Nach Genre filtern

Ræðum það...

Ræðum það...

Andrés Jónsson

Atvinnulífsspjallþáttur þar sem við fjöllum um efnahagsmál, viðskipti, stjórnun og samskipti frá ýmsum hliðum

18 - #606 "Hæfni ekki náð. Fjólublár - verk í vinnslu"
0:00 / 0:00
1x
  • 18 - #606 "Hæfni ekki náð. Fjólublár - verk í vinnslu"

    "Hæfni ekki náð. Fjólublár - verk í vinnslu"

    Gestir sjötta þáttar í sjöttu seríu af Ræðum það... eruÁrni Helgasonþingmaður Sjálfstæðisflokksins ogSverrir Páll Einarsson formaður Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar.


    Umræða þáttarins er um hvort ríkisstjórnin sé vinsamleg gagnvart framtakssemi eða pro-business


    Einnig er rætt um leigubremsu, hvort mál séu ekki að koma fram í þinginu og hvort skattar á ferðaþjónustuna séu hækkaðir án fyrirvara eða séu stefna sem legið hafi fyrir lengi.


    ---


    Ræðum það... er hlaðvarp Góðra samskipta um viðskipti og atvinnulíf og hefur verið gefið út frá árinu 2020. 

    Stjórnandi er Andrés Jónsson




    Wed, 28 Oct 2026 - 40min
  • 17 - #605 Áhrif mállíkana meiri á ferðaþjónustu á Íslandi

    Áhrif mállíkana meiri á ferðaþjónustu á Íslandi

    Gestir eruDaði Guðjónssonhjá Íslandsstofu ogArna Gunnur Ingólfsdóttir hjá Advania.

    Þá komJónas Atli Gunnarsson, yfirhagfræðingur HMS, og ræddi um meint áhrif leigubremsu á framboð á húsnæðismarkaði.

    Í lok þáttar kom Baldur Thorlacius, framkvæmdastjóri skráninga hjá Kauphöll Íslands og ræddi um íslenska hlutabréfamarkaðinn, sameiningar lífeyrissjóða og fleira.

    Ræðum það... er í boði Mynstur.

    ----

    Ræðum það... er hlaðvarp Góðra samskipta um viðskipti og atvinnulíf og hefur verið gefið út frá árinu 2020. 

    Stjórnandi er Andrés Jónsson


    Sun, 25 Oct 2026 - 59min
  • 16 - #604 Landsvirkjun og brotthvarf Harðar

    Í hlaðvarpi vikunnar í Ræðum það… er rætt um arfleifð Harðar Arnarsonar hjá Landsvirkjun, pólitíska og efnahagslega þýðingu fyrirtækisins og þróun stjórnarhátta þar með Höllu Hrund Logadóttur þingmanni Framsóknarflokksins og fyrrum orkumálastjóra og Helga Hjörvar fyrrverandi borgarfulltrúa og þingmanni Samfylkingarinnar sem sat í stjórn Landsvirkjunar til ársins 2006.


    Einnig fjöllum við um viðbrögðin við spillingarmáli Manchester City í ensku úrvalsdeildini og hvernig eigendur og stjórnendur liðsins hafa nálgast PR-málin með Jóni Kaldal blaðamanni og almannatengslaráðgjafa.

    Sun, 11 Oct 2026 - 37min
  • 15 - #603 - Hallalaus fjárlög eða hvað? 

    Hallalaus fjárlög eða hvað? 


    Hringborð atvinnulífsins:

    Við hringborðið í dag eru Ragna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og varaformaður efnahags- og viðskiptanefndar og Árni Helgason þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Við fengum þau til að ræða hvers konar signal ríkisstjórnin sendir með hallalausu fjárlagafrumvarpi og hversu miklar líkur séu í raun á hallalausum ríkisrekstri á næsta ári.


    Viðtalið:

    Margréti Ormslev Ásgeirsdóttir,framkvæmdastjóri Ligo, er í viðtalinu og ræðir nýtingu gervigreindar fyrir innviði eins og fasteignir og frárennslislagnir.


    Hitamælirinn:

    Í hitamæli viðskiptalífsins fórum við yfir umræðu um samsetningu eignarhalds fyrirtækja í kauphöll Íslands með Herði Ægissyni, ritstjóra Innherja. Við ræðum hvernig sambúðin milli stórra stofnanafjárfesta og einkafjárfesta þurfi að þróast til að stuðla að meiri veltu og aukinni þátttöku nýrra fjárfesta í kauphöllinni. Eitthvað sem er reyndar líka stórt hagsmunamál almennings.


    ----


    Ræðum það... er hlaðvarp Góðra samskipta og hefur verið gefið út frá árinu 2020.


    Ræðum það... fjallar vikulega um viðskipti, efnahagsmál og opinbera stefnumörkun. Þetta er snarpt videó-hlaðvarp með puttann á púlsi umræðunnar og nýlegum fréttafyrirsögnum í viðskiptalífinu. Gestir eru forystufólk í atvinnulífinu en líka glöggt fólk með góða innsýn í umræðuefnin sem er ekki tíðir gestir í hlaðvörpum. 


    Stjórnandi er Andrés Jónsson

    Mon, 14 Sep 2026 - 1h 20min
  • 14 - #602 - Hvarf sjónvarpsfrétta, sala til Replit og kólnandi byggingamarkaður


    Hringborð atvinnulífsins:

    Við hringborðið í dag eru Kolbeinn Tumi Daðason ritstjóri fréttastofu Sýnar og Kolbeinn Marteinsson ráðgjafi hjá Athygli.


    Viðtalið:

    Viktor MargeirssonogGunnar Kolbeinsson, stofnendur Test 13 voru í viðtali.


    Hitamælirinn:

    Í hitamæli viðskiptalífsins ræddum við að þessu sinni byggingamarkaðinn, vexti og hallalaus fjárlög við Jónas Atla Gunnarsson, yfirhagfræðing HMS.


    Ræðum það... er í boði Mynstur.


    ----

    Ræðum það... er hlaðvarp Góðra samskipta og hefur verið gefið út frá árinu 2020.

    Ræðum það... er vikulegt videó-hlaðvarp um viðskipti, efnahagsmál og opinbera stefnumörkun. Vandað og uppbyggilegt en líka snarpt og með puttann á púlsi umræðunnar.


    Stjórnandi er Andrés Jónsson


    Tue, 08 Sep 2026 - 55min
Weitere Folgen anzeigen