Nach Genre filtern
- 470 - #470 – Kaffispjall með Birni Jóni – Veraldavafstur nú og áður
Björn Jón Bragason, sagnfræðingur og lögfræðingur, ræðir nýjustu bók sína Veraldavafstur, þar sem fjallað er um sögu feðganna Sveins B. Valfells og Sveins Valfells í umróti 20. aldar. Við fjöllum um sögu frumkvöðla sem áttu stóran þátt í því að móta íslenskt atvinnulíf kreppur, höft og pólitískt mótlæti, hvernig iðnaðarfyrirtæki þurftu að stunda leynilega lánastarfsemi og margt fleira. Einnig er rætt um það hvort og þá hvernig þessi saga rímar við nútímann, um hættuna á nýjum höftum, mikilvægi frjálsra viðskipta og þess að réttarríkið standi undir nafni. Þá ræðum við einnig um önnur samfélagsmál, bæði hér á landi og á meginlandi Evrópu.
Tue, 27 Oct 2026 - 1h 05min - 469 - #469 – Helgarvaktin með Stefáni Einar og Þórði Gunnars – Frelsisbollinn mættur og formaðurinn fer í frí
Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson á líflega Helgarvakt Þjóðmála þar sem rætt er um stóru málin. Rætt er um vandræði Viðreisnar sem mögulega eiga eftir að verða fleiri, stöðu ríkisstjórnarinnar, frí formannsins í Asíu og hrókeringar í nefndarsetum á vegum flokksins. Þá er fjallað um óeirðirnar í Frakklandi sem sumir vilja bara kalla saklaus stúdentamótmæli, mögulega rannsókn á vinnubrögðum sérstaks saksóknara, leka á trúnaðarupplýsingum sem Rúv hefur þó aldrei heyrt um og margt fleira. Þá eru fastir liðir að sjálfsögðu á sínum stað – hrós vikunnar, bókameðmæli, hraðaspurningar og fleira.
Fri, 23 Oct 2026 - 1h 33min - 468 - #468 – Kaffispjall með Jóni Gnarr – Ekki í boði að sitja og þegja
Jón Gnarr mætir í ítarlegt og persónulegt kaffispjall um pólitíska vegferð sína og hugmyndafræði. Jón rýnir í ákvörðun sína um að segja sig úr þingflokki Viðreisnar, svarar spurningum um það hvort að flokkurinn sé yfir höfuð frjálslyndur nema að nafninu til, hvað felist í því að styðja ríkisstjórnina þrátt fyrir það sem á undan er gengið og öðru sem snýr að starfi flokksins. Þá er rætt um nýlegar greinar hans þar sem kallað er eftir auknu frelsi í samfélaginu, skort á stuðningi við þau verkefni sem hann hefur lagt áherslu á, beitingu húmors í stjórnmálum, forsetaframboð, slaufunarmenningu og margt fleira.
Tue, 20 Oct 2026 - 2h 08min - 467 - #467 – Helgarvaktin með Jens Garðari og Konráð Guðjóns – Enginn veit hvaða lag verður samið á morgun
Jens Garðar Helgason og Konráð S. Guðjónsson mæta í líflegt samtal um stjórnmálin, efnahagsmálin og áskoranir í atvinnulífinu. Í upphafi er slegið á létta strengi með tónlist og eðalveitingum ásamt því að vekja athygli á Áramótasprengju Þjóðmála. Þá fjöllum við um vont loft í Efstaleiti, afsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar, nýjar traustmælingar á stjórnmálamönnum, innihaldslausan aðgerðalista ríkisstjórnarinnar, viðvaranir forystumanna í ferðaþjónustu vegna skattahækkana, horfur á lækkun vaxta, komandi loðnuvertíð og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, s.s. hrós vikunnar, bókameðmæli, hraðaspurningar og fleira.
Fri, 16 Oct 2026 - 1h 47min - 466 - #466 – Kaffispjall með Ingva Þór og Helga Frímannssyni – Ölgerðin fær gula spjaldið – Markaðurinn hikstar en horfir til betri tíma
Ingvi Þór Georgsson, framkvæmdastjóri Aflamiðlunar, og Helgi Frímannsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum hjá Landsbankanum, ræða um stöðuna í atvinnulífinu og á fjármálamarkaði. Gestirnir rýna í stöðu Ölgerðarinnar, ástæður þess að ráðist var í húsleit hjá félaginu fyrir helgi og tilraunir til útrásar með Collab, sem hefur reynst erfiðari en vonir stóðu til. Þá er einnig fjallað um loðnumælingar Hafró og möguleg áhrif hennar á hagkerfið, hik í sjávarútvegi til að fjárfesta í kjölfar skattahækkunar í fyrra, stöðuna á hlutabréfamarkaði eins og hún blasir við núna, hvernig horfurnar kunna að vera með nýjum félögum á markað og fleira.
Tue, 13 Oct 2026 - 1h 05min - 465 - #465 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Ólöfu Skafta – Erfitt að verðmeta það sem ekki verður
Stefán Einar Stefánsson og Ólöf Skaftadóttir mæta í líflegt samtal um heitustu málin – og sitthvað annað. Rætt er um kjarasamningana, leikþátt VR, opinbera starfsmenn sem bíða á kantinum, stýrivexti, heimskulegar hugmyndir um leigubremsu, fyrirsjáanlegan taprekstur hjá ríkinu, baráttuna við Fjölmiðlanefnd og margt annað. Þá eru fastir liðir á sínum stað, s.s. hrós vikunnar, viðmælendur stíga á svið, hraðaspurningar og bókameðmæli.
Fri, 09 Oct 2026 - 2h 03min - 464 - #464 – Kaffispjall með Birni Bjarnasyni – Heimsókn úr Vesturheimi og brothætt staða ríkisstjórnarinnar
Björn Bjarnason mætir í samtal um stóru málin í utanríkis- og innanlandspólitíkinni. Við fjöllum meðal annars um heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í dag og mikilvægi samstarfs þjóðanna og öryggismála á Norður-Atlantshafi, og rýnum í væntanlega bók Björns þar sem hann greinir aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar, ESB-umræðuna í heild sinni og áhrif hennar á íslensk stjórnmál. Sjónum er einnig beint að brothættri stöðu ríkisstjórnarinnar í kjölfar atkvæðagreiðslunnar. Björn rifjar upp fyrri ummæli sín um að Flokkur fólksins uppfylli ekki skilyrði sem alvöru stjórnmálaflokkur og metur þá þróun sem orðið hefur. Að lokum er slegið á sögulega strengi þegar farið er yfir leiðtogafund Reagans og Gorbatsjevs í Höfða, en í vikunni eru liðin 40 ár frá þeim sögulega viðburði sem Björn fylgdist náið með sem aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins.
Tue, 06 Oct 2026 - 1h 09min - 463 - #463 – Helgarvaktin með Andrési og Birni Inga – Bara brosa og slappa af
Andrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson fara yfir heitu málin og pólitíska hausthrollinn. Rætt er um ummæli fjármálaráðherra um að heimili eigi að þola sársaukann, þingmenn sem rjúka út í fússi af fundum með sveitarstjórnarmönnum, nýjan Þjóðarpúls og það hvort að einhver sé að hlaupa með vinningskeflið í stjórnmálum þessa dagana, komandi vetur sem kann að verða þungur í efnahagslegu tilliti, ræðu utanríkisráðherra á allsherjarþingi SÞ, kosningastjóra á launum hjá utanríkisráðuneytinu og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, t.d. hrós vikunnar og hraðaspurningar, auk þess sem viðmælendur stíga á svið með eigin málefni.
Fri, 02 Oct 2026 - 1h 39min - 462 - #462 – Kaffispjall með Jóhanni Má í Wolt
Jóhann Már Helgason, framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi, ræðir um innreið tæknifyrirtækisins á íslenskan markað, deilihagkerfið og röskun á vinnumarkaði auk þess sem hann svarar gagnrýni verkalýðsfélaga og fjölmiðla um stöðu sjálfstætt starfandi verktaka hjá fyrirtækinu. Þá er einnig rætt um tæknihliðina á starfsemi Wolt, hvað skýrir vinsældir þeirra þjónustu sem fyrirtækið býður upp á, áhrif á veitingastaði, hvernig heimsendingum kann að verða háttað í framtíðinni og margt annað.
Tue, 29 Sep 2026 - 1h 03min - 461 - #461 – Helgarvaktin með Hildi Sverris og Erni – Spilaborgin að hrynja
Hildur Sverrisdóttir og Örn Arnarson mæta á skemmtilega helgarvakt þar sem stjórnmálin, vinnumarkaðurinn og efnahagsmálin eru krufin til mergjar. Pólitíkin tekur fljótt yfir þar sem gestirnir rýna í nýjustu átökin innan stjórnarliðsins og innanhússskilaboð sem minna helst á House of Cards. Velt er upp þeirri kenningu hvort breytingar séu í vændum á ríkisstjórnarsamstarfinu, farið er yfir verkföll hálaunastétta, vaxandi atvinnuleysi og svartsýni í íslensku atvinnulífi. Einnig er rætt um tilefni og tilgang funda sem utanríkis- og forsætisráðherrar sækja nú erlendis, úrillan fjármálaráðherra, stöðu fjölmiðla og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, viðmælendur reima á sig skó og stíga á svið, skoða mögulega ferðafélaga, mæla með bókum og svara hraðaspurningum.
Fri, 25 Sep 2026 - 1h 58min - 460 - #460 – Kaffispjall með Gunnari Baldvinssyni – Mikið unnið með fjárhagslegu sjálfstæði
Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna-Lífsverk lífeyrissjóðsins, mætir í gott spjall um nýútkomna og endurbætta útgáfu af bók sinni, Farsæl skref í fjármálum. Bókin, sem er lokahuti í þriggja bóka röð ætlaðri til að efla fjármálalæsi, hefur stækkað umtalsvert og geymir hagnýt tæki og tól fyrir daglega fjármálastjórn og stærri ákvarðanir á lífsleiðinni. Rætt er um kosti og galla verðtryggðra og óverðtryggðra lána við mismunandi vaxtastig, um sparnað og fjárfestingar, raunhæf dæmi um fasteignakaup ungs fólks og margt fleira.
Tue, 22 Sep 2026 - 43min - 459 - #459 – Helgarvaktin með Árna Helga og Lilju Alfreðs – Vindurinn virkjaður, í logni
Árni Helgason og Lilja Dögg Alfreðsdóttir mæta í líflegt og beinskeytt samtal um stóru málin í pólitíkinni og efnahagslífinu. Við ræðum um vindorkuverk sem var ræst í blankalogni, pirraðan fjármálaráðherra og óraunhæf markmið í fjárlögum, hvernig ríkisstjórnin ýtir því verkefni á undan sér að takast á við háa verðbólgu, tillögur um jöfnun atkvæðavægis og hvaða þingmenn eiga sæti sín undir því, bílaleigur sem eru að fá Skattinn í bakið eftir að hafa farið að ráðum Skattsins, áhrif gervigreindar á hagkerfið og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, hrós vikunnar, bókameðmæli og hraðaspurningar.
Fri, 18 Sep 2026 - 1h 51min - 458 - #458 – Kaffispjall með Óla Birni – Hamrað á grunnhugmyndum hægri manna
Óli Björn Kárason ræðir um helstu hugmyndir hægri manna um frjálsan markað, minni ríkisafskipti og öflugt einkaframtak í kjölfar útgáfu á nýrri bók sinni, Villigötur valdsins. Í þættinum er meðal annars rætt um það hvort að ríkisvaldið sé að seilast of langt inn í einkalíf og atvinnulíf landsmanna, hvort að stjórnlyndi sé að verða nýtt norm, um það hvernig ríkið beitir sköttum til að hafa áhrif á hegðun fólks, um afskipti hins opinbera af fjölmiðlum og margt fleira. Hér er um að ræða aðgengilegt samtal fyrir alla sem vilja dýpri skilning á samfélagsmálum, efnahagslífinu og frelsisbaráttunni á Íslandi í dag.
Tue, 15 Sep 2026 - 1h 26min - 457 - #457 – Helgarvaktin með Ásdísi Kristjáns og Herði – Það þarf alvöru verkfæri ef það á að laga eitthvað
Ásdís Kristjánsdóttir og Hörður Ægisson ræða fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar, boðaðar skattahækkanir, leikþáttinn við kynningu frumvarpsins, líkurnar á því að rekstur ríkissjóðs komist yfir núllið og falleinkunn markaðarins yfir frumvarpinu með vaxandi verðbólguvæntingum. Einnig er rýnt í stjórnmálin og stefnuræðu forsætisráðherra og mögulega hefndarför utanríkisráðherra, íslenska hlutabréfamarkaðinn og skort á einkafjárfestum, stórfjárfestingar í tækni og gervigreind erlendis og efnahagsáhyggjur í borgarpólitíkinni. Þá eru fastir liðir á sínum stað, hraðaspurningar, hrós vikunnar auk þess sem viðmælendur reima á sig skóna og stíga á svið.
Fri, 11 Sep 2026 - 1h 32min - 456 - #456 – Kaffispjall með Sigurði Má – Farið yfir sviðið í evrópskum stjórnmálum
Sigurður Már Jónsson blaðamaður ræðir um pólitíska stöðu og horfur innan ríkja í Evrópu. Við rýnum í þróunina í Þýskalandi og Frakklandi - tveimur áhrifamestu ríkjum innan ESB - og hvernig innri krísur í þessum lykilríkjum hafa áhrif á stöðu sambandsins allt í heild sinni. Sérstaklega er sjónum beint að nýlegum kosningasigrum AfD í Þýskalandi og vaxandi fylgi stjórnmálaflokka víðs vegar um álfuna sem eru langeygðir eða efagjarnir á frekari samruna innan ESB. Þá er ræddur vaxandi og djúpstæður ágreiningur á milli aðildarríkja þegar kemur að útlendingamálum, landamæravörslu og menningarmálum, breyttan pólitískan veruleika, andstöðu við frekari miðstýringu og minnkandi samkeppnishæfni og aðra þætti sem reyna sífellt meira á þolrif álfunnar.
Tue, 08 Sep 2026 - 1h 13min - 455 - #455 – Helgvarvaktin með Heiðari Guðjóns og Sigríði Andersen – Raunveruleikinn bankar á dyrnar
Heiðar Guðjónsson og Sigríður Á. Andersen mæta á helgarvaktina og fara yfir eftirmála þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðild að ESB, kröfur um rannsóknir á úrslitunum, viðbrögð þeirra sem lutu í lægra haldi, starfsemi Rúv í aðdraganda kosningarinnar og fleira. Þá er rætt um mögulega skuldakreppu í Frakklandi og skuldasöfnun annarra ríkja, stöðu hagkerfisins hér á landi sem glímir við verðbólgu, háa vexti og kjarasamninga sem kunna að vera í uppnámi, háa bankaskatta og áhrif þeirra, breytingar á fjölmiðlamarkaði og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, bókarýni, hrós vikunnar og hraðaspurningar.
Fri, 04 Sep 2026 - 1h 36min - 454 - #454 – Miðnæturspjall með Stefáni Einari og Andrési – Jáið er dáið, næsta mál
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson rýna í niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að Evrópusambandinu, ósigur ríkisstjórnarinnar í málinu, stöðu einstakra ráðherra að lokinni, hvað lesa skuli i mikla kjörsókn, hvernig kosningabaráttan fór fram og fleira sem snýr að þessu máli sem lagðist eins og mara yfir þjóðfélagið í sumar. Þá ræðum við um þær áskoranir sem eru framundan, bæði á vettvangi stjórnmála og í hagkerfinu og margt fleira.
Mon, 31 Aug 2026 - 2h 02min - 453 - #453 – Helgarvaktin með Þórði Páls og Orra Hauks – Þetta er alveg að verða búið
Þórður Pálsson, efnahagsráðgjafi Þjóðmála, og Orri Hauksson mæta í líflegan þátt þar sem efnahagsmálin og stjórnmálin eru í brennidepli. Þeir rýna í nýja könnun Viðskiptablaðsins, þar sem yfirgnæfandi meirihluti telur ríkisstjórnina standa sig illa í efnahagsmálum, ásamt því að leggja mat á þróun væntingavísitölunnar, Evrópusambandsleiðangur ríkisstjórnarinnar, flótta utanríkisráðherra undan alvöru viðtölum, hreyfingar í veðbönkum, skattalækkanir hægri manna í sveitastjórnum og skattahækkanir ríkisstjórnarinnar og margt fleira. Loks eru fastir liðir á sínum stað, hrós vikunnar, bókameðmæli, hraðaspurningar og fleira.
Fri, 28 Aug 2026 - 1h 46min - 452 - #452 – Kaffispjall með Stefáni Einari og Þórði – ESB mun vilja hagnaðinn af Landsvirkjun
Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson mæta í líflegt samtal þar sem þjóðaratkvæðagreiðslan um aðild að Evrópusambandinu og orkumálin eru í brennidepli. Við rifjum upp vel heppnað bjórkvöld Þjóðmála á Selfossi, fjöllum um eftirvæntinguna fyrir Þjóðfundi Þjóðmála á föstudaginn kemur, rýnum í Epic-stuðlana, beinum sjónum okkar að einkaviðtali Rúv við utanríkisráðherra nokkrum dögum fyrir kosningar og ósvöruðum spurningum um sjávarútvegsmál. Þá er rætt um grein Þórðar í Morgunblaðinu í morgun og þá staðreynd að orkumál hafa gleymst í umræðunni þó svo að vitað sé að ESB mun sækjast eftir íslenskri orku.
Tue, 25 Aug 2026 - 1h 00min - 451 - #451 – Maraþonþáttur IV – Epic útgáfa
Fjórði maraþonþáttur Þjóðmála er mættur á allar helstu veitur og á Youtube. Gestir þáttarins eru Hörður Ægisson, Lárus Welding, Björt Ólafsdóttir, Örn Arnarson, Konráð S. Guðjónsson, Arnar Þór Stefánsson, Andrés Magnússon, Vilhjálmur Birgisson, Heiðrún Lind Marteinsdóttir, Andrea Sigurðardóttir, Þórður heitinn Gunnarsson, Bjarni Benediktsson, Einar Sigurðsson, Stefán Einar Stefánsson, Ólöf Skaftadóttir og Kristín Gunnarsdóttir. Hér er um 4,5 klst. skemmtun fyrir alla þjóðina.
Fri, 21 Aug 2026 - 4h 36min - 450 - #450 – Kaffispjall á Te & kaffi með Alberti Jónssyni
Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra, ræðir um utanríkismál og mögulegar aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu í sérstökum aukaþætti Þjóðmála. Albert færir rök fyrir því að sérstaða Íslands útiloki í reynd aðild án þess að gengið sé á grundvallarhagsmuni þjóðarinnar. Í spjallinu er rýnt í þá óvissu sem fylgir því að hefja viðræður án skýrra markmiða, við ræðum um reynsla Norðmanna af sambærilegu ferli og greint er á milli varanlegra og tímabundinna undanþága. Albert útskýrir hvers vegna ESB mun vart gefa eftir í grundvallarreglum um ýmis atriði sem snúa að Íslandi auk þess sem rætt er um hvernig hátt hlutfall endurnýjanlegrar orku hér á landi skapar árekstra við loftslagsstefnu sambandsins. Þá er litið til sögulegs sjálfstæðis í átakamálum auk þess sem rætt er um það sem sumir vilja kalla „breytta heimsmynd“ og hvort að hún kalli á afdrifaríkar ákvarðanir af hálfu Íslands.
Wed, 19 Aug 2026 - 1h 08min - 449 - #449 – Kaffispjall með Trausta Hjálmarssyni – Bændur eru búnir að kíkja í pakkann
Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna, mætir í efnismikið og upplýsandi spjall um stöðu og framtíð íslensks landbúnaðar. Trausti rýnir í nýútkomna skýrslu um afleiðingar mögulegrar ESB-aðildar Ísland og litlar væntingar til þess að Ísland fái undanþágur frá sameiginlegu landbúnaðarstefnu sambandsins. Hann svarar jafnframt gagnrýnisröddum sem telja samtökin teikna upp hræðslumynd auk þess að ræða hvort aðgangur að Evrópumarkaði gagnist íslenskum bændum í raun. Þá ræðir Trausti einnig um tækifærin í íslenskum landbúnaði, þá framþróun sem hefur átt sér stað og hverju búast megi við í framtíðinni, mikil vægi fæðuöryggis, kynslóðaskipti og nýliðun í greininni og margt fleira.
Tue, 18 Aug 2026 - 57min - 448 - #448 – Helgarvaktin með Snorra Mássyni og Diljá Mist – Þjóðmál boða til þjóðfundar
Snorri Másson og Diljá Mist Einarsdóttir mæta í líflegt spjall um heitustu málin í pólitíkinni og efnahagslífinu. Við ræðum um komandi viðburði Þjóðmála á Selfossi og í Háskólabíói, rýnt er í væntanlega stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans og svartsýna spá AGS um að hallalaus fjárlög verði ekki að veruleika fyrr en árið 2031 — sem stangast á við bjartsýni forsætisráðherra um að hlutirnir stefni í rétta átt. Þá er rætt um ESB-atkvæðagreiðsluna, viðhorf ungs fólks til ESB, örvæntingu þeirra sem vilja ganga í ESB og fleira í þeim dúr. Loks eru fastir liðir á sínum stað; Hrós vikunnar, hraðaspurningar, bókameðmæli og nýr liður þar sem viðmælendur velja sér þjóðarleiðtoga til að taka með í frí. Við minnum síðan á miðasöluna á Þjóðfund Þjóðmála inn á Tix.
Fri, 14 Aug 2026 - 2h 20min - 447 - #447 – Kaffispjall með Eddu Hermanns
Edda Hermannsdóttir, forstjóri Apótekarans, fer yfir stóru stefnubreytinguna og endurmörkunina úr Lyf og heilsu yfir í Apótekarann, stafræna vegferð og hvernig ásýnd apóteka er að breytast í takt við erlenda strauma. Við ræðum líka krefjandi rekstrarumhverfi íslenskra apóteka. Edda ræðir jafnframt áhrif þess þegar ríkið stýrir álagningu á meðan launakostnaður hækkar, hvers vegna ný líftæknilyf breyta framlegðinni, hvernig séríslenskar mönnunarkröfur reyna á rekstur um allt land, jafnvægislistina á milli samfélagslega mikilvægrar heilbrigðisþjónustu og sjálfbærs atvinnurekstrar og margt fleira.
Tue, 11 Aug 2026 - 52min - 446 - #446 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Þórði – Er skaðinn skeður?
Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson fara yfir heitustu málin í skugga þess að almyrkvi á sól er framundan. Strákarnir rifja upp vel heppnað golfmót Þjóðmála sem fram fór í gær og bjórkvöld Þjóðmála um hábjartan dag í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina. Þá er rætt um sjálfsmörk þeirra sem telja að Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið, villandi málflutning um tengingu sænsku krónunnar við evru, framleiðslu Rúv á efni fyrir Já til að sjá hreyfinguna, nýjar fylgismælingar og stöðuna í veðbönkum, vandræðalega aðdáun yfirmanns Maskínu á utanríkisráðherra og fleira. Við veltum því líka upp hvort að nú þegar sé búið að skaða samfélagið með því hvernig fulltrúar Viðreisnar og Samfylkingar hafa talað um atvinnulífið, hagkerfið, gjaldmiðilinn og fleira. Loks eru fastir liðir á sínum stað, hrós vikunnar, bókameðmæli, hraðaspurningar og fleira.
Fri, 07 Aug 2026 - 1h 38min - 445 - #445 – Brekkusöngurinn með Heiðari Guðjóns og Agnari Möller – Hægri menn eiga alltaf að vera bjartsýnir
Heiðar Guðjónsson og Agnar Tómas Möller mæta í léttan en efnismikinn þátt fyrir verslunarmannahelgina. Við ræðum allt milli himins og jarðar, í bókstaflegri merkingu. Rætt er um komandi almyrkva og þar er átt við alvöru almyrkva en ekki hagkerfið sem núverandi ríkisstjórn ræður ekki við að stýra – þó það sé rætt að einhverju leyti líka. Við ræðum um það hvort að hægt sé að miðast við pylsuvísitöluna, um takmarkað fjármálalæsi þingmanns Samfylkingarinnar, sögu peninga og framtíð íslensku krónunnar, vaxandi verndarstefnu í alþjóðaviðskiptum, skatta og stærð ríkisvaldsins og margt fleira. Þá förum við yfir fasta liði, s.s. hrós vikunnar, útilegupælingar og hraðaspurningar þar sem meðal annars er spurt um bekkpressumet, olíuleit og bestu viðskiptaráðin.
Thu, 30 Jul 2026 - 1h 38min - 444 - #444 – Kaffispjall með Adda í Gunnbjarnarholti
Þórður Gunnarsson ræðir við Arnar Bjarna Eiríksson, bónda og athafnaskáld í Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Arnar Bjarni varpar ljósi á áskoranir og tækifæri í íslenskum landbúnaði og deilir sýn sinni á nýsköpun í landbúnaði og rekstur hans auk mikilvægi þess íslenskar sveitir haldist í byggð. Rætt er um mögulegt aðlögunarferli að Evrópusambandinu og áhrif þess á íslenskan landbúnað, hver áhrifin af inngöngu í Evrópusambandið yrðu á hann, staðreyndir um áhrif innlendra matvæla á verðlag á Íslandi og margt fleira.
Tue, 28 Jul 2026 - 54min - 443 - #443 – Helgarvaktin með Sigríði Andersen og Erni Arnarsyni – Treystum þjóðinni, en samt ekki
Sigríður Á. Andersen og Örn Arnarson fara yfir í heitustu málin í pólitíkinni og efnahagslífinu. Fjallað er um vandræði Þorgerðar Katrínar og upplýsingaóreiðu síðustu vikna, leyndarhyggjuna sem ríkir um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu, meintar undanþágur hvað varðar losunarkvóta og skattahækkanir í gegnum regluverk sem þegar er byrjað að innleiða. Þá er fjallað um „verðlækkunarsumar“ ríkisstjórnarinnar sem virðist þó ekki slá á verðbólgu, fylgi flokkanna, peningahagfræði Dags B. Eggertssonar, arðgreiðslur ríkisfyrirtækja og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, t.d. hrós vikunnar, hraðaspurningar, útilegupælingar og fleira.
Fri, 24 Jul 2026 - 1h 58min - 442 - #442 – Kaffispjall með Láru Herborgu – Ekkert óvænt í pakkanum sem margir vilja skoða
Lára Herborg Ólafsdóttir lögmaður flutti áhugavert ávarp á upphafsfundi Áfram Ísland fyrr í þessum mánuði. Þar fjallaði hún meðal annars um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu út frá sjónarhorni lögfræðinnar og íslensku stjórnarfari. Í þætti Þjóðmála útskýrir hún nánar innihald ávarpsins og rökstyður vel á hvaða grunni hún byggir afstöðu sína gegn inngöngu Íslands í sambandið. Þá varpar hún ljósi á mikilvægi þess að halda ákvörðunarvaldinu heima, hvort raunhæft sé að fá varanlegar undanþágur fyrir sjávarútveg og landbúnað, hvað aðildarferlið hefur í för með sér fyrir venjulegan borgara, hvaða áhrif þetta ferli kann að hafa á samkeppnishæfni landsins og margt fleira.
Tue, 21 Jul 2026 - 52min - 441 - #441 – Helgarvaktin með Andrési og Stefáni Einari – Mjólk er góð (og ódýr)
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða stóra „mjólkurmálið“ og 60% reikningsskekkju varaborgarfulltrúa Viðreisnar, auk þess sem rýnt er í viðbrögð Þorgerðar Katrínar við fréttaflutningi af umræðum í hollenska þinginu. Við ræðum einnig um þau áhrif sem starfsmenn þingflokks Samfylkingar telja sig geta haft á löggjöf ESB með færslum á samfélagmiðlum, hvernig Epic stuðullinn er að þróast í aðdraganda kosninga, mikilvægi þess að ráða fyrir eigin auðlindum og margt fleira. Þá eru fastir liðir einnig á sínum stað, s.s. hrós vikunnar, útilegupælingar, hraðaspurningar og fleira.
Fri, 17 Jul 2026 - 1h 49min - 440 - #440 – Kaffispjall við Sigurð Hannesson – Við getum verið bjartsýn fyrir framtíðinni
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, ræðir um tækifærin og framtíðina hér á landi, hvernig hægt er að styðja helstu atvinnuvegi landsins enn frekar, hvað þarf til að bæta samkeppnishæfni Íslands í hörðu alþjóðlegu umhverfi, þörfina á því að taka stórar ákvarðanir sambærilegar þeim sem teknar voru áður til að efla hagsæld og lífsgæði hér á landi, hvernig alþjóðlegt viðskiptaumhverfi er að breytast og margt fleira. Þá er einnig rætt um viðhorf atvinnulífsins til aðildarviðræðna við Evrópusambandið og hvort aðild að sambandinu sé það sem ætti að vera í forgangi hjá okkur næstu 5-10 árin.
Tue, 14 Jul 2026 - 1h 07min - 439 - #439 – Helgarvaktin með Herði og Sólveigu Önnu – Sósíalisti í hlýju auðvaldssinna
Hörður Ægisson og Sólveig Anna Jónsdóttir mæta á helgarvaktina og fara yfir stóru málin. Við ræðum um skeikula ESB-vegferð ríkisstjórnarinnar, vaxandi andstöðu við hana og upphafsfund „Áfram Ísland“ þar sem Sólveig Anna situr í stjórn. Farið er yfir afgerandi viðbrögð Já-sinna, nýja skýrslu um lífskjör hér á landi, það óvænta bandalag sem myndast hefur á milli ólíkra aðila, umræðu á erlendum þjóðþingum sem utanríkisráðherra vill ekki láta fjalla um hér á landi og margt fleira þessu tengt. Þá er rætt um vaxandi líkur á því að forsendur kjarasamninga bresti í haust, ráðaleysi ráðamanna í efnahagsmálum, möguleg áhrif gervigreindar á láglaunastörf og fleira. Fastir liðir eins og hrós vikunnar, bókameðmæli og hraðaspurningar frá gestum Kringlukráarinnar eru einnig á sínum stað, þar sem gamlar deilur Harðar og Sólveigar eru rifjaðar upp.
Fri, 10 Jul 2026 - 2h 03min - 438 - #438 – Kaffispjall með Kristján Inga – Atvinnulífið þarf að hlaupa hraðar í gervigreindarkapphlaupinu
Kristján Ingi Mikaelsson ræðir um það hvernig gervigreind er að umbylta viðskiptalífinu, hvernig stjórnendur þurfa að líta á gervigreind sem viðskiptalega stefnumótun og nýja tekjustrauma en ekki bara tækniverkefni, hvernig ströng regluvæðing hefur orðið til þess að Evrópa hefur dregist aftur úr Bandaríkjunum í tækniþróun, þann ótta sem kann að ríkja um atvinnumissi, hvað ungt fólk þarf að temja sér og margt fleira sem snýr að þessari hröðu tækniþróun sem nú eru að eiga sér stað.
Tue, 07 Jul 2026 - 1h 17min - 437 - #437 – Helgarvaktin með Bergþóri og Önnu Hrefnu – Bestu kveðjur vestur um haf
Þórður Gunnarsson stýrir Helgarvaktinni að þessu sinni og fær til sín Bergþór Ólason og Önnu Hrefnu Ingimundardóttur til að fara yfir stóru málin. Við ræðum um 250 ára afmæli Bandaríkjanna, fylgi flokkanna hér á landi, kostnaðarsama styttingu vinnuvikunnar fyrir samfélagið, framtakið Áfram Ísland þar sem breiðfylking er mynduð um þá afstöðu að berja fólki jákvæðni í brjóst um sjálfstæði landsins, kjánaleg kynningarmyndbönd utanríkisráðherra, vinnubrögð Samkeppniseftirlitsins og margt fleira. Þá eru fastir liðir eins og hrós vikunnar, hraðaspurningar og bókameðmæli að sjálfsögðu á sínum stað.
Fri, 03 Jul 2026 - 1h 20min - 436 - #436 – Kaffispjall með Birni Bjarnasyni – Þegar setja þarf hluti í samhengi
Björn Bjarnason kann að setja hlutina í samhengi og það gerir hann reglulega hér í Þjóðmálum. Í þætti dagsins ræðir Björn um stöðuna í íslenskum stjórnmálum, villandi umræðu um ESB-umsóknina sem kosið verður um í haust, sögulegt samhengi við NATO-aðildina og EES-samninginn, hvort að breyting hafi orðið á alþjóðastjórnmálum eða utanríkisstefnu vestrænna ríkja og margt fleira.
Tue, 30 Jun 2026 - 1h 12min - 435 - #435 – Helgarvaktin með Andrési og Birgi Ármanns – Stærsta syndin í pólitík er að vera leiðinlegur
Andrés Magnússon og Birgir Ármannsson rýna atburðarrás vikunnar. Við ræðum meðal annars um afsögn Keir Starmer í Bretlandi, sem kallar á spurningar um það hvort hann sé enn innblástur fyrir íslenska forsætisráðherrann og hvort að atburðarrásin sé með sambærilegum hætti hér á landi. Þá er rætt um nýjar kannanir, dökkar væntingar stjórnenda í atvinnulífinu, orðaleik forsætisráðherra um skattahækkanir, mótsagnakenndan stuðning við ferðaþjónustuna, ESB-umsókn ríkisstjórnarinnar og mýturnar sem haldið er á lofti í þeirri vegferð og margt fleira. Þá eru hraðaspurningar og hrós vikunnar á sínum stað auk þess sem gestirnir skella sér í útilegu.
Fri, 26 Jun 2026 - 2h 01min - 434 - #434 – Kaffispjall – Gunnar Baldvinsson ræðir um íslenska lífeyriskerfið í samanburði við þau evrópsku
Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna-Lífsverk lífeyrissjóðsins, ræðir lífeyriskerfið hér á landi í samanburði við það evrópska. Tilefnið er nýleg greining viðskiptatímaritsins The Economist þar sem fjallað er með afar gagnrýnum hætti á lífeyriskerfi ríkja á meginlandi Evrópu, sem eru og verða á næstu árum og áratugum í töluverðum vandræðum með sín lífeyriskerfi. Þá ræðum við einnig um mögulega upptöku evru og þá hver áhrifin kunna að vera á lífeyriskerfið hér á landi og um leið stöðu almennings, samkeppni við erlenda sjóða, stöðu ungs fólks sem fær fasteignalán hjá sjóðunum og margt fleira.
Tue, 23 Jun 2026 - 55min - 433 - #433 – Helgarvaktin með Andreu og Tómasi Þór – Til hamingju með daginn konur og Össur
Andrea Sigurðardóttir og Tómas Þór Þórðarson fara yfir sviðið eftir að Þjóðhátíðargolfmóti Þjóðmála á Írlandi lauk með glæsibrag. Við ræðum um lokahnykkinn á Alþingi og stöðuna í stjórnmálunum, stjórnmálamenn sem beygja sig og bugta fyrir embættismönnum, kenningu forstjóra SKE um að afkoma fyrirtækja segi ekkert til um rekstur þeirra, gaslýsingu um ríkisfjármál, ásýndarstjórnmál og margt fleira. Þá eru hrós vikunnar og hraðaspurningar á sínum stað – auk þess sem við mælum með bæði bók og bíómynd þessa vikuna í eldhressum þætti.
Fri, 19 Jun 2026 - 1h 56min - 432 - #432 – Í beinni frá Írlandi – Þórður Pálsson og Glúmur Björnsson ræða málin á meðan aðrir spila golf
Þórður Pálsson og Glúmur J. Björnsson mæta hressir til leiks, en þátturinn er að þessu sinni tekinn upp í einstöku umhverfi á Carton House á Írlandi þar sem Þjóðhátíðargolfmót Þjóðmála fer fram í samstarfi við GB Ferðir. Í þættinum ræðum við meðal annars um það hvernig Írum hefur gengið vel efnahagslega með því að lækka skatta og auka svigrúm fyrir alþjóðleg fyrirtæki til að athafna sig í landinu (oft þvert gegn vilja Evrópusambandsins), mýtur um ástæður þess að matvælaverð lækkaði í Svíþjóð og Finnlandi á sínum tíma, ótrúverðuga stefnu ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum, afskipti ríkisins af bílainnflutningi og óraunhæf markmið um orkuskipti, barnfóstruríkið sem vill setja okkur reglur um allt mögulegt og margt fleira.
Tue, 16 Jun 2026 - 1h 18min - 431 - #431 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Þórði – Þeir vita sem vita
Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson fara yfir heitustu málin. Við ræðum nýafstaðna vorferð Þjóðmála norður í land og komandi golfmót á Írlandi, nýja könnun sem gerð var fyrir Þjóðmál um viðhorf fólks gagnvart mögulegu varaformannsframboði Dags B. Eggertssonar, skipun Ara Edwald í stjórnarformennsku í Orkuveitunni og þörfina á því að losa um Carbfix svindlið, Pollýönnuaðferð ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum, hugmyndafræðilegan slag um bankaskatta, ESB-vegferðina sem tekur á sig sífellt skrýtnari mynd, hlutdrægni Rúv, einkennilegt innlegg Samkeppniseftirlitsins og margt fleira. Þá er hrós vikunnar og hraðaspurningar frá gestum Kringlukráarinnar að sjálfsögðu á sínum stað.
Fri, 12 Jun 2026 - 2h 04min - 430 - #430 – Kaffispjall með Birni Berg og Ellerti Hlöðvers – Við erum þrátt fyrir allt með sterkt hagkerfi
Björg Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi og Ellert Hlöðversson, fjármálastjóri Íslandsbanka, ræða peningalega hegðun Íslendinga, fjárfestingar og stöðuna í efnahagslífinu. Í þættinum er rýnt í sveiflur á innlenda hlutabréfamarkaðnum, hvaða valmöguleika fólk sér í því að ráðstafa sparnaði sínum, hvað má telja sem eðlilega hegðun einstaklinga á hlutabréfamarkaði, hvort að háir vextir dragi úr áhuga fólks á fjárfestingum og fleira í þeim dúr. Gestirnir horfa einnig fram á veginn og meta teikn á lofti um kólnandi hagkerfi, vaxandi atvinnuleysi, brothættan byggingarmarkað og áskoranirnar framundan í íslensku hagkerfi. Þá er einnig fjallað um viðhorf stjórnvalda til atvinnulífsins, til dæmis boðaðar skattahækkanir á fjármálafyrirtæki sem bætist þá við skattahækkanir á sjávarútveg og ferðaþjónustu.
Tue, 09 Jun 2026 - 1h 00min - 429 - #429 – Helgarvaktin með Árna Helgasyni og Ólöfu Skaftadóttur – Hvað segir Jónas um ESB-bröltið?
Árni Helgason og Ólöf Skaftadóttir fara yfir helstu vendingar síðustu daga. Við ræðum afsögn Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, afnám jafnlaunavottunar og mikilvægi þess að taka stundum slaginn við kerfið, þróun umræðunnar um útlendingamál, upplýsingaóreiðu ríkisstjórnarinnar í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-aðild, leyndardóminn um bein Jónasar Hallgrímssonar, breyttar fyrirsagnir á vef Rúv og margt fleira. Þættinum lýkur á léttari nótum með almyrkvasúkkulaði Nóa Síríus, hrósi vikunnar og krefjandi hraðaspurningum frá gestum Kringlukrárinnar.
Fri, 05 Jun 2026 - 1h 55min - 428 - #428 – Aukaþáttur – Áslaug Arna kveður stjórnmálin
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ræðir í aukaþætti Þjóðmála þá óvæntu ákvörðunar sína að láta af þingmennsku og kveðja vettvang stjórnmálanna eftir að hafa helga líf sitt stjórnmálum síðastliðinn áratug. Áslaug Arna rekur aðdragandann að þessari stóru ákvörðun, hvaða þættir vógu þyngst og hvað tekur við næst á hennar vegferð. Samhliða því að horfa fram á veginn stiklar hún á stóru á viðburðaríkum pólitískum ferli sínum, allt frá fyrstu skrefunum í ungliðahreyfingunni yfir í krefjandi ráðherraembætti.
Wed, 03 Jun 2026 - 52min - 427 - #427 – Kaffispjall – Hörður og Þorbjörn Atli fara yfir stöðuna
Hörður Ægisson og Þorbjörn Atli Sveinsson ræða þá stöðu sem hefur á liðnum misserum teiknast upp í íslensku viðskiptalífi. Við kryfjum stöðu Oculis og það hvort að íslenski markaðurinn höndli vaxtarfyrirtæki í þeirri stærðargráðu, kaup Brims á Lýsi, stöðu Icelandair í skugga harðra aðgerða flugmanna, oftúlkanir stjórnvalda og ríkisfjölmiðilsins á skýrslu um kosti í gjaldeyrismálum, horfurnar í hagkerfinu, ómarkvissar forsendur fjárlaga og margt fleira.
Tue, 02 Jun 2026 - 1h 33min - 426 - #426 – Helgarvaktin með Andrési og Erni – Það er hægt að hafa gaman án þess að tvöfalda embættismannakerfið
Andrés Magnússon og Örn Arnarson ræða um nýjan meirihluta í Reykjavík og blendnar tilfinningar hægri manna til samstarfsins við Viðreisn og Framsókn, auk þess sem rætt er um áform um sölu á Ljósleiðaranum og Carbfix. Sjónum er beint að Alþingi og yfirlæti Þorgerðar Katrínar gagnvart þeim sem ekki fylgja ESB-vegferð ríkisstjórnarinnar, umræðu um eignarhald útgerðarinnar í íslensku atvinnulífi, stöðunni hjá Icelandair og verkfallsaðgerðum flugmanna og mörgu öðru. Þá eru hrós vikunnar, bókameðmæli og hraðaspurningar frá gestum Kringlukrárinnar að sjálfsögðu á sínum stað.
Fri, 29 May 2026 - 1h 35min - 425 - #425 – Kaffispjall – Ásgeir Baldurs og Bjarnheiður Hallsdóttir ræða um ferðaþjónustuna og stöðu hennar
Ásgeir Baldurs og Bjarnheiður Hallsdóttir rýna í stöðuna og framtíðarhorfur í íslenskri ferðaþjónustu fyrir komandi sumar. Í spjallinu fara þau yfir helstu áskoranirnar sem greinin stendur frammi fyrir, allt frá breyttri hegðun ferðamanna til harðnandi alþjóðlegrar samkeppni um athygli þeirra. Sjónum er sérstaklega beint að skattlagningu á ferðaþjónustuna og þeim skilaboðum sem stjórnvöld senda til þessarar mikilvægu útflutningsgreinar með ákvörðunum sínum. Þá ræða þau samkeppnishæfni Íslands í víðu samhengi, hátt vaxtastig og hvernig innviðir og rekstrarumhverfi spila inn í getu fyrirtækja til að vaxa og dafna.
Tue, 26 May 2026 - 1h 00min - 424 - #424 – Helgarvaktin með Orra Hauks og Þórði Pálssyni – Stýrihópur um vinnuhóp um aðgerðaráætlun ... í haust
Orri Hauksson og Þórður Pálsson rýna í nýjustu vendingar í efnahags- og stjórnmálum. Við ræðum um vaxtahækkun og trúverðugleika peningastefnunnar, líkur á því að kjarasamningar bresti, stöðuna í hagkerfinu, þá sem skapa verðmæti og þá sem tala um að skapa verðmæti, ESB umsóknina og villandi tal henni til stuðnings, hvernig stjórnmálin eru að þróast í kjölfar sveitarstjórnarkosninga og margt annað. Þá er hrós vikunnar á sínum stað ásamt áhugaverðum hraðaspurningum þar meðal annars er spurt um bestu ákvörðunina og verstu mistökin í íslenskri hagsögu.
Fri, 22 May 2026 - 1h 38min - 423 - #423 – Kaffispjall með Sigmundi Davíð
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fer yfir stöðuna í íslenskum stjórnmálum í kjölfar nýafstaðinna sveitarstjórnarkosninga, hvar tækifærin liggja og hvernig flokkarnir standa á nýju pólitísku landslagi skautun í samfélagsumræðunni og hvernig hún hefur breytt samskiptum og ákvarðanatöku í stjórnmálum á Íslandi, hvar hægt sé að skilgreina Miðflokkinn á ásum stjórnmálanna, komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að Evrópusambandinu og margt fleira.
Tue, 19 May 2026 - 1h 22min - 422 - #422 – Aukaþáttur – Stefán Einar og Þórður kryfja kosningarnar – Kristún reif upp sverðið en tapaði
Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson rýna í og greina með ítarlegum hætti niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna sem fram fóru í gær. Við ræðum stöðuna eftir einstaka sveitarfélögum, mögulega samstarfsmöguleika ýmissa flokka, stöðu ríkisstjórnarflokkanna eftir kosningar, innkomu og áhrif forsætisráðherra í kosningabaráttunni og margt annað.
Sun, 17 May 2026 - 1h 14min - 421 - #421 – Helgarvaktin með Hildi Björns og Ásdísi Kristjáns – Lokaspretturinn framundan
Hildur Björnsdóttir og Ásdís Kristjánsdóttir ræða lokasprettinn í sveitarstjórnarkosningunum, hvernig baráttan hefur þróast í Reykjavík og Kópavogi, hvað brennur helst á kjósendum, um hægri áherslurnar í sveitarstjórnarmálum og fleira. Þær deila deila framtíðarsýn sinni á uppbyggingu og þróun sveitarfélaganna en rýna einnig í stöðuna á landsvísu, beina sjónum að efnahagsmálum og væntanlegri stýrivaxtahækkun Seðlabankans, auk þess sem rætt er um nýlegar efasemdir um efnahagsáform ríkisstjórnarinnar. Þá eru hraðaspurningarnar á sínum stað ásamt hrósi vikunnar, enda er Þjóðmál uppbyggilegt hlaðvarp.
Thu, 14 May 2026 - 1h 36min - 420 - #420 – Kosningakaffi með Ingva Þór og Konráði Guðjóns – Svo heldur lífið áfram í næstu viku
Ingvi Þór Georgsson og Konráð S. Guðjónsson kryfja lokasprettinn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Rætt er um óvænta þróun í fylgismælingum þar sem Sjálfstæðisflokkurinn sækir í sig veðrið í stóru sveitarfélögunum en Samfylkingin virðist í vörn. Rætt er um það hvort afskipti forsætisráðherra af baráttunni séu að hjálpa eða skaða, nýja stuðla veðbanka, seinagang í uppbyggingu samgönguinnviða og hvernig það tengist skipulagi sveitarfélaga auk annarra þátta. Við ræðum líka málflutning formanns utanríkismálanefndar sem vill ódýrari álegg á matinn sinn en auk þess er einnig horft til komandi stýrivaxtaákvörðunar Seðlabankans og hvaða áhrif hún muni hafa á íslenskt efnahagslíf í miðri kosningahríð.
Tue, 12 May 2026 - 1h 15min - 419 - #419 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Gunnari Örlygs – Sjómaður hitting postulínsdreng
Stefán Einar Stefánsson og Gunnar Örlygsson rýna í hitamál líðandi stundar. Farið er yfir sviðið fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar þar sem staða meirihlutans í Reykjavík er sögð erfið á meðan Sjálfstæðisflokkurinn sækir í sig veðrið í Kópavogi og Reykjanesbæ. ESB-umræðan er krufin, allt frá gjaldmiðlamálum til gagnrýni á þöggunartilburði og villandi upplýsingagjöf yfirvalda, óþarfa vinnu ríkisins vegna almyrkvans í ágúst og margt fleira. Þá er hrós vikunnar, bókameðmæli og hraðaspurningar á sinum stað.
Fri, 08 May 2026 - 2h 30min - 418 - #418 – Kaffispjall – María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans
María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans, ræðir um umbreytingu félagsins og framtíðarsýn á stafrænum markaði, hvernig Síminn hefur þróast á liðnum árum og hvort fyrirtækið skilgreini sig í dag sem tækni-, þjónustu- eða afþreyingarfélag. Rætt er um samkeppnina við erlendar streymisveitur, framtíð innlendrar dagskrárgerðar og ávinninginn af mögulegum kaupum á miðlum Sýnar. María Björk varpar einnig ljósi á tækniþróunina, allt frá 5G til Starlink, auk vaxtarins í fjártækni í gegnum Síminn Pay og Billboard. Að lokum deilir hún innsýn í eigin stjórnunarstíl og áskoranir þess að leiða eitt stærsta fyrirtæki landsins í gegnum flókið efnahagsumhverfi og örar tæknibreytingar.
Tue, 05 May 2026 - 1h 06min - 417 - #417 – Helgarvaktin með Birni Brynjúlfi og Andreu Sig – Fram þjáðir menn í þúsund löndum
Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, og Andrea Sigurðardóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu mæta á helgarvaktina á baráttudegi verkalýðsins. Tilefni dagsins kallar á umræðu um verkalýðshreyfinguna, rimmu formanns VR við aðra verkalýðsleiðtoga og það hvort stéttarfélög séu hreinlega orðin tímaskekkja. Þá er rætt um efnahagsmál, verðstýringarhneigð ríkisins, komandi sveitarstjórnarkosningar, rekstrarhalla Reykjavíkurborgar, samgöngusáttmálann sem virðist breytast í hverjum kosningum, stöðu efnahagsmála á Austurlandi sem fá kaldar kveðjur frá ráðamönnum. Hrós vikunnar, hraðaspurningar og bókameðmælin eru einnig á sínum stað ásamt öðrum málum.
Fri, 01 May 2026 - 1h 29min - 416 - #416 – Afmæliskaffi með Andrési – Er utanríkisráðherra að leggja pólitískt líf sitt að veði?
Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, rýnir í kraumandi pólitíska landslagið og fer yfir stöðuna á stjórnarheimilinu, nýjustu vendingar í ESB-umsóknarferlinu, þar á meðal nýafstaðna fundi utanríkismálanefndar með utanríkis- og forsætisráðherra, berskjaldaðan utanríkisráðherra sem virðist standa ein í þeim slag og leggur pólitískt líf sitt að veði og fleira til. Þá ræðum við einnig um komandi sveitarstjórnarkosningar og annað sem nú ber á góma.
Tue, 28 Apr 2026 - 1h 16min - 415 - #415 – Helgarvaktin með Þórði Gunnars og Guðmundi Kristjáns eftir vel heppnaða sjávarútvegssýningu í Barcelona
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, og Þórður Gunnarsson ræða sjávarútveg og efnahagsmál. Farið er yfir helstu tíðindi af sjávarútvegssýningunni í Barcelona og rýnt í undarlega Facebook-færslu matvælaráðherra í kjölfar hennar. Þá er fjallað um umtalaða umfjöllun danska blaðsins Berlingske, stöðuna í efnahagsmálum og á vinnumarkaði, næstu skref í ESB-vegferð ríkisstjórnarinnar, hvalveiðar í sumar og margt fleira. Að sjálfsögðu eru síðan hraðaspurningar, hrós vikunnar og bókadómur vikunnar á sínum stað.
Fri, 24 Apr 2026 - 1h 59min - 414 - #414 – Kaffispjall – Björn Valur Gíslason
Björn Valur Gíslason, fyrrverandi þingmaður, sem í dag starfar sem skipstjóri í Frakklandi, veitir einstaka innsýn í evrópskan sjávarútveg og deilir reynslu sinni af því að stýra skipi og stunda fiskveiðar innan regluverks Evrópusambandsins. Hann rýnir í þróun sjávarútvegsmála innan sambandsins og veltir því upp hvað Íslendingar geti lært af þeirri vegferð fyrir komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild. Samhliða þessu greinir hann stöðuna í íslenskri pólitík úr fjarlægð og svarar því hreinskilnislega hvort hann sakni þingsins eða hvort frelsið á hafinu eigi betur við hann í dag. Þetta er hressilegt og fróðlegt spjall þar sem reynsla úr brúnni mætir pólitískri sýn á framtíð Íslands.
Tue, 21 Apr 2026 - 1h 36min - 413 - #413 – Helgarvaktin með Lilju Alfreðs og Herði Ægis – Planið er búið
Lilja Dögg Alfreðsdóttir og Hörður Ægisson rýna stóru málin í íslenskri pólitík og efnahagslífi. Í þættinum ræðir Lilja Dögg um áherslur sínar sem nýr formaður Framsóknarflokksins og bregst við hugmyndum um hvort flokkurinn eigi að leita frekar til vinstri. Sjónum er beint að efnahagsmálum, svonefndu „verðlækkunarsumri“ ríkisstjórnarinnar sem virðist hafa litla merkingu og áformum um handstýringu á eldsneytisverði. Við rýnum í stöðvun Samkeppniseftirlitsins á samruna Arion og Kviku ásamt því að ræða mögulega sölu ríkisfyrirtækja. Þá eru ESB-málin til umræðu, allt frá dularfullum könnunum Stjórnarráðsins til vantrausts á forystu Viðreisnar í aðildarviðræðum. Hraðaspurningar og hrós vikunnar er á sínum stað auk þess sem Hörður kemur með ítarlegasta bókardóm sem heyrst hefur í íslensku hlaðvarpi til þessa.
Fri, 17 Apr 2026 - 2h 18min - 412 - #412 – Kaffispjall – Sigurður Pálsson í Byko – Stærsta áskorunin er núna
Rætt er við Sigurð Pálsson, forstjóra BYKO, sem hefur starfað hjá fyrirtækinu í 26 ár. Sigurður gefur innsýn í rekstur þessa rótgróna félags, fer yfir afkomuna og útskýrir hvernig hægt er að spá fyrir um sölu á árstíðabundnum vörum fyrir komandi sumar. Hann deilir upplifun sinni af púlsinum hjá iðnaðarmönnum og metur hvort bjartsýni eða svartsýni ríki á markaðnum miðað við núverandi efnahagsástand. Sjónum er beint að skipulagsmálum og íbúðaruppbyggingu, málefnum sem Sigurður hefur látið sig varða, auk þess sem hann ræðir áskoranir á vinnumarkaði. Hvernig bregðast stór fyrirtæki við síhækkandi launakostnaði og hvaða svigrúm hafa þau til vaxtar? Að lokum ræðum við starfsferilinn og það að þroskast í starfi innan sama fyrirtækis í aldarfjórðung auk annarra þátta.
Tue, 14 Apr 2026 - 52min - 411 - #411 – Helgarvaktin með Eldi Ólafs og Þórði Gunnars – Búum til fleiri íþróttamenn
Eldur Ólafsson og Þórður Gunnarsson kryfja málin í líflegu spjalli þar sem farið er yfir allt frá fótbolta yfir í alþjóðastjórnmál. Við ræðum áhugaverða könnun meðal leikmanna í Bestu deildinni þar sem yfirgnæfandi meirihluti styður hægri flokka, sem leiðir af sér kenningar um tengsl keppnisskaps og stjórnmálaskoðana. Farið er yfir pólitísku sviðsmyndina á Íslandi þar sem nýjustu kannanir sýna Framsóknarflokkinn utan þings og vaxandi óánægju með ríkisstjórnina. Aðildarumsókn að Evrópusambandinu er einnig undir smásjá og fólk er byrjað að kasta ógreiddum námslánum inn í röksemdarpakkann og fv. forsætisráðherra vill hefta frelsi fólks í atvinnulífinu til að tjá sig ef það er ekki fylgjandi aðild. Þá er farið yfir framtíðarsýn um vestnorrænt samstarf Íslands, Grænlands og Færeyja, þau tækifæri sem leynast í hrávörugeiranum á Grænlandi, stöðuna í alþjóðamálum, átökin í Íran og áhrif þeirra á olíuverð og margt fleira.
Fri, 10 Apr 2026 - 1h 38min - 410 - #410 – Kaffispjall með Alberti Jónssyni
Albert Jónsson, fv. sendiherra, fjallar um það hvaða umræða þarf að eiga sér stað og hvaða upplýsingar þurfa að koma fram áður en farið verður í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að Evrópusambandinu í lok ágúst. Rætt er um samanburð á öðrum ríkjum sem hafa farið í slíkar viðræður, hvaða kröfur hægt er að setja og hvaða mál gætu orðið flókin. Þá er einnig rætt um stöðuna í alþjóðakerfinu, ummæli Bandaríkjaforseta um Nato og hvernig varnarbandalagið kann að þróast næstu árin, hvar þungamiðja alþjóðasamskipta verður á næstu árum, hernaðaraðgerðir í Íran og margt fleira.
Tue, 07 Apr 2026 - 1h 09min - 409 - #409 – Páskavaktin með Stefáni Einari og Andrési
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson fara yfir sviptingar vikunnar, aprílgabb Morgunblaðsins sem olli fári hjá Skattinum og tilteknum fjölmiðlum, boðaðar skattahækkanir á ferðaþjónustu sem ríma illa við fyrri orð ráðherra, áfellisdóm dómara yfir Samkeppniseftirlitinu, vannýtt tækifæri í Skálholti, ummæli fv. forsætisráðherra sem vill þagga niður kauphallarforstjórum, umræðu og viðhorf stjórnmálamanna til verðmætasköpunar, kynningu Sjálfstæðisflokksins á skattalækkunum og margt fleira.
Fri, 03 Apr 2026 - 1h 36min - 408 - #408 – Dymbilvikan með Halldóri Benjamín
Halldór Benjamín Þorbergsson, þá framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, var fyrsti gestur í hlaðvarpi Þjóðmála fyrir rétt rúmum fimm árum. Hann mætir nú aftur og fjallar um íslenska hagkerfið, viðhorfið til atvinnulífsins, um traustið sem þurfti að mynda á milli atvinnurekenda og launþegahreyfinga, nýsamþykkt frumvarp sem gæti falið í sér ein mestu hagstjórnarmistök sögunnar, boðað aðlögunarferli að Evrópusambandinu og margt fleira.
Tue, 31 Mar 2026 - 1h 11min - 407 - #407 – Helgarvaktin með Birni Inga og Daða Kristjáns – Hér fá allir Nóa páskaegg
Björn Ingi Hrafnsson og Daði Kristjánsson rýna í atburði líðandi stundar. Við ræðum hina umtöluðu páskaeggjaleit í heilbrigðisráðuneytinu á meðan starfsfólk Landspítalans stendur eftir með tómar hendur, nýjar vendingar í ESB-leiðangri Viðreisnar, hvort að íslensk stjórnvöld séu að sofa á verðinum gagnvart gervigreind, krísu í efnahagsmálum, umfjöllun Rúv um uppgjör sjávarútvegsfyrirtækja og margt fleira. Þá er hrós vikunnar á sínum stað ásamt hraðaspurningum, þar sem tónlistarsmekkur Sigmundar Davíðs kemur m.a. við sögu.
Fri, 27 Mar 2026 - 1h 39min - 406 - #406 – Kaffispjall með Birni Bjarnasyni
Björn Bjarnason, fv. ráðherra, fer yfir stöðuna og það helsta úr stjórnmálunum. Við ræðum um Evrópusambandsvegferð ríkisstjórnarinnar, hrossakaupin við Flokk fólksins, viðræður utanríkisráðherra við erlenda aðila sem vita meira um stöðu mála heldur en Íslendingar, hvernig reynt er að grafa undan samskiptum Íslands og Bandaríkjanna, þróun mála með Grænland, stöðuna og samstarf ríkja á Norðurslóðum og margt fleira.
Tue, 24 Mar 2026 - 1h 10min - 405 - #405 – Helgarvaktin með Heiðrúnu Lind og Erni – Ríkisstjórnin kennir gaslýsingu 101
Heiðrún Lind Marteinsdóttir og Örn Arnarson rýna í atburði líðandi stundar. Það er af nógu að taka í efnahagsmálum og pólitík þessa vikuna. Við ræðum um hitann í kringum ESB-umsóknina sem er að aukast, rýnum í villandi málflutning, óskýr svör ráðherra og hvers vegna Inga Sæland neitar að gefa upp afstöðu sína. Við ræðum einnig harðari tón frá Seðlabankanum sem hækkaði stýrivexti í vikunni, veltum því upp hvort að Seðlabankinn sé einni í liði í verðbólgubaráttunni og gaslýsingar ríkisstjórnarinnar í kjölfar vaxtahækkunar. Einnig er rætt um atvinnulífið og innviði, loðnuvertíð sem nú er að klárast, hrós vikunnar, hraðaspurningar og margt fleira.
Fri, 20 Mar 2026 - 1h 39min - 404 - #404 – Kaffispjall – Sveinn Sölvason
Sveinn Sölvason, forstjóri Emblu Medical, móðurfélags Össurar, fer yfir rekstur og stöðu félagsins, hvernig félagið varð að því sem það er í dag, hvernig tækniþróun hefur áhrif á vörur og rekstur, sölu félagsins á stoðtækjum á ólíkum stöðum í heiminum, hvernig framtíðarvöxtur getur litið út, hvort það sé einhver hætta á stöðnun, tollastríð og vendingar í alþjóðastjórnmálum, hvort við getum átt von á því að sjá fleiri tæknifyrirtæki rísa upp hér á landi, hvernig Danir hafa ýtt undir og stutt við vöxt tæknifyrirtækja og margt fleira í áhugaverðu kaffispjalli.
Tue, 17 Mar 2026 - 1h 02min - 403 - #403 – Helgarvaktin með Sigríði Andersen og Sigurði Kára – Fokdýrt land til sölu
Sigríður Á. Andersen og Sigurður Kári Kristjánsson fara yfir það helsta frá liðinni viku. Við ræðum um undarlega fyrirvara sem Ríkisútvarpið birtir nú með fréttum sínum, ummæli forsætisráðherra um að ætla að „selja landið fokdýrt“, vanreifuð rök fyrir þjóðaratkvæði um aðild að Evrópusambandinu, afskipti íslensks stjórnmálamanns af kosningum erlendis, gáleysisleg ummæli innviðaráðherra um skráð félag, fjármálaráðherra sem líður illa í vinnunni, stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans í næstu viku og margt fleira. Þá er hrós vikunnar á sínum stað ásamt hraðaspurningum og öðrum föstum liðum.
Fri, 13 Mar 2026 - 1h 56min - 402 - #402 – Kaffispjall – Upplýst umræða um ESB mál
Hjörtur J. Guðmundsson þekkir málefni Evrópusambandsins betur en flestir hér á landi. Hann ræðir um yfirvofandi atkvæðagreiðslu um aðlögunarviðræður að sambandinu, frasana sem eru notaðir til að villa fyrir í umræðunni, áhrifin á íslensk stjórnmál, hvernig Evrópusambandið hefur þróast á liðnum árum, hvernig Íslandi yrði 11. ríkið sem greiðir með sér inn í sambandið og margt fleira sem snýr að þessu máli sem ríkisstjórnin hefur nú sett á dagskrá.
Tue, 10 Mar 2026 - 1h 30min - 401 - #401 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Þórði Gunnars – Raddir skynseminnar fá ekki áheyrn ríkisstjórnarinnar
Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson fara yfir helstu fréttir og atburði vikunnar. Við ræðum um arfleið Davíðs Oddssonar, átökin í Íran, frumvarp um tengingu bóta við launavísitölu, plan ríkisstjórnarinnar sem er alls ekki að virka, fylgi flokkanna, sögur úr Eyjum, komandi átök við Fjölmiðlanefnd og margt fleira.
Fri, 06 Mar 2026 - 2h 04min - 400 - #400 – Viðtal við Björn Zoëga
Björn Zoëga, forstjóri King Faisal-sjúkrahússins í Sádi-Arabíu, fjallar um starfið sem hann gegnir nú, tímann sem hann átti sem forstjóri Karolínska sjúkrahússins í Stokkhólmi og þar áður sem forstjóri Landspítalans hér á landi. Við ræðum einnig um það hvort að hið fullkomna heilbrigðiskerfi eða hinn fullkomni spítali sé til í raun og veru, hverjar helstu áskoranirnar eru í rekstri spítala, hvernig tæknin er að gjörbreyta heilbrigðisþjónustu ef hún er nýtt rétt, hvort að mögulegt sé að útrýma ákveðnum sjúkdómum og margt fleira.
Wed, 04 Mar 2026 - 1h 14min - 399 - #399 – Kaffispjall – Óli Björn ræðir um Davíð Oddsson
Óli Björn Kárason ræðir um ævi og störf Davíðs Oddssonar, sem lést á heimili sínu í gær, sunnudaginn 1. mars. Davíð var án efa einn áhrifamesti stjórnmálamaður landsins og vert er að halda minningu hans á lofti í kjölfar þeirra verkefna sem hann leysti af hólmi á þeim vettvangi. Í þættinum fjöllum við um það helsta á stjórnmálaferli Davíðs, hvað það var sem skóp hann sem stjórnmálamann, samskipti hans við kjósendur og aðra stjórnmálamenn, hugmyndafræðina og fleira.
Mon, 02 Mar 2026 - 1h 12min - 398 - #398 – Helgarvaktin með Herði og Sigurði Hannessyni – Búhnykkur frá Kerecis
Hörður Ægisson og Sigurður Hannesson fara yfir nýbirtar verðbólgu- og atvinnuleysistölur og hvaða afleiðingar þær kunna að hafa á hagkerfið, við ræðum um samrunaviðræður Íslandsbanka og Skaga sem var slitið um síðustu helgi og möguleg næstu skref í þeim geira, búhnykkinn sem felst í skattgreiðslum Kerecis, hvort að ummæli stjórnmálamanna um samkeppnishæfni og einföldun regluverks hafi einhverja raunverulega þýðingu, óvænta sameiningu lífeyrissjóða og margt fleira.
Fri, 27 Feb 2026 - 1h 40min - 397 - #397 – Kaffispjall – Vilhelm Már í Eimskip
Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips, ræðir um rekstur og stöðu félagsins, uppgjör síðasta árs, stöðuna í flutningageiranum hér heima og erlendis, hvernig flutningageirinn er nær ósýnilegur fólki þar til eitthvað klikkar, hvernig ójafnvægi í vöruflutningum getur skapast á skömmum tíma, hvað felst í nýrri stefnumótun Eimskips, hvernig ET losunarheimildir bitna á íslensku samfélagi og fleira til. Þá ræðum við einnig um stjórnandann Vilhelm Má, þær breytingar sem hann hefur innleitt hjá félaginu og af hverju, hvaða lærdóm hann tók með sér úr fjármálageiranum og margt fleira.
Tue, 24 Feb 2026 - 1h 30min - 396 - #396 – Góugleði með Kristínu Gunnars og Diljá Mist – Aðhald á bolluhliðinni
Diljá Mist Einarsdóttir og Kristín Gunnarsdóttir fara yfir það helsta úr liðinni viku og ræða um bollur og fyrirhugaðan óhollustuskatt, stöðu barnafjölskyldna, ráðherra sem skóla hagfræðinga til í hagfræði, nýjan formann Framsóknarflokksins, ryk á götum Reykjavíkur, pirring starfsmanns Rúv yfir því að forsetinn hafi sótt Viðskiptaþing og margt fleira.
Fri, 20 Feb 2026 - 1h 37min - 395 - #395 – Kaffispjall eftir Viðskiptaþing – Friðrik Sophusson, Heiðar Guðjóns, Birna Ósk og Magnús Scheving
Við skiptum þætti dagsins upp í tvennt og ræðum við nokkur af þeim sem komu fram á Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs í síðustu viku. Í fyrri hluta þáttarins koma þeir Friðrik Sophusson, fv. fjármálaráðherra, og Heiðar Guðjónsson fjárfestir og ræða um samtal sem þeir áttu við gesti þingsins um fjármál hins opinbera, einkavæðingu og margt annað sem ýtir undir frekari hagsæld. Í síðari hluta þáttarins koma þau Birna Ósk Einarsdóttir, sem nýlega tók við sem forstjóri Húsasmiðjunnar, og Magnús Scheving, stofnandi Latabæjar, og ræða um Ísland í alþjóðlegu samhengi, hvað við getum gert betur og hvernig og margt fleira.
Tue, 17 Feb 2026 - 2h 45min - 394 - #394 – Helgarvaktin með Andrési og Stefáni Einari – Verum dugleg að vinna, bæturnar borga sig ekki sjálfar
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson fara yfir það helsta fyrir helgina. Við ræðum meðal annars um framboðsmál flokkanna í Reykjavík, nauðvörn ríkisstjórnarinnar vegna þrálátrar verðbólgu, þvermóðskuna við frumvarp um hækkun bóta umfram laun sem allir málsmetandi aðilar vara við, formannskjör í Framsóknarflokknum, fyrirhugaðan sykurskatt, liðugasta bóndann á Íslandi, sölu Valhallar, deilur á Bifröst og margt fleira.
Fri, 13 Feb 2026 - 1h 28min - 393 - #393 – Kaffispjall með Frey Friðrikssyni í Kapp
Freyr Friðriksson, stofnandi Kapp, lét nýlega af störfum sem forstjóri félagsins og er nú starfandi stjórnarformaður. Yfir heitum kaffibolla ræðir Freyr um uppgang félagsins og starfsemi, samruna við önnur félög, mikilvægi þess að hér sé starfandi öflugur sjávarútvegur til að styðja við frekari nýsköpun og tækniþróun, samskiptin við stjórnvöld og viðhorf stjórnvalda til atvinnulífs og verðmætasköpunar, starfsemi félagsins erlendis og margt fleira.
Tue, 10 Feb 2026 - 48min - 392 - #392 – Helgarvaktin með Jens Garðari og Brynjari Níelssyni – Einn Kaldi í nesti jafnvel tveir
Brynjar Níelsson og Jens Garðar Helgason fara glaðir með okkur inn í helgina. Við ræðum um stöðu Seðlabankans sem hélt vöxtum óbreyttum í vikunni, stöðu ríkisstjórnarinnar sem er búin að missa tökin á verðbólgunni og ríkisfjármálunum, stöðuna í hagkerfinu, hvað er framundan í stjórnmálunum og margt fleira.
Fri, 06 Feb 2026 - 1h 19min - 391 - #391 – Kaffispjall með Ingva Þór og Konráð Guðjóns – Við fengum ekki verðmætasköpunarhaust en fáum verðbólguvor í staðinn
Ingvi Þór Georgsson og Konráð Guðjónsson ræða um flókna stöðu hagkerfisins, upplýsingaóreiðuna um ástæður þrálátrar verðbólgu og hver hinn raunverulegi sökudólgur kann að vera, hvort einhverjar líkur sé á vaxtalækkunum í bráð, misreikning í áætlunum stjórnvalda og fleira í þeim dúr. Þá fjöllum við einnig um nýlegt dæmi um það hvernig Evrópusambandið tók snúning á Írlandi við kvótaúthlutun innan sambandsins og loks ólíkt viðhorf kynslóða til vinnumarkaðarins.
Tue, 03 Feb 2026 - 1h 05min - 390 - #390 – Helgarvaktin með Þórði Gunnars og Erni Arnarsyni – Sleggjan er týnd
Þórður Gunnarsson og Örn Arnarson ræða um það sem skiptir þjóðina mestu máli um þessar mundir, handbolta. Þá er einnig rætt stuttlega um prófkjör og leiðtogaprófkjör, hvernig nýr oddviti Samfylkingarinnar hagnaðist bara alveg óvart af lóðabraski, þráláta verðbólgu í boði ríkisstjórnarinnar og komandi vaxtaákvörðun Seðlabankans, ráðherra sem er ósammála staðreyndum, stöðuna í hagkerfinu, mikilvægi loðnuvertíðar, baráttuna við útvarpsgjaldið, hrós vikunnar og margt fleira.
Fri, 30 Jan 2026 - 1h 15min - 389 - #389 – Kaffispjall með Birni IngaTue, 27 Jan 2026 - 46min
- 388 - #388 – Bóndadags-helgarvaktin með Þorsteini Víglunds og Vilhjálmi Árnasyni
Vilhjálmur Árnason og Þorsteinn Víglundsson fara yfir fréttir vikunnar á bóndadegi. Við ræðum um nýjustu vendingar í baráttunni um Grænland, væntanlegt prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík, ástæðu þess að Þorsteinn sagði skilið við Viðreisn og almennt um stjórnarsamstarfið, þróun á fylgi flokkanna, hvernig Össur Skarphéðinsson skólaði Sigmar Guðmundsson til, stöðuna í efnahagsmálum, framboð Þorsteins til formennsku í Samtökum iðnaðarins, framboð Vilhjálms í oddvitasæti hjá Sjálfstæðisflokknum í Keflavík og margt fleira.
Fri, 23 Jan 2026 - 1h 43min - 387 - #387 – Kaffispjall með Andrési og Andreu – Óvæntar uppákomur í pólitíkinni
Andrea Sigurðardóttir og Andrés Magnússon frá Morgunblaðinu ræða um allt það helsta sem er að eiga sér stað í stjórnmálunum þessa dagana. Við ræðum um óvænta afsögn þingmanns Viðreisnar og hvort að til staðar séu ósagðar fréttir í því máli, átök innan Samfylkingarinnar í Reykjavík, undarlega uppákomu við kynningu á nýju vinstri framboði í Reykjavík, leit Miðflokksins að oddvita, hvort það verði einhver endurnýjun á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, um oddvitaslagi víða um land í aðdraganda sveitastjórnarkosninga, undarlega tilfærslu málaflokka á milli ráðuneyta, tilraun leiðtoga ríkisstjórnarinnar til að setja Ísland í skotlínu Bandaríkjaforseta, mögulega löggjöf í áfengismálum og margt fleira.
Tue, 20 Jan 2026 - 1h 23min - 386 - #386 – Helgarvaktin með Herði Ægis og Þórði Pálssyni – Grjóthrúgur í veginum að aukinni hagsæld
Hörður Ægisson og Þórður Pálsson ræða um stöðuna í hagkerfinu og horfurnar framundan, heimatilbúin vanda af hálfu ríkisstjórnarinnar sem viðheldur verðbólgu og háum vöxtum, af hverju Seðlabankinn skilar auðu í gagnrýni á aukin útgjöld ríkisins, um gildishlaðin ummæli nýs félagsmálaráðherra um Seðlabankann og efnahagsmálin, um heimsókn Maríönu Mazzucato hingað til lands, nýja stjórn Íslandsbanka og sviptingar í fjármálageiranum, vantraust á deildarforseta viðskiptadeildar á Bifröst, áhrif Bandaríkjanna á Grænlandi og margt fleira.
Fri, 16 Jan 2026 - 2h 08min - 385 - #385 – Kaffispjall með Sigurði Má um Venesúela, Íran og allt þar á milli
Sigurður Már Jónsson ræðir um stöðuna í Venesúela og í Íran, um aðkomu Bandaríkjanna að þessum tveimur ríkjum og svæðunum í kringum þau, hvort við séum að horfa á einhverja breytta heimsmynd eða hvort að sagan sé að einhverju leyti að endurtaka sig, hvernig næstu skref kunna að verða og fleira í þeim dúr. Þá ræðum við einnig um pólitíkina hér heima, um hvort og þá hvernig verðbólgan kann að hafa áhrif á stjórnmálin og margt fleira.
Tue, 13 Jan 2026 - 1h 18min - 384 - #384 – Helgarvaktin með Bergþóri og Þórði Gunnars – Viðverusamtal
Bergþór Ólason og Þórður Gunnarsson, sem snýr aftur úr agabanni, ræða hvað kann að felast í því að biðja um „gamla góða Ísland“, við ræðum fylgisþróun flokkanna, framboðsmál í borginni, breytingar á ríkisstjórninni, um rúman veikindarétt opinberra starfsmanna, hver sé líklegur til að taka við sem framkvæmdastjóri SA og margt fleira.
Fri, 09 Jan 2026 - 1h 03min - 383 - #383 – Kaffispjall með Sigurði Kára og Óla Birni – Hvar á (hægri) maðurinn heima?
Sigurður Kári Kristjánsson og Óli Björn Kárason ræða um stöðu hægri manna á Íslandi, hvort þeir séu sundraðir í mörgum flokkum, hvort Sjálfstæðisflokkurinn hafi aftengst hægri mönnum, mikilvægi þess að móta og tala fyrir skýrri stefnu og fleira í þeim dúr. Þá ræðum við einnig um hlutverk fjölmiðla, handtöku forseta Venesúela og fleira.
Tue, 06 Jan 2026 - 1h 30min - 382 - #382 – Helgarvaktin með Herði og Stefáni Einari sem gera upp nýliðið ár
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson gera upp nýliðið ár og leggja línurnar fyrir það næsta. Við ræðum um áhugaverða þróun í stjórnmálum og viðskiptum á síðasta ári, hvernig fylgi flokkanna er að þróast, hvernig útlitið er í efnahagsmálum, um ríkisstjórn sem leggur meiri áherslu á áferð en árangur, hvernig nýja árið heilsar okkur og margt fleira.
Fri, 02 Jan 2026 - 1h 37min - 381 - #381 – Kaffispjall með Sigríði Hrefnu í Nóa Siríus
Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, forstjóri Nóa Siríus, ræðir um rekstur félagsins sem á sér rúmlega 100 ára sögu hér á landi, hvernig staða þess var þegar hún tók við sem forstjóri og hvað hún þurfti að gera til að snúa rekstrinum við, um kosti og galla vöruþróunar, hvernig framleiðslan er að breytast, utanaðkomandi þætti sem hafa áhrif á verðlagningu, samskipti við smásölurisana og margt fleira í þessum síðasta þætti ársins.
Tue, 30 Dec 2025 - 58min - 380 - #380 – Þorláksmessa með Birni Bjarnasyni
Björn Bjarnason fer yfir stöðuna í aðdraganda jóla og ræðir um ársafmæli ríkisstjórnarinnar, hverju hún hefur áorkað og hverju ekki, almennt um stöðuna í stjórnmálum, tilraunir til þess að festa Rúv í sessi á kostnað annarra fjölmiðla, hvort og þá hvaða hagsmuna verið sé að gæta í Evrópumálum, óskir Bandaríkjaforseta um að taka yfir Grænland og áhrif þess á Íslands, og margt fleira.
Wed, 24 Dec 2025 - 1h 11min - 379 - #379 – Helgarvaktin með Andrési og Stefáni Pálssyni – Slétt yfirborð en hrufótt undirlag hjá ríkisstjórninni
Andrés Magnússon og Stefán Pálsson ræða um síðustu metrana á haustþinginu, villandi upplýsingaáróður stjórnarmeirihlutans, hvort Samfylkingin hafi gengið of langt með skipulagðri árás á aðila utan stjórnmálanna, um leikþátt fjármálaráðherra með áhrifavaldi, klúður við makrílsamninga, vendingar í borgarmálum og hvort von sé á sameinuðu vinstri framboði og það mikilvægasta af öllu – hvort að Die Hard sé jólamynd eða ekki.
Fri, 19 Dec 2025 - 1h 18min - 378 - #378 – Ásgeir Jónsson ræðir um Síðasta formanninn í kaffispjalli
Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og rithöfundur, ræðir um nýútkomna bók sína, Síðasta formanninn. Titill bókarinnar vísar til afa Ásgeirs, Bjarna Jónsson, sem var síðasti hákarlaformaðurinn sem sótti út á Húnaflóa. Inn í þessa sögu ratar þó líka saga forfeðra og formæðra Ásgeirs, þættir í sjálfstæðisbaráttu Íslands, konunglegar heimsóknir og áhrif þeirra, tilraunir til að byggja upp þjóðmenningu, pólitískar atlögur og það hvernig Strandasýsla var í þungamiðju stjórnmála á millistríðsárunum, lífsskilyrði á svæðinu og margt fleira.
Tue, 16 Dec 2025 - 1h 29min - 377 - #377 – Helgarvaktin með Hermanni Nökkva og Þórði Gunnars – Ég biðst afsökunar ef þú endilega vilt
Bræðurnir Þórður og Hermann Nökkvi Gunnarssynir fara yfir stóru málin, stöðuna í þinginu, bandorm sem gæti orðið að njálg fyrir skattgreiðendur, meinta afsökunarbeiðni forseta Alþingis sem missti stjórn á skapi sínu við upphaf þingfundar, stöðu dómsmálaráðherra sem skipar í fjölda stórra embætta á næstu misserum, mögulega bresti í stjórnarmeirihlutanum, sex hluti sem ríkisstjórnin segist vera búin að gera á einu ári en eru enn bara hugmyndir á blaði, leikþátt í Efstaleiti vegna Eurovision og gyðingahatur Páls Óskars, væntanleg framboð vegna sveitastjórnarkosninga, fréttir úr viðskiptalífinu og margt fleira. Stútfullur þáttur sem hentar vel með mömmukökubakstri.
Fri, 12 Dec 2025 - 1h 24min - 376 - #376 – Kaffispjall með Rósu Guðbjartsdóttur
Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fv. bæjarstjóri í Hafnarfirði, mæti í kaffispjall. Við ræðum um samskiptin milli stjórnarmeirihlutans og stjórnarandstöðunnar, hvort og þá hvernig reynslan úr bæjarstjórn nýtist í landsmálunum, hvernig það kom til að hún ákvað að reyna fyrir sér í stjórnmálum á sínum tíma, um reynslu hennar af móttöku hælisleitenda í Hafnarfirði, fylgislækkun Sjálfstæðisflokksins og margt fleira.
Tue, 09 Dec 2025 - 1h 16min - 375 - #375 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Kristínu Gunnars – Þegar yfirlætið og hófsemin mætast
Kristín Gunnarsdóttir og Stefán Einar Stefánsson fara yfir allt það helsta á helgarvaktinni. Við ræðum um allt milli himins og jarðar, í orðsins fyllstu – meðal annars um pólitík, tilraunir Þjóðkirkjunnar til að bæta ásýnd sína, breytingar hjá Sjálfstæðisflokknum, hreinsanir ríkisstjórnarinnar í skólakerfinu, ríkisfyrirtæki í Viðskiptaráði, sjálfsmat ríkisstjórnarinnar og margt fleira.
Fri, 05 Dec 2025 - 1h 41min - 374 - #374 – Aðventukaffi með Gunnari Úlfars og Ingva Þór – Hverjir vinna jólaleikinn og óvænt skúbb í beinni
Gunnar Úlfarsson og Ingvi Þór Georgsson kíkja í aðventukaffi. Við ræðum meðal annars um jólaverslun, hverjir það eru sem standa uppi sem sigurvegarar og hverjum bregst bogalistin, um kaup á afþreyingu og öðrum jólatengdum vörum, tilboðsdaga sem hafa breytt mynstrinu og margt fleira í þeim dúr. Þá er rætt um yfirvofandi skattahækkanir og hvaða áhrif þær kunna að hafa, óvissu sem ríkir um upphæð veiðigjalda, stöðu Sýnar og margt fleira.
Thu, 04 Dec 2025 - 1h 16min - 373 - #373 – Helgarvaktin með Sigríði Andersen og Erni Arnarsyni – Þakkargjörðarhátíð og gjafir á kostnað annarra
Sigríður Á. Andersen og Örn Arnarson fara yfir vikuna, stöðuna í þinginu, viðvaningshátt við fjárlagagerð og skattahækkanir, ummæli forsætisráðherra um kólnandi hagkerfi, gjafirnar sem Inga Sæland vill gefa en láta aðra borga fyrir, oddvitamál í borginni, yfirlæti í garð stuðningsmanna Miðflokksins, hvort það sé áhugavert að fjárfesta í sjávarútvegi og margt fleira.
Fri, 28 Nov 2025 - 1h 43min - 372 - #372 – Bransatal með Pálma Guðmundssyni
Pálmi Guðmundsson er líklega einn reynslumesti fjölmiðla- og markaðsmaður landsins, með um 35 ár í bransaum eins og sagt er, og hefur komið að framleiðslu á mörgum af þekktustu sjónvarpsþáttum sem framleiddar hafa verið hér á landi. Í þætti dagsins ræðum við um afþreyingarbransann, hvernig þróunin hefur verið og hvernig má ætla að hún verði á næstu árum, samkeppnina á milli sjónvarpsins og kvikmyndahúsa, hvernig streymisveitur breyttu markaðnum, hverjir eru líklegir til að standa uppi á þessum markaði og margt fleira.
Tue, 25 Nov 2025 - 1h 33min - 371 - #371 – Helgarvaktin með Stefáni Einar og Þórði Gunnars – Með Wellington á borðum eftir Hátíðarkvöld Þjóðmála
Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson fara yfir það helsta frá Hátíðarkvöldi Þjóðmála. Einnig er rætt um stýrivaxtalækkun Seðlabankans og kólnun hagkerfisins, slök viðbrögð ríkisstjórnarinnar við tollum Evrópusambandsins, uppstillta mynd af forsætisráðherra tala í símann, nýtt slagorð Viðreisnar, nýja könnun sem sýnir Miðflokkinn stærri en Sjálfstæðisflokkinn, hátt setta ríkisstarfsmenn sem klúðra málum en fá bara nýtt starf á sömu launum, möguleg kaup Símans á fjölmiðlahluta Sýnar, og sitthvað fleira.
Fri, 21 Nov 2025 - 1h 32min
Podcasts ähnlich wie Þjóðmál
Wife, Mother, Slave, Sex Goddess A. Heyward
Barangay Love Stories Barangay LS 97.1 Manila | GMA Network Inc.
Good Bad Billionaire BBC World Service
Cyprian Majcher Cyprian Majcher
Die Nachrichten Deutschlandfunk
Podcast Wojenne Historie Historia II wojny światowej
Forensic Files HLN
Nowenna pompejańska. Świadectwa https://pompejanska.krolowa.pl/
ILLVERK Podcast Inga Kristjáns
الشيخ أحمد العجمي islami
True Crime Documentary Justin Kandell Network
Dear MOR MOR Entertainment
Snapped: Women Who Murder Oxygen
Papa Dudut Stories Papa Dudut | TAGM Marketing Solutions Inc.
DUDEK o polityce prof. Antoni Dudek i Super Exspress
Przemek Górczyk Podcast Przemek Górczyk
Sceny zbrodni RMF FM
Þetta nútímalíf RÚV Hlaðvörp
Money News Tapt Media
Żurnalista - Rozmowy bez kompromisów zurnalistapl
العلم والإيمان - د. مصطفى محمود علم ينتفع يه
Andere Gesellschaft und Kultur Podcasts
WojewódzkiKędzierski Kuba Wojewódzki, Piotr Kędzierski
Í ljósi sögunnar RÚV
Ein Pæling Thorarinn Hjartarson
Skuggavaldið skuggavaldid
Betri en flestir Danni Deluxe
Ekkert plan Ekkert plan
Marta María býður heim Marta María Winkel
Frjálsar hendur RÚV
Kaosklúbburinn Kaosklúbburinn
MATADOR Starkaður Pétursson, Kristín Pétursdóttir
Falsfréttir Falsfréttir
Casefile True Crime Casefile Presents
Munnangur Árnný og Svandís
Helgi & Heiðdís Podcast Helgi & Heiðdís Podcast
Fullorðins Fullorðins
Jón Ólafs á spjallinu Jón Ólafsson
Segðu mér RÚV
The Diary Of A CEO with Steven Bartlett DOAC
Behind the Bastards Cool Zone Media and iHeartPodcasts
Sögur úr raunveruleikanum RÚV Hlaðvörp
