Podcasts by Category

Þvottahúsið og Geimsýran

Þvottahúsið og Geimsýran

Boxing David - Cliff W - Nóri Breiðholt

Geimsýran flæðir stjórnlaust og er í boði Þvottahússins. Geimsýran fjallar um allt sem snertir á UFO/NHI og uppljóstrun málaflokksins í heild sinni. Einnig er snert á málum sem  gætu skilgreinst sem andleg og heimspekileg. Áskriftarþættir og aukaefni eru á http://patreon.com/geimsyran



186 - Sjálfhverfa, krónískt eða læknanlegt?
0:00 / 0:00
1x
  • 186 - Sjálfhverfa, krónískt eða læknanlegt?

    Send us Fan Mail Í þessu mannlega horni Geimsýrunar tek ég deepDive á sjálfhverfu. Hvað veldur henni, hvernig lítur hún út og hvað er mögulega hægt að gera til að losna undan henni? Sjúklega áhugavert að að grúska í þessu vitundarástandi sem og oft á tíðum persónueinkenni. http://patreon.com/Geimsýran

    Thu, 12 Nov 2026
  • 185 - Ég fæ ekki nóg af þessum DIRD skjölum

    Send us Fan Mail Í sjötta UFO-droppinu frá WAR.GOV eru gömul rannsóknargögn frá AAWSAP/DIA sem opna ansi áhugaverða glugga inn í það sem bandaríska varnarkerfið var tilbúið að rannsaka. Þarna er að finna rannsóknir á andþyngdarafli, háþróaðri framdrifstækni, rúm-tíma verkfræði, ormagöngum, metamaterials, superconductors – og jafnvel tengingum milli heila og véla. Svo koma inn Hal Puthoff, remote viewing, psionics og furðuleg tenging við rannsóknarumhverfið í Huntsville. Eru þetta bara aðskild...

    Thu, 12 Nov 2026
  • 184 - Hver er grunnorsök alkóhólisma?

    Send us Fan Mail Í mannlega horni Geimsýrunar fer ég yfir grunnorsök alkóhólisma samkvæmt minni sannfæringu. Tek það fram að stundum kemst ég að því að ég hef rangt fyrir mér, það er eini fyrirvarinn við innihald þessa þáttar. Lífið er Guð, lífið er Guð innra með mér. http://patreon.com/geimsyran

    Tue, 10 Nov 2026
  • 183 - Meiosis-ferli Hins Yfirnáttúrlega og Geimsýrunar er hafið

    Send us Fan Mail Þessi þáttur er fyrsti samruna þáttur Hins Yfirnáttúrulega og Geimsýrunar. Dagný og Selma hafa í dágóðan tíma haldið út hið sívinsæla Hlaðvarp Hið Yfirnáttúrulega. Þar fjalla þær um um allskonar yfirnáttúrulegt, andlegt og dulúðlegt. Ákvörðun var tekin á Heimsljós hátíðinni að efna til samruna einu sinni í mánuði og slá saman strengi undir sameiginlegum hatt Geimsýrunar og Hins Yfirnáttúrlega. Í þessum þætti rúlluðum við yfir áform hvað varðar Íslandsheimsókn Bashar, fórum yf...

    Tue, 10 Nov 2026
  • 182 - Pabbadagurinn er í dag

    Send us Fan Mail Það er pabbadagur í dag. Ég var að komast að því. Gleymdist í hasarnum en það er allt í lagi. Í þessum þætti fer ég yfir pabbana, hlutverkið, fórnina og verðlaunin. Það er ekki hægt að lýsa því hvað faðirhlutverkið hefur verið mikill skóli fyrir mig. Þá má segja að dóttir mín hafi í raun alið mig upp og gert mig að þeim manni sem ég tel mig vera í dag. Til hamingju með daginn pabbar. Þið rokkið, þið eruð æðislegir, þið setjið allt í samhengi. http://patreon.com/geimsyran

    Sun, 08 Nov 2026
Show More Episodes