræfingu þegar þú átt erfitt með að einbeita þér eða þarft aðeins að taka þér hugrænt hlé og ,,hlaða batteríiin þín". Núvitund er hugtak sem lýsir þeirri athygli sem við beinum viljandi að því sem er að gerast hér og nú, á hlutlausan og opinn hátt. Núvitund felur í sér að: Vera í meðvitundVeita athygli t.d. öndun, líkamshlutum, hugsunum eða tilfinningum.Ekki dæma það sem við verðum vör við heldur taka eftir því eins og það er, án þess að flokka sem got...
Tue, 10 Jun 2025 - 112 - 88. Þegar áskoranir verða innblástur. (Nýtt líf eftir veikindi, nýsköpun, næring sem boðefni, magasýrur, insúlínviðnám og óþol). Beta Reynis
Í þættinum ræðir Erla við Betu Reynis næringarfræðing, næringarþerapista og frumkvöðul um magnaða lífreynslu þegar hún greindist með taugasjúkdóminn Guillain–Barré og lamaðist en náði að vinna sig upp úr heilsuleysinu með hugarfari og lífstíl. Þær stöllur ræða um næringu almennt og ýmsar næringarráðleggingar varðandi t.d. blóðsykur, magasýrur, fræolíur, soja prótein, eplaedik, bætiefni og steinefni en einnig um hvaðan áhuginn á hollri og góðri næringu kemur, insúlínviðnám, að greina óþo...
Sat, 31 May 2025 - 111 - Astaxanthin. (Heilsumoli 23)
Heilsuvara mánaðarins hjá HeilsuErlu og Heilsuhillunni er Astaxanthin. Astaxantín er öflugt andoxunarefni sem er aðallega unnið úr örþörungum (Haematococcus pluvialis) og gefur t.d. laxi, rækjum og flamingófuglum bleikarauðan litinn. Það er gagnlegt af nokkrum ástæðum en Astaxanthin hefur verið mikið rannsakað og er talið meðal annars: •styðja við húðheilsu – bæði gegn sólarskemmdum og öldrun húðarinnar •bæta orku og úthald – vinsælt meðal íþróttafólks •styðja við hjarta- og æðakerfið •...
Thu, 29 May 2025 - 110 - Heilsumissir í kjölfar áfalla. Dr. Ólafur Þór Ævarsson (Heilsumoli 22)
Í þriðja viðtalinu (heilsumolanum) af þremur við Dr.Ólaf Þór Ævarsson geðlækni ræða þau Erla um heilsumissi í kjölfar áfalla. Hvernig hafa áföll áhrif á heilsu okkar? Hvað er að gerast í heilanum? Hvað er að gerast í líkamanum? Geta áföll setið í taugakerfinu? Er hægt að ná bata? Dyggir samstarfsaðilar hlaðvarpsins Með lífið í lúkunum eru: Spíran. Dásamlegur veitingastaður staðsettur í Garðheimum. Sumarsalat HeilsuErlu er nú komið á matseðil Spírunnar og ekkert ykkar ætti að láta það ...
Sat, 17 May 2025 - 109 - Forvarnir í geðheilsu. Dr. Ólafur Þór Ævarsson (Heilsumoli 21)
Í öðru viðtalinu (heilsumolanum) af þremur við Dr.Ólaf Þór Ævarsson geðlækni ræða þau Erla um forvarnir í geðheilsu. Hverjar eru helstu forvarnir í geðheilsu og eru þær árangursríkar? Afhverju er aukning í streitu og kulnun? Hvaða áhrif lífsstíll og kröfurnar í nútímasamfélagi? ofl Dyggir samstarfsaðilar hlaðvarpsins Með lífið í lúkunum eru: Spíran. Dásamlegur veitingastaður staðsettur í Garðheimum. Sumarsalat HeilsuErlu er nú komið á matseðil Spírunnar og ekkert ykkar ætti að láta það fr...
Sat, 17 May 2025 - 108 - Heimur geðlæknisins, Dr. Ólafur Þór Ævarsson (Heilsumoli 20)
Í fyrsta viðtalinu (heilsumolanum) af þremur við Dr.Ólaf Þór Ævarsson geðlækni ræða þau Erla um heim geðlæknisins og geðlæknisfræðina. Hvernig starfar geðlæknir og hefur starfið breyst mikið? Eru tengsl á milli þarmaflóru og geðheilsu? Hver er helsti misskilningurinn um geðsjúkdóma? ofl Dyggir samstarfsaðilar hlaðvarpsins Með lífið í lúkunum eru: Spíran. Dásamlegur veitingastaður staðsettur í Garðheimum. Sumarsalat HeilsuErlu er nú komið á matseðil Spírunnar og ekkert ykkar ætti...
Sat, 17 May 2025 - 107 - Sagan og maðurinn á bakvið Spíruna. (Heilsumoli 19)
Á næstu vikum mun ég kynna dygga samstarfsaðila hlaðvarpsins með stuttum Heilsumolum í hlaðvarpinu. Næsti samstarfsaðili sem ég kynni til leiks er Spíran. Sumarsalat HeilsuErlu er nú komið á matseðil Spírunnar og ekkert ykkar ætti að láta það fram hjá ykkur fara! Spíran er dásamlegur veitingastaður staðsettur í Garðheimum við Álfabakka 6 í Reykjavík. Hann er fjölskylduvænn bistró-staður sem leggur áherslu á hollan og góðan mat, gerðan frá grunni úr gæða hráefnum og lagaður af miki...
Thu, 15 May 2025 - 106 - Gagnsemi kísils og GeoSilica. (Heilsumoli 18)
Á næstu vikum mun ég kynna dygga samstarfsaðila hlaðvarpsins með stuttum Heilsumolum í hlaðvarpinu. Fyrst í spjall til mín var Steinunn Ósk Valsdóttir, markaðsstjóri Geo Silica sem er nýjasti samstarfsaðilinn. Steinunn segir okkur frá fyrirtækinu og gagnsemi kísils en GeoSilica® framleiðir náttúruleg fæðubótarefni í vökvaformi til daglegrar inntöku, sem hjálpa til við endurnýjun líkamans frá toppi til táar. Fyrirtækið vinnur steinefni úr jarðhitasvæðum Íslands með byltingarkenndri framleið...
Sat, 10 May 2025 - 105 - 87. Töfrarnir í hinu óformlega. (Lýðskólar, innri vöxtur, heilsumissir, flæði og valdefling). Margrét Gauja Magnúsdóttir
Í þætti vikunnar ræðir Erla við Margréti Gauju Magnúsdóttur sem er að eigin sögn orkusprengja með mjög litríka og skrautlega ferilskrá. Hún starfar nú sem skólastjóri Lýðskólans á Flateyri og brennur fyrir óformlega menntakerfinu, úrræðum og velferð ungmenna. Við ræddum um lýðskóla, þar sem nemendur koma í skólann af innri áhuga og forvitni, fá hrós, hvatningu og stuðning. Engar einkunnir og ekkert vesen. Í lýðskóla fæst frelsi til að mennta og þroska nemendur með óhefðbundnum en árangu...
Sat, 03 May 2025 - 104 - 86. Meðvirkni og heilsa. (Birtingarmyndir og áhrif, ytra og innra virði, hvatvísi, ADHD, hugleiðsla og heilsumissir). Valdimar Þór Svavarsson
Í þætti vikunnar ræðir Erla við Valdimar Þór Svavarsson um meðvirkni og þau áhrif hún getur haft á líf okkar og heilsu. Meðvirknin er lævíst og lamandi fyrirbæri sem snertir fleiri en flesta grunar. Þau ræða um hvað meðvirkni er, hvernig hún þróast og hvernig hún getur birst í lífi okkar en einnig um heilsumissi Valdimars eftir að hann var bitinn af skógarmítli, ytra og innra virði, hvatvísi, ADHD, hugleiðslu, áhrif meðvirkni á líkamlega og andlega heilsu, hlutverk hreyfingar, meðvirkni módel...
Sat, 19 Apr 2025 - 103 - 85. Það er svo gaman að vera sterkur! (Agi, þolinmæði, vinnusemi, þyngdarflokkar, lífsstíll og Ólympíuleikar). Eygló Fanndal Sturludóttir
Í þættinum ræðir Erla við Eygló Fanndal Sturludóttur, unga og efnilega íþróttakonu og læknisfræðinema um hvað þarf til þess að ná góðum árangri, þyngdarflokka, jafnvægi, heilbrigðan lífsstíl, imposter syndrome og hvernig það er að vera afreksíþróttakona á Íslandi og fleira. Eygló er afrekskona í Ólympískum lyftingum sem hefur verið á þvílíkri „siglingu" undanfarið. Hún fékk nýverið tilnefningu til lyftingakonu Evrópu og það er ekki að undra því að þyngdirnar sem hún lyftir eru ekkert gr...
Sat, 05 Apr 2025 - 102 - 84. Alkóhólismi og heilsa. (Fíknisjúkdómar, afneitun, að taka ábyrgð, þakklæti, að sleppa fortíðinni og hætta að óttast framtíðina.) Kristján B.
Í þættinum ræðir Erla við Kristján um alkóhólisma, fíknisjúkdóma, afneitun, að taka ábyrgð, þakklæti, erfiðar tilfinningar, hvað það er mikilvægt að sleppa fortíðinni og hætta að óttast framtíðina og nýtt upphaf. Ég bauð honum til mín eftir að hafa lesið falleg skrif hans á FaceBook í byrjun árs. Hann sagði þá frá því að eftir 17 ár edrú hafi sjúkdómurinn náð að komast inn fyrir varnir hans því hann hafði ekki sinnt viðhaldi á batanum. Kristján segir að við hafi tekið 2 ár af ógeði sem hann l...
Sat, 22 Mar 2025 - 101 - Hundraðasti þátturinn! (Heilsumoli 17)
Heil og sæl kæru hlustendur, í tilefni þess að þessi þáttur er sá hundraðasti sem ég gef út þá langar mig að koma með smá samantekt af því hvað ég hef lært á þessu ferli og smá vangaveltur um heilsu. Ég hef sem sagt gefið út 83 viðtöl og þetta er 17. Heilsumolinn sem gerir samtals 100 þætti, hvorki meira né minna. Það sem ég upplifi þegar ég tek þetta saman er Stolt og þakklæti. Ég er virkilega stolt af sjálfri mér að hafa dembt mér út í þetta verkefni haustið 2023 án þess að ofhu...
Mon, 17 Mar 2025 - 100 - 83. Lífsstílslækningar. (6 grunnstoðir heilsu, samfélagssjúkdóma, ME- sjúkdómurinn, blóðsykurstjórnun og lífsstílsbreytingar.) Kjartan Hrafn og Tekla Hrund
Í þættinum ræðir Erla við hjónin og læknana, Kjartan Hrafn Loftsson og Teklu Hrund Karlsdóttur um Lífsstílslækningar, 6 grunnstoðir heilsu, þróun í læknavísindum, samfélagssjúkdóma, ME-sjúkdóminn, blóðsykurstjórnun og fleira auk þess hversu áhrifaríkar lífsstílsbreytingar geta verið til að fyrirbyggja eða bæta ástand flestra langvinna sjúkdóma og auka lífsgæði. Tekla og Kjartan eru stofnendur fyrirtækisins Sound Health og leggja sérstaka áherslu á hugmyndafræði lífsstílslækninga (lifest...
Sat, 08 Mar 2025 - 99 - 82. „Skipulag í óreiðunni" (Félagskvíði, átröskun, ófrjósemi, frestunarárátta, þakklæti og heilbrigðar venjur.) Katrín Edda Þorsteinsdóttir
Í þættinum ræðir Erla við Katrínu Eddu Þorsteinsdóttur, tveggja barna móður og vélaverkfræðing um lífið og tilveruna, ófrjósemi, foreldrahlutverkið, heilbrigðar venjur, andlega heilsu, félagskvíða, átröskun, heilbrigt samband við mat, þakklæti, frestunaráráttu, ADHD, ofbeldissamband, samfélagsmiðla og fleira. Katrín Edda sem búsett er í Þýskalandi hefur vakið mikla athygli á Instagram þar sem hún tjáir sig filterslaust og af mikilli einlægni með heilbrigðri nálgun um daglegt líf sitt og...
Sat, 22 Feb 2025 - 98 - 81. Náttúran kallar. (Að gista í hellum, sofa undir berum himni, elda mat á hverum og baða sig á leyndum baðstöðum.) Úlfar Jón Andrésson
Í þessu áhugaverða spjalli kynnumst við Úlfari Jóni Andréssyni sem fer ekki hefðbundnar leiðir í lífinu. Hann er fæddur og uppalinn í Hveragerði og býr þar ásamt eiginkonu sinni og tveimur litlum börnum. Við ræðum um uppeldið og lífsstíl hans sem felst mikið í útivist, t.d. að gista í hellum, sofa undir berum himni og jafnvel í snjóstormi, elda mat á hverum, skauta á gígjum og baða sig á leyndum baðstöðum. Úlfar og kona hans hafa börnin sín með í flestum ævintýrum sínum og draumurinn er...
Sat, 08 Feb 2025 - 97 - Hvað er Lífshlaupið? (Heilsumoli 16)
Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra aldurshópa. Í Lífshlaupinu eru landsmenn allir hvattir til þess að huga að sinni daglegu hreyfingu og auka hana eins og kostur er þ.e. í frítíma, vinnu, í skóla og við val á ferðamáta. ÍSÍ styðst við ráðleggingar Embætti landlæknis um hreyfingu. Nánari upplýsingar um ráðleggingar um hreyfingu má finna á síðu Embætti Landlæknis. Lífshlaupið stendur fyrir: Grunnskólakeppni fyrir 15 ára og yngr...
Mon, 03 Feb 2025 - 96 - 80. Heilsueflandi vinnustaðir og fyrirbyggjandi læknisfræði. (Hamingja, menning, kulnun og uppbyggingarleyfi). Hilda Hrönn Guðmundsdóttir
Í þætti vikunnar ræðir Erla við Hildu Hrönn Guðmundsóttur sérnámslæknir í heimilislækningum um heilsueflandi vinnustaði, vellíðan, hamingju, viðhorf, menningu, kulnun, uppbyggingarleyfi, tækifæri á Íslandi og fleira. Hilda Hrönn starfar á Heilsugæslunni á Akureyri og brennur fyrir fyrirbyggjandi læknisfræði og lýðheilsu og hefur sérstakan áhuga á heilsu lækna og heilbrigðisstarfsfólks almennt. Hún segir meðal annars frá því hvernig hugmynd hennar að rannsóknar- og gæðaverk...
Sat, 01 Feb 2025 - 95 - 79. Í alvöru talað! (Streita, kulnun, áföll, veikindaleyfi og sjálfsvinna). Gulla og Lydía Ósk
Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Með lífið í lúkunum, spjallar Erla við stórskemmtilegu vinkonurnar, Gullu og Lydíu Ósk sem halda úti hlaðvarpinu Í alvöru talað! Í þættinum ræða þær meðal annars um áföll, erfiða æsku, kulnun, streitu, veikindaleyfi, skömm, nauðsynlegar samfélagslegar breytingar og sjálfsvinnu. Þær stöllur eru að eigin sögn miðaldra mæður að láta móðan mása. Lydía er sálfræðingur og jógakennari en Gulla er förðunarfræðingur, áhugaleikari og tískudrós. Einkunnarorð þeirra: V...
Sat, 25 Jan 2025 - 94 - Djúpslökun- 35 mínútur. (Heilsumoli 15)
Í amstri dagsins er nauðsynlegt að gefa sér tíma til þess að ,,hlaða batteríin" okkar reglulega, bæði andlega og líkamlega. Við pössum flest að ræftæki okkar séu hlaðin fyrir daginn enn munum við eftir því að hlaða okkur sjálf? Til eru margar leiðir til þess að ,,hlaða" sig en djúpslökun er afar áhrifarík leið til þess að öðlast innri ró og losa um spennu og eða streitu sem situr í líkamanum. Þessi djúpslökun er rúmlega 30 mínútna leidd hugleiðsla sem er einföld en afar áhrifarík leið...
Mon, 20 Jan 2025 - 93 - 78. Með heilsuna í vasanum. (Næringarlæsi, næringarþéttni og kostir og gallar þess að telja macros). Ingi Torfi og Linda Rakel.
Í þættinum ræðir Erla við hjónin Inga Torfa Sverrisson og Lindu Rakel Jónsdóttur. Þau hjónin hafa á síðust árum hjálpað ótal einstaklingum að bæta heilsu sína og hafa hannað og komið á laggirnar smáforritinu Life Track sem getur stutt við heilsuferðalag fólks á margvíslegan hátt. VIð ræddum um hugmyndafræðina á bakvið appið, hvernig það kom til að fasteignasali og bankastarfsmaður hættu í vinnunni sinni í miðju covid og fóru að hjálpa fólki að bæta heilsuna. Við ræddum um macro...
Sat, 18 Jan 2025 - 92 - 77. „Standið í lappirnar!" Heilsa og velferð barna og ungmenna. Þorgrímur Þráinsson
Í þættinum ræðir Erla við Þorgrím Þráinsson rithöfund, fyrirlesara og talsmann heilsu, mannúðar og réttlætis um heilsu, kvíðakynslóðina, skólakerfið, skjánotkun, samfélagsmiðla, tengslamyndun og fleira. Þorgrímur þorir að segja það sem margir hugsa. Hann brennur fyrir það að bæta líðan ungmenna i landinu og hefur um áraraðir haldið fyrirlestra í grunnskólum landsins til þess að aðstoða ungmenni við að verða ástangin af lífinu. Þorgrímur hefur á síðustu áratugum verið ,,maðurinn á bakvið...
Sat, 11 Jan 2025 - 91 - 76. Styrkur er valdeflandi. (Móðurhlutverkið, atvinnumennska, æfingar tengdar tíðahring, meðgöngu og breytingarskeiði kvenna). Anníe Mist Þórisdóttir
Í fyrsta þætti ársins ræðir Erla við Anníe Mist Þórisdóttur sem er flestum Íslendingum kunnug og reyndar víðs vegar um heiminn líka og er með 1,4 milljón fylgendur á Instagram. Hún er alveg mögnuð íþróttakona sem hefur verið á hæsta leveli í Crossfit síðan árið 2009. Við ræddum um móðurhlutverkið, atvinnumennsku, CrossFit íþróttina og muninn á því að keppa sem einstaklingur eða með liði og hvað það hefur kennt henni. Við förum yfir mjög sorglegan atburð sem átti sér stað á Heimsleikunum...
Sat, 04 Jan 2025 - 90 - 75. Liðleiki, hreyfigeta og lífsgæði. (Styrkur, andleg og líkamleg heilsa, ADHD og að setja sér mörk). Lilja Sigurgeirsdóttir.
Í þættinum ræðir Erla við Lilju Sigurgeirsdóttur um liðleika, hreyfigetu, lífsgæði, styrk, andlega og líkamlega heilsu, ADHD, að setja sér mörk og margt fleira. Lilja sem er oft kölluð Liðleika Lilja er með alls konar námskeið. Hún þjálfar bæði börn og fullorðna, almenning og íþróttafólk og hjálpar einstaklingum að ná árangri og bæta heilsu sína með aukinni hreyfigetu og styrk. Í lok þáttarins kemur Lilja með góð ráð fyrir íþróttafólk. Þetta er einlægt viðtal, stútfullt af fróðleik og á eri...
Thu, 19 Dec 2024 - 89 - 74. Ungur nemur gamall temur. (Hreyfing heilsunnar vegna, breytingar á íþróttakennslu á 40 árum, knattspyrnuþjálfun og starfslok). Logi Ólafsson
Í þættinum ræðir Erla við Loga Ólafsson, íþróttakennara, húmorista og knattspyrnuþjálfara um starfsferil Loga sem er langur og viðburðaríkur. Þau ræða um hvað heilsa er mikilvæg, breytingar á 40 árum í íþróttakennslu, knattspyrnuþjálfun, áhugamál, starfslok og fleira. Logi er mörgum kunnugur sem knattspyrnuþjálfari og lýsandi í sjónvarpi. Hann hefur þjálfað mörg knattspyrnulið í gegnum tíðina og bæði karla- og kvenna landslið Íslands í knattspyrnu. En það sem ekki allir vita er að...
Thu, 12 Dec 2024 - 88 - 73. Að finna taktinn. (Húmor, burnout, meðferð, breytingaskeið kvenna og sjálfsmildi). Sóley Kristjánsdóttir
Í þættinum ræðir Erla við Sóleyju Kristjánsdóttur uppistandara, markþjálfa og stjórnendaþjálfa um mannlega hegðun, húmor, venjur, burnout, meðferð, breytingaskeið kvenna, gæfuspor, sjálfsmildi, mikilvægi þess að taka ábyrgð á sjálfum sér og hvað það getur verið erfitt að vera öðruvísi eða sigla á móti straumnum. Sóley segist stundum fá þráhyggjur fyrir hlutum og fara þá all-in í að grúska um það málefni í smá tíma. Það gerði hún varðandi Breytingaskeið kvenna og byrjaði með hlaðvarpið Að finn...
Thu, 05 Dec 2024 - 87 - 72. Að vera betri í dag en í gær. (Áhrif meiðsla á andlega líðan og heilsu íþróttafólks). Haraldur Holgersson
Í þættinum ræðir Erla við Harald Holgersson eða Halla eins og hann er alltaf kallaður. Halli er ekki bara frábær þjálfari heldur einnig magnaður íþróttamaður sem hugsar vel um heilsuna. Halli stefnir á að verða hraustasti maður heims einn daginn. Hann keppti árið 2016 í unglingaflokki á heimsleikunum í Crossfit og svo ári síðar með liði CrossFit XY en svo settu meiðsli smá strik í reikninginn næstu árin. Halli hefur verið að kljást við alvarlegt brjósklos í bakinu síðastliðin 5 ár. Það hefur ...
Thu, 28 Nov 2024 - 86 - 71. Þyngdarstjórnunarkerfi líkamans og heilsa. (Sjúkdómurinn offita, efnaskiptaaðgerðir, þyngdarstjórnunarlyf, fordómar, lífsstíll og umhverfisþættir). Erla Gerður Sveinsdóttir
Í þættinum ræðir Erla við nöfnu sína Erlu Gerði Sveinsdóttur lækni og sérfræðing í offitusjúkdómum um sjúkdóminn offitu, efnaskiptaaðgerðir, þyngdarstjórnunarlyf, virkni og aukaverkanir þeirra, nauðsynlegar breytingar á lífstíl í kjölfar inngripa, fordóma gagnvart offitu, áhrif umhverfisþátta á heilsufar og fleira. Erla Gerður hefur unnið við offitumeðferð með einum eða öðrum hætti síðustu 15 árin. Hún vill vinna heildrænt og þverfaglega og starfar nú með teymi sínu hjá Mín besta heilsa við...
Thu, 21 Nov 2024 - 85 - 70. Sjálfsvíg, sálgæsla og sorg. (Áhrif á aðstandendur og mikilvægi hreyfingar fyrir andlega heilsu). Auður Hallgrímsdóttir
Í þætti vikunnar ræðir Erla við dásamlega vinkonu sína og gleðisprengju Auði Hallgrímsdóttur. Auður er mikil félagsvera sem elskar að hreyfa sig úti í náttúrunni. Auður missti föður sinn úr sjálfsvígi fyrir rúmum 5 árum og ákvað strax að hún myndi nýta sér þessa erfiðu lífsreynslu til þess að hjálpa öðrum. Í þessu einlæga og fallega viðtali ræðum við meðal annars um sjálfsvíg, áhrif á aðstandendur, sálgæslu og mikilvægi hreyfingar í andlegri heilsu og þegar tekist er á við erfið áföll. Auður ...
Thu, 14 Nov 2024 - 84 - 69. Vertu með þér í liði. (Sjálfsvinna, narsissismi, flókin áfallastreituröskun, að setja mörk, þakklæti og jólahefðir). Helgi Ómarsson
Í þættinum ræðir Erla við Helga Ómarsson ljósmyndara og jáhrifavald um sjálfsvinnu, narsissisma, flókna áfallastreituröskun, að setja mörk, litla Helga, þakklæti, stolt, jólahefðir og hvernig hann vill nýta rödd sína og þekkingu ti þess að hjálpa öðrum. Helgi er með hlaðvarpið Helgaspjallið og Helgi og Erla áttu afar skemmtilegan dag saman og tóku ,,two for one" þar sem að Erla fór einnig í spjall til Helga sama dag. Kíkið á viðtalið í Helgaspjallinu Hlaðvarpið er unnið í samstarfi við: ...
Thu, 07 Nov 2024 - 83 - 68. Ástin er ekki takmörkuð. (Áföll, triggerar, traust, tilfinningar, kynlíf, nekt og opin sambönd). Árni Björn Kristjánsson og Guðrún Ósk Maríasdóttir
Í þættinum ræðir Erla við hjónin Árna Björn og Guðrúnu Ósk um lífið og tilveruna, um áföll eins og að eignast langveikt barn, höfuðhögg og heilsuleysi, áfallastreitu, triggera og traust. Einnig ræðum við um mikilvægi þess að leyfa sér að upplifa allar tilfinningar, hvernig samskipti eru lykillinn að góðu sambandi, hvers vegna þau eru vegan, hvernig kynlíf getur orðið betra með árunum, nekt, opin sambönd og fleira. Guðrún og Árni segjast lífa eftir þeirri lífsspeki að það eigi ekki vera nein...
Thu, 31 Oct 2024 - 82 - 67. Árangur v.s heilsa. (Hámarkssúrefnisupptaka, grunnbrennsla, HRV, mjólkursýra, þjálfunarpúls, zone 1-5, hitaaðlögun, mikilvægi svefns og ofþjálfun). Sigurður Örn Ragnarsson
Í þætti vikunnar ræðir Erla við Sigurð Örn Ragnarsson, verkfræðing og þríþrautakappa um það hvernig hægt sé að ná sem bestum árangri sem afreksíþróttamaður, ,,kostnað" afreka á heilsuna, hámarkssúrefnisupptöku, HRV, mjólkursýru, þjálfunarpúls, zone 1-5, hitaaðlögun, mikilvægi svefns, ofþjálfun, grunnbrennslu og margt fleira. Sigurður Örn er magnaður íþróttamaður sem nýtir þekkingu sína og reynslu til þess að ná góðum árangri í þríþraut en um leið besta heilsu sína. Hann er viskubrunnur og áðu...
Thu, 24 Oct 2024
Podcasts similar to Með lífið í lúkunum
Wife, Mother, Slave, Sex Goddess A. Heyward
Barangay Love Stories Barangay LS 97.1 Manila | GMA Network Inc.
Good Bad Billionaire BBC World Service
Cyprian Majcher Cyprian Majcher
Die Nachrichten Deutschlandfunk
Podcast Wojenne Historie Historia II wojny światowej
Forensic Files HLN
Nowenna pompejańska. Świadectwa https://pompejanska.krolowa.pl/
ILLVERK Podcast Inga Kristjáns
الشيخ أحمد العجمي islami
True Crime Documentary Justin Kandell Network
WojewódzkiKędzierski Kuba Wojewódzki, Piotr Kędzierski
Dear MOR MOR Entertainment
Snapped: Women Who Murder Oxygen
Papa Dudut Stories Papa Dudut | TAGM Marketing Solutions Inc.
DUDEK o polityce prof. Antoni Dudek i Super Exspress
Przemek Górczyk Podcast Przemek Górczyk
Sceny zbrodni RMF FM
Í ljósi sögunnar RÚV
Þetta nútímalíf RÚV Hlaðvörp
Skuggavaldið skuggavaldid
Money News Tapt Media
Żurnalista - Rozmowy bez kompromisów zurnalistapl
العلم والإيمان - د. مصطفى محمود علم ينتفع يه
LANGA - hlaðvarp Snorri Björns
Ráðgátan radgatan
The Mel Robbins Podcast Mel Robbins
Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms heilsuhladvarp
On Purpose with Jay Shetty iHeartPodcasts
The Dan Buettner Podcast Dan Buettner
The Psychology of your 20s iHeartPodcasts
360 Heilsa Rafn Franklin Johnson
Cutler Cast cutlercast
The Practice Brave Podcast Brianna Battles
Figuring It Out Dr Alex George
Herbal Radio Mountain Rose Herbs
Physio Network Physio Network
Carlas Visdomskilde Carla Mickelborg