Filtrar por gênero

Silfrið

Silfrið

RÚV Hlaðvörp

Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.


Þátturinn er aðgengilegur í mynd í spilara RÚV.


Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

49 - Ögurstund í Ameríku
0:00 / 0:00
1x
  • 49 - Ögurstund í Ameríku

    Þingkosningarnar á þriðjudaginn gætu valdið straumhvörfum í bandarískum stjórnmálum. Vinsældir Donald Trumps mælast í sögulegu lágmarki og kjósendur gætu látið frambjóðendur repúblikana gjalda þess, jafnvel í ríkjum sem jafnan hafa verið helstu vígi flokksins. En hvað gerist síðan á kjördag, og hverju breytir það ef demókratar ná meirihluta í báðum deildum þingsins? Og hvaða líkur eru á því að forsetinn virði niðurstöður kosninganna? Gestir Silfursins spá í bandarísku kosningaspilin: Birna Anna Björnsdóttir rithöfundur í New York Björgvin Guðmundsson framkvæmdastjóri almannatengslafyrirtækisins KOM Kolbeinn Stefánsson dósent í félagsfræði við HÍ Sigríður Rut Júlíusdóttir héraðsdómari Svanhildur Þorvaldsdóttir dósent í stjórnmálafræði við HÍ Sigríður Hagalín Björnsdóttir hefur umsjón með þættinum.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Mon, 02 Nov 2026 - 47min
  • 48 - Aðför að landsbyggðinni?

    Hallar á landsbyggðina í verkum ríkisstjórnarinnar? Borið hefur á óánægju á landsbyggðunum með ýmsar ákvarðanir ríkisstjórnarinnar og jafnvel talað um aðför í því sambandi. Sem dæmi eru nefnd breytingar á Loftbrú, hækkun veiði- og kílómetragjalds, náttúru- og vinnviðagjald, sameining lögregluembætta og fleira. Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri í Bláskógabyggð, Dagur B. Eggertsson, varaformaður fjárlaganefndar, Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, og Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði, fara yfir stöðuna í Silfrinu í kvöld.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Tue, 27 Oct 2026 - 45min
  • 47 - Heilbrigð þjóð í hraustum líkama

    Silfrið í kvöld verður helgað heilbrigðismálunum. Landspítalinn sér sig knúinn til að skera niður um tvo milljarða miðað við fjárlagafrumvarpið, heimilislæknar gagnrýna niðurskurð til heilsugæslunnar, og uppi eru nýjar hugmyndir um einkarekstur í heilbrigðiskerfinu. Hvernig er best að skipuleggja og fjármagna það svo það þjóni þörfum þjóðarinnar? Gestir þáttarins eru Alma Möller heilbrigðisráðherra, Dagný Jónsdóttir framkvæmdastjóri Orkuhússins, Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans og Tinna Laufey Ásgeirsdóttir prófessor í heilsuhagfræði við Háskóla Íslands. Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Mon, 19 Oct 2026 - 46min
  • 46 - Samtal við forsetann

    Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, er gestur Silfursins. Um helgina stóð hún fyrir viðburðinum Tölum saman, þar sem ungt fólk ræddi hvernig samfélag það sér fyrir sér og hvernig við nýtum gervigreind til góðs. Þá átti hún fund með alþjóðlegum leiðtogum í Höfða í gær, í tilefni af því að 40 ár voru liðin frá Höfðafundinum. Í síðari hluta þáttar erum við á vettvangi dagsins með þeim Hallgrími Helgasyni, rithöfundi, Ásthildi Sturludóttur, fyrrverandi bæjarstjóra, og Höllu Hrund Logadóttur, alþingismanni.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Mon, 12 Oct 2026 - 46min
  • 45 - Atvinnuleysi á tímum gervigreindar og Anne Applebaum

    Meira en 180 manns misstu vinnuna í hópuppsögnum í september. Stór hluti þeirra eru forritarar og tölvunarfræðingar; auk þess sem bankastarfsmenn og opinberir starfsmenn, t.d. lögfræðingar hafa verið að missa vinnuna í smærri uppsagnarlotum. Er áhrifa fjórðu iðnbyltingarinnar, gervigreindarbyltingarinnar, farið að gæta á íslenskum vinnumarkaði? Hvernig er best að bregðast við þeim nýju kröfum sem gervigreindin gerir á vinnustöðum landsins? Gestir þáttarins eru Ásta Ásgeirsdóttir deildarstjóri greiningardeildar Vinnumálastofnunar, Hjálmar Gíslason formaður starfshóps um nálgun stjórnvalda í málefnum gervigreindar, Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur Visku stéttarfélags og Þorsteinn Víglundsson formaður Samtaka iðnaðarins og fyrrverandi félagsmálaráðherra. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, heimsækir Ísland í dag. Í seinni hluta þáttarins verður rætt við einn þekktasta stjórnmálagreinanda samtímans, bandaríska sagnfræðinginn og blaðamanninn Anne Applebaum, um breytta utanríkismálastefnu Bandaríkjanna, uppgang og aukið samstarf einræðisstjórna í heiminum, og stöðu Íslands.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Mon, 05 Oct 2026 - 43min
Mostrar mais episódios