Podcasts by Category
Rauða borðið

- 1485 - Fimmtudagur 5. nóvember - Reynsluboltar, meðvirkni, áhugaleikhús og Frakkland
Fimmtudagur 5. nóvember Reynsluboltar, meðvirkni, áhugaleikhús og Frakkland Reynsluboltar þessa vikuna eru Benedikt Jóhannesson stofnandi Viðreisnar, Óðinn Jónsson fyrrum fréttastjóri RÚV og Þórunn Sigurðardóttir menningarfrömuður. Vandinn vegna Landsvirkjunar, orð Ólafs Ragnars og svar Þorgerðar Katrínar voru á dagskrá, íslenska óperan og fleira. „Áttu erfitt með að biðja um hjálp?“ Þá ertu líklega að glíma við meðvirkni, segja Gyða Dröfn Tryggvadóttir og Anton Ísak Óskarsson, en þau þekkja meðvirkni af eigin raun. Þau segja opinskátt frá eigin reynslu, leiðinni út úr meðvirkni og léttinum við að losna úr fjötrum meðvirkninnar í viðtali við Ásdísi Olsen. Vigdís Grímsdóttir rithöfundur, Rúnar Guðbrandsson leikstjóri og leikkonurnar Guðfinna Gunnarsdóttir og Íris Árný Magnúsdóttir ræða við Gunnar Smára um uppfærslu Leikfélags Selfoss á leikgerð upp úr þessari vinsælu bók. Gérard Lemarquis kennari sem lengi var fréttaritari Le Monde og AFP á Íslandi ræðir um ástandið í Frakklandi við Gunnar Smára.
Thu, 5 Nov 2026 - 3h 51min - 1484 - Rauða borðið 4. nóv - Trumptíminn, fæðingarorlof, pendúlhreyfingar, tónlist og lagaleg álitaefni
Miðvikudagur 4. nóvember Trumptíminn, fæðingarorlof, pendúlhreyfingar, tónlist og lagaleg álitaefni Friðjón R. Friðjónsson varaborgarfulltrúi, Magnús Helgason sagnfræðingur og Ólafur Þ. Harðarson prófessor fara yfir kosningaúrslitin í Bandaríkjunum í spjalli við Gunnar Smára í auka-Trumptíma. Marka kosningarnar endalok Trumptímans? Ásdís Olsen ræðir við Karítas Ólafsdóttur móður og sálfræðing en hún neitar að láta stjórnvöld ráða hennar eigin barneignum. Forgangsröðun fjármuna tekur ekki mið af þörfum barna. Þetta segir Grímur Atlason hjá Geðhjálp. Hann og Margrét Valdimarsdóttir doktor í afbrotafræði ræða við Björn Þorláks um muninn á vistun barns og brú yfir fljót. Á föstudag verður frumflutt stórvirkið ANOK eftir Högna Egilsson í Hallgrímskirkju. Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona er í aðalhlutverki í flutningnum og ræðir ásamt tónskáldinu Högna verkið í samtali við Björn Þorláks. Grímur Atlason hjá Geðhjálp og Margrét Valdimarsdóttir, dósent við HÍ, ræða kosningarnar í Bandaríkjunum í gær, áhrif þeirra á heiminn og þar á meðal hér á Íslandi. Björn Þorláks ræðir við þau. Gísli Tryggvason lögmaður fer yfir lagaleg álitaefni tengd fréttum líðandi stundar. Uppsagnir og uppsagnarákvæði, minnkandi samkeppni á matvörumarkaði og Landsvirkjunarmálið eru þar á meðal. Björn Þorláks ræðir við Gísla.
Wed, 4 Nov 2026 - 4h 35min - 1483 - Rauða borðið 3. nóv - Uppsagnir, norðurslóðir, ópera og lækningar
Þriðjudagur 3. nóvember Uppsagnir, norðurslóðir, ópera og lækningar Þorvaldur Ingi Jónsson ráðgjafi rýnir í hópuppsagnirnar hjá borginni og gefur aðferðafræðinni laka einkunn. Björn Þorláks heldur áfram umfjöllun Samstöðvarinnar um starfsmannamál og mannúð. Gunnar Smári ræðir við Rasmus Gjedssø Bertelsen prófessor í Tromsø um Grænlandssamning Bandaríkjanna, símtal forsætisráðherra Noregs og forseta Finnlands til Putín og önnur mál tengt norðurslóðum. Bjarni Snæbjörnsson leikstjóri, Íris Björk Gunnarsdóttir sópran og Bjarni Thor Kristinsson bassi segja Gunnari Smára frá óperunni 27 sem fjallar um lesbísku hjónin Gertrude Stein og Alice B. Toklas. Ásgeir Böðvarsson læknir og íslenskufræðingarnir Solveig Brynja Grétarsdóttir og Jón Torfason segja Gunnari Smára frá Jóni Jónssyni prest og lækni í Árskógi og á Grenjaðarstað, en hann lærði ekki til prests en fékk leyfi til að lækna gegn því að halda dagbækur, sem voru að koma út.
Tue, 3 Nov 2026 - 4h 23min - 1482 - Rauða borðið 2. nóv - Hópuppsagnir, Trump, uppreisnir, heimshvörf og samfélagsmiðlar
Mánudagur 2. nóvember Hópuppsagnir, Trump, uppreisnir, heimshvörf og samfélagsmiðlar Ómannúðlegar aðferðir við uppsagnir starfsfólks og áhrif þess, persónubundin og samfélagsleg, verða til umræðu hjá Viðari Eggertssyni leikara og Sigríði Kristjánsdóttur kvikmyndasérfræðingi. Þau urðu vitni að því sem Viðar kallar “slátrun” í hópuppsögn hjá Ríkisútvarpinu þar sem Sigríður missti vinnuna og lýsir nú í fyrsta skipti þeirri bitru reynslu. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Degi fyrir kosningar í Bandaríkjunum spá sagnfræðingarnir Sveinn Máni Jóhannesson, Magnús Helgason og Guðmundur Hálfdanarson í spilin með Gunnari Smára. Munu Repúblikanar tapa kosningunum svo illa að marki endalok Trumptímans? Hvað er að gerast í Evrópu og meðal ungs fólks víða um heim? Róttæklingarnir Ólafur Páll Sigurðsson, Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir og Lúkas Lilliendahl ræða við Gunnar Smára um uppreisn ungs fólks, hverju þau mótmæla og hvers vegna. Er gamli heimurinn að líða undir lok? Gísli Bachmann stjórnspekingur hefur fengið sýnir sem hann tengir við Völuspá, Ragnarök og upphaf nýrrar aldar. Hann telur að erfiðir tímar séu fram undan, átök og upplausn, en að úr þeim hreinsunareldi geti sprottið nýr heimur og andleg vakning mannkyns. Ásdís Olsen ræðir við hann. Halldóra Mogensen fyrrum þingmaður, sérfræðingur í gervigreind, ræðir samfélagsmiðla og hvernig stjórnvöld sváfu á verðinum gagnvart börnunum okkar. Björn Þorláks ræðir við Halldóru.
Mon, 2 Nov 2026 - 5h 14min - 1481 - Synir Egils 1. nóv - Uppsagnir, atvinnuleysi, stöðnun, umrót og pólitísk straumhvörf
Sunnudagurinn 1. nóvember Synir Egils: Uppsagnir, atvinnuleysi, stöðnun, umrót og pólitísk straumhvörf Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingkona Miðflokksins, María Rut Kristinsdóttir þingkona Viðreisnar og Guðmundur Ari Sigurjónsson þingmaður Samfylkingar og ræða helstu fréttir og stöðu mála, stöðu flokka, ríkisstjórnar og sveitarstjórna. Þá koma þau Rósa Björk Brynjólfsdóttir formaður Vg, Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknar og Sigurður Kári Kristjánsson lögmaður og fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins og ræða pólitíska strauma vestan hafs og austan og áhrif þeirra á íslensk stjórnmál. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.
Sun, 1 Nov 2026 - 2h 37min - 1480 - Rauða borðið - Helgi-spjall: Haraldur Erlendsson
Laugardagur 31. október Helgi-spjall: Haraldur Erlendsson Hvar liggja mörkin milli geðrænna einkenna og andlegrar reynslu? Haraldur Erlendsson geðlæknir hefur frá barnæsku upplifað andlegan veruleika, orðið fyrir margs konar dulrænni reynslu, upplifað eigin fæðingu, fengið innsýn og vitranir en umfram allt upplifað mikinn unað og kærleika. Haraldur fagnar sjötugsafmæli sínu um þessar mundir og segist loksins frjáls til að tjá sig um ýmislegt sem sumum gæti þótt skrýtið og ekki endilega fræðilegt. Í þessu opinskáa Helgispjalli við Ásdísi Olsen ræðir hann geðsjúkdóma, andlegar og trúarlegar hefðir, hugvíkkandi efni, mikilvægi þjáningar og þrautsegju fyrir andlegan þroska, nær-dauðareynslu, daoisma og tilgang lífsins. Haraldur er starfandi geðlæknir og formaður Lífspekifélags Íslands og hefur meðal annars kennt trúarlífssálfræði við guðfræðideild Háskóla Íslands og var lengi yfirlæknir og forstjóri Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Íslands,
Sat, 31 Oct 2026 - 1h 35min - 1479 - Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 44
Föstudagur 30. október Vikuskammtur: Vika 44 Vikuskammtur, umræða um fréttir líðandi stundar, er í umsjá Björns Þorláks. Gestir hans, Oddný Harðardóttir fyrrum þingmaður, Jón Trausti Reynisson blaðamaður, Jasmina Vazjovic ráðgjafi og Ólafur Arnarson blaðamaður rýna í uppsagnir í borginni, niðurstöður kosninga utan landsteinanna, pólitík og efnahagsmál innanlands, fordóma, nýjar og áhugaverðar bækur og fleira.
Fri, 30 Oct 2026 - 1h 23min - 1478 - Rauða borðið 29. okt - Reynsluboltar, heimsmál, heimsveldi, vók, Mímir og takkarnir
Fimmtudagur 29. október Reynsluboltar, heimsmál, heimsveldi, vók, Mímir og takkarnir Kári Jónsson, Sirrý Arnardóttir og Álfheiður Ingadóttir eru reynsluboltarnir sem ræða við Sigurjón Magnús þessa vikuna, um fréttir og stöðu samfélagsins. Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um símtal Støre og Stubb til Pútín, Úkraínu, smáríki og norðurslóðir. Valur Gunnarsson, sagnfræðingur og rithöfundur, ræðir við Björn Þorláks um nýja bók sem fjallar um hryðjuverk, efnahagshrun og endalok heimsveldis. Valur blandar heimssögu sína persónulegum frásögnum. Lýðskrum í íslenskum miðlum - innreið woke frá 1917 er heiti á erindi sem Lars Lundsten fræðimaður flytur á Þjóðarspegli á morgun. Björn Þorláks ræðir við hann um þá sem veifuðu vók-trénu oftast. Mímir Kristjánsson er hálfur Íslendingur á norska þinginu, rithöfundur, blaðamaður og sósíalisti. Hann talar við Gunnar Smára um vinstrið á Norðurlöndum, ysta hægrið og mótmæli í Evrópu. Sigríður Björk Þormar sálfræðingur, hjúkrunarfræðingur og doktor í heilbrigðisvísindum ræðir við Ásdísi Olsen um hvernig annað fólk getur stjórnað líðan okkar, magnað upp reiði, sorg og höfnun langt umfram sýnilegt tilefni, ýtt á takka sem kveikja á okkur.
Thu, 29 Oct 2026 - 5h 36min - 1477 - Rauða borðið 28. okt - Naza, heimahagkerfið, sprútt, enfants terrible, Pár Guðs
Miðvikudagur 28. október Naza, heimahagkerfið, sprútt, enfants terrible, Pár Guðs Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi, Hjálmtýr Heiðdal formaður Félagsins Ísland-Palestína, Qussay Odeh, Íslendingur af palestínskum ættum og Laufey Líndal Ólafsdóttir ræða við Gunnar Smára um heimildarmyndina Naza sem fjallar um hvernig ísraelski herinn notar gervigreind og háþróaða tækni til að fremja þjóðarmorð á Gaza. Gauti B Eggertsson hagfræðiprófessor við Brown háskólann ræðir við Gunnar Smára um horfur í heimshagkerfinu, verðbólgu og vaxandi ríkisskuldir og þær áskoranir sem íslenskt efnahagslífs stendur frammi fyrir. Árni Guðmundsson forvarnarfulltrúi bregst við ummælum forstjóra ÁTVR um að stofnunin sé að skoða heimsendingu á áfengi. Björn Þorláks ræðir við hann fleiri álitamál er varða lýðheilsu, forvarnir, frelsi og fíkn. Ásmundur Ásmundsson og Hannes Lárusson er enfants terrible íslenskrar myndlistar, sýningar þeirra vekja yfirleitt skjálfta og mikil viðbrögð. Þeir ræða við Gunnar Smára um listina, manneðlið og sýningu sem þeir opnuðu í gær. Guðmundur S. Brynjólfsson rithöfundur og djákni segir Gunnari Smára frá bók sinni Pár Guðs sem fjallar um ris og fall Finn Magnússonar, eins frægasta Íslendings sinnar tíðar.
Wed, 28 Oct 2026 - 4h 27min - 1476 - Þriðjudagur 27. október - Fjöldauppsagnir, fangelsi, landbrot, heilbrigðiskerfið, ástin og samhygðin
Þriðjudagur 27. október Fjöldauppsagnir, fangelsi, landbrot, heilbrigðiskerfið, ástin og samhygðin Nýr meirihluti í Reykjavík hefur sagt upp fjölda fólks sem starfar hjá borginni Kári Sigurðsson formaður Sameykis og oddvitar úr minnihlutanum; Pétur Marteinsson Samfylkingu og Sanna Magdalena Mörtudóttir, Vinstrinu ræða við Gunnar Smára um stöðuna. Vilhjálmur Egilsson fyrrum þingmaður og rektor telur rétt að breyta skólum í fangelsi í stað þess að byggja alltaf ný. Í samtali við Björn Þorláks ræðir hann einnig sinn gamla flokk. Sjálfstæðisstefnan sigraði en Sjálfstæðisflokkurinn er í bullandi vandræðum, segir Vilhjálmur. Landbrot og uppbygging tengd mannfjölgun og ferðaþjónustu á Suðurlandi gæti leitt til árekstra í sambandi manns og náttúru. Björn Þorláks ræðir við Þóri Kjartansson ljósmyndara. Jósep Ó Blöndal læknir heldur áfram að segja Gunnari Smára frá ferð sinni um heilbrigðiskerfið og hvernig það hefur breyst um hans starfsævi. Og fræðir hann um heilbrigði og sjúkleika. Guðbrandur Árni Ísberg sálfræðingur hefur skrifað bók um ástina. Nándin er okkur eins mikilvæg og matur, segir hann. Björn Þorláks ræðir við höfundinn. Mygluvandi í húsi í Mývatnssveit hefur valdið miklu tjóni og lasleika og hefur heimafólk ákveðið að leggja íbúum lið með stórtónleikum í kirkju á morgun. Björn Þorláks ræðir við Stebba Jak um framtakið.
Tue, 27 Oct 2026 - 4h 51min - 1475 - Rauða borðið 26 okt - Trump, rasismi, Landsréttur, Serbía, Brasilía, stjörnuspeki og Steinunn
Mánudagur 26. október Trump, rasismi, Landsréttur, Serbía, Brasilía, stjörnuspeki og Steinunn Hafsteinn Einarsson stjórnmálafræðingur, Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur og Guðmundur Hálfdanarson sagnfræðingur ræða við Gunnar Smára um stöðu Trump í aðdaganda þingkosninga í Bandaríkjunum. Sigursteinn Másson fréttamaður og Magnea Marínósdóttir stjórnmálafræðingur ræða aukinn rasisma og leiðir til úrbóta. Björn Þorláks ræðir við þau. Magnea segir bæjarstjórann í Öfusi hafa framið brot á lögum með orðræði sinni um múslima. Drífa Snædal talskona Stígamóta og Aðalheiður Ósk Þorsteinsdóttir ráðgjafi og stofnandi Áfram stelpur ræða við Gunnar Smára um sýknudóm Landsréttar og afleiðingar hans. Jovana Pavlović forseti bæjarstjórnar í Borgarbyggð segir Gunnari Smára frá serbnesku kosningunum þar sem listi stúdenta vann stórsigur og Luciano Dutra þýðandi segir Gunnari Smára frá brasilísku kosningunum þar sem Lula vann sigur í seinni umferð eftir að hafa tapað þeirri fyrri. Gísli Bachmann, stjörnuspekingur mætir aftur í viðtal til Ásdísar Olsen og útskýrir hvernig stjörnuspekin virkar og Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur ræðir nýjustu bók sína og ferilinn við Björn Þorláks.
Mon, 26 Oct 2026 - 5h 14min - 1474 - Synir Egils 25. okt - Mótmæli, átök, fylgi og fall
Sunnudagurinn 25. október Synir Egils: Mótmæli, átök, fylgi og fall Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Andrea Sigurðardóttir blaðakona, Rakel Þorbergsdóttir samskiptaráðgjafi og fyrrum fréttastjóri Ríkisútvarpsins og Róbert Marshall fjallamaður, fyrrum þing- og blaðamaður og ræða átök í Evrópu og innan flokka á Íslandi, niðurskurð hjá Borginni, umdeildan sýknudóm í kynferðisbrotamáli, fylgi flokka og margt fleira. Að því loknu ræðum við mótmælin í Evrópu við þau Eirík Bergmann prófessor í stjórnmálafræði, Gígju Söru Björnsson, sem er sviðshöfundur og íslensk-frönsk, Morgane Priet-Mahéo straumfræðingur og Ara Orrason formann UngVG. Hverjir mótmæla hverju? Er ungt fólk í Evrópu að hafna stefnu yfirvalda? Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.
Sun, 25 Oct 2026 - 2h 25min - 1473 - Rauða borðið - Helgi-spjall: Einar Bárðar
Laugardagur 24. október Helgi-spjall: Einar Bárðar „Það eru sirka tveir á Íslandi sem ég hef ekki hringt í,“ segir Einar Bárðarson, athafnamaður og alþýðuskáld sem hefur komið víða við, allt frá tónlistarbransanum og viðburðahaldi til hjólreiðakeppna, plokks og umhverfismála. Hann segir samskiptahæfni sína helsta styrkleika, á auðvelt með að setja sig í spor annarra og hugsar frekar „Hvað get ég gert?“ en „Hvað getur kerfið gert fyrir mig?“ Í Helgispjalli hjá Ásdísi Olsen segir Einar frá skiptinemaárinu í Bandaríkjunum sem breytti lífssýn hans, kynnum við föður sinn á fullorðinsárum, baráttunni við Orkuveituna og leyndarmálinu á bak við hamingjuna. Og auðvitað nýja hárinu!
Sat, 24 Oct 2026 - 1h 48min - 1472 - Föstudagur 23. október Vikuskammtur: Vika 43
Föstudagur 23. október Vikuskammtur: Vika 43 Í Vikuskammti verður rætt um árstíðarskipti, umhverfismál, hegðun Íslendinga á samfélagsmiðlum, rasisma, bókasöfn, stjórnmál og fleira spennandi. Gestir þáttarins eru Margrét Tryggvadóttir og Guðmundur Andri Thorsson, bæði rithöfundar, Lára Sigurðardóttir læknir og Guðmundur Gunnarsson framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar.
Fri, 23 Oct 2026 - 1h 27min - 1471 - Rauða borðið 22. okt - Rasismi, mótmæli, reynsluboltar, lög og regla og sátt
Fimmtudagur 22. október Rasismi, mótmæli, reynsluboltar, lög og regla og sátt Jasmina Vajzovic ráðgjafi bregst við málflutningi um að varast þurfi innflytjendur frá ákveðnum heimssvæðum. Jasmina segir fordóma hafa aukist gegn útlendingum og enn sé alvarleg stigmögnun í rasisma hér á landi. Einar Már Jónsson sagnfræðiprófessor emeritus í París greinir mótmælaölduna í Frakklandi í samtali við Gunnar Smára. Sigurjón Magnús Egilsson ræðir við Helga Hjörvar fyrrum þingmann, Vilhjálm Bjarnason fyrrum þingmann og Ernu Bjarnadóttur hagfræðing um fréttir líðandi stundar. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir lagaleg álitaefni, umdeildan sýknudóm Landsréttar í nauðgunarmáli, vanhæfi eða ekki vanhæfi sveitarstjóra og samkeppnismál í samtali við Björn Þorláks. Draumey Aradóttir lýsir í samtali við Ásdísi Olsen ævintýri sem hún upplifði í ljóðabókinni Syngur í skógi.
Fri, 23 Oct 2026 - 3h 38min - 1470 - Rauða borðið 21. okt - Kynlífsofbeldi, fyrirgefning, sálgreining og læknar
Miðvikudagur 21. október Kynlífsofbeldi, fyrirgefning, sálgreining og læknar Edda Björk Þórðardóttir dósent í faraldsfræði og annar aðalhöfunda rannsóknarinnar Áfallasaga kvenna og Jenný Kristín Valberg teymisstýra Bjarkarhlíðar ræða við Gunnar Smára um sýknudóm Landsréttar og aukið ofbeldi í kynlífi ungra kvenna. Magnús Geir Þórðarson leikstjóri og leikararnir Jakob Van Oosterhaut, Unnur Ösp Stefánsdóttir og Edda Björg Eyjólfsdóttir ræða við Gunnar Smára um Högg, sýningu Þjóðleikhússin á sögu manns sem verður valdur að dauða annars og hvernig hann og foreldrar fórnarlambsins lifa af með sorg og sekt. Sæunn Kjartansdóttir sálgreinir segir Ásdísi frá því hvernig sálgreining getur hjálpað okkur að skilja okkur sjálf betur og þeirri miklu sjálfsvinnu sem hún vann sjálf til að geta hjálpað öðrum. byggði upp bakdeild í Stykkishólmi sem færði mörgum bata og vakti víða athygli.
Wed, 21 Oct 2026 - 3h 56min - 1469 - Rauða borðið 20. okt - Réttlæti, nauðungarsölur, hjúkrunarheimili, þriðja æviskeiðið, Gunnella og barnabók
Þriðjudagur 20. október Réttlæti, nauðungarsölur, hjúkrunarheimili, þriðja æviskeiðið, Gunnella og barnabók Björgvin Kristbergsson ræðir við Gunnar Smára um stöðu fólks með þroskahömlun fyrr og nú og sanngirnisbætur sem hann telur sig eiga rétt á vegna illrar meðferðar. Ásta Lóa Þórhallsdóttir þingkona ræðir við Sigurjón Magnús um svínarí við nauðungarsölur og frumvarp sitt til úrbóta. Hjúkrunarheimili ættu sem endastöð að taka mjög vel á móti fólki en því miður skortir töluvert upp á það. Þetta segir Árni Kjartansson aðstandandi sem ræðir við Björn Þorláks. Ásdís Olsen ræðir við dr. Guðfinnu S. Bjarnadóttur, fyrrverandi rektor Háskólans í Reykjavík um þriðja æviskeiðið. Katla Þórudóttir Njálsdóttir höfundur og leikari, Aron Már Ólafsson leikari og Killian G.E. Briansson leikstjóri ræða við Gunnar Smára um Gunnellu sem þráir að ættleiða barn. Sigmundur Ernir Rúnarsson sendir frá sér nýja bók sem kallast Barnabók. Hann segir Birni Þorláks frá lífinu á Akureyri fyrr á tímum.
Tue, 20 Oct 2026 - 4h 28min - 1468 - Rauða borðið 19. okt - Trump, Ilmur, gervigreind, ásakanir og söfn
Mánudagur 19. október Trump, Ilmur, gervigreind, ásakanir, söfn Friðjón R. Friðjónsson varaborgarfulltrúi, Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur og Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur ræða við Gunnar Smára um Trump og komandi kosningar í Bandaríkjunum. Ilmur Kristjánsdóttir leikari deilir áhyggjum sínum og þekkingu af umhverfismálum í samtali með Birni Þorlákssyni. Sérstakan óhug þennan daginn vekur þungmálmamengað drykkjuvatn á Svalbarða. Þóroddur Bjarnason prófessor og Þorsteinn Siglaugsson heimspekingur og hagfræðingur og stjórnarmaður í Samtökum um mannvæna tækni ræða við Gunnar Smára um gervigreind og hvaða áhrif hún hefur á okkur og samfélag okkar.Ásdís Olsen ræðir við Gísla Bachmann stjörnuspeking um áhrif fréttaumfjöllunar Kompás ásakanir um ofbeldi af hans hálfu. Hugvekja um söfn og samfélag er heitið á nýrri bók eftir Sigurjón Baldur Hafsteinsson prófessor. Hann ræðir við Björn Þorláks um persónulega sýn fræðimannsins.
Mon, 19 Oct 2026 - 5h 01min - 1467 - Synir Egils 18. okt - Upplausn í flokkum og ASÍ, fákeppni og misnotkun, stríð og staða flokka
Sunnudagurinn 18. október Synir Egils: Upplausn í flokkum og ASÍ, fákeppni og misnotkun, stríð og staða flokka Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB, Helga Vala Helgadóttir lögmaður og Þórður Snær Júlíusson framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar og ræða ágreining innan Viðreisnar og Alþýðusambandsins, okur og fákeppni, stöðu stjórnar og flokka og margt annað. Þá kemur nýr forseti Alþýðusambandsins að borðinu, Georg Páll Skúlason, og ræðir um stöðu ASÍ við bræðurna og Sigurð Pétursson sagnfræðinginn sem er manna fróðastur um sögu verkalýðsbaráttunnar. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.
Sun, 18 Oct 2026 - 2h 08min - 1466 - Rauða borðið - Helgi-spjall: Edda Björgvins
Laugardagur 17. október Helgi-spjall: Edda Björgvins Edda Björgvinsdóttir segir frá æsku sinni og uppruna, lífinu og leikhúsinu, hlátri og grát.
Sat, 17 Oct 2026 - 2h 33min - 1465 - Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 42
Föstudagur 16. október Vikuskammtur: Vika 42 Þau koma að Rauða borðinu, Magnea Gná Jóhannsdóttir varaborgarfulltrúi, Jóhanna Malen Skúladóttir jarðeðlisfræðingur og varaforseti Ungra umhverfissinna, Gagga Jónsdóttir kvikmyndagerðarkona og Viktor Pétur Finnsson varaþingmaður og ræða við Gunnar Smára um fréttir vikunnar sem einkenndust af átökum og deilum, svindli og afsögnum, óveðri og óknyttaskap.
Fri, 16 Oct 2026 - 1h 37min - 1464 - Rauða borðið 15. okt - Reynsluboltar, verkó, norrænt sambandsríki, umhverfistímarit, andlegur þroski og Heilsuerla
Fimmtudagur 15. október Reynsluboltar, verkó, norrænt sambandsríki, umhverfistímarit, andlegur þroski og Heilsuerla Margrét Sanders, Arnar Björnsson og Gunnar Salvarsson voru gestir Sigurjóns að þessu sinni. Þau tala af reynslu og yfirvegun um helstu málefni líðandi stundar. Sigurður Pétursson sagnfræðingur ræðir við Gunnar Smári um spennu milli VR og Eflingar og átökin innan Alþýðusambandsins. Hrannar Björn Arnarsson formaður Norræna félagsins og Jón Yngvi Jóhannsson bókmenntafræðingur og ævisöguritari Gunnars Gunnarssonar ræða um sambandsríki Norðurlandanna í tilefni af fyrirlestri Gunnars Wetterberg á morgun. Jean-Rémi Chareyre segir Gunnari Smára frá Umskipti tímariti um framtíðarvelsæld og þolmörk jarðar. Sigurður Skúlason segir Gunnari Smára frá andlegri þroskasögu sinni og bókinni Í leit að því sem er, sem fjallar um það ferðalag. Heilsumarkþjálfinn landsþekkti, Erla Guðmundsdóttir örmagnaðist og grét í þrjár vikur. Hún leitaði sér aðstoðar og komst að því að hún hafði lent í einelti, verið meðvirk og aftengd sjálfri sér. Hún lærði að hlusta á innsæið, velja það sem nærir hana og láta álit annarra ekki stjórna sér. Ásdís ræðir við Erlu.
Thu, 15 Oct 2026 - 4h 59min - 1463 - Rauða borðið 14. okt - Trumptíminn, Cornellmálið, umhverfismál, listamenn og samtalið
Miðvikudagur 14. október Trumptíminn, Cornellmálið, umhverfismál, listamenn og samtalið Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúi, Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur og Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur fara yfir stöðuna á Trump með Gunnari Smára, samning hans við Pútín og aðrar tilraunir hans til að bæta stöðu sína fyrir kosningarnar eftir tæpar þrjár vikur. Getur kona í vímu veitt upplýst samþykki? Sú spurning er nú í brennidepli eftir Cornell-málið, sem hefur orðið táknrænt fyrir umræðuna um kynferðisofbeldi í Bandaríkjunum. Drífa Snædal frá Stígamótum og Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, kynjafræðikennari, ræða málið við Ásdísi Olsen. Halla Hrund Logadóttir þingmaður Framsóknarflokksins ræðir ýmis umhverfismál við Björn Þorláksson, svo sem vindorku, ferðamennsku og sjókvíaeldi. Nýjar hugmyndir um grunnlaun til starfandi listamanna hefur verið komið á víða í Evrópu og nú kalla íslenskir listamenn eftir grunndvallar framfærslu. Birna Hafstein, formaður Félags íslenskra listamanna í sviðslistum og kvikmyndum og Jóna Hlíf Halldórsdóttir forseti Bandalags íslenskra listamann ræða við Ásdísi Olsen. Lísa Margrét Gunnarsdóttir háskólanemi og Vigdís Jóhannsdóttir í hópi skipuleggjenda, fara yfir samtalið sem forseti Íslands hratt af stað um helgina. Þær ræða helstu atriði sem komu fram í vinnu fólksins og hvað við þurfum að endurskoða. Björn Þorláks ræðir við þær.
Wed, 14 Oct 2026 - 4h 30min - 1462 - Rauða borðið 13. okt - Menning, klofningur, handanheimurinn, þjóðnýting, nýjar bækur
Þriðjudagur 13. október Menning, klofningur, handanheimurinn, þjóðnýting, nýjar bækur Logi Einarsson menningarmálaráðherra, Anna Rún Tryggvadóttir myndlistarmaður og formaður Samband íslenskra myndlistarmanna og Atli Bollason listamaður og menningarýnir ræða við Gunnar Smára um menningarastefnuna, hver hún er og hver hún ætti að vera. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar ræðir við Gunnar Smára um komandi þing ASÍ en hún segir Alþýðusambandið klofnara nú en fyrir fjórum árum þegar hún og félagar hennar gengu af þinginu. Hún ræðir einnig mögulega úrsögn Eflingar úr ASÍ. Við skygnumst inn í aðra vídd með þeim Ester Sveinbjarnardóttur og Sigrúnu Gunnarsdóttur, en þær eru í góðu sambandi við leiðbeinendur að handan. Í samtali við Ásdísi Olsen ræða þær um framtíð heimsins, friðarferlið í Evrópu, hækkandi tíðni, hvað gerist eftir dauðann, hvernig þær vinna með „drauga“ og hvernig við heilum það sem situr í okkur frá forfeðrunum. Jón Ferdinand Estherarson, formaður sósíalista, telur rétt að þjóðnýta bankana, leysa þá upp í núverandi mynd. Hann segir Birni Þorláks hvers vegna.Guðný Hallgrímsdóttir sagnfræðingur segir Gunnari Smára frá bók sinni um Dauðadæmd – sakamál á 18. öld, um fólk sem dæmt var til dauða og þrælkunarvinnu á sínum tíma. Viðtalið er ekki fyrir viðkvæma.Komin er út ný skáldsaga eftir Hauk Arnþórsson stjórnsýslufræðing. Haukur tekst á við liðinn tíma fyrir austan, á Seyðisfirði jólin 1966. Hann segir Birni Þorláks hvers vegna hann skrifaði bókina log les einnig upp úr henni.
Tue, 13 Oct 2026 - 5h 20min - 1461 - Rauða borðið 12. okt - Forseti ASÍ, Djöflar, markaðsbrestur, gervigreind, Hugarafl og laxar
Mánudagur 12. október Forseti ASÍ, Djöflar, markaðsbrestur, gervigreind, Hugarafl og laxar Þeir Arnaldur Grétarsson starfsmaður Félags hjúkrunarfræðinga, ritstjóri og framleiðandi og Georg Páll Skúlason formaður Grafíu vilja báðir verða forseti Alþýðusambandsins. Þeir segja Gunnari Smára frá hvers vegna og hvernig ASÍ þeir vilja sjá. Stefán Jónsson leikstjóri, Hlín Agnarsdóttir þýðandi og leikarahjónin Hilmir Snær Guðnason og Vala Kristín Eiríksdóttir ræða við Gunnar Smára um sýninguna á Djöflum eftir Lars Norén sem sýnd er í Borgarleikhúsinu. Margt bendir til markaðsbrests og jafnvel markaðsmisnotkunar á fasteignamarkaði. Yngvi Ómar Sigrúnarson formaður Samtaka leigjenda bendir á að leiga á íbúðum sem fólk missti í hruninu hafi margfaldast. Björn Þorláks ræðir við hann. Hjálmar Gíslason nörd og framkvæmdastjóri Grid ræðir við Gunnar Smára um gervigreind, hættuna af henni og ávinning og sérstöðu Íslands. Auður Axels hjá Hugarafli ræðir mismunandi nálgun á geðræn málefni, fíkn og fleira. Þau Ólafur Örn Ævarsson geðlæknir sem oft hefur rætt málin á Samstöðinni eru ekki sammála um alla hluti. Björn Þorláks ræðir við Auði. Á fimm árum hafa 20 milljónir laxa drepist í sjókvíum hér á landi sem er til marks um óboðlegar aðstæður. Sigurður Héðinn Harðarson fluguhnýtingamaður hefur tekið saman frá MAST og birt viðkvæmar upplýsingar um fiskeldi. Björn Þorláks ræðir við hann.
Mon, 12 Oct 2026 - 4h 38min - 1460 - Synir Egils 11. okt - Kjaramál, efnahagur, hitamál, hlýnun jarðar og kólnun Íslands
Sunnudagurinn 11. október Synir Egils: Kjaramál, efnahagur, hitamál, hlýnun jarðar og kólnun Íslands Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Brynjar Níelsson borgarfulltrúi, Guðrún Johnsen doktor í hagfræði og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og ræða kjaramál og önnur efnahagsmál og hitamál hér heima og erlendis. Síðan koma þau Andri Snær Magnason rithöfundur, skáld og aðgerðasinni, Hafdís Hanna Ægisdóttir náttúrufræðingur og forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar Háskóla Íslands og Hildigunnur H. H. Thorsteinsson veðurstofustjóri og ræða hlýnun jarðar og áhrif hennar á Ísland og hafið í kringum landið og hvað ber að gera í loftslagsmálum. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.
Sun, 11 Oct 2026 - 2h 15min - 1459 - Rauða borðið - Helgi-spjall: Berglind Häsler
Laugardagur 10. október Helgi-spjall: Berglind Häsler Berglind Häsler var gestur okkar í Helgispjallinu að þessu sinni. Berglind hefur víða komið. Hún missti eiginmann sinn, Svavar Pétur Eysteinsson, eða Prins Póló sem var listmannsnafn hans. Það var krabbamein sem tók Svavar. Berglind rekur og stýrir fyrirtækinu Havarí. Það er Sigurjón Magnús sem ræðir við Berglindi.
Sat, 10 Oct 2026 - 56min - 1458 - Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 41
Föstudagur 9. október Vikuskammtur: Vika 41 Atlaga gegn mennsku og menningu, aftökur í beinni, hroki og hleypidómar í verkalýðshreyfingunni og árshátíðarferð atvinnulífsins til Króatíu eru meðal umræðuefna í fréttaþættinum Vikuskammti. Tengist þetta kannski allt? Gestir eru Gunnar Alexander Ólafsson hjá ÖBÍ, Kristín I. Pálsdóttir, talskona Rótarinnar, Valgerður Árnadóttir hvalavinur og baráttukona og Jökull Sólberg Auðunsson sósíalisti. Leigubremsur og framtíð hvalveiða verða einnig til umræðu. Þátturinn er í umsjá Björns Þorláks.
Fri, 9 Oct 2026 - 1h 25min - 1457 - Rauða borðið 8. okt - Menntastefna, reynsluboltar, öldrun, Brasilía, hamingja og bekkurinn
Fimmtudagur 8. október Menntastefna, reynsluboltar, öldrun, Brasilía, hamingja og bekkurinn Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambandsins, Mjöll Matthíasdóttir formaður Félags grunnskólakennara, Jónína Hauksdóttir formaður skólamálaráðs KÍ og Anton Már Gylfason formaður félag stjórnenda í framhaldsskólum útskýra sýn verkalýðshreyfingar kennara á menntastefnuna. Gunnar V. Andrésson, Einar Kárason og Kristín Ástgeirsdóttir voru gestir þáttarins að þessu sinni. Helstu mál samfélagsins voru rædd af þekkingu og reynslu. Fyrir nokkrum árum skrifaði Sigrún Huld Þorgrímsdóttir hjúkrunarfræðingur bókina Ný menning í öldrunarþjónustu. Í bókinni hvetur hún til bættrar og breyttrar hugsunar gagnvart umönnun aldraðra, en gæti niðurstaðan hafa reynst þveröfug? Björn Þorláks ræðir við hana. Luciano Dutra fer yfir liðnar kosningar í Brasilíu með Gunnari Smára og ræður í áhrifin af þeirri hægri bylgju sem þar reið yfir. Í viðtali við Ásdísi Olsen ræðir Reynir Grétarsson um nýju bókina sína, Bókasafn gagnslausra hugsana, þar sem hann veltir fyrir sér huganum, hugsunum sem halda okkur föstum og því hvernig öðlumst frelsi og tengjum við okkur sjálf. Guðmundur Torfason og Víðir Sigurðsson töluðu um landsliðin, karla, kvenna og undir 21 árs sem og fyrirkomulag Íslandsmótsins. Þeir eru sáttir með árangur karla landsliðsins og bíða og vona að konurnar færist nær næsta heimsmeistaramóti sem verður í Brasilíu.
Thu, 8 Oct 2026 - 4h 48min - 1456 - Rauða borðið 7. okt - Grænland, menningarstefna, skólar, Þórarinn og trú
Miðvikudagur 7. október Grænland, menningarstefna, skólar, Þórarinn og trú Valur Ingimundarson prófessor ræðir við Gunnar Smára um nýjan samning um Grænland, mögulegt sjálfstæði Grænlands og hvað staða Grænlands segir okkur um stöðu Íslands. Tónlistarfólkið og skólastjórnendurnir Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Edda Austmann og Róbert Þórhallsson ræða niðurskurð til tónlistarskólanna. Börn sem vilja stunda tónlistarnám geta lent í því að fá hvergi inni í Reykjavík eða bíða lengi, lengi. Björn Þorláks hefur umsjón með umræðunni. Kristján Kristjánsson prófessor í heimspeki við háskólann í Birmingham segir Gunnari Smára frá stöðu menntamála á Íslandi og Eistlandi. Skáldaæð Þórarins Eldjárns er galopin sem stendur og sendir hann frá sér þrjár bækur um þessar mundir, hvorki meira ná minna. Björn Þorláks ræðir við Þórarin um lífið, listina, bækurnar og íslenskuna. Séra Dagur Fannar Magnússon fríkirkjuprestur ræðir við Ásdísi Olsen um trú.
Wed, 7 Oct 2026 - 5h 13min - 1455 - Rauða borðið 6. okt - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó
Þriðjudagur 6. október Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir stundakennari, Bogi Ágústsson sjónvarpsmaður og Guðmundur Hálfdanarson prófessor ræða við Gunnar Smára um áhrif Trump og stjórnar hans á Bandaríkin og heiminn, kosningarnar framundan, heimsókn Marco Rubio til Íslands og fleiri tengt Trump. Brynjar Karl Sigurðsson, körfuboltaþjálfari stúlknaliðsins Aþenu, segir Ásdísi Olsen frá köllun sína að gefa börnum í Efra-Breiðholti tækifæri til valdeflingar. Viðar Halldórsson félagsfræðingur ræðir normalíseringu áfengisdrykkju í samtali við Björn Þorláks. Rósa Magnúsdóttir prófessor ræðir við Gunnar Smára um Kaldastríðsborgina, bók sína um leiðtogafundinn fyrir fjörutíu árum og hvernig kalda stríðið mótaði mannlífið í Reykjavík. Guðni Tómasson framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands ræðir við Björn Þorláks um rekstur hljómsveitarinnar.
Tue, 6 Oct 2026 - 4h 21min - 1454 - Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind
Mánudagur 5. október Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind Gylfi Zoega prófessor ræðir um efnahaginn við Gunnar Smára, eru að verða straumhvörf hér heima og enn frekar erlendis? Krísan innan SÁÁ vindur enn upp á sig. Snorri Ásmundsson myndlistarmaður, Dóra Jóhannsdóttir leikkona, Ásdís Olsen fjölmiðlakona og Björn Þorláks blaðamaður þekkja öll vel til starfa innan SÁÁ. Þau ræða vandann með hispurslausum hætti. Pálmi V. Jónsson prófessor ræðir umönnun aldraða við Gunnar Smára út frá umfjöllun um geðlyfjanotkun á hjúkrunarheimilum. 65% íslenskra karla tengja það við karlmennsku að leysa ágreining með ofbeldi, samkvæmt nýrri rannsókn sem Norræna ráðherranefndin lét gera. Þórður Kristinsson, mannfræðingur og doktor, segir karlmennskuboxið óþarflega þröngt á Íslandi og tengir þessar niðurstöður við skelfileg skilaboð samfélagsmiðla um að karlmennska feli í sér að vera sterkur, hafa stjórn og standa uppi sem sigurvegari. Ásdís Olsen ræddi við Þórð. Hafsteinn Einarsson dósent við tölvunarfræðideild HÍ ræðir við Gunnar Smára um gervigreind, hvort þróun hennar sé stjórnlaus og geti frekar skaðað en bætt mannlífið.
Mon, 5 Oct 2026 - 5h 47min - 1453 - Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson
Laugardagur 3. október Helgi-spjall: Stefán Pálsson Stefán Pálsson sagnfræðingur sem hefur verið áberandi í borgarmálunum er gestur Björns Þorlákssonar í helgi-spjalli. Stefán ræðir æsku sína og uppvöxt og sem mótar einstakling, svo sem Gettur betur!
Sat, 3 Oct 2026 - 1h 59min - 1452 - Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 40
Föstudagur 2. október Vikuskammtur: Vika 40 Þær koma að Rauða borðinu, þær Lína Thoroddsen kvikmyndagerðarkona, Steinunn Ólína Hafliðadóttir myndlistarkona, Stefanía Silfá Sigurðardóttir nemi í blaðamennsku og Brynhildur Bolladóttir formaður samtaka um bíllausan lífsstíl og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af róandi lyfjum, upplausn, efnahagslegum sársauka, mislukkuðum aftökum, deilum og tilraunum til samtals.
Fri, 2 Oct 2026 - 1h 33min - 1451 - Rauða borðið 1. okt - Reynsluboltar, leynd, undirheimar, krabbamein, gervigreind og atkvæðavægi
Fimmtudagur 1. október Reynsluboltar, leynd, undirheimar, krabbamein, gervigreind og atkvæðavægi Sigurjón Magnús Egilsson ræðir við reynsluboltana Sigurð Ágúst Sigurðsson, formann Félags eldri borgara í Reykjavík, Drífu Sigfúsdóttur, fyrrum bæjarfulltrúa í Reykjanesbæ og Guðbrand Stíg Ágústsson um fréttir líðandi stundar. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur hafnað að leynd skuli ríkja um samning Sjúkratrygginga og SÁÁ. Björn Þorláks ræðir við Kristínu I. Pálsdóttur, talskonu Rótarinnar sem kærði leyndina. Á sunnudag verða sýndar saman í Bíó Paradís heimildarmyndirnar Lalli Johns og Hlemmur, báðar veita innsýn í undirheima Reykjavíkur. Ólafur Sveinsson leikstjóri Hlemms, Ester Bíbí Ásgeirsdóttir verkefnastjóri á Kvikmyndasafni, Jón Gunnar Bernburg félagsfræðingur og Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur ræða myndirnar og undirheimana við Gunnar Smára. Hvað gerist þegar karlmenn sem hafa alla ævi vanist því að vera sterkir og sjálfstæðir þurfa skyndilega að þiggja hjálp? Matti Osvald markþjálfi hefur um árabil leitt karlahópa í Ljósinu, þar sem krabbameinsgreindir menn koma saman og deila reynslu sinni. Umsjón hefur Ásdís Olsen. Í tilefni af umræðu um gervigreind ræðir Gunnar Smári um mannlega hugsun við Finn Déllsen prófessor í heimspeki, en það er einmitt mannleg greind sem vélunum er ætlað að líkja eftir. Þarf að fjölga þingmönnum til að jafna atkvæðavægi? Þeirrar spurningar spyr doktor Þóroddur Bjarnason byggðafræðingur vegna hugmynda um breytingar. Björn Þorláks ræðir við hann.
Thu, 1 Oct 2026 - 5h 01min - 1450 - Rauða borðið 30. sept - Efnahagur, heimsmál, tíðnimeðferð, Svikasögur og kórar
Miðvikudagur 30. september Efnahagur, heimsmál, tíðnimeðferð, Svikasögur og kórar Ísak Einar Rúnarsson forstöðumaður málefnasviðs SA og Róbert Farestveit hagfræðingur Alþýðusambandsins fara yfir efnahagsmál hér heima og erlendis í spjalli við Gunnar Smára. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um heimsmálin. Þurý Gísladóttir, sérfræðingur í tíðnimeðferð útskýrir fyrir Ásdísi Olsen þessa athyglisverðu tækni. María Reyndal höfundur og leikstjóri, Mikael Emil Kaaber leikari og Rebecca Lív Biraghi barnastjarna og Katla Margrét Þorgeirsdóttir leikkona segja Gunnari Smára frá Svikasögum í Borgarleikhúsinu. Ingveldur Ýr Jónsdóttir, formaður KÓRÍS, Margrét Bóasdóttir frá Landssbambandi blandaðra kóra, Arnar Halldórsson frá Karlakórasambandinu og Sunna Karen Einasdóttir frá Ungíkór- nýju sambandi barna og ungmennakór ræða við Björn Þorláks um kórsöng og kórstarf og nýjan áfanga og viðurkenningu.
Wed, 30 Sep 2026 - 4h 51min - 1449 - Rauða borðið 29. sept - Trumptíminn, verðbólga, skyr, SÁÁ og töfrar
Þriðjudagur 29. september Trumptíminn, verðbólga, skyr, SÁÁ og töfrar Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur, Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur og Hafsteinn Einarsson stjórnmálafræðingur fara með Gunnari Smára yfir hvernig stefna og orð Trump móta Bandaríkin og heiminn. Breki Karlsson hjá Neytendasamtökunum bregst við verðbólgumælingu dagsins. Hann spyr í samtali við Björn Þorláks hvort högg skuldugra sé verjandi vegna ofurvaxta Seðlabankans þótt markmið bankans séu göfug. Þjóðfræðingarnir Vilborg Bjarkadóttir og Auður Viðarsdóttir kynna rannsókn sem nú stendur yfir á skyri. Skyrgerð til forna lýsir samlífi örveru og manna. Í samtali við Björn Þorláks kallar þær almenning til aðstoðar í þágu vísindanna. Gísli Tryggvason lögmaður fer yfir lagaleg álitaefni með Birni Þorláks. Í kvöld ræða þeir skuldbindingar SÁÁ og Bókun 35. Guðmundur Ragnar fór til Brasilíu til að læra shamanisma hjá töfralækni Huni Kuin-frumbyggja í Amazonregnskóginum. Í samtali við Ásdísi Olsen ræðir hann hjónaband sitt með dóttur töfralæknisins í Pinuya-þorpinu. Þar hefur hann fundið innri frið, sátt og langþráða tilfinningu að tilheyra.
Tue, 29 Sep 2026 - 3h 54min - 1448 - Rauða borðið 28. sept - Kjaramál, Óshlíðarmálið, Allsherjarþingið, SÁÁ, ESB og fjölmiðlar
Mánudagur 28. september Kjaramál, Óshlíðarmálið, Allsherjarþingið, SÁÁ, ESB og fjölmiðlar Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins ræða um kjaramálin við Gunnar Smára og stöðuna innan verkalýðshreyfingarinnar. Þeir Páll Halldór Halldórsson og Þórhallur Hilbert segja frá því Óshliðarmálinu í viðtali við Ásdísi Olsen. Helen Ólafsdóttir öryggisráðgjafi fer yfir allsherjarþingið með Gunnari Smára, metur ræður sem þar voru haldnar, um framtíð Sameinuðu þjóðanna og næsta aðalritara. Mikil ólga er innan og utan SÁÁ þessa dagana.Kristín Pálsdóttir, talskona Rótarinnar, ræðir í samtali við Björn Þorláks hvernig vandinn horfir við henni. Thomas Möller já-ari og Erna Bjarnadóttir nei-ari ræða við Gunnar Smára um stöðu Íslands gagnvart Evrópu í ljósi þjóðaratkvæðagreiðslunnar og þess hversu langt Evrópusambandið er til í að teygja sig Kanada. Óðinn Jónsson, blaðamaður og fyrrum fréttastjóri Rúv, spáir í spilin um framtíð frétta og fjölmiðlunar hér á landi í samtali við Björn Þorláks. Hvað breytist þegar keppinautar Rúv hverfa frá þjónustu, einn á fætur öðrum?
Mon, 28 Sep 2026 - 5h 35min - 1447 - Synir Egils 27. sept - Stöðnun, verðbólga, atvinnuleysi, olía, stríð og auðlindir
Sunnudagurinn 27. september Synir Egils: Stöðnun, verðbólga, atvinnuleysi, olía, stríð og auðlindir Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Þóra Arnórsdóttir forstöðumaður Samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun, Konráð S. Guðjónsson hagfræðingur og Halla Gunnarsdóttir formaður VR og ræða kólnandi hagkerfi, aukið atvinnuleysi og viðvarandi verðbólgu og mögulegar aðgerðir og nauðsynlegar. Síðan koma Halla Hrund Logadóttir þingkona, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir fyrrum þingkona og framkvæmdastjóri Courage International og Pétur Marteinsson borgarfulltrúi og halda áfram að greina samfélagið og ytri aðstæður; olíukreppu, stríðsátök, Grænland en líka auðlindir og mannréttindi. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári yfir pólitíkina með sínu nefi.
Sun, 27 Sep 2026 - 2h 37min - 1446 - Rauða borðið - Helgi-spjall: Björn Leví
Laugardagur 26. september Helgi-spjall: Björn Leví Í helgispjalli ræðir Björn Leví Gunnarsson við Björn Þorláks um einelti og fleira. Þegar einelti gengur langt má líkja því við tilraun til mannsdráps að sögn hans. Þingið, fall pírata, átök í Flokki fólksins og fleira verður til umræðu.
Sat, 26 Sep 2026 - 1h 53min - 1445 - Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 39
Föstudagur 25. september Vikuskammtur: Vika 39 Fyrsta haustlægðin, hvellurinn í Flokki fólksins, Átök Ísraels og Palestínu, stórafmæli Menntaskólans í Hamrahlíð, staða pólitíkur og efnahagsmála, bridds, brennivín, bækur, músík og fleiri mál verða til umræðu í fréttaþættinum Vikuskammtur. Björn Þorláks hefur umsjá með dagskránni en gestir eru Matthías Imsland framkvæmdastjóri, Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur, Árni Guðmundsson forvarnafulltrúi og Hallveig Rúnarsdóttir söngkona.
Fri, 25 Sep 2026 - 1h 11min - 1444 - Rauða borðið 24. sept - Utanríkismál, hugrekki, gervigreind, reynsluboltar, geðheilbrigði og ný bók
Fimmtudagur 24. september Utanríkismál, hugrekki, gervigreind, reynsluboltar, geðheilbrigði og ný bók Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Þorsteinn Pálsson ræða utanríkismál og samband Íslands við umheiminn í samtali við Sigurjón Magnús Egilsson. Heimir Hallgrímsson hefur vakið reiði ísraelska knattspyrnusambandsins. Hjálmtýr Heiðdal hjá Ísland-Palestína ræðir við Björn Þorláks um hugrekki knattspyrnuþjálfarans. Oddný Harðardóttir, Steingerður Steinarsdóttir og Thomas Möller eru gestir Sigurjóns í Reynsluboltum, vinnudeila flugvirkja, ESB og fleira til umræðu. Þorsteinn Siglaugsson heimspekingur og hagfræðingur ræðir við Gunnar Smára um gervigreindarkapphlaup Kína og USA, heimsendaspár og hvernig gervigreindin mun hafa áhrif á samfélagið og ekki síst okkur sjálf. Bjarni Harðarson útgefandi og rithöfundur segir Gunnari Smára frá ferðum sínum um heiminn, en honum finnst best að ferðast einn til staða þar sem hann kann ekki tungumálið. Mao bannaði Kínverjum að stunda Qigong til að koma í veg fyrir sjálfstæða hugsun og frjálsan vilja, segir Þorvaldur Ingi Jónsson Qigong-kennari. Í viðtali við Ásdísi Olsen útskýrir hann kínverska heilsutækni.
Thu, 24 Sep 2026 - 5h 15min - 1443 - Rauða borðið 23. sept - Kynjastríð, okur, Kína, Evrópa og áföllWed, 23 Sep 2026 - 3h 31min
- 1442 - Rauða borðið 22. sept - Efnahagsmál, gunguháttur, ný skáldsaga, Grænland og næring
Þriðjudagur 22. september Efnahagsmál, gunguháttur, ný skáldsaga, Grænland og næring Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur Visku og Ragnar Sigurður Kristjánsson hagfræðingur Viðskiptaráðs ræða við Gunnar Smára um fjárlögin og efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar og hætturnar í efnahaginum þar sem verðbólga, vaxandi atvinnuleysi og merki um stöðnun draga um dökka mynd. Auka þarf kröfur til skólabarna, segir Sverrir Norland rithöfundur, bankamaður og lögfræðingur. Hann ræðir hugrekki og aumingjaskap og ýmislegt þar á milli í samtali við Björn Þorláks. Margrét Bjarnadóttir danshöfundur, myndlistarmaður, leikhúskona og margt fleira hefur sent frá sér skáldsöguna Varkár, sem er einskonar skáldævisaga og fjallar um konu sem heitir Margrét og lifir lífi sem er líkt lífi höfundarins. Margrét segir Gunnari Smára frá bókinni og sjálfum sér, og muninum á þessu tvennu. Rasmus Gjedssø Bertelsen prófessor í Tromsø ræðir við Gunnar Smára um ásælni Trump til Grænlands, varnarsamninga Grænlands og Ísland, tengingu Kanada til Evrópu og hverju það kann að breyta fyrir okkur og norðurslóðir. Ásdís Olsen ræðir við Elísabetu Reynisdóttur (Beta Reynis), næringarþerapisti og næringarfræðing um togstreitu við akademíuna og hvernig hún hefur leyst úr áföllum og lært lexíur.
Tue, 22 Sep 2026 - 4h 56min - 1441 - Rauða borðið 21. sept - Pólitík, stefnumótamenning, PISA, atkvæðavægi og Lalli Johns
Mánudagur 21. september Pólitík, stefnumótamenning, PISA, atkvæðavægi og Lalli Johns Guðmundur Ari Sigurjónsson er með metnað til að verða varaformaður Samfylkingarinnar þrátt fyrir ungan aldur og stutta þingreynslu. Hann hefur áður hent sér út í djúpa laug og ræðir baráttuna, sigra og töp í samtali við Björn Þorláks. „Karlar hræðast mest að konan líti verr út en á myndinni, en konur hræðast að vera drepnar,“ segir Olga Björt Þórðardóttir, sem hefur opinberlega kallað eftir “góðum mönnum”. Auðunn Gunnar Eiríksson, stjórnunarráðgjafi hjá Gallup, miðlar athyglisverðri Tinder-tölfræði, en tölur sýna að stór hluti karlmanna á Tinder er giftur eða í sambandi. Þau ræða við Ásdísi Olsen.Benedikt Sigurðarson, fyrrum skólastjóri, ræðir PISA í samtali við Björn Þorláks. Ekki er allt sem sýnist í því máli, segir Benedikt. Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur bregst við gagnrýni sem komið hefur fram á vinnu sem ætlað er að jafna atkvæðavægi. Björn Þorláks ræðir við hann. Rósa Ólöf Ólafíudóttir hefur skrifað bók um bróður sinn, Lárus Björn Svavarsson, sem er það sem kallast þjóðsagnapersóna. Hún segir Gunnari Smára frá Lalla Johns.
Mon, 21 Sep 2026 - 4h 23min - 1440 - Synir Egils 20. sept - Evrópa og Bandaríkin, skattar, kjarabarátta, húsnæði, pólitík
Sunnudagurinn 20. september Synir Egils: Evrópa og Bandaríkin, skattar, kjarabarátta, húsnæði, pólitík Til okkar koma á vettvang dagsins Árni Helgason þingmaður, Líf Magneudóttir borgarfulltrúi og Margrét Helga Erlingsdóttir sjónvarpskona og ræða fréttir vikunnar og ástand samfélagsins og síðan þeir Jónas Atli Gunnarsson hagfræðingur Húsnæðis og mannvirkjastofnunar, Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra og Yngvi Ómar Sigrúnarson formaður Leigjendasamtakanna að ræða húsnæðismál, en slæm staða þeirra hefur drifið áfram verðbólgu og grafið undan lífskjörum leigjenda mörg undanfarin ár. Er von um breytingu? Í lokin fara þeir bræðir, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.
Sun, 20 Sep 2026 - 2h 26min - 1439 - Rauða borðið - Helgi-spjall: Ása Berglind
Laugardagur 19. september Helgi-spjall: Ása Berglind Ása Berglind Hjálmarsdóttir þingkona fyrir Samfylkinguna var gestur Sigurjóns Magnúsar í Helgispjallinu þessa helgina. Ása Berglind á rætur í tónlist og spilar til að mynda á trompet. Ása Berglind segir af sjálfri sér og uppvextinum, hvernig það er að verða móðir aðeins 17 ára, frá störfum sínum í bæjarstjórn Þorlákshafnar og frá störfum sínum á Alþingi og hvað henni þykir um Kristrúnu Frostadóttur.
Sat, 19 Sep 2026 - 1h 18min - 1438 - Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 38
Föstudagur 18. september Vikuskammtur: Vika 38 Dóra Jóhannsdóttir leikkona og leikstjóri, Freyr Eyjólfsson öskukarl og poppari, Hólmfríður Gísladóttir fréttakona og Nína Helgadóttir fulltrúi í málsvarastarfi Rauða kross Íslands koma í Vikuskammt og ræða fréttir vikunnar við Gunnar Smára, fréttir sem einkenndust af átökum, deilum og upplausn, stríðum, mögulegum heimsenda og langdrægnum markmiðum.
Fri, 18 Sep 2026 - 1h 44min - 1437 - Rauða borðið 17. sept - Laxeldisskaði, reynsluboltar, kannabis, laxveiði og heildræn heilsa
Fimmtudagur 17. september Laxeldisskaði, reynsluboltar, kannabis, laxveiði og heildræn heilsa Jóhannes Sturlaugsson fiskifræðingur ræðir hvers vegna opinberar stofnanir hundsa íbúalýðræði og náttúruvernd. Björn Þorláks ræðir við hann. Ragnheiður Davíðsdóttir, Hákon Gunnarsson og Þorsteinn Sæmundsson voru gestir í Reynsluboltum Sigurjóns. Að venju var víða komið við. Kannski stal Donald Trump senunni með öllum sínum tilskipunum. Ýmislegt fleira bar þó á góma. Dr. Magnús Thorson segir Ásdísi Olsen allt um Cannabis Entrepreneurship. Gunnar Bender, ritstjóri Sportveiðiblaðsins, kom og sagði okkur frá veiði sumarsins. Hvar veiðimenn voru kátastir með aflann og hvar ekki. Einn dagur í góðri á kostar frá 4 til 500 þúsund krónur. Heildræn heilsuhátíð fer fram í Mosfellsbæ um helgina í 16. sinn, þar sem boðið er upp á allskonar andlegt og óhefðbundið, skrítið og skemmtilegt. Vigdís Steinþórsdóttir, hjúkrunarfræðingur og fyrrilífsdáleiðari segir Ásdísi Olsen frá því helsta sem verður á dagskrá.
Thu, 17 Sep 2026 - 4h 05min - 1436 - Rauða borðið 16. sept - Gervigreind, einræði, kosningar, hugvíkkandi og Ingimar Eydal
Miðvikudagur 16. september Gervigreind, einræði, kosningar, hugvíkkandi og Ingimar Eydal Kristinn Rúnar Þórisson prófessor í tölvuvísindum við HR ræðir um gervigreind við Gunnar Smára, hvort tæknin geti vaxið manninum yfir höfuð og eytt honum. Björn Bjarnason fyrrum þingmaður og ráðherra sendir frá sér þrjár þýðingar í ár, allt á bókum sem fjalla um breytta stöðu heimsmála. Hann segir Gunnari Smára frá þessum bókum og einkum Einræði hf. eftir Anne Applebaum. Henry Alexander Henrysson heimspekingur svarar Birni Þorláks hvort það sé í lagi að ljúga til að ná fram niðurstöðu í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þórarinn Ævarsson athafnamaður segir Ásdísi Ólsen frá glíma sinni við OxyContin-fíkn, skömmina og óttann og sátt við föður sinn. Jón Ólafsson tónlistarmaður ræðir hljómsveit Ingimars Eydal við Björn Þorláks, sveit sem átti sér engan líka.
Wed, 16 Sep 2026 - 3h 40min - 1435 - Rauða borðið 15. sept - Flugvirkjar, Trump, baktal, sundrung og hrakvæðing
Þriðjudagur 15. september Flugvirkjar, Trump, baktal, sundrung og hrakvæðing Flugvirkjar hafa boðað verkfall og mikið ber á milli þeirra og Icelandair. Óskar Einarsson formaður Flugvirkjafélags Íslands skýrir stöðuna fyrir Gunnari Smára. Brynja Elísabeth Halldórsdóttir dósent við menntavísindasvið, Magnús Helgason sagnfræðingur og Bjarni Randver Sigurvinsson trúarbragða- og guðfræðingur ræða við Gunnar Smára um áhrif Trump á samfélagið og heiminn. Baktal er hreinlega líkamlega skaðlegt, líkt og um útskúfun sé að ræða segir Lára G. Sigurðardóttir læknir og nemi í taugavísindum í samtali við Ásdísi Olsen. Jón Kaldal blaðamaður ræðir sundrungu innanlands og utan og hvernig öfl róa að því að tvístra fólki. Hann varar við málflutningi sem ætlað er að skapa gjá milli landsbyggðanna og höfuðborgarsvæðisins. Björn Þorláks ræðir við hann. Breki Karlsson ræðir illa þokkuð gjöld og hvort dómur sem féll í Noregi gæti orðið íslenskum neytendum búbót. Svokallaða hrakvæðingu ber einnig á góma. Hvað er það? Björn Þorláks ræðir við Breka.
Tue, 15 Sep 2026 - 3h 34min - 1434 - Rauða borðið 14. sept - Laxeldishneyksli, skólinn og PISA, Ísland Trumps og jóga
Mánudagur 14. september Laxeldishneyksli, skólinn og PISA, Ísland Trumps og jóga Jódís Skúladóttir fyrrum þingmaður og sveitarstjórnarfulltrúi á Austurlandi gagnrýnir suma fyrrverandi félaga í VG harðlega í tengslum við áform um laxeldi á Seyðisfirði. Björn Þorláks ræðir við Jódísi. Anna Kristín Sigurðardóttir prófessor á menntavísindasviði ræðir við Gunnar Smára um stöðuna á grunnskólanum í ljósi PISA. Stjórnskipuleg, söguleg, þjóðréttarleg og leikjafræðileg álitamál verða til umfjöllunar vegna áhuga Trump á að Ísland verði eitt af fylkjum Bandaríkjanna. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir við Björn Þorláks. Skúli Sigurðsson jógakennari er giftur inn í eina merkilegustu jógafjölskyldu heims. Eiginkona Skúla, dr. Kamini Desai, er merkilegur frumkvöðull sem starfar víða um heim og hefur kennt hundruðum Íslendinga Yoga Nidra. Skúli segir frá einstakri ástarsögu þeirra Kamini í samtali við Ásdísi Olsen.
Mon, 14 Sep 2026 - 3h 40min - 1433 - Synir Egils 13. sept - Æskan, þingið, kjaramál, utanríkis- og öryggismál
Sunnudagurinn 13. september Synir Egils: Æskan, þingið, kjaramál, utanríkis- og öryggismál Þau koma og ræða fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins þau Rósa Björk Brynjólfsdóttir formaður Vg, Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélags Íslands og Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda; PISA, fjárlagafrumvarp, stefnuræðu, landakort Trump, EES og bókun 35, aðgerðir ríkisstjórnar vegna kjarasamninga, fjölmiðla og fleira. Síðan koma að ræða öryggis- og utanríkismál þau Dagur B. Eggertsson þingmaður, Albert Jónsson fyrrum sendiherra og Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur í ljósi niðurstöðu þjóðaratkvæðis og landakorts og símtals Donald Trump. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.
Sun, 13 Sep 2026 - 2h 20min - 1432 - Rauða borðið - Helgi-spjall: Lýður Árna
Laugardagur 12. september Helgi-spjall: Lýður Árna Lýður Árnason læknir er litríkur persónuleiki sem hefur komið víða við. Hann ræðir sjálfan sig, læknisfræðina, pólitík og samfélagið í helgi-spjalli við Björn Þorláks.
Sat, 12 Sep 2026 - 1h 46min - 1431 - Föstudagur 11. september - Vikuskammtur: Vika 37
Föstudagur 11. september Vikuskammtur: Vika 37 Þóroddur Bjarnason félagsfræðiprófessor, Valgerður Árnadóttir aktívisti, Lísa Margrét Gunnarsdóttir stúdent og Bubbi, nemi við Verzló, ræða við Björn Þorláks um fréttir vikunnar. Verður Ísland innlimað í Bandaríkin? Eru nemendur í háskólanum að verða vitlausari og vitlausari? Hvert stefnir ríkisstjórnin? Þessi mál og fleiri til umræðu.
Fri, 11 Sep 2026 - 1h 17min - 1430 - Rauða borðið 10. sept - Reynsluboltar, heimsmálin, íslenskan, Þórir og skaflinn í Esjunni
Fimmtudagur 10. september Reynsluboltar, heimsmálin, íslenskan, Þórir og skaflinn í Esjunni Erna Indriðadóttir, Helga Jónsdóttir og Magnús Stefánsson voru reynsluboltarnir að þessu sinni. farið yfir stefnuræðu forsætisráðherra og mál tengd henni, stöðu Reykjavíkurborgar, mismunin á þéttbýlinu og landsbyggðinni, ESB kosningarnar og ýmislegt annað. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um heimsmálin og ekki síst Trump; viðskiptastríð hans við Kanada og viðbrögð íslenskra stjórnvalda við korti sem hann dundaði sér við að gera. Rithöfundar eru enn og aftur settir í óvissu vegna niðurskurðar á bókasafnssjóði. Rithöfundarnir Margrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambandsins, og Kristín Helga Gunnarsdóttir fyrrverandi formaður Rithöfundarsambandsins, komu og töluðu um óvissu um afkomu rithöfunda. Þórir Baldursson er að fara að gefa út tvær plötur og halda tónleika með Gömmum, gamla tónlist sem hann fann í fórum sínum. Hann kom við á Samstöðinni og ræddi við Gunnar Smára. Sigurpáll Ingibergsson, áhugamaður um íslenska jökla, ræðir við Björn Þorláks um skaflinn í Esju og válegar vísbendingar í umhverfismálum. Líkur eru á að skaflinn gufi upp næsta mánudag.
Thu, 10 Sep 2026 - 3h 16min - 1429 - Rauða borðið 9. sept - Uppsagnir, Svíþjóð, geðveiki, gervigreind og íþróttir
Miðvikudagur 9. september Uppsagnir, Svíþjóð, geðveiki, gervigreind og íþróttir Uppsagnir hjá Reykjavíkurborg munu án efa skerða viðkvæma þjónustu við börn og ungmenni og auka hættu á ójöfnuði. Þetta segir Árni Gunnarsson forvarnafulltrúi í samtali við Björn Þorláks. Kristján Sigurjónsson ritstjóri FF7 ræðir við Gunnar Smára um kosningarnar í Svíþjóð, sem verða um helgina. Verða stjórnarskipti? Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir snýr aftur á Samstöðina eftir hlé og ræðir ásamt Birni Þorláks álitamál í geðheilbrigðisþjónustu. Bergur Ebbi Benediktsson, höfundur, fyrirlesari og uppistandari, segir Gunnari Smára frá nýju bókinni sinni sem fjallar um mennsku og gervigreind. Sigurjón Magnús Egilsson ræðir við Víði Sigurðsson íþróttasérfræðing um fótbolta.
Wed, 9 Sep 2026 - 3h 57min - 1428 - Rauða borðið 8. sept - PISA, Trumptíminn, fjárlög, sjónvarpsfréttir og hvalveiðar
Þriðjudagur 8. september PISA, Trumptíminn, fjárlög, sjónvarpsfréttir og hvalveiðar Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandsins, og Sigurður Sigurðsson, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla, koma til okkar til að ræða nýjustu PISA-könnunina. Friðjón R. Friðjónsson varaborgarfulltrúi, Ólafur Þ. Harðarson prófessor velta fyrir sér í spjalli við Gunnar Smára hvað Trump er að hugsa og hvað hann ætli að gera. Þingmennirnir Sigurjón Þórðarson, formaður fjárlaganefndar, og Stefán Vagn Stefánsson, annar varaformaður nefndarinnar, mæta til að ræða fjárlög ríkisstjórnarinnar. Víst er að þeir eru fjarri því að vera sammála. Sigmundur Ernir Rúnarsson, eitt þekktasta andlit sjónvarpsfrétta sögunnar, ræðir einokunarstöðu Rúv í sjónvarpsfréttum. Hann ræðir einnig þingveturinn fram undan og svartar niðurstöður PISA í samtali við Björn Þorláks. Sú óvænta staða er uppi að allir þingflokksformenn flokka sem eiga sæti á Alþingi lýsa yfir stuðningi við hvalveiðar. Samt er stefna Samfylkingarinnar að hætta hvalveiðum. Valgerður Árnadóttir hvalavinur ræðir þessa þversögn í samtali við Björn Þorláks.
Tue, 8 Sep 2026 - 3h 32min - 1427 - Rauða borðið 7. sept - Gulur september, Bretland, kynjafræði, Skattland og Jónsi
Mánudagur 7. september Gulur september, Bretland, kynjafræði, Skattland og Jónsi Margt bendir til að hefðbundin nálgun heilbrigðiskerfisins dugi ekki í öllum tilvikum gagnvart þeim sem líður illa andlega. Of mikil áhersla er á lyfjagjöf. Sjálfsvíg eru þjóðarmein. Auður Axelsdóttir hjá Hugarafli ræðir við Björn Þorláksson. Guðmundur Auðunsson hagfræðingur fer yfir helstu fréttir í Bretlandi með Gunnari Smára; landsfund Umbótaflokksins, dauða Jason Arday og fyrstu daga nýs forsætisráðherra. Kvenska og karlmennska voru til umræðu í viðtali Ásdísar Ólsen við Hönnu Björk Vilhjálmsdóttur, brautryðjanda í kynjafræði framhaldsskólanna. Þar kom fram að reiði og ofbeldi geta verið afleiðing af tilfinningabælingu hjá strákum. Einnig var rætt um kvensku og mæðrahyggja, og hve mikilvægt er að allir uppeldisaðilar séu meðvitaðir um kynjaskekkjurnar. Sverrir Jakobsson prófessor segir Gunnari Smára frá myndun ríkisvalds á Íslandi og fyrstu öldum landsins undir Noregskóngi. Kórstjórarnir Sunna Karen Einarsdóttir og Magnús Ragnarsson ræða gildi söngsins, Jón Stefánsson organista og kórstjóra; arfleifð hans, tónleika og minningasjóð. Björn Þorláks ræðir við þau.
Mon, 7 Sep 2026 - 5h 18min - 1426 - Synir Egils 6. sept - Ísland og Evrópa, kjarasamningar, fjölmiðlar og Alþingi
Sunnudagurinn 6. september Synir Egils: Ísland og Evrópa, kjarasamningar, fjölmiðlar og Alþingi Drífa Snædal talskona Stígamóta, María Sigrún Hilmarsdóttir fréttakona og Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar mæta á vettvang dagsins og ræða fréttir og stöðu samfélagsins. Síðan kemur Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknar og þingmennirnir Grímur Grímsson, Arna Lára Jónsdóttir og Ólafur Adolfsson og ræða stöðu mála, flokka og ríkisstjórnar við upphaf haustþings. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.
Sun, 6 Sep 2026 - 2h 21min - 1425 - Rauða borðið - Helgi-spjall: Guðrún Ágústa
Laugardagur 5. september Helgi-spjall: Guðrún Ágústa Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Samhjálpar, hefur frá mörgu að segja. Hún trúir á Jesús og er skírð í Fíladelfíu. Hún hefur víða komið við. Sat i bæjarstjórn Hafnarfjarðar og varð fyrsta konan til að vera bæjarstjóri þar. Sem framkvæmdastjóri Samhjálpar hefur hún mætt miklu andstreymi vegna kaffistofu Samhjálpar sem átti að verða við Grensásveg en flutningur þangað stöðvaður á síðustu stundu. Þetta og svo margt annað ber á góma.
Sat, 5 Sep 2026 - 1h 32min - 1424 - Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 36
Föstudagur 4. september Vikuskammtur: Vika 36 Eva Halldóra Guðmundsdóttir sviðslistakona, Magnús Scheving frumkvöðull, Rakel Garðarsdóttir framkvæmdastýra Vesturports og Sigurlaug Didda Jónsdóttir skáldkona ræða við Gunnar Smára um fréttir vikunnar sem einkendust af sigrum og svekkelsi, verðbólgu og hækkandi vöxtum, slysum, rannsóknarheimildum, listum og menningu.
Fri, 4 Sep 2026 - 1h 49min - 1423 - Rauða borðið 3. sept - Vald hinna veiku, drengirnir, áfallameðferð og Þýskaland
Fimmtudagur 3. september Vald hinna veiku, drengirnir, áfallameðferð og Þýskaland Guðni Th. Jóhannesson prófessor ræðir við Gunnar Smára um þorskastríðin í tilefni að útgáfu bókar hans um útfærslu landhelginnar í 50 mílur. Tryggvi Hjaltason hefur gert sig gildandi í umræðu um æsku og skólamál. Hann lýsir afstöðu sinni í samtali við Gunnar Smára. Nú er í boði sérhæfð tíu vikna áfallameðferð fyrir konur sem glíma við fíkn, kvíða, þunglyndi og skömm, en Margrét Louise Gunnarsdóttir sálmeðferðarfræðingur og Harpa Katrín Gísladóttir sálfræðingur leiða námskeiðið á vegum Rótarinnar og Grænuhlíðar. Ásdís Olsen ræðir við þær. Jóhanna Ýr Bjarnadóttir doktor í stjórnmálafræði í Berlín ræðir við Gunnar Smára um kosningar í Saxony-Anhalt þar sem flest bendir til stórsigurs AfD, Valkost fyrir Þýskaland, sem er flokkur útlendingaandúðar yst á hægrinu.
Thu, 3 Sep 2026 - 3h 58min - 1422 - Rauða borðið 2. sept - Reynsluboltar, uppsagnir, Eiríkur, utanríkisstefna, bekkurinn og hrós
Miðvikudagur 2. september Reynsluboltar, uppsagnir, Eiríkur, utanríkisstefna, bekkurinn og hrós Þórunn Sigurðardóttir, Þröstur Ólafsson og Guðmundur Þ. Ragnarsson ræða helstu mál samfélagsins við Sigurjón Magnús. Kári Sigurðsson formaður Sameykis ræðir uppsagnir hjá Reykjavíkurborg og stöðu kjarasamninga við Gunnar Smára. Jón Kalman rithöfundur ræðir bók, Maríuklefann, sem er að koma út eftir Eirík Guðmundsson, útvarpsmann. Jón ritar eftirmála að bókinni og lýsir fyrir Birni Þorláks hvers konar rit er um að ræða. Eiríkur lést um aldur fram fyrir nokkrum árum. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um áhrif þjóðaratkvæðagreiðslunnar á utanríkisstefnu Íslands. Ættu stjórnvöld að draga úr samþættingu stefnunnar við stefnu Evrópusambandsins? Víðir Sigurðsson ræðir íslenska knattspyrnu við Sigurjón Magnús. Þar er af nógu að taka þegar Íslandsmótið stendur hvað hæst. Við getum verið miklu meira vakandi fyrir því sem vel er gert og þjálfað taugabrautir í heilanum til að sjá það góða og fallega í lífinu, segir Ingrid Khulman. Hún hræðir við Ásdísi Olsen og kennir okkur að hrósa.
Wed, 2 Sep 2026 - 4h 48min - 1421 - Rauða borðið 1. sept - Gengisfelling, sjónvarpsfréttafall, tíðindi dagsins, þunglyndi og Sinfó
Þriðjudagur 1. september Gengisfelling, sjónvarpsfréttafall, tíðindi dagsins, þunglyndi og Sinfó Benedikt Jóhannesson, stofnandi Viðreisnar, segir að fram undan sé stór gengisfelling. Krónan sé allt of sterk. Hann ráðleggur fólki að flytja peningana sína yfir í aðra mynt. Hann ræðir þetta mál og úrslit Evrópukosningarinnar í samtali við Sigurjón Magnús Heimir Már Pétursson og Lára Ómarsdóttir, fyrrverandi fréttamenn á fréttastofu Stöðvar 2/Sýnar, ræða við Björn Þorláks og Sigurjón Magnús þá stöðu sem upp er komin að sjónvarpsfréttir keppinautar Rúv heyra sögunni til. Hvaða áhrif verða af því á samfélagið? Ingibjörg Ottesen eldri borgari, Björk Vilhelmsdóttir félagsráðgjafi og Kristín Erna Arnardóttir hjá Sameyki ræða fréttir líðandi stundar. Þórný Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur fann leið út úr alvarlegu þunglyndi og segir Ásdísi Olsen frá því. Guðni Tómasson, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, ræðir nýjan aðalhljómsveitarstjóra, Barböru Hannigan, og fer yfir hluta af dagskrá sveitarinnar fram að áramótum. Sól Björnsdóttir og Björn Þorláks ræða við Guðna.
Tue, 1 Sep 2026 - 4h 12min - 1420 - Rauða borðið 31. ágúst - Eftir kosningar, Stuðlagil, Trump, Landhelgisgæsla og uppsagnir
Mánudagur 31. ágúst Eftir kosningar, Stuðlagil, Trump, Landhelgisgæsla og uppsagnir Gunnar Smári ræðir við fólk með víðtæka reynslu úr stjórnmálum og fjölmiðlum um stöðu stjórnmála og samfélags eftir niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslu um Evrópusambandið. Páll Ásgeir Ásgeirsson leiðsögumaður ræðir öryggismál í Stuðlagili. Hann segir samspil nokkurra þátta kunna að skýra banaslys við náttúruperlur. Björn Þorláks ræðir við Pál. Það er stutt í mikilvægar þingkosningar í Bandaríkjunum og við endurvekjum af þeim sökum upp Trumptímann. Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur og Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur ræða við Gunnar Smára um Trump, komandi kosningar, áhrif Trump á Evrópu og Evrópusambandið, viðskiptastríð við Kanada o.s.frv. Persónulegt viðtal við forseta Landhelgisgæslunnar, Georg Lárusson, sem útskýrir brestina í röddinni sinni og hvernig hann þarf stundum að berja í borð til að fá hlustun. Georg rifjar upp hvernig var að alast upp í einangrun á prestsetri í Önundarfirði, þar sem varðskip kom oft til bjargar. Hann fagnar 20 ára starfsafmæli og segist vera í draumastarfinu sínu í viðtali við Ásdísi Olsen. Valgeir Þór Jakobsson hjá Samfés ræðir við Björn Þorláks um uppsagnir á velferðar- og frístundasviði hjá borginni. Hann fordæmir öfugþróun og tekur undir áhyggjur lögreglu f vaxandi unglingadrykkju.
Mon, 31 Aug 2026 - 4h 29min - 1418 - Synir Egils 30. ágúst - Dagurinn eftir þjóðaratkvæði
Sunnudagurinn 30. ágúst Synir Egils: Dagurinn eftir þjóðaratkvæði Við förum yfir stöðu samfélagsins daginn eftir þjóðaratkvæði um Evrópusambandið. Fyrst með þeim Kristján Kristjánssyni fyrrum umsjónarmanns Sprengisands, nú umsjónarmanns Kastljóss, Aðalsteini Kjartanssyni aðstoðarritstjóra Heimildarinnar og Sirrý Hallgríms fyrrverandi aðstoðarkonu ráðherra. Síðan koma þingkonurnar Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, María Rut Kristinsdóttir, Dagbjört Hákonardóttir og Rósa Guðbjartsdóttir og meta áhrifin af niðurstöðunni. Þá fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.
Sun, 30 Aug 2026 - 2h 13min - 1417 - Rauða borðið - Helgi-spjall: Guðrún Karls Helgu
Laugardagur 29. ágúst Helgi-spjall: Guðrún Karls Helgu Guðrún Karls Helgudóttir biskup ræðir lífið, trúna, samfélagið, sjálfa sig, kirkjuna og fleiri andans mál í helgispjalli við Björn Þorláks.
Sat, 29 Aug 2026 - 1h 05min - 1416 - Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 35
Föstudagur 28. ágúst Vikuskammtur: Vika 35 Við förum yfir fréttir vikunnar með góðum hópi fólks; Guðmundur Ingi Þorvaldsson leikari, Hlédís Maren Guðmundsdóttir varaborgarfulltrúi, Hrönn Sveinsdóttir bíóstjóri og Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir sviðslistakona ræða við Gunnar Smára um fréttir sem einkennast af spennu, átökum og von um góða niðurstöðu.
Fri, 28 Aug 2026 - 1h 42min - 1415 - Rauða borðið - 27. ágúst Reynsluboltar, vinnueftirlit, lagahorn og sagnfræði
Fimmtudagur 27. ágúst Reynsluboltar, vinnueftirlit, lagahorn og sagnfræði Kristín Ástgeirsdóttir, fyrrum þingkona, Sigurður Már Jónsson blaðamaður og Sigurður Þór Salvarsson blaðamaður eru gestir Sigurjóns Magnúsar. Evrópumál, uppsagnir hjá borginni og önnur fréttamál ber á góma. Steinar Harðarson, fyrrum svæðisstjóri vinnueftirlits, ræðir sögu vinnuverndar í samtali við Björn Þorláks. Hann segir að umbætur hafi að jafnaði komið að utan. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir álitamál í Evrópurétti og hvaða breytingar gætu orðið til góðs eða ills ef Ísland yrði aðili að Evrópusambandinu. Björn Þorláks ræðir við hann. Valur Gunnarsson sagnfræðingur og rithöfundur ræðir árin frá seinni stríði í Evrópu. Þeir sem nú hamast mest gegn ESB myndu verða þeir fyrstu til að krefjast aðstoðar þaðan ef eitthvað hræðilegt myndi gerast hérlendis, segir Valur í samtali við Björn Þorláks.
Thu, 27 Aug 2026 - 3h 06min - 1414 - Rauða borðið 26. ágúst - ESB, samvinna, Múlakaffi, samræðusiðfræði og kennarar
Miðvikudagur 26. ágúst ESB, samvinna,, Múlakaffi, samræðusiðfræði og kennarar Svandís Svavarsdóttir fyrrum ráðherra, þingmaður, borgarfulltrúi og formaður VG segir Gunnari Smára hvers vegna hún ætlar að segja nei á laugardaginn. Þóroddur Ingvarsson svæfingalæknir á Akureyri ræðir mikilvægi alþjóðlegrar samvinnu í tengslum við björgun sjúklinga og tengir við þjóðaratkvæðagreiðsluna fram undan. Björn Þorláks ræðir við hann. Allir viðmælendur Samstöðvarinnar í slembiúrtaki á Múlakaffi ætla að kjósa eins á laugardag. Björn Þorláks og Pétur Fjeldsted kynntu sér raddir fullorðinna karla. Vilhjálmur Árnason prófessor ræðir við Gunnar Smára um samræðusiðfræði, gildi samtalsins fyrir mennskuna og samfélagið og hvað gerist þegar við týnum samræðunni. Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, telur ekki ástæðu til að kennarar biðjist afsökunar á bágri frammistöðu nemenda skv. Pisa. Björn Þorláks ræðir við hann um raddir þar að lútandi og mörg önnur mál sem varða skólastarf.
Wed, 26 Aug 2026 - 4h 00min - 1413 - Rauða borðið 25. ágúst - Fréttir dagsins, heilbrigðismál, sakhæfisaldur og vending
Þriðjudagur 25. ágúst Fréttir dagsins, heilbrigðismál, sakhæfisaldur og vending Nei eða já í Evrópukosningunni, uppsagnir í borginni, menntamál og fleira verður krufið í fréttaspjalli Björns Þorlákssonar við Jón Trausta Reynisson blaðamann, Lárus Guðmundsson athafnamann og Margréti Tryggvadóttur rithöfund. Brýn þörf er á að auka við hjúkrunarrými og legupláss. En hvaða fólk á að starfa þar? Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, og Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, hittu Sigurjón Magnús. Að lækka sakhæfisaldur minnkar ekki endilega glæpi heldur þvert á móti. Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur ræðir við Björn Þorláks um skref Svía að fara niður í 14 ár. Tinna Gunnlaugsdóttir leikkona fór í háskólanám eftir að hafa verið Þjóðeikhússtjóri og ver doktorsritgerð sína á næstu dögum. Hún segir Gunnari Smára frá náminu, þýðingum, leikhúsi og lífinu.
Tue, 25 Aug 2026 - 3h 24min - 1412 - Rauða borðið 24. ágúst - ESB, já eða nei, evra, króna og allt það
Mánudagur 24. ágúst ESB, já eða nei, evra, króna og allt það Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar útskýrir fyrir Gunnari Smára hvers vegna hún ætlar að segja nei á laugardaginn. Er ESB bandalag hnignunar eða á minni hagvöxtur sér eðlilegar skýringar? Jean-Rémi Chareyre, sjálfstætt starfandi blaðamaður, ræðir við Björn Þorláksson. Ólafur Margeirsson hagfræðingur í Sviss ræðir ESB við Gunnar Smára, en Sviss er bæði utan ESB og EES. Auðunn Arnórsson alþjóðastjórnmálafræðingur ræðir ESB-mál en hann segir að kosningin um næstu helgi gjaldi fyrir veika fjölmiðlun hér á landi. Björn Þorláks ræðir við hann.
Mon, 24 Aug 2026 - 3h 18min - 1411 - Synir Egils 23. ágúst - Ísland og Evrópusambandið, staða og horfur
Sunnudagurinn 23. ágúst Synir Egils: Ísland og Evrópusambandið, staða og horfur Við ræðum fréttir og stöðu samfélagsins við Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur og þrjá prófessora: Sigrún Ólafsdóttur félagsfræðing og stjórnmálafræðingana Evu H. Önnudóttur og Eiríki Bergmann. Síðan reyna þingmennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson og Pawel Bartoszek að sannfæra okkur að segja nei eða já í þjóðaratkvæðagreiðslunni næsta laugardag. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.
Sun, 23 Aug 2026 - 2h 10min - 1410 - Rauða borðið - Helgi-spjall: Óttar Guðmunds
Laugardagur 22. ágúst Helgi-spjall: Óttar Guðmunds Óttar Guðmundsson geðlæknir kemur í Helgi-spjall og segir okkur frá æsku sinni og uppruna, mótunarárum og því ýtti undir þroska hans og hefti hann.
Sat, 22 Aug 2026 - 2h 33min - 1409 - Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 34
Föstudagur 21. ágúst Vikuskammtur: Vika 34 Þau koma að Rauða borðinu Hallveig Rúnarsdóttir sópran, Bragi Páll Sigurðsson rithöfundur, Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi og Samúel Guðmundsson, smíðanemi, dyravörður og trommari og ræða við Gunnar Smára um fréttir vikunnar sem einkenndust af hækkandi vöxtum og matarverði, Evrópudeilum, kjaradeilum og öðru þjarki en líka sigrum og árangri.
Fri, 21 Aug 2026 - 1h 32min - 1408 - Rauða borðið 20. ágúst - Fréttir dagsins, Evrópumál, bráðnun jökla og menntamál
Fimmtudagur 20. ágúst Fréttir dagsins, Evrópumál, bráðnun jökla og menntamál Oddný Harðardóttir, fyrrum þingkona, Yngvi Ómar Sigrúnarson formaður Leigjendasamtakanna og Anton Helgi Jónsson skáld ræða Evrópukosninguna fram undan, ofurvexti, Menningarnótt fram undan og fleira. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Ragnar Baldursson stjórnmála- og Kínafræðingur ræðir við Gunnar Smára um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu og stöðu Íslands í breyttum heimi. Guðfinna Aðalgeirsdóttir, prófessor í jarðvísindadeild, segir Gunnari Smára frá rannsóknum sínum á áhrifum loftlagsbreytinga á jökla og afleiðingum af bráðnun jökla. Örn Valdimarsson kennari vill breyta stærðfræðikennslu með tækninýjungum og gervigreind. Hann ræðir við Björn Þorláks.
Thu, 20 Aug 2026 - 3h 26min - 1407 - Rauða borðið 19. ágúst - ESB, refur, vextir, áfengissala og Fjalla Eyvindur
Miðvikudagur 19. ágúst ESB, refur, vextir, áfengissala og Fjalla Eyvindur Gunnar Smári ræðir við Bjarka Þór Grönfeldt stjórnmálasálfræðing um hvað veldur því að einn ætlar að segja já en annar nei út frá sömu greiningum á stöðu mála. Ester Rut Unnsteinsdóttir líffræðingur er sérfræðingur í refastofninum á Íslandi. Að auki fylgist hún með stöðu annarra spendýra, svo sem minks og fugla. Hún ræðir við Sigurjón Magnús. Ingibjörg Ottesen, manneskja úti í bæ, fer yfir Evrópumál og einnig vaxtaákvörðun Seðlabankans, sem enn hækkar vexti. Björn Þorláks ræðir við hana. Margt bendir til bakslags til langframa gagnvart lýðheilsu ekki síst ungmenna í áfengis- og vímuvarnamálum hér á landi. Björn Þorláks ræðir við Árna Guðmundsson forvarnafulltrúa. Páll Ásgeir Ásgeirsson náttúruunnandi blandar saman sólmyrkva, Fjalla Eyvindi og Evrópukosningunni í samtali við Björn Þorláks. Hann varð vitni að undri á sjó á Vestfjörðum.
Wed, 19 Aug 2026 - 4h 01min - 1406 - Rauða borðið 19. ágúst - Hvalir og kvalir, ESB: já, nei og orðræðan og tónlistarkeppnir
Þriðjudagur 18. ágúst Hvalir og kvalir, ESB: já, nei og orðræðan og tónlistarkeppnir Rósa Líf Darradóttir læknir og hvalavinur ræðir ákvörðun Kristjáns Loftssonar að hætta að reyna að selja Japönum hvalkjöt en stefna þess í stað að framleiðslu á járnpillum. Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar ræðir við Gunnar Smára kosti og galla aðildar Íslands að ESB. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor heldur áfram umræðunni og ræðir við Gunnar Smára um Evrópusambandið og áhrif þess á aðildarríkin. Margt er skuggalegt í orðræðu Íslendinga fyrir Evrópukosninguna í lok mánaðarins. Sabine Leskopf, fyrrum borgarfulltrúi, ræðir sem innflytjandi hvernig hún upplifir sum viðhorf Íslendinga gagnvart umheiminum. Björn Þorláks ræðir við Sabine. Doktor Nína Margrét Grímsdóttir ræðir alþjóðlegar tónlistarkeppnir á Íslandi við Björn Þorláks en einni slíkri er nýlokið í Salnum í Kópavogi.
Tue, 18 Aug 2026 - 4h 35min - 1405 - Rauða borðið 17. ágúst - ESB, nei eða já, menning, umhverfismál og köngulær
Mánudagur 17. ágúst ESB, nei eða já, menning, umhverfismál og köngulær Væri umhverfismálum Íslendinga betur borgið ef Íslendingar nytu aðildar að ESB? Þessari spurningu leitast Árni Finnsson hjá Náttúruverndarsamtökunum við að svara. Björn Þorláks ræðir við Árna. Gunnar Smári ræðir við listamanninn Atla Bollason um ESB og Ísland, menningarlega stöðu landsins og álfunnar. Dr. Ingi Agnarsson líffræðingur ræðir áhugaverða ferð til Madagaskar á dögunum þar sem uppgötvanir í lífríki kóngulóarinnar hafa hlotið athygli víða um heim. Björn Þorláks ræðir við hann.
Mon, 17 Aug 2026 - 2h 40min - 1404 - Synir Egils 16. ágúst - Evrópusambandið, þjóðaratkvæði og klofin þjóð
Sunnudagurinn 16. ágúst Synir Egils: Evrópusambandið, þjóðaratkvæði og klofin þjóð Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við þau Sonju Ýr Þorbergsdóttur formann BSRB, Kristinn Hrafnsson ritstjóra Wikileaks og Piu Elizabeth Hansson forstöðumann Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands. Síðan koma fulltrúar frá Ungum Evrópusinnum og Ung gegn ESB-aðild og ræða kosti og kalla umsóknar um aðild að Evrópusambandinu: Óðinn Freyr Baldursson og Þórhildur Davíðsdóttir Söebech sem ætla að segja já þann 29. ágúst og Illugi Gunnarsson og Salma Björk Önnudóttir sem ætla að segja nei. Í lokin ræða þeir bræður um pólitíkina með sínu nefi.
Sun, 16 Aug 2026 - 2h 36min - 1403 - Rauða borðið - Helgi-spjall: Halldóra Björnsdóttir
Laugardagur 15. ágúst Helgi-spjall: Halldóra Björnsdóttir Halldóra Björnsdóttir íþróttafræðingur var með morgunleikfimi á RÚV í 40 ár. Hún segir hér Ásdísi Olsen frá lífi sínu og störfum.
Sat, 15 Aug 2026 - 1h 45min - 1402 - Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 33
Föstudagur 14. ágúst Vikuskammtur: Vika 33 Þau Þuríður H. Aradóttir Braun verkefnastjóri, Magga Stína tónlistarkona, Valgarður Guðjónsson söngvari Fræbblana og Þórunn Lárusdóttir leikkona ræða fréttir vikunnar við Gunnar Smára, fréttir sem einkenndust af karpi, myrkva, deilum, óvissu og gleði.
Fri, 14 Aug 2026 - 1h 21min - 1401 - Rauða borðið 13. ágúst - Reynsluboltar, vinstri ESB, heilun í stríði, húsnæðismál og landsbyggðin
Fimmtudagur 13. ágúst Reynsluboltar, vinstri ESB, heilun í stríði, húsnæðismál og landsbyggðin Erna Bjarnadóttir hagfræðingur, Björn Leví Gunnarsson fyrrum þingmaður og Björg Eva Erlendsdóttir, Landvernd, ræða fréttir vikunnar. Sólmyrkvinn og ESB-umræðan verða meðal umfjöllunarefna, Björn Þorláks stýrir þættinum. Stefán Pálsson sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi Vinstrisins útskýrir sína afstöðu varðandi ESB fyrir Gunnari Smára. Erla Ólafsdóttir sjúkraþjálfi vinnur með fórnarlömb stríðsins í Úkraínu. Hún ræðir við Ásdísi Olsen. Formaður Leigjendasamtakanna, Yngvi Ómar Sigrúnarson, ræðir húsnæðismál í tengslum við Evrópuumræðu Íslendinga. Björn Þorláks talar við hann. Þóroddur Bjarnason prófessor og landsbyggðasérfræðingur ræðir við Gunnar Smára um áhrif aðildar að ESB á íslenskar landsbyggðir.
Thu, 13 Aug 2026 - 4h 26min - 1400 - Rauða borðið 12. ágúst - ESB plús og mínus, geðheilsa og Megas
Miðvikudagur 12. ágúst ESB plús og mínus, geðheilsa og Megas Gunnar Smári ræðir við Ögmund Jónasson fyrrum ráðherra og formann BSRB um þjóðaratkvæðagreiðslu um umsókn Íslands í ESB. Ögmundi list ekki á blikuna. Þorvaldur Gylfason hagfræðingur ræðir kosti aðildar að ESB, íslensku krónuna fjármálaspillingu og fleira í samtali við Björn Þorláks. Ólafur Ævarsson geðlæknir og Björn Þorláksson kryfja samfélagið saman í tengslum við geðheilsu. Sjónarhorn þeirra eru ýmist persónuleg eða vísindaleg. Spessi, Sigurþór Hallbjörnsson, sem gerði kvikmynd um Megas, ræðir við Björn Þorláks um tónlistarmanninn, sem nú er fallinn frá.
Wed, 12 Aug 2026 - 3h 24min - 1399 - Rauða borðið 11. ágúst - Skólabyrjun, ESB, menningarbrunnur og sólmyrkvahátíð
Þriðjudagur 11. ágúst Skólabyrjun, ESB, menningarbrunnur og sólmyrkvahátíð Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, var gestur Rauða borðsins. Nú styttist óðum í að skólarnir hefji störf eftir. Hvernig ætli gangi að ráða kennara, hvað með námsgögnin og hvað með einkunnir, með tölustöfum eða bókstöfum. Gunnar Smári ræðir við Gauta B. Eggertsson prófessor í hagfræði við Brown-háskólann í Bandaríkjunum um efnahagsstöðu Evrópu. Halldór Guðmundsson rithöfundur og útgefandi ræðir menningarlegt samband Íslands við meginland Evrópu við Björn Þorláksson. Myndi Laxness segja já eða nei 29. ágúst næstkomandi? Að lokum slær Ásdís Olsen á þráðinn inn á Hellissand, þar sem Jón Bjarni Steinsson, einn af skipuleggjendum Solar Eclipse Festival, gengur með okkur um svæðið og segir okkur frá því sem er að gerast í vikunni og fram á sunnudag.
Tue, 11 Aug 2026 - 2h 38min - 1398 - Rauða borðið - 10. ágúst - ESB, hinsegin öldruð, sólmyrkvi og orkumál
Mánudagur 10. ágúst ESB, hinsegin öldruð, sólmyrkvi og orkumál Guðmundur Hálfdanarson sagnfræðingur ræðir fullveldishugtakið og átökin vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar í lok mánaðarins á sögulegum nótum. Björn Þorláks ræðir við hann. Björgvin Huldar Soffíuson hjúkrunarfræðingur ræðir hinsegin miðaða öldrunarþjónustu. Andrea Jónsdóttir, plötusnúður og dagskrárgerðarmaður á Rás 2, tekur einnig þátt í spjallinu,Laufey Líndal, leiðir umræðuna. Natalí Lilja Ómarsdóttir, leiðbeinir fólki um hvernig það getur nýtt sér orkuna sem fylgir almyrkva á sólu. Ásdís Olsen ræðir við hana. Steingrímur Ólafsson, sem starfar á norskum olíupalli, ræðir í spjalli við Björn Þorláks hugarheim Norðmanna og áhuga þeirra á ESB-kosningu Íslendinga sem og átökin um auðlindir.
Mon, 10 Aug 2026 - 3h 30min - 1397 - Synir Egils 9. ágúst - Evrópusambandið, kosningar, kjarasamningar og fjölmiðlar
Sunnudagurinn 9. ágúst Synir Egils: Evrópusambandið, kosningar, kjarasamningar og fjölmiðlar Synir Egils, þeir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, fá gesti og ræða stöðu mála og stjórnmálin. Í fyrri hluta þáttarins koma þau Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri SA, Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og Halla Gunnarsdóttir formaður VR og ræða þjóðaratkvæðagreiðsluna um ESB, klofna þjóð og fallna kjarasamninga. Síðan koma þær Eyrún Magnúsdóttir stofnandi Gímaldsins, Margrét Tryggvadóttir formaður Rithöfundasambandsins og Þóra Jónsdóttir lögfræðingur fjölmiðlanefndar og ræða veika stöðu fjölmiðla. Í lokin taka þeir bræður stöðuna á pólitíkinni með sínu nefi.
Sun, 9 Aug 2026 - 2h 33min - 1396 - Rauða borðið 30. júní - Neyðarréttur, demókratar, öryrkjar, mæðgur og bragðlaukar
Þriðjudagur 30. júní Neyðarréttur, demókratar, öryrkjar, mæðgur og bragðlaukar Tekist er á um það fyrir dómstólum þessa dagana hvort akstur undir áhrifum megi réttlæta með neyðarrétti. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir við Björn Þorláks. Gunnar Smári ræðir við Svein Mána Jóhannesson doktor í sagnfræði um bandaríska Demókrataflokkinn, ólíkar deildir hans, stefnu og markmið í aðdraganda kosninganna í haust. Öryrkjabandalagið telur að nýlegar breytingar á lögum um sjúkratryggingar geti stóraukið kostnað öryrkja og fatlaðra. Björn Þorláks ræðir við Gunnar Alexander Ólafsson, hagfræðing hjá ÖBÍ. Elskarðu mömmu þína? spyr Karla Kristjánsdóttir leikstjóri í samtali við Ásdísi Olsen eftir að hafa rannsakað mæðgnasambönd og skrifað um það nýtt íslenskt leikrit. Enginn sagði “Ég elska þig” Samband mæðgna er oft flókið og dýrmætt. Anna Sigríður Ólafsdóttir prófessor hefur rannsakað matvendni barna og hvort hægt sé að þjálfa bragðlaukana okkar. Hún útskýrir þetta fyrir Gunnari Smára.
Tue, 30 Jun 2026 - 4h 37min - 1395 - Rauða borðið 29. júní - Frost, evran, Suður-Kínahaf og besta útgáfan af okkur sjálfum
Mánudagur 29. júní Frost, evran, Suður-Kínahaf og besta útgáfan af okkur sjálfum Páll Heiðar Pálsson fasteignasali ræðir stöðuna á fasteignamarkaði í samtali við Björn Þorláks og hvernig sótt er að nafni hans fasteignasölu. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir um Evrópu við Gunnar Smára, um Úkraínu, Evrópusambandið og evruna, veltir fyrir hvort rekja megi fólksflótta frá ríkjum Austur-Evrópu til hagstjórnar með fastgengisstefnu. Ragnar Baldursson kínafræðingur ræðir um Taiwan og Suður-Kínahaf við Gunnar Smára. „Áður fyrr var ég með hnút í maganum og átti til að kasta upp af stressi á tónleikum,“ segir Kristján Viðar – eða Viddi í Greifunum – sem er viðmælandi Ásdísar í þættinum.
Mon, 29 Jun 2026 - 4h 55min - 1394 - Rauða borðið - Helgi-spjall: Örnólfur Árna
Laugardagur 27. júní Helgi-spjall: Örnólfur Árna Örnólfur Árnason segir okkur frá lífshlaupi sínu, blaðamennsku, ferðamennsku, bókum, leikritum, óperum og listahátíðum, frá gildi þess að ferðast og leyfa heiminum að breytast sér og samfélagi sem mætti breystast til betra vegar.
Sat, 27 Jun 2026 - 1h 41min - 1393 - Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 26
Föstudagur 26. júní Vikuskammtur: Vika 26 Ásdís Olsen sér um Vikuskammt að þessu sinni með gestum sínum, þeim Árelíu Eydís Guðmundsdóttur dósent, rithöfundi og fráfarandi borgarfulltrúa, Einari Skúlasyni þjóðfræðingi og göngugarpi, Halldóri Baldurssyni myndlistarmanni og skopteiknara, og Stefáni Ingvari Vigfússyni sviðshöfundi og uppistandara.
Fri, 26 Jun 2026 - 1h 46min - 1392 - Rauða borðið 25. júní - Dýravernd, framhaldsskólinn, ofbeldi, gervigreind og bekkurinn
Fimmtudagur 25. júní Dýravernd, framhaldsskólinn, ofbeldi, gervigreind og bekkurinn Tófan, hvalurinn og selurinn eru hluti af verðmætum sem Íslendingum ber að vernda. Þetta segir Rósa Líf Darradótir læknir sem segir að manninn hafi borið af leið eins og lýsi sér í svokallaðri “”mannmiðjuvillu”. Björn Þorláks ræðir við hana. Helga Þórey Önnudóttir Jónsdóttir og María Hjálmtýsdóttir, framhaldsskólakennarar, ræða stöðu framhaldsskólans með Laufeyju Líndal. Jenný Kristín Valberg teymisstýra í Bjarkarhlíð ræðir fjölbreyttar birtingarmyndir ofbeldis við Ragnheiði Davíðsdóttur. Ólafur Kristjánsson, einnig þekktur sem Óli tölva, ræðir um notkun gervigreindarinnar við Ásdísi Olsen. Víðir Sigurðsson ræðir að lokum við Sigurjón Magnús m.a. um framvindu og stöðuna á HM.
Thu, 25 Jun 2026 - 4h 38min - 1391 - Rauða borðið 24. júní - Trump, framhaldsskólinn, átök, heimur að farast og kórsöngur
Miðvikudagur 24. júní Trump, framhaldsskólinn, átök, heimur að farast og kórsöngur Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur, Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur og Ólafur Páll Jónsson heimspekingur ræða við Gunnar Smára Egilsson um tíma Trump. Sigurjón Magnús ræðir við Guðmund Hálfdánarson um átökin innanlands í samtímanum. Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara ,ræðir við Gunnar Smára um niðurskurð. Lárus Ýmir Óskarsson velti því fyrir sér í spjalli með Birni Þorláks hvort auðræði sé að granda heiminum. Alþýðusönglist og hvernig sá siður hefur haldist víða að syngja í röddum og miðla milli kynslóða verður til umræðu hjá Margréti Bóasdóttur söngkonu og kórstjórnanda og Ingveldi Ýr Jónsdóttur söngkonu og kórstjórnanda. Gildi kórastarfs verður til umræðu.
Wed, 24 Jun 2026 - 4h 35min - 1390 - Rauða borðið 23. júní - Þjóðaratkvæðisgreiðslan, lagaleg álitamál, myndlæsi og heiður
Þriðjudagur 23. júní Þjóðaratkvæðisgreiðslan, lagaleg álitamál, myndlæsi og heiður Óðinn Freyr Baldursson formaður Ungra Evrópusinna og Þórhildur Pálsdóttir stjórnarkona í Ungum gegn ESB útskýra fyrir Gunnari Smára hvers vegna þjóðaratkvæðagreiðslan í lok ágúst skiptir máli. Gísli Tryggvason lögmaður fer yfir lagaleg álitamál í fréttum líðandi stundar. Utanvegaakstur, hvalveiðar, réttur fólks til að lifa af hitabylgjur og fleira verður til umræðu í spjalli Gísla við Björn Þorláks. Hvernig við munum og lærum er til umræðu í viðtali Ásdísar Olsen við dr. Unni Óttarsdóttur. Hún bendir á að stór hluti mannkyns hugsi fyrst og fremst í myndum fremur en orðum og að skólakerfið taki ekki nægilegt mið af því. Ásdís Thoroddsen kvikmyndagerðarmaður var í hópi Íslendinga sem hlutu fálkaorðu á þjóðhátíðadeginum. Hún fer yfir áherslur sínar í samtali við Björn Þorláks.
Tue, 23 Jun 2026 - 3h 45min - 1389 - Rauða borðið 22. júní - Starmer, hvalir, Kína, gervigreind, arkitekt og hjólastígar
Mánudagur 22. júní Starmer, hvalir, Kína, gervigreind, arkitekt og hjólastígar Keir Starmer hefur sagt af sér sem leiðtogi breska Verkamannaflokksins og þar með sem forsætisráðherra Breta. Guðmundur Auðunsson hagfræðingur í London spáir í spilin í breskum stjórnmálum og innan Verkamannaflokksins í spjalli við Gunnar Smára. Valgerður Árnadóttir hvalavinur ræðir við Björn Þorláks um mótmæli gegn hvalveiðum og þá ekki síst nýjustu viðburði. Hún telur augljóst að veiðarnar stangist á við lög. Ragnar Baldursson kínafræðingur ræðir við Gunnar Smára um uppruna hugmyndarinnar um mörg kerfi innan sama ríkis og hvers vegna hún er mikilvæg í stefnu kínverska kommúnistaflokksins. Haukur Arnþórsson, doktor í stjórnsýslufræði, ræðir við Björn Þorláks um kosti og galla gervigreindar. Arnhildur Pálmadóttir arkitekt hefur verið heiðruð af hálfu Reykjavíkurborgar sem borgarlistamaður. Hún ræðir í samtali við Björn Þorláks hvernig henni hefur tekist að marka sérstök spor í byggingarlist. Magne Kvam er goðsögn og frumkvöðull í útivistarmenningu okkar Íslendinga sem fann það upp hjá sjálfum sér að leggja gönguskíðaspor og móta fjallahjólastíga fyrir almenning í sjálfboðavinnu. Ásdís ræðir við Magna um fjallahjólasportið.
Mon, 22 Jun 2026 - 4h 07min - 1388 - Rauða borðið - Helgi-spjall: Jóhanna Jónasdóttir
Laugardagur 20. júní Helgi-spjall: Jóhanna Jónasdóttir Lífshlaup Jóhönnu minnir helst á dramatíska kvikmynd þar sem söguhetjan býr við allsnægtir, frægð og frama þegar eiginmaðurinn biður um skilnað og veröldin hrynur til grunna. Í ljós kemur að á bak við glansmyndina er brotin kona með skelfilega áfallasögu og átröskun. Samhliða því að upplifa líf sitt í rúst fer Jóhanna að stunda hugleiðslu sem færir hana nær sínu innra lífi og síðan upplifun af allsherjar alsælu. Í samtali við Ásdísi Olsen lýsir Jóhanna andlegri vegferð sinni, m.a. sjö ára námi í orkuheilun og kynnum sínum af Barböru Brennan og Dr. Joe Dispenza, sem leiðir merkilega andlega vakningu sem miðar að kærleika og heilun.
Sat, 20 Jun 2026 - 2h 14min - 1387 - Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 25
Föstudagur 19. júní Vikuskammtur: Vika 25 Við förum yfir fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins á þessum kvenfrelsisdegi með þeim fjórum konum. Margrét Örnólfsdóttir handritshöfundur, Hlédís Maren Guðmundsdóttir varaborgarfulltrúi, Steinunn Ólína Hafliðadóttir myndlistarkona og Jenný Kristín Valberg teymisstýra í Bjarkarhlíð greina málin, stöðuna og stefnuna.
Fri, 19 Jun 2026 - 1h 37min - 1386 - Rauða borðið 18. júní - Utanríkis, Íran & Trump, ybbigoggur og bekkurinn
Fimmtudagur 18. júní Utanríkis, Íran & Trump, ybbigoggur og bekkurinn Við byrjum á spjalli Björns, Ásdísar og Gunnar Smára. Svo kemur Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisràðherra og fer yfir átakamál í ítarlegu samtali við Björn Þorláks. ESB, Trump, Gaza, efnahagsmálin innanlands og hræðsluáróður ber á góma. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer yfir samkomulag Trumpstjórnarinnar og klerkastjórnarinnar í Íran í samtali við Gunnar Smára. Hvað fékk Trump út úr stríðinu? Hver er staða Íran á eftir? Og hvar stendur Ísrael? Ingibjörg Ottesen, sem verið hefur með gagnrýna umræðu á Facebook, lætur flest flakka um pólitíkina, sjálftöku, það sem hún kallar spilllingaraflanna, mannréttingarmál, skort á náttúruvernd og margt fleira. Ragnheiður Davíðsdóttir talaði við hana. Í lokin fer Sigurjón yfir HM í fótbolta með Víði Sigurðssyni í Bekknum og eflaust íslenskan fótbolta líka.
Thu, 18 Jun 2026 - 3h 41min - 1385 - Rauða borðið 16. júní - Samgöngur, samfélagsmiðlar, ESB, skíði og körfubolti
Þriðjudagur 16. júní Samgöngur, samfélagsmiðlar, ESB, skíði og körfubolti Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra fer yfir samgönguáætlun með Gunnari Smára, ræðir mikla umferð á veikbyggðum vegum, göng, brýr, sjóflutninga og innanlandsflug. Viðar Halldórsson félagsfræðingur fer yfir kosti og galla þess að banna börnum aðgengi að samfélagsmiðlum. Bretar hafa fylgt fordæmi Ástrala og hyggjast banna öllum 16 ára og yngri að nota samfélagsmiðla. Guðmundur Auðunsson, einn af stofnendum VG, ræðir að forysta vinstra flokkanna er með neikvætt viðhorf gagnvart aðild að ESB í andstöðu við eigin flokksmenn samkvæmt könnunum. Björn Þorláks ræðir við hann. Guðmundar Gunnlaugssonar sem flestir þekkja sem Gumma Gull, er einn af helstu máttarstólpum íslenskrar skíðasögu. Ásdís ræðir við hann, m.a. örlög nokkra afreksmanna á skíðum. Rausnarlegur fjárstyrkur frá verkalýðsfélagi þýðir að hægt verður að framlengja félagsstarf körfuboltastúlknanna í Aþenu í Breiðholti. Þetta segir Brynjar Karl forsvarsmaður, hann þakkar Sólveigu Önnu og Eflingu í samtali við Björn Þorláks.
Tue, 16 Jun 2026 - 3h 47min
Podcasts similar to Rauða borðið
Barangay Love Stories Barangay LS 97.1 Manila | GMA Network Inc.
Good Bad Billionaire BBC World Service
Cyprian Majcher Cyprian Majcher
Die Nachrichten Deutschlandfunk
Orlofið Hafdís Arna Sigurðardóttir og Jasmín Guðrún Abu Libdeh
Podcast Wojenne Historie Historia II wojny światowej
Forensic Files HLN
Nowenna pompejańska. Świadectwa https://pompejanska.krolowa.pl/
الشيخ أحمد العجمي islami
True Crime Documentary Justin Kandell Network
WojewódzkiKędzierski Kuba Wojewódzki, Piotr Kędzierski
Læknavarpið Læknablaðið
بودكاست عقلية Moneim
Snapped: Women Who Murder Oxygen
DUDEK o polityce prof. Antoni Dudek i Super Exspress
Przemek Górczyk Podcast Przemek Górczyk
Sceny zbrodni RMF FM
Frjálsar hendur RÚV
Í ljósi sögunnar RÚV
Skuggavaldið skuggavaldid
Money News Tapt Media
Nauka To Lubię Tomasz Rożek
Żurnalista - Rozmowy bez kompromisów zurnalistapl
العلم والإيمان - د. مصطفى محمود علم ينتفع يه