Filtrar por gênero

Grjótkastið

Grjótkastið

Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið. Fréttaskýringar, pistlar og viðtöl um málefni líðandi stundar. Dagbókarbrot.

81 - Alvörutímar — fyrr og nú
0:00 / 0:00
1x
  • 81 - Alvörutímar — fyrr og nú

    Þungavigtarumræða á dýptina um alvörutíma fyrr og nú með Dr. Guðna Th. Jóhannessyni prófessor í sagnfræði og fv forseta og þeim Agnari Tómasi Möller og Þorbirni Atla Sveinssyni. Þjóðarsagan um þorskastríðin og sigrana á Bretum, staða alþjóðamála, er eftirsjá að forsetaembættinu, hversu alvarleg staða er að teiknast upp í efnahagsmálum (hversu svört er staðan). Skylduhlustun fyrir þá sem vilja ekki bara vita hvað er að gerast og hvers vegna, heldur líka allt um það sem framundan er. Og með hæfilegri blöndu af sögulegum fróðleik.

    Thu, 29 Oct 2026 - 2h 08min
  • 80 - Dramatíkin í Viðreisn og næstu skref

    Þrír þungavigtarþingmenn; Bergþór Ólason, Jens Garðar Helgason og Stefán Vagn Stefánsson ræða stöðuna í pólitíkinni; vanda Viðreisnar eftir brotthvarf Jóns Gnarr -- eru frekari tíðindi framundan af flokknum? Hagkerfið hefur snöggkólnað, skattar hækka og gjöld og spurningar vakna um það hve lendingin verður hörð. Hvað er eiginlega framundan og hver verða áhrifin á ríkisstjórnina og stjórnarsamstarfið? Og: Hver er (enn) varaformaður Flokks fólksins?

    Wed, 21 Oct 2026 - 1h 04min
  • 79 - Grjótharðar gegn ríkisvæðingu á öllum sviðum

    Þingkonurnar Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir og Rósa Guðbjartsdóttir og útgefandinn Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir ræða samdráttinn í samfélaginu, hina endalausu útþenslu báknsins, ríkisvæðingu á öllum sviðum, sjálfkeyrandi bíla, erfðafjárskatt, samkeppnisstöðu fjölmiðla og stöðuna í pólitíkinni.

    Wed, 14 Oct 2026 - 55min
  • 78 - Skrítin stemning og skellur framundan

    Bjarnheiður Hallsdóttir og Jón Karl Ólafsson þekkja íslenskt atvinnulíf og ferðaþjónustuna sérstaklega út og inn. Þau hafa áhyggjur af því að framundan sé skellur í atvinnulífinu, furða sig á gengi krónunnar og afstöðu stjórnvalda til ferðaþjónustunnar og skorti á langtímasýn og spá í spilin fyrir næsta ár.

    Wed, 07 Oct 2026 - 57min
  • 77 - Skuggabankastjórnin okt/26

    Skuggabankastjórnin greinir stöðu og horfur fyrir vaxtaákvörðun Seðlabankans í október 2026. Þórður Pálsson er mættur að venju og Konráð S. Guðjónsson situr fundinn að þessu sinni í fjarveru Sigurðar Hannessonar. Að venju er margt að ræða. Staða á vinnumarkaði, gengi krónunnar, umrót á alþjóðamörkuðum, fjárlögin, atvinnuleysið og blessuð verðbólgan, svo eitthvað sé nefnt. Skylduhlustun fyrir þá sem vilja vita hvað er framundan.

    Sun, 04 Oct 2026 - 57min
Mostrar mais episódios