Podcasts by Category
Silfrið

Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Þátturinn er aðgengilegur í mynd í spilara RÚV.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
- 49 - Ögurstund í Ameríku
Þingkosningarnar á þriðjudaginn gætu valdið straumhvörfum í bandarískum stjórnmálum. Vinsældir Donald Trumps mælast í sögulegu lágmarki og kjósendur gætu látið frambjóðendur repúblikana gjalda þess, jafnvel í ríkjum sem jafnan hafa verið helstu vígi flokksins. En hvað gerist síðan á kjördag, og hverju breytir það ef demókratar ná meirihluta í báðum deildum þingsins? Og hvaða líkur eru á því að forsetinn virði niðurstöður kosninganna? Gestir Silfursins spá í bandarísku kosningaspilin: Birna Anna Björnsdóttir rithöfundur í New York Björgvin Guðmundsson framkvæmdastjóri almannatengslafyrirtækisins KOM Kolbeinn Stefánsson dósent í félagsfræði við HÍ Sigríður Rut Júlíusdóttir héraðsdómari Svanhildur Þorvaldsdóttir dósent í stjórnmálafræði við HÍ Sigríður Hagalín Björnsdóttir hefur umsjón með þættinum.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Mon, 02 Nov 2026 - 47min - 48 - Aðför að landsbyggðinni?
Hallar á landsbyggðina í verkum ríkisstjórnarinnar? Borið hefur á óánægju á landsbyggðunum með ýmsar ákvarðanir ríkisstjórnarinnar og jafnvel talað um aðför í því sambandi. Sem dæmi eru nefnd breytingar á Loftbrú, hækkun veiði- og kílómetragjalds, náttúru- og vinnviðagjald, sameining lögregluembætta og fleira. Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri í Bláskógabyggð, Dagur B. Eggertsson, varaformaður fjárlaganefndar, Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, og Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði, fara yfir stöðuna í Silfrinu í kvöld.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 27 Oct 2026 - 45min - 47 - Heilbrigð þjóð í hraustum líkama
Silfrið í kvöld verður helgað heilbrigðismálunum. Landspítalinn sér sig knúinn til að skera niður um tvo milljarða miðað við fjárlagafrumvarpið, heimilislæknar gagnrýna niðurskurð til heilsugæslunnar, og uppi eru nýjar hugmyndir um einkarekstur í heilbrigðiskerfinu. Hvernig er best að skipuleggja og fjármagna það svo það þjóni þörfum þjóðarinnar? Gestir þáttarins eru Alma Möller heilbrigðisráðherra, Dagný Jónsdóttir framkvæmdastjóri Orkuhússins, Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans og Tinna Laufey Ásgeirsdóttir prófessor í heilsuhagfræði við Háskóla Íslands. Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Mon, 19 Oct 2026 - 46min - 46 - Samtal við forsetann
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, er gestur Silfursins. Um helgina stóð hún fyrir viðburðinum Tölum saman, þar sem ungt fólk ræddi hvernig samfélag það sér fyrir sér og hvernig við nýtum gervigreind til góðs. Þá átti hún fund með alþjóðlegum leiðtogum í Höfða í gær, í tilefni af því að 40 ár voru liðin frá Höfðafundinum. Í síðari hluta þáttar erum við á vettvangi dagsins með þeim Hallgrími Helgasyni, rithöfundi, Ásthildi Sturludóttur, fyrrverandi bæjarstjóra, og Höllu Hrund Logadóttur, alþingismanni.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Mon, 12 Oct 2026 - 46min - 45 - Atvinnuleysi á tímum gervigreindar og Anne Applebaum
Meira en 180 manns misstu vinnuna í hópuppsögnum í september. Stór hluti þeirra eru forritarar og tölvunarfræðingar; auk þess sem bankastarfsmenn og opinberir starfsmenn, t.d. lögfræðingar hafa verið að missa vinnuna í smærri uppsagnarlotum. Er áhrifa fjórðu iðnbyltingarinnar, gervigreindarbyltingarinnar, farið að gæta á íslenskum vinnumarkaði? Hvernig er best að bregðast við þeim nýju kröfum sem gervigreindin gerir á vinnustöðum landsins? Gestir þáttarins eru Ásta Ásgeirsdóttir deildarstjóri greiningardeildar Vinnumálastofnunar, Hjálmar Gíslason formaður starfshóps um nálgun stjórnvalda í málefnum gervigreindar, Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur Visku stéttarfélags og Þorsteinn Víglundsson formaður Samtaka iðnaðarins og fyrrverandi félagsmálaráðherra. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, heimsækir Ísland í dag. Í seinni hluta þáttarins verður rætt við einn þekktasta stjórnmálagreinanda samtímans, bandaríska sagnfræðinginn og blaðamanninn Anne Applebaum, um breytta utanríkismálastefnu Bandaríkjanna, uppgang og aukið samstarf einræðisstjórna í heiminum, og stöðu Íslands.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Mon, 05 Oct 2026 - 43min - 44 - Siðferðislegt hugleysi og heimurinn í dag
Ræða Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna vakti heimsathygli um helgina, þar sem hún sneri ásökunum Benjamíns Netanyahus um siðferðislegt hugleysi upp á hann sjálfan, og gagnrýndi þá þjóðarleiðtoga sem stunda stríðsrekstur og brot á alþjóðalögum. Silfrið verður helgað umræðu um framtíð alþjóðakerfisins, friðsamlegs samstarfs þjóða heims og stöðu Íslands í heiminum. Rætt verður við Þorgerði Katrínu, auk þess sem Friðjón Friðjónsson almannatengill, Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur, Helgi Steinar Gunnlaugsson blaðamaður og Jón Ólafsson heimspekingur ræða stöðuna í alþjóðamálum. Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Mon, 28 Sep 2026 - 49min - 43 - Trumpískar vindmyllur og tjóðruð gervigreind
Eftir öryggisbrest hjá OpenAI í sumar hafa forkólfar nokkurra stærstu tæknifyrirtækja heims kallað eftir því að hægt verði á þróuninni. Á sama tíma eru fjárfestingar í gervigreind og orkuöflun fyrir hana orðnar mikilvægur drifkraftur hagvaxtar í Bandaríkjunum og Kína. Hvaða áhrif hefði það á heimsbúskapinn - og Ísland - ef hægt yrði á kapphlaupinu? Og hversu mikla orkuöflun á kostnað náttúruauðlinda er hægt að réttlæta? Andri Snær Magnason rithöfundur, Þóra Arnórsdóttir, forstöðumaður samskipta hjá Landsvirkjun, og Björgvin Ingi Ólafsson, sviðsstjóri hjá Deloitte, fóru yfir stöðuna.
Bjartsýni var ríkjandi á Vesturlöndum um aldamótin og útbreidd trú á sigurför frjálslynds lýðræðis, kapítalisma og hnattvæðingar. Fáir hefðu spáð að aldarfjórðungi síðar einkenndist heimsmyndin af átökum, uppgangi þjóðernishyggju og alþjóðakerfi sem ætti undir högg að sækja. Hvað gerðist – og hvert stefnir heimurinn? Guðmundur Jónsson, sagnfræðingur og prófessor emeritus, fer yfir sviðið í síðari hluta þáttar.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Mon, 21 Sep 2026 - 45min - 42 - Þessi þungu högg - sleggjan og hallalaus fjárlög
Fjárlagafrumvarpið og þingmálaskrá vetrarins verða efst á baugi í Silfrinu í kvöld. Eru hallalaus fjárlög lykillinn að lægri verðbólgu eða eru skatta- og gjaldskrárhækkanir olía á eldinn?
Þingmennirnir Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Hildur Sverrisdóttir, Sigurjón Þórðarson og Þórarinn Ingi Pétursson fara yfir stöðuna
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Mon, 14 Sep 2026 - 47min - 41 - Ísland - hvað nú? Verkefnalistinn eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna
Þjóðin hefur svarað spurningunni um það hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við ESB. Svarið var neitandi, en þó standa eftir margar spurningar sem þarf að svara á næstu misserum. Silfrið verður helgað þeim verkefnum sem framundan eru í hagkerfinu og samskiptum Íslands við umheiminn, m.a. í gegnum EES-samninginn og Atlantshafsbandalagið.
Gestir verða Benedikt Gíslason, forstjóri Arion banka, Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, Björn Bjarnason, fv. dómsmálaráðherra, Sigríður Mogensen, sviðstjóri hugverka og iðnaðar hjá Samtökum iðnaðarins, Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB og Stefán Pálsson sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi Vinstrisins.
Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 08 Sep 2026 - 58min - 40 - Formenn gera upp þjóðaratkvæðagreiðslu
Meirihluti kjósenda hafnaði í gær að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Formenn stjórnmálaflokka á Alþingi gera þjóðaratkvæðagreiðsluna upp í Silfrinu.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 01 Sep 2026 - 56min - 39 - Kjör almennings og viðsjár í veröldinni
Kjósendur velta fyrir sér kostum og göllum þess að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið, hver áhrifin gætu orðið á kjör almennings í landinu, lífsgæði, verðlag og húsnæðismál. Þá bárust þær fréttir í vikunni að yfirhershöfðingi NATO vilji fast herlið á Íslandi.
Gestir þáttarins eru Brynhildur Pétursdóttir framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna, Helga Rósa Másdóttir formaður Félags hjúkrunarfræðinga, hagfræðingarnir Gauti B. Eggertsson og Jón Helgi Egilsson, og Sóley Kaldal sérfræðingur í alþjóðlegum öryggismálum.
Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 01 Sep 2026 - 52min - 38 - Atvinnulífið, fullveldið og Evrópusambandið
Fólkið og fyrirtækin í landinu velta fyrir sér kostum og göllum þess að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. En önnur verkefni bíða líka; forsendur kjarasamninga eru brostnar og óvíst hvernig megi berja í brestina svo samningarnir haldi. Þjóðaratkvæðagreiðslan hefur líka vakið þjóðina til umhugsunar um fullveldi sitt og sambandið við umheiminn.
Gestir þáttarins eru Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti Íslands og sagnfræðingur, Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims hf., Halla Gunnarsdóttir formaður VR stéttarfélags og Sveinn Sölvason forstjóri Emblu Medical/Össurar.
Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 01 Sep 2026 - 1h 03min - 37 - Formenn takast á um aðildarviðræður
Silfrið hefur göngu sína á ný að loknu sumarleyfi. Það styttist í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Formenn stjórnmálaflokka á Alþingi - Kristrún Frostadóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Inga Sæland, Guðrún Hafsteinsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Lilja Alfreðsdóttir - mætast í beinni útsendingu.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 01 Sep 2026 - 1h 00min - 36 - 36. þáttur: Um hvað yrði samið í nýjum aðildarviðræðum?
Hvað gerist ef þjóðin greiðir atkvæði með því að hefja aftur aðildarviðræður við Evrópusambandið 29. ágúst?
Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra og aðalsamningamaður Íslands í aðildarviðræðunum 2009-2013 segir frá samningaferlinu og því ferli sem tekur við ákveði Íslendingar að ganga aftur að samningaborðinu.
Í síðari hluta þáttarins koma Gylfi Magnússon hagfræðiprófessor við HÍ, Margrét Einarsdóttir prófessor í Evrópurétti við HR, Kolbeinn Árnason ráðuneytisstjóri atvinnuvegaráðuneytisins og Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur og ræða helstu málefni sem þyrfti að semja um í aðildarviðræðunum.
Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 09 Jun 2026 - 58min - 35 - 35. þáttur: Hvað myndi það þýða fyrir Ísland að ganga í Evrópusambandið
Í þætti kvöldsins verður rætt um hvað það myndi þýða fyrir Ísland að ganga í Evrópusambandið.
Gestir þáttarins:
Dagur B. Eggertsson þingmaður Samfylkingarinnar
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra úr Viðreisn
Lilja D. Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Fri, 05 Jun 2026 - 50min - 34 - 34. þáttur: Örmagna oddvitar gera upp kosningar
Silfrið verður á sunnudagskvöldi í þessari viku vegna sveitarstjórnarkosninga.
Oddvitar þeirra sjö framboða sem náðu kjöri í Reykjavík fara yfir kosningaúrslitin og ræða hugsanlegar meirihlutamyndanir.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Mon, 18 May 2026 - 57min - 33 - 33. þáttur: Um hvað er kosið? Sveitarstjórnarmálin í fókus
Þjóðin gengur til kosninga eftir fimm daga, en um hvað er kosið? Reyndir sveitarstjórnarjaxlar spá í kosningaspilin og skiptast á reynslusögum; þau Birkir Jón Jónsson, Grímur Atlason, Heiða Kristín Helgadóttir og Ragnheiður Ríkharðsdóttir.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir hefur umsjón með þættinum.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 12 May 2026 - 45min - 32 - 32. þáttur: Kosningabaráttan á fullu
Í fyrri hlutanum rýnum við sveitarstjórnarkosningarnar sem fara fram eftir tæpar tvær vikur.
Gestir:
Sunna Sæmundsdóttir fréttastjóri á fréttastofu Sýnar
Eva Marín Hlynsdóttir prófessor í stjórnmálafræði
Magnús Geir Eyjólfsson þingfréttamaður RÚV
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir ráðgjafi
Í seinni hlutanum er rætt við blaðamanninn og rithöfundinn Evan Osnos um stöðuna í bandarískum stjórnmálum.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 05 May 2026 - 49min - 31 - 31. þáttur: Umhverfisumræðan sem hvarf
Um 2500 manns eru talin hafa tekið þátt í Grænu göngunni 2026 á sumardaginn fyrsta. Stjórnvöld voru harðlega gagnrýnd fyrir áherslur sínar í umhverfis- og orkumálum, og fyrir að standa ekki vörð um íslenska náttúru. Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra mætir í Silfrið ásamt Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur formanni Landverndar, Höllu Hrund Logadóttur þingmanni Framsóknarflokksins og fyrrverandi orkumálastjóra, og Finni Beck framkvæmdastjóra Samorku.
Umsjón hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 28 Apr 2026 - 46min - 30 - 30. þáttur: Dökk mynd dregin upp af sjávarútvegi
Gestir Silfursins eru Eyrún Magnúsdóttir, ritstjóri Gímaldsins, Gréta María Grétarsdóttir, verkfræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri Prís, Halldór Halldórsson, forstjóri Íslenska kalkþörungafélagsins og Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi formaður Vg.
Umfjöllun Berlinske um íslenskan sjávarútveg vakti mikla athygli um helgina. Þar dregin upp dökk mynd af greininni og pólitískum ítökum útgerðarinnar. Það styttist í sveitastjórnarkosningar, en ekki er örgrant um að þær hafi fallið í skuggann af áformum um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB í sumarlok.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 21 Apr 2026 - 45min - 29 - 29. þáttur: Forsætisráðherra ræðir efnahagsmálin
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er í viðtali í fyrri hluta þáttarins um stöðu efnahagsmála.
Í seinni hlutanum höldum við áfram að ræða við oddvita framboða í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík.
Gestir:
Silja Sóley Birgisdóttir, Sósíalistaflokkur Íslands
Ingimar Þór Friðriksson, Góðan daginn framboðið
Sigfús Aðalsteinsson, Borgin okkar.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 14 Apr 2026 - 46min - 28 - 28. þáttur: Bjarni Benediktsson kallar eftir þjóðarsátt
Bjarni Benediktsson, fyrrverandi forsætis- og fjármálaráðherra, er nýráðinn framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann fer yfir stöðuna í efnahagsmálum, forsendur kjarasamninga, og hvað þurfi að gerast að hans mati til að kveða niður verðbólgu og stýrivexti.
Efnahagsmálin eru áfram til umræðu í vettvangi dagsins. Gestir eru Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar, Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri ferðaþjónustunnar Katla DMI, og Guðmundur Steingrímsson, auðlinda og umhverfisfræðingur.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Wed, 01 Apr 2026 - 46min - 27 - 27. þáttur: Vextir hækka á ný og oddvitar ræða borgarmálin
Seðlabankinn hefur hækkað vexti í fyrsta sinn í tvö og hálft ár. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri kemur til að ræða ákvörðunina og hvert stefnir í efnahagsmálunum. Síðari hluti þáttarins er helgaður borgarpólitíkinni með oddvitunum Ara Edwald frá Miðflokki, Einari Þorsteinsson frá Framsóknarflokki, Kristni Jóni Ólafssyni Pírata og Sönnu Magdalenu Mörtudóttur frá Vinstrinu. Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir, útsendingu stjórnar Helgi Jóhannesson.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 24 Mar 2026 - 55min - 26 - 26. þáttur: Oddvitar í borgarstjórnarkosningum og uppgangur atNorth á Íslandi
Í dag eru tveir mánuðir í sveitarstjórnarkosningar og í þætti kvöldsins er rætt við oddvita þriggja framboða í Reykjavík.
Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar
Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins
Pétur H. Marteinsson oddviti Samfylkingarinnar
Í seinni hluta þáttarins er rætt við Eyjólf Magnús Kristinsson forstjóra atNorth. Fyrirtækið rekur gagnaver hér á landi og á Norðurlöndunum og var nýlega selt fyrir 485 milljarða króna.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Thu, 19 Mar 2026 - 44min - 25 - 25. þáttur: Stefnt að kosningu um ESB í sumar
Ríkisstjórnin stefnir á að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB í sumarlok. Reikna má með að Evrópumál verði fyrirferðarmikil þangað til en hart var tekist um þau á Alþingi í dag.
Fulltrúar allra flokka á þingi koma í Silfrið að þessu sinni: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Guðrún Hafsteinsdóttir, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Guðmundur Ari Sigurjónsson og Lilja Dögg Alfreðsdóttir.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 10 Mar 2026 - 54min - 24 - 24.þáttur: Stríð í Miðausturlöndum
Stríð er hafið í Miðausturlöndum eftir árás Bandaríkjanna og Ísraels á Íran. Hverjar eru ástæðurnar, og hverjar gætu afleiðingarnar orðið?
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 03 Mar 2026 - 45min - 23 - 23. þáttur: Gervigreind þróast á áður óþekktum hraða
Þróun gervigreindar verður sífellt hraðari og áhrif hennar á samfélagið og vinnumarkaðinn að verða greinilegri. Vitum við hvert stefnir og erum við tilbúin?
Gestir:
Andri Snær Magnason rithöfundur
Anna Sigríður Islind, prófessor í tölvunarfræði við HR
Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms.
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Wed, 25 Feb 2026 - 44min - 22 - 22. þáttur: Tvöfaldi lásinn og staðan í efnahagsmálum
Silfrið er helgað efnahagsmálum í kvöld. Gestir okkar eru Gestir þáttarins eru Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, Ásta Fjeldsted, forstjóri Festi, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur BSRB, og Katrín Ólafsdóttir, dósent í hagfræði við HR.
Tekist er á um tengingu almannatrygginga við launavísitölu á þingi, Það ætlar að reynast erfitt að koma verðbólgunni niður og stýrivextir eru háir og. Almenningur situr uppi með hærri lán og vöruverð, en bankarnir og risar á matvörumarkaði mala gull. Festi sem á Krónuna hagnaðist til að mynda um 6,2 milljarða í fyrra, mun meira en spáð hafði verið. Við förum yfir þessi mál og fleiri.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 17 Feb 2026 - 45min - 21 - 21. þáttur: Epstein-skjölin og framtíð Framsóknarflokksins
Epstein-skjölin hafa afhjúpað tengsl auðjöfra, stjórnmálamanna og frægðarfólks víða um heim við bandaríska kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein, og margir valdsmenn riða til falls, einkum í Bretlandi og Noregi. Hversu víðfeðm voru tengslin, og ná þau alla leið til Íslands? Hulda Þórisdóttir stjórnmálafræðiprófessor, Herdís Sigurgrímsdóttir stjórnmálafræðingur og Jón Trausti Reynisson blaðamaður ræða um Epstein-skjölin í Silfrinu í kvöld. Í síðari hluta þáttarins er rætt við Ingibjörgu Isaksen og Lilju Alfreðsdóttur, sem báðar sækjast eftir því að verða formaður Framsóknarflokksins.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 10 Feb 2026 - 49min - 20 - 20. þáttur: Kristrún Frostadóttir: Geigaði sleggjan? Og hvert stefnir í Evrópumálum?
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ræðir verðbólguskot og blikur á lofti í efnahagsmálum.
Síðari hluti þáttarins er helgaður umræðu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið. Ríkisstjórnin ætlar að leggja fram þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðnanna, en hlé var gert á þeim árið 2013. Ragnhildur Helgadóttir lögfræðingur og rektor HR, sem átti sæti í samninganefnd Íslands, og Sigurður Kári Kristjánsson, lögfræðingur og fyrrverandi alþingismaður, rifja upp gang viðræðnanna og spá í spilin um framhaldið.
Umsjón hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir, útsendingu stjórnar Þórunn Guðjónsdóttir.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 03 Feb 2026 - 44min - 19 - 19. þáttur: Aðildarviðræður að ESB á dagskrá
Dagur B. Eggertsson, Jens Garðar Helgason, María Rut Kristinsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson eru gestir Silfursins.
Það eru blikur á lofti í efnahagsmálum, atvinnuleysi hefur aukist, það er spáð hækkandi verðbólgu, verkalýðshreyfingin varar við að forsendur kjarasamninga gætu brostið í hausti og órói í alþjóðamálum bætir gráu ofan á svart. Forsætisráðherra segir að nú sé réttur tími til að huga að aðildarviðræðum við ESB á ný. Stjórnarandstaðan telur það vera kolranga forgangsröðun.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 27 Jan 2026 - 46min - 18 - 18. þáttur: Harðnandi deila um Grænland
Deilan um Grænland, samskipti Evrópu og Bandaríkjanna og hagsmunir Íslands eru til umræðu í þætti kvöldsins.
Í fyrri hluta þáttarins er viðtal við Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta Íslands og stjórnarformann Hringborðs norðurslóða.
Í seinni hlutanum koma þingmennirnir Diljá Mist Einarsdóttir, Sigríður Á. Andersen, Dagbjört Hákonardóttir og Pawel Bartoszek í pallborð.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 20 Jan 2026 - 44min - 17 - 17. þáttur: Prófkjörsslagur í Samfylkingunni og nýr ráðherra situr fyrir svörum
Í fyrri hluta þáttarins koma Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri í Reykjavík og Pétur H. Marteinsson rekstrarstjóri. Þau berjast um oddvitasætið í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Í seinni hlutanum er viðtal við Ragnar Þór Ingólfsson sem er glænýr félags- og húsnæðismálaráðherra.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 13 Jan 2026 - 44min - 16 - 16. þáttur: Varnir Íslands og Venesúela
Aðgerðir Bandaríkjastjórnar í Venesúela hafa valdið uppnámi, þótt viðbrögð flestra ríkja hafi einkennst af varkárni. Nú óttast margir að Trump auki ásælni sína á Grænlandi. Hvar stendur Ísland í þessum veruleika, og hvernig gæti varnarsamningur okkar við Bandaríkin virkað við slíkar aðstæður?
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 06 Jan 2026 - 44min - 15 - 15. þáttur: Formenn flokkanna pústa í hálfleik
Þetta er síðasta Silfur fyrir jól og þingið er á lokametrunum fyrir þinghlé. Formenn flokkanna á Alþingi koma og fara yfir stöðuna eins og hún horfir við þeim á miðjum þingvetri.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 16 Dec 2025 - 56min - 14 - 14. þáttur: Staða Íslands í nýrri heimsmynd og umdeild samgönguáætlun
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ræðir stöðu Íslands í breyttri heimsmynd eftir að Hvíta húsið birti nýja þjóðaröryggisstefnu fyrir helgi. Í síðari hluta þáttarins koma þau Heimir Már Pétursson framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Hildur Þórisdóttir bæjarfulltrúi í Múlaþingi og Stefán Pálsson sagnfræðingur til að ræða stjórnmálaumræðu undanfarinna daga, meðal annars um samgöngumálin.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Thu, 11 Dec 2025 - 45min - 13 - 13.þáttur: Fullveldi Íslands
Mál sem varða fullveldi Íslands hafa verið nokkuð til umræðu að undanförnu. Evrópusamvinna Íslendinga, varnarsamstarf, stafrænt fullveldi og tungumálið er meðal þess. Leggja allir sama skilning í hugtakið fullveldi? Halldór Benjamín Þorbergsson stjórnarformaður Almannaróms, Ragnheiður Kristjánsdóttir prófessor í sagnfræði við HÍ, Ragnhildur Helgadóttir rektor HR og Lóa Björk Björnsdóttir dagskrárgerðarmaður á Rás 1 eru gestir.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 02 Dec 2025 - 42min - 12 - 12. þáttur: Kólnandi hagkerfi og hlýnandi jörð
Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna COP30, var haldin í vikunni sem leið í fjarveru Bandaríkjanna. Í lokayfirlýsingu hennar var samþykkt að ríkari þjóðir myndu þrefalda fjármagn til að aðstoða þjóðum sem hafa orðið verst fyrir barðinu á hlýnun jarðar. Engin samstaða náðist hins vegar um að draga úr jarðefnaeldsneyti. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis- orku- og loftslagsráðherra, er gestur Silfursins.
Á vettvangi dagsins rýnum við í hið pólitíska landslag í ljósi kólnandi hagkerfis með þeim Andreu Sigurðardóttur, blaðamanni á Morgunblaðinu, Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur blaðamanni og Þórhalli Gunnarssyni, almannatengli.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 25 Nov 2025 - 47min - 11 - 11. þáttur: Inga Sæland og breytt landslag í efnahags- og Evrópumálum
Það harðnar á dalnum samkvæmt nýrri þjóðhagsspá og Ísland kann að standa úti í kuldanum gagnvart Evrópusambandinu. Hvaða áhrif hefur þetta á kjör landsmanna og hvernig eiga stjórnvöld að bregðast við? Þingmennirnir Bergþór Ólason (M), Dagur B. Eggertsson (S) og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (D) ræða málin. Þá verður Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra og formaður Flokks fólksins, í viðtali.
Umsjón hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 18 Nov 2025 - 44min - 10 - 10. þáttur: Húsnæðismarkaður í flækju
Hvernig greiðum við úr óvissunni á íbúðalánamarkaði? Hvaða gagn gerir fyrsti húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar sem var kynntur í síðustu viku? Svo eru það áfrom Reykjavíkurborgar um að bjóða einkaaðilum að fjárfesta í byggingu grunninnviða í boðuðu hverfi á Höllum í Úlfarsárdal.
Gestir eru Dóra Björt Guðjónsdóttir formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur, Már Wolfgang Mixa dósent við viðskiptadeild HÍ, Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og Halla Gunnarsdóttir formaður VR.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 04 Nov 2025 - 45min - 9 - 9. þáttur: Bylmingshögg á atvinnulífið og lánamarkaður í klemmu
Bilun í verksmiðju Norðuráls kemur líklega til með að valda búsifjum. Óvíst er hversu mikil áhrifin verða fyrir þjóðarbúið, sem hefur þegar sýnt merki þess að vera farið að kólna. Þá eru húsnæðislánamarkaður í uppnámi: í kjölfar dóms Hæstaréttar um ólöglega skilmála á óverðtryggðum lánum hafa bankarnir þrengt lánakjör sín og Landsbankinn ætlar að hætta að veita verðtryggð lán nema fyrir fyrstu kaupendur. Við förum yfir stöðuna með Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formanni Sjálfstæðisflokksins, Ragnari Þór Ingólfssyni, þingmanni Flokki fólksins, Lilju Dögg Alfreðsdóttur, varaformanni Framsóknarflokksins, og Kristjáni Þórði Snæbjarnarsyni, þingmanni Samfylkingarinnar.
Í seinni hluta þáttar ræðum við við Carstein Staur, formann Þróunarsamvinnunefndar OECD, um breytt landslag í þróunarsamvinnu eftir stórfelldan niðurskurð stórra framlagsríkja til opinberrar þróunaraðastoðar það sem af er ári.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 28 Oct 2025 - 45min - 8 - 8. þáttur: Sundrar Sundabraut eða sameinar?
Silfrið heldur sig á innlendum vettvangi þessa vikuna. Verkfallsaðgerðir flugumferðarstjóra setja samgöngur úr skorðum, viðskiptabankar gera hlé á veitingu verðtryggðra lána meðan þeir ná áttum eftir vaxtadóm Hæstaréttar, og Sigurður Ingi Jóhannsson hefur tilkynnt að hann gefi ekki kost á sér aftur sem formaður Framsóknarflokksins. Við förum yfir þessi mál og fleiri með þingmönnunum Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur, Ingibjörgu Isaksen, Ólafi Adolfssyni og Snorra Másssyni.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 21 Oct 2025 - 46min - 7 - 7. þáttur: Rússneskur stjórnarandstæðingur og hvað svo þegar vopnahlé er komið á Gaza?
Við ræðum við Vladirmir Kara-Murza, sem er rússneskur stjórnarandstæðingur. Hann hefur lifað af tvær eitranir og fékk 25 ára fangelsisdóm í öryggisfangelsi í Síberíu fyrir að gagnrýna innrás Rússa í Úkraínu. Hann fékk frelsi í fangaskiptum í fyrra.
Þá eru margar spurningar um framhaldið þegar vopnahlé er komið á, á Gaza. Til að ræða það mál koma Hallgrímur Indriðason fréttamaður, Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur og Birna Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri Unicef.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 14 Oct 2025 - 45min - 6 - 6. þáttur: Kólnandi spá í efnahagskortunum, Trump á yfirsnúningi
Við byrjum á vettvangi dagsins. Ýmis teikn benda til að hagkerfið sé að kólna, vinnumálastofnun var tilkynnt um fimm hópuppsagnir í september, fyrir utan gjaldþrot Play. Þá hefur ríkisstjórnin boðað sérstaka atvinnustefnu og lætur í skína að nú sé liðinn sá tími að hagvöxtur sé fyrst of fremst borinn uppi af innfluttu vinnuafli.
Gestir Silfursins eru Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins og Einar Freyr Elínarson, bæjarstjóri í Mýrdalshreppi.
Í seinni hluta þáttar ætlum við að ræða við mann að nafni John Fund, þrautreyndan blaðamann frá Bandaríkjunum sem skrifað hefur meðal annars fyrir Wall Street Journal en er nú einn af ritstjórum National Review, tímariti Íhaldsmanna þar í landi. Hann hefur þekkt og skrifað um Donald Trump Bandaríkjaforseta í meira en 40 ár - og segir að hann sé kominn á yfirsnúning, vitandi að tími hans sé af skornum skammti.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 07 Oct 2025 - 45min - 5 - 5. þáttur: Borgarstjóri situr fyrir svörum og fall Play
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri er í viðtali um ýmis mál sem hefur verið deilt um í borginni að undanförnu. Þá ræða Hörður Ægisson ritstjóri Innherja, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir framkvæmdastjóri íslenska ferðaklasans og Jón Karl Ólafsson fyrrverandi forstjóri Icelandair um fall Play.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 30 Sep 2025 - 45min - 4 - 4. þáttur: Gervigreindarkapphlaupið - möguleikar og ógnir
Gervigreind er farin að setja mark sitt á samfélagið svo um munar. Hún greinir fyrir okkur gögn, velur fyrir okkur tónlist - eða semur hana ef því er að skipta - og tekur jafnvel ákvarðanir sem áður voru á mannanna höndum. En tilvist hennar vekur líka stór og mikil álitamál, bæði praktísk og siðferðisleg um orkuöflun, atvinnulíf, jöfnuð, lýðræði og jafnvel sjálfa mennskuna.
Gestir Silfursins eru Henry Alexander Henryson heimspekingur, Hjálmar Gíslason, framkvæmdastjóri Grid og tækniáhugamaður, og Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hugverka hjá Samtökum iðnaðarins, og Errol Norlum, stofnandi The AI Framework.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 23 Sep 2025 - 44min - 3 - 3. þáttur: Menningarstríðið blossar upp
Við ætlum að tala um menningarstríðið svonefnda, sem hefur blossað rækilega upp í kjölfar morðsins á bandaríska áhrifavaldinum Charlie Kirk fyrir helgi, auk þess sem fjölmenn mótmæli gegn flóttafólki voru í Bretlandi um helgina.
Við freistum þess að henda reiður á stöðu mála með þeim Ingvari Smára Birgissyni lögmanni, Maríu Rut Kristinsdóttur alþingismanni, Kolbeini Stefánsyni, dósent í félagsráðgjöf, og Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, framkvæmdastjóra Courage International og fyrrverandi þingmanni Pírata.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 16 Sep 2025 - 46min - 2 - 2. þáttur: Þvingunaraðgerðir gegn Ísrael og fjárlög næsta árs
Þingmennirnir Sigríður Á. Andersen, Sigurður Ingi Jóhannsson, Pawel Bartoszek og Guðmundur Ari Sigurjónsson ræða þvingunaraðgerðir stjórnvalda gegn Ísrael og fjárlagafrumvarp næsta árs.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 09 Sep 2025 - 45min - 1 - 1. þáttur: Mótmæli í Háskóla Íslands og verkefni vetrarins
Silja Bára Ómarsdóttir rektor Háskóla Íslands ræðir um atvik í síðasta mánuði, þar sem hætt var við fyrirlestur ísraelsks fræðimanns vegna mótmæla gegn framferði Ísraelsmanna á Gaza.
Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri Akureyrar, Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðingur og Gylfi Magnússon hagfræðingur ræða verkefni vetrarins framundan; sveitarstjórnarmálin, efnahagsmálin og ókyrrð og væringar á alþjóðavettvangi.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tue, 02 Sep 2025 - 43min
Podcasts similar to Silfrið
Barangay Love Stories Barangay LS 97.1 Manila | GMA Network Inc.
Good Bad Billionaire BBC World Service
Cyprian Majcher Cyprian Majcher
Die Nachrichten Deutschlandfunk
Orlofið Hafdís Arna Sigurðardóttir og Jasmín Guðrún Abu Libdeh
Podcast Wojenne Historie Historia II wojny światowej
Forensic Files HLN
Nowenna pompejańska. Świadectwa https://pompejanska.krolowa.pl/
الشيخ أحمد العجمي islami
True Crime Documentary Justin Kandell Network
WojewódzkiKędzierski Kuba Wojewódzki, Piotr Kędzierski
Læknavarpið Læknablaðið
بودكاست عقلية Moneim
Snapped: Women Who Murder Oxygen
DUDEK o polityce prof. Antoni Dudek i Super Exspress
Przemek Górczyk Podcast Przemek Górczyk
Sceny zbrodni RMF FM
Frjálsar hendur RÚV
Í ljósi sögunnar RÚV
Skuggavaldið skuggavaldid
Money News Tapt Media
Nauka To Lubię Tomasz Rożek
Żurnalista - Rozmowy bez kompromisów zurnalistapl
العلم والإيمان - د. مصطفى محمود علم ينتفع يه