Filtrar por gênero

Jón Ólafs á spjallinu

Jón Ólafs á spjallinu

Jón Ólafsson

Jón Ólafs á spjallinu er hlaðvarpsþáttur þar sem Jón ræðir við skemmtilegt og áhugavert fólk um lífið og tilveruna. Hann hefur um árabil verið með annan fótinn í fjölmiðlum meðfram tónlistinni og komið víða við. Fjölmiðlaferilinn hóf hann sem blaðamaður á Tímanum og þegar Rás 2 var stofnuð var Jón einn fjórmenninganna sem stýrðu fyrsta þættinum á stöðinni. Ekki leið á löngu þar til hann fór í sjónvarp og margir kannast við þættina Af fingrum fram sem svo breyttust í spjalltónleika í Salnum sem sér ekki fyrir endann á. Það er von Jóns að hlustendur verði margs vísari að lokinni hlustun.

47 - 47.þáttur: Vilhjálmur Guðjónsson
0:00 / 0:00
1x
  • 47 - 47.þáttur: Vilhjálmur Guðjónsson

    Það er óhætt að segja að Vilhjálmi Guðjónssyni sé margt til lista lagt. Hann teflir 3-4 skákir á hverjum degi og þeysir þess á milli á mótorhjólinu út um allar koppagrundir. Vilhjálmur nýtur mikillar virðingar í íslenskum tónlistarheimi enda einn fjölhæfasti tónlistarmaður sem Ísland hefur alið. Nánast öll hljóðfæri leika í höndunum á honum þó saxófónninn og gítarinn séu þar fremst í flokki. Hann hefur stjórnað fjölda hljómsveita, allt frá rokktríóum til stórsveita; samið fyrir leikhús og kvikmyndir auk þess sem hann átti um árabil 80-90% allra auglýsingastefja sem við heyrðum á öldum ljósvakanna. Vilhjálmur er einn af frumherjum Tónlistarskóla FÍH og þeir eru ófáir tónlistarmennirnir sem hann hefur kennt á löngum ferli.

    Wed, 21 Oct 2026 - 1h 53min
  • 46 - 46.þáttur: Sr. Davíð Þór Jónsson

    Davíð Þór Jónsson varð fyrir einelti þegar hann flutti, ungur drengur, í Hafnarfjörðinn og því linnti ekki fyrr en hann skipti um lið og gerðist gerandi sjálfur. Hann fann hamingjuna í Flensborgarskóla þar sem hann kynntist sínum bestu framtíðarvinum við félagsmálastörf. 18 ára gamall eignaðist Davíð sitt fyrsta barn og var í litlu sambandi við dóttur sína lengi framan af ævi hennar en í dag eru þau góðir vinir. Þrisvar sinnum sótti hann um inngöngu í Leiklistarskóla Íslands en var hafnað í öll skiptin. Þeir Steinn Ármann fóru svo í útvarpið og þátturinn þeirra hlaut nafnið Radíus og til urðu þá Radíusbræður sem skemmtu landsmönnum í mörg ár með húmor sem í dag þætti með öllu óviðeigandi. Nú starfar Davíð Þór Jónsson sem prestur í Laugarneskirkju og en sinnir jafnframt kveðskapnum sem hann hefur stundað í áratugi. Svo fer hann stundum í Taekwondo.

    Wed, 14 Oct 2026 - 2h 29min
  • 45 - 45.þáttur: Karen Kjartansdóttir

    Kjarnorkukonan, Karen Kjartansdóttir, vakti líklega fyrst athygli sem fréttamaður og í því starfi undi hún sér æði vel í áratug áður en hún spreytti sig í almannatengslum og fleiru. Hún var óhrædd að liðsinna umdeildum fyrirtækjum og samtökum og er með tandurhreina samvisku. Í dag starfar hún hjá Veðurstofu Íslands og unir sér vel. Skrif hennar á fésbók um ólíklegustu málefni eru eftirtektarverð enda á hún til að greina hlutina í þaula áður en hún lætur eitthvað frá sér. Karen gekk fyrir skemmstu yfir Grænlandsjökul og gerir ekki lítið úr þeirri þrekraun.

    Wed, 30 Sep 2026 - 1h 25min
  • 44 - 44.þáttur: Eyþór Gunnarsson

    Eyþór Gunnarsson hefur í áratugi verið einn fremsti hljómborðsleikari þjóðarinnar. Hann vakti ungur athygli fyrir hæfileika sína og 16 ára gamall var hann farinn að leika á böllum með hljómsveitinni Tívolí. Þar kynntist hann Ellen Kristjánsdóttir sem síðar varð eiginkona hans. Saman hafa þau hjón gengið í gegnum súrt og sætt og kvöddu Bakkus fyrir margt löngu sem var þeirra besta ákvörðun. Á næsta ári verða liðin 50 ár frá því að þeir Eyþór, Friðrik Karlsson, Gunnlaugur Briem og Jóhann Ásmundsson stofnuðu hljómsveitina Mezzoforte og stendur ýmislegt til.

    Fri, 18 Sep 2026 - 2h 01min
  • 43 - 43.þáttur: Lalli töframaður

    Lalli töframaður er besti vinur barnanna og nýtir eigin lífsreynslu óspart þegar hann skemmtir þeim. Töfri töfri kallast sýning sem hann var að frumsýna í Tjarnarbíói og fjallar um ofurkraftana hans sem hann tengir við greiningar sínar, adhd, lesblindu og tourette. Hann er menntaður smiður en undanfarin ár hefur hann nær eingöngu starfað sem skemmtikraftur á eins marga vegu og sá starfstitill rúmar. Lalli hefur gefið út plötu, skrifað bók og er ávallt reiðubúinn í sínum grunnbúning að skemmta fólki - stundum með nær engum fyrirvara!

    Mon, 14 Sep 2026 - 1h 45min
Mostrar mais episódios