Podcasts by Category

Heimildin - Hlaðvörp

Heimildin - Hlaðvörp

Heimildin

Hlaðvarp Heimildarinnar

277 - Eitt og annað: Eldsvoði aldarinnar
0:00 / 0:00
1x
  • 277 - Eitt og annað: Eldsvoði aldarinnar

    Talið er að endurbygging Børsen, einnar þekktustu byggingar Kaupmannahafnar, geti tekið 10 ár og kostnaðurinn verði að minnsta kosti einn milljarður danskra króna. Eigandinn, Danska viðskiptaráðið, hefur lýst yfir að húsið verði endurbyggt, en spurningin er hvort nýbyggingin eigi að vera nákvæm endurgerð hins upprunalega og hvort það sé framkvæmanlegt.

    Sun, 28 Apr 2024
  • 276 - Þjóðhættir #47: Slysafrásagnir, skilningarvitin og lykt

    Í þættinum ræða Dagrún og Sigurlaug við Vilborgu Bjarkadóttur þjóðfræðing. Vilborg hafði lokið myndlistarnámi þegar hún kom inn í þjóðræðina og hefur sá bakgrunnur mótað hana sem rannsakanda, en strax í listnáminu fékk hún áhuga á sögnum og þá sérstaklega veikindasögum.

    Tue, 23 Apr 2024
  • 275 - Á vettvangi #1: Leigubílstjórinn handtekinn

    „Halló. Þú þarft að koma með okkur,“ segir lögreglan við mann sem verður færður á lögreglustöð vegna gruns um kynferðisbrot. Áður hafði leigubílsstjóri verið handtekinn vegna sama máls. Báðir mennirnir eru komnir í farbann. Á vettvangi er ný hlaðvarpssería þar sem Jóhannes Kr. Kristjánsson fylgist með störfum kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hér er fyrsti þáttur.

    Mon, 22 Apr 2024
  • 274 - Eitt og annað: OK til bjargar Coop

    Danska verslanasamsteypan Coop hefur um langa hríð glímt við rekstrarerfiðleika. Margs konar hagræðingar hafa ekki dugað til að koma rekstrinum í viðunandi horf. Nú hefur orkufyrirtækið OK ákveðið að koma Coop til bjargar og leggur til verulegt fjármagn.

    Sun, 21 Apr 2024
  • 273 - Pressa #20: Barist í bökkum velferðarsamfélags

    Í 20. þætti af Pressu verður fjallað um versnandi fjárhagsstöðu fjölda heimila á Íslandi og hvað sé til ráða. Ýmsar kannanir hafa að undanförnu sýnt að byrðar fjölda fólks hafa þyngst. Þannig eiga fjögur af hverjum tíu sem eru á vinnumarkaði erfitt með að ná endum saman og tveir af hverjum tíu öryrkjum búa við verulegan efnislegan skort eða sárafátækt.

    Fri, 19 Apr 2024
Show More Episodes