Filtra per genere
Jón Ólafs á spjallinu er hlaðvarpsþáttur þar sem Jón ræðir við skemmtilegt og áhugavert fólk um lífið og tilveruna. Hann hefur um árabil verið með annan fótinn í fjölmiðlum meðfram tónlistinni og komið víða við. Fjölmiðlaferilinn hóf hann sem blaðamaður á Tímanum og þegar Rás 2 var stofnuð var Jón einn fjórmenninganna sem stýrðu fyrsta þættinum á stöðinni. Ekki leið á löngu þar til hann fór í sjónvarp og margir kannast við þættina Af fingrum fram sem svo breyttust í spjalltónleika í Salnum sem sér ekki fyrir endann á. Það er von Jóns að hlustendur verði margs vísari að lokinni hlustun.
- 47 - 47.þáttur: Vilhjálmur Guðjónsson
Það er óhætt að segja að Vilhjálmi Guðjónssyni sé margt til lista lagt. Hann teflir 3-4 skákir á hverjum degi og þeysir þess á milli á mótorhjólinu út um allar koppagrundir. Vilhjálmur nýtur mikillar virðingar í íslenskum tónlistarheimi enda einn fjölhæfasti tónlistarmaður sem Ísland hefur alið. Nánast öll hljóðfæri leika í höndunum á honum þó saxófónninn og gítarinn séu þar fremst í flokki. Hann hefur stjórnað fjölda hljómsveita, allt frá rokktríóum til stórsveita; samið fyrir leikhús og kvikmyndir auk þess sem hann átti um árabil 80-90% allra auglýsingastefja sem við heyrðum á öldum ljósvakanna. Vilhjálmur er einn af frumherjum Tónlistarskóla FÍH og þeir eru ófáir tónlistarmennirnir sem hann hefur kennt á löngum ferli.
Wed, 21 Oct 2026 - 1h 53min - 46 - 46.þáttur: Sr. Davíð Þór Jónsson
Davíð Þór Jónsson varð fyrir einelti þegar hann flutti, ungur drengur, í Hafnarfjörðinn og því linnti ekki fyrr en hann skipti um lið og gerðist gerandi sjálfur. Hann fann hamingjuna í Flensborgarskóla þar sem hann kynntist sínum bestu framtíðarvinum við félagsmálastörf. 18 ára gamall eignaðist Davíð sitt fyrsta barn og var í litlu sambandi við dóttur sína lengi framan af ævi hennar en í dag eru þau góðir vinir. Þrisvar sinnum sótti hann um inngöngu í Leiklistarskóla Íslands en var hafnað í öll skiptin. Þeir Steinn Ármann fóru svo í útvarpið og þátturinn þeirra hlaut nafnið Radíus og til urðu þá Radíusbræður sem skemmtu landsmönnum í mörg ár með húmor sem í dag þætti með öllu óviðeigandi. Nú starfar Davíð Þór Jónsson sem prestur í Laugarneskirkju og en sinnir jafnframt kveðskapnum sem hann hefur stundað í áratugi. Svo fer hann stundum í Taekwondo.
Wed, 14 Oct 2026 - 2h 29min - 45 - 45.þáttur: Karen Kjartansdóttir
Kjarnorkukonan, Karen Kjartansdóttir, vakti líklega fyrst athygli sem fréttamaður og í því starfi undi hún sér æði vel í áratug áður en hún spreytti sig í almannatengslum og fleiru. Hún var óhrædd að liðsinna umdeildum fyrirtækjum og samtökum og er með tandurhreina samvisku. Í dag starfar hún hjá Veðurstofu Íslands og unir sér vel. Skrif hennar á fésbók um ólíklegustu málefni eru eftirtektarverð enda á hún til að greina hlutina í þaula áður en hún lætur eitthvað frá sér. Karen gekk fyrir skemmstu yfir Grænlandsjökul og gerir ekki lítið úr þeirri þrekraun.
Wed, 30 Sep 2026 - 1h 25min - 44 - 44.þáttur: Eyþór Gunnarsson
Eyþór Gunnarsson hefur í áratugi verið einn fremsti hljómborðsleikari þjóðarinnar. Hann vakti ungur athygli fyrir hæfileika sína og 16 ára gamall var hann farinn að leika á böllum með hljómsveitinni Tívolí. Þar kynntist hann Ellen Kristjánsdóttir sem síðar varð eiginkona hans. Saman hafa þau hjón gengið í gegnum súrt og sætt og kvöddu Bakkus fyrir margt löngu sem var þeirra besta ákvörðun. Á næsta ári verða liðin 50 ár frá því að þeir Eyþór, Friðrik Karlsson, Gunnlaugur Briem og Jóhann Ásmundsson stofnuðu hljómsveitina Mezzoforte og stendur ýmislegt til.
Fri, 18 Sep 2026 - 2h 01min - 43 - 43.þáttur: Lalli töframaður
Lalli töframaður er besti vinur barnanna og nýtir eigin lífsreynslu óspart þegar hann skemmtir þeim. Töfri töfri kallast sýning sem hann var að frumsýna í Tjarnarbíói og fjallar um ofurkraftana hans sem hann tengir við greiningar sínar, adhd, lesblindu og tourette. Hann er menntaður smiður en undanfarin ár hefur hann nær eingöngu starfað sem skemmtikraftur á eins marga vegu og sá starfstitill rúmar. Lalli hefur gefið út plötu, skrifað bók og er ávallt reiðubúinn í sínum grunnbúning að skemmta fólki - stundum með nær engum fyrirvara!
Mon, 14 Sep 2026 - 1h 45min - 42 - 42.þáttur: Rán Flygenring
Rán Flygenring ólst upp á heimili arkitekta og fyrir vikið var hún síteiknandi sem barn og sér ekki fyrir endann á þessu. Hún ákvað að ferðast um heiminn og sjá hvort hún gæti framfleytt sér á meðan sem teiknari og höfundur. Þetta gekk aldeilis upp en eftir tæpan áratug flutti hún aftur heim til Íslands, reynslunni ríkari. Rán hefur sent frá sér fjölda bóka og myndskreytt fyrir sjálfa sig og aðra. Hún er að læra á píanó auk þess sem hún spilar á selló. Rán er mikill hvalavinur og hefur beitt sér gegn hvalveiðum á Íslandi. Sundfíkn hefur litað líf hennar en hún ber höfuðið hátt.
Wed, 02 Sep 2026 - 1h 50min - 41 - 41.þáttur: Margrét Valdimarsdóttir
Við höfum öll sögu að segja og Dr. Margrét Valdimarsdóttir, afbrotafræðingur er ekki þar undanskilin. Æskuárin í Breiðholti voru erfið og hún varð vitni að ýmsu sem hún gat svo sannarlega nýtt sér síðar meir í afbrotafræðunum. Hún vann í nokkur ár sem barþjónn áður en hún sótti um starf á útvarpsstöðinni FM 957 án þess að hafa nokkurn tímann hlustað á útvarpsstöðina. Við tóku nokkur ár á ljósvakamiðlum en um þrítugt skellti hún sér í háskólanám. Margrét hefur fjallað um viðkvæm málefni afbrotafræðinnar og er eftirsóttur álitsgjafi á sínu sviði.
Thu, 20 Aug 2026 - 1h 39min - 40 - 40.þáttur: Jónatan Garðarsson
Jónatan Garðarsson hefur setið allt um kring hið íslenska tónlistarborð og slær hvergi slöku við. Hann hefur alla tíð alið manninn í Hafnarfirði og byrjaði ungur að safna hljómplötum og á þúsundir vinylplatna og geisladiska. Jónatan lærði á hljóðfæri og söng með unglingahljómsveitum en fannst óspennandi að spila á böllum fyrir drukkið fólk og fann sér því aðra leið í faðm tónlistargyðjunnar. Í áratugi hefur hann frætt okkur um tónlist á margvíslegan hátt í ljósvakamiðlum RUV, í dagblöðum og ritstýrt menningarþáttum. Jónatan fellur seint verk úr hendi og hann hefur setið í hinum ýmsu nefndum og ráðum og koma þar trúmál, tónlist og náttúruvernd helst við sögu.
Wed, 05 Aug 2026 - 1h 52min - 39 - 39.þáttur: Óskar Hrafn Þorvaldsson
Óskar Hrafn er umtalaðasti þjálfari íslenskrar knattspyrnu þökk sé leiftrandi sóknarknattspyrnu sem meistaraflokkur KR í knattspyrnu býður upp á í hverjum leik. Sjálfur raðaði hann inn mörkunum í yngri flokkunum en var svo færður í vörnina í 2.flokki. Eftir nokkur ár í meistaraflokki KR hélt hann til Noregs í atvinnumennsku en þurfti að leggja skóna á hilluna aðeins 25 ára gamall. Þá hóf hann að skrifa um knattspyrnu í dagblöð og sinnti með tíð og tíma ýmsum yfirmannsstörfum í fréttamennsku og var hvað lengst hjá 365 miðlum auk þess sem hann skrifaði skáldsögu árið 2010. Óskar Hrafn var ekkert á leiðinni í þjálfun þegar hann fékk afdrifaríkt símtal úr vesturbænum og síðan hefur þjálfunin átt hug hans allan.
Tue, 28 Jul 2026 - 2h 26min - 38 - 38.þáttur: Vigdís Hafliðadóttir
Sviðsljósið skín skærar og skærar á Vigdísi Hafliðadóttur sem hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir margvíslega hæfileika.
Eftir að hafa klárað MH þreytti hún inntökupróf í leiklist en komst ekki inn og vill meina að hún hafi nú bara haft gott af þeirri höfnun. Hún ákvað að nema heimspeki við Háskóla Íslands auk þess að hleypa heimdraganum til Svíþjóðar og læra þar vísnatónlist af innfæddum. Vigdís syngur og semur lög og texta með kvennahljómsveit sinni Flott og kemur fram sem uppistandari. Frammistaða hennar í sjónvarpsþáttunum 20 og eitthvað og kvikmyndinni Ljósvíkingar er eftirminnileg og Vigdís er svo sannarlega fjölhæf og hæfileikarík.
Wed, 22 Jul 2026 - 2h 04min - 37 - 37.þáttur: Gói
Guðjón Davíð Karlsson (Gói) var aðeins 5 ára gamall þegar hann ákvað að verða leikari og í annarri tilraun komst hann inn í Leiklistarskólann. Hann eyddi æsku- og unglingsárum í Þingholtunum og spilaði fótbolta með Megasi. Gói var lagður í einelti sem barn einfaldlega af því að hann var prestssonur. Hann segist hafa sloppið vel frá þessu af því hann átti svo góða vini. Hann er þakklátur fyrir hlutskipti sitt og elskar að starfa í leikhúsinu.
Sat, 11 Jul 2026 - 1h 54min - 36 - 36.þáttur: Pétur Pétursson
Pétur Pétursson er einn besti knattspyrnumaður Íslandssögunnar og var með eindæmum fundvís á netmöskva andstæðinganna. Hann lék sem atvinnumaður í Hollandi, Belgíu og á Spáni og lék og æfði með mörgum frábærum leikmönnum eins og Mario Kempes og Ruud Gullit svo dæmi séu nefnd. Hann setti markamet með uppeldisfélagi sínu ÍA á Akranesi og átti frábæran tíma með KR. Pétur starfaði um árabil sem ljósmyndari og rak eigin ljósmyndastofu. Hann þjálfaði kvennalið Vals árin 2017-2024 sem hampaði ófáum titlunum undir hans stjórn. Þrátt fyrir þennan afbragðs árangur fékk hann að lokum reisupassann. Pétur er mikill áhugamaður um tónlist og hefur látið sig dreyma um að læra hljóðupptökur, bassa- og gítarleik þó ekkert hafi enn orðið af því.
Fri, 03 Jul 2026 - 2h 10min - 35 - 35.þáttur: Gunnar Árnason
Gunnar hefur verið í fremstu röð íslenskra hljóðmanna í áratugi og hefur byggt sér glæsilegt hljóðver í Vatnsendahverfi Kópavogs. Hann hljóðsetur m.a. kvikmyndir, sjónvarpsþætti og auglýsingar og er margverðlaunaður. Gunnar hefur prófað nánast allt á Íslandi tengt hljóðhönnun og ein eftirminnilegasta ráðningin er þegar hann hljóðblandaði sjálfan Páfann. Hann segir Magnús Kjartansson vera sinn helsta örlagavald í bransanum og fyrir nokkrum árum gaf hann besta vini sínum nýra.
Thu, 25 Jun 2026 - 1h 53min - 34 - 34.þáttur: Brynhildur Björnsdóttir
Brynhildur Björnsdóttir er leikkona, söngkona, mannfræðingur, bókmenntafræðingur, dagskrárgerðarkona, feministi og kattahaldari svo fáein dæmi séu nefnd. Hún hefur svo sannarlega frá mörgu að segja enda reynt ýmislegt um ævina. Þættir hennar, Hold, sem hún gerði fyrir Rás 1 hafa vakið mikla athygli.
Fri, 19 Jun 2026 - 1h 50min - 33 - 33.þáttur: Björn Stefánsson
Björn vakti fyrst athygli sem trommuleikari hljómsveitarinnar Mínus. Hann kom öllum á óvart þegar hann ákvað að skella sér í leiklistarnám í Danmörku árið 2009. Námið var hreint ekki auðvelt fyrir mann með óskilgreindan athyglisbrest auk þess sem það var á dönsku. Eftirminnileg leikhlutverkin eru mörg en hann heldur mest upp á samleik þeirra Hjartar Jóhannssonar í Fjallabaki. Alkóhólískt heimilishald hafði mikil áhrif á æsku- og unglingsár Björns sem er með bók í smíðum.
Thu, 11 Jun 2026 - 1h 30min - 32 - 32.þáttur: Helga Möller
Helga Möller hefur oft verið nefnd Diskódrottning Íslands. Samt voru þau Jóhann Helgason ekkert sérstakt áhugafólk um diskótónlist þegar þau sungu inn á fyrstu plötuna sem Þú & ég. Hún kemur til dyranna eins og hún er klædd og hefur talað opinskátt í fjölmiðlum um mjög persónuleg málefni enda upplifað erfiða hluti eins og dótturmissi. Helga á enn eftir að gera plötuna sem hana hefur alltaf langað til að gera.
Mon, 01 Jun 2026 - 1h 35min - 31 - 31.þáttur: Guðmundur Pétursson
Guðmundur varð landsfrægur í einu vetfangi þegar hann birtist landsmönnum í kosningasjónvarpinu aðeins 14 ára gamall. Honum líkaði ekkert sérstaklega við að vera kallaður undrabarn eða snillingur en víst er að hæfileikar tónlistarmannsins eru einstakir. Ungur missti hann móður sína og lærði að standa á eigin fótum og taka engu sem gefnu.
Wed, 20 May 2026 - 1h 44min - 30 - 30.þáttur: Guðrún Gunnarsdóttir
Guðrún hóf söngferil sinn sem meðlimur í MK-kvartettinum og í framhaldi tók svo vísnatónlistin við. Hún leitaði á vit ævintýranna í Noregi áður en hún sneri aftur heim. Við tóku ýmis söngverkefni og hún komst fljótt í röð okkar fremstu söngkvenna með sinni áheyrilegu rödd. Það lá fyrir henni að starfa í fjölmiðlum og hefur hún stýrt ýmsum þáttum á ljósvakamiðlum landsins. Í dag er það "Mannlegi þátturinn" sem hún stýrir ásamt Gunnari Hanssyni á Rás 1.
Tue, 12 May 2026 - 1h 47min - 29 - 29.þáttur: Andrea Jónsdóttir
Andrea hefur fjallað um tónlist á einn eða annan hátt í áratugi og oft nefnd Rokkamma Íslands. Þegar hún heyrði Be Bop A Lula í fyrsta sinn varð hún heltekin af rokktónlist. Hún ólst upp við Elvis, Bítlana og Hljóma og elti þá síðastnefndu á röndum landshorna á milli. Hún starfaði lengi sem prófarkalesari á Þjóðviljanum og kunni vel við sig innan um kommana enda alin upp af félagshyggjufólki. Andrea hefur starfað sem plötusnúður á Dillon í 26 ár og er hvergi nærri hætt, 77 ára gömul.
Tue, 28 Apr 2026 - 1h 45min - 28 - 28.þáttur: Rúnar Freyr Gíslason
Um miðjan aldur var Rúnar Freyr búinn að brenna allar brýr að baki sér þrátt fyrir glæstan feril sem leikari og söngvari. Við tók bataferli sem mun standa yfir út lífið að hans sögn. Hann hefur heldur betur snúið við blaðinu, bætt ráð sitt og gert sig gildandi á ýmsum sviðum m.a. hjá SÁA, RUV og sem fjölmiðlamaður. Rúnar á mörg börn og eina dóttur sína hitti hann fyrst þegar hún var orðin 10 ára gömul. Þessa dagana heimsækir hann fólk og vinnustaði enda í framboði til borgarstjórnar í Reykjavík.
Fri, 17 Apr 2026 - 1h 41min - 27 - 27.þáttur: Jóhann Hjörleifsson
Þið hafið heyrt oftar í Jóhanni Hjörleifssyni en ykkur grunar. Hann hefur trommað marga af helstu smellum undanfarinna ára m.a. með Sálinni hans Jóns míns. Hann var hálfgert undrabarn á sitt hljóðfæri og var farinn að spila með Sinfóníuhljómsveit Íslands 15 ára gamall. Jóhann byrjaði í MH en ætlaði að fresta náminu um einn vetur því það var svo mikið að gera í spileríinu. Stúdentsprófið bíður enn og listinn yfir tónlistarfólkið og hljómsveitirnar sem hann hefur unnið með er ógnarlangur og glæsilegur.
Thu, 09 Apr 2026 - 1h 39min - 26 - 26.þáttur: Jóhanna Vigdís Arnardóttir (Hansa)
Jóhanna Vigdís Arnardóttir fékk leiklistarbakteríuna tiltölulega seint og kom sjálfri sér á óvart með því að fljúga inn í Leiklistarskólann í fyrstu tilraun. Að loknu námi fékk hún samning í Borgarleikhúsinu og brilleraði næstu árin í hverju hlutverkinu á fætur öðru. Frammistaða hennar í söngleikjum eins og Mary Poppins, Kysstu mig Kata og Mamma Mia er eftirminnileg þeim sem sáu . Hansa er með burtfararpróf bæði í klassíkum píanóleik og söng og telur tónlistina æðsta allra lista. Svo vippaði hún sér í MBA nám líka - svo sannarlega sterkur námsmaður. Hún greindist með MS sjúkdóminn fyrir tæpum þremur árum en kvartar ekki og lætur hvergi deigan síga.
Fri, 27 Mar 2026 - 1h 28min - 25 - 25.þáttur: Róbert Marshall
Flestir tengja Róbert Marshall við fréttir og stjórnmál og réttilega. Vestmannaeyingurinn víðlesni á þér þó fleiri hliðar og útivist hefur átt hug hans allan síðustu árin og varla er til sá fjallstoppur sem hann hefur ekki rölt upp á. Einnig sinnir Róbert tónlistarsköpun þegar tími vinnst til og er m.a. forsöngvari og helsti lagahöfundur hljómsveit sem kallast Hvítá. Einu sinni talaði Leonard Cohen beint til hans á tónleikum og í kjölfarið tók Róbert sína bestu ákvörðun.
Tue, 17 Mar 2026 - 1h 51min - 24 - 24.þáttur: Sveinn Rúnar Sigurðsson
Enginn Íslendingur hefur átt jafn mörg lög í úrslitum Söngvakeppninnar og músíkalski læknirinn, Sveinn Rúnar Sigurðsson. Hann byrjaði að forrita aðeins 10 ára gamall og munaði minnstu að hann fengi ekki að útskrifast úr Versló vegna splattermyndar sem sýnd var í skólanum. Sveinn er kvæntur úkraínskri konu og hefur farið yfir 120 sinnum til heimalands hennar; hinnar stríðshrjáðu Úkraínu sem honum þykir svo vænt um.
Thu, 05 Mar 2026 - 1h 23min - 23 - 23.þáttur: Kristín Þóra Haraldsdóttir
Kristín Þóra er ein eftirsóttasta og besta leikkona landsins. Hún segist hafa tekið miklum framförum sem ökumaður á síðustu árum þó hún kunni ekki að bakka í stæði. Örmögnun í starfi og leik varð uppistaða í leiksýningunni Á rauðu ljósi sem hún ákvað að skrifa og setja upp því hún átti ekki fyrir jólagjöfum. Þetta vatt upp á sig og sýningarnar eru orðnar á annað hundrað. Þessa dagana stúderar Kristín sálfræði þegar hún er ekki að brillera á sviði eða fyrir framan myndavélarnar.
Tue, 24 Feb 2026 - 1h 13min - 22 - 22.þáttur: Mist Rúnarsdóttir
Mist er goðsögn í heimi íslenskrar kvennaknattspyrnu og hefur verið óþreytandi við að leggja henni lið hvort heldur sem þjálfari eða íþróttafréttakona. Ferðalög eru hennar líf og yndi og fljótlega eftir stúdentspróf heimsótti hún bæði Kúbu og Kína. Einnig hefur hún nokkrum sinnum komið til Namibíu og Palestínu sem dæmi. Mist er mannfræðingur að mennt og hefur dálæti á köttum.
Wed, 18 Feb 2026 - 1h 21min - 21 - 21.þáttur: Björgvin Páll Gústavsson
Björgvin Páll hefur verið besti handboltamarkvörður landsins um árabil og slær hvergi slöku við, 40 ára gamall. Æskan var erfið og áföllin mörg en hann vil meina að íþróttirnar hafi bjargað sér. Björgvin hefur látið til sín taka á ýmsum sviðum og m.a. gefið út tvær bækur sem vöktu mikla athygli. Hann er óþreytandi við að hjálpa öðrum og notar eigin lífsreynslu í því skyni.
Wed, 11 Feb 2026 - 1h 47min - 20 - 20.þáttur: Máni Svavarsson
Hróður Mána hefur borist víða enda hefur tónlist hans í þáttunum um Latabæ heyrst í velflestum löndum þar sem rafmagn er að finna. Foreldrar hans, þau Svavar Gests og Elly Vilhjálms, löttu hann frekar en hvöttu þegar kom að tónlistinni en á endanum lét Máni hjartað ráða. Tengsl hans við AHA og meðlimi hennar koma við sögu rétt eins og aflitað hár og frekar löng skóladvöl í Versló.
Fri, 06 Feb 2026 - 1h 12min - 19 - 19.þáttur: Ellen Kristjánsdóttir
Ellen fæddist í Bandaríkjunum og talaði ekki stakt orð í íslensku þegar hún fluttist til Íslands. Hún hefur þurft að glíma við ansi mörg áföll á lífsleiðinni og meðal annars varð eitt slíkt uppsprettan að lagi sem hún syngur reglulega til að hughreysta annað fólk. Ellen er ein ástsælasta söngkona landsins og vakti fyrst athygli með Ljósunum í bænum og síðan Mannakornum. Hún brennur fyrir réttlæti og velferð þeirra sem minna mega sín og hefur aldrei látið sitt eftir liggja í þeim efnum.
Fri, 30 Jan 2026 - 2h 00min - 18 - 18.þáttur: Róbert Þórhallsson
Það munaði minnstu að Húsvíkingurinn Róbert yrði trommuleikari Greifanna en örlögin ætluðu honum annað hlutverk. Eftir að hafa prófað að læra á hin ýmsu hljóðfæri tók hann ástfóstri við bassann og var óvenju fljótur að komast í hóp þeirra fremstu á hljóðfærið. Það kom mörgum á óvart þegar hann tók við skólastjórastöðu við Tónlistarskóla FÍH sem hefur ungað út afburða tónlistarfólki undanfarna áratugi og þar situr hann enn og kann vel við sig.
Sat, 17 Jan 2026 - 1h 03min - 17 - 17.þáttur: Þórir Baldursson
Þórir leysti fyrst af með hljómsveit pabba síns aðeins 10 ára gamall. Hann gerði sig fljótt gildandi í íslenskum tónlistarheimi sem meðlimur Savanna tríósins auk þess sem hann samdi lög fyrir Dáta og Hljóma sem áttu eftir að verða ódauðleg. Örlögin drógu hann til Svíþjóðar og síðan til Þýskalands þar sem hann vann með helstu stórstjörnum diskótónlistarinnar. Kreppa í Bandaríkjunum kippti Þóri heldur betur niður á jörðina og hann kom aftur til Íslands niðurbrotinn maður en auðvitað var ljós við enda ganganna og afrek hans, heima og að heiman eru óvéfengjanleg.
Thu, 08 Jan 2026 - 1h 44min - 16 - 16.þáttur: Halla Gunnarsdóttir
Halla Gunnarsdóttir er alþjóðastjórnmálafræðingur og kennari að mennt og hefur látið til sín taka á ýmsum sviðum. M.a. var hún aðstoðarmaður Ögmundar Jónassonar í tíð vinstri stjórnarinnar 2009–2013 og starfaði síðar sem ráðgjafi ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur í jafnréttismálum. Áður starfaði Halla m.a. sem blaðamaður á Morgunblaðinu. Hún hefur þjálfað fótboltalið og sent frá sér ljóðabækur. Í dag er hún formaður VR. Halla ætlar að vera mýkri í öxlunum á árinu 2026.
Tue, 30 Dec 2025 - 1h 23min - 15 - 15.þáttur: Egill Helgason
Egill Helgason er einn áhrifamesti fjölmiðlamaður landsins. Honum hugnaðist ekki framhaldsskólanámið og tók blaðamennsku fram yfir stúdentspróf. Við tók fjölbreyttur ferill þar sem flestir fjölmiðlar landsins koma við sögu. Þættir hans, Silfur Egils (Silfrið) og Kiljan, eru tímamótaþættir sem enn eru á dagskrá. Þrátt fyrir allt hefur Egill tiltölulega lítinn áhuga á pólitík á meðan listir og sagnfræði eiga svo sannarlega upp á pallborðið. Fyrir skemmstu komst hann að því hvert hrekkjusvínið er sem eyðilagði fyrir honum píanónámið.
Fri, 19 Dec 2025 - 1h 31min - 14 - 14.þáttur: Sif Atladóttir
Sif Atladóttir er í dag framkvæmdastjóri Leikmannasamtaka Íslands. Hún hefur fyrir löngu skráð nafn sitt á spjöld sögunnar sem ein okkar fremstu knattspyrnukvenna og á að baki glæsilegan feril á Íslandi, í Þýskalandi og Svíþjóð. Hún fæðist inn í mikla íþróttafjölskyldu og það var ekki alltaf dans á rósum að vera dóttir knattspyrnumannsins Atla Eðvaldssonar sem lést um aldur fram fyrir nokkrum árum. Hafa skal aðgát í nærveru sálar.
Tue, 09 Dec 2025 - 1h 57min - 13 - 13.þáttur: Bogi Ágústsson
Bogi er dáðasti fréttamaður þjóðarinnar eftir áratuga starf hjá Ríkissjónvarpinu. Sagnfræði- og íslenskunám við Háskóla Íslands hefur reynst honum vel í starfi og þessa dagana alveg sérstaklega. Bogi er grjótharður stuðningsmaður KR og og hefur sérstakt dálæti á Norðurlöndunum. Bítlarnir skipta hann miklu máli og hann á Höfner bassa, alveg eins og Paul.
Tue, 02 Dec 2025 - 1h 41min - 12 - 12.þáttur: Védís Hervör Árnadóttir
Það sem hefur mótað Védísi Hervöru mest var að alast upp með heyrnarlausri ömmu sem var endalaust jaðarsett í samfélaginu og þurfti því heldur betur að hafa fyrir hlutunum. Védís fékk plötusamning aðeins 16 ára gömul en fann með tíð og tíma að hún þurfti að gera eitthvað meira en sinna tónlistargyðjunni. Hún brennur fyrir verðmætasköpun, atferli manna og menningu og hefur látið til sín taka víða í þessum efnum.
Sat, 22 Nov 2025 - 1h 22min - 11 - 11.þáttur: Egill Eðvarðsson
Egill er afkastamesti upptökustjóri íslenskrar sjónvarpssögu. Einnig hefur hann gert kvikmyndir, samið lög og ljóð auk þess að vera flinkur myndlistarmaður. Á langri ævi hefur hann upplifað margt og komist í tæri við þekktasta fólk þjóðarinnar í áratugi í gegnum störf sín. Svo veit hann upp á hár hvenær hann kveður þessa jarðvist.
Mon, 17 Nov 2025 - 2h 00min - 10 - 10.þáttur: Magga Stína
Margrét Kristín Blöndal var í haldi ísraelska hersins í nokkra daga eftir að hafa siglt með skipinu The Conscience áleiðis til Gaza ásamt fleiri aðgerðarsinnum. Tilgangurinn var að færa hinu hrjáða Palestínufólki á svæðinu mat og lyf. Magga Stína hefur farið fremst í flokki íslenskra mótmælenda gegn þjóðarmorðinu á Gaza svo eftir hefur verið tekið. Í viðtalinu heyrum við af þessu ferðalagi og ómannúðlegri meðferð Ísraela á tónlistarkonunni.
Fri, 07 Nov 2025 - 1h 32min - 9 - 9.þáttur: Óskar Bjarni Óskarsson
Óskar Bjarni ætlaði sér að verða leikari en það fór öðruvísi en ætlað var. Hann er svo mikill Valsmaður að það hálfa væri nóg. Hr. Valur væri réttnefni. Handboltinn á hug hans allan og hann þjálfar jöfnum höndum bestu leikmenn þjóðarinnar og börnin blíð. Óskar Bjarni lætur konuna um að keyra bílinn úti á landi svo þau rati örugglega á áfangastað.
Mon, 27 Oct 2025 - 1h 09min - 8 - 8.þáttur: Björn Skúlason
Fyrsti forsetaherrann á Bessastöðum elskar að elda mat fyrir sína nánustu og brennur fyrir heilsueflingu. Sjálfur er hann afreksmaður í íþróttum og stundar crossfit af miklum móð. Björn Skúlason vildi skoða heiminn og fór frá Grindavík til Alabama í háskólanám. Það mætti segja að sú ákvörðun hafi að lokum leitt hann í faðm Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands.
Thu, 23 Oct 2025 - 1h 38min - 7 - 7.þáttur: Ingi Garðar Erlendsson
Ingi Garðar hefur unnið eftirtektarvert starf sem stjórnandi Skólahljómsveitar Vesturbæjar og nágrennis; svo mjög að Reykjavíkurborg sá ástæðu til að útnefna hann Reykvíking ársins. Hann hefur ferðast um víða um heim vopnaður sinni básúnu, gerir við blásturshljóðfæri og gríðarlegt safn 78 snúninga platna.
Sun, 12 Oct 2025 - 1h 14min - 6 - 6.þáttur: Brynhildur GuðjónsdóttirSun, 05 Oct 2025 - 1h 10min
- 5 - 5.þáttur: Ása Berglind HjálmarsdóttirSun, 28 Sep 2025 - 1h 06min
- 4 - 4.þáttur: Ólafur Páll Gunnarsson
Ólafur Páll Gunnarsson, oftast kallaður Óli Palli, byrjaði sem tæknimaður hjá Ríkisútvarpinu en ekki leið á löngu þar til hann spreytti sig sem útvarpsmaður og sér ekki fyrir endann á því ævintýri. Þættir hans á Rás 2 eru landsmönnum að góðu kunnir en er ekki bara tímabært að hann setjist hinum megin við borðið og sitji fyrir svörum?
Sun, 21 Sep 2025 - 1h 39min - 3 - 3.þáttur: Edda BjörgvinsdóttirSun, 14 Sep 2025 - 1h 26min
- 2 - 2.þáttur: Ólafur EgilssonMon, 08 Sep 2025 - 1h 35min
- 1 - 1.þáttur: Halldóra Geirharðsdóttir
Halldóra Geirharðsdóttir hefur verið í eldlínu íslenskra sviðslista um árabil og vakti fyrst athygli sem framlínukona rokksveitarinnar Risaeðlunnar þar sem hún blés í saxófón og söng. En flestir þekkja hana þó úr leiklistinni en hún hefur leikið mörg eftirminnileg hlutverk í leikhúsi og á hvíta tjaldinu.
Wed, 27 Aug 2025 - 1h 10min
Podcast simili a <nome>
Wife, Mother, Slave, Sex Goddess A. Heyward
Barangay Love Stories Barangay LS 97.1 Manila | GMA Network Inc.
Good Bad Billionaire BBC World Service
Cyprian Majcher Cyprian Majcher
Die Nachrichten Deutschlandfunk
Podcast Wojenne Historie Historia II wojny światowej
Forensic Files HLN
Nowenna pompejańska. Świadectwa https://pompejanska.krolowa.pl/
ILLVERK Podcast Inga Kristjáns
الشيخ أحمد العجمي islami
True Crime Documentary Justin Kandell Network
WojewódzkiKędzierski Kuba Wojewódzki, Piotr Kędzierski
Dear MOR MOR Entertainment
Snapped: Women Who Murder Oxygen
Papa Dudut Stories Papa Dudut | TAGM Marketing Solutions Inc.
DUDEK o polityce prof. Antoni Dudek i Super Exspress
Przemek Górczyk Podcast Przemek Górczyk
Sceny zbrodni RMF FM
Í ljósi sögunnar RÚV
Þetta nútímalíf RÚV Hlaðvörp
Skuggavaldið skuggavaldid
Money News Tapt Media
Żurnalista - Rozmowy bez kompromisów zurnalistapl
العلم والإيمان - د. مصطفى محمود علم ينتفع يه
