Podcasts by Category

Samstöðin

Samstöðin

Samstöðin

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.

1506 - Fimmtudagur 5. nóvember - Reynsluboltar, meðvirkni, áhugaleikhús og Frakkland
0:00 / 0:00
1x
  • 1506 - Fimmtudagur 5. nóvember - Reynsluboltar, meðvirkni, áhugaleikhús og Frakkland

    Fimmtudagur 5. nóvember Reynsluboltar, meðvirkni, áhugaleikhús og Frakkland Reynsluboltar þessa vikuna eru Benedikt Jóhannesson stofnandi Viðreisnar, Óðinn Jónsson fyrrum fréttastjóri RÚV og Þórunn Sigurðardóttir menningarfrömuður. Vandinn vegna Landsvirkjunar, orð Ólafs Ragnars og svar Þorgerðar Katrínar voru á dagskrá, íslenska óperan og fleira. „Áttu erfitt með að biðja um hjálp?“ Þá ertu líklega að glíma við meðvirkni, segja Gyða Dröfn Tryggvadóttir og Anton Ísak Óskarsson, en þau þekkja meðvirkni af eigin raun. Þau segja opinskátt frá eigin reynslu, leiðinni út úr meðvirkni og léttinum við að losna úr fjötrum meðvirkninnar í viðtali við Ásdísi Olsen. Vigdís Grímsdóttir rithöfundur, Rúnar Guðbrandsson leikstjóri og leikkonurnar Guðfinna Gunnarsdóttir og Íris Árný Magnúsdóttir ræða við Gunnar Smára um uppfærslu Leikfélags Selfoss á leikgerð upp úr þessari vinsælu bók. Gérard Lemarquis kennari sem lengi var fréttaritari Le Monde og AFP á Íslandi ræðir um ástandið í Frakklandi við Gunnar Smára.

    Thu, 5 Nov 2026 - 3h 51min
  • 1505 - Sjávarútvegsspjallið - 95. þáttur: Fiskveiðistjórnun á Íslandi

    Fimmtudagur 5. nóvember Sjávarútvegsspjallið - 95. þáttur: Fiskveiðistjórnun á Íslandi Grétar Mar ræðir við Jón Kristjánsson fiskifræðing um störf hans og rannsóknir og baráttu við ríkjandi hugmyndir um fiskveiðar.

    Thu, 5 Nov 2026 - 57min
  • 1504 - Rauða borðið 4. nóv - Trumptíminn, fæðingarorlof, pendúlhreyfingar, tónlist og lagaleg álitaefni

    Miðvikudagur 4. nóvember Trumptíminn, fæðingarorlof, pendúlhreyfingar, tónlist og lagaleg álitaefni Friðjón R. Friðjónsson varaborgarfulltrúi, Magnús Helgason sagnfræðingur og Ólafur Þ. Harðarson prófessor fara yfir kosningaúrslitin í Bandaríkjunum í spjalli við Gunnar Smára í auka-Trumptíma. Marka kosningarnar endalok Trumptímans? Ásdís Olsen ræðir við Karítas Ólafsdóttur móður og sálfræðing en hún neitar að láta stjórnvöld ráða hennar eigin barneignum. Forgangsröðun fjármuna tekur ekki mið af þörfum barna. Þetta segir Grímur Atlason hjá Geðhjálp. Hann og Margrét Valdimarsdóttir doktor í afbrotafræði ræða við Björn Þorláks um muninn á vistun barns og brú yfir fljót. Á föstudag verður frumflutt stórvirkið ANOK eftir Högna Egilsson í Hallgrímskirkju. Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona er í aðalhlutverki í flutningnum og ræðir ásamt tónskáldinu Högna verkið í samtali við Björn Þorláks. Grímur Atlason hjá Geðhjálp og Margrét Valdimarsdóttir, dósent við HÍ, ræða kosningarnar í Bandaríkjunum í gær, áhrif þeirra á heiminn og þar á meðal hér á Íslandi. Björn Þorláks ræðir við þau. Gísli Tryggvason lögmaður fer yfir lagaleg álitaefni tengd fréttum líðandi stundar. Uppsagnir og uppsagnarákvæði, minnkandi samkeppni á matvörumarkaði og Landsvirkjunarmálið eru þar á meðal. Björn Þorláks ræðir við Gísla.

    Wed, 4 Nov 2026 - 4h 35min
  • 1503 - Græna borðið - 27. þáttur: Neysluhegðun

    Miðvikudagur 4. nóvember Græna borðið - 27. þáttur: Neysluhegðun Neysla samfélagsins hefur aldrei verið meiri. Í nóvembermánuði fyllast götur og miðlar af auglýsingum til þess að fá fólk til að neyta meira af hlutum sem það þarf ekki á að halda. Í þætti dagsins förum við djúpt í nægjusemi og neyslu. Freyr Eyjólfsson, verkefnastjóri hjá Sorpu og Ragnhildur Katla Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi Landverndar ræða við Breka Karlsson, formann Neytendasamtakanna og Rögnu Benediktu Garðarsdóttur, prófessor félagssálfræði við Háskóla Íslands.

    Wed, 4 Nov 2026 - 58min
  • 1502 - Rauða borðið 3. nóv - Uppsagnir, norðurslóðir, ópera og lækningar

    Þriðjudagur 3. nóvember Uppsagnir, norðurslóðir, ópera og lækningar Þorvaldur Ingi Jónsson ráðgjafi rýnir í hópuppsagnirnar hjá borginni og gefur aðferðafræðinni laka einkunn. Björn Þorláks heldur áfram umfjöllun Samstöðvarinnar um starfsmannamál og mannúð. Gunnar Smári ræðir við Rasmus Gjedssø Bertelsen prófessor í Tromsø um Grænlandssamning Bandaríkjanna, símtal forsætisráðherra Noregs og forseta Finnlands til Putín og önnur mál tengt norðurslóðum. Bjarni Snæbjörnsson leikstjóri, Íris Björk Gunn­ars­dótt­ir sópran og Bjarni Thor Kristinsson bassi segja Gunnari Smára frá óperunni 27 sem fjallar um lesbísku hjónin Gertrude Stein og Alice B. Toklas. Ásgeir Böðvarsson læknir og íslenskufræðingarnir Solveig Brynja Grétarsdóttir og Jón Torfason segja Gunnari Smára frá Jóni Jónssyni prest og lækni í Árskógi og á Grenjaðarstað, en hann lærði ekki til prests en fékk leyfi til að lækna gegn því að halda dagbækur, sem voru að koma út.

    Tue, 3 Nov 2026 - 4h 23min
Show More Episodes