Nach Genre filtern
Grjótkastið

- 81 - Alvörutímar — fyrr og nú
Þungavigtarumræða á dýptina um alvörutíma fyrr og nú með Dr. Guðna Th. Jóhannessyni prófessor í sagnfræði og fv forseta og þeim Agnari Tómasi Möller og Þorbirni Atla Sveinssyni. Þjóðarsagan um þorskastríðin og sigrana á Bretum, staða alþjóðamála, er eftirsjá að forsetaembættinu, hversu alvarleg staða er að teiknast upp í efnahagsmálum (hversu svört er staðan). Skylduhlustun fyrir þá sem vilja ekki bara vita hvað er að gerast og hvers vegna, heldur líka allt um það sem framundan er. Og með hæfilegri blöndu af sögulegum fróðleik.
Thu, 29 Oct 2026 - 2h 08min - 80 - Dramatíkin í Viðreisn og næstu skref
Þrír þungavigtarþingmenn; Bergþór Ólason, Jens Garðar Helgason og Stefán Vagn Stefánsson ræða stöðuna í pólitíkinni; vanda Viðreisnar eftir brotthvarf Jóns Gnarr -- eru frekari tíðindi framundan af flokknum? Hagkerfið hefur snöggkólnað, skattar hækka og gjöld og spurningar vakna um það hve lendingin verður hörð. Hvað er eiginlega framundan og hver verða áhrifin á ríkisstjórnina og stjórnarsamstarfið? Og: Hver er (enn) varaformaður Flokks fólksins?
Wed, 21 Oct 2026 - 1h 04min - 79 - Grjótharðar gegn ríkisvæðingu á öllum sviðumWed, 14 Oct 2026 - 55min
- 78 - Skrítin stemning og skellur framundan
Bjarnheiður Hallsdóttir og Jón Karl Ólafsson þekkja íslenskt atvinnulíf og ferðaþjónustuna sérstaklega út og inn. Þau hafa áhyggjur af því að framundan sé skellur í atvinnulífinu, furða sig á gengi krónunnar og afstöðu stjórnvalda til ferðaþjónustunnar og skorti á langtímasýn og spá í spilin fyrir næsta ár.
Wed, 07 Oct 2026 - 57min - 77 - Skuggabankastjórnin okt/26
Skuggabankastjórnin greinir stöðu og horfur fyrir vaxtaákvörðun Seðlabankans í október 2026. Þórður Pálsson er mættur að venju og Konráð S. Guðjónsson situr fundinn að þessu sinni í fjarveru Sigurðar Hannessonar. Að venju er margt að ræða. Staða á vinnumarkaði, gengi krónunnar, umrót á alþjóðamörkuðum, fjárlögin, atvinnuleysið og blessuð verðbólgan, svo eitthvað sé nefnt. Skylduhlustun fyrir þá sem vilja vita hvað er framundan.
Sun, 04 Oct 2026 - 57min - 76 - Hvað verður um Icelandair? Og niðursveiflan framundan
Það var ekki töluð vitleysan þegar Hermann Guðmundsson, Hörður Ægisson og Sigurður Már Jónsson settust á rökstóla í Grjótkastinu um stöðu og horfur í íslensku hagkerfi. Mjög djúp niðursveifla virðist í vændum, en þó er ofsagt að allt sé að fara í skrúfuna. Miklu skiptir hvað verður um Icelandair á næstu vikum. Af hverju styrkist krónan enn? Hvað gerist þegar atvinnuleysi rýkur upp? Er ríkisstjórnin með augun á boltanum eða einhverju allt öðru?
Fri, 25 Sep 2026 - 1h 23min - 75 - Kreppa í kortunumThu, 10 Sep 2026 - 52min
- 74 - Á núna að troða okkur bakdyramegin í ESB?Sat, 05 Sep 2026 - 38min
- 73 - Allt undir fyrir Þorgerði Katrínu og Viðreisn
Andrea Sigurðardóttir þingfréttamaður Morgunblaðsins spáir í spilin fyrir komandi þjóðaratkvæði; Þorgerður Katrín leggur allt undir að já-ið verði niðurstaðan, Flokkur fólksins er í felum, Katrín Jakobsdóttir tekur á sig gusur fyrir að fylgja sannfæringu sinni og er ríkisstjórnin öðrum þræði að fá á sig mælingu á laugardaginn?
Thu, 27 Aug 2026 - 19min - 72 - Landsbyggðin skeptískari á ESB-aðildTue, 25 Aug 2026 - 20min
- 71 - ESB vill Ísland inn til að þrýsta á Noreg
Fáir þekkja innviði Evrópusambandsins betur en Dr. Gunnar Pálsson sem starfaði í utanríkisþjónustu Íslands í fjörtíu ár og var meðal annars sendiherra hjá NATO, Sameinuðu þjóðunum og Evrópusambandinu sjálfu. Hann veitir okkur einstaka innsýn í það valdatafl sem er að baki áhuga ESB á aðild Íslands og hvernig farið er með umsóknir ríkja og aðildarviðræður. Skylduhlustun.
Mon, 24 Aug 2026 - 34min - 70 - Viðreisn hefur hina stjórnarflokkana að fíflumSat, 22 Aug 2026 - 15min
- 69 - Hefur ESB-atkvæðagreiðslan áhrif á Peningastefnunefnd?
Skuggabankastjórnin kemur saman til að ræða stöðu og horfur, enda vaxtaákvörðun framundan í vikunni. Hefur þjóðaratkvæðagreiðslan um ESB áhrif á þá sem sitja í peningastefnunefnd? Verða viðfangsefnin hin sömu í haust hvort sem þjóðin segir nei eða já? Ummæli forsætisráðherra um atvinnulífið og verðbólguna koma við sögu, sem og fjárlög næsta árs sem eiga að verða hallalaus. Þýðir það alvöru hagræðingu eða enn frekari skattahækkanir?
Mon, 17 Aug 2026 - 49min - 68 - Vaxtaákvörðun og úrslit kosningaMon, 18 May 2026 - 48min
- 67 - Ríkisstjórnin sem vill ekki hlustaWed, 15 Apr 2026 - 42min
- 66 - Baráttan um ÍslandThu, 09 Apr 2026 - 1h 16min
- 65 - Hvar ertu litla saklausa Ísland?
Í þessum þætti:
Staða mála í borgarpólitíkinni, er hægt að bjarga borginni?
Ná borgaralegu öflin saman um breytingar, eða vilja sumir sjálfstæðismenn vinna með Samfylkingunni þrátt fyrir allt?
Borgarlínan og skipulagsmál og óhófleg yfirbygging borgarkerfisins með fjölda atvinnustjórnmálamanna.
Hvaða áhrif hafa Evrópumálin á kosningabaráttuna fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar?
Munu kjósendur vilja nota tækifærið og refsa stjórnarflokkunum fyrir sífellt óvinsælli ríkisstjórn?
Af hverju fáum við ekki betri skóla og kennslu, þegar við setjum meira fjármagn í þennan málaflokk en aðrar þjóðir?
Hamas-frétt Moggans og átök í undirheimunum, erum við að lenda á sama stað og hin Norðurlöndin?
Solaris-málsóknin gegn formanni Sjálfstæðisflokksins, þingsályktunartillaga Karls Gauta ofl um bann við að hylja andlit í opinberu rými.
Hundrað ára afmælis landsmálafélagsins Varðar minnst í nýrri bók.
Hvað meinar Tony Blair með því að vinstrið verði að gera upp dálæti sitt á íslamistum, sem vilja ekki aðlagast vestrænum samfélögum?
Tue, 31 Mar 2026 - 1h 14min - 64 - Féllust seðlabankastjóra hendur?
Í fyrri hluta Grjótkastsins greinir Agnar Tómas Möller stöðu efnahagsmála eftir vaxtahækkun í síðustu viku. Féllust Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra hendur í Silfrinu í gær, þegar hann reyndi að útskýra horfur framundan? Hversu slæm er staðan í reynd? Af hverju er húsnæðisverð og leiguverð að fara að lækka á næstunni og hvað þýðir þessi staða fyrir umræðuna um aðild Íslands að Evrópusambandinu?
Í seinni hluta þáttarins koma þau Einar Jóhannes Guðnason og Signý Tryggvadóttir og ræða stöðu mála í Kópavogi og Hafnarfirði í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga, þar sem þau eru bæði í framboði.
Tue, 24 Mar 2026 - 52min - 63 - Skuggabankastjórnin: Kreppuverðbólga í kortunum
Þeir eru mættir í Skuggabankastjórninni Þórður Pálsson og Sigurður Hannesson og spá í spilin fyrir vaxtaákvörðun Seðlabankans í vikunni. Rætt er um hugtakið kreppuverðbólgu (stagflation), íslenska vinnumarkaðsmódelið, Evrópuleiðangur ríkisstjórnarinnar, óvissuna á alþjóðamarkaði, vöxt báknsins og gengi krónunnar svo eitthvað sé nefnt.
Mon, 16 Mar 2026 - 53min - 62 - Sótt að landsbyggðinni úr öllum áttum
Sótt er að landsbyggðinni úr öllum áttum af ríkisstjórninni, er samdóma álit þeirra Jens Garðars Helgasonar, varaformanns Sjálfstæðisflokksins, Gunnars Braga Sveinssonar varaþingmanns Miðflokksins og fv. ráðherra og Þórarins Inga Péturssonar þingmanns Framsóknarflokksins. Þeir fara yfir pólitíska sviðið, stefnu og stöðu ríkisstjórnarinnar og sóknarfæri stjórnarandstöðunnar í snörpu spjalli.
Mon, 24 Nov 2025 - 53min - 61 - Skuggabankastjórnin spáir óvæntri vaxtalækkunFri, 14 Nov 2025 - 1h 16min
- 60 - Það er töff að vera trúaður
Söngkonan Dagbjört Rúriks varð fyrir trúarlegri frelsun sem hjálpaði henni að verða edrú. Verkfræðingurinn og athafnamaðurinn Gunnlaugur Jónsson opnaði á alvöru spurningar um trúna og fann svör sem skiptu hann máli. Hvers vegna er aukinn trúarleg vakning meðal ungs fólks? Hvaða áhrif hafði morðið á Charlie Kirk? Hversu miklu máli skiptir kristin trú í okkar daglega lífi og er ekki bara allt í lagi að tala um trúna?
Tue, 04 Nov 2025 - 48min - 59 - Allt um botnfrosinn fasteignamarkað á mannamáliFri, 31 Oct 2025 - 1h 00min
- 58 - Vinstri femínistar eiga ekki jafnréttisumræðuna
Félagsfræðingurinn Heiðdís Geirsdóttir og foreldrafræðingurinn og uppeldisráðgjafinn Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir Waage ræða jafnréttismál í víðum skilningi, velferð og nám barna, símabann í skólum, leikskólamál í Kópavogi og í Reykjavík, skóla án aðgreiningar, líðan barnanna okkar og margt fleira í sérlega áhugaverðu spjalli.
Tue, 21 Oct 2025 - 50min - 57 - Pólitísk vakning og ferðalag ungrar konu frá VG og Stundinni yfir í Miðflokkinn
Félagsfræðingurinn Hlédís Maren var í ungliðastarfi VG og blaðamaður á Stundinni, en lætur nú til sín taka í Miðflokknum og sat landsþing hans um helgina. Þar var líka hlaðvarparinn Þórarinn Hjartarson sem einnig er stjórnmálafræðingur og hnefaleikaþjálfari. Þau ræða aukinn áhuga ungs fólks á stjórnmálum, nýjar áherslur kvenna í jafnréttismálum, komandi sveitarstjórnarkosningar og margt fleira í stórfróðlegu spjalli sem vekja mun mikla athygli.
Tue, 14 Oct 2025 - 1h 05min - 56 - Hvað er eiginlega að gerast?
Er kreppa í kortunum samfara óvissu um stríðsátök? Hvers vegna gengur ekkert að ná verðbólgunni niður? Hvaða vandamál hrjáir íslenska hlutabréfamarkaðinn? Hvers vegna er ákveðnum hópi haldið nauðugum á leigumarkaði? Hvað er eiginlega framundan í efnahagsmálum heimsins og hvaða áhrif hefur það hér á landi. Agnar Tómas Möller fjárfestir og einn okkar helsti greinandi í þeim efnum svarar því á dýptina í áhugaverðu spjalli við Björn Inga Hrafnsson.
Fri, 26 Sep 2025 - 58min - 55 - Hvað má ræða og hvað ekki? Menningarstríðin hin nýju
Menningarstríðin hin nýju, þar sem margir hreinlega standa á orginu og telja að fólk annarrar skoðunar megi helst hvergi þrífast setja mark sitt á alla umræðu, ekki bara á Íslandi heldur um allan heim. Hvers vegna er skautunin svo mikil og óþol fyrir andstæðum skoðunum? Morðið á Charlie Kirk, staða Þjóðkirkjunnar, hin ömurlegu átök fyrir botni Miðjarðarhafs og margt fleira eldfimt til umræðu og gestir eru sr. Örn Bárður Jónsson prestur, Snorri Másson alþingismaður Miðflokksins og Stefán Einar Stefánsson fjölmiðlamaður og siðfræðingur.
Tue, 16 Sep 2025 - 1h 04min - 54 - „Ég varð að fá að kveðja hana Margréti mína“
Guðni Ágústsson, fv. ráðherra, í einkar einlægu og mannlegu spjalli um makamissinn, en eiginkona hans til áratuga, Margrét Hauksdóttir, féll frá fyrr á árinu. Guðni segir frá Njáluástríðu sinni og stórum verkefnum sem henni tengjast og spáir í spilin í pólitíkinni. Hann segir vá fyrir dyrum í heimsmálunum og hér heima við sé ljóst að Framsóknarflokkurinn þurfi nýjan formann; Sigurður Ingi Jóhannsson geri sér vel grein fyrir því.
Wed, 10 Sep 2025 - 55min - 53 - Hver eru tækifæri Íslands í gjörbreyttri heimsmynd?
Hér er nú ekki töluð vitleysan! Konráð S. Guðjónsson hagfræðingur og fv. efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar, Álfrún Tryggvadóttir hagfræðingur og sérfræðingur hjá OECD og Bergþóra Halldórsdóttir hjá Borealis Data Center og stjórnarmaður í Samtökum iðnaðarins ræða gjörbreytta stöðu í heimsviðskiptunum og tækifæri og ógnir sem Ísland stendur frammi fyrir. Er að koma kreppa ofan á tal um ófrið í heiminum? Hvernig takast ríkisstjórnir hér á landi og annars staðar á við nauðsynlega hagræðingu? Er hagsmunum Íslands betur borgið innan ESB og ber að flýta þjóðaratkvæði? Er lögmál að báknið stækki endalaust? Hverjar eru horfurnar hér á landi og á alþjóðavísu við gjörbreyttar aðstæður? Umræða fyrir þá sem vilja vita meira.
Sat, 12 Apr 2025 - 1h 16min - 52 - Er allt að fara í skrúfuna? Staðan skýrð á mannamáli
Stefán Einar Stefánsson og Hörður Ægisson rýna í ótrúlega stöðu á heimsmörkuðum vegna tollastríð Trumps Bandaríkjaforseta, þar sem allt var eldrautt fyrir helgi og óttast að botninum sé ekki náð. Hvað þýðir þetta fyrir Ísland og viðskiptalífið hér á landi? Verður ríkisstjórnin að taka U-beygju í snatri í áformum um tvöföldun veiðileyfagjalds og álögur á ferðaþjónustuna? Er ætlunin að flýta þjóðaratkvæði um aðild Íslands að Evrópusambandinu? Skylduhlustun fyrir alla sem vilja vera með á nótunum, en mögulega ekki sérlega notalegar vangaveltur rétt fyrir svefninn!
Mon, 07 Apr 2025 - 59min - 51 - Tvær grjótharðar láta gamminn geisa
Þær kalla ekki allt ömmu sína, þær Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, og Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins og fv. ráðherra. Í Grjótkasti dagsins er fjallað um ríkisstjórnina og hundrað fyrstu dagana, tvöföldun veiðigjalda og slaginn sem framundan er um sjávarútvegsmálin, stöðuna í stjórnmálunum, nýja forystu Sjálfstæðisflokksins og fl.
Tue, 01 Apr 2025 - 1h 08min - 50 - 100 daga ríkisstjórn og fyrsti ráðherrann fallinn, Trump, tollastríð og undarlegt ferðalag til Brussel
Guðmundur Fertram Sigurjónsson í Kerecis og Hermann Guðmundsson í Kemi mæta í Grjótkastið og ræða nýjustu tíðindi: Afsögn barnamálaráðherra á hundrað daga afmæli ríkisstjórnarinnar, hvort rannsaka eigi bakgrunn nýrra ráðherra, furðulegt ferðalag ríkisstjórnarinnar til Brussel, Trump og áherslur hans, tollastríðið sem framundan er, innanlandsflugið, pólitíkina almennt og margt fleira. Allt sem þú þurftir að vita um helstu mál!
Fri, 21 Mar 2025 - 1h 12min - 49 - Margeir í Úkraínu: Allir sammála Trump um að þetta stríð verði að enda
Stórmeistarinn og bankamaðurinn Margeir Pétursson hefur verið búsettur undanfarin ár í Úkraínu og þekkir því manna best hvernig innrásarstríð Rússa hefur bitnað á landinu og íbúum þess. Fyrir þremur árum tæpum -- þegar stríð var nýlega hafið -- fór Björn Ingi Hrafnsson til Úkraínu og heimsótti Margeir og stríðsslóðir í austurvegi. Nú eiga þeir samtal aftur, þegar gífurlegur fjöldi hefur fallið í herjum beggja ríkja og ræða möguleika á friði, hvort sem er varanlegur eða tímabundinn; áhrif Trumps Bandaríkjaforseta, vopnavæðingu Evrópu og hvað er eiginlega framundan í alþjóðamálunum. Samtalið er skylduhlustun fyrir þá sem vilja vera með á nótunum!
Sun, 16 Mar 2025 - 41min - 48 - Evrópa vígvæðist á methraða, verðbólgusamningar við kennara og hvað gerir Valhöll nú?
Stefán Einar Stefánsson blaðamaður og þáttastjórnandi og Sigríður Mogensen hjá Samtökum iðnaðarins gera upp magnaðan landsfund Sjálfstæðisflokksins og næstu skref í Valhöll. Trump er í öllum fréttum og Evrópa vígvæðist í ofboði og hvað þýðir það fyrir Ísland? Hvers vegna sitjum við eftir þegar kemur að gervigreindinni? Hvað gerum við ef sæstrengirnir okkar verða klipptir í sundur? Kannast ríkisstjórnin ekki við eigin hagræðingartillögur og eru þær nóg? Hefur verðbólgunni aftur verið hleypt af stað með samningum við kennara?
Sat, 08 Mar 2025 - 1h 12min - 47 - Hvað á borgaralegu fólki eiginlega að finnast um þetta allt saman?
Það eru alveg ótrúlegir tímar; hvort sem litið er á alþjóðamálin þar sem allt er í steik eða í innlendum stjórnmálum. Vigdís Häsler og Friðjón R. Friðjónsson ræða Trump og Úkraínu, stöðu NATO, varnir Íslands, Evrópusambandið, ríkisstjórnina og stöðu Flokks fólksins, væntanlegan nýjan meirihluta í borginni og komandi landsfund Sjálfstæðisflokksins þar sem kjósa á nýja forystu.
Thu, 20 Feb 2025 - 58min - 46 - Svandís Svavars rýfur þögnina og fyrstu dagar þingmannsins Jóns Gnarr
Nú þegar þing er að koma saman, vonum seinna, eftir alþingiskosningar, og spjót standa á ríkisstjórn Valkyrjanna kemur Svandís Svavarsdóttir, formaður VG, í Grjótkastið og rýfur þögnina eftir skellinn mikla þar sem flokkurinn datt af þingi. Er VG búið að vera? Hvað varð um vinstrið á Íslandi? Jón Gnarr, fv. borgarstjóri og forsetaframbjóðandi, er hins vegar nýr þingmaður og segir frá fyrstu dögunum í því hlutverki. Saman greina þau stöðuna, tíðindi úr borgarmálunum, stöðu stjórnarinnar og margt fleira í athyglisverðu spjalli. Beðist er velvirðingar á smávægilegum hljóðtruflunum framarlega í þættinum.
Fri, 07 Feb 2025 - 57min - 45 - Hvernig formann þarf Sjálfstæðisflokkurinn?
Júlíus Viggó Ólafsson, formaður Heimdallar, og Andri Steinn Hilmarsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, ræða átakamenningu stríðandi fylkinga í Sjálfstæðisflokknum í aðdraganda landsfundar. Geta öll dýrin í skóginum verið vinir? Er Áslaug Arna svarið við pólitískum vandræðum Sjálfstæðisflokksins til framtíðar? Hvað gera Guðlaugur Þór og Guðrún Hafsteinsdóttir? Ræður elíta flokknum eða hefur hinn almenni flokksmaður einhver áhrif? Hvernig er hægt að ná aftur til venjulegs lág- og millitekjufólks? Hvernig virkar flokksskrifstofan í Valhöll? Nær ríkisstjórnin vopnum sínum eftir brösótta byrjun eða halda vandræði Flokks fólksins áfram?
Tue, 28 Jan 2025 - 1h 11min - 44 - Flokkur fólksins í ólgusjó og valdatafl í Valhöll
Þótt ríkisstjórnin sé á sínum fyrstu vikum og þing ekki enn komið saman eftir kosningar, er Flokkur fólksins strax kominn í vörn, sumir myndu segja nauðvörn. Framundan er valdatafl í Valhöll og algjör forystuskipti í Sjálfstæðisflokknum. Hvernig fer stjórnarsamstarfið af stað? Hvað er með Kristrúnu og Dag? Andrés Magnússon á Morgunblaðinu og varaborgarfulltrúinn Sandra Hlíf Ocares greina stöðuna með Birni Inga í bráðskemmtilegu og áhugaverðu Grjótkasti.
Thu, 23 Jan 2025 - 1h 01min - 43 - Flokkur fólksins ekki bara upp á punt
Sr. Halldór Gunnarsson (kenndur við Holt) tók þátt í stofnun Flokks fólksins ásamt Ingu Sæland og fleira fólki og varpar hér óvæntu og fréttnæmu ljósi á styrk flokksins við ríkisstjórnarborðið. Segir hann að enginn skyldi vanmeta Ingu; hún hafi ýmis vopn upp í erminni. Halldór í Holti rýnir í stöðuna í Grjótkastinu hjá Birni Inga ásamt Jóni Baldvin Hannibalssyni, fyrrverandi utanríkisráðherra og formanni Alþýðuflokksins og talið berst að mögulegri aðild Íslands að Evrópusambandinu, breyttum heimi og hættunni á stórstyrjöld, hlutverki Íslands í hernaðarkapphlaupi nútímans og mörgu fleiru.
Thu, 16 Jan 2025 - 1h 17min - 42 - Ótrúlega áhugaverðir tímar: Af hverju er allt upp í loft í pólitíkinni um allan heim?
Grjótkastið heilsar nýju ári með greiningu úr efstu hillu þar sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fv. forsætisráðherra, og Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins og fv. ráðherra og þingmaður setjast niður með Birni Inga í níutíu mínútur og fara yfir hið pólitíska landslag; brotthvarf Bjarna Ben, fyrstu daga Valkyrjustjórnarinnar, ótrúlega atburðarás sem er að teiknast upp á alþjóðavettvangi og margt fleira í fróðlegu og að mörgu leyti sögulegu spjalli, sem vekja mun mikla athygli.
Wed, 08 Jan 2025 - 1h 27min - 41 - Miskunnarlausir strigakjaftar II: Uppgjör við áramótSat, 28 Dec 2024 - 1h 10min
- 40 - Draumalandið vs. Hugmyndalandið
Nú eru tæp tuttugu ár frá því Andri Snær Magnason rithöfundur sendi frá sér bókina Draumalandið — sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð sem hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin og var síðar kvikmynduð. Stóriðjustefna stjórnvalda var þar gagnrýnd og áhersla á virkjanir. Bókin hafði mikil áhrif og í hönd fór það sem kallað hefur verið kyrrstaða í orkumálum Íslendinga. Er Andri Snær höfundur kyrrstöðunnar sem Íslendingar kusu burt á dögunum? Vill hann virkja frekar og þá hvar? Stórmerkilegt uppgjör þar sem Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins ræðir við rithöfundinn um orkuskort, hækkandi orkuverð, möguleika Íslendinga til framtíðar og óvissuna sem umlykur okkur á öllum sviðum.
Thu, 19 Dec 2024 - 1h 53min - 39 - Óttast atvinnulífið ríkisstjórn Valkyrjanna?
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, betur þekktur sem Binni í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum, og Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar og fv. aðstoðarmaður forsætisráðherra, koma í Grjótkastið og ræða væntingar atvinnulífsins til ríkisstjórnar valkyrjanna sem verið er að reyna að mynda. Hvor verður forsætisráðherra, Kristrún eða Þorgerður? Ásælist ESB auðlindir okkar? Þolir atvinnulífið þyngri skattlagningu? Nær Bjarni Ben áramótaávarpinu? Hvaða áhrif hefur tollastríð í íslenskt efnahagslíf? Og ótalmargt fleira um ferðaþjónustu, sjávarútveg og fjölmargt fleira.
Mon, 16 Dec 2024 - 1h 09min - 38 - Erum við að sigla inn í nýja heimsstyrjöld?Wed, 11 Dec 2024 - 57min
- 37 - Sjálfstæðisflokkurinn þarf núna að uppfæra stýrikerfið sitt
Nú þegar stjórnarmyndunarviðræður valkyrjanna þriggja standa yfir, fær sjálfstæðisfólk tækifæri til að melta úrslit kosninganna og horfa inn á við. Í Grjótkastinu útiloka hvorki Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir né Guðlaugur Þór Þórðarson framboð til formanns á komandi landsfundi í febrúar og greina möguleika Sjálfstæðisflokksins til framtíðar. Hér kemur ansi margt áhugavert fram, sem vitnað verður til.
Fri, 06 Dec 2024 - 1h 10min - 36 - Grjótkastið með alvöru kosningauppgjör: Hver er sætasta stelpan á ballinu?
Alvöru uppgjör í Grjótkastinu, þar sem Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir úr Viðreisn og Bergþór Ólason úr Miðflokki draga ekkert úr sigrum sinna flokka í samtali við Björn Inga á Viljanum, en setja líka upp hatta álitsgjafanna og greina í smáatriðum nýliðna kosningabaráttu og úrslit kosninganna, auk þess sem rýnt er í möguleikana varðandi nýja ríkisstjórn. Í heimsókn kemur Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, sem kynnir Stefnumálareikni ráðsins, þar sem landsmönnum gefst kostur á að skoða hvaða flokkar og stefnumál passa best inn í nýja ríkisstjórn. Ómissandi konfekt fyrir allt áhugafólk um stjórnmál.
Mon, 02 Dec 2024 - 1h 16min - 35 - Grjótkast á útopnu: Hver fær umboðið til stjórnarmyndunar?
Grjótkastið á mannamáli með tveimur konum sem kalla ekki allt ömmu sína og þora að hafa skoðanir. Ólöf Skaftadóttir og Vigdís Häsler setjast niður með Birni Inga og greina stöðuna fyrir stóra daginn, það er komið að kosningum og allt getur gerst. Þáttur sem enginn ætti að missa af, sem vill vera með á nótunum.
Fri, 29 Nov 2024 - 1h 04min - 34 - Grjótkast Bjarna Ben og SDG: 120 mínútur af fyrirsögnum
Hér koma 120 mínútur af alvöru Grjótkasti, þar sem Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins og fv. Forsætisráðherra, mætast hjá Birni Inga á Viljanum og ræða lokadaga kosningabaráttunnar, hvaða staða sé að teiknast upp og hvernig koma megi í veg fyrir vinstri stjórn sem ætlar í Evrópusambandið.
Rætt er og rifist um borgarlínuna og samgöngusáttmálann á höfuðborgarsvæðinu, hælisleitendur og stjórn á landamærunum, skatta og ESB, jafnlaunavottun, innri mál Sjálfstæðisflokksins, orkumál og sókn Viðreisnar og Flokk fólksins og fylgisþróun almennt.
Bjarni og Sigmundur vilja báðir borgaralega ríkisstjórn sem lækki skatta og taki til hendinni og segja að staðan í könnunum nú, segi ekkert um það sem kemur upp úr kössunum um næstu helgi.
Þáttur sem er fullur af fyrirsögnum!
Mon, 25 Nov 2024 - 2h 00min - 33 - Allt að verða vitlaust: Obba og Gulli í spennuþrungnu Grjótkasti
Spennan var rafmögnuð í hljóðveri Grjótkastsins þegar Guðlaugur Þór Þórðarson (Gulli) umhverfisráðherra og Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir (Obba) þingkona Viðreisnar mættust hjá Birni Inga, enda birtist rosaleg könnun Prósents um fylgi flokkanna fyrir Moggann meðan á upptöku stóð, en þar sýnist Viðreisn vera nánast tvöfalt stærri en Sjálfstæðisflokkurinn. Gulli varar við vinstri slysum, en Obba bendir honum þá að sjálfur sé hann að koma úr sjö ára vinstri stjórnarsamstarfi. Af hverju gengur stjórnarflokkunum svona illa í baráttunni? Hvað gerist á lokasprettinum? Erum við á leið í ESB, er Reykjavíkurmódelið að teiknast upp í landsmálunum og Obba setur fram áskorun á Gulla í borgarmálunum. Eftirminnilegur þáttur!
Fri, 22 Nov 2024 - 1h 13min - 32 - Grjótkast á sterum: Eyþór Arnalds og Vigdís Hauks um lokadaga kosningabaráttu sem skipt geta sköpum
Grjótkastið er á sterum í dag, en Vigdís Hauksdóttir lögmaður og fv. alþingismaður og borgarfulltrúi og Eyþór Arnalds tónlistarmaður og fv. borgarfulltrúi mæta til Björns Inga og tala umbúðalaust um kosningaherferðir flokkanna, hvað er að virka og hvað alls ekki. Spáð er afsögn formanns stjórnmálaflokks á sjálfa kosninganótt, vill þjóðin ESB? Var afleikur hjá Þorgerði Katrínu að segja í Grjótkastinu að Sjálfstæðisflokkurinn sé vart stjórntækur? Rætt er um slaufunarmenningu, Þórðarmál, Klaustur og fyrirgefningu syndanna, svo eitthvað sé nefnt. Klukkutíma sem er vel varið!
Tue, 19 Nov 2024 - 57min - 31 - Grjótkast Kristrúnar og Þorgerðar: Hvor verður forsætisráðherra? Þjóðaratkvæði um ESB, skattar og vandræði frambjóðenda
Hér koma 72 mínútur af pólitískri þungavigt: Er Sjálfstæðisflokkurinn orðinn óstjórntækur? Hvernig finnst Kristrúnu Þórðarmál vera fyrir Samfylkinguna. Alma Möller og Jón Gnarr eru ráðherrakandídatar. Heilbrigðismál í ólestri, rifist um skattastefnu og bankasölu, af hverju er Viðreisn hætt að vera leiðinleg og orðin skemmtileg? Skiptir máli að kynna útfærða stefnu, eða er það hættulegt? Og margt fleira í þætti sem vitnað verður til.
Fri, 15 Nov 2024 - 1h 12min - 30 - Grjótkastið: Tilfinningaþrungið uppgjör borgaralega þenkjandi fólks og ný könnun
Í eftirminnilegu Grjótkasti mætast þau Brynjar Níelsson og Sigríður Á. Andersen og ræða erfiða stöðu ríkisstjórnarflokkanna og Sjálfstæðisflokksins sérstaklega, ruglið með borgarlínuna, skattamál og vandræði Samfylkingarinnar, ris Viðreisnar, möguleikann á borgaralegri ríkisstjórn og útþenslu báknsins á öllum sviðum. Kynnt er ný könnun Maskínu fyrir Viljann um viðhorf til hægri/vinstri ríkisstjórnar.
Mon, 11 Nov 2024 - 1h 12min - 29 - Grjótkastið: Svandís og Þórdís á trúnó um lok stjórnarsamstarfsins, furðulega kosningabaráttu og heiminn eftir risasigur Trumps
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins og utanríkisráðherra og Svandís Svavarsdóttir formaður VG og fv. ráðherra í stórmerkilegu Grjótkastsspjalli við Björn Inga á Viljanum. Hér er farið á trúnó um hin furðulegu lok stjórnarsamstarfsins, hvort mistök voru gerð fyrir þremur árum um að endurnýja samstarfið, erfiða stöðu allra stjórnarflokkanna í kosningabaráttunni nú, hræðsluna við að toppa of snemma, átökin um vinstri og hægri, skattamál og baráttu VG fyrir lífinu hvorki meira né minna. Trúnó og greiningar á dýptina sem áhugafólk um stjórnmál ætti ekki að missa af.
Fri, 08 Nov 2024 - 52min - 28 - Grjótkastið: Örlagarík heimsókn til Kristrúnar, Gnarr-áhrifin, sigur Trumps og galdurinn að toppa á réttum tíma
Lilja Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra og Jóhann Páll Jóhannsson alþingismaður í stórskemmtilegu spjalli um spennandi tíma! Örlagarík heimsókn til Kristrúnar Frostadóttur. Hverju breytir það í kosningabaráttunni hér að Donald Trump hafi sigrað í Bandaríkjunum? Er varnarsamningi okkar ógnað? Kemst ESB-aðild þá á dagskrá? Er Jón Gnarr hvalreki Viðreisnar? Hvernig toppar maður akkúrat á réttum tíma og hvað gerir Framsókn á lokasprettinum?
Wed, 06 Nov 2024 - 1h 04min - 27 - Grjótkast Dags og Áslaugar: 113 mínútur af alvöru pólitík
Engu skiptir hvort reynt er að stilla þeim Degi B. Eggertssyni og Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur upp sem aðal- eða aukaleikurum, pólitíkin þeirra nær alltaf máli og þetta 112 mínútna langa Grjótkast hjá Birni Inga sætir miklum tíðindum. Hvaða ríkisstjórn fáum við Íslendingar fyrir jól? Verður kosið um Reykjavíkurmódelið? Á að hækka eða lækka skatta? Borgarlínan, Sundabraut, samgöngusáttmálinn, verkfall kennara, staðan í heilbrigðiskerfinu, skólamálin, ríkisstjórnin og kosningarnar - allt er hér undir.
Sun, 03 Nov 2024 - 1h 53min - 26 - Grjótkastið: Víðir kvíðir ekki pólitík og Bergþór tæklar Kragann
Björn Ingi með Grjótkast af dýrari gerðinni: Víðir Reynisson er hættur að halda upplýsingafundi og kominn í pólitík, hvernig kom það til og við hverja ræddi hann í aðdragandanum? Þarf að gera Covid-tímabilið upp? Hvernig sér hann deilur Kristrúnar og Dags? Miðflokkur mælist með hörkufylgi í Norðvestur, en samt flytur Bergþór Ólason sig um set. Hvers vegna? Skipta upprifjanir á Klaustursmálum máli í þessari kosningabaráttu? Eru sjálfstæðismenn pirraðir á Miðflokknum? Hvernig þróast kosningabaráttan? Og hvaða ríkisstjórn fáum við?
Wed, 30 Oct 2024 - 1h 15min - 25 - Grjótkastið: Miskunnarlausir strigakjaftar
Hérna eru 80 mínútur sem þú vilt alls ekki missa af. Ólöf Skaftadóttir og Stefán Einar Stefánsson fara á kostum í Grjótkastinu með Birni Inga þar sem rætt er um komandi kosningar, innanflokksmein í Valhöll þar sem forystan hefur gert ítrekuð mistök, þríeykið, vanda vinstri flokkanna, framboð lukkuriddara og mögulega ríkisstjórn. Hverjir fara á þing og hverjir verða fyrir vonbrigðum?
Wed, 23 Oct 2024 - 1h 09min - 24 - Nú þarf meirihlutinn að ráða
Guðmundur Fertram Sigurjónsson frumkvöðull á Ísafirði, hefur tekið forystu um Vestfjarðalínuna, verkefni sem byggir á efnahagsundrinu sem orðið hefur til á Vestfjörðunum undanfarin ár, en kallar eftir stórauknum innviðum og meiri uppbyggingu. Hann gagnrýnir í spjalli við Björn Inga boðaðar breytingar á rekstrarumhverfi nýsköpunarfyrirtækja sem boðaðar eru í fjárlögunum sem nú liggja fyrir þinginu, talar upp sjávarútveginn og eldisiðnaðinn og talar um komandi þingkosningar, borgarlínuna sem þenst út í áætlunum meðan tækniþróun bendir í aðra átt og leggur áherslu á að meirihluti þjóðarinnar vilji sjálfbæra nýtingu auðlinda og verðmætasköpun, en aðeins lítill minnihluti ekki. Meirihlutinn verði nú að fá að ráða för.
Sun, 20 Oct 2024 - 50min - 23 - Kosningar draga úr óvissu
Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins ræða komandi kosningar, helstu verkefni næstu ríkisstjórnar og áskoranir atvinnulífsins eftir langvarandi pólitíska óvissu. Hefur þróun mála áhrif á vaxtalækkunarferlið? Hver eru stærstu verkefnin? Hvað er framundan?
Fri, 18 Oct 2024 - 55min - 22 - Grjótkastið v. Össur og Þorsteinn ræða ótrúlega stöðu
Þorsteinn Pálsson fv. forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins og Össur Skarphéðinsson fv. utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar ræða við Björn Inga um hina ótrúlegu stöðu sem komin er upp í íslenskum stjórnmálum og einnig nýútkomnar dagbókarfærslur Ólafs Ragnars Grímssonar fv. forseta.
Fri, 11 Oct 2024 - 1h 34min - 21 - Grjótkastið iv. þáttur: Þorbjörg ætlar sér stóra hluti
Þorbjörg Gunnlaugsdóttir og Ólöf Skaftadóttir ræða við Björn Inga um stöðuna í stjórnmálunum eftir landsfund VG, kosningabaráttu sem er hafin, aukna stemningu í Viðreisn með innkomu Jóns Gnarr, vandræði Sjálfstæðisflokks og Framsóknar, sókn Samfylkingarinnar og Miðflokks og fl. Þorbjörg lýsir yfir framboði til oddvita Viðreisnar í Reykjavík í þættinum, svo þar er útlit fyrir spennandi prófkjör.
Mon, 07 Oct 2024 - 44min - 20 - Grjótkastið iii. þáttur: Bjarni Benediktsson tekur mjög mikla áhættu
Ólöf Skaftadóttir og Brynjar Níelsson ræða við Björn Inga um nýja ríkisstjórn undir forsæti Bjarna Ben, áhættuna sem hann tekur með Sjálfstæðisflokkinn, hvers vegna Sigmundur Davíð og Kristrún eru núna kampakát, hvort erindi Viðreisnar er horfið og kannski Pírata líka, komandi forsetakosningar og æluna sem margir þurfa nú að kyngja (enn einn ganginn).
Wed, 10 Apr 2024 - 41min - 19 - Grjótkastið ii. þátturThu, 21 Mar 2024 - 38min
- 18 - Grjótkastið i. þátturFri, 15 Mar 2024 - 58min
- 17 - Guðni Th. Jóhannesson fagnar endurkjöri
Guðni Th. Jóhannesson sest niður með Birni Inga Hrafnssyni og ræðir kosningasigurinn í gær, harðvítuga kosningabaráttu, skýrt umboð kjósenda og það sem framundan er.
Sun, 28 Jun 2020 - 28min - 16 - Væntanleg bók um Ísland og Covid-19.
Björn Ingi segir frá bók sem hann er með í smíðum og kemur út í lok næsta mánaðar. Einnig er sagt frá hausverk aldarinnar, sem er opnun landsins 15. júní nk.
Tue, 09 Jun 2020 - 08min - 15 - Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknirFri, 08 May 2020 - 41min
- 14 - Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra er gestur Björns Inga í Hlaðvarpi Viljans: Hvernig náum við aftur fyrri styrk og komum tugþúsundum Íslendinga aftur í vinnu? Voru mistök að lýsa því yfir að segjast frekar ætla að gera meira en minna? Ætla kjörnir fulltrúar að endurskoða eigin launahækkanir? Stendur ríkissjóður undir þessu öllu? Á að opna landið aftur á næstunni fyrir ferðamönnum? Hvenær verða kosningar og ætlar Bjarni að halda áfram og taka þátt í endurreisn Íslands?
Thu, 07 May 2020 - 1h 20min - 13 - Styrmir Þór Bragason forstjóri Arctic Adventures.
Ferðamannasumarið 2022 gæti orðið mjög gott, segir forstjóri Artic Adventures. Hann ræðir þá ótrúlegu stöðu sem ferðaþjónustan hér á landi og heiminum er komin í vegna kórónuveirunnar og segir ljóst að fjölmörg fyrirtæki muni verða gjaldþrota. Kallað sé eftir almennum aðgerðum fyrir þessa mikilvægu atvinnugrein og vonandi fari eitthvað að sjást til lands með komu ferðamanna í vetur og á næsta ári. Áhuginn á Íslandi sé enn til staðar og nauðsynlegt að geta haldið uppi ferðaþjónustu til framtíðar.
Sun, 26 Apr 2020 - 15min - 12 - Bjarnheiður Hallsdóttir og Jóhannes Þór Skúlason frá Samtökum ferðaþjónustunnar.
„Þetta er móðir allra krísa“ segir Bjarnheiður Hallsdóttir formaður Samtaka ferðaþjónustunnar. „Staðan er grafalvarleg og bregðast verður við strax af hálfu stjórnvalda, ef ekki á að fara mjög illa,“ segir Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri samtakanna. Þau ræða við Björn Inga Hrafnsson í Hlaðvarpi Viljans um þá ótrúlegu stöðu sem upp er komin í kórónuveirufaraldrinum og með lokun landsins og hruni ferðamennsku í heiminum, amk. tímabundið.
Sat, 18 Apr 2020 - 28min - 11 - Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Stjórnvöld munu grípa til frekari aðgerða til að koma heimilunum og atvinnulífinu gegnum efnahagshrunið af völdum kórónuveirunnar.
Thu, 16 Apr 2020 - 32min - 10 - Birna Íris Jónsdóttir um netverslun.
Vörn snúið í sókn -- sóknarmöguleikar í netverslun á óvissutímum -- Birna Íris Jónsdóttir, rekstrarstjóri upplýsingatækni og stafrænnar þróunar hjá Högum, ræðir við Björn Inga Hrafnsson í Hlaðvarpi Viljans um byltinguna sem hefur orðið í netverslun vegna Kórónuveirunnar og hvort við munum nokkru sinni hverfa alveg aftur til fyrri hátta.
Sat, 11 Apr 2020 - 18min - 9 - Dr. Sigurður Hannesson frkvst. Samtaka iðnaðarins
Dr. Sigurður Hannesson segir að á fyrstu árum þessarar aldar hafi ofuráhersla verið lögð hér á uppbyggingu fjármálakerfis. Hrunið 2008 hafi gjörbreytt þeirri stöðu. Við hafi tekið ofuráhersla á uppbyggingu ferðamannaþjónustu og algjört uppnám sé í þeim geira hér á landi og á alþjóðavísu. Á þriðja áratug aldarinnar þurfi að leggja áherslu a fjölbreytni, ekki eina atvinnugrein í einu heldur margar og huga að nýsköpun og þróun þar sem hugvitið muni leika lykilhlutverk á 21. öldinni. Það sé ljós við enda ganganna, þótt næstu mánuðir og misseri verði erfið og mikilvægt sé að nýta tímann vel og huga að innviðum til þess að viðspyrnan verði þeim mun meiri þegar veiran fer að hopa og hagkerfi heimsins aftur að snúast.
Wed, 08 Apr 2020 - 22min - 8 - Frosti Sigurjónsson fv. þingmaður
Frosti Sigurjónsson vill fylgja fordæmi Færeyinga og ýmissa Asíuþjóða í því að stöðva Kórónuveiruna.
Tue, 07 Apr 2020 - 21min - 7 - Algjört hrun í íslensku viðskiptalífi
Viðskiptaritstjórar Fréttablaðsins og Morgunblaðsins segja að fæstir geri sér grein fyrir því hve staðan í íslensku atvinnulífi sé alvarleg. Framundan sé blóðugur tími, þar sem tugþúsundir missi vinnuna, mörg fyrirtæki verði gjaldþrota og átök verði í samfélaginu þegar fjármálastofnanir þurfi að ákveða hverjum skuli bjargað og hverjum ekki. Í Hlaðvarpi Viljans ræða þeir Stefán Einar Stefánsson og Hörður Ægisson við Björn Inga Hrafnsson um uppgjörið sem framundan er. Samstarf ríkisstjórnarflokkanna sé tekið að súrna, velta þurfi því upp hvernig Icelandair verði bjargað í samstarfi ríkisins, kröfuhafa og hluthafa og sá möguleiki verði skoðaður að setja félagið í þrot í núverandi mynd og reisa nýtt félag á nýrri kennitölu. Ekki sé hægt að reka félagið áfram með núgildandi kjarasamningum við áhafnir flugvéla fyrirtækisins. Þeir segja happ að forsvarsmönnum nýja flugfélagsins Play hafi ekki tekist að koma því í loftið áður en Kórónuveirufaraldurinn skall yfir og rústaði flugsamgöngum í heiminum. Opinberir starfsmenn þurfi að sæta einhverjum kjaraskerðingum til framtíðar eigi ekki að verða tvær þjóðir í landinu og grípa verði til niðurskurðar í opinberum rekstri.
Sat, 04 Apr 2020 - 46min - 6 - Dr. Haraldur Briem fv. sóttvarnalæknir
Dr. Haraldur Briem, fyrrverandi sóttvarnalæknir, segir að mótefnamælingar skorti mjög til þess að kanna raunverulega útbreiðslu Kórónaveirunnar Covid-19. Hann fagnar því að til standi að hefja slíkar mælingar hér og telur fullvíst að niðurstöður úr slíkum prófunum sýni fram á að miklu fleiri séu smitaðir hér af veirunni eða hafi smitast, en við gerum okkur grein fyrir. Haraldur var sóttvarnalæknir á Íslandi um langt árabil. Hann ræðir í Hlaðvarpi Viljans við Björn Inga Hrafnsson um veirufaraldurinn nú og setur hann í sögulegt samhengi. Segir hann einkar áhugavert að sjá hve veiran stingur sér misilla niður hjá einstökum þjóðum og veltir fyrir sér hvenær við Íslendingar getum farið að lifa aftur eðlilegu lífi. Hann ræðir umtalaðar kenningar faraldsfræðinnar um hjarðónæmi, hugmyndir um sóttvarnir innan einstakra landa með vísan til aðgerða gegn spænsku veikinni og tjáir sig um framgöngu þríeykisins á daglegum upplýsingafundum Almannavarna.
Fri, 03 Apr 2020 - 19min - 5 - Þór Sigfússon stofnandi Íslenska sjávarklasans
Hver eru helstu tækifæri Íslands þegar Kórónaveirufaraldurinn verður yfirstaðinn? Hvað getum við lært af gjörbreyttum aðstæðum?
Fri, 27 Mar 2020 - 14min - 4 - Atli Árnason heimilislæknir í Norðurþingi.
Hér kemur fram hörð gagnrýni á sóttvarnalækni og aðgerðir til að hefta útbreiðslu Kórónaveirunnar hér á landi. Læknar á Norðausturlandi vilja loka svæðinu af í því skyni að vernda mjög fjölmennan hóp eldri borgara en fá neitun yfirvalda í Reykjavík.
Wed, 25 Mar 2020 - 15min - 3 - Dr. Kári Stefánsson
Næstu 18-24 mánuðir verða skringilegur og erfiður tími hér á landi og annars staðar vegna Kórónaveirunnar, segir Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Áhrifa veirunnar geti gætt í fimm ár.
Mon, 23 Mar 2020 - 24min - 2 - Hlaðvarp Viljans #1: Dr. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir um Ísland og Kórónaveiruna Covid-19.
Eru aðgerðir íslenskra heilbrigðisyfirvalda að skila árangri? Er líklegt að grípa þurfi fljótlega til útgöngubanns? Hvenær getum við gert okkur vonir um að ástandið verði aftur eðlilegt?
Sat, 21 Mar 2020 - 36min
Podcasts ähnlich wie Grjótkastið
Barangay Love Stories Barangay LS 97.1 Manila | GMA Network Inc.
Good Bad Billionaire BBC World Service
Cyprian Majcher Cyprian Majcher
Die Nachrichten Deutschlandfunk
Orlofið Hafdís Arna Sigurðardóttir og Jasmín Guðrún Abu Libdeh
Podcast Wojenne Historie Historia II wojny światowej
Forensic Files HLN
Nowenna pompejańska. Świadectwa https://pompejanska.krolowa.pl/
الشيخ أحمد العجمي islami
True Crime Documentary Justin Kandell Network
WojewódzkiKędzierski Kuba Wojewódzki, Piotr Kędzierski
Læknavarpið Læknablaðið
بودكاست عقلية Moneim
Snapped: Women Who Murder Oxygen
DUDEK o polityce prof. Antoni Dudek i Super Exspress
Przemek Górczyk Podcast Przemek Górczyk
Sceny zbrodni RMF FM
Frjálsar hendur RÚV
Í ljósi sögunnar RÚV
Skuggavaldið skuggavaldid
Money News Tapt Media
Nauka To Lubię Tomasz Rożek
Żurnalista - Rozmowy bez kompromisów zurnalistapl
العلم والإيمان - د. مصطفى محمود علم ينتفع يه
Teboðið Birta Líf og Sunneva Einars
Spjallið Spjallið Podcast
The Rest Is Politics Goalhanger
Þetta helst RÚV
The Rest Is Politics: US Goalhanger
Spursmál Ritstjórn Morgunblaðsins
The Daily The New York Times
Pod Save America Pod Save America
Global News Podcast BBC World Service
Tvíhöfði tvihofdi
Flekaskil Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir og Dagur B. Eggertsson
Heimskviður RÚV
The Daily The New York Times One
Samstöðin Samstöðin
Sögur úr raunveruleikanum RÚV Hlaðvörp
Dateline NBC NBC News
Americast BBC News
Spegillinn RÚV
Rauða borðið Gunnar Smári Egilsson
Kveikur RÚV Hlaðvörp