Podcasts by Category
- 18 - #606 "Hæfni ekki náð. Fjólublár - verk í vinnslu"
"Hæfni ekki náð. Fjólublár - verk í vinnslu"
Gestir sjötta þáttar í sjöttu seríu af Ræðum það... eruÁrni Helgasonþingmaður Sjálfstæðisflokksins ogSverrir Páll Einarsson formaður Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar.
Umræða þáttarins er um hvort ríkisstjórnin sé vinsamleg gagnvart framtakssemi eða pro-business
Einnig er rætt um leigubremsu, hvort mál séu ekki að koma fram í þinginu og hvort skattar á ferðaþjónustuna séu hækkaðir án fyrirvara eða séu stefna sem legið hafi fyrir lengi.
---
Ræðum það... er hlaðvarp Góðra samskipta um viðskipti og atvinnulíf og hefur verið gefið út frá árinu 2020.
Stjórnandi er Andrés Jónsson
Wed, 28 Oct 2026 - 40min - 17 - #605 Áhrif mállíkana meiri á ferðaþjónustu á Íslandi
Áhrif mállíkana meiri á ferðaþjónustu á Íslandi
Gestir eruDaði Guðjónssonhjá Íslandsstofu ogArna Gunnur Ingólfsdóttir hjá Advania.
Þá komJónas Atli Gunnarsson, yfirhagfræðingur HMS, og ræddi um meint áhrif leigubremsu á framboð á húsnæðismarkaði.
Í lok þáttar kom Baldur Thorlacius, framkvæmdastjóri skráninga hjá Kauphöll Íslands og ræddi um íslenska hlutabréfamarkaðinn, sameiningar lífeyrissjóða og fleira.
Ræðum það... er í boði Mynstur.
----
Ræðum það... er hlaðvarp Góðra samskipta um viðskipti og atvinnulíf og hefur verið gefið út frá árinu 2020.
Stjórnandi er Andrés Jónsson
Sun, 25 Oct 2026 - 59min - 16 - #604 Landsvirkjun og brotthvarf Harðar
Í hlaðvarpi vikunnar í Ræðum það… er rætt um arfleifð Harðar Arnarsonar hjá Landsvirkjun, pólitíska og efnahagslega þýðingu fyrirtækisins og þróun stjórnarhátta þar með Höllu Hrund Logadóttur þingmanni Framsóknarflokksins og fyrrum orkumálastjóra og Helga Hjörvar fyrrverandi borgarfulltrúa og þingmanni Samfylkingarinnar sem sat í stjórn Landsvirkjunar til ársins 2006.
Einnig fjöllum við um viðbrögðin við spillingarmáli Manchester City í ensku úrvalsdeildini og hvernig eigendur og stjórnendur liðsins hafa nálgast PR-málin með Jóni Kaldal blaðamanni og almannatengslaráðgjafa.
Sun, 11 Oct 2026 - 37min - 15 - #603 - Hallalaus fjárlög eða hvað?
Hallalaus fjárlög eða hvað?
Hringborð atvinnulífsins:
Við hringborðið í dag eru Ragna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og varaformaður efnahags- og viðskiptanefndar og Árni Helgason þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Við fengum þau til að ræða hvers konar signal ríkisstjórnin sendir með hallalausu fjárlagafrumvarpi og hversu miklar líkur séu í raun á hallalausum ríkisrekstri á næsta ári.
Viðtalið:
Margréti Ormslev Ásgeirsdóttir,framkvæmdastjóri Ligo, er í viðtalinu og ræðir nýtingu gervigreindar fyrir innviði eins og fasteignir og frárennslislagnir.
Hitamælirinn:
Í hitamæli viðskiptalífsins fórum við yfir umræðu um samsetningu eignarhalds fyrirtækja í kauphöll Íslands með Herði Ægissyni, ritstjóra Innherja. Við ræðum hvernig sambúðin milli stórra stofnanafjárfesta og einkafjárfesta þurfi að þróast til að stuðla að meiri veltu og aukinni þátttöku nýrra fjárfesta í kauphöllinni. Eitthvað sem er reyndar líka stórt hagsmunamál almennings.
----
Ræðum það... er hlaðvarp Góðra samskipta og hefur verið gefið út frá árinu 2020.
Ræðum það... fjallar vikulega um viðskipti, efnahagsmál og opinbera stefnumörkun. Þetta er snarpt videó-hlaðvarp með puttann á púlsi umræðunnar og nýlegum fréttafyrirsögnum í viðskiptalífinu. Gestir eru forystufólk í atvinnulífinu en líka glöggt fólk með góða innsýn í umræðuefnin sem er ekki tíðir gestir í hlaðvörpum.
Stjórnandi er Andrés Jónsson
Mon, 14 Sep 2026 - 1h 20min - 14 - #602 - Hvarf sjónvarpsfrétta, sala til Replit og kólnandi byggingamarkaður
Hringborð atvinnulífsins:
Við hringborðið í dag eru Kolbeinn Tumi Daðason ritstjóri fréttastofu Sýnar og Kolbeinn Marteinsson ráðgjafi hjá Athygli.
Viðtalið:
Viktor MargeirssonogGunnar Kolbeinsson, stofnendur Test 13 voru í viðtali.
Hitamælirinn:
Í hitamæli viðskiptalífsins ræddum við að þessu sinni byggingamarkaðinn, vexti og hallalaus fjárlög við Jónas Atla Gunnarsson, yfirhagfræðing HMS.
Ræðum það... er í boði Mynstur.
----
Ræðum það... er hlaðvarp Góðra samskipta og hefur verið gefið út frá árinu 2020.
Ræðum það... er vikulegt videó-hlaðvarp um viðskipti, efnahagsmál og opinbera stefnumörkun. Vandað og uppbyggilegt en líka snarpt og með puttann á púlsi umræðunnar.
Stjórnandi er Andrés Jónsson
Tue, 08 Sep 2026 - 55min - 13 - #601 - Gagnaver, gervigreind og fjárfestingar
NÝ SERÍA - Ræðum það... rúllar af stað af ný.
Hringborð atvinnulífsins:
Við hringborðið í dag eru Tinna Traustadóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá Landsvirkjun, Magnús Bjarnason ráðgjafi og eigandi MAR advisors. Við fengum þau til að ræða sögu íslenska gagnaversiðnaðarins og hvaða frekari tækifæri eru fyrir Íslands á því sviði.
Viðtalið:
Sylvía Kristín Ólafsdóttir,forstjóri Nova, er í viðtalinu og ræðir nýja strategíu og fjárfestingar Nova.
Hitamælirinn:
Í hitamæli viðskiptalífsins skyggndumst við inn í umræðuna á bakvið fréttafyrirsagnir vikunnar með Þorsteini Friðriki Halldórssyni, ritstjóra Hluthafans.
Ræðum það... verður eftirleiðis vikulegt videó-hlaðvarp um viðskipti, efnahagsmál og opinbera stefnumörkun. Vandað og uppbyggilegt en líka snarpt og með puttann á púlsi umræðunnar.
Við munum grípa umræðu sem tengist nýlegum fréttafyrirsögnum í viðskiptalífinu. Gestir verða aðallega forystufólk í atvinnulífinu en líka glöggt fólk með góða innsýn í umræðuefnin sem er ekki tíðir gestir í hlaðvörpum.
----
Ræðum það... er hlaðvarp Góðra samskipta og hefur verið gefið út frá árinu 2020.
Stjórnandi er Andrés Jónsson
Sat, 29 Aug 2026 - 58min - 12 - #511 Mun gervigreindin dæma okkur?
Mun gervigreindin dæma okkur?
Í þessum ellefta þætti 5 seríu spjalla ég um gervigreind við þau Stefán Baxter hjá Snjallgögnum, Thelmu Christel Kristjánsdóttur hjá Jónsbók og Tinna Kára Jóhannesson hjá Wise
Tinni er jafnframt fyrrum samstarfsfélagi minn hjá Góðum samskiptum og meðstofnandi Ræðum það...
---
Við erum líka á https://raedumthad.substack.com - fáið tilkynningar um nýja þætti og meira til.
—
Ræðum það… er spjallþáttur um atvinnulífið.
Þátturinn hefur komið út reglulega frá árinu 2020. Stjórnandi er Andrés Jónsson*
(*)Efnistök eru alfarið óháð verkefnum Góðra samskipta á hverjum tíma. Við val á gestum forðumst við alla hagsmunaárekstra.
Sat, 02 May 2026 - 31min - 11 - #510 Er Ísland opið fjárfestum?
Er Ísland opið fjárfestum?
Í þætti vikunnar ræða Margrét Ormlev Ásgeirsdóttir, rekstrarráðgjafi hjá Ormslev Advisory og Friðjón Þórðarson, framkvæmdastjóri Qair Ísland, umatvinnustefnuna sem oddvitar ríkisstjórnarflokkanna kynntu á blaðamannafundi á föstudaginn. Bæði hafa þau um árabil haft milligöngu um aðkomu erlendra fjárfesta að orkuuppbyggingu og grænum orkuverkefnum hér á landi og þekkja hversu langt og flókið ferli það getur verið.
Tilkynningarskyldan: Þau þekktust ekki fyrir þennan þátt.
Við erum líka á https://raedumthad.substack.com - fáið tilkynningar um nýja þætti og meira til.
—
Ræðum það… er spjallþáttur um atvinnulífið.
Þátturinn hefur komið út reglulega frá árinu 2020. Stjórnandi er Andrés Jónsson*
(*)Efnistök eru alfarið óháð verkefnum Góðra samskipta á hverjum tíma. Við val á gestum forðumst við alla hagsmunaárekstra.
Wed, 15 Apr 2026 - 30min - 10 - #509 Kunna íslensk fyrirtæki ekki að selja?
Kunna íslensk fyrirtæki ekki að selja?
Hringborð atvinnulífsins: Georg Lúðvíksson framkvæmdastjóri Spesíu og Rakel Guðmundsdóttir, eignarhaldsstjóri Alfa Framtaks ræddu afhverju íslensk fyrirtæki eru aftarlega á merinni þegar kemur að skipulögðu sölustarfi.
Hreyfingalistinn - fréttir vikunnar: Þorsteinn Friðrik Halldórsson ritstjóri Hluthafans og Kristinn Árni Lár Hróbjartsson, ráðgjafi ræddu um lokun Brunns á þriðja framtakssjóði sínum, verðhrun skráðra hugbúnaðarfyrirtækja vestan hafs, tilslakanir Seðlabankans varðandi skýrslugerð fjármálafyrirtækja og nýtt frumvarp ríkisstjórnarinnar um að hækka viðmið varðandi kaupauka starfsmanna verðbréfafyrirtækja.
————
Við erum líka á https://raedumthad.substack.com
Ræðum það… er spjallþáttur þar sem rætt er um efnahagsmál, viðskipti, stjórnun og samskipti.
Þátturinn er í boði Góðra samskipta* og hefur komið út reglulega frá árinu 2020. Stjórnandi er Andrés Jónsson
(*)Efnistök hlaðvarpsins eru óháð verkefnum Góðra samskipta á hverjum tíma. Við val á umræðuefnum og gestum þáttarins forðumst við alla hagsmunaárekstra.
Fri, 06 Feb 2026 - 38min - 9 - #508 Gervigreind á fjármálamarkaði
#508 Gervigreind á fjármálamarkaði
Gervigreindin vanmetur verðmæti Alphabet. Það er álit Arnbjarnar Ingimundarsonar, framkvæmdastjóra Gnitaness fjárfestinga, sem ákvað að prófa sig áfram með að láta Gemini og Grok framkvæma verðmat á bandaríska tæknifyrirtækinu fyrir sig.
Niðurstaðan var að bæði mállíkönin álitu rétt verð hlutabréf fyrirtækisins vera nokkuð langt fyrir neðan núverandi verð (sem hefur reyndar hækkað um rúm 65% á árinu). Tilgangur Arnbjarnar var að fá annað sjónarhorn á það hvort Gnitaness ætti að selja bréf og innleysa hagnað af fjárfestingu sinni í Alphabet eða ekki. Hann telur að gervigreindin vanmeti líklega mögulegar framtíðartekjur fyrirtækisins en það sé hins vegar, líkt og önnur fyrirtæki í S&P500 vísitölunni, orðið ansi hátt verðlagt.
Arnbjörn birti helstu niðurstöður verðmats gervigreindarinnar á Linkedin síðu sinni og við fengum hann í Ræðum það… til að ræða aðeins um áhrif gervigreindar á fjármálamarkaði við Iðunni Hafsteinsdóttur sérfræðing hjá Stefni og Alexander Hjálmarsson hjá Akk greiningu.
Rætt var um hvernig gervigreindin nýtist í störfum á fjármálamarkaði og Iðunn minnti á að fyrstu viðbrögð stærstu banka heims við því þegar gervigreindarlíkönin komu fram árið 2023 var að banna notkun þeirra í rekstrinum (m.a. af ótta við leka á upplýsingum). Enginn í viðmælendahópnum taldi hægt að treysta gervigreindinni fyrir fjárfestingarákvörðunum en að hægt sé að spara sér mikla handavinnu, ekki síst við að sía út fjárfestingarkosti. Arnbjörn sagðist ekki vinna minna vegna gervigreindarinnar heldur frekar meira því hann sé svo spenntur yfir öllum möguleikunum sem hún opni. Sérstaklega sé Gemini 3 líkanið frá Google gott tól að hans mati. Þá er Open AI afar óþjált nafn að mati Arnbjarnar sem telur að samkeppnisaðilar fyrirtækisins muni njóta þess að geta nýtt aðrar lausnir til að ná fólki í að nota þeirra gervigreind. Nokkuð sem Open AI hafi ekki þó að fyrirtækið sé stærsta brandið á meðal almennings sem stendur.
Rætt var í þættinum um líklega kólnun á fasteignamarkaði og hvort heimilin yrðu fyrir skakkaföllum eða eingöngu verktakar og fjármögnunaraðilar. Alexander taldi að vaxtalækkun kæmi þar á móti ef svo færi að staðan yrði mjög svört.
Fjallað var um mögulegar skráningar í Kauphöll á næstunni og efnahagsútlitið almennt. Arnbjörn hefur áhyggjur af fjölgun neikvæðra frétta af efnahagslífinu og aukningu atvinnuleysis.Rætt var um andbyr gegn sjálfbærum fjárfestingum og ólíka nálgun evrópskra og bandarískra stofnanafjárfesta í þeim málum. Iðunn sagði frá því að næststærsti lífeyrissjóðurinn í Hollandi hafi verið að fara úr stýringu hjá Blackrock eftir áratuga samstarf á dögunum og þá vegna stefnubreytingar sjóðastýringarfyrirtækisins í sjálfbærnimálum.
Þá var rætt um fjárfestingar Íslendinga í landeldi og hvort þær væru mögulega offjárfesting, líkt og talað er um að eigi sér stað í gervigreindarfyrirtækjum. Alexander taldi svo ekki vera. Ljóst væri að auðvelt yrði að selja afurðir landeldisins en óvissan lægi í uppbyggingunni sjálfri og hvernig ræktunin muni ganga.
Tenglar á nokkra hluti sem minnst var á í þættinum
Viðtal CNBC við Marc Rowan, forstjóra Apollo um minni þörf á því að fyrirtæki séu skráð á markað: https://www.cnbc.com/video/2025/09/02/inside-alts-apollo-ceo-marc-rowan.html
Frétt um mögulega skráningu Space X á næsta ári: https://www.bloomberg.com/news/articles/2025-12-13/spacex-sets-insider-share-deal-at-about-800-billion-valuation?srnd=homepage-europe
Viðtal Alexanders við Heiðar Guðjónsson: https://open.spotify.com/episode/3TSRJxgmmb3aDniFEIMDDf?si=64b468b6ae21464d
————
Við erum líka á https://raedumthad.substack.com
Ræðum það… er spjallþáttur þar sem rætt er um efnahagsmál, viðskipti, stjórnun og samskipti.
Þátturinn er í boði Góðra samskipta* og hefur komið út reglulega frá árinu 2020. Stjórnandi er Andrés Jónsson
(*)Efnistök hlaðvarpsins eru óháð verkefnum Góðra samskipta á hverjum tíma. Við val á umræðuefnum og gestum þáttarins forðumst við alla hagsmunaárekstra.
Sun, 28 Dec 2025 - 38min - 8 - #507 Ekki ákjósanleg staða að sömu aðilar eigi alla íslensku einkabankanna
Ekki ákjósanleg staða að sömu aðilar eigi alla íslensku einkabankanna
Í sjöunda þætti af fimmtu seríu Ræðum það… er rætt um eignarhald íslensku einkabankanna. Gylfi Magnússon, hagfræðingur og prófessor við viðskiptadeild HÍ, fer yfir þá staðreynd að þrír stærstu lífeyrissjóðirnir eigi alla einkabankanna þrjá, Arion banka, Íslandsbanka og Kviku banka. Það sé ekki ákjósanlegt þar sem það geti hamlað hvata þeirra til að keppa innbyrðis.
Sama eignarmynstur er í flestum skráðra félaga á Íslandi en mörgum þeirra er samt í raun stýrt af hópi einkafjárfesta sem eiga á bilinu 10-20%. Rætt er um að það geti einnig verið jákvætt og geti vegið upp á móti áhrifum af sameiginlegu eignarhaldi stofnanafjárfestanna.
Gylfi er ekki sannfærður um að samruni Kviku og Arion banka verði leyfður, líklegra sé að samruni SKAGA og einhvers banka, svo sem Íslandsbanka, fengi gott veður hjá Samkeppniseftirlitinu. Hann telur jafnframt ekki að ný ríkisstjórn sé líkleg til að gera neinar áherslurbreytingar á regluverki samkeppniseftirlits eða fjármálamarkaðarins heldur haldi samfellu frá síðustu ríkisstjórn.Litlar líkur séu á að Landsbankinn verði seldur í tíð núverandi ríkisstjórnar en það geti orðið eftir einhverjar kosningar með ólíku ríkisstjórnarmynstri. Þá var því velt upp hvort Bjarni Ármannsson, fyrrverandi bankastjóri Íslandsbanka hyggist verða leiðandi hluthafi í bankanum eftir mögulega sameiningu Íslandsbanka og SKAGA.
Að lokum er rætt um óvænt og hörð viðbrögð Ríkisendurskoðanda við gagnrýni Endurskoðunarráðs á að starfsfólk embættisins sé að kvitta upp á reikninga ríkisfyrirtækja án löggildingar.
1) Grein um sameiginlegt eignarhald fyrirtækja í Kauphöll Íslands: https://opinvisindi.is/items/598a1221-c3e6-418c-9042-75ae2113077e
————
Ræðum það… er atvinnulífsspjallþáttur þar sem rætt er um efnahagsmál, viðskipti, stjórnun og samskipti frá ýmsum hliðum.
Þátturinn er í boði Góðra samskipta* og hefur komið út reglulega frá árinu 2020. Stjórnandi er Andrés Jónsson
(*)Efnistök hlaðvarpsins eru óháð verkefnum Góðra samskipta á hverjum tíma. Við val á umræðuefnum og gestum þáttarins forðumst við alla hagsmunaárekstra. Komi fyrir að um bein hagsmunatengsl sé að ræða við gesti þá er það ávallt upplýst í upphafi þáttar.
Thu, 18 Sep 2025 - 29min - 7 - #506 Sterkur en ekki harður, ríkur en vill ekki að lífið sé of létt
Sterkur en ekki harður, ríkur en vill ekki að lífið sé of létt
Reynir Grétarsson, stofnandi Creditinfo og höfundur sjálfsævisögunnar Fjórar árstíðir, er gestur sjötta þáttar í fimmtu seríu Ræðum það...
Rætt er um karlmennsku, syndir feðranna, viðhorf kynslóðanna, gildi peninga og hvaða áhrif það hafi að segja fólki hvernig manni raunverulega gengur, bæði á orðsporið, eigin líðan og mögulega líðan annarra sem tengja. Bókin rokselst um þessar mundir og margir sem senda Reyni skilaboð um að þau sjái sig sjálf í frásögn hans.
Atli Stefán Yngvason, markaðs- og framtíðarstjóri Mílu, er gestastjórnandi í þessum þætti af Ræðum það...
————
Ræðum það er í boði Góðra samskipta
Stjórnandi: Andrés Jónsson
Stef: Ræðum það - Dire & Nolem
Fri, 12 Sep 2025 - 48min - 6 - #505 Fundur, fiskeldi og fargufur
Fundur, fiskeldi og fargufur
Gauti Geirsson, framkvæmdastjóri fiskeldisfyrirtækisins Háafells og Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, eru gestir fimmta þáttar fimmtu seríu af Ræðum það… spjallþáttar um atvinnulífið þar sem við fjöllum um efnahagsmál, viðskipti, stjórnun og samskipti frá ýmsum hliðum.
Farið er yfir væntanlega atvinnustefnu stjórnvalda sem kynnt var á fjölmennum fundi í morgun, orkuöflun, sjávarútveginn og fiskeldi ásamt því sem fargufur, ísfirsk lífsgæði, náttúra Hornstranda og norsk stjórnmál koma við sögu.
————
Ræðum það er í boði Góðra samskipta
Stjórnandi: Andrés Jónsson
Stef: Ræðum það - Dire & Nolem
Thu, 04 Sep 2025 - 42min - 5 - #504 Staðan í gervigreind
Staðan í gervigreind
Stefán Baxter, stofnandi Snjallgagna, Gunnar Hólmsteinn, stofnandi Quest Portal og Berglind Einarsdóttir lögfræðingur og stofnandi Bentt gervigreindarráðgjafar eru gestir fjórða þáttar fimmtu seríu af Ræðum það… hlaðvarps um viðskipti, efnahagsmál, stjórnun og samskipti.
Farið er yfir víðan völl um stöðu gervigreindar, samfélagsleg áhrif hennar, áhrif á rekstur fyrirtækja og á daglegt líf okkar allra.
————
Ræðum það er í boði Góðra samskipta
Stjórnandi: Andrés Jónsson
Stef: Ræðum það - Dire & Nolem
Fri, 22 Aug 2025 - 58min - 3 - #503 - Afhverju fara ekki fleiri íslensk fyrirtæki í útrás til Skandinavíu?
Afhverju fara ekki fleiri íslensk fyrirtæki í útrás til Skandinavíu?
Andri Árnason, framkvæmdastjóri Takk og einn eigenda Tefélagsins og Einar Örn Einarsson, eigandi Zocalo og Wok to Walk og stjórnarmaður Haga, eru gestir þriðja þáttar fimmtu seríu af Ræðum það… hlaðvarps um viðskipti, efnahagsmál, stjórnun og samskipti.
Báðir gestirnir hafa fært út kvíarnar til hinna Norðurlandanna og velta því upp með okkur hvers vegna íslensk fyrirtæki eru óvön því að fara þessa leið.
————
Ræðum það er í boði Góðra samskipta
Stjórnandi: Andrés Jónsson
Stef: Ræðum það - Dire & Nolem
Fri, 15 Aug 2025 - 50min - 2 - #502 - Viðskiptafréttir sumarsins
Viðskiptafréttir sumarsins
Þorsteinn Friðrik Halldórsson, viðskiptablaðamaður og ritstjóri Hluthafans, er gestur annars þáttar fimmtu seríu af Ræðum það… hlaðvarps um viðskipti, efnahagsmál, stjórnun og samskipti.
Rætt er um Aldin Dynamics, Quest Portal, Dranga, Skel, Sýn, Nova, Farice, gagnaverin, orkumál, Jökulsárlón ferðaþjónustufyrirtækið, Adalvo, Alvotech, Róbert Wessman og Björgólf Thor Björgólfsson.
————
Ræðum það er í boði Góðra samskipta
Stjórnandi: Andrés Jónsson
Stef: Ræðum það - Dire & Nolem
Thu, 14 Aug 2025 - 43min - 1 - #501 Ferðaþjónustan í skotlínu?
Í nýrri seríu af Ræðum það... fáum við fjölbreytta gesti úr atvinnulífinu.
Fyrstu gestirnir eru Steingrímur Birgisson, forstjóri Hölds sem rekur Bílaleigu Akureyrar/Europcar en sem á einnig hluti í ýmsum öðrum fyrirtækjum og Gylfi Ólafsson sem er að horfa til vaxtar í komu skemmtiferðaskipa til Vestfjarða, bæði sem pólitíkus en líka sem fyrirtækisstofnandi sem reynir nú í annað sinn að safna fé frá fjárfestum.
Rætt var um fjárfestingar bílaleiga sem er einn stærsti bransinn í ferðaþjónustugeiranum, skattlagningu og ívilnanir og áform stjórnvalda að hamla of miklum vexti greinarinnar. Einnig var rætt um sveiflur í greininni og hvort þær fæli fjárfesta mögulega frá henni.
Þáttastjórnandi er Andrés Jónsson.
Wed, 06 Aug 2025 - 37min
Podcasts similar to Ræðum það...
Barangay Love Stories Barangay LS 97.1 Manila | GMA Network Inc.
Good Bad Billionaire BBC World Service
Cyprian Majcher Cyprian Majcher
Die Nachrichten Deutschlandfunk
Orlofið Hafdís Arna Sigurðardóttir og Jasmín Guðrún Abu Libdeh
Podcast Wojenne Historie Historia II wojny światowej
Forensic Files HLN
Nowenna pompejańska. Świadectwa https://pompejanska.krolowa.pl/
الشيخ أحمد العجمي islami
True Crime Documentary Justin Kandell Network
WojewódzkiKędzierski Kuba Wojewódzki, Piotr Kędzierski
Læknavarpið Læknablaðið
بودكاست عقلية Moneim
Snapped: Women Who Murder Oxygen
DUDEK o polityce prof. Antoni Dudek i Super Exspress
Przemek Górczyk Podcast Przemek Górczyk
Sceny zbrodni RMF FM
Frjálsar hendur RÚV
Í ljósi sögunnar RÚV
Skuggavaldið skuggavaldid
Money News Tapt Media
Nauka To Lubię Tomasz Rożek
Żurnalista - Rozmowy bez kompromisów zurnalistapl
العلم والإيمان - د. مصطفى محمود علم ينتفع يه
Other Business Podcasts
Chess After Dark Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson
FjárMál með Írisi Líf Íris Líf
Spurt og svarað Björn Berg
The Diary Of A CEO with Steven Bartlett DOAC
Podcast með Sölva Tryggva Sölvi Tryggvason
hún hlaðvarp Erna Hrund Hermannsdóttir
On Purpose with Jay Shetty Perfect Strangers
Fjármálakastið Fjármálakastið
OTs Gone Rogue Melissa LaPointe
BigDeal Codie Sanchez
Lemonade Stand Vox Media Podcast Network
