Podcasts by Category

Þjóðmál

Þjóðmál

Þjóðmál

Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.

470 - #470 – Kaffispjall með Birni Jóni – Veraldavafstur nú og áður
0:00 / 0:00
1x
  • 470 - #470 – Kaffispjall með Birni Jóni – Veraldavafstur nú og áður

    Björn Jón Bragason, sagnfræðingur og lögfræðingur, ræðir nýjustu bók sína Veraldavafstur, þar sem fjallað er um sögu feðganna Sveins B. Valfells og Sveins Valfells í umróti 20. aldar. Við fjöllum um sögu frumkvöðla sem áttu stóran þátt í því að móta íslenskt atvinnulíf kreppur, höft og pólitískt mótlæti, hvernig iðnaðarfyrirtæki þurftu að stunda leynilega lánastarfsemi og margt fleira. Einnig er rætt um það hvort og þá hvernig þessi saga rímar við nútímann, um hættuna á nýjum höftum, mikilvægi frjálsra viðskipta og þess að réttarríkið standi undir nafni. Þá ræðum við einnig um önnur samfélagsmál, bæði hér á landi og á meginlandi Evrópu.

    Tue, 27 Oct 2026 - 1h 05min
  • 469 - #469 – Helgarvaktin með Stefáni Einar og Þórði Gunnars – Frelsisbollinn mættur og formaðurinn fer í frí

    Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson á líflega Helgarvakt Þjóðmála þar sem rætt er um stóru málin. Rætt er um vandræði Viðreisnar sem mögulega eiga eftir að verða fleiri, stöðu ríkisstjórnarinnar, frí formannsins í Asíu og hrókeringar í nefndarsetum á vegum flokksins. Þá er fjallað um óeirðirnar í Frakklandi sem sumir vilja bara kalla saklaus stúdentamótmæli, mögulega rannsókn á vinnubrögðum sérstaks saksóknara, leka á trúnaðarupplýsingum sem Rúv hefur þó aldrei heyrt um og margt fleira. Þá eru fastir liðir að sjálfsögðu á sínum stað – hrós vikunnar, bókameðmæli, hraðaspurningar og fleira.

    Fri, 23 Oct 2026 - 1h 33min
  • 468 - #468 – Kaffispjall með Jóni Gnarr – Ekki í boði að sitja og þegja

    Jón Gnarr mætir í ítarlegt og persónulegt kaffispjall um pólitíska vegferð sína og hugmyndafræði. Jón rýnir í ákvörðun sína um að segja sig úr þingflokki Viðreisnar, svarar spurningum um það hvort að flokkurinn sé yfir höfuð frjálslyndur nema að nafninu til, hvað felist í því að styðja ríkisstjórnina þrátt fyrir það sem á undan er gengið og öðru sem snýr að starfi flokksins. Þá er rætt um nýlegar greinar hans þar sem kallað er eftir auknu frelsi í samfélaginu, skort á stuðningi við þau verkefni sem hann hefur lagt áherslu á, beitingu húmors í stjórnmálum, forsetaframboð, slaufunarmenningu og margt fleira.

    Tue, 20 Oct 2026 - 2h 08min
  • 467 - #467 – Helgarvaktin með Jens Garðari og Konráð Guðjóns – Enginn veit hvaða lag verður samið á morgun

    Jens Garðar Helgason og Konráð S. Guðjónsson mæta í líflegt samtal um stjórnmálin, efnahagsmálin og áskoranir í atvinnulífinu. Í upphafi er slegið á létta strengi með tónlist og eðalveitingum ásamt því að vekja athygli á Áramótasprengju Þjóðmála. Þá fjöllum við um vont loft í Efstaleiti, afsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar, nýjar traustmælingar á stjórnmálamönnum, innihaldslausan aðgerðalista ríkisstjórnarinnar, viðvaranir forystumanna í ferðaþjónustu vegna skattahækkana, horfur á lækkun vaxta, komandi loðnuvertíð og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, s.s. hrós vikunnar, bókameðmæli, hraðaspurningar og fleira.

    Fri, 16 Oct 2026 - 1h 47min
  • 466 - #466 – Kaffispjall með Ingva Þór og Helga Frímannssyni – Ölgerðin fær gula spjaldið – Markaðurinn hikstar en horfir til betri tíma

    Ingvi Þór Georgsson, framkvæmdastjóri Aflamiðlunar, og Helgi Frímannsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum hjá Landsbankanum, ræða um stöðuna í atvinnulífinu og á fjármálamarkaði. Gestirnir rýna í stöðu Ölgerðarinnar, ástæður þess að ráðist var í húsleit hjá félaginu fyrir helgi og tilraunir til útrásar með Collab, sem hefur reynst erfiðari en vonir stóðu til. Þá er einnig fjallað um loðnumælingar Hafró og möguleg áhrif hennar á hagkerfið, hik í sjávarútvegi til að fjárfesta í kjölfar skattahækkunar í fyrra, stöðuna á hlutabréfamarkaði eins og hún blasir við núna, hvernig horfurnar kunna að vera með nýjum félögum á markað og fleira.

    Tue, 13 Oct 2026 - 1h 05min
Show More Episodes