Podcasts by Category
- 64 - Kidda Svarfdal – Heppin að vera á lífi eftir heilablæðingu sem læknar héldu að væri vöðvabólga
Kidda Svarfdal fékk allt í einu svakalegan hausverk árið 2021 og var send þrisvar sinnum heim af læknavaktinni og bráðamóttöku með sterkjar verkjatöflur. Henni var sagt að þetta væri bara slæm vöðvabólga en þegar hún rankaði við sér meðvitundarlaus í blóðpolli heima hjá sér var hún loksins send í myndatöku. Það kom í ljós að hún væri með heilablæðingu og sama dag fór hún í fyrstu aðgerðina af þremur.Kidda ræðir um þetta tímabil, bataferlið og lífið í nýjasta þætti af Fókus. Hún ræðir einnig um æskuna á Djúpavík, einum afskekktasta stað landsins, þar sem hún þurfti að fara með báti eða vélsleða í skólann.Kidda byrjaði að drekka á unglingsárum og vissi strax að drykkjan passaði ekki við hana. Með árunum versnaði það og var hvert djamm ævintýri, eða martröð, þar sem hún vissi aldrei hvar hún myndi enda. Eftir að hafa orðið fyrir hræðilegri líkamsárás sneri Kidda við blaðinu og hefur nú verið edrú í fjórtán ár.
Fri, 10 May 2024 - 1h 01min - 63 - Ólafur Laufdal og Dagur Gunnars – Húðflúrsheimurinn
Ólafur Laufdal og Dagur Gunnarsson eru báðir húðflúrarar en upphaf þeirra í bransanum er gjörólíkt. Á meðan Dagur byrjaði sem lærlingur á stofu, byrjaði Ólafur í bílskúr hjá foreldrum sínum með vél sem hann keypti erlendis.
Þessi þættur er fyrir alla en sérstaklega fyrir fólk sem hefur áhuga á tattúum. Við förum yfir rauð flögg í fari viðskiptavina og húðflúrara. Hvað skal varast, hvaða tattú er vinsæl í dag og rifjum upp stóra málið í fyrra þegar upp komst um tattúartista sem hafði verið að áreita viðskiptavin.
Thu, 02 May 2024 - 39min - 62 - Aníta Ósk - Þurfti að læra lífið upp á nýtt eftir maníu
Aníta Ósk Georgsdóttir er móðir, dóttir, vinkona, eiginkona og svo margt annað. Hún er hárgreiðslumeistari að mennt og starfaði sem leiðbeinandi í grunnskóla áður en hún fór í veikindaleyfi. Í haust fer hún í starfsendurhæfingu hjá Virk og lítur hún björtum augum fram á veginn.
Aníta er hægt og rólega að læra að lifa upp á nýtt eftir að hafa verið greind með geðhvörf. Hún fékk greininguna eftir að hafa farið í fyrsta sinn í maníu í október 2022. Hún var þá stödd á Ítalíu með samstarfsfélögum sínum og endaði örmagna á sjúkrahúsi.
Í þættinum fer hún yfir sögu sína. Hún var greind með þunglyndi og kvíða fjórtán ára og lagðist fyrst inn á geðdeild þegar hún var ólétt af eldri dóttur sinni. Hún lýsir aðdragandanum að maníunni og hvernig hún var að trekkjast upp marga daga fyrir. Þó það hafi verið erfitt að ganga í gegnum þetta segist Aníta vera sterkari fyrir vikið og við greininguna hafi hún fundið meiri frið. Hún skilur sjálfa sig betur og líðanin er betri eftir að hafa loksins verið sett á rétt lyf.
Aníta var tvístíga að koma í viðtalið en ákvað að kýla á það til að sýna fólki að það er ekki dauðadómur að greinast með geðhvörf og að fólk með geðsjúkdóma lítur alls konar út. Hún segir að ef saga hennar geti hjálpað bara einni manneskju þá sé hennar markmiði náð.
Fri, 26 Apr 2024 - 1h 20min - 61 - Katrín Myrra
Söngkonan, laga- og textahöfundurinn Katrín Myrra Þrastardóttir er gestur vikunnar í Fókus. Hún fékk fyrsta ofsakvíðakastið sitt árið 2021, en fyrir það hafði hún aldrei glímt við kvíða eða einhvers konar andleg veikindi. Hún var á þeim tíma búin með jógakennaranámið, stundaði núvitund og hafði ferðast ein til fjölda landa. Það var því mikið áfall að vera greind með ofsakvíðaröskun (felmtursröskun) og þurfa að læra að lifa með því.
Katrín Myrra fer einnig yfir ferilinn, að þora að láta slag standa, konur í tónlistarbransanum og segir frá því hvernig líf hennar breyttist eftir að hún fór ein í ferðalag til Taílands, Balí og Víetnam.
Thu, 18 Apr 2024 - 29min - 60 - Samfélagsmiðlastjarnan Embla Wigum
Embla Wigum er ein stærsta samfélagsmiðlastjarna Íslands með rúmlega 2,7 milljónir fylgjenda á TikTok og Instagram. Hún er algjör snillingur með förðunarburstann og hafa myndbönd hennar slegið í gegn, mörg hafa fengið milljónir áhorfa, sum hver tugi milljóna.
Embla ræðir um áhrifavaldabransann í London, þar sem hún er búsett, upphafið á ferlinum, hvernig venjulegur vinnudagur lýsir sér, ráð fyrir aðra sem vilja fylgja í hennar fótspor og svo margt meira.
Thu, 11 Apr 2024 - 33min - 59 - Alrún Ösp - BDSMFri, 05 Apr 2024 - 42min
- 58 - Draugasögur - Katrín og Stefán John
Það mætti segja að hjónin Katrín Bjarkardóttir og Stefán John Stefánsson séu sértækir fagmenn í draugagangi. Þau halda úti vinsæla hlaðvarpinu Draugasögur og ferðast með hlustendur um myrkustu horn heimsins. Þau eru gestir vikunnar í Fókus og ræða um það sem er fyrir handan, hvernig draugagangur lýsir sér, hvernig er hægt að losna við drauga, þeirra fyrsta reynsla að sjá eitthvað að handan og margt fleira. Þau fara einnig yfir reimda staði á Íslandi og eftirminnilegustu upplifanir þeirra, eins og þegar þau náðu röddum á upptöku í Hvítársnesskála eða þegar Stefán vaknaði við að sjá huggulegan prest standa yfir sér, sá maður dó fyrir mörgum árum. Allt þetta og svo margt fleira í Fókus.
Thu, 28 Mar 2024 - 36min - 57 - Arna Vilhjálms - Stóð með sjálfri sér og fór í efnaskiptaaðgerð
Arna Vilhjálms sigraði Biggest Loser árið 2017. Hún fer yfir vegferð sína bæði fyrir og eftir keppnina, leitina að sjálfsást og hvernig tilfinningin var að komast loks á leiðarenda. Arna fer einnig yfir ákvörðun hennar að gangast undir efnaskiptaaðgerð, magaermi, allt ferlið og hvernig henni líður í dag. Arna ætlaði aldrei að verða þrítug, hún bjóst við að lífið yrði búið fyrir þann áfanga. Í dag er hún 33 ára, hamingjusöm í eigin skinni og spennt fyrir framtíðinni. Allt þetta og svo margt meira í Fókus.
Thu, 21 Mar 2024 - 55min - 56 - Jóna Margrét - Afleiðingar taugaáfalls sem hún fékk sem barn
Jóna Margrét skaust fram á stjörnusviðið í vetur þegar hún lenti í öðru sæti í Idolinu. Hressi persónuleiki hennar var smitandi í gegnum skjáinn en á bak við brosið hefur Jóna gengið í gegnum margt. Þegar hún var í kringum átta ára gömul fékk hún taugaáfall sem sneri veröld hennar á hvolf. Hún varð hrædd við allt og alla, fór ekki í bíl í sjö mánuði og þorði varla út fyrir hússins dyr. Það tók hana mörg ár að vinna úr áfallinu og þakkar hún fjölskyldu sinni fyrir að hafa komist í gegnum þetta. Í dag er hún á betri stað en viðurkennir að hún sé ekki hundrað prósent hún sjálf ennþá, hún á erfitt með að tjá tilfinningar en þar kemur tónlistin sterk inn. Hún finnur mikla svörun í tónlist og er það hennar sálfræðitími.
Thu, 14 Mar 2024 - 32min - 55 - Móna Lind - Lífið með endómetríósu og heimafæðingarsaga
Daginn sem Móna Lind byrjaði á blæðingum vissi hún að eitthvað væri að. Nú tæpum tveimur áratugum síðar hefur hún gengist undir þrjár aðgerðir vegna endómetríósu og er öryrki vegna sjúkdómsins. Hún á tvær dætur og mætti segja að fæðing þeirra yngri sé lyginni líkast. Móna Lind segir frá mögnuðu heimafæðingunni og mörgu öðru í Fókus.
Thu, 07 Mar 2024 - 58min - 54 - Hafdís og Kleini – Síðustu sex mánuðir
Athafna- og áhrifavaldaparið Hafdís Björg Kristjánsdóttir og Kristján Einar Sigurbjörnsson, kallaður Kleini, eru gestir vikunnar í Fókus, spjallþætti DV.
Parið hefur haldið sig til hlés frá sviðsljósinu undanfarna mánuði, sérstaklega Kleini sem hefur verið í pásu frá samfélagsmiðlum síðan í lok júlí í fyrra. Þau opna sig um síðastliðið hálft ár, hvað þau hafa verið að braska og bralla, hvað sé fram undan og margt fleira.
Thu, 29 Feb 2024 - 33min - 53 - Unnur Óla
Gullsmiðurinn, einkaþjálfarinn og fitnesskeppandinn Unnur Kristín Óladóttir er gestur vikunnar.
Hún snýr til baka á keppnissviðið í maí eftir fimm ára pásu. Undanfarna mánuði hefur hún unnir hörðum höndum að byggja sig upp, bæði líkamlega og andlega, eftir mjög erfitt tímabil. Hún missti matarlyst, átti erfitt með að finna gleðina og brosa, hún hafði fjarlægst fólkið sitt og fann að hún var búin að ná botninum. Þá var bara eitt í stöðunni: Standa á fætur og rífa sig upp.
Unnur spurði sjálfa sig: Hver er ég? Við tók mikil vinna, bæði líkamleg og andleg, sem hefur skilað henni ótrúlegum árangri.
Hún ræðir þetta og margt annað í þættinum.
Fri, 23 Feb 2024 - 31min - 52 - Nína Richter
Fjölmiðlakonan og laganeminn Nína Richter var afburðanemandi í grunnskóla og ætlaði sér að verða lögfræðingur. En að vera í námi og borga leigu á sama tíma reyndist of erfitt og hún hætti í framhaldsskóla. Eftir að systir hennar lést úr krabbameini var hún týnd og fann enga fótfestu í lífinu í nokkur ár. Hún flutti um tíma til Spánar, kom síðan heim og byrjaði í kokkanámi, kláraði handritagerð og leikstjórann við Kvikmyndaskólann og var loksins byrjuð að finna sig. Metnaðinn hefur Nínu aldrei skort, stundum með aðeins of mikinn metnað en hún hefur alltaf fundist hún þurfa að sanna sig. Sjálfsmyndin sködduð eftir einelti í æsku en krakkar útsettu hana því hún fæddist með skarð í vör.
Árið 2019 var Nína komin á endastöð, búin að keyra sig í kaf í vinnu og var komin með lífshættulega blóðeitrun. Þá fékk hún vakningu að eitthvað þyrfti hún að gera öðruvísi. Spólum nokkur ár fram í tímann og nú er Nína í lögfræði við HR og náði svo góðum árangri síðustu önn að hún komst á forsetalistann.
Nína ræðir allt þetta og svo margt meira í nýjasta þætti af Fókus.
Umsjón hefur Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fri, 16 Feb 2024 - 1h 02min - 51 - Rakel Hlyns - Viljinn til að lifa sterkari en uppgjöfin
Styrktarþjálfarinn Rakel Hlynsdóttir lenti á vegg árið 2018. Hún var með mikið þunglyndi og kvíða en engum hefði dottið það í hug. Hún faldi sjúkdóminn vel og barðist við hann í hljóði. Það kom síðan tímapunktur þar sem hún varð að leita sér hjálpar því lífsviljinn var að hverfa en innst inni vissi hún að hana langaði að lifa. Rakel hefur alla tíð verið með mikið keppnisskap sem hefur meðal annars skilað henni góðum árangri í handbolta og ólympískum lyftingum. Þarna fann hún fyrir keppnisskapinu taka yfir, nú var keppnin að lifa og hún var ákveðin að sigra.
Rakel lauk endurhæfingu fyrir nokkrum mánuðum og lítur björtum augum fram á veginn. Hún ræðir um allt þetta og svo margt fleira í þættinum.
Thu, 08 Feb 2024 - 39min - 50 - Alda CocoFri, 02 Feb 2024 - 29min
- 49 - Helgi Ómars - Að rísa upp úr öskunni eftir ofbeldissamband
Ljósmyndarinn, hlaðvarpsstjórnandinn og áhrifavaldurinn Helgi Ómarsson var í ofbeldissambandi í átta ár. Það tók hann langan tíma að átta sig á því sem væri að gerast fyrir hann, en ofbeldið var andlegt og vissi hann ekki hvað gaslýsing og narsisissti var á þeim tíma. Með mikilli sjálfsvinnu er hann kominn á þann stað sem hann er í dag og berst fyrir vitundavakningu um andlegt ofbeldi.
Thu, 25 Jan 2024 - 42min - 48 - Ragga Holm
Ragga Holm ólst upp á ástríku heimili en þekkti aldrei blóðmóður sína. Þegar Ragga var 23-24 ára fékk hún vinabeiðni frá henni, en ákvað að samþykkja hana ekki. Nokkrum vikum síðar dó blóðmóðir hennar og var í fyrstu talið að hún hafi verið myrt. Það kom síðar í ljós að þetta hafi verið slys. Málið vakti mikla athygli og segir Ragga það hafa verið áfall að vera í búð og sjá mynd af móður sinni á forsíðu dagblaða.
Nokkrum árum síðar ákvað Ragga að fara í áfengismeðferð en það var hrottaleg líkamsárás sem hún segir hafa markað ákveðinn vendipunkt í hennar lífi. Það var annað hvort að fara upp eða niður og hún hafi ákveðið upp.
Thu, 18 Jan 2024 - 31min - 47 - Hera Gísladóttir - Hvernig stjörnuspeki getur haft áhrif á líf þitt
Heilsumarkþjálfinn og stjörnuspekingurinn Hera Gísladóttir fer um víðan völl. Hún skaust fram á sjónarsviðið fyrir áratug þegar hún og athafnamaðurinn Ásgeir Kolbeins byrjuðu saman. Hera er sterkur karakter með bein í nefinu og lét ekki slúðursögurnar hafa áhrif á sig, sérstaklega ekki orðróminn um að hún hafi látið fjarlægja rifbein til að grennast.
Nú eru tíu ár liðin, þau eiga saman son og hafa staðið saman í fyrirtækjarekstri um árabil en hún segir lykilinn vera samskipti og deilir nokkrum góðum sambandsráðum.
Fyrir nokkrum árum fékk hún mikinn áhuga á stjörnuspeki, fyndið að segja frá því að þetta byrjaði allt þegar hún dró Ásgeir með sér í ræktina og reyndi að kenna honum ævintýralegar æfingar. Nú er hún með Orkugreiningu, ásamt unnustanum og stjörnuspekingnum Gunnlaugi Guðmundssyni. Hún segir það ótrúlegt hvað það geti hjálpað fólki mikið að fá stjörnukort sitt - eða orkugreiningakort - og það geti verið tól í að betrumbæta líðan og hámarka árangur. Allt þetta og svo margt meira í nýjasta þætti af Fókus.
Thu, 11 Jan 2024 - 37min - 46 - Áramótaþáttur - Ellý Ármanns spáir í spilin
Spákonan Ellý Ármannsdóttir gerir upp árið, hvaða lexíur hún lærði og hvað hún ætlar að taka með í næsta ár. Hún mætti með tarot-spilin og spáði fyrir nokkrum þekktum einstaklingum og stórum atburðum. Hún sagði meðal annars að það myndi gjósa, sem það gerði örfáum dögum síðar. Þátturinn var tekinn upp um miðjan desember. Ellý spáði einnig fyrir ríkisstjórninni og örlögum hennar...
Fri, 29 Dec 2023 - 29min - 45 - Vigdís HowserThu, 21 Dec 2023 - 35min
- 44 - Bolli Már Bjarnason - Lét gamlan draum rætast
Bolli Már Bjarnason hafði lengi dreymt um að reyna fyrir sér í uppistandinu. Stuttu áður en hann varð 31 árs hugsaði hann: Ef ekki núna, hvenær? Hann auglýsti fyrsta uppistandið í vor og það hefur gengið vonum framar. Hann opnar sig um ferðalagið, föðurhlutverkið, hvernig það hafi verið að alast upp sem sonur tveggja presta og ýmislegt annað.
Thu, 14 Dec 2023 - 26min - 43 - Dagbjört Rúriks - Edrúmennska og andleg vakning
Söngkonan og lagahöfundurinn Dagbjört Rúriksdóttir drakk fyrst Breezer fyrir busaball í framhaldsskóla, með árunum ágerðist neyslan og endaði hún í harðri kókaínneyslu áður en hún varð edrú í desember 2019. Hún öðlaðist andlega vakningu stuttu síðar og hefur síðan þá unnið hörðum höndum að gera upp fortíðina og gangast við mistökum sínum.
Thu, 07 Dec 2023 - 29min - 42 - Gunnar Ingi - Lífið á biðlistaFri, 24 Nov 2023 - 36min
- 41 - Stefanía Svavars - Lífið, tónlistin og bataferlið frá meðvirkniFri, 01 Dec 2023 - 32min
- 40 - Margrét Edda GnarrFri, 17 Nov 2023 - 48min
- 39 - Dr. Erla Björnsdóttir - Allt um svefnFri, 10 Nov 2023 - 33min
- 38 - Hanna Rún BazevFri, 03 Nov 2023 - 28min
- 37 - Júlí HeiðarFri, 27 Oct 2023 - 35min
- 36 - Tobba MarinósFri, 20 Oct 2023 - 39min
- 35 - Heiðrún Finnsdóttir
Heiðrún Finnsdóttir ákvað að snúa blaðinu eftir að hafa verið send á sundæfingu með eldri borgurum á Grensás. Hún er þjálfari í dag með jákvæðnina að vopni, þrátt fyrir að hafa gengið í gegnum mörg áföll. Hún missti föður sinn og stjúpmóður í bifhjólaslysi á Kjalarnesi og segir erfitt að vita til þess að enginn vilji axla ábyrgð.
Thu, 12 Oct 2023 - 33min - 34 - Betri helmingurinn ÁsiThu, 05 Oct 2023 - 28min
- 33 - Þórhildur Magnúsdóttir - opin samböndFri, 29 Sep 2023 - 31min
- 32 - Gummi KíróSat, 23 Sep 2023 - 29min
- 31 - Saga B - 22.06.2023Fri, 23 Jun 2023 - 34min
- 30 - Melkorka Torfadóttir - 15.06.23
Melkorka Torfadóttir er hársnyrtir, móðir og afrekskona í fitness sem hefur lagt mikla vinnu í að komast á þann stað þar sem hún er í dag. Hún náði að losa sig úr ofbeldissambandi og vann úr þeirri erfiðu reynslu með hjálp Bjarkarhlíðar, Stígamóta og Kvennaathvarfsins og segir sögu sína til að vekja athygli á mikilvægi þess að þolendur fái hjálp eftir að hafa komist undan ofbeldismanni sínum.
Fri, 16 Jun 2023 - 34min - 29 - Kristín Sif Björgvinsdóttir 08.09.2023Fri, 09 Jun 2023 - 29min
- 28 - Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 01.06.23Thu, 01 Jun 2023 - 33min
- 27 - Föstudagsþátturinn Fókus: Ásthildur Björt - 29.11.19Fri, 29 Nov 2019 - 33min
- 26 - Föstudagsþátturinn Fókus - Atli Óskar Fjalarsson - 15.11.19Fri, 15 Nov 2019 - 32min
- 25 - Föstudagsþátturinn Fókus: Valgeir Elís - 01.11.19Fri, 01 Nov 2019 - 30min
- 24 - Föstudagsþátturinn Fókus: Margrét Hrafnsdóttir - 25.10.19Fri, 25 Oct 2019 - 1h 06min
- 23 - Föstudagsþátturinn Fókus: Steindi Jr. - 18.10.19Fri, 18 Oct 2019 - 28min
- 22 - Föstudagsþátturinn Fókus: Helgi Steinar Gunnlaugsson - 11.10.19Fri, 11 Oct 2019 - 39min
- 21 - Föstudagsþátturinn Fókus - Telma Huld Jóhannesdóttir, leikkona - 13.09.19Fri, 13 Sep 2019 - 39min
- 20 - Föstudagsþátturinn Fókus: Óminni á allra vörum - 06.09.19Fri, 06 Sep 2019 - 24min
- 19 - Föstudagsþátturinn Fókus: Patrekur JaimeFri, 23 Aug 2019 - 27min
- 18 - Föstudagsþátturinn Fókus: Magnea Jónsdóttir - 26.07.19Fri, 26 Jul 2019 - 59min
- 17 - Föstudagsþátturinn Fókus: Elli Egilsson - 19.07.19Fri, 19 Jul 2019 - 24min
- 16 - Föstudagsþátturinn Fókus: Anonymous for the Voiceless - 12.07.19Fri, 12 Jul 2019 - 22min
- 15 - Föstudagsþátturinn Fókus: María BirtaFri, 05 Jul 2019 - 44min
- 14 - Föstudagsþátturinn Fókus: @berglindsagab - 28.06.19Fri, 28 Jun 2019 - 19min
- 13 - Föstudagsþátturinn Fókus - Arnar Pétursson - 21.06.19Fri, 21 Jun 2019 - 35min
- 12 - Föstudagsþátturinn Fókus: Fitufordómar og líkamsvirðing - 07.06.79Thu, 06 Jun 2019 - 31min
- 11 - Föstudagsþátturinn Fókus: Vegnaismi þáttur 2 - 31.05.19Thu, 30 May 2019 - 36min
- 10 - Föstudagsþátturinn Fókus: Hanna Rún - 24.05.19Fri, 24 May 2019 - 55min
- 9 - Föstudagsþátturinn Fókus: Snævar Sölvi leikstjóri Eden - 17.05.19Fri, 17 May 2019 - 1h 01min
- 8 - Föstudagsþátturinn Fókus: Veganismi - 10.05.19Fri, 10 May 2019 - 30min
- 7 - Föstudagsþátturinn Fókus: Eurovision - 03.05.19Fri, 03 May 2019 - 51min
- 6 - Föstudagsþátturinn Fókus - Baldvin Z - 250419Thu, 25 Apr 2019 - 37min
- 5 - Föstudagsþátturinn Fókus - Lína Birgitta - 180419Wed, 17 Apr 2019 - 32min
- 4 - Föstudagsþátturinn Fókus: Kristín Þóra Haraldsdóttir leikkonaFri, 12 Apr 2019 - 22min
- 3 - Föstudagsþátturinn Fókus: Sigga Dögg kynlífsfræðingur
Föstudagsþátturinn Fókus er vikulegur þáttur í hljóði og mynd í umsjón dægurmáladeildar DV. Undir hatt dægurmáladeildar DV falla undirsíðurnar Fókus, Bleikt og Matur og því er óhætt að lofa því að efnistök verða fjölbreytt í þættinum.
Föstudagsþátturinn Fókus er frumsýndur í hljóði og mynd alla föstudaga á dv.is.
Hægt er að horfa á þáttinn hér: https://www.dv.is/spilari/fokus-sigga-dogg-05-04-19/
Fri, 05 Apr 2019 - 39min - 2 - Föstudagsþátturinn Fókus: Viktor Andersen og Alda Coco
Umræðuefni Föstudagsþáttarins Fókus, hlaðvarpsþáttar dægurmáladeildar DV, eru fegrunaraðgerðir að þessu sinni. Gestir þáttarins eru þau Viktor Andersen og Alda Guðrún Jónasdóttir, en þau eiga það sameiginlegt að vera ófeimin að ræða um þær fegrunaraðgerðir sem þau hafa gengist undir.
Föstudagsþátturinn Fókus er birtur í hljóði og mynd alla föstudaga á dv.is.
Fri, 29 Mar 2019 - 57min
Podcasts similar to Fókus
- El Partidazo de COPE COPE
- Herrera en COPE COPE
- The Dan Bongino Show Cumulus Podcast Network | Dan Bongino
- David Guetta David Guetta
- The Parkinson's Podcast Davis Phinney Foundation
- La Noche de Dieter esRadio
- MÓWI SIĘ Joanna Kołaczkowska i Szymon Majewski
- WojewódzkiKędzierski Kuba Wojewódzki , Piotr Kędzierski
- NASSAU BEACH CLUB IBIZA with Alex Kentucky Nassau Beach Club Ibiza
- Más de uno OndaCero
- Frjálsar hendur RÚV
- Í ljósi sögunnar RÚV
- El Larguero SER Podcast
- Nadie Sabe Nada SER Podcast
- SER Historia SER Podcast
- Todo Concostrina SER Podcast
- 安住紳一郎の日曜天国 TBS RADIO
- Англійський Експрес Англійський Експрес
- 辛坊治郎 ズーム そこまで言うか! ニッポン放送
- 飯田浩司のOK! Cozy up! Podcast ニッポン放送
- 武田鉄矢・今朝の三枚おろし 文化放送PodcastQR
Other News & Politics Podcasts
- Express Biedrzyckiej - seria gorących, politycznych wywiadów Kamila Biedrzycka
- Raport Super Express
- Poranna rozmowa w RMF FM RMF FM
- Laurent Gerra RTL
- Gość Radia ZET Bogdan Rymanowski
- Global News Podcast BBC World Service
- Flashpoint Ukraine - Voice of America VOA
- Es la Mañana de Federico esRadio
- Układ Otwarty. Igor Janke zaprasza Igor Janke
- 2024 Radio 24
- Radio Wnet Radio Wnet
- Heimildin - Hlaðvörp Heimildin
- Nessun luogo è lontano Radio 24
- Le news di Sky Tg 24 Sky TG 24
- Il Volo del Mattino Radio Deejay
- Les Grosses Têtes RTL
- Dział Zagraniczny Maciej Okraszewski
- E=mc² Observador
- The Unexplained With Howard Hughes Howard Hughes
- La Trinchera de Llamas esRadio