Filtrar por gênero

Með lífið í lúkunum

Með lífið í lúkunum

HeilsuErla

Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunumfær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt.


Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.

181 - 130. Dugnaður drepur. (Heilsuorlof, ofurkonan, mygla og leitin að heilsunni). Guðrún Hafþórs
0:00 / 0:00
1x
  • 181 - 130. Dugnaður drepur. (Heilsuorlof, ofurkonan, mygla og leitin að heilsunni). Guðrún Hafþórs

    Í þessum þætti ræðir Erla við alveg hreint dásamleg stelpukonu, Guðrúnu Hafþórs, um lífið og tilveruna, heilsumissi, streitu, myglu, áhrif áfalla, leitina að heilsunni, um ofurkonuna og dugnaðinn sem drepur! Á Instagram síðu sinni deilir Guðrún raunveruleikanum á einlægan og hispurslausan hátt undir slagorðinu „vott jú sí is vott jú get“. Þar fjallar hún um lífið eins og það er í heilsuorlofi, bæði hæðir og lægðir og reynir að smita gleði og dreifa glimmeri. Þessi þáttur er einnig í mynd og v...

    Fri, 23 Oct 2026
  • 180 - Eru skjáir að ræna okkur félagslegum töfrum? Viðar Halldórsson (Heilsumoli 50)

    Í þessum Heilsumola ræðir Erla við Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands um nýju bókina hans “How Digital Screen Use Alienates Human Societies: A treatise on social magic and its decadence”. Bókin fjallar um neikvæð áhrif skjábyltingarinnar og varpar ljósi á þá þversögn hvernig fjölbreyttari og víðtækari samskiptahættir hafa stuðlað að auknu samskiptaleysi og firringu, sem birtist meðal annars í auknum einmanaleika og angist, pólariseringu og á...

    Thu, 15 Oct 2026
  • 179 - 129. Þú getur ekki hafnað þér til heilsu. Guðni Gunnarsson

    Í þættinum ræðir Erla við Guðna Gunnarsson um vitund, athygli, ábyrgð, viðnám, höfnun, þakklæti og hvað þarf að gera til þess að vera virkur þátttakandi í eigin lífi. Guðni hefur verið áberandi í umræðunni um heilsu, hreyfingu, jóga og sjálfsrækt um árabil. Guðni sem notar íslenskuna svo fallega með skilgreingum á orðum sem við notum hugsunarlaust, hefur meðal annars skrifað bækurnar Máttur athyglinnar, Máttur viljans og Máttur þakklætis. Hann hefur í gegnum tíðina talað mikið um athygli, áby...

    Fri, 09 Oct 2026
  • 178 - 128. Hvernig fjölgum við heilbrigðum æviárum? Kristján Þór Gunnarsson

    Í þættinum ræðir Erla við Kristján Þór Gunnarsson, heimilislækni um áhrif lífsstíls á heilsu, samfélagssjúkdóma, skaðsemi gjörunninna matvæli á almenna heilsu, næringarlæsi, stöðu heilbrigðiskerfisins á Íslandi og hver eða hvað ber ábyrgð á versnandi heilsu þjóðarinnar, hvernig við getum mögulega snúið þeirri þróun við og um leið fjölgað heilbrigðum æviárum. Erla og Kristján ræða einnig um heildræna heilsu og hvernig þættir eins og svefn, mataræði, hreyfing, streitustjórnun, félagsleg s...

    Fri, 25 Sep 2026
  • 177 - 127. Að virða ekki eigin mörk endar með kulnun. (Kærleikur, umhverfisvernd, hormónaraskandi efni og meðvitund). Heiðrún Birna Rúnarsdóttir.

    Í þættinum ræðir Erla við Heiðrúnu Birnu Rúnarsdóttur. Heiðrún hefur verið ötull talsmaður fyrir umhverfisvernd og er stofnandi og eigandi Grænu stofunnar sem er eina umhverfisvottaða hárgreiðslustofan á Íslandi. Þær stöllur ræðu um áhrif þess að alast upp í sveit, hvaðan áhuginn og virðingin fyrir umhverfinu spratt, hvernig gildi okkar geta verið leiðarvísir í lífi og starfi og hve mikilvægt það er að setja sér og öðrum mörk. Við ræddum einnig um muninn milli á umhverfisvottaðra vara o...

    Sat, 12 Sep 2026
Mostrar mais episódios