Filtrar por gênero
Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.
- 1431 - Bridgeþátturinn - Úrvalsdeildin
Sunnudagurinn 13. september Bridgeþátturinn: Úrvalsdeildin Matthías Imsland framkvæmdastjóri Bridgesambands Íslands og Magnús E. Magnússon landsliðsmaður og briddskennari ræða við Björn Þorláks um sjónvarpsmót fram undan og fleira.
Sun, 13 Sep 2026 - 31min - 1430 - Synir Egils 13. sept - Æskan, þingið, kjaramál, utanríkis- og öryggismál
Sunnudagurinn 13. september Synir Egils: Æskan, þingið, kjaramál, utanríkis- og öryggismál Þau koma og ræða fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins þau Rósa Björk Brynjólfsdóttir formaður Vg, Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélags Íslands og Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda; PISA, fjárlagafrumvarp, stefnuræðu, landakort Trump, EES og bókun 35, aðgerðir ríkisstjórnar vegna kjarasamninga, fjölmiðla og fleira. Síðan koma að ræða öryggis- og utanríkismál þau Dagur B. Eggertsson þingmaður, Albert Jónsson fyrrum sendiherra og Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur í ljósi niðurstöðu þjóðaratkvæðis og landakorts og símtals Donald Trump. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.
Sun, 13 Sep 2026 - 2h 20min - 1429 - Rauða borðið - Helgi-spjall: Lýður Árna
Laugardagur 12. september Helgi-spjall: Lýður Árna Lýður Árnason læknir er litríkur persónuleiki sem hefur komið víða við. Hann ræðir sjálfan sig, læknisfræðina, pólitík og samfélagið í helgi-spjalli við Björn Þorláks.
Sat, 12 Sep 2026 - 1h 46min - 1428 - Föstudagur 11. september - Vikuskammtur: Vika 37
Föstudagur 11. september Vikuskammtur: Vika 37 Þóroddur Bjarnason félagsfræðiprófessor, Valgerður Árnadóttir aktívisti, Lísa Margrét Gunnarsdóttir stúdent og Bubbi, nemi við Verzló, ræða við Björn Þorláks um fréttir vikunnar. Verður Ísland innlimað í Bandaríkin? Eru nemendur í háskólanum að verða vitlausari og vitlausari? Hvert stefnir ríkisstjórnin? Þessi mál og fleiri til umræðu.
Fri, 11 Sep 2026 - 1h 17min - 1427 - Rauða borðið 10. sept - Reynsluboltar, heimsmálin, íslenskan, Þórir og skaflinn í Esjunni
Fimmtudagur 10. september Reynsluboltar, heimsmálin, íslenskan, Þórir og skaflinn í Esjunni Erna Indriðadóttir, Helga Jónsdóttir og Magnús Stefánsson voru reynsluboltarnir að þessu sinni. farið yfir stefnuræðu forsætisráðherra og mál tengd henni, stöðu Reykjavíkurborgar, mismunin á þéttbýlinu og landsbyggðinni, ESB kosningarnar og ýmislegt annað. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um heimsmálin og ekki síst Trump; viðskiptastríð hans við Kanada og viðbrögð íslenskra stjórnvalda við korti sem hann dundaði sér við að gera. Rithöfundar eru enn og aftur settir í óvissu vegna niðurskurðar á bókasafnssjóði. Rithöfundarnir Margrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambandsins, og Kristín Helga Gunnarsdóttir fyrrverandi formaður Rithöfundarsambandsins, komu og töluðu um óvissu um afkomu rithöfunda. Þórir Baldursson er að fara að gefa út tvær plötur og halda tónleika með Gömmum, gamla tónlist sem hann fann í fórum sínum. Hann kom við á Samstöðinni og ræddi við Gunnar Smára. Sigurpáll Ingibergsson, áhugamaður um íslenska jökla, ræðir við Björn Þorláks um skaflinn í Esju og válegar vísbendingar í umhverfismálum. Líkur eru á að skaflinn gufi upp næsta mánudag.
Thu, 10 Sep 2026 - 3h 16min - 1426 - Rauða borðið 9. sept - Uppsagnir, Svíþjóð, geðveiki, gervigreind og íþróttir
Miðvikudagur 9. september Uppsagnir, Svíþjóð, geðveiki, gervigreind og íþróttir Uppsagnir hjá Reykjavíkurborg munu án efa skerða viðkvæma þjónustu við börn og ungmenni og auka hættu á ójöfnuði. Þetta segir Árni Gunnarsson forvarnafulltrúi í samtali við Björn Þorláks. Kristján Sigurjónsson ritstjóri FF7 ræðir við Gunnar Smára um kosningarnar í Svíþjóð, sem verða um helgina. Verða stjórnarskipti? Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir snýr aftur á Samstöðina eftir hlé og ræðir ásamt Birni Þorláks álitamál í geðheilbrigðisþjónustu. Bergur Ebbi Benediktsson, höfundur, fyrirlesari og uppistandari, segir Gunnari Smára frá nýju bókinni sinni sem fjallar um mennsku og gervigreind. Sigurjón Magnús Egilsson ræðir við Víði Sigurðsson íþróttasérfræðing um fótbolta.
Wed, 9 Sep 2026 - 3h 57min - 1425 - Græna borðið 19. þáttur - Er Ísland frekur krakki í alþjóðastarfi?
Miðvikudagur 9. september Græna borðið 19. þáttur - Er Ísland frekur krakki í alþjóðastarfi? Ísland er frekur krakki í alþjóðastarfi sem vill undanþágur frekar en ábyrgð í loftslagsmálum. Ríkisstjórnin gæti hafa misst atkvæði í eigin þjóðaratkvæðagreiðslu, með því að vera í PR-kór hagsmunaafla sem sleppa sem léttast frá loftslagsaðgerðum. Loftslagið bar hæst í fyrsta Græna borði haustsins. Gestir: Andrés Ingi Jónsson, Árni Finnsson, Kristín Vala Ragnarsdóttir. Stjórnandi. Björg Eva Erlendsdóttir.
Wed, 9 Sep 2026 - 58min - 1424 - Rauða borðið 8. sept - PISA, Trumptíminn, fjárlög, sjónvarpsfréttir og hvalveiðar
Þriðjudagur 8. september PISA, Trumptíminn, fjárlög, sjónvarpsfréttir og hvalveiðar Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandsins, og Sigurður Sigurðsson, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla, koma til okkar til að ræða nýjustu PISA-könnunina. Friðjón R. Friðjónsson varaborgarfulltrúi, Ólafur Þ. Harðarson prófessor velta fyrir sér í spjalli við Gunnar Smára hvað Trump er að hugsa og hvað hann ætli að gera. Þingmennirnir Sigurjón Þórðarson, formaður fjárlaganefndar, og Stefán Vagn Stefánsson, annar varaformaður nefndarinnar, mæta til að ræða fjárlög ríkisstjórnarinnar. Víst er að þeir eru fjarri því að vera sammála. Sigmundur Ernir Rúnarsson, eitt þekktasta andlit sjónvarpsfrétta sögunnar, ræðir einokunarstöðu Rúv í sjónvarpsfréttum. Hann ræðir einnig þingveturinn fram undan og svartar niðurstöður PISA í samtali við Björn Þorláks. Sú óvænta staða er uppi að allir þingflokksformenn flokka sem eiga sæti á Alþingi lýsa yfir stuðningi við hvalveiðar. Samt er stefna Samfylkingarinnar að hætta hvalveiðum. Valgerður Árnadóttir hvalavinur ræðir þessa þversögn í samtali við Björn Þorláks.
Tue, 8 Sep 2026 - 3h 32min - 1423 - Rauða borðið 7. sept - Gulur september, Bretland, kynjafræði, Skattland og Jónsi
Mánudagur 7. september Gulur september, Bretland, kynjafræði, Skattland og Jónsi Margt bendir til að hefðbundin nálgun heilbrigðiskerfisins dugi ekki í öllum tilvikum gagnvart þeim sem líður illa andlega. Of mikil áhersla er á lyfjagjöf. Sjálfsvíg eru þjóðarmein. Auður Axelsdóttir hjá Hugarafli ræðir við Björn Þorláksson. Guðmundur Auðunsson hagfræðingur fer yfir helstu fréttir í Bretlandi með Gunnari Smára; landsfund Umbótaflokksins, dauða Jason Arday og fyrstu daga nýs forsætisráðherra. Kvenska og karlmennska voru til umræðu í viðtali Ásdísar Ólsen við Hönnu Björk Vilhjálmsdóttur, brautryðjanda í kynjafræði framhaldsskólanna. Þar kom fram að reiði og ofbeldi geta verið afleiðing af tilfinningabælingu hjá strákum. Einnig var rætt um kvensku og mæðrahyggja, og hve mikilvægt er að allir uppeldisaðilar séu meðvitaðir um kynjaskekkjurnar. Sverrir Jakobsson prófessor segir Gunnari Smára frá myndun ríkisvalds á Íslandi og fyrstu öldum landsins undir Noregskóngi. Kórstjórarnir Sunna Karen Einarsdóttir og Magnús Ragnarsson ræða gildi söngsins, Jón Stefánsson organista og kórstjóra; arfleifð hans, tónleika og minningasjóð. Björn Þorláks ræðir við þau.
Mon, 7 Sep 2026 - 5h 18min - 1422 - Synir Egils 6. sept - Ísland og Evrópa, kjarasamningar, fjölmiðlar og Alþingi
Sunnudagurinn 6. september Synir Egils: Ísland og Evrópa, kjarasamningar, fjölmiðlar og Alþingi Drífa Snædal talskona Stígamóta, María Sigrún Hilmarsdóttir fréttakona og Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar mæta á vettvang dagsins og ræða fréttir og stöðu samfélagsins. Síðan kemur Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknar og þingmennirnir Grímur Grímsson, Arna Lára Jónsdóttir og Ólafur Adolfsson og ræða stöðu mála, flokka og ríkisstjórnar við upphaf haustþings. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.
Sun, 6 Sep 2026 - 2h 21min - 1421 - Rauða borðið - Helgi-spjall: Guðrún Ágústa
Laugardagur 5. september Helgi-spjall: Guðrún Ágústa Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Samhjálpar, hefur frá mörgu að segja. Hún trúir á Jesús og er skírð í Fíladelfíu. Hún hefur víða komið við. Sat i bæjarstjórn Hafnarfjarðar og varð fyrsta konan til að vera bæjarstjóri þar. Sem framkvæmdastjóri Samhjálpar hefur hún mætt miklu andstreymi vegna kaffistofu Samhjálpar sem átti að verða við Grensásveg en flutningur þangað stöðvaður á síðustu stundu. Þetta og svo margt annað ber á góma.
Sat, 5 Sep 2026 - 1h 32min - 1420 - Talaðu við mig 9. þátturFri, 4 Sep 2026 - 1h 07min
- 1419 - Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 36
Föstudagur 4. september Vikuskammtur: Vika 36 Eva Halldóra Guðmundsdóttir sviðslistakona, Magnús Scheving frumkvöðull, Rakel Garðarsdóttir framkvæmdastýra Vesturports og Sigurlaug Didda Jónsdóttir skáldkona ræða við Gunnar Smára um fréttir vikunnar sem einkendust af sigrum og svekkelsi, verðbólgu og hækkandi vöxtum, slysum, rannsóknarheimildum, listum og menningu.
Fri, 4 Sep 2026 - 1h 49min - 1418 - Rauða borðið 3. sept - Vald hinna veiku, drengirnir, áfallameðferð og Þýskaland
Fimmtudagur 3. september Vald hinna veiku, drengirnir, áfallameðferð og Þýskaland Guðni Th. Jóhannesson prófessor ræðir við Gunnar Smára um þorskastríðin í tilefni að útgáfu bókar hans um útfærslu landhelginnar í 50 mílur. Tryggvi Hjaltason hefur gert sig gildandi í umræðu um æsku og skólamál. Hann lýsir afstöðu sinni í samtali við Gunnar Smára. Nú er í boði sérhæfð tíu vikna áfallameðferð fyrir konur sem glíma við fíkn, kvíða, þunglyndi og skömm, en Margrét Louise Gunnarsdóttir sálmeðferðarfræðingur og Harpa Katrín Gísladóttir sálfræðingur leiða námskeiðið á vegum Rótarinnar og Grænuhlíðar. Ásdís Olsen ræðir við þær. Jóhanna Ýr Bjarnadóttir doktor í stjórnmálafræði í Berlín ræðir við Gunnar Smára um kosningar í Saxony-Anhalt þar sem flest bendir til stórsigurs AfD, Valkost fyrir Þýskaland, sem er flokkur útlendingaandúðar yst á hægrinu.
Thu, 3 Sep 2026 - 3h 58min - 1417 - Sjávarútvegsspjallið - 89. þáttur: Sjávarútvegur og Evrópa
Fimmtudagur 3. september Sjávarútvegsspjallið - 89. þáttur: Sjávarútvegur og Evrópa Grétar Mar fær til sín þá Ólaf "ufsa" Jónsson og Úlfar Hauksson, skipstjóra og stjórnmálafræðing
Thu, 3 Sep 2026 - 58min - 1416 - Rauða borðið 2. sept - Reynsluboltar, uppsagnir, Eiríkur, utanríkisstefna, bekkurinn og hrós
Miðvikudagur 2. september Reynsluboltar, uppsagnir, Eiríkur, utanríkisstefna, bekkurinn og hrós Þórunn Sigurðardóttir, Þröstur Ólafsson og Guðmundur Þ. Ragnarsson ræða helstu mál samfélagsins við Sigurjón Magnús. Kári Sigurðsson formaður Sameykis ræðir uppsagnir hjá Reykjavíkurborg og stöðu kjarasamninga við Gunnar Smára. Jón Kalman rithöfundur ræðir bók, Maríuklefann, sem er að koma út eftir Eirík Guðmundsson, útvarpsmann. Jón ritar eftirmála að bókinni og lýsir fyrir Birni Þorláks hvers konar rit er um að ræða. Eiríkur lést um aldur fram fyrir nokkrum árum. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um áhrif þjóðaratkvæðagreiðslunnar á utanríkisstefnu Íslands. Ættu stjórnvöld að draga úr samþættingu stefnunnar við stefnu Evrópusambandsins? Víðir Sigurðsson ræðir íslenska knattspyrnu við Sigurjón Magnús. Þar er af nógu að taka þegar Íslandsmótið stendur hvað hæst. Við getum verið miklu meira vakandi fyrir því sem vel er gert og þjálfað taugabrautir í heilanum til að sjá það góða og fallega í lífinu, segir Ingrid Khulman. Hún hræðir við Ásdísi Olsen og kennir okkur að hrósa.
Wed, 2 Sep 2026 - 4h 48min - 1415 - Rauða borðið 1. sept - Gengisfelling, sjónvarpsfréttafall, tíðindi dagsins, þunglyndi og Sinfó
Þriðjudagur 1. september Gengisfelling, sjónvarpsfréttafall, tíðindi dagsins, þunglyndi og Sinfó Benedikt Jóhannesson, stofnandi Viðreisnar, segir að fram undan sé stór gengisfelling. Krónan sé allt of sterk. Hann ráðleggur fólki að flytja peningana sína yfir í aðra mynt. Hann ræðir þetta mál og úrslit Evrópukosningarinnar í samtali við Sigurjón Magnús Heimir Már Pétursson og Lára Ómarsdóttir, fyrrverandi fréttamenn á fréttastofu Stöðvar 2/Sýnar, ræða við Björn Þorláks og Sigurjón Magnús þá stöðu sem upp er komin að sjónvarpsfréttir keppinautar Rúv heyra sögunni til. Hvaða áhrif verða af því á samfélagið? Ingibjörg Ottesen eldri borgari, Björk Vilhelmsdóttir félagsráðgjafi og Kristín Erna Arnardóttir hjá Sameyki ræða fréttir líðandi stundar. Þórný Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur fann leið út úr alvarlegu þunglyndi og segir Ásdísi Olsen frá því. Guðni Tómasson, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, ræðir nýjan aðalhljómsveitarstjóra, Barböru Hannigan, og fer yfir hluta af dagskrá sveitarinnar fram að áramótum. Sól Björnsdóttir og Björn Þorláks ræða við Guðna.
Tue, 1 Sep 2026 - 4h 12min - 1414 - Talaðu við mig 8. þáttur: AK Rizz
Föstudagur 28. ágúst Talaðu við mig 8. þáttur: AK Rizz Í þættinum í dag ræða Álfheiður og Emilía við við engann annan en Aron Kristinn, AK Rizz. Þvílíkur heiður sem það var að fá að spjalla við hann og fá innlit inn í líf hans og starf. Við mælum með að HLUSTA á þennan þátt.
Tue, 1 Sep 2026 - 1h 07min - 1413 - Rauða borðið 31. ágúst - Eftir kosningar, Stuðlagil, Trump, Landhelgisgæsla og uppsagnir
Mánudagur 31. ágúst Eftir kosningar, Stuðlagil, Trump, Landhelgisgæsla og uppsagnir Gunnar Smári ræðir við fólk með víðtæka reynslu úr stjórnmálum og fjölmiðlum um stöðu stjórnmála og samfélags eftir niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslu um Evrópusambandið. Páll Ásgeir Ásgeirsson leiðsögumaður ræðir öryggismál í Stuðlagili. Hann segir samspil nokkurra þátta kunna að skýra banaslys við náttúruperlur. Björn Þorláks ræðir við Pál. Það er stutt í mikilvægar þingkosningar í Bandaríkjunum og við endurvekjum af þeim sökum upp Trumptímann. Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur og Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur ræða við Gunnar Smára um Trump, komandi kosningar, áhrif Trump á Evrópu og Evrópusambandið, viðskiptastríð við Kanada o.s.frv. Persónulegt viðtal við forseta Landhelgisgæslunnar, Georg Lárusson, sem útskýrir brestina í röddinni sinni og hvernig hann þarf stundum að berja í borð til að fá hlustun. Georg rifjar upp hvernig var að alast upp í einangrun á prestsetri í Önundarfirði, þar sem varðskip kom oft til bjargar. Hann fagnar 20 ára starfsafmæli og segist vera í draumastarfinu sínu í viðtali við Ásdísi Olsen. Valgeir Þór Jakobsson hjá Samfés ræðir við Björn Þorláks um uppsagnir á velferðar- og frístundasviði hjá borginni. Hann fordæmir öfugþróun og tekur undir áhyggjur lögreglu f vaxandi unglingadrykkju.
Mon, 31 Aug 2026 - 4h 29min - 1412 - Bridgeþátturinn 30. ágúst - Bermúda
Sunnudagurinn 30. ágúst Bridgeþátturinn - Bermúda Jón Hersir Elíasson læknir og landsliðseinvaldur ræðir heimsmeistaramótið í bridds næsta ár en Íslendingar taka þá í þriðja skipti þátt í keppninni um hina víðfrægu Bermúdaskál. En hvernig verður landsliðið í opna flokknum skipað? Breytingar verða frá EM. Björn Þorláks sér um þáttastjórn.
Sun, 30 Aug 2026 - 36min - 1411 - Synir Egils 30. ágúst - Dagurinn eftir þjóðaratkvæði
Sunnudagurinn 30. ágúst Synir Egils: Dagurinn eftir þjóðaratkvæði Við förum yfir stöðu samfélagsins daginn eftir þjóðaratkvæði um Evrópusambandið. Fyrst með þeim Kristján Kristjánssyni fyrrum umsjónarmanns Sprengisands, nú umsjónarmanns Kastljóss, Aðalsteini Kjartanssyni aðstoðarritstjóra Heimildarinnar og Sirrý Hallgríms fyrrverandi aðstoðarkonu ráðherra. Síðan koma þingkonurnar Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, María Rut Kristinsdóttir, Dagbjört Hákonardóttir og Rósa Guðbjartsdóttir og meta áhrifin af niðurstöðunni. Þá fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.
Sun, 30 Aug 2026 - 2h 13min - 1409 - Rauða borðið - Helgi-spjall: Guðrún Karls Helgu
Laugardagur 29. ágúst Helgi-spjall: Guðrún Karls Helgu Guðrún Karls Helgudóttir biskup ræðir lífið, trúna, samfélagið, sjálfa sig, kirkjuna og fleiri andans mál í helgispjalli við Björn Þorláks.
Sat, 29 Aug 2026 - 1h 05min - 1408 - Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 35
Föstudagur 28. ágúst Vikuskammtur: Vika 35 Við förum yfir fréttir vikunnar með góðum hópi fólks; Guðmundur Ingi Þorvaldsson leikari, Hlédís Maren Guðmundsdóttir varaborgarfulltrúi, Hrönn Sveinsdóttir bíóstjóri og Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir sviðslistakona ræða við Gunnar Smára um fréttir sem einkennast af spennu, átökum og von um góða niðurstöðu.
Fri, 28 Aug 2026 - 1h 42min - 1407 - Rauða borðið - 27. ágúst Reynsluboltar, vinnueftirlit, lagahorn og sagnfræði
Fimmtudagur 27. ágúst Reynsluboltar, vinnueftirlit, lagahorn og sagnfræði Kristín Ástgeirsdóttir, fyrrum þingkona, Sigurður Már Jónsson blaðamaður og Sigurður Þór Salvarsson blaðamaður eru gestir Sigurjóns Magnúsar. Evrópumál, uppsagnir hjá borginni og önnur fréttamál ber á góma. Steinar Harðarson, fyrrum svæðisstjóri vinnueftirlits, ræðir sögu vinnuverndar í samtali við Björn Þorláks. Hann segir að umbætur hafi að jafnaði komið að utan. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir álitamál í Evrópurétti og hvaða breytingar gætu orðið til góðs eða ills ef Ísland yrði aðili að Evrópusambandinu. Björn Þorláks ræðir við hann. Valur Gunnarsson sagnfræðingur og rithöfundur ræðir árin frá seinni stríði í Evrópu. Þeir sem nú hamast mest gegn ESB myndu verða þeir fyrstu til að krefjast aðstoðar þaðan ef eitthvað hræðilegt myndi gerast hérlendis, segir Valur í samtali við Björn Þorláks.
Thu, 27 Aug 2026 - 3h 06min - 1406 - Sjávarútvegsspjallið 88. þáttur - Staða strandveiðanna
Fimmtudagur 27. ágúst Sjávarútvegsspjallið 88. þáttur - Staða strandveiðanna Grétar Mar ræðir við smábátaeigendurna Guðlaug Jónasson og Atla Hermannsson sem segja frá strandveiðunum í ár.
Thu, 27 Aug 2026 - 59min - 1405 - Rauða borðið 26. ágúst - ESB, samvinna, Múlakaffi, samræðusiðfræði og kennarar
Miðvikudagur 26. ágúst ESB, samvinna,, Múlakaffi, samræðusiðfræði og kennarar Svandís Svavarsdóttir fyrrum ráðherra, þingmaður, borgarfulltrúi og formaður VG segir Gunnari Smára hvers vegna hún ætlar að segja nei á laugardaginn. Þóroddur Ingvarsson svæfingalæknir á Akureyri ræðir mikilvægi alþjóðlegrar samvinnu í tengslum við björgun sjúklinga og tengir við þjóðaratkvæðagreiðsluna fram undan. Björn Þorláks ræðir við hann. Allir viðmælendur Samstöðvarinnar í slembiúrtaki á Múlakaffi ætla að kjósa eins á laugardag. Björn Þorláks og Pétur Fjeldsted kynntu sér raddir fullorðinna karla. Vilhjálmur Árnason prófessor ræðir við Gunnar Smára um samræðusiðfræði, gildi samtalsins fyrir mennskuna og samfélagið og hvað gerist þegar við týnum samræðunni. Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, telur ekki ástæðu til að kennarar biðjist afsökunar á bágri frammistöðu nemenda skv. Pisa. Björn Þorláks ræðir við hann um raddir þar að lútandi og mörg önnur mál sem varða skólastarf.
Wed, 26 Aug 2026 - 4h 00min - 1404 - Rauða borðið 25. ágúst - Fréttir dagsins, heilbrigðismál, sakhæfisaldur og vending
Þriðjudagur 25. ágúst Fréttir dagsins, heilbrigðismál, sakhæfisaldur og vending Nei eða já í Evrópukosningunni, uppsagnir í borginni, menntamál og fleira verður krufið í fréttaspjalli Björns Þorlákssonar við Jón Trausta Reynisson blaðamann, Lárus Guðmundsson athafnamann og Margréti Tryggvadóttur rithöfund. Brýn þörf er á að auka við hjúkrunarrými og legupláss. En hvaða fólk á að starfa þar? Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, og Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, hittu Sigurjón Magnús. Að lækka sakhæfisaldur minnkar ekki endilega glæpi heldur þvert á móti. Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur ræðir við Björn Þorláks um skref Svía að fara niður í 14 ár. Tinna Gunnlaugsdóttir leikkona fór í háskólanám eftir að hafa verið Þjóðeikhússtjóri og ver doktorsritgerð sína á næstu dögum. Hún segir Gunnari Smára frá náminu, þýðingum, leikhúsi og lífinu.
Tue, 25 Aug 2026 - 3h 24min - 1403 - Rauða borðið 24. ágúst - ESB, já eða nei, evra, króna og allt það
Mánudagur 24. ágúst ESB, já eða nei, evra, króna og allt það Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar útskýrir fyrir Gunnari Smára hvers vegna hún ætlar að segja nei á laugardaginn. Er ESB bandalag hnignunar eða á minni hagvöxtur sér eðlilegar skýringar? Jean-Rémi Chareyre, sjálfstætt starfandi blaðamaður, ræðir við Björn Þorláksson. Ólafur Margeirsson hagfræðingur í Sviss ræðir ESB við Gunnar Smára, en Sviss er bæði utan ESB og EES. Auðunn Arnórsson alþjóðastjórnmálafræðingur ræðir ESB-mál en hann segir að kosningin um næstu helgi gjaldi fyrir veika fjölmiðlun hér á landi. Björn Þorláks ræðir við hann.
Mon, 24 Aug 2026 - 3h 18min - 1402 - Synir Egils 23. ágúst - Ísland og Evrópusambandið, staða og horfur
Sunnudagurinn 23. ágúst Synir Egils: Ísland og Evrópusambandið, staða og horfur Við ræðum fréttir og stöðu samfélagsins við Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur og þrjá prófessora: Sigrún Ólafsdóttur félagsfræðing og stjórnmálafræðingana Evu H. Önnudóttur og Eiríki Bergmann. Síðan reyna þingmennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson og Pawel Bartoszek að sannfæra okkur að segja nei eða já í þjóðaratkvæðagreiðslunni næsta laugardag. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.
Sun, 23 Aug 2026 - 2h 10min - 1401 - Rauða borðið - Helgi-spjall: Óttar Guðmunds
Laugardagur 22. ágúst Helgi-spjall: Óttar Guðmunds Óttar Guðmundsson geðlæknir kemur í Helgi-spjall og segir okkur frá æsku sinni og uppruna, mótunarárum og því ýtti undir þroska hans og hefti hann.
Sat, 22 Aug 2026 - 2h 33min - 1400 - Talaðu við mig - 7. þáttur: Yung Gamli og Ezzi
Föstudagur 21. ágúst Talaðu við mig - 7. þáttur: Yung Gamli og Ezzi Í þættinum í dag ræða Álfheiður og Emilía við við listamennina og samfélagsmiðlastjörnurnar Tuma Gonzo og Estefan Leó. Það var bráðskemmtilegt og sannur heiður að fá að kíkja inn í heilann á þessum kóngum. Við mælum heldur betur með að þið hlustið á þennan þátt, kæra Talaðu við mig bræðralag.
Fri, 21 Aug 2026 - 1h 13min - 1399 - Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 34
Föstudagur 21. ágúst Vikuskammtur: Vika 34 Þau koma að Rauða borðinu Hallveig Rúnarsdóttir sópran, Bragi Páll Sigurðsson rithöfundur, Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi og Samúel Guðmundsson, smíðanemi, dyravörður og trommari og ræða við Gunnar Smára um fréttir vikunnar sem einkenndust af hækkandi vöxtum og matarverði, Evrópudeilum, kjaradeilum og öðru þjarki en líka sigrum og árangri.
Fri, 21 Aug 2026 - 1h 32min - 1398 - Rauða borðið 20. ágúst - Fréttir dagsins, Evrópumál, bráðnun jökla og menntamál
Fimmtudagur 20. ágúst Fréttir dagsins, Evrópumál, bráðnun jökla og menntamál Oddný Harðardóttir, fyrrum þingkona, Yngvi Ómar Sigrúnarson formaður Leigjendasamtakanna og Anton Helgi Jónsson skáld ræða Evrópukosninguna fram undan, ofurvexti, Menningarnótt fram undan og fleira. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Ragnar Baldursson stjórnmála- og Kínafræðingur ræðir við Gunnar Smára um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu og stöðu Íslands í breyttum heimi. Guðfinna Aðalgeirsdóttir, prófessor í jarðvísindadeild, segir Gunnari Smára frá rannsóknum sínum á áhrifum loftlagsbreytinga á jökla og afleiðingum af bráðnun jökla. Örn Valdimarsson kennari vill breyta stærðfræðikennslu með tækninýjungum og gervigreind. Hann ræðir við Björn Þorláks.
Thu, 20 Aug 2026 - 3h 26min - 1397 - Sjávarútvegsspjallið 87. þáttur - Smábátar, smáútgerðir og fiskmarkaðir
Fimmtudagur 20. ágúst Sjávarútvegsspjallið 87. þáttur Grétar Mar ræðir við þá Kjartan Sveinsson og Arnar Atlason um stöðu einyrkja og lítilla útgerða á fiskmörkuðum.
Thu, 20 Aug 2026 - 1h 07min - 1396 - Rauða borðið 19. ágúst - ESB, refur, vextir, áfengissala og Fjalla Eyvindur
Miðvikudagur 19. ágúst ESB, refur, vextir, áfengissala og Fjalla Eyvindur Gunnar Smári ræðir við Bjarka Þór Grönfeldt stjórnmálasálfræðing um hvað veldur því að einn ætlar að segja já en annar nei út frá sömu greiningum á stöðu mála. Ester Rut Unnsteinsdóttir líffræðingur er sérfræðingur í refastofninum á Íslandi. Að auki fylgist hún með stöðu annarra spendýra, svo sem minks og fugla. Hún ræðir við Sigurjón Magnús. Ingibjörg Ottesen, manneskja úti í bæ, fer yfir Evrópumál og einnig vaxtaákvörðun Seðlabankans, sem enn hækkar vexti. Björn Þorláks ræðir við hana. Margt bendir til bakslags til langframa gagnvart lýðheilsu ekki síst ungmenna í áfengis- og vímuvarnamálum hér á landi. Björn Þorláks ræðir við Árna Guðmundsson forvarnafulltrúa. Páll Ásgeir Ásgeirsson náttúruunnandi blandar saman sólmyrkva, Fjalla Eyvindi og Evrópukosningunni í samtali við Björn Þorláks. Hann varð vitni að undri á sjó á Vestfjörðum.
Wed, 19 Aug 2026 - 4h 01min - 1395 - Rauða borðið 19. ágúst - Hvalir og kvalir, ESB: já, nei og orðræðan og tónlistarkeppnir
Þriðjudagur 18. ágúst Hvalir og kvalir, ESB: já, nei og orðræðan og tónlistarkeppnir Rósa Líf Darradóttir læknir og hvalavinur ræðir ákvörðun Kristjáns Loftssonar að hætta að reyna að selja Japönum hvalkjöt en stefna þess í stað að framleiðslu á járnpillum. Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar ræðir við Gunnar Smára kosti og galla aðildar Íslands að ESB. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor heldur áfram umræðunni og ræðir við Gunnar Smára um Evrópusambandið og áhrif þess á aðildarríkin. Margt er skuggalegt í orðræðu Íslendinga fyrir Evrópukosninguna í lok mánaðarins. Sabine Leskopf, fyrrum borgarfulltrúi, ræðir sem innflytjandi hvernig hún upplifir sum viðhorf Íslendinga gagnvart umheiminum. Björn Þorláks ræðir við Sabine. Doktor Nína Margrét Grímsdóttir ræðir alþjóðlegar tónlistarkeppnir á Íslandi við Björn Þorláks en einni slíkri er nýlokið í Salnum í Kópavogi.
Tue, 18 Aug 2026 - 4h 35min - 1394 - Rauða borðið 17. ágúst - ESB, nei eða já, menning, umhverfismál og köngulær
Mánudagur 17. ágúst ESB, nei eða já, menning, umhverfismál og köngulær Væri umhverfismálum Íslendinga betur borgið ef Íslendingar nytu aðildar að ESB? Þessari spurningu leitast Árni Finnsson hjá Náttúruverndarsamtökunum við að svara. Björn Þorláks ræðir við Árna. Gunnar Smári ræðir við listamanninn Atla Bollason um ESB og Ísland, menningarlega stöðu landsins og álfunnar. Dr. Ingi Agnarsson líffræðingur ræðir áhugaverða ferð til Madagaskar á dögunum þar sem uppgötvanir í lífríki kóngulóarinnar hafa hlotið athygli víða um heim. Björn Þorláks ræðir við hann.
Mon, 17 Aug 2026 - 2h 40min - 1393 - Synir Egils 16. ágúst - Evrópusambandið, þjóðaratkvæði og klofin þjóð
Sunnudagurinn 16. ágúst Synir Egils: Evrópusambandið, þjóðaratkvæði og klofin þjóð Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við þau Sonju Ýr Þorbergsdóttur formann BSRB, Kristinn Hrafnsson ritstjóra Wikileaks og Piu Elizabeth Hansson forstöðumann Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands. Síðan koma fulltrúar frá Ungum Evrópusinnum og Ung gegn ESB-aðild og ræða kosti og kalla umsóknar um aðild að Evrópusambandinu: Óðinn Freyr Baldursson og Þórhildur Davíðsdóttir Söebech sem ætla að segja já þann 29. ágúst og Illugi Gunnarsson og Salma Björk Önnudóttir sem ætla að segja nei. Í lokin ræða þeir bræður um pólitíkina með sínu nefi.
Sun, 16 Aug 2026 - 2h 36min - 1392 - Rauða borðið - Helgi-spjall: Halldóra Björnsdóttir
Laugardagur 15. ágúst Helgi-spjall: Halldóra Björnsdóttir Halldóra Björnsdóttir íþróttafræðingur var með morgunleikfimi á RÚV í 40 ár. Hún segir hér Ásdísi Olsen frá lífi sínu og störfum.
Sat, 15 Aug 2026 - 1h 45min - 1391 - Talaðu við mig - 6. þáttur: Aron M og Unnur B
Föstudagur 14. ágúst Talaðu við mig - 6. þáttur Í þættinum í dag ræða þær Emilía og Álfheiður við meistarana Aron Mola og Unni Backman um lífið og tilveruna, leiklist, leikhús, LHÍ, Sigmundur Davíð í MR og margt fleira. Þvílíkur heiðir að fá að spjalla við þessa stórleikara og þjóðargersemar.
Fri, 14 Aug 2026 - 1h 08min - 1390 - Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 33
Föstudagur 14. ágúst Vikuskammtur: Vika 33 Þau Þuríður H. Aradóttir Braun verkefnastjóri, Magga Stína tónlistarkona, Valgarður Guðjónsson söngvari Fræbblana og Þórunn Lárusdóttir leikkona ræða fréttir vikunnar við Gunnar Smára, fréttir sem einkenndust af karpi, myrkva, deilum, óvissu og gleði.
Fri, 14 Aug 2026 - 1h 21min - 1389 - Sjávarútvegsspjallið 86. þáttur - Kvóti, fiskveiðiráðgjöf og slaufunFri, 14 Aug 2026 - 57min
- 1388 - Rauða borðið 13. ágúst - Reynsluboltar, vinstri ESB, heilun í stríði, húsnæðismál og landsbyggðin
Fimmtudagur 13. ágúst Reynsluboltar, vinstri ESB, heilun í stríði, húsnæðismál og landsbyggðin Erna Bjarnadóttir hagfræðingur, Björn Leví Gunnarsson fyrrum þingmaður og Björg Eva Erlendsdóttir, Landvernd, ræða fréttir vikunnar. Sólmyrkvinn og ESB-umræðan verða meðal umfjöllunarefna, Björn Þorláks stýrir þættinum. Stefán Pálsson sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi Vinstrisins útskýrir sína afstöðu varðandi ESB fyrir Gunnari Smára. Erla Ólafsdóttir sjúkraþjálfi vinnur með fórnarlömb stríðsins í Úkraínu. Hún ræðir við Ásdísi Olsen. Formaður Leigjendasamtakanna, Yngvi Ómar Sigrúnarson, ræðir húsnæðismál í tengslum við Evrópuumræðu Íslendinga. Björn Þorláks talar við hann. Þóroddur Bjarnason prófessor og landsbyggðasérfræðingur ræðir við Gunnar Smára um áhrif aðildar að ESB á íslenskar landsbyggðir.
Thu, 13 Aug 2026 - 4h 26min - 1387 - Rauða borðið 12. ágúst - ESB plús og mínus, geðheilsa og Megas
Miðvikudagur 12. ágúst ESB plús og mínus, geðheilsa og Megas Gunnar Smári ræðir við Ögmund Jónasson fyrrum ráðherra og formann BSRB um þjóðaratkvæðagreiðslu um umsókn Íslands í ESB. Ögmundi list ekki á blikuna. Þorvaldur Gylfason hagfræðingur ræðir kosti aðildar að ESB, íslensku krónuna fjármálaspillingu og fleira í samtali við Björn Þorláks. Ólafur Ævarsson geðlæknir og Björn Þorláksson kryfja samfélagið saman í tengslum við geðheilsu. Sjónarhorn þeirra eru ýmist persónuleg eða vísindaleg. Spessi, Sigurþór Hallbjörnsson, sem gerði kvikmynd um Megas, ræðir við Björn Þorláks um tónlistarmanninn, sem nú er fallinn frá.
Wed, 12 Aug 2026 - 3h 24min - 1386 - Rauða borðið 11. ágúst - Skólabyrjun, ESB, menningarbrunnur og sólmyrkvahátíð
Þriðjudagur 11. ágúst Skólabyrjun, ESB, menningarbrunnur og sólmyrkvahátíð Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, var gestur Rauða borðsins. Nú styttist óðum í að skólarnir hefji störf eftir. Hvernig ætli gangi að ráða kennara, hvað með námsgögnin og hvað með einkunnir, með tölustöfum eða bókstöfum. Gunnar Smári ræðir við Gauta B. Eggertsson prófessor í hagfræði við Brown-háskólann í Bandaríkjunum um efnahagsstöðu Evrópu. Halldór Guðmundsson rithöfundur og útgefandi ræðir menningarlegt samband Íslands við meginland Evrópu við Björn Þorláksson. Myndi Laxness segja já eða nei 29. ágúst næstkomandi? Að lokum slær Ásdís Olsen á þráðinn inn á Hellissand, þar sem Jón Bjarni Steinsson, einn af skipuleggjendum Solar Eclipse Festival, gengur með okkur um svæðið og segir okkur frá því sem er að gerast í vikunni og fram á sunnudag.
Tue, 11 Aug 2026 - 2h 38min - 1385 - Rauða borðið - 10. ágúst - ESB, hinsegin öldruð, sólmyrkvi og orkumál
Mánudagur 10. ágúst ESB, hinsegin öldruð, sólmyrkvi og orkumál Guðmundur Hálfdanarson sagnfræðingur ræðir fullveldishugtakið og átökin vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar í lok mánaðarins á sögulegum nótum. Björn Þorláks ræðir við hann. Björgvin Huldar Soffíuson hjúkrunarfræðingur ræðir hinsegin miðaða öldrunarþjónustu. Andrea Jónsdóttir, plötusnúður og dagskrárgerðarmaður á Rás 2, tekur einnig þátt í spjallinu,Laufey Líndal, leiðir umræðuna. Natalí Lilja Ómarsdóttir, leiðbeinir fólki um hvernig það getur nýtt sér orkuna sem fylgir almyrkva á sólu. Ásdís Olsen ræðir við hana. Steingrímur Ólafsson, sem starfar á norskum olíupalli, ræðir í spjalli við Björn Þorláks hugarheim Norðmanna og áhuga þeirra á ESB-kosningu Íslendinga sem og átökin um auðlindir.
Mon, 10 Aug 2026 - 3h 30min - 1384 - Synir Egils 9. ágúst - Evrópusambandið, kosningar, kjarasamningar og fjölmiðlar
Sunnudagurinn 9. ágúst Synir Egils: Evrópusambandið, kosningar, kjarasamningar og fjölmiðlar Synir Egils, þeir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, fá gesti og ræða stöðu mála og stjórnmálin. Í fyrri hluta þáttarins koma þau Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri SA, Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og Halla Gunnarsdóttir formaður VR og ræða þjóðaratkvæðagreiðsluna um ESB, klofna þjóð og fallna kjarasamninga. Síðan koma þær Eyrún Magnúsdóttir stofnandi Gímaldsins, Margrét Tryggvadóttir formaður Rithöfundasambandsins og Þóra Jónsdóttir lögfræðingur fjölmiðlanefndar og ræða veika stöðu fjölmiðla. Í lokin taka þeir bræður stöðuna á pólitíkinni með sínu nefi.
Sun, 9 Aug 2026 - 2h 33min - 1383 - Talaðu við mig - 5. þáttur: Alaska1867 og Míó Stora
Föstudagur 3. júlí Talaðu við mig - 5. þáttur: Alaska1867 og Míó Stora Í þættinum í dag ræddum við við eingin önnur en Alösku1867 og Míó Stora. Við ræddum um listina, innblástur, lífið og tilveruna, og fórum að sjálfsögðu í nokkra góða liði þar sem ýmislegt kom í ljós. Þetta var heldur betur skemmtilegt spjall sem hefði getað haldið áfram í alla nótt.
Fri, 3 Jul 2026 - 1h 15min - 1382 - Sjávarútvegsspjallið - 85. þáttur: Fiskeldi
Fimmtudagur 2. júlí Sjávarútvegsspjallið - 85. þáttur: Fiskeldi Grétar Mar Jónsson ræðir fiskeldi á sjó og landi við þá Elvar Þór Jónsson, framkvæmdastjóra Verndarsjóðs íslenskra laxastofna, og Jóhann Helga Stefánsson, framkvæmdastjóra Landssambands veiðifélaga.
Thu, 2 Jul 2026 - 1h 02min - 1381 - Rauða borðið 30. júní - Neyðarréttur, demókratar, öryrkjar, mæðgur og bragðlaukar
Þriðjudagur 30. júní Neyðarréttur, demókratar, öryrkjar, mæðgur og bragðlaukar Tekist er á um það fyrir dómstólum þessa dagana hvort akstur undir áhrifum megi réttlæta með neyðarrétti. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir við Björn Þorláks. Gunnar Smári ræðir við Svein Mána Jóhannesson doktor í sagnfræði um bandaríska Demókrataflokkinn, ólíkar deildir hans, stefnu og markmið í aðdraganda kosninganna í haust. Öryrkjabandalagið telur að nýlegar breytingar á lögum um sjúkratryggingar geti stóraukið kostnað öryrkja og fatlaðra. Björn Þorláks ræðir við Gunnar Alexander Ólafsson, hagfræðing hjá ÖBÍ. Elskarðu mömmu þína? spyr Karla Kristjánsdóttir leikstjóri í samtali við Ásdísi Olsen eftir að hafa rannsakað mæðgnasambönd og skrifað um það nýtt íslenskt leikrit. Enginn sagði “Ég elska þig” Samband mæðgna er oft flókið og dýrmætt. Anna Sigríður Ólafsdóttir prófessor hefur rannsakað matvendni barna og hvort hægt sé að þjálfa bragðlaukana okkar. Hún útskýrir þetta fyrir Gunnari Smára.
Tue, 30 Jun 2026 - 4h 37min - 1380 - Rauða borðið 29. júní - Frost, evran, Suður-Kínahaf og besta útgáfan af okkur sjálfum
Mánudagur 29. júní Frost, evran, Suður-Kínahaf og besta útgáfan af okkur sjálfum Páll Heiðar Pálsson fasteignasali ræðir stöðuna á fasteignamarkaði í samtali við Björn Þorláks og hvernig sótt er að nafni hans fasteignasölu. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir um Evrópu við Gunnar Smára, um Úkraínu, Evrópusambandið og evruna, veltir fyrir hvort rekja megi fólksflótta frá ríkjum Austur-Evrópu til hagstjórnar með fastgengisstefnu. Ragnar Baldursson kínafræðingur ræðir um Taiwan og Suður-Kínahaf við Gunnar Smára. „Áður fyrr var ég með hnút í maganum og átti til að kasta upp af stressi á tónleikum,“ segir Kristján Viðar – eða Viddi í Greifunum – sem er viðmælandi Ásdísar í þættinum.
Mon, 29 Jun 2026 - 4h 55min - 1379 - Rauða borðið - Helgi-spjall: Örnólfur Árna
Laugardagur 27. júní Helgi-spjall: Örnólfur Árna Örnólfur Árnason segir okkur frá lífshlaupi sínu, blaðamennsku, ferðamennsku, bókum, leikritum, óperum og listahátíðum, frá gildi þess að ferðast og leyfa heiminum að breytast sér og samfélagi sem mætti breystast til betra vegar.
Sat, 27 Jun 2026 - 1h 41min - 1378 - Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 26
Föstudagur 26. júní Vikuskammtur: Vika 26 Ásdís Olsen sér um Vikuskammt að þessu sinni með gestum sínum, þeim Árelíu Eydís Guðmundsdóttur dósent, rithöfundi og fráfarandi borgarfulltrúa, Einari Skúlasyni þjóðfræðingi og göngugarpi, Halldóri Baldurssyni myndlistarmanni og skopteiknara, og Stefáni Ingvari Vigfússyni sviðshöfundi og uppistandara.
Fri, 26 Jun 2026 - 1h 46min - 1377 - Rauða borðið 25. júní - Dýravernd, framhaldsskólinn, ofbeldi, gervigreind og bekkurinn
Fimmtudagur 25. júní Dýravernd, framhaldsskólinn, ofbeldi, gervigreind og bekkurinn Tófan, hvalurinn og selurinn eru hluti af verðmætum sem Íslendingum ber að vernda. Þetta segir Rósa Líf Darradótir læknir sem segir að manninn hafi borið af leið eins og lýsi sér í svokallaðri “”mannmiðjuvillu”. Björn Þorláks ræðir við hana. Helga Þórey Önnudóttir Jónsdóttir og María Hjálmtýsdóttir, framhaldsskólakennarar, ræða stöðu framhaldsskólans með Laufeyju Líndal. Jenný Kristín Valberg teymisstýra í Bjarkarhlíð ræðir fjölbreyttar birtingarmyndir ofbeldis við Ragnheiði Davíðsdóttur. Ólafur Kristjánsson, einnig þekktur sem Óli tölva, ræðir um notkun gervigreindarinnar við Ásdísi Olsen. Víðir Sigurðsson ræðir að lokum við Sigurjón Magnús m.a. um framvindu og stöðuna á HM.
Thu, 25 Jun 2026 - 4h 38min - 1376 - Sjávarútvegsspjallið 84. þáttur: Þingmenn ræða sjávarútvegsmál
Fimmtudagur 25. júní Sjávarútvegsspjallið 84. þáttur: Þingmenn ræða sjávarútvegsmál Grétar Mar Jónsson ræðir við þingmennina Dag B. Eggertsson og Eydísi Ásbjörnsdóttur um misræmi í verðlagningu á fiski og fleira sem fjallað hefur verið um á Alþingi upp á síðkastið.
Thu, 25 Jun 2026 - 56min - 1375 - Rauða borðið 24. júní - Trump, framhaldsskólinn, átök, heimur að farast og kórsöngur
Miðvikudagur 24. júní Trump, framhaldsskólinn, átök, heimur að farast og kórsöngur Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur, Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur og Ólafur Páll Jónsson heimspekingur ræða við Gunnar Smára Egilsson um tíma Trump. Sigurjón Magnús ræðir við Guðmund Hálfdánarson um átökin innanlands í samtímanum. Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara ,ræðir við Gunnar Smára um niðurskurð. Lárus Ýmir Óskarsson velti því fyrir sér í spjalli með Birni Þorláks hvort auðræði sé að granda heiminum. Alþýðusönglist og hvernig sá siður hefur haldist víða að syngja í röddum og miðla milli kynslóða verður til umræðu hjá Margréti Bóasdóttur söngkonu og kórstjórnanda og Ingveldi Ýr Jónsdóttur söngkonu og kórstjórnanda. Gildi kórastarfs verður til umræðu.
Wed, 24 Jun 2026 - 4h 35min - 1374 - Græna borðið - 18. þáttur: Plastmengun og umhverfishreinsun
Miðvikudagur 24. júní Græna borðið - 18. þáttur: Plastmengun og umhverfishreinsun Tómas Knútsson í Bláa hernum og Ragnhildur Katla Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi Landverndar ræða plastið í náttúrunni, plastið í sjónum, plastlistaverkauppboð og ruslahreinsun. Með þeim situr Björg Eva Erlendsdóttir.
Wed, 24 Jun 2026 - 1h 02min - 1373 - Rauða borðið 23. júní - Þjóðaratkvæðisgreiðslan, lagaleg álitamál, myndlæsi og heiður
Þriðjudagur 23. júní Þjóðaratkvæðisgreiðslan, lagaleg álitamál, myndlæsi og heiður Óðinn Freyr Baldursson formaður Ungra Evrópusinna og Þórhildur Pálsdóttir stjórnarkona í Ungum gegn ESB útskýra fyrir Gunnari Smára hvers vegna þjóðaratkvæðagreiðslan í lok ágúst skiptir máli. Gísli Tryggvason lögmaður fer yfir lagaleg álitamál í fréttum líðandi stundar. Utanvegaakstur, hvalveiðar, réttur fólks til að lifa af hitabylgjur og fleira verður til umræðu í spjalli Gísla við Björn Þorláks. Hvernig við munum og lærum er til umræðu í viðtali Ásdísar Olsen við dr. Unni Óttarsdóttur. Hún bendir á að stór hluti mannkyns hugsi fyrst og fremst í myndum fremur en orðum og að skólakerfið taki ekki nægilegt mið af því. Ásdís Thoroddsen kvikmyndagerðarmaður var í hópi Íslendinga sem hlutu fálkaorðu á þjóðhátíðadeginum. Hún fer yfir áherslur sínar í samtali við Björn Þorláks.
Tue, 23 Jun 2026 - 3h 45min - 1372 - Rauða borðið 22. júní - Starmer, hvalir, Kína, gervigreind, arkitekt og hjólastígar
Mánudagur 22. júní Starmer, hvalir, Kína, gervigreind, arkitekt og hjólastígar Keir Starmer hefur sagt af sér sem leiðtogi breska Verkamannaflokksins og þar með sem forsætisráðherra Breta. Guðmundur Auðunsson hagfræðingur í London spáir í spilin í breskum stjórnmálum og innan Verkamannaflokksins í spjalli við Gunnar Smára. Valgerður Árnadóttir hvalavinur ræðir við Björn Þorláks um mótmæli gegn hvalveiðum og þá ekki síst nýjustu viðburði. Hún telur augljóst að veiðarnar stangist á við lög. Ragnar Baldursson kínafræðingur ræðir við Gunnar Smára um uppruna hugmyndarinnar um mörg kerfi innan sama ríkis og hvers vegna hún er mikilvæg í stefnu kínverska kommúnistaflokksins. Haukur Arnþórsson, doktor í stjórnsýslufræði, ræðir við Björn Þorláks um kosti og galla gervigreindar. Arnhildur Pálmadóttir arkitekt hefur verið heiðruð af hálfu Reykjavíkurborgar sem borgarlistamaður. Hún ræðir í samtali við Björn Þorláks hvernig henni hefur tekist að marka sérstök spor í byggingarlist. Magne Kvam er goðsögn og frumkvöðull í útivistarmenningu okkar Íslendinga sem fann það upp hjá sjálfum sér að leggja gönguskíðaspor og móta fjallahjólastíga fyrir almenning í sjálfboðavinnu. Ásdís ræðir við Magna um fjallahjólasportið.
Mon, 22 Jun 2026 - 4h 07min - 1371 - Bridgeþátturinn - EM að hefjast
Sunnudagurinn 21. júní Bridgeþátturinn - EM að hefjast Björn Þorláks fær þrjá briddsara í spjall til sín um EM sem hefst í næstu viku, laugardaginn 27. júní í Riga. Matthías Imsland, Jón Hersir Elíasson og Magnús Magnússon eru sammála um að ögurstund sé fram undan í opna flokknum. Alls sendir Ísland þrjú lið og spennan er mikil.
Sun, 21 Jun 2026 - 42min - 1370 - Rauða borðið - Helgi-spjall: Jóhanna Jónasdóttir
Laugardagur 20. júní Helgi-spjall: Jóhanna Jónasdóttir Lífshlaup Jóhönnu minnir helst á dramatíska kvikmynd þar sem söguhetjan býr við allsnægtir, frægð og frama þegar eiginmaðurinn biður um skilnað og veröldin hrynur til grunna. Í ljós kemur að á bak við glansmyndina er brotin kona með skelfilega áfallasögu og átröskun. Samhliða því að upplifa líf sitt í rúst fer Jóhanna að stunda hugleiðslu sem færir hana nær sínu innra lífi og síðan upplifun af allsherjar alsælu. Í samtali við Ásdísi Olsen lýsir Jóhanna andlegri vegferð sinni, m.a. sjö ára námi í orkuheilun og kynnum sínum af Barböru Brennan og Dr. Joe Dispenza, sem leiðir merkilega andlega vakningu sem miðar að kærleika og heilun.
Sat, 20 Jun 2026 - 2h 14min - 1369 - Talaðu við mig - 3. þáttur
Föstudagur 19. júní Talaðu við mig - 3. þáttur: Tónlistarbransinn Í þættinum í dag spjölluðum við við tvo unga listamenn. Við ræddum listina, framtíðina, björtustu vonir bransans og margt fleira. Það var sannur heiður að fá að kynnast þessum meisturum. Við vonum að þið njótið í botn ❤️
Fri, 19 Jun 2026 - 59min - 1368 - Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 25
Föstudagur 19. júní Vikuskammtur: Vika 25 Við förum yfir fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins á þessum kvenfrelsisdegi með þeim fjórum konum. Margrét Örnólfsdóttir handritshöfundur, Hlédís Maren Guðmundsdóttir varaborgarfulltrúi, Steinunn Ólína Hafliðadóttir myndlistarkona og Jenný Kristín Valberg teymisstýra í Bjarkarhlíð greina málin, stöðuna og stefnuna.
Fri, 19 Jun 2026 - 1h 37min - 1367 - Rauða borðið 18. júní - Utanríkis, Íran & Trump, ybbigoggur og bekkurinn
Fimmtudagur 18. júní Utanríkis, Íran & Trump, ybbigoggur og bekkurinn Við byrjum á spjalli Björns, Ásdísar og Gunnar Smára. Svo kemur Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisràðherra og fer yfir átakamál í ítarlegu samtali við Björn Þorláks. ESB, Trump, Gaza, efnahagsmálin innanlands og hræðsluáróður ber á góma. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer yfir samkomulag Trumpstjórnarinnar og klerkastjórnarinnar í Íran í samtali við Gunnar Smára. Hvað fékk Trump út úr stríðinu? Hver er staða Íran á eftir? Og hvar stendur Ísrael? Ingibjörg Ottesen, sem verið hefur með gagnrýna umræðu á Facebook, lætur flest flakka um pólitíkina, sjálftöku, það sem hún kallar spilllingaraflanna, mannréttingarmál, skort á náttúruvernd og margt fleira. Ragnheiður Davíðsdóttir talaði við hana. Í lokin fer Sigurjón yfir HM í fótbolta með Víði Sigurðssyni í Bekknum og eflaust íslenskan fótbolta líka.
Thu, 18 Jun 2026 - 3h 41min - 1366 - Græna borðið - 17. þáttur: Dýravelferð og dýravernd
Miðvikudagur 17. júní Græna borðið - 17. þáttur: Dýravelferð og dýravernd Ný stjórnarskrá sem fyrst til að tryggja réttindi dýra. Löggjafinn þarf að hlusta á þjóðina og banna hvalveiðar, blóðmerarhald og loðdýraeldi. Samtök bænda eiga að axla ábyrgð á dýravelferð. Við þurfum draga stórlega úr þjáningasporinu á bak við það sem við borðum og láta af þessari mannmiðjuvillu sem hrjáir mannkynið. Þetta er meðal þess sem kemur fram við Græna borðið þar sem Gunnar Theodór Eggertsson, rithöfundur, Valgerður Árnadóttir frá Hvalavinum, Rósa Líf Darradóttir frá Samtökum um Dýravelferð ræddu við Kristínu Helgu Gunnarsdóttur um ástandið í dýraverndarmálum.
Wed, 17 Jun 2026 - 1h 00min - 1365 - Rauða borðið 16. júní - Samgöngur, samfélagsmiðlar, ESB, skíði og körfubolti
Þriðjudagur 16. júní Samgöngur, samfélagsmiðlar, ESB, skíði og körfubolti Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra fer yfir samgönguáætlun með Gunnari Smára, ræðir mikla umferð á veikbyggðum vegum, göng, brýr, sjóflutninga og innanlandsflug. Viðar Halldórsson félagsfræðingur fer yfir kosti og galla þess að banna börnum aðgengi að samfélagsmiðlum. Bretar hafa fylgt fordæmi Ástrala og hyggjast banna öllum 16 ára og yngri að nota samfélagsmiðla. Guðmundur Auðunsson, einn af stofnendum VG, ræðir að forysta vinstra flokkanna er með neikvætt viðhorf gagnvart aðild að ESB í andstöðu við eigin flokksmenn samkvæmt könnunum. Björn Þorláks ræðir við hann. Guðmundar Gunnlaugssonar sem flestir þekkja sem Gumma Gull, er einn af helstu máttarstólpum íslenskrar skíðasögu. Ásdís ræðir við hann, m.a. örlög nokkra afreksmanna á skíðum. Rausnarlegur fjárstyrkur frá verkalýðsfélagi þýðir að hægt verður að framlengja félagsstarf körfuboltastúlknanna í Aþenu í Breiðholti. Þetta segir Brynjar Karl forsvarsmaður, hann þakkar Sólveigu Önnu og Eflingu í samtali við Björn Þorláks.
Tue, 16 Jun 2026 - 3h 47min - 1364 - Rauða borðið 15. júní - Edition-málið, þjóðmál, brjóst, Kína og ESB
Mánudagur 15. júní Edition-málið, þjóðmál, brjóst, Kína og ESB Réttarhöld um svokallað Edition mál þar sem tvennt lét lífið fjalla um fjarstæðukenndan hrylling. Magnea Marínósdóttir ræðir við Björn Þorláks um hvernig það var að vera viðstödd réttarhöldin. Kristín Ástgeirsdóttir, Þórunn Sigurðardóttir og Þröstur Ólafsson ræða við Sigurjón Magnús um helstu þjóðmál, erjur í Samfylkingunni og fleira. Hafrún María Zsoldos snyrtifræðingur var nær dauða en lífi vegna sílikonbrjóstapúða. Ásdís Olsen ræðir við Hafrúnu Maríu. Ragnar Baldursson, prófessor í kínverskum fræðum, segir Gunnari Smára frá afstöðu Kínverja til samfélags, ríkis og flokks og veltir fyrir sér hvers vegna Kína sé nú orðið í forystu varðandi sjálfbæra þróun. Henry Alexander Henrysson heimspekingur ræðir þjóðaratkvæðagreiðsluna fram undan, rökræðuna um ESB, lýðræði, siðferði, unglingaveiki smáþjóðar og heiðarleika í samtali við Björn Þorláks.
Tue, 16 Jun 2026 - 5h 11min - 1363 - Rauða borðið - Helgi-spjall: Árni Pétur
Laugardagur 13. júní Helgi-spjall: Árni Pétur Árni Pétur Guðjónsson leikari ársins kemur í helgi-spjall og segir frá hippanum í sér, leikaranum, hommanum, alkanum og ýmsum fleiri.
Sat, 13 Jun 2026 - 1h 41min - 1362 - Talaðu við mig - 2. þáttur: í og úr kulnun/fötum
Föstudagur 12. júní Talaðu við mig - 2. þáttur: í og úr kulnun/fötum Í þætti dagsins fengum við góða gesti sem ræddu við okkur um líf sitt og starf. listakonan, stílistinn, socialiteið og Iconið Iða Dögg og svo alt muligt mennirnir, listamennirnir og frumkvöðlarnir Dagur og Gylfi.
Fri, 12 Jun 2026 - 1h 07min - 1361 - Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 24
Föstudagur 12. júní Vikuskammtur: Vika 24 Ómar Örn Magnússon skólastjóri Hagaskóla, Björgvin G. Sigurðsson, fyrrum ráðherra, Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi og Björn Leví Gunnarsson, fyrrum þingmaður, ræða ólguna í Samfó, útlendingamál, menntamál, ESB, efnahagsmál og íslenska blíðviðrið. Björn Þorláks sér um þáttinn.
Fri, 12 Jun 2026 - 1h 14min - 1360 - Rauða borðið 11. júní - Flokksórói, menntun öryrkja, lögblind börn, ESB og list
Fimmtudagur 11. júní Flokksórói, menntun öryrkja, lögblind börn, ESB og list Þórarinn Snorri Sigurgeirsson stjórnmálafræðingur og skristofufstjóri hjá Þroskahjálp er einn hvatamanna yfirlýsingar fjölda fólks úr Samfylkingunni gegn stefnubreytingar forystu flokksins í málefnum flóttafólks. Hann segir Gunnari Smára hvers vegna. Anna Margrét Bjarnadóttir, Hrönn Stefánsdóttir og Þórdís Bjarnleifsdóttir ræða fötlun og fjárhag, aðgengi að tækifærum í samtali við Björn Þorláks. Ekki sitja allir við sama borð er kemur að menntamöguleikum við HÍ. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við Sigurlaugu Gísladóttur móður þriggja lögblindra drengja um lífið og tilveruna og baráttu við kerfið. Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur telur einsýnt að Ísland eigi af menningarlegum orsökum ekki síður en efnahagslegum samleið með ESB. Einangrun landsins er stórvarasöm að mati Guðmundar Andra og válegir straumar í vestri. Björn Þorláks ræðir við hann. Á sunnudaginn opnar ný sýning í gluggagalleríinu STÉTT í Bolholti 6. Berglind Ágústsdóttir listakona segir Laufeyju Líndal frá list sinni.
Thu, 11 Jun 2026 - 3h 04min - 1359 - Rauða borðið 10. júní - Ærumeiðingar, heimsmálin, ESB-skýrsla, námsleiðir og jóga
Miðvikudagur 10. júní Ærumeiðingar, heimsmálin, ESB-skýrsla, námsleiðir og jóga Margrét Friðriks á frettin.is ræðir spillta íslenska yfirstétt sem hún segir stöðugt vinna gegn sér. Hún ræðir nýfallinn ærumeiðingadóm, eigin áfallasögu og gönguna með Jesú Kristi í samtali við Björn Þorláks og Ásdísi Olsen. Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um heimsmálin, stríðin og ESB. Hallgrímur Oddsson hagfræðingur í Brussel ræðir glænýja skýrslu um ESB og rekstrarumhverfi fyrirtækja. Tollar, gjaldmiðlar og geópólitískar sviptingar koma til umræðu í spjalli hans við Björn Þorláks. Bjarni M. Bjarnason rithöfundur hefur varið tímanum á kaffihúsum undanfarið. Ekki til að slæpast heldur til að skrifa doktorsritgerð! Björn Þorláks ræðir við Bjarna. „Þjáningin varð fæðingarhríðir skilningsins”, segir Marta Eiríksdóttir, kennari og jógakona um erfiðustu ár ævi sinnar í samtali við Ásdísi Olsen.
Wed, 10 Jun 2026 - 5h 05min - 1358 - Græna borðið 16. þáttur - Réttlát umskiptiWed, 10 Jun 2026 - 1h 01min
- 1357 - Græna borðið - 15. þáttur: Varmá, vatn og virðing
Miðvikudagur 3. júní Græna borðið 15. þáttur: Varmá, vatn og virðing Varmá, vatn og virðing verða rædd við Græna borðið í dag. Heilbrigðiseftirlitið, vatnalíffræðingur og íbúi við Varmá telja að mengunin í ánni sé brot á lögum og afleiðing óvirðingar gagnvart náttúrunni, en ekki umhverfisslys. Þörf sé á miklu betri umgengni við vatn á Íslandi, eins og náttúruna almennt, en ferskvatn, ár og votlendi séu undir álagi vegna slæmrar umgengni við framkvæmdir og hætta sé á varanlegu tjóni. Hugsa þurfi til framtíðar, efla fræðslu og eftirlit. Umsjón hefur Björg Eva Erlendsdóttir.
Tue, 9 Jun 2026 - 1h 00min - 1356 - Rauða borðið 9. júní - Persónulegt hrun, heilahreistingur, áfengi, stengjafræði og veitingahús
Þriðjudagur 9. júní Persónulegt hrun, heilahreistingur, áfengi, stengjafræði og veitingahús Einlægt samtal um persónulegt hrun og þá miklu auðmýktina sem þarf til að biðja um hjálp, í viðtali Ásdísar við Arnór Má Másson markþjálfa. Mjög alvarlegur heilahristingur leiddi til þess að Valgerður Árnadóttir missti getu til að sinna einföldustu verkefnum. Hún komst í gegnum erfiðleikana eins og hún segir Birni Þorláks frá. Björn Þorláks ræðir við forvarnafulltrúann Árna Guðmundsson um hvort hinir fullorðnu eiga sjálfir að hjálpa börnunum að komast yfir áfengi. Lárus Thorlacius prófessor í eðlisfræði útskýrir strengjafræði fyrir Gunnari Smára og Bjarni Óskarsson veitingamaður segir frá nokkrum veitingastöðum sem hann hefur stofnað og rekið í samtali við Gunnar Smára.
Tue, 9 Jun 2026 - 5h 09min - 1355 - Talaðu við mig - 1. þáttur: Grettir og grín
Föstudagur 5. júní Talaðu við mig - 1. þáttur: Grettir og grín Nýr þáttur á Samstöðinni um listir og menningu í umsjón Álfheiðar Karlsdóttur og Emilíu Bergsdóttur. Í þessum fyrsta þætti spjölluðum við við Gretti Valsson, leikara, grínista og tónlistarmann. Hann klúðraði aðeins og komst ekki í stúdíóið, en við gerðum það besta úr aðstæðum og hringdum í kallinn á zoom. Eftir spjallið fórum við eitthvað að babbla og fórum í nokkra góða liði og reyndum að hafa ofanaf fyrir hlustendum og tókst vonandi bara ágætlega til. Við teljum þó að eina leiðin sé upp eftir þennan fyrsta þátt og í næsta þætti ætlum við að fá til okkar góða gesti sem hafa ýmislegt skemmtilegt að segja.
Tue, 9 Jun 2026 - 49min - 1354 - Rauða borðið - Helgi-spjall: Sigfinnur
Laugardagur 6. júní Helgi-spjall: Sigfinnur Sigfinnur Þorleifsson sjúkrahúsprestur segir okkur frá kvíða æskunnar, veikindum foreldra sinna, trúrrleit sinni, reynslu af dauðanum og hvernig fólk tekur honum, voninni og öðru sem hjálpar.
Tue, 9 Jun 2026 - 2h 24min - 1353 - Rauða borðið 8. júní - Sprungnir meirihlutar, röddin, Hildur, túrismi og HM
Mánudagur 8. júní Sprungnir meirihlutar, röddin, Hildur, túrismi og HM Ofurlaun nokkurra sveitarstjóra hafa verið til umræðu að loknum kosningum. Þá gekk meirihluti í Hafnarfirði úr skaftinu vegna trúnaðarbrests. Þorsteinn Gunnarsson hefur skrifað ritgerð sem kann að varpa ljósi á álitamál í íslenskri sveitarstjórnarpólitík. Björn Þorláks ræðir við hann. Að finna sína eiginlegu rödd fæst með því að tengja við sálina sína segir Þórey Sigþórsdóttir leikkona og raddþjálfi sem kennir fólki að nota röddina, finna sinn eigin styrk í tjáningunni og ná athygli fólks í viðtali við Ásdís Olsen. Guðni Tómasson framkvæmdastjóri Sinfó, Freyja Gunnlaugsdóttir, skólastjóri Menntaskóla í tónlist og Ingveldur G. Ólafsdóttir, móðir Hildar Guðnadóttur, ræða skilyrði árangurs í tónlist og hvort þeim er sinnt sem stendur. Hinrik Ólafsson leikari, leiðsögumaður, framleiðandi og leikstjóri ræðir við Gunnar Smára um túrisma á Íslandi. HM með Víði Sigurðssyni. Gestur þáttarins að þessu sinni er einn reyndasti íþróttafréttamaður landsins. Heimsmeistarakeppnin er við það að hefjast. Svo er mikið gaman að fylgjast með íslenska boltanum.
Mon, 8 Jun 2026 - 5h 05min - 1352 - Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 23Fri, 5 Jun 2026 - 2h 06min
- 1351 - Rauða borðið 4. júní - Vitsmunakreppa, þurfamenn, bókmenntir, listir og neytendamál
Fimmtudagur 04. júní Vitsmunakreppa, þurfamenn, bókmenntir, listir og neytendamál Sverrir Norland rithöfundur ræðir þverrandi áherslu á vitsmuni en aukinn þunga á öryggi í samtali við Björn Þorláks. Ragnheiður Kristjánsdóttir prófessor segir Gunnari Smára frá breytingum á fátæktarlögum 1927 þar sem þurfamenn fengu meðal annars kosningarétt, en fram að því missti fólk þann rétt ef það þáðu stuðning frá sveitarfélögunum. Ásdís Olsen ræðir við Vilhjálm Pétursson verðlaunahafa hjá Forlaginu. Emilía Bergsdóttir trúður og Álfheiður Karlsdóttir dansari ræða við Ásdísi Olsen un glænýjan menningarþátt sem hleypt verður af stokkunum á morgun. Breki Karlsson hjá Neytendasamtökunum fer yfir helstu áskorarnir íslenskra neytenda um þessar mundir. Vextirnir, olían, maturinn og húsnæðið verða til umræðu. Björn Þorláks ræðir við Breka.
Thu, 4 Jun 2026 - 3h 20min - 1350 - Rauða borðið 3. júní - Ofbeldi, öryrkjar, fánar, íbúðamarkaður og sundlaugar
Miðvikudagur 3. júní Ofbeldi, öryrkjar, fánar, íbúðamarkaður og sundlaugar Hrundið hefur verið af stað landsátaki gegn kynbundnu ofbeldi næstu fimm árin. Linda Dröfn Gunnarsdóttir ræðir í samtali við Björn Þorláks átakið, flutning athvarfsins, samstöðu og stuðning en einnig ökklabönd og kyrkingartök. Unnur Hrefna Jóhannsdóttir blaðakona og öryrki ræðir við Gunnar Smára um stöðu öryrkja í samfélaginu, hvernig fordómar og vanvirðing dregur niður lífskjör þeirra ekki síður en sjúkdómar, fötlun og fátækt. Ingólfur Gíslason lektor við Háskóla Íslands ræðir þá ákvörðun borgaryfirvalda að hætta að flagga fánum erlendra ríkja. Nýr meirihluti fer illa af stað, að mati Ingólfs. Sigurður Sigurðsson byggingarverkfræðingur segir Gunnari Smára frá pólitísk svik stjórnmálafólksins við ungu kynslóðina, einkum varðandi húsnæðismarkaðinn sem þjónar síst af öllu ungu fólki. Rán Flygenring, myndlistarmaður og rithöfundur, er mikil sundmanneskja og upp á síðkastið hafa gestir í sundlaugum rekið augun í myndlist hennar á sundlaugarbökkum Reykjavíkur. Rán ræðir við Björn Þorláks um þjóðareinkenni Íslendinga, útisundlaugina.
Wed, 3 Jun 2026 - 3h 22min - 1349 - Rauða borðið 2. júní - Bitbein, mygluveiki, villistrákar, ferðaþjónustufúsk og hringvegurinn
Þriðjudagur 2. júní Bitbein, mygluveiki, villistrákar, ferðaþjónustufúsk og hringvegurinn Páll Valsson rithöfundur og ævisagnaritari Jónasar Hallgrímssonar skýrir fyrir Birni Þorláks hvers vegna hann telur það góða hugmynd að grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar. Hugmyndin hefur vakið deilur meðal fræðimanna. Aðalheiður Sigursveinsdóttir stjórnunarráðgjafi og listakona varð fyrir alvarlegum áhrifum af svartmyglu á heimili sínu og missti allt sem hún átti og næstum vonina líka. Í viðtali við Ásdísi lýsir hún hvernig var að vera heimilislaus, heilsulaus, atvinnulaus og koma alls staðar að lokuðum dyrum. Ólafur Páll Sigurðsson segir Gunnari Smára frá skáldsögunni Villistrákum og höfundi hennar William S. Burroughs, því alræmda skáldi. Páll Ásgeir Ásgeirsson, blaðamaður og leiðsögumaður, vill að tekin verði upp löggilding meðal leiðsögumanna hér á landi. Í samtali Björns Þorláks við Pál Ásgeir ber samanburð færeyskrar og íslenskrar ferðaþjónustu á góma en í Færeyjum hafa leyfislausir leiðsögumenn verið handteknir undanfarið. Arnþór Gunnarsson sagnfræðingur segir Gunnari Smára frá hringveginum, undirbúningi hans, lagningu, vígslu og áhrifum.
Tue, 2 Jun 2026 - 4h 17min - 1348 - Rauða borðið 1. júní - Lyfjahagsmunir, pólitík, fasteignasala og menntun
Mánudagur 1. Júní Lyfjahagsmunir, pólitík, fasteignasala og menntun Hagsmunir sem stýra lyfjarannsóknum og heilbrigðiskerfinu eru miklir og spurningar vakna hvort árangursrík og ódýr meðferð gegn krabbameini sé ekki í boði vegna hagsmuna lyfjafyrirtækja? Ásdís Olsen ræðir við Karl Snæbjörnsson lækni og Jón Ármann Steinsson sem segist hafa náð bata af fjórða stigs krabbameini með lyfi sem læknar eru tregir til að tilvísa. Augljóst er að staða Hildar Björnsdóttur, sem tekur við stöðu borgarstjóra á morgun, er sterk. Miðað við söguna gæti hún orðið formaður Sjálfstæðisflokksins. Þetta segir Ólafur G, Harðarson stjórnmálafræðingur í samtali við Björn Þorláks. Baldur Jezorski fasteignasali segir Gunnar Smára frá þeim breytingum sem hafa orðið á íbúðamarkaði þar sem fjársterkir aðilar kaupa upp eignir á meðan almenningur hefur ekki efni á íbúðunum. Maðurinn í órofa tengslum við félagslegt og menningarlegt umhverfi sitt og markast vitsmunalega af slíkum tengslum, segir í bókinni Menntun í félagsmenningarlegu ljósi sem Hafþór Guðjónsson kennari hefur skrifað. Hann útskýrir þetta fyrir Gunnari Smára.
Mon, 1 Jun 2026 - 4h 24min - 1347 - Bridgeþátturinn - Flott frammistaða
Sunnudagurinn 31. maí Bridgeþátturinn - Flott frammistaða Matthías Imsland, framkvæmdastjóri Bridgesambands Íslands, og Magnús Magnússon briddskennari og landsliðsmaður ræða við Björn Þorláks um Evrópumótið framundan, æfingar að baki, maraþonviðureign við Hollendinga og fleira.
Sun, 31 May 2026 - 50min - 1346 - Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 22
Föstudagur 29. maí Vikuskammtur: Vika 22 Í Vikuskammt að þessu sinni mæta þær Nanna Hlín Halldórsdóttir, Elín Oddný Sigurðardóttir og Valgerður Árnadóttir til að ræða fréttir vikunnar með Laufeyju Líndal. Nýir borgar- og sveitarstjórnarmeirihlutar, samstarfssáttmálar, þjóðaratkvæðagreiðsla, vafasamar fyrirmyndir, hvalveiðar, netárásir og fordómar verða til umræðu.
Fri, 29 May 2026 - 1h 36min - 1345 - Rauða borðið 28. maí - Olíuborpallur, reynsluboltar, heimsmálin, innflytjendur og plastbarkamálið
Fimmtudagur 28. maí Olíuborpallur, reynsluboltar, heimsmálin, innflytjendur og plastbarkamálið Steingrímur Ólafsson er einn fárra Íslendinga sem starfar á olíupalli. Hann lýsir þeirri reynslu í samtali við Björn Þorláks og spáir fyrir um framtíð jarðefnaeldsneytis. Aðalsteinn Tryggvason blaðamaður á Heimildinni, Steingerður Steinarsdóttir, blaðamaður, Lifðu núna og Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur ræða fréttir líðandi stundar. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor við Háskólann á Akureyri ræðir við Gunnar Smára Egilsson um heimsmálin, Íransstríðið og fleira. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við Nuru A. Rashid leikskólakennara frá Singapúr um 30 ár á Íslandi. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir við Björn Þorláksson um lagaleg álitamál, tengd fréttum líðandi stundar.
Thu, 28 May 2026 - 4h 09min - 1344 - Græna borðið - 14. þáttur - Velsældarhagkerfið
Hagvöxtur sem mælikvarði framfara ógnar náttúrunni og heilsu samfélagins, segja höfundar nýrrar bókar um velsældarhagkerfið. Ásgeir Brynjar Torfason og Kristín Vala Ragnarsdóttir eru gestir Græna borðsins, ásamt Silju Elvarsdóttur verkefnisstjóra í Norræna húsinu. Félagið Miðstöð velsældarhagkerfis, verður stofnað í Norræna húsinu í dag og stefnir að fræðslu og umræðu um leiðir til betra lífs, Kristín Helga Gunnarsdóttir og Björg Eva Erlendsdóttir stýra umræðum.
Thu, 28 May 2026 - 1h 01min - 1343 - Rauða borðið 27. maí - Kennsla, geðheilsa, golf, heilsulæsi, tónlistarósómi
Miðvikudagur 27. maí Kennsla, geðheilsa, golf, heilsulæsi, tónlistarósómi Gunnar Smári Egilsson ræðir við Ingvar Sigurgeirsson og Lilju M. Jónsdóttur, fyrrverandi háskólakennara um nýja skýrslu um starfsaðstæðiur kennara. Forsvarsmenn Geðhjálpar geta ekki opnað skjólshús á jafningjagrunni í Breiðholti vegna andstöðu íbúa. Björn Þorláks ræðir við Sigrúnu Ólafsdóttur prófessor í félagsfræði. Lukka Pálsdóttir vill auka heilsulæsi og fjölga heilbrigðum æviárum. Í viðtali við Ásdísi Olsen veltir hún fyrir sér hvers vegna heilsubyltingin mæti þöggun og andstöðu frá kerfinu. Sigurjón Magnús ræðir við Huldu Bjarnadóttur, forseta Golfsambandsins, um uppgang í golfíþróttinni. Hátt í 400 nemendur í Árbænum hafa fengið fría leiðsögn á hljóðfæri síðustu ár en stuðningur við verkefnið hefur nú verið blásinn af. Björn Þorláks ræðir við Stefán S. Stefansson tónlistarmann um öfugþróun í listum og menningu.
Wed, 27 May 2026 - 4h 14min - 1342 - Rauða borðið 26. maí - Náttúruhamfarir, dýrtíð, einhverfa og hamingja
Þriðjudagur 26. maí Náttúruhamfarir, dýrtíð, einhverfa og hamingja Margt bendir til að eldgosahrinunni sé lokið á Reykjanesi og að besta sviðsmynd allra möguleika verði ofan á. Öryggi og nægur jarðvarmi. Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur ræðir við Björn Þorláksson. Dýrtíð innanlands er í hæstu hæðum. Framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, Þórður Snær Júlíusson, ræðir í samtali við Björn Þorláks hvaða breyting yrði á samkeppni með aðild að ESB. Gunnar Smári ræðir við Vigdísi M. Jónsdóttur sálfræðing á Sálfræðistöðinni Höfðabakka um einhverfar konur og hvers vegna þær fela svo vel einhverfu sína. Og svo ræða þau svokallaða fúla karla, eldri menn sem lifa einangruðu lífi og verða einmana. Hrefna Guðmundsdóttir vinnu-og félagssálfræðingur ræðir hamingjuna á þriðja æviskeiði við Ásdísi Olsen.
Tue, 26 May 2026 - 3h 41min - 1341 - Rauða borðið - Helgi-spjall: Ragnar Freyr Ingvars
Laugardagur 23. maí Helgi-spjall: Ragnar Freyr Ingvars Ragnari var nýlega sagt upp störfum á Landspítalanum sem hefur vakið sterk viðbrögð. Hann er vinsæll og vel metinn lyf- og gigtarlæknir og formaður Læknafélags Reykjavíkur. Hann segir yfirstjórn spítalans vanhæfa og segir óhræddur skoðun sína á Landspítalanum og hvað mætti bæta í heilbrigðiskerfinu okkar. Ragnar er í Helgi-spjalli vikunnar með Ásdísi Olsen.
Sat, 23 May 2026 - 1h 50min - 1340 - Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 21
Föstudagur 22. maí Vikuskammtur: Vika 21 Í Vikuskammt til Björns Þorlákssonar mæta þau Steinunn Ólína leikkona, Bragi Páll rithöfundur, Halldór Ólafsson kvikmyndagerðarmaður og Þorsteinn Siglaugsson hagfræðingur. Þau ræða m.a. pólitík, löggur sem skjóta fólk, dýrtíð, menningu og menningarleysi.
Fri, 22 May 2026 - 1h 35min - 1339 - Rauða borðið 21. maí - Rasismi, bakslag, reynsluboltar, Rauði krossinn og draumar
Fimmtudagur 21. maí Rasismi, hinsegin bakslag, reynsluboltar, Rauði krossinn og draumar Brynjar Karl hjá körfuboltafélaginu Aþenu saknar ekki fráfarandi meirihluta Reykjavíkurborgar, enda hafa samskipti hans og borgarinnar verið stirð á umliðnum árum. Hann ræðir við Björn Þorláks og segist reiður, enda sé borgin beint eða óbeint að stuðla að rasisma. Alexandra Briem, Arna Magnea Danks og Svenný Kristins voru allar ofarlega á listum framboða til sveitarstjórna í nýafstöðnum kosningum. Þær lýsa bakslagi. Oddný Harðardóttir, fyrrum þingmaður, Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri og Ólafur Arnarson blaðamaður ræða fréttir vikunnar. Dýrtíð, vextir, ESB og sveitarstjórnarkosningarnar verða meðal umræðuefna. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Þorsteinn Valdimarsson verkefnastjóri Rauða krossins og Kristín Hjörleifsdóttir kennari ræða um íslenskukennslu fyrir útlendinga. Ragnheiður Davíðs stýrir umræðunni. Þeir eru ekki margir sem fara í gegnum tónlistarnám í FÍH á 20 árum. Þorvaldur Sigurbjörn Helgason stígur á stokk í kvöld með útskriftartónleikum úr rytmískri deild. Hann hóf nám við skólann árið 2006. Björn Þorláks ræðir við Þorvald um drauma sem rætast.
Thu, 21 May 2026 - 4h 34min - 1338 - Rauða borðið 19. maí - Vinstrið, Píratar, vísindi, hamingja og minningartónleikar
Þriðjudagur 19. maí Vinstrið, Píratar, vísindi, hamingja og minningartónleikar Stefán Pálsson sagnfræðingur ræðir við Björn Þorláks um úrkomu kosninganna og hvaða breytinga megi vænta með hægri meirihluta. Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns formaður Pírata segir Gunnari Smára hver framtíð Pírata er og metur hvers vegna svona fáir kusu þá í borgarstjórnarkosningum og til þings. Árni Kristjánsson, prófessor í sálfræði við Háskóla Íslands, sem Gunnari Smára frá rúm- og tímaháðum hugarvenjum sem hann hefur verið að rannsaka, en Samstöðin stefnir að því að fá fleiri vísindamenn á næstu vikum til að uppfræða okkur um rannsóknar sínar. Valgeir Skagfjörð leikari varð fyrir umbreytandi reynslu þegar hann tók þátt í raunveruleikaþættinum Hamingjan sanna fyrir um 15 árum síðan. Valgeir segir Ásdísi frá þessari reynslu en ræðir einnig misnotkun móður sinnar og skömmina sem hann burðaðist lengst af. Stórsöngvararnir og vinir Jónasar Ingimundarsonar heitins, Kristinn Sigmundsson og Gunnar Guðbjörnsson, ræða um Jónas og tónleika sem eru fram undan í samtali við Björn Þorláks.
Wed, 20 May 2026 - 2h 21min - 1337 - Rauða borðið 19. maí - Vinstrið, Píratar, vísindi, hamingja og minningartónleikar
Þriðjudagur 19. maí Vinstrið, Píratar, vísindi, hamingja og minningartónleikar Stefán Pálsson sagnfræðingur ræðir við Björn Þorláks um úrkomu kosninganna og hvaða breytinga megi vænta með hægri meirihluta. Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns formaður Pírata segir Gunnari Smára hver framtíð Pírata er og metur hvers vegna svona fáir kusu þá í borgarstjórnarkosningum og til þings. Árni Kristjánsson, prófessor í sálfræði við Háskóla Íslands, sem Gunnari Smára frá rúm- og tímaháðum hugarvenjum sem hann hefur verið að rannsaka, en Samstöðin stefnir að því að fá fleiri vísindamenn á næstu vikum til að uppfræða okkur um rannsóknar sínar. Valgeir Skagfjörð leikari varð fyrir umbreytandi reynslu þegar hann tók þátt í raunveruleikaþættinum Hamingjan sanna fyrir um 15 árum síðan. Valgeir segir Ásdísi frá þessari reynslu en ræðir einnig misnotkun móður sinnar og skömmina sem hann burðaðist lengst af. Stórsöngvararnir og vinir Jónasar Ingimundarsonar heitins, Kristinn Sigmundsson og Gunnar Guðbjörnsson, ræða um Jónas og tónleika sem eru fram undan í samtali við Björn Þorláks.
Tue, 19 May 2026 - 4h 39min - 1336 - Rauða borðið 18. maí - Kosningaúrslitin, tímamótabók, dáleiðsla og fíkn
Mánudagur 18. maí Kosningaúrslitin, tímamótabók, dáleiðsla og fíkn Blaðamennirnir Jón Trausti Reynisson á Heimildinni og Atli Þór Fanndal, sem starfar sjálfstætt, rýna í helstu atriði kosningaúrslita um helgina og spá fyrir um framhaldið. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Umtalaðasta íslenska bókin þessa dagana er lífsreynslusaga Gyrðis Elíassonar, Ótíð í víti. Þar lýsir Gyrðir eigin baráttu við geðveiki og einkum þeim stökkbreytingum sem urðu til hins verra fyrir nokkrum og leiðir að því líkum að lyfjagjöf sé um að kenna. Guðmundur Andi Thorsson rithöfundur og Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarmaður ræða bókina með Birni Þorláks. “Vöruhús tilfinninganna” er dáleiðsluaðferð með nálgun jákvæðrar sálfræði sem Ingibjörg Bernhöft hefur þróað, sem vakti mikla athygli á alþjóðlegri dáleiðsluráðstefnu í Orlando í síðustu viku. Í þættinum dáleiðir hún Ásdísi Olsen til að hætta á nikótíntyggjói. Í dag greindi Morgunblaðið frá því að Árni Tómas Ragnarsson læknir er látinn fyrir aldur fram. Gunnar Smári Egilsson tók viðtal við hann eftir að landlæknir hafði svipt hann lækningaleyfi fyrir nokkrum misserum, þar sem Árni gaf út lyfseðla á morfín til fólks sem háð er ópíóðum. Árni var læknir fíkla. Við endurbirtum viðtalið.
Mon, 18 May 2026 - 3h 49min - 1335 - Synir Egils 17. maí - Uppgjör kosninga
Sunnudagurinn 17. maí Synir Egils: Uppgjör kosninga Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um niðurstöður kosninganna. Fyrst koma þau Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsmaður, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir ráðgjafi og Árni Helgason nýr þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fara yfir kosningabaráttuna, úrslitin og áhrif þeirra. Síðan koma starfsmenn stjórnmálaflokka, Þórður Snær Júlíusson framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingar, Tómas Þór Þórðarson starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins og Svanborg Sigmarsdóttir framkvæmdastjóri Viðreisnar og fara yfir stöðu flokka og afleiðingar sveitarstjórnarkosninganna. Þeir bræður fara síðan yfir pólitíkina með sínu nefi.
Sun, 17 May 2026 - 2h 13min - 1334 - Rauða borðið - Helgi-spjall: Vigfús Bjarni
Laugardagur 16. maí Helgi-spjall: Vigfús Bjarni Vigfús Bjarni Albertsson prestur segir frá lífinu, þessa heims og annars, í helgispjalli við Gunnar Smára; ræðir hversu stórkostleg manneskjan er og breysk, um sorgina, dauðann og lífið sem verður sterkara af áföllum.
Sat, 16 May 2026 - 2h 21min - 1333 - Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 20
Föstudagur 15. maí Vikuskammtur: Vika 20 Vikuskammtur tekur mið af kjördegi á morgun. Við fáum fólk af listum þeirra þriggja flokka sem hafa mælst með mest fylgi til að ræða stöðuna í Reykjavík: Líf Magneudóttir er í öðru sæti á lista Vinstrisins, Heiða Björg Hilmisdóttir er í öðru sæti á lista Samfylkingarinnar og Brynjar Níelsson er í þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. Þau ræða kosningabaráttuna við Gunnar Smára. Um hvað er kosið, hvernig standa flokkarnir, hvað tekur við?
Fri, 15 May 2026 - 1h 34min - 1332 - Rauða borðið - Aukaþáttur: Vinstrið
Fimmtudagur 14. maí Vinstrið Aukaþáttur á uppstigningardag: Ester Bíbí Ásgeirsdóttir, Finnur Ricart Andrason, María Hjálmtýsdóttir og Svenný Kristins koma að Rauða borðinu og ræða Vinstrið, framboð í Reykjavík og Hafnarfirði. Hvað vill Vinstrið og hvert stefnir það?
Thu, 14 May 2026 - 45min - 1331 - Sjávarútvegsspjallið - 83. þáttur: Fiskmarkaðir og kvóti
Fimmtudagur 14. maí Sjávarútvegsspjallið - 83. þáttur Það eru þeir Atli Hermannsson og Kári Jónsson sem mæta til Grétars að þessu sinni að ræða fiskmarkaði og kvótamál.
Thu, 14 May 2026 - 56min
Podcasts semelhantes a Samstöðin
Geschichte 10 Minuten Alexander und David
Alles Geschichte - Der History-Podcast ARD
The Bomb BBC World Service
Historie českého zločinu Český rozhlas
RADIO MUZYKA CM. TAKOS
The Diary Of A CEO with Steven Bartlett DOAC
Fængsel DR
Drogowskazy Eska ROCK
Forensic Files HLN
Forensic Files II HLN
Stuff You Should Know iHeartPodcasts
True Crime Documentary Justin Kandell Network
Bag om København Københavns Biblioteker
Zloději životů Novinky.cz
Snapped: Women Who Murder Oxygen
Fakty w RMF FM RMF FM
Sceny zbrodni RMF FM
Le grand récit RTL
Verbrechen der Vergangenheit RTL+ / GEO EPOCHE
Tout un monde ‐ RTS Première RTS - Radio Télévision Suisse
Frjálsar hendur RÚV
Í ljósi sögunnar RÚV
Sastre y Maldonado SER Podcast
武田鉄矢・今朝の三枚おろし 文化放送PodcastQR

