Podcasts by Category
Á Vesturlandi má finna allskonar handverk sem okkur Sigrúnu þykir mikilvægt að fjalla um og kynna. Í fyrstu 10 þáttunum ferðumst við víðsvegar um héraðið og kynnumst hæfileikaríku fólki með allskynd efnivið. Speglum handverkið í fortíðinni og kynnum okkur Jónas vikunnar, upplestur úr Íslenskum þjóðháttum eftir Jónas frá Hrafnagili.
- 20 - Skinn og sútun
Við höfum harðan skráp, eltum skinn og kíkjum á Snæfellsnesið enn einu sinni. Í þetta sinn á Hákarlasafnið í Bjarnarhöfn þar sem við fræðumst um hákarlaskráp. Anna virðist hafa farið á of mörg námskeið og segir okkur frá sútunarnámskeiði hjá Lenu Zachariassen þar sem hún lærði undirstöðuatriðin í sútun sem hún ætlar að gera í dauða tímanum, og við lærum að græða peninga með nábrók.
Mon, 26 Feb 2024 - 19 - Jötubandið
Í þessum síðasta þætti í annarri seríu sitjum við á jötubandinu og spjöllum um allt milli himins og jarðar. Lesinn er fjárhúslestur upp úr uppáhaldsbók landsmanna, Jónasi Jónassyni frá Hrafnagili. Þáttinn má að sjálfssögðu sjá á youtube, hér!
Wed, 05 Oct 2022 - 18 - Giljagaur
Það er loksins komið að því að við stöndum við stóru orðin og heimsækjum hæfileikakonuna Josefinu Morell að Giljum í Hálsasveit í Borgarfirði. Hún vill læra allt sem viðkemur handverki og gengur bara vel að klára þann lista. Ef hún er í vafa, þá er alltaf hægt að gúggla og byrja svo bara.
Wed, 05 Oct 2022 - 17 - SteinarWed, 05 Oct 2022
- 16 - Horn og beinWed, 05 Oct 2022
- 15 - ÚtskurðurThu, 29 Sep 2022
- 14 - HáriðTue, 27 Sep 2022
- 13 - ÞjóðbúningamafíanTue, 27 Sep 2022
- 12 - Leir!
Ef þú vilt vita hvar leir er að finna í náttúrunni, spurðu þá börnin. Eða vegavinnufólkið, því það er búið að finna hann. Í heimsókn okkar til Sigríðar Erlu í Leir 7 í Stykkishólmi komumst við að því að það er til ljómandi góður og vinnanlegur leir á Vesturlandi og að úr honum er hægt að gera hvað sem er.
Tue, 27 Sep 2022 - 11 - Strikkefestival.
Oft hefur verið gaman á mörkuðum bæði nú sem fyrr. Bændur flykkjast að með vaðmálin, ullina, vörurnar eða til þess eins að sýna sig og sjá aðra. Anna og Sigrún lögðu land undir fót og tóku þátt í Pakhusstrik 2019 í Kaupmannahöfn nú í september. Þar kenndi ýmissa grasa og þær stöllur fóru að velta fyrir sér handverkshátíðum hjá nágrönnum vorum og hvert væri gaman að skella sér næst...?
Tue, 27 Sep 2022 - 10 - Þófarinn
Þófarinn segir okkur allt um þá list að þæfa ull í bæði nytsamlega hluti og stórkosleg listaverk. Við fáum innsýn inn í verk Steinunnar Steinarsdóttur, listakonu í Borgarnesi sem hefur fært þæfingu upp á hærra stig, endilega lítið á myndirnar á fésbókarsíðunni Þjóðlegir þræðir. Berglind fékk frí frá okkur þessa vikuna en við bætum það upp með söng og tali um dýrðlega keytu. Lesa má meira um ævintýri Sigrúnar og Önnu Drafnar á www.kvikvi.is.
Wed, 31 Aug 2022 - 9 - Angoran
Í þessum siðasta þætti seríunnar hitti Anna formann Kanínuræktarfélags Íslands og lítilsháttar kanínubónda að máli, sem vill svo til að er Sigrún, hinn þáttastjórnandi Þjóðlegra þráða. Þær komu sér vel fyrir í fjárhúsum þeirrar síðarnefndu, klipptu angórukanínu og ræddu kanínurækt og kanínufiðu. Öllu var þessu varpað í beinni útsendingu á facebook síðu þáttarins, þar sem enn er hægt að finna myndbandið.
Tue, 30 Aug 2022 - 8 - Vefarinn
Í þættinum um vefarann höldum við áfram að ræða um vaðmál sem lengi vel var helsta útflutningsvara Íslendinga. Í nútíma samfélagi er hins vegar lítið um að fólk sé með risavaxinn vefstól í stofunni hjá sér. Hins vegar vill svo til að við fundum slíka konu í Borgarfirði, sem ekki er með einn heldur tvo vefstóla uppi. Við heimsóttum vefnaðarkennarann og listakonuna Snjólaugu Guðmundsdóttir á Brúarlandi á Mýrum og heyrðum mörg torkennileg orð sem við erum enn að melta. Meira um ævintýri Önnu og Sigrúnar má lesa um á www.kvikvi.is.
Tue, 30 Aug 2022 - 7 - Hönnuðurinn
Við erum öll einhvers konar hönnuðir inni við beinið. Hvað veldur því að við viljum skreyta fatnað okkar með litum og mynstrum? Í þættinum kíkjum við á sjónabækur og gömul munstur um leið og við ræðum nútímahönnun og hlutverk karlmanna í því sjónarspili. Berglind segir frá litavali skandinava í prjónaskap og Jónas gefur okkur ráð um hvernig hægt sé að halda sér vakandi yfir prjónunum fram eftir nóttu. Sjá má fleiri ævintýri Sigrúnar og Önnu Drafnar á www.kvikvi.is.
Tue, 30 Aug 2022 - 6 - Sjómaðurinn
Nú hætta bændur sér út á sjó. Er það óhætt? Geta þær klætt sjómann nægilega vel? Hversu mörg nöfn geta verið yfir vettlinga? Koma þær að tómum kofanum hjá Jónasi í þetta sinn? Hvernig er hægt að bera kennsl á sjórekið lík? Fæst einhver botn í stóra duggarapeysumálið? Og síðast en ekki síst: hvernig ber maður fram orðið"Gurnsey”?? Fylgist með ævintýrum Sigrúnar og Önnu Drafnar á www.kvikvi.is.
Tue, 30 Aug 2022 - 5 - Jurtalitir
Við fórum í ótrúlega fróðlega og skemmtilega heimsókn til Guðrúnar Bjarnadóttur jurtalitara í Hespuhúsinu hennar, í Andakíl í Borgarfirði. Þar fengum við að kíkja í alls kyns ilmandi potta og snerta alla litaflóruna í hillunum. Það kemur á óvart hversu gjöful íslensk náttúra er þegar kemur að jurtalitun. Það gæti verið að loksins sé komið hlutverk fyrir hina umdeildu lúpínu. En við höfum samt ekki möguleikann á að framkalla bleikan og bláan lit úr innlendri flóru. En við fáum að vita hvaðan þeir koma. Meira um ævintýri Sigrúnar og Önnu Drafnar má sjá á www.kvikvi.is.
Tue, 30 Aug 2022 - 4 - Kaupmaðurinn
Hvert ferðu ef þig langar í vandað handverk? Í þættinum færðu að vita allt um handverks kaupmenn á Vesturlandi, sem reyndar eru aðallega konur. Berglind veltir fyrir sér muninum á íslensku og norsku ullarpeysunni og Jónas fræðir okkur um búðarferðir fyrri tíma. Sigrún einbeitir sér sveitt að því að fallbeygja orðið "lundi" um leið og Anna passar að hún rugli ekki saman Gallerí Lunda í Stykkishólmi við lundabúðirnar í Reykjavíkurhreppi. Sjá má fleira um ævintýri Önnu og Sigrúnar á www.kvikvi.is.
Tue, 30 Aug 2022 - 3 - Geitahirðirinn
Er eitthvað sætara en geitakiðlingur sem klifrar upp í barnavagn? Allir ættu að hafa kíkt í heimsókn til Jóhönnu á Háafelli í Hvítársíðu í Borgarfirði sem rekur Geitfjársetur Íslands. Miðað við öll örnefnin sem tengd eru við geitur hér á landi er ljóst að þær hafa verið hér frá landnámi þó svo að fjöldi þeirra hafi verið mjög misjafn. En þær eru ekki bara sætar og skemmtilegar, þær eru líka nytsamlegar. Hvernig? Hlustaðu nú. Meira um ævintýri Sigrúnar og Önnu Drafnar má sjá á www.kvikvi.is.
Tue, 30 Aug 2022 - 2 - Spinnigal!
Í þessum þætti er spjallað um spuna, tæki og tól, gamla rokkinn og fleira. Rædd er þegar spunabylgjan mikla reið yfir árið 1991 þegar Ullarselið á Hvanneyri var stofnað. Við heyrum líka um spuna í fornsögum frá henni Berglindi og fáum að sjálfsögðu heilræði frá Jónasi vikunnar. Meira um Sigrúnu og Önnu á www.kvikvi.is.
Tue, 30 Aug 2022 - 1 - Ull er gull
Fyrsti þáttur í fyrstu seríu af Vesturlandi þar sem vinkonurnar Anna Dröfn og Sigrún Elíasdóttir velta vöngum og fræðast um íslenskt handverk. Í þessum fyrsta þætti verður spjallað um eiginleika íslensku ullarinnar og notkunarmöguleika ullar í fortíð og nútíð. Lesin er valin klausa upp úr bók Jónasar frá Hrafnagili, Íslenskir þjóðhættir, í Jónasi vikunnar. Einnig er innlegg frá Berglindi Ingu prjónara í Alvdal, hvernig frændur vorir í Noregi nýta sína ull. Sérstakt umfjöllunarefni þáttarins er allar hliðar hlands í ullarvinnslu áður fyrr.
Tue, 30 Aug 2022
Podcasts similar to Þjóðlegir þræðir - Hlaðvarp um handverk
- El Partidazo de COPE COPE
- Herrera en COPE COPE
- The Dan Bongino Show Cumulus Podcast Network | Dan Bongino
- The Parkinson's Podcast Davis Phinney Foundation
- Es la Mañana de Federico esRadio
- La Noche de Dieter esRadio
- MÓWI SIĘ Joanna Kołaczkowska i Szymon Majewski
- Express Biedrzyckiej - seria gorących, politycznych wywiadów Kamila Biedrzycka
- WojewódzkiKędzierski Kuba Wojewódzki , Piotr Kędzierski
- NASSAU BEACH CLUB IBIZA with Alex Kentucky Nassau Beach Club Ibiza
- Más de uno OndaCero
- Poranna rozmowa w RMF FM RMF FM
- Frjálsar hendur RÚV
- Í ljósi sögunnar RÚV
- El Larguero SER Podcast
- Nadie Sabe Nada SER Podcast
- SER Historia SER Podcast
- Todo Concostrina SER Podcast
- 安住紳一郎の日曜天国 TBS RADIO
- Англійський Експрес Англійський Експрес
- 辛坊治郎 ズーム そこまで言うか! ニッポン放送
- 飯田浩司のOK! Cozy up! Podcast ニッポン放送
- 武田鉄矢・今朝の三枚おろし 文化放送PodcastQR
Other Arts Podcasts
- David Guetta David Guetta
- وصال دوت أف أم إذاعة الوصال
- کتاب صوتی - Ketab soti Ketab soti
- Life is a cabaret Renan CROS
- Manalê Cia OBaobá
- Chapter Audio Books on PodOmatic Chapter Audio Books
- Eftirmál Tal
- Radio Jamaica Isaac Balmes
- Afterwork TECHNO w/ BL.CK BL.CK
- ЛИТ-РА Константин Малахов
- Audio libri e Audio racconti Artisti Fuori Posto
- كتب صوتية أبو راشد
- أغرب القضايا Podcast Record
- روائع المسلسلات الإذاعية Podcast Record
- The Arabian Nights Entertainments by Unknown Loyal Books
- Nick Abbot Archive Global Media
- India Roshan K sing
- Поверх барьеров RFE/RL
- Заходят как-то в бар... Заходит как-то в бар...
- Sons of Liberty Podcast Genesis Communications Network, Inc.