Nach Genre filtern

Auðnast

Auðnast

Ghost Network®

Auðnast er hlaðvarp um heilsu, samskipti og menningu í vinnu og lífi. Við ræðum það sem raunverulega mótar líðan fólks: tengsl, mörk, vald, ábyrgð, streitu, samskipti, tilfinningar og sálfræðilegt öryggi – bæði á vinnustað og í einkalífi. Í hverjum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna, málefni sem spretta beint úr þeirra daglegu störfum í vinnuvernd, meðferð og ráðgjöf. Samtölin byggja á faglegri þekkingu, klínískri reynslu og rannsóknum – en líka á raunverulegum aðstæðum sem fólk þekkir úr eigin lífi. Auðnast er fyrir þau sem vilja: - skilja eigin líðan og samskipti betur - takast á við krefjandi aðstæður af ábyrgð - byggja heilbrigðari vinnustaði og tengsl - sinna sjálfsvinnu með uppbyggilegum hætti Ragnhildur er klínískur sálfræðingur, fjölskyldufræðingur og sérfræðingur í vinnuvernd. Hrefna Hugosdóttir er hjúkrunar- og fjölskyldufræðingur, sérfræðingur í vinnuvernd og sáttamiðlari. Saman stofnuðu þær Auðnast árið 2014 með það að markmiði að efla heilsu, öryggi og velsæld fólks – með áherslu á sálfélagslegt öryggi, sjálfbærni og heilbrigð samskipti.

35 - Uppsagnir og sálfélagsleg skuld á vinnustöðum
0:00 / 0:00
1x
  • 35 - Uppsagnir og sálfélagsleg skuld á vinnustöðum

    Í þessum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna hvað gerist þegar fólki fækkar á vinnustað en verkefnin, ábyrgðin og væntingarnar standa eftir. Þær kynna til leiks hugtakið sálfélagsleg skuld og fara yfir algengar mýtur um uppsagnir. Að lokum fara þær yfir spurningar sem vinnustaðir þurfa að geta svarað þegar uppsagnir hafa átt sér stað.

    Mon, 02 Nov 2026 - 38min
  • 34 - þegar gervigreindin mætir í vinnuna, hvað verður um okkur?

    Ragnhildur og Hrefna ræða hvað gerist innra með fólki þegar gervigreind kemur inn á vinnustaðinn. Sama breyting getur vakið létti og forvitni hjá einum en óöryggi og ótta hjá öðrum. Þær skoða einnig hvernig óvissa um framtíð starfsins getur haft áhrif á faglega sjálfsmynd, hvers vegna fólk þarf að upplifa að það hafi áfram rödd og áhrif og hvað gerist þegar gervigreind verður ráðgjafi sem er alltaf sammála okkur. Áherslan er á sálfélagslegt öryggi, mannleg samskipti og hlutverk stjórnenda í breytingum sem enginn sér alveg fyrir endann á.

    Fri, 02 Oct 2026 - 40min
  • 33 - Erfið samskipti og áhrif þeirra

    Erfið samskipti eru ekki bara óþægileg heldur líka orkufrek. Við skoðum ólíkar útgáfur af erfiðum samskiptum og hvernig þau hafa áhrif á líkamlega og andlega heilsu. Við rýnum í rannsóknir og kynnum gagnleg ráð þegar samskipti reyna á.

    Tue, 15 Sep 2026 - 33min
  • 32 - Fjarvistir á vinnustað

    Fjarvistir eru ekki bara kostnaður. Þær eru skilaboð.Í þessum þætti skoðum við hvað fjarvistir og óheilbrigð viðvera geta sagt okkur um menningu, stjórnun og sálfélagslegt öryggi á vinnustaðnum. Við veltum því einnig fyrir okkur hvers vegna stærsta vandamálið er stundum ekki hverjir eru frá vinnu, heldur hverjir mæta og líður ekki vel.

    Mon, 15 Jun 2026 - 48min
  • 31 - Þegar eitthvað vantar upp á - Um tómleika í nánum samböndum

    Þátturinn fjallar um þá tilfinningu sem mörg pör kannast við en fá tala opinskátt um: Að vera í sambandi þar sem allt virðist í lagi á yfirborðinu en samt ríkir fjarlægð og einmanaleiki.

    Við skoðum hvað gerist þegar nándin dofnar hægt og rólega, hvers vegna pör detta úr takti og hvernig daglegt álag, samskiptamynstur og óuppfylltar þarfir geta skapað fjarlægð. Við ræðum hvað rannsóknir segja um tengsl og öryggi í samböndum og hvað hjálpar pörum að finna taktinn á ný.

    Þátturinn er fyrir öll sem hafa einhvern tímann spurt sig: "Verður þetta bara svona?" og fyrir þau sem eru í vangaveltu um hvort þau séu að ganga í gegnum tímabundna fjarlægð í sambandinu eða hvort þau séu jafnvel komið á endastöð.

    Wed, 13 May 2026 - 54min
Weitere Folgen anzeigen