Podcasts by Category
- 111 - 109: Tvíburinn og Bogmaðurinn / Samskipti og ólíkar þarfir
Hvað er það sem aðgreinir Tvíburann og Bogmanninn þótt þeir virðist eiga svo margt sameiginlegt? Og hvernig getur stjörnuspekin hjálpað okkur að skilja ólíkar þarfir fólks í samskiptum og samböndum? Í þessum þætti förum við vítt og breitt um stjörnuspekina. Við skoðum andstæður merkjanna, mikilvægi þess að sjá aðra á þeirra eigin forsendum og hvernig ólíkar orkur geta bæði skapað togstreitu og styrkt sambönd. Einnig skoðum við stjörnukort knattspyrnumannsins Michael Olise og Xi Jinping, forseta Kína. Punktar úr þættinum Tvíburinn og Bogmaðurinn – hver er munurinn? Bæði merkin eru forvitin, jákvæð og sífellt á ferðinni. En á meðan Tvíburinn safnar hugmyndum, miðlar upplýsingum og spyr spurninga leitar Bogmaðurinn að dýpri merkingu, þekkingu og sannfæringu. Tvíburinn efast – Bogmaðurinn trúir. Samskipti – að læra að sjá aðra eins og þeir eru. Við eigum það til að sýna öðrum ást og umhyggju á þann hátt sem við sjálf viljum fá hana. En hvað ef hinn aðilinn hefur allt aðrar þarfir? Stjörnuspekin getur hjálpað okkur að skilja þennan mun og bæta samskipti okkar. Ljónið vill ekki bara hrós – það vill láta sjá sig. Hera og Ásgeir ræða hvernig ólíkar orkur þeirra birtast í sambandinu. Fyrir Ljónið getur viðurkenning og það að tekið sé eftir framlagi þess skipt miklu máli, á meðan Steingeitin lítur kannski á sömu hluti sem sjálfsagða. Michael Olise – hæfileikar, sjálfstæði og sterkar tilfinningar. Stjörnukort knattspyrnumannsins Michael Olise er skoðað út frá Bogmanninum, tungli í Sporðdreka og spennum frá Satúrnusi, Plútó og Úranusi. Hvernig geta miklir hæfileikar, jákvæðni og tilfinningaleg hlédrægni farið saman? Xi Jinping – Tvíburinn sem stjórnar Kína. Stjörnukort forseta Kína er tekið til skoðunar, sérstaklega Merkúr í Krabba og tengsl hans við Satúrnus og Úranus. Rætt er um hvernig þessar afstöður eru túlkaðar í tengslum við agaða hugsun, útsjónarsemi og nýsköpun.
Mon, 19 Oct 2026 - 110 - 108: Loftmerkin – Tvíburinn og Vogin
Loftmerkin – Tvíburinn og Vogin Loftið – heimur hugmynda og tengslaTvíburi, Vog og Vatnsberi tilheyra loftinu. Loftið tengir saman, flytur upplýsingar og hugmyndir á milli fólks og lifir sterkt í samskiptum, tengslum og hugsun. En hvað gerist þegar loftið verður of mikið og við festumst uppi í höfðinu? Tvíburinn – hugmyndir, húmor og endalaust upplýsingaflæðiTvíburinn er forvitinn, fljótur, félagslyndur og þarf oft að hafa marga bolta á lofti. Hann miðlar, tengir fólk saman og sáir hugmyndum – en í niðurspíral getur hann farið í ofhugsun, slúður, leiða og lofað meiru en hann nær að framkvæma. Af hverju þarf Tvíburinn alltaf að „skreppa“?Það þarf eitthvað að vera að gerast. Nýtt fólk, nýjar upplýsingar, ný verkefni og nýjar hugmyndir. Tvíburinn getur verið eins og kónguló í miðju tengslaneti sem veit hver þekkir hvern, hvert á að fara og við hvern þarf að tala. Vogin – miklu ákveðnari en margir haldaVogin vill frið, fegurð, réttlæti og jafnvægi og er góð í að sjá fleiri en eina hlið málsins. Hún getur virst óákveðin vegna þess að hún vill fyrst vega og meta. Þegar hún hefur hins vegar komist að niðurstöðu getur hún verið mjög ákveðin – „stálhnefi í silkihanska“. Þegar friðarsókn Vogarinnar verður að meðvirkniVogin vill forðast átök og getur þess vegna látið of mikið yfir sig ganga, þagað og reynt að halda öllum góðum. Þá safnast orkan upp þar til hún springur eða fer í hina vogarskálina. Verkefnið er ekki að forðast átök heldur að læra málefnalega ákveðni og standa með sjálfri sér.
Tue, 22 Sep 2026 - 109 - 107: Ef allir væru sama merkið / Dolly Parton
1. Hvernig væri heimurinn ef allir væru sama stjörnumerkið?Hvað myndi gerast ef það væru bara hrútar á jörðinni? Eða bara steingeitur, fiskar eða ljón? Það kemur fljótt í ljós hvers vegna við þurfum á öllum 12 merkjunum að halda – hvert þeirra hefur sitt hlutverk og saman mynda þau ákveðna lífskeðju. 2. Ljónið kann að tala – en kann það að hlusta?Ljónið hefur sterka þörf fyrir að tjá sig, segja frá og láta ljós sitt skína. En þegar tvö sterk ljón hittast getur komið upp ákveðið vandamál: Hver ætlar eiginlega að hlusta þegar báðir vilja segja söguna? 3. Dolly Parton – hvernig getur þessi kona verið Steingeit og Meyja?Sól í Steingeit, tungl í Meyju og rísandi Meyja hljómar kannski ekki eins og augljós uppskrift að glimmeri, risastórum hárkollum og showbusiness. En þegar líf Dolly Parton er skoðað betur kemur jarðarorkan ótrúlega skýrt í ljós: vinnusemi, skipulag, viðskiptavit, þúsundir laga og heilt viðskiptaveldi. 4. Af hverju sagði Dolly Parton NEI við Elvis Presley?Elvis Presley vildi syngja „I Will Always Love You“, en til þess hefði Dolly þurft að gefa eftir stóran hluta höfundarréttarins. Hún neitaði. Árum síðar tók Whitney Houston lagið og ákvörðun Dolly reyndist henni gríðarlega verðmæt. Stundum sést Steingeitin og Meyjan best þegar kemur að stóru ákvörðununum. 5. Stjörnumerkið þitt segir langt frá því alla söguna.Dolly Parton er frábært dæmi um hvers vegna ekki er nóg að spyrja: „Hvaða merki ertu?“ Þegar stjörnukortið hennar er skoðað í heild – pláneturnar, húsin og afstöðurnar – kemur miklu stærri mynd í ljós. Þar sjáum við bæði skemmtikraftinn, viðskiptakonuna og konuna sem hefur látið gríðarlega gott af sér leiða.
Mon, 07 Sep 2026 - 108 - 106 Gestur: Guðni Gunnarsson. Guðníska / Vald orðanna / Að taka ábyrgð á eigin lífi
Guðni Gunnarsson er gestur þáttarins og að þessu sinni förum við djúpt í mátt orðanna, ábyrgð, vitund og það að taka aftur valdið í eigin lífi. Hvað er „guðníska“? Erum við heppin eða gæfurík? Hvað þýðir það raunverulega að vilja eitthvað – og hversu mikil áhrif hafa orðin sem við notum á veruleikann okkar? Við skoðum líka stjörnukort Guðna og veltum fyrir okkur hvernig sterk Sporðdrekaorka, Merkúr og Mars endurspegla manninn, hugsunina og lífsstarfið. Þáttur um sjálfsþekkingu, heimild, viðnám, gagnrýni og muninn á því að þekkja viskuna – og að lifa hana. Hér eru nokkrir punktar um efni þáttarins. 1. „Þú ert ekki heppinn – þú ert gæfuríkur.“Hvað ef „heppni“ er ekki til? Guðni setur fram áhugaverða sýn á muninn á því að vera heppinn, lánsöm manneskja og gæfurík – og hvernig við sjálf tökum þátt í að skapa aðstæður lífs okkar. 2. „Ef þú ert bara að reyna – ætlarðu þá í raun að gera það?“Það er gríðarlegur munur á mig langar, ég ætla, ég reyni og ég vil. Í þættinum er farið djúpt í orðið „vilji“ og þá hugmynd að raunverulegur vilji birtist fyrst þegar við framkvæmum. 3. Hversu mikið vald ertu búinn að gefa öðrum yfir líðan þinni?Símtal sem þú „verður“ að svara. Skilaboð sem þú „átt“ að bregðast við. Ásakanir eða skoðanir annarra sem þú hleypir inn. Hvar liggja mörkin milli samskipta og þess að afhenda öðrum valdið yfir eigin lífi? 4. „Gagnrýni“ þýðir ekki það sem við höldum.Að rýna eitthvað til gagns er eitt. Að ráðast á, ásaka eða rífa niður er allt annað. En hvers vegna tökum við skoðanir annarra svona auðveldlega inn á okkur – og þurfum við yfirhöfuð að gera það? 5. Stjörnukort Guðna útskýrir ótrúlega margt.Sól og Satúrnus í Sporðdreka, Venus í Sporðdreka, Mars í Vatnsbera og sterkur Merkúr. Kortið sýnir mann sem vill fara alla leið niður á kjarnann, umbreyta veikleikum í styrk og hefur lítinn áhuga á yfirborðinu.
Fri, 21 Aug 2026 - 107 - 105: Sjálfhverfa / Fullkomnunarárátta / Merkúr í elementum og merkjumWed, 12 Aug 2026
- 106 - 104: Niðurspírall, þunglyndi og hvernig einhverfa getur birst í fæðingarkorti.Wed, 05 Aug 2026
- 105 - 01: KENNSLA: 12 grunnmerki stjörnuspekinnar
Í þessum fyrsta þætti förum við yfir öll 12 grunnmerki stjörnuspekinnar. Þið ykkar sem viljið læra meira um stjörnuspeki ættuð að hlusta á öll merkin til að fá innsýn í hvernig þau eru í grunninn. Fyrir þá sem vilja svo stökkva beint í sitt merki þá eru hér tímapunktar fyrir þau hér. Inngangur 0:00 – 4:49 Hrúturinn 4:49 – 10.28 Nautið 10:28 – 16:03 Tvíburinn 16:03 – 25:07 Krabbi 25:07 – 30:01 Ljónið 30:01 – 38:41 Meyjan 38.41 – 47:47 Vogin 47:47 – 53:54 Sporðdreki 53:54 – 1:01:53 Bogmaður 01:01:53 – 01:10:14 Steingeit 01:10:14 – 01:20:35 Vatnsberi 01:20:35 – 01:25:45 Fiskur 01:25:45 – 01:32:38 Lokaorð 01:32:38 – 01:35:02
Mon, 28 Aug 2023 - 104 - 00: KENNSLA: Hvað er Stjörnuspeki og hver er tilgangurinn ?Tue, 22 Aug 2023
- 103 - 103: Höldum áfram með afstöður. Nú er það Neptúnus og Plútó.Tue, 21 Jul 2026
- 102 - 102: Almennt spjall um stjörnuspeki og afstöður, Júpíter / Satúrnus og ÚranusSun, 05 Jul 2026
- 101 - 101: Orkufræði og hugarástand / Hildur Björnsdóttir Borgarstjóri ReykjavíkurThu, 04 Jun 2026
- 100 - 99: David Attenborough / Aðeins um húsin / Líf í hærri tíðniSat, 30 May 2026
- 99 - 98: Michael Jackson / Tungl og Venus / Andstæður sem mynda togstreitu innra með okkurSat, 23 May 2026
- 98 - 97: Hvað er að vera með ótengdar plánetur, kóngurinn Björgvin Halldórsson og auðvitað morgunbollinn.Tue, 05 May 2026
- 97 - 96: Spennandi morgunbolli og Tiger Woods / Stjörnuspeki í vexti og spjall um Orkufræði.Wed, 22 Apr 2026
- 96 - 95: Hvað er Satúrnusarhringur / Pælingar frá diggum hlustanda / NeptúnusarorkaMon, 06 Apr 2026
- 95 - 94: Hvað leyfa merkin hvort öðru þegar um Sól og Tungl er að ræða.Mon, 30 Mar 2026
- 94 - 93: Keppendur á Vetrarólympíuleikum / Að vera í Hvergilandi / Og svo margt annað skemmtilegt.Wed, 25 Mar 2026
- 93 - 92: Vatnsberar / Davíð Oddsson / Jörð og loft og almennt spjallMon, 16 Mar 2026
- 92 - 91: James Garnes / Gunnar Smári / Bragi Guðbrandsson / Hrúturinn og nýji tíminn !Thu, 05 Mar 2026
- 91 - 90: HM þjálfarar / Bakkakot / krónprinsessan í Noregi og sonur hennar, vandræði þeirra greind !Sat, 21 Feb 2026
- 90 - 89: Almennt spjall um stjörnuspeki og inngangur í stóru breytingarnar í heiminum !Sun, 08 Feb 2026
- 89 - 88: Nýtt ár komið af stað og við sömuleiðis. Fyrsti þáttur 2026.Tue, 27 Jan 2026
- 88 - 87: Vatnið og Neptúnus, framkoma fólks ( rísandi ) og almennt spjall.Wed, 31 Dec 2025
- 87 - 86: Smá um rísanda, fólk sem gefur ráðleggingar sem eiga ekki við, klæða sig eftir "veðri" og almennt spjall.Tue, 16 Dec 2025
- 86 - 85: Hvaða merki eru frumkvæð, stöðug og breytileg ásamt umræðu um fólk sem lýsir þessu vel.Wed, 10 Dec 2025
- 85 - 84 Gestur: Tanja Ýr. Frumkvöðull, viðskiptakona, vatnsberi / hrútur og fyrrum Ungfrú Ísland.Thu, 27 Nov 2025
- 84 - 83: Morgunbollinn / Sporðdrekinn / Kortið hennar Heru og fleira.Mon, 17 Nov 2025
- 83 - 82: Morgunbollinn + breytileg merki + fleiri skemmtilegt.....eins og alltaf :)Thu, 30 Oct 2025
- 82 - 81: Framtíðar og þjóðarstjörnuspeki ásamt almennu spjalli.Thu, 16 Oct 2025
- 81 - 80: Strangheiðarleg kaffihúsaspjall.Thu, 09 Oct 2025
- 80 - 79 Gestur: Ástrós Trausta. Ein fallegasta kona landsins. Sporðdreki með tungl í Ljóni.Thu, 25 Sep 2025
- 79 - 78 Gestur: Sigga Ósk. Söngkona og margfaldur eldur. Enda er það þar sem eldurinn á heima.Wed, 17 Sep 2025
- 78 - 77 Gestur: Sylvía Briem. Krabbi + Ljón. Athafnakona, fyrirtækjaeigandi og 3ja barna móðir.Wed, 10 Sep 2025
- 77 - 76 Gestur: Rakel María. Fjölhæfur tvíburi, og já með tungl í ljóni.Tue, 02 Sep 2025
- 76 - 75 Gestur: Dr. Beggi Ólafs. Umræða um mikilvægi stjörnuspekinnar sem verkfæris til sjálfsþekkingar.Mon, 25 Aug 2025
- 75 - 74 Gestur: Einar Bárðarson sem samið hefur mörg af bestu lögum þjóðarinnar í einlægu viðtali.Fri, 15 Aug 2025
- 74 - 73 Gestur: Hin eina sanna Birgitta Haukdal í einlægu og skemmtilegu spjalli.Wed, 06 Aug 2025
- 73 - 72 Gestur: Þórdís Björk ( Dísa ). Söngkona, leikkona og hreinn og beinn Hrútur..Thu, 24 Jul 2025
- 72 - 71 Gestur: Camilla Rut. Ræðir meðal annars átök sín við berskjöldunar þynnku.Fri, 18 Jul 2025
- 71 - 70: KENNSLA: TUNGL / Tilfinningar okkar og vanahegðun.Thu, 10 Jul 2025
- 70 - 69: KENNSLA: SÓL / Ræðum mikilvægi þess að vera með sterkt EGÓ...Thu, 03 Jul 2025
- 69 - 67: KENNSLA: Afstöður og þekkt fólk með áhugaverðar afstöður.Thu, 26 Jun 2025
- 68 - 66 Gestur: Fjóla frænka...Já þessi sem Hera talar um í næstum því hverjum einasta þætti.Wed, 18 Jun 2025
- 67 - 65: Kaffihúsaspjall og pælingar um framtíðina.Thu, 12 Jun 2025
- 66 - 64: KENNSLA: Hluti 3/3: Hverjir eru stjórnendur síðustu 3ja merkjanna. Steingeit, Vatnsberi, FiskurMon, 02 Jun 2025
- 65 - 63: KENNSLA: Hluti 2/3: Hverjir eru stjórnendur næstu 3ja merkja. Vog, Sporðdreki, BogmaðurMon, 26 May 2025
- 64 - 62: KENNSLA: Hluti 1/3: Hverjir eru stjórnendur fyrstu 6 merkjanna. Hrútur, Naut, Tvíburi, Krabbi, Ljón, MeyjaTue, 13 May 2025
- 63 - 61: KENNSLA: Andstæðu merkin og munurinn á frumefnunum.Wed, 07 May 2025
- 62 - 60: KENNSLA: Frumefnið VATN og fólk í vatnsmerkjumTue, 29 Apr 2025
- 61 - 59: KENNSLA: Frumefnið LOFT og fólk í loftmerkjum.Mon, 21 Apr 2025
- 60 - 58: Heimur á krossgötum / Viðskiptastríð = Neptúnus í Hrút !Tue, 08 Apr 2025
- 59 - 57: KENNSLA: Frumefnið JÖRÐ og fólk í jarðarmerkjum.Tue, 01 Apr 2025
- 58 - 56: KENNSLA: Stjörnuspeki með morgubollanum / frumefnið ELDUR og eldsfólkTue, 25 Mar 2025
- 57 - 55: KENNSLA: Plánetur á rísanda / Neptúnus á leið í hrút / Uppbrot allra kerfa / Hringrásir lífsins.Tue, 18 Mar 2025
- 56 - 54: KENNSLA: Hvað eru plánetur lengi í merki og hvaða áhrif hafa þær á heiminnWed, 12 Mar 2025
- 55 - 53: Kaffihúsaspjall. Pælingar á nýju ári !Tue, 04 Feb 2025
- 54 - 52: Þórir handboltaþjálfari / Kári Stefáns og Eva / J.Lo / Andstæðu merkin !Thu, 02 Jan 2025
- 53 - 51 Gestir: Steinunn Ólína og Halldóra Geirharðs eru mættar aftur :)Wed, 25 Dec 2024
- 52 - 50: Valkyrjurnar þrjár - Hvernig eru kortin hjá Kristrúnu, Þorgerðri og InguMon, 09 Dec 2024
- 50 - 49 Gestur: Hann er mættur aftur..Guðni Gunnarsson lífsþjálfi, frumkvöðull, leiðbeinandi.Mon, 11 Nov 2024
- 49 - 48 Gestir: Hvernig er að alast upp við stjörnuspeki? Mæðgurnar Kristín Gunnlaugsdóttir og Melkorka Gunborg BriansdóttirSun, 03 Nov 2024
- 48 - 47 Gestur: Hanna Lilja Oddgeirsdóttir læknir, bleikur október og breytingaskeiðiðWed, 23 Oct 2024
- 47 - 46: Kortið hjá Puff Daddy / aðeins um sporðdrekann og ljónið / Nóðurnar / David R Hawkins, ábyrgð og hugrekki.Wed, 16 Oct 2024
- 46 - 45: Öfund og heiðarleiki. Skoða orku sína á mismunandi tímabilum og samskipti þegar leita á að maka.Thu, 03 Oct 2024
- 45 - 44: Fyrsti þáttur eftir sumarfrí. Allskonar spjall til að koma þessu af stað.....Wed, 18 Sep 2024
- 44 - 43: Julian Assange / Céline Dion / afstöður í kortum / síðasti þáttur fyrir sumarfríSat, 13 Jul 2024
- 43 - 42: Pælingar varðandi barnauppeldi.Thu, 20 Jun 2024
- 42 - 41: Kennsla í bland við skemmtilegar pælingar og þekkta einstaklinga.Thu, 13 Jun 2024
- 41 - 40: Árásir á stjörnuspekina. Af hverju og frá hverjum?Thu, 06 Jun 2024
- 40 - 39: Hver verður forseti Íslands 2024 - Við skoðum efstu frambjóðendur.Wed, 29 May 2024
- 39 - 38 Gestur: Halla Tómasdóttir, verðandi forseti Íslands.Mon, 20 May 2024
- 38 - 37 Gestur: Andri Iceland ( allt um öndun og köld böð í bland við okkar yndislegu Stjörnuspeki )Mon, 13 May 2024
- 37 - 36 Gestur: Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, forseta frambjóðandi.Tue, 07 May 2024
- 36 - 35: Kaffihúsaspjallið / Allskonar pælingarTue, 30 Apr 2024
- 35 - 34 Gestur: Guðni Gunnarsson. Lífsþjálfi, frumkvöðull, leiðbeinandiTue, 23 Apr 2024
- 34 - 33: Kaffihúsaspjallið / Er þetta allt saman bara bull ?Tue, 16 Apr 2024
- 33 - 32 Gestur: Guðrún BergmannTue, 09 Apr 2024
- 32 - 31: Páskaþáttur 2024Wed, 03 Apr 2024
- 31 - 30: Breska konungsfjölskyldanTue, 26 Mar 2024
- 30 - 29: Klárum rísanda og húsin / Prettyboytjokkó og aðeins um Diönu, Cate og konungsfjölskyldunaTue, 19 Mar 2024
- 29 - 28:Hvað er rísandi og meira um orkukerfin.Tue, 12 Mar 2024
- 28 - 27: Viðskiptamennirnir Róbert Wessman og Bjarni Áka, og spjall um Vogina og VatnsberannMon, 04 Mar 2024
- 27 - 26 Gestur: Lína BirgittaMon, 26 Feb 2024
- 26 - 25: Neikvæður spírall merkjanna 2/2. Eckhart Tolle, Tony Robbins og fleiri
Í þætti vikunnar förum við yfir kortið hjá hinum magnaða Eckhart Tolle sem skrifaði bókina Mátturinn í núinu. Lítum sömuleiðis á kortið hjá markþjálfanum Tony Robbins ásamt fleiri pælingum. Skoðum svo niðurspíral seinni sex merkjanna: Meyja, Ljón, Krabbi, Tvíburi, Naut og Hrútur.
Mon, 19 Feb 2024 - 25 - 24: Neikvæður spírall merkjanna 1/2. Forstjóri Icelandair og fleiri verðlaunahafar.
Í þætti vikunnar förum við yfir kortið hjá forstjóra Icelandair, Boga Nils Bogasyni, sem í vikunni fékk markaðsverðlaun ársins, sömuleiðis skoðum við kortið hennar Ingu Tinnu eiganda Dineout sem var verðlaunuð af FKA, félags kvenna í atvinnurekstri og svo er það tónlistarkonan Laufey sem vann Grammy verðlaun. Við skoðum svo niðurspíral sex merkja, en það eru: fiskur, vatnsberi, steingeit, bogmaður, sporðdreki og vog. Í næstu viku klárum við svo hin sex merkin.
Mon, 12 Feb 2024 - 24 - 23 Gestur: Sölvi TryggvaMon, 05 Feb 2024
- 23 - 22: Er Reykjavíkurborg í hættu ?
Í þættinum berum við saman kort Dags B Eggertssonar fráfarandi borgarstjóra og Einars Þorsteinssonar núverandi Borgarstjóra og leggjum mat á mismunandi stjórnunarstíl þeirra og hvort það verði Reykjavík til hagsbóta að hafa fengið nýjan borgarstjóra.
Wed, 31 Jan 2024 - 22 - 21: Lækna Tómas / Sölvi Tryggva / Gummi Emil / Hanna Birna / Húsakerfin / Guðmunda bóndiThu, 25 Jan 2024
- 21 - 20 Gestur: Bubbi MorthensMon, 15 Jan 2024
- 20 - 19: Hvers vegna heita fræðin stjörnuspeki / Gylfi Þór / Guðni forseti og fleiraMon, 08 Jan 2024
- 19 - 18 Þessi þáttur er því miður bilaður og verður því ekki gefinn út.Mon, 08 Jan 2024
- 18 - 17 Gestur: Gerður í BLUSHMon, 18 Dec 2023
- 17 - 16: Þekktir íslendingar, uppeldi, heilbrigði og BogmaðurinnMon, 11 Dec 2023
- 16 - 15 Gestur: Halldóra Geirharðsdóttir ( Dóra Wonder )
Fyrsti vinur þáttarins er Halldóra Geirharðsdóttir ( Dóra Wonder ) sem segir okkur frá því hvernig stjörnuspekin hefur gagnast henni í daglegu lífi, starfi og í samskiptum, meðal annars við maka. Þessi þjóðargersemi sem Dóra er, stendur á tímamótum og hefur verið að vinna með Orkugreininguna sína síðustu mánuði. Þú getur fengið allar upplýsingar um Orkugreininu á heimasíðu okkar stjornuspeki.is og selfmastery.is Hér eru punktar úr þættinum sem Dóra talar um: „Ætlar að verða atvinnulaus í janúar“ „Óttast ekki gvervigreindina“ „Bannaði dóttur sinni að fara í prufur í Þjóðleikhúsinu“ „Les ekki gagnrýni þar sem hún hefur meitt hana“ „Braut framtönn um daginn á Bubbasýningunni og er hrædd um að slasast meira“ „Hefur fórnað framanum fyrir fjölskylduna“ „Var boðið að leika með SNL leikurum“
Mon, 04 Dec 2023 - 15 - 14: Stjórnmál í USA / Breyting heimskerfanna / Lesendabréf / Brad Pitt og Angelina JolieMon, 27 Nov 2023
- 14 - 13: Margrét Gnarr / Annie Knight / Niðurbrot / HúsakerfinMon, 20 Nov 2023
- 13 - 12: Spjall með Heru og ÁsgeiriMon, 13 Nov 2023
- 12 - 11: Katrín Jakobs / Fullkomnunarárátta / Útrásarvíkingar / Almennt spjall um StjörnuspekiMon, 06 Nov 2023
- 11 - 10: Hann rústaði fjölskyldunnni / Sigraðu heiminn / Grínleikarar og stjörnumerkinMon, 30 Oct 2023
Podcasts similar to Stjörnuspeki – Orkugreining
Barangay Love Stories Barangay LS 97.1 Manila | GMA Network Inc.
Good Bad Billionaire BBC World Service
Cyprian Majcher Cyprian Majcher
Die Nachrichten Deutschlandfunk
Orlofið Hafdís Arna Sigurðardóttir og Jasmín Guðrún Abu Libdeh
Podcast Wojenne Historie Historia II wojny światowej
Forensic Files HLN
Nowenna pompejańska. Świadectwa https://pompejanska.krolowa.pl/
الشيخ أحمد العجمي islami
True Crime Documentary Justin Kandell Network
WojewódzkiKędzierski Kuba Wojewódzki, Piotr Kędzierski
Læknavarpið Læknablaðið
بودكاست عقلية Moneim
Snapped: Women Who Murder Oxygen
DUDEK o polityce prof. Antoni Dudek i Super Exspress
Przemek Górczyk Podcast Przemek Górczyk
Sceny zbrodni RMF FM
Frjálsar hendur RÚV
Í ljósi sögunnar RÚV
Skuggavaldið skuggavaldid
Money News Tapt Media
Nauka To Lubię Tomasz Rożek
Żurnalista - Rozmowy bez kompromisów zurnalistapl
العلم والإيمان - د. مصطفى محمود علم ينتفع يه
